Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Leiksýningar
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
857 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1478
Myndin var tekin í félagsheimilinu á Blönduósi 10. nóvember 2011 á tónleikum. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Skarphéðinn Einarsson, Haukur Ásgeirsson, Helga Dögg Jónsdóttir og Benedikt Blöndal.
Ólafur Bernódusson 1015
Myndin er tekin á frumsýningu á Saumstofunni eftir Kjartan Ragnarsson 1985. Þá var verkið sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í leikstjórn Halldórs Einarssonar Laxness. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Magnús B. Blöndal (d.7.9.2001) og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1441
Myndin var tekin á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011. Greinilegt að fólk í salnum skemmtir sér vel yfir skemmtiatriðunum á sviðinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1626
Magnús B. Jónsson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri kynna næsta atriði á þorrablóti í Fellsborg 4. febrúar 2012.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 153
Myndin var tekin á þorrablóti í Fellsborg, líklega var það árið 1987. Á myndinni er verið að grínast með heimsmet Marska í pizzugerð sem sett var heimilissýningu í Laugardalshöll 1986. Á myndinni eru, frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Kristín Jónsdóttir og Magnús B. Jónsson.
Ólafur Bernódusson 942
Leikklúbbur Skagastrandar setti Kardimommubæinn á svið í febrúar 1992. Á myndinni, sem tekin var á æfingu, eru í hlutverkum ræningjanna, frá vinstri: Ingólfur Bjarnason, Rúnar Jóhannsson og Jón Ingvar Valdimarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1653
Myndin var tekin 6. mars 2012 þegar nemendur Höfðaskóla léku leikritið Latibær í Fellsborg. Leikararnir eru: yst til vinstri Rakel Jensína Jónsdóttir ofar og Guðrún Rós Hjaltadóttir neðar. Fyrir miðju frá vinstri: Eva Ósk Björgvinsdóttir, ?Birta Dögg Bessadóttir?, Heba Líf Jónsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen og Aldís Embla Björnsdóttir. Til hægri er Aron Breki Hjartarson ofar og óþekktur neðar. Á sviðsbrúninni situr Aron Snær Fannarsson. Ef þú þekkir óþekkta leikarann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 1073
Kristmundur Baldvinsson og Dagný Dís Bessadóttir kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Ólafur Bernódusson 1075
Freydís Kristjánsdóttir og Daði Snær Stefánsson kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Ólafur Bernódusson 1080
Hópur bekkjarfélaga í framkalli eftir að hafa sýnt skemmtiatriði sitt á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017. Frá vinstri: Freydís Kristjánsdóttir, Dagur Freyr Róbertsson, Daði Snær Stefánsson, Dagný Dís Bessadóttir, Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir, Jóhann Almar Reynisson, Kristmundur Baldvinsson, Haraldur Guðjónsson og Pascal Gruenberger.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 163
Á myndinni eru nokkrir af leikurunum í "Síldin kemur og síldin fer" í hléi á sýningunni. Leikararnir eru, frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, Herborg Þorláksdóttir, Þórey Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Sýningin var á vegum Leikklúbbs Skagastrandar vorið 1987.
Höfðaskóli - safn413
Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir og Hjörtur Jónas Guðmundsson leika á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin líklega var það kringum 1988.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 141
Myndin var tekin á afmælishátíð Leikklúbbs Skagastrandar en því miður er árið ekki þekkt. Á sviðinu er verið að flytja frumsaminn leikþátt. Leikendurnir eru frá vinstri: Pétur Ingjaldur Pétursson, Ragnar Jónsson, Guðmundur Jónsson, Egill Bjarki Gunnarsson, Anna Sjöfn Jónasdóttir og óþekkt kona.
Ólafur Bernódusson 955
Þessar fjórar konur tróðu upp með söng í hófi sem haldið var í tilefni af að nýbyggingu verslunar Kaupfélagsins á Skagaströnd líklega 1983. Konurnar eru frá vinstri: Helga Guðmundsdóttir, Anna Skaftadóttir, Helga Hermannsdóttir og Sigrún Lárusdóttir. Allar störfuðu þær um lengri eða skemmri tíma við verslunarstörf hjá kaupfélaginu.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 162
Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir situr í stólnum meðan Ardís Ólöf Arelíusdóttierir hana klára til að fara á svið í "Síldin kemur og síldin fer", sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp vorið 1987.
Ólafur Bernódusson 1019
Myndin er tekin á frumsýningu á Saumstofunni eftir Kjartan Ragnarsson 1985. Þá var verkið sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í leikstjórn Halldórs Einarssonar Laxness. Á myndinni eru frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Árdís Indriðadóttir, Lárus Ægir Guðmundsson og Sigrún Jónsdóttir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 160
Bóel Hallgrímsdóttir spilar á gítar í frumsýningarpartýi eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á "Síldin kemur og síldin fer" 7. mars 1987.
Ólafur Bernódusson 1014
Myndin er tekin á frumsýningu á Saumstofunni eftir Kjartan Ragnarsson 1985. Þá var verkið sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í leikstjórn Halldórs Einarssonar Laxness. Á myndinni eru frá vinstri leikkonurnar: Hallbjörg Jónsdóttir, Elín Njálsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Guðbjörg Gylfadóttir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 142
Félagar í Leikklúbbi Skagastrandar héldu afmælishátíðir í Fellsborg fyrir félagsmenn sína 1986 og 1995, er klúbburinn varð 20 ára. Myndin var tekin í annarri hvorri þessara hátíða. Eins og sjá má skemmtu félagarnir sér vel við leik, söng og dans á hátíðunum. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Magnús B. Jónsson, tveir óþekktir, Björgvin Karlsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Ólafur Bernódusson, Erna Berglind Hreinsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir, tveir óþekktir, Helga Guðmundsdóttir, óþekktur, Guðný Sigurðardóttir og Vigdís Viggósdóttir.
Ólafur Bernódusson 1079
Nokkrir nemendur í skemmtiatriði síns bekkjar á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017. Frá vinstri: Mathis Gruenberger, Sólveig Baldvinsdóttir, Arnrún Hrólfsdóttir, Erla Mjöll Daðadótti, Þórunn Hólmgeirsdóttir og óþekktur nemandi.
Höfðaskóli - safn425
Myndin var tekin 24. febrúar 2006 á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Þarna er greinilega verið að grínast með sjónvarpsþáttinn "Fólk með Sirrý" sem var á dagskránni þá. Frá vinstri: Ólína Selma Þórarinsdóttir?, Sonja Sif Ólafsdóttir og óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 156
Myndin var tekin í frumsýningarpartýi eftir frumsýningu á leikritinu "Síldin kemur og síldin fer" 7. mars 1987. Konan í hvítu peysunni er Jane Sillar (d.2017) en maðurinn í bláu skyrtunni er þáverandi eiginmaður hennar, William Sillar. Fremst á myndinni sér í hnakkann á Ingibergi Guðmundssyni en við borðið í baksýn sitja, frá vinstri: Kristín Jónsdóttir, óþekkt, Ragnar Smári Ingvarsson (nær), óþekkt (fjær), Þorvaldur Skaftason með gítarinn er fjær og baksvipur Sigurbjörns Björgvinssonar nær. Lengst til hægri er svo Þórey Jónsdóttir.
Höfðaskóli - safn436
Myndin var tekin af tveimur börnum í fallegum grímubúningum á grímuballi Höfðaskóla 5. mars 2006 í Fellsborg. Börnin á myndinni eru óþekkt en ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn427
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 24. febrúar 2006. Frá vinstri: óþekkt, Kristján Heiðmar Kristjánsson og Elna Ragnarsdóttir.
Höfðaskóli - safn603
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg einhverntíma á árunum kringum 1990. Á henni er einn bekkur að sýna atriðið sitt. Nemendurnir eru, frá vinstri: Jóhannes Heiðmar Indriðason, Viktor Pétursson, Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, óþekkt, Sylvía Kristín Sigurþórsdóttir, María Jóna Gunnarsdóttir, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Ólafur Elínarson og Ragna Fanney Gunnarsdóttir
Ragnar S. Ingvarsson - safn 111
Líklega er þetta hljómsveitin Janus á sviðinu. Söngvarinn er Þorvaldur Skaftason og Guðmundur Jónsson spilar á gítarinn. Aftan við þá spilar Kristján Blöndal á trommurnar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jónas 32
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) lék í uppfærslu Leikklúbbs Skagastrandar á Gísl leikárið 1979 - 1980. Á myndinni er hann í ljósmyndatöku hjá Jónasi Baldurssyni sem vann síðan myndina þannig að útkoman varð mynd af Bernódusi á hestbaki.
Höfðaskóli - safn422
Jóhann Már Berry og Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir kynna næsta atriði á dagskrá árshátíðar Höfðaskóla í Fellsborg 24. febrúar 2006.
Höfðaskóli - safn598
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000. Hún var tekin á árshátíð Höfðaskóla það ár í Fellsborg. Krakkarnir eru að flytja atriðið sitt á hátíðinni. Frá vinstri: Þórey Fjóla Aradóttir?, Arnrún Bára Finnsdóttir, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir, Almar Freyr Fannarsson og Ragnheiður Erla Stefánsdóttir.
Ólafur Bernódusson1147
Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri Höfðaskóla 2005 - 2013 í ræðustól á sviðinu í Fellsborg líklega á Elínborgardegi 15. nóvember 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1700
Myndin var tekin í gospelmessu í Hólaneskirkju 23. október 2010. Aukinn kirkjukór syngur syngur af hjartans list undir stjórn Óskars Einarssonar sem situr við píanóið. Húsfyllir var í kirkjunni þetta kvöld.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1431
Ungir menn á svölunum á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011 taka þátt í fjöldasöng. Frá vinstri: Ragnar Már Björnsson, Stefán Velemir, Sigurjón Elí Eiríksson, Sæþór Bragi Ágústsson og Ernst Guðni Hólmgeirsson.
Ólafur Bernódusson 948
Umf Fram stóð fyrir reiðhjólakeppni um bæinn í nokkur vor undir stjórn Lárusar Ægis Guðmundssonar. Á myndinni, sem tekin var vorið 1981 eða 1982, er Lárus að afhenda sigurvegurum í einum flokknum viðurkenningarskjölin sín. Strákarnir eru frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Stefán Ægir Lárusson og Viggó Magnússon.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1629
Á þorrablóti 4. febrúar 2012. Leikhópurinn segir frá, á sinn hátt, þegar sendiherra Bandaríkjanna kom og heiðraði Hallbjörn Hjartarson fyrir framlag hans til kántrýtónlistar á Íslandi. Halldór Gunnar Ólafsson leikur Hallbjörn til vinstri og Hafþór Gylfason sendiherrann til hægri. Áhorfendur í bakgrunni eru leiknir af, frá vinstri: Árni Halldór Eðvarðsson, María Ösp Ómarsdóttir, Trostan Agnarsson, Elva Dröfn Árnadóttir, Guðni Már Lýðsson og Þorgerður Þóra Hlynsdóttir.
Ólafur Bernódusson 941
Leikklúbbur Skagastrandar setti Kardimommubæinn á svið í febrúar 1992. Á myndinni, sem tekin var á æfingu, eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Þorlákur Ómar Guðjónsson, Jón Ólafur Sigurjónsson, Ólafur Magnússon, óþekktur, Fannar Viggósson, Steindór Haraldsson, Jensína Lýðsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, óþekktur hestur, Hildur Inga Rúnarsdóttir og Elva Dröfn Árnadóttir.
Ólafur Bernódusson 1020
Myndin er tekin á frumsýningu á Saumstofunni eftir Kjartan Ragnarsson 1985. Þá var verkið sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í leikstjórn Halldórs Einarssonar Laxness. Á myndinni eru frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Elín Njálsdóttir, Árdís Indriðadóttir og Dagný Sigmarsdóttir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 161
Guðbjörg Viggósdóttir grínast meðan Helga Hermannsdóttir greiðir henni fyrir sýningu á "Síldin kemur og síldin fer" sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp vorið 1987. Aftan við Helgu er dóttir hennar, Þórhildur Jakobsdóttir sem einnig tók þátt í sýningunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1698
23. október 2010 var haldin Gospelmessa í Hólaneskirkju. Dagana á undan hafði Óskar Einarsson æft upp söngprógram með kirkjukórnum og nokkrum gestum sem fengu að syngja með. Myndin var tekin í messunni af litlum hluta kórsins. Fremst eru frá vinstri: Berglind Björnsdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir og óþekkt kona. Aftar frá vinstri: Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018), Hrafnhildur Jóhannsdóttir (nær), Bára Þorvaldsdóttir (fær), Kristín Kristmundsdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir og Inga Rós Sævarsdóttir.
Ólafur Bernódusson 1017
Myndin er tekin á frumsýningu á Saumstofunni eftir Kjartan Ragnarsson 1985. Þá var verkið sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í leikstjórn Halldórs Einarssonar Laxness. Á myndinni er Halldór með blómvönd að lokinni sýningunni en hjá honum eru Fannar Viggósson undirleikari og Guðmunda Ólafsdóttir hvíslari.
Ólafur Bernódusson 1072
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 30. nóvember 2017 í Fellsborg. Á henni syngja nemendur úr tveimur bekkjum saman. Aftari röð frá vinstri: Gabríel Goði Tryggvason, Hlynur Árnason, Anna Marie Gruenberger og Karen Líf Sigurbjargardóttir. Í fremri röð frá vinstri: Bjarni Bragi Bessason, Sigurjón Ýmir Alexson, Arnar Gísli Birkisson, óþekktur, Lárey Mara Sigurðardóttir, Birgitta Finnbogadóttir, óþekktur og Gunndís Katla Þrastardóttir.
Ólafur Bernódusson 876
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá voru nemendur með ýmiskonar viðburði í stofunum. Hver sýning var sýnd nokkrum sinnum yfir daginn þannig að allir sem vildu gátu séð þær allar þó 2-3 væru í gangi hverju sinni. Á myndinni eru krakkarnir að syngja fyrir fólk og leika það sem sungið er um. Krakkarnir eru frá vinstri: Ómar Ísak Hjartartarson, Patrik Snær Bjarnason, tvö óþekkt, Rósa Björg Einarsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir ? (fjær), óþekkt (nær), Lilja Nótt Sævarsdóttir, óþekktur, Arnrún Bára Finnsdóttir (nær), Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir (fjær), Sara Rut Fannarsdóttir, Hörður Aðils Vilhelmsson og óþekkt. Lengst til hægri stendur Aðalheiður Sif Árnadóttir. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 1018
Myndin er tekin á frumsýningu á Saumstofunni eftir Kjartan Ragnarsson 1985. Þá var verkið sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í leikstjórn Halldórs Einarssonar Laxness. Á myndinni er Guðmundur Haukur Sigurðsson í hlutverki sínu. Aftan við hann eru frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Gubjörg Gylfadóttir, Árdís Indriðadóttir og Elín Njálsdóttir.
Ólafur Bernódusson027
Leikklúbbur Skagastrandar setti Kardimommubæinn á svið í febrúar 1992. Á myndinni, sem tekin var á æfingu, eru Elín Njálsdóttir sem Soffía frænka og Hallbjörn Hjartarson sem Tóbías í turninum.
Ólafur Bernódusson 1076
Jóhann Almar Reynisson til vinstri og Dagur Freyr Róbertsson til hægri kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Höfðaskóli - safn434
Dúndrandi diskótek í Fellsborg á árshátíð Höfðaskóla 24. febrúar 2006.
Ólafur Bernódusson 1077
Pascal Gruenberger ábúðafullur sem hljóðmaður í skemmtiatriði bekkjar síns á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Jónas 52
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Birna Blöndal (d. 26.10.2018) og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum í sýningunni.
Höfðaskóli - safn431
Myndin var tekin 24. febrúar 2006 á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Á sviðinu eru kennarar og starfsfólk skólans að flytja sitt atriði. Sitjandi til vinstri er Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri og dökklæddi stjórnandinn er Carl Erik Jakobsen. Aðrir eru, talið frá vinstri: Bergþóra Guðjónsdóttir?, Anna Margrét Sigurðardóttir, Vigdís Elva Þorgeirsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022), Dagbjört Bæringsdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir, Ólafur Bernódusson, Þóra Ágústsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, óþekktur, Helga Ólína Aradóttir, Einar Arason, Guðrún Elsa Helgadóttir og Dagný Rósa Úlfarsdóttir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1627
Sigríður Stefánsdóttir skemmtir á sviði Fellsborgar á þorrablóti 4. febrúar 2012.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 159
Ólafur Bernódusson bíður, fullsminkaður, eftir að fara á svið í "Síldin kemur og síldin fer" sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp vorið 1987.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 157
Ardís Ólöf Arelíusdóttir (d.12.9.2018) sminkar tengdason sinn, Magnús B. Jónsson, áður en hann stígur á svið í leikritinu "Síldin kemur og síldin fer", sem Leikklúbbur Skagastrandar sýndi vorið 1987, undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 140
Guðmundur Jónsson til vinstri og Fannar Viggósson til hægri spila undir söng kvennanna á myndinni. Konurnar eru fá vinstri: Dagný Marín Sigmarsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Vigdís Viggósdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir. Myndin var líklega tekin í einhverju afmælishófi hjá Leikklúbbi Skagastrandar í Fellsborg.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 057
Myndin var tekin 1957 eða 1958 á sviðinu í gömlu Tunnunni, sem nú hýsir Spákonuhofið. Ekki er vitað hvert leikritið var en leikendurnir eru, talið frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir, Ari Jónsson, Hallbjörn Björnsson, Guðrún Þórbjarnardóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir, Stefán Ingólfsson (d.21.10.2004) og Lárus Ægir Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson1173
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru tæknimennirnir sem sáu um hljóð og lýsingu á samkomunni. Birkir Freyr Gunnarsson til vinstri og Ásdís Birta Árnadóttir til hægri.
Höfðaskóli - safn429
Leikið atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 24. febrúar 2006. Frá vinstri: óþekkt, Jóhann Már Berry, Katrín Guðmundsdóttir og óþekkt.
Höfðaskóli - safn426
Þórður Indriði Björnsson og Laufey Inga Stefánsdóttir leika í atriði bekkjar síns á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 24. febrúar 2006. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1184
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 2016 eða 2017. Á henni eru, á sviðinu, frá vinstri: Arna Rún Arnarsdóttir, Bylgja Hrund Ágústsdóttir og Hekla Guðrún Þrastardóttir.
Jónas 44
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Magnús B. Jónsson og Jón Helgi Eiðsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 158
Steindór R. Haraldsson í sminkun fyrir hlutverk sitt í leikritinu "Síldin kemur og síldin fer" sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið vorið 1987. Það var Helga Hermannsdóttir sem sá um sminkunina á Steindóri.
Höfðaskóli - safn423
Myndin var tekin af sviðinu í Fellsborg á árshátíð Höfðaskóla 24. febrúar 2006. Frá vinstri á myndinni: Einar Arason kennari, Friðmar Kári Eiríksson, tveir óþekktir, Egill Örn Ingibergsson, Guðrún Hjltey Hallgrímsdóttir, Birta Dögg Bessadóttir, María Jóna Jónasdóttir, tveir óþekktir, Páll Halldórsson (situr), Birkir Gunnarsson, óþekkt, Elmar Jóhann Grétarsson, Anton Einarsson, Sæunn Ósk Steingrímsdóttir og Guðrún Rós Hjaltadóttir. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
11
12
13
14
15
Leita í myndasafninu
Leita