Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Íþróttamót
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
614 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 222
Fyrr á árum voru héraðsmót USAH alltaf haldin á túninu við Kvennaskólann á Blönduósi. Þessi mynd var tekin 17. júní 1951 á einu af þessum héraðsmótum. Keppendurnir í langhlaupinu á myndinni eru frá vinstri: Guðmundur S. Guðmundsson (d.29.8.1976) Fossum, Lárus Konráðsson (d.28.3.2008)Brúsastöðum, Sigfús Guðmundsson (d.16.6.2008) Eiríksstöðum og Sigvaldi Sigurjónsson (d. ?)Rútsstöðum. (Heimild: Húnavaka 28. árg. 1988)
Ingibergur Guðmundsson 221
Fyrr á árum voru héraðsmót USAH alltaf haldin á túninu við Kvennaskólann á Blönduósi. Þessi mynd var tekin 17. júní 1951 á einu af þessum héraðsmótum. Keppendurnir á myndinni er Anna Benónýsdóttir (d. ?) til vinstri og Brynhildur Vilhjálmsdóttir (d. 7.4.2011) til hægri, báðar úr Fram á Skagaströnd og hlaupa berfættar. Þú getur svo spreytt þig á að þekkja fólk í áhorfendahópnum. (Heimild: Húnavaka 28. árg. 1988)
Ólafur Bernódusson 2 714
Víðavangshlaup umf.Fram var haldið í maí 2001. Lárus Ægir Guðmundsson stjórnaði hlaupinu af röggsemi en hann er lengst til hægri á myndinni. Krakkarnir sem þátt tóku í hlaupinu lögðu sig öll fram undir hvatningarhrópum viðstaddra. Auðvitað stóð uppi einn sigurvegari í hverjum hópi en sigurinn fólst þó fyrst og fremst í því að taka þátt og gera sitt besta.
Ingibergur Guðmundsson 225
Íþróttamenn úr Svínavatnshreppi á mynd sem tekin var fyrir 1950. Frá vinstri: Steingrímur Þorleifsson (d. ?) Sólheimum, Sigvaldi Sigurjónsson (d. ?) Rútsstöðum, Hannes Guðmundsson (d.10.9.2008) Auðkúlu, Arnljótur Guðmundsson (d.7.7.2002) Auðkúlu, Haraldur Eyþórsson (d. 25.11.2008) Syðri-Löngumýri og Jóhannes Pétursson (d. ?) Svínavatni.
Ingibergur Guðmundsson 259
Bridgeklúbbur Skagastrandar starfaði af miklum krafti í mörg ár t.d. var Bridge spilaður einu sinni í viku allan veturinn auk þess að félagið hélt keppnir fyrir Norðlendinga og klúbbmeðlimir sóttu bridgekeppnir víða um land. Á þessari mynd er Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012) að spila í Fellsborg.
Ólafur Bernódusson827
Þrjár galvaskar ungar íþróttakonur frá Skagaströnd á íþróttamóti 2. júlí 2009. Frá vinstri: Sigurlaug Máney Sæmundssen, Sigurbjörg Birta Berndsen og Guðrún Anna Halldórsdóttir. Í baksýn sér í Pál Halldórsson og móður hans Sigríði Stefánsdóttur. Stúlkurnar tvær til vinstri eru óþekktar.
Ólafur Bernódusson 2 721
Víðavangshlaup umf. Fram var haldið í maí 2001. Á myndinni eru nokkri ungir hlauparar á ráslínunni ásmat nokkrum hjálparkokkum. Frá vinstri: Róbert Björn Ingvarsson, Sæþór Bragi Ágústsson, Brynja Hödd Ágústsdóttir, Elvar Geir Ágústsson, Egill Örn Ingibergsson, Aron Breki Hjartarson, Ómar Ísak Hjartarson og óþekktur drengur.
Ingibergur Guðmundsson 187
Yngstu þátttakendurnir í víðavangshlaup umf Fram á Skagaströnd vorið 1985. Uppstillt frá vinstri eru: Elva Dröfn Árnadóttir, ? Kristjánsdóttir, Erla María Lárusdóttir, Birkir Rafn Gíslason, Sverrir Berndsen, óþekkt og Ólafur Guðmundsson. Aftan við Elvu stendur Jósef Ægir Stefánsson, aftan við Arnór er Jóhanna Sveinsdóttir, Skúli Tómas Hjartarson er aftan við Sverri og konan lengt til hægri er Eygló Gunnarsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 2 722
Víðavangshlaup umf. Fram var haldið í maí 2001. Sumum af yngstu hlaupurunum gekk illa að klára hlaupið en komu kannski gangandi í mark eftir dúk og disk. Á myndinni hleypur Ingibergur Guðmundsson með syni sínum Agli Erni Ingibergssyni síðustu metrana að marklínunni.
Ingibergur Guðmundsson 307
Þessi mynd var tekin af þátttakendum á fyrsta golfmóti Golfklúbbs Skagastrandar á Háagerðisvelli í september 1985. Frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Gunnar Borg Jónsson, Jón Ingi Ingvarsson, Sigurbjörn Kristjánsson, Guðjón Árnason, baksvipur Sigríðar Gestsdóttur, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012), Stefán Jósefsson, Tveir óþekktir, Hjörtur Guðmundsson með dökk gleraugu, Halldór Gunnar Ólafsson með rauða og hvíta húfu, óþekkt, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016), Viggó Magnússon, Ómar Jakobsson, Guðrún Pálsdóttir, Ólafur Bernódusson, Adolf H. Berndsen (fjær), Dagný Sigmarsdóttir (nær), Magnús B. Jónsson, Oliver Oliversson og Rúnar Loftsson.
Ólafur Bernódusson 2 718
Víðavangshlaup umf. Fram var haldið í maí 2001. Á myndinni rýkur einn hópur stráka af stað í hlaupið, sem var mislangt eftir aldri þátttakendanna.
Ólafur Bernódusson 2 716
Víðavangshlaup umf. Fram var haldið í maí 2001. Á myndinni er fólk að bíða eftir hlaupurum að koma í mark. Fullorðna fólkið er frá vinstri: Birna Sveinsdóttir, Slavko Velemir, Karitas Pálsdóttir, óþekktur, Ágúst Ómarsson, Jón Sveinsson, Kristín Blöndal, óþekktur, Sigþrúður Magnúsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir, Guðný Björnsdóttir, Einar Karlsson og Hjörtur Guðmundsson. Börnin eru óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 384
Starfsmenn á unglingamóti USAH á Skagastrandarvelli 10. júlí 2013 tilbúnir í tímatöku. Frá vinstri: Monika Jónasdóttir, Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, Erla Jónsdóttir og Gylfi Sigurðsson áhorfandi.
Ólafur Bernódusson790
25. janúar 2006 var haldið fjöltefli í skólanum eftir undanfarna skákkennslu. Því miður er óþekkt hver skákmaðurinn var sem tefldi við krakkana en þau eru frá vinstri: tvö óþekkt, Egill Örn Ingibergsson, Sigurbjörg Birta Berndsen, Aldís Embla Björnsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundssen, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Páll Halldórsson, Anton Þór Einarsson og Birkir Freyr Gunnarsson.
Ólafur Bernódusson997
Stelpur keppa í körfubolta á sameiginlegum íþróttadegi skólanna í Austur-Húnavatnssýslu í íþróttahúsinu á Skagaströnd í apríl 2001. Fyrir miðri mynd í gráum bol með hvítum bekk er Eva Dögg Bergþórsdóttir og á milli stelpnanna tveggja í vestunum til vinstri sér í andlit Önnu Maríu Magnúsdóttur. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson996
Koddaslagur á skólalóðinni hjá Höfðaskóla á íþróttadegi skólanna í Austur- Húnavatnssýslu sem haldinn var á Skagaströnd í apríl 2001. Kristbjörg Una Guðmundsdóttir er dökklædd að koma sér fyrir á staurnum. Þórhalla Guðbjartsdóttir er kennarinn til vinstri með spennu í hárinu. Til vinstri eru líka Katrín Hólmsteinsdóttir í dökkri peysu með ljósum bekk á bringunni og henni á hægri hönd er Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir að fylgjast með slagnum. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1252
Myndin var tekin þegar yfir stóð barna-íþróttamót USAH á Skagastrandarvelli 11. júlí 2012. Á myndinni eru frá vinstri: Kolbrún Jónsdóttir, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, með dóttur sína Sóley Sif Jónsdóttur í fanginu, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir og Arnar Ólafur Viggósson.
Ólafur Bernódusson999
Skólarnir í Austur-Húnavatnssýslum héldu sameiginlegan íþróttadag á Skagaströnd í apríl 2001. Þar var keppt í ýmsum hefðbundnum greinum íþrótta en einnig óhefðbundnum og síðan endað með diskóteki í Fellsborg um kvöldið. Þessi mynd var tekin af nemendum að fylgjast með keppni í íþróttahúsinu. Frá vinstri: óþekkt, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Hanna Gestsdóttir, Sonja Hjördís Berndsen, Eyþór Kári Egilsson, Stefán Agnar Gunnarsson, óþekktur, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, tveir óþekktir og Jón Atli Magnússon.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Nokkrir menn á Skagaströnd stofnuðu með sér félag um að kaupa Billiardborð til að geta leikið billiard/ballskák. Borðinu var komið fyrir í Skátaskálanum og var það töluvert notað fyrstu árin. Síðar endaði það í Kántrýbæ og var notað þar í nokkur ár. Að lokum var borðið selt úr bænum enda hafði þá áhugi fyrir Billiardleik dvínað verulega. Á þessari mynd mundar Skúli Tómas Hjartarson kjuðann, Jón Sveinsson situr til hægri en Sævar Rafn Hallgrímsson til vinstri. Guðjón Árnason á baksvipinn til vinstri.
Ingibergur Guðmundsson 310
Sigurvegarar á fyrsta golfmóti Golfklúbbs Skagastrandar á Háagerðisvelli í september 1985. Frá vinstri: Magnús B. Blöndal (d.7.9.2001), Eygló Gunnarsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Jón Ingi Ingvarsson og Oliver Oliversson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 716
Myndin var tekin 26. febrúar 2015 af manni að leika sér á brimbretti á brimöldunum fyrir neðan rækjuvinnsluna. Hann lætur kuldan ekki á sig fá enda klæddur í þurrbúning.
Ólafur Bernódusson 915
Myndin var tekin í febrúar 1999 af krökkum úr Höfðaskóla á gönguskíðanámskeiði. Frá vinstri: Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Birkir Rúnar Jóhannsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekkta strákinn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 916
Myndin var tekin í febrúar 1999 af krökkum úr Höfðaskóla á gönguskíðanámskeiði. Á myndinni er frá hægri: María Markovic, Anna Dúna Rúnarsdóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir og Eygló Amelía Valdimarsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 912
Myndin var tekin í febrúar 1999 af elstu nemendum Höfðaskóla á gönguskíðanámskeiði á íþróttavellinum. Leiðbeinandinn er fyrir miðri mynd og bregur hönd fyrir augu. Fyrstu æfingarnar fólust í því að ganga hring á skíðunum staflaust.
Ólafur Bernódusson 945
Myndin var tekin á unglingamóti umf Fram 1983 á Skagastrandarvelli. Á henni eru hlauparar að koma í mark í einhverju lengra hlaupi. Keppendurnir eru frá vinstri: Viggó Magnússon, Jón Arnarson, Stefán Ægir Lárusson og óþekktur.
Ólafur Bernódusson 1009
Á myndinni er Þorleifur Arason (d.11.11.1991) með verðlaunapeninga um hálsinn. Í baksýn er Ingibjörg Kristinsdóttir sem afhenti verðlaun í hófi í Kántrýbæ að loknum mótinu. Þorleifur var öflugur kastari og vann til fjölda verðlauna á íþróttamótum.
Ólafur Bernódusson 1010
Á myndinni er Sveinn Ingólfsson með verðlaunaskjal sem hann vann sér inn á öldungamóti USAH 1983. Myndin var tekin í hófi í Kántrýbæ að mótinu loknu.
Ólafur Bernódusson 880
Myndin ver tekin í ágúst 1999 þegar Kántrýhátíð var í gangi. Eitt af atriðunum þar var kraftakeppni þar sem fengnir voru menn til að keppa í að hlaupa með þunga malarpoka ákveðna vegalengd á sem stystum tíma. Á myndinni er Jósef Stefánsson á fullu að snúa við til að ná í næsta poka Stefán Ægir Lárusson snýr baki í okkur en hann tók á móti pokunum. Áhorfendur fylgjast spenntir með.
Ólafur Bernódusson 950
Umf Fram stóð fyrir reiðhjólakeppni um bæinn í nokkur vor undir stjórn Lárusar Ægis Guðmundssonar. Á myndinni, sem tekin var vorið 1981 eða 1982, er Lárus að afhenda sigurvegurum í sínum flokki viðurkenningarskjöl sín. Frá vinstri: Arnar Haukur Ómarsson?, Brynjar Pétursson og Guðmundur Henry Stefánsson.
Ólafur Bernódusson 914
Myndin var tekin af elstu krökkunum í Höfðaskóla á gönguskíðanámskeiði í febrúar 1999. Röðin er frá hægri: Anna Dúna Rúnarsdóttir, óþekktur, Birkir Rúnar Jóhannsson, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Eva Dögg Bergþórsdóttir og fjórir óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1484
Krakkarnir í Höfðaskóla héldu íþróttamaraþon til fjáröflunar 25.mars 2011. Þá stunduðu krakkarnir hinar ýmsu íþróttir stanslaust í heilan sólarhring. Á myndinni hvílast nokkrir krakkar milli leikja. Standandi er Páll Halldórsson en í sófanum eru frá vinstri: Lilja Svandís Hallgrímsdóttir, Rakel Jensína Jónmsdóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Aron Breki Hjartarson, Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, Eva Dögg Björgvinsdóttir og Ásdís Birta Árnadóttir
Ingibergur Guðmundsson 309
Magnús B. Blöndal (d.7.9.2001) tekur við verðlaunum úr höndum Ólafs Bernódussonar á fyrsta golfmóti Golfklúbbs Skagastrandar á Háagerðisvelli í september 1985.
Ingibergur Guðmundsson 268
Bridgeklúbbur Skagastrandar starfaði af miklum krafti í mörg ár t.d. var Bridge spilaður einu sinni í viku allan veturinn auk þess að félagið hélt keppnir fyrir Norðlendinga og klúbbmeðlimir sóttu bridgekeppnir víða um land. Á þessari mynd, sem tekin var á 20 ára afmælismóti klúbbsins 5. janúar 1986, spila þeir Halldór Gunnar Ólafsson til vinstri og Sveinn Ingólfsson til hægri.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 51
Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974) frá Reykholti teflir hér við einn af afastrákunum sínum, Aðalstein Jörgensen. Í baksýn er Jónatan Jónsson (d.?) kennari við Höfðaskóla. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1968.
Ingibergur Guðmundsson 215
Framarar sem þátt tóki í Viðavangshlsupi Íslands 1988. Frá vinstri: Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Guðný Finnsdóttir, Þóra Lísbet Gestsdóttir? og Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 190
Guðný Finnsdóttir og Reynir Lýðsson með verðlaun sín fyrir víðavangshlaup á 17. júní 1985.
Ingibergur Guðmundsson 226
Fyrr á árum voru héraðsmót USAH alltaf haldin á túninu við Kvennaskólann á Blönduósi. Þessi mynd var tekin 17. júní 1951 á einu af þessum héraðsmótum. Á þessari mynd stekkur Ægir Einarsson (d.3.1.2002) úr Fram á Skagaströnd þrístökk. Aðrir á myndinni eru óþekktir. (Heimild: Húnavaka 28. árg. 1988)
Ingibergur Guðmundsson 195
Anna Dröfn Guðjónsdóttir stekkur langastökk á unglingamóti USAH í febrúar 1985.
Ingibergur Guðmundsson 200
Sigurvegarar á unglingamóti USAH á Blönduósi 1981. Frá visntri: Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Þórarinn Brynjar Ingvarsson, óþekktur og Páll Jónsson.
Ólafur Bernódusson 2 720
Víðavangshlaup umf.Fram var haldið í maí 2001. Á myndinni er yngst drengjahópurinn að koma sér fyrir á ráslínunni. Drengirnir eru óþekktir nema sá sem er þriðji frá hægri í grænni úlpu með ljósum bekkjum og gulleita húfu en það er Egill Örn Ingibergsson. Ef þú þekkir einhvern hinna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 186
Þessi fríði hópur frá Skagaströnd tók þátt í Víðavangshlaupi Íslands 1986 á Miklatúni í Reykjavík. Standandi frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Guðný Finnsdóttir, Hafdís Ásgeirsdóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Ása Ásgeirsdóttir og Sigfús Jónsson. Sitjandi frá vinstri: Björn Sigurðsson, Skúli Tómas Hjartarson, óþekktur, Reynir Lýðsson, Atli Þórsson, Jón Heiðar Jónsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu strákana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 2 717
Víðavangshlaup umf. Fram var haldið í maí 2001. Á myndinni er einn flokkur stráka að bíða eftir að vera ræstir af stað. Strákarnir eru óþekktir nema Kristján Ýmir Hjartarson sem er þriðji frá vinstri og hægra megin við hann er Alexander Ragnarsson. Ef þú þekkir einhvern hinna strákanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson984
Myndin var tekin á fótboltamóti á Blönduósvelli 24. Júní 2007. Á henni er Ágúst Ingi Ágústsson þjálfari Fram á Skagaströnd að "peppa upp" stráka úr liðinu. Fótboltakapparnir eru frá vinstri: Einar Ari Einarsson, Elvar Geir Ágústsson, Ívan Árni Róbertsson og Ísak Tryggvason. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 2 715
Víðavangshlaup umf.Fram var haldið í maí 2001. Lárus Ægir Guðmundsson stjórnaði hlaupinu af röggsemi en hann er á myndinni með upprétta hönd að bíða eftir nokkrum hlaupurum að koma í mark.
Ólafur Bernódusson1001
Páll Halldórsson, nýorðinn tveggja ára , fylgist með á íþróttadegi skólanna í Austur Húnavatnssýslu sem haldinn var á Skagaströnd í apríl 2001. Stúlkan er óþekkt.
Ólafur Bernódusson 2 719
Víðavangshlaup umf.Fram var haldið í maí 2001. Lárus Ægir Guðmundsson stjórnaði hlaupinu af röggsemi en hann er lengst til hægri á myndinni. Hér er hann að raða ungum stúlkum upp við rásmarkið. Lengst til vinstri er Ingibergur Guðmundsson sem var tímavörður en stúlkurnar eru óþekktar. Ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson995
Koddaslagur á skólalóðinni hjá Höfðaskóla á íþróttadegi skólanna í Austur- Húnavatnssýslu sem haldinn var á Skagaströnd í apríl 2001. Berglind Björnsdóttir kennari á Blönduósi er lengst til hægri en aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 519
Vinirnir Árni Geir Ingvarsson til vinstri og Jóhannes Sveinsson til hægri tilbúnir fyrir þátttöku í Reykjavíkur maraþoni 23. ágúst 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1345
Páll Halldórsson, einn af keppendum úr Höfaskóla, tekur þátt í stóru upplestrarkeppninni 25. maí 2012 í Fellsborg. Árlega er haldin slík upplestrarkeppni milli skólanna í Húnavatnssýslum, til skiptis í skólunum fjórum. Þar keppa þrír fulltrúar frá hverjum skóla en þrír bestu lesararnir eru verðlaunaðir hverju sinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 386
Sigrún Líndal Þrastardóttir á unglingamóti USAH á Skagastrandarvelli 10. júlí 2013.
Ólafur Bernódusson998
Limbókeppni á sameiginlegu diskóteki skólanna í Austur-Húnavatnssýslu í Fellsborg á íþróttadegi á Skagaströnd í apríl 2001.
Ólafur Bernódusson 781
Verðlaunahafar í kúluvarpi á palli eftir unglingamót USAH á Blönduósi 14. júlí 2010. Frá vinstri: Páll Halldórsson, óþekktur og Anton Einarsson. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 917
Krakkar úr Höfðaskóla á gönguskíðanámskeiði í febrúar 1999. Leiðbeinandinn frá SÍ lagði fyrir krakkana að fara fyrsta hringinn á íþróttavellinum án þess að nota stafi. Krakkarnir eru frá hægri: óþekkt, Eva Dögg Bergþórsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir og Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir en aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 910
Myndin var tekin í febrúar 1999 þegar haldið var gönguskíðanámskeið fyrir nemendur Höfðaskóla. Á myndinni er hópurinn að hlusta á leiðbeinandann sem kom frá Skíðasambandi Íslands.
Ólafur Bernódusson 913
Magnús Líndal Þrastarson til vinstri og Daníel Guðmundsson hægra megin á gönguskíðanámskeiði á vegum Höfðaskóla í febrúar 1999.
Ólafur Bernódusson 843
Landsbankahlaupið, sem var víðavangshlaup, var haldið á vorin í nokkur ár á vegum útibúsins á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin 5. maí 2007 af sigurvegurum í víðavangshlaupinu á sínum flokki. Stúlkurnar eru frá vinstri: Guðrún Anna Halldórsdóttir, Svandís Lilja Hallgrímsdóttir og Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir.
Ólafur Bernódusson 1007
Myndin var tekin á öldungamóti USAH á Skagastrandarvelli 1983. Á henni stekkur Gunnar Sveinsson langstökk. Hjörtur Guðmundsson er með hrífuna, Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) er með málbandið og fylgist með að stigið sé rétt á plankann, Gunnar Halldór Hallbjörnsson er strákurinn í hvítu treyjunni og aftan við hann er Ingibergur Guðmundsson. Karl Lúðvíksson stendur hjá Ingvari og skráir niður árangur keppenda. Sigurbjörn Þorvaldsson (d.13.8.2000) fylgist með með hendur í vösum og yfir öxl hans gægist Jón Gunnar Jósefsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1347
Myndin var tekin 17. ágúst 2012 á íþróttavellinum. Þá fór fram "vatnsfótbolti", sem fer þannig fram, að einn úr hvoru liði hefur öfluga vatnsslöngu sem hann má nota að vild á andstæðingana. Á myndinni eru frá vinstri: Elvar Geir Ágústsson, Finnbogi Guðmundsson, Ernst Guðni Hólmgeirsson og Sigurjón Elí Eiríksson.
Ólafur Bernódusson 1008
Myndin var tekin á öldungamóti USAH á Skagastrandarvelli 1983. Þorleifur Arason (d.11.11.1991) kastar kúlunni. Ingibergur Guðmundsson er tilbúinn að mæla kastið en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1011
Gunnar Sveinsson í hófi í Kántrýbæ að loknu öldungamóti USAH á Skagastrandarvelli 1983. Gunnar var einn af keppendunum á mótinu.
1
…
7
8
9
10
11
Leita í myndasafninu
Leita