Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Leiksýningar
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
857 myndir
Flæði
Reitir
Jónas 10
Einar Helgason og Guðbjörg Viggósdóttir á sviðinu í Fellsborg í hlutverkum sínum í leikritinnu Gísl eftir Brendan Behan. Leikklúbbur Skagastrandar setti verkið upp a979 - 1980 undir leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur.
Ólafur Bernódusson1159
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nemendur eins bekkjar skólans að flytja atriði sitt. Börnin eru, frá vinstri: Ólafur Halldórsson, Rakel/Karen Elvarsdóttir, Ívan Orri Eiríksson, Pétur Atli Árnason og Ingólfur Eðvald Björnsson.
Ingibergur Guðmundsson 499
Myndin var tekin í Höfðaskóla veturinn 1984 - 85 á einni af fyrstu æfingum á Saumastofunni. Eftir nokkrar æfingar þar var farið með æfingarnar á svið í Fellsborg. Á myndinni eru leikararnir, frá vinstri: Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Elín Njálsdóttir (nær), Hallbjörg Jónsdóttir (fjær), Guðbjörg Gylfadóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Sigrún Jónsdóttir (fjær) og Dagný Marín Sigmarsdóttir (nær).
2001002
Konráð Guðmundsson í hlutverki sínu í leikritinu: Eiginmaður kemur til morgunverðar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1960.
Ólafur Bernódusson1154
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru yngstu nemendur skólans að syngja fyrir gesti. Börnin eru, frá vinstri: Sóley Sif Jónsdóttir, Sólveig Baldvinsdóttir, Stefanía Hrund Stefánsdóttir, óþekktur og Þórunn Hólmgeirsdóttir.
Jónas 63
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022) og Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) í hlutverkum sínum í sýningunni.
Jónas 68
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022) til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri í hlutverkum sínum.
Ólafur Bernódusson1145
Egill Örn Ingibergsson til vinstri og Elmar Jóhann Grétarsson til hægri á sviðinu í Fellsborg kynna næsta atriði á dagskrá árshátíðar Höfðaskóla 2014.
Jónas 42
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Magnús B. Jónsson og Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) í hlutverkum sínum í sýningunni.
Jónas 47
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum.
2001127
Leikárið 1980 - 1981 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stalin er ekki hér, undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á myndinni eru Guðný Sigurðardóttir og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum í verkinu.
Ólafur Bernódusson1170
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni spilar Valgerðu Guðný Ingvarsdóttir á þverflautu sem hluta af skemmtiatriði bekkjar síns. Börnin eru, frá vinstri: Sigurður Aron Björnsson, Valgerður, Rebekka Heiða Róbertsdóttir og Margrét Sigurðardóttir.
Jónas 67
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Magnús B. Jónsson til vinstri og Árni Björn Ingvarsson til hægri í hlutverkum sínum.
2001114
Þessi illa lýsta mynd var tekin á leikárinu 1982 - 1983. Á henni eru leikarar í sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á verkinu: Er þetta ekki mitt líf ? á sviðinu í Fellsborg. Frá vinstri: Magnús Blöndal, Þorvaldur Skaftason, Vilmundur Árnason, Guðný Sigurðardóttir, Eðvarð Hallgrímsson, Díana Kristjánsdóttir, Karl Lúðvíksson, Guðbjörg Viggósdóttir, Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson, Guðjón Sigurvaldason leikstjóri, Elín Njálsdóttir, Kristján Blöndal og Ágústa Friðriksdóttir.
Ólafur Bernódusson1190
Helena Mara Velemir kynnir næsta atriði á dagskrá árshátíðar Höfðaskóla í Fellsborg. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin en líklega var það kringum 2006.
Jónas 45
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Jón Helgi Eiðsson, Magnús B. Jónsson og Birna Blöndal (d.26.10.2018).
2001122
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Guðmundur Haukur Sigurðsson og Anna Jóna Geirsdóttir í hlutverkum sínum.
Ólafur Bernódusson1186
Kynnar á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 2017. Hallbjörg Jónsdóttir til vinstri og Birgitta Rut Bjarnadóttir til hægri.
2001123
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru leikararnir Guðmundur Haukur Sigurðsson til vinstri og Hallbjörn J. Hjartarson til hægri í hlutverkum sínum.
Jónas 59
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru frá vinstri leikararnir: Ólafur Bernódusson, Elín Njálsdóttir, Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003), Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022) og Hallveig Ingimarsdóttir.
Jónas 60
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Elín Njálsdóttir (sitjandi), Hallveig ingimarsdóttir og Ólafur Bernódusson í hlutverkum sínum.
2001133
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak, undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á þessari mynd eru, frá vinstri, leikararnir: Magnús B. Jónsson, Jón Helgi Eiðsson og Birna Blöndal í hlutverkum sínum í verkinu.
2001024
Á myndinni sem tekin var um jólin 1961 eru skátar úr Sigurfara að sýna leikrit í gömlu Tunnunni (nú Spákonuhof). Skátarnir á henni eru, frá vinstri: óþekktur, Bergdís Sigmarsdóttir, óþekktur, Þórir Ágústsson, óþekktur, Guðrún Þórbjarnardóttir, tveir óþekktir, Ester Axelsdóttir og tveir óþekktir. Þórður Jónsson hefur sent vini sínum, Ingólfi Ármannssyni, myndina og skrifaði aftan á hana: "Ska.10/1 ´62. Kæri vinur Þessi mynd var tekin á jólatréskemmtun hjá okkur og sýnir Grýlu og Leppalúða með nokkra syni sína. Við skreittum sinuns eiins og þú sérð og geði þetta mikla lukku. Skemmtuninn tókst mjög vel og skemmtu allir sér konunglega. Það komu um 130 manns um daginn og tæpir 100 um kvöldið og þó var veðrið mjög....."
Ingibergur Guðmundsson 389
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Síldin kemur og síldin fer vorið 1987. Á myndinni eru, frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Jóhanna Harðardóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Anna Sjöfn Jónasdóttir og Ólafur Bernódusson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1175
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur spennt að fylgjast með af svölunum. Frá vinstri: Elmar Jóhann Grétarsson, Anton Þór Einarsson, Rakel Jensína Jónsdóttir, Egill Örn Ingibergsson, Aldís Embla Björnsdóttir, Elvar Geir Ágústsson og Páll Halldórsson.
Ólafur Bernódusson1153
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru yngstu nemendur skólans að syngja fyrir gesti. Börnin eru, frá vinstri: Helga Margrét Steingrímsdóttir, Hugrún Sigurðardóttir, Ísabella Tryggvadóttir, Óðinn Örn Gunnarsson og Sóley Sif Jónsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 382
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Síldin kemur og síldin fer vorið 1987. Á myndinni eru Jón Hilmar Indriðason, Björk Sveinsdóttir í miðjunni og Sigrún Jónsdóttir til hægri. Öll tóku þau þátt í sýningunni á einn eða annan hátt.
2001128
Leikárið 1980 - 1981 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stalin er ekki hér, undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á myndinni eru Magnús B. Jónsson og Elín Njálsdóttir í hlutverkum sínum í verkinu.
Ingibergur Guðmundsson 391
Kaffipása í eldhúsinu í Fellsborg á æfingu á leikritinu Fyrsta öngstræti til hægri sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið veturinn 1987-´88 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar (d.17.7.2021). Á myndinni eru, frá vinstri: Jane Sillar, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006) (fjær), hnakkasvipur Williams Sillar (nær), Óskar Óskarsson, Bóel Hallgrímsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og óþekkt.
Ingibergur Guðmundsson 505
Magnús Blöndal (d.7.9.2001) í kaffipásu á æfingu á Saumastofunni í nóvember 1984. Á myndinni heldur Magnús uppi auglýsingaplakati um kvikmyndina Kúrekar Norðursins sem Friðrik Þór Friðriksson gerði um fyrstu Kántrýhátíðina í ágúst 1984. Myndin var tekin í eldhúsinu í Fellsborg.
Ólafur Bernódusson1177
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg, líklega árið 2014. Húsfyllir var á skemmtuninni eins og sjá má.
Jónas 43
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru, frá vinsttri: Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022), Eðvarð Hallgrímsson og Bjarnhildur Sigurðardóttir.
2001030
Ekki er vitað í hvaða leikriti þetta fólk er að leika en líklega var það annað hvort Tengdamamma, í leikstjórn Bernódusar Ólafssonar, eða Þvaðrið í leikstjórn Þóreyjar Jónsdóttur en þau voru sett upp 1959 og 1961 í gömlu Tunnunni. Leikararnir eru, frá vinstri: Ingólfur Ármannsson og Helga Berndsen.
Ingibergur Guðmundsson 358
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla líklega 1990. Á henni er skólakór undir stjórn Julian Hewlett að syngja á sal fyrir aðra nemendur og kennara. Í fremstu röð eru, frá vinstri: Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir, Elín Ósk Ómarsdóttir, Þóra Ágústsdóttir, Salóme Ýr Rúnarsdóttir og Ólína Laufey Sveinsdóttir?. Halla Kristín Árnadóttir er lengst til vinstri í annarri röð og Hafdís Hanna Ægisdóttir í öftustu röð. Aðrar á myndinni eru óþekktar nema Julian sem spila á píanóið.
Jónas 16
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru eftirfarandi í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022) og Hallveig Ingimarsdóttir. Bak við Guðbjörgu grillir í Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003).
2001125
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni er Raghildur að fylgjast með æfingu.
2001118
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Jónas Baldursson og Anna Jóna Geirsdóttir í hlutverkum sínum.
2001116
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Leikararnir á myndinni eru, frá vinstri: öxlin á Jónasi Baldurssyni, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Anna Sjöfn Jónasdóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir og Karl Berndsen
Ingibergur Guðmundsson 500
Myndin var tekin á æfingu á Saumastofunni í Fellsborg í nóvember 1984. Á henni eru leikkonurnar í hlutverkum sínum. Frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Sigurbjörg Árdís indriðadóttir (sitjandi), Guðbjörg Gylfadóttir, Sigrún Jónsdóttir, ,Elín Njálsdóttir og Dagný Marín Sigmarsdóttir.
2001026
Þessi mynd sýnir leikmynd á sviðinu í gömlu Tunnunni (nú Spákonuhof). Ekki er vitað í hvaða leikriti hún var notuð en leiktjöldin voru máluð af Sveinbirni Blöndal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 388
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Síldin kemur og síldin fer vorið 1987. Á myndinni eru, frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og óþekkt kona. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1164
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur skólans að flytja atriði síns bekkjar. Börnin eru, frá vinstri: Anita Ragnarsdóttir, Benný Blær Sæmundsen, Helgi Sveinn Árnason og Róbert Andri Bogason?.
Ingibergur Guðmundsson 455
Myndin var tekin í 10 ára afmælishófi Leikklúbbs Skagastrandar þann 22. nóvember 1985 í Fellsborg. Þar skemmtu félagar klúbsins hver öðrum með ýmis konar atriðum sem ekki áttu öll erindi á opinberar skemmtanir. Á þessari mynd er Birna Blöndal (d.26.10.2018), lengst til vinstri, að kenna ballet þeim, frá vinstri: Magnúsi B. Jónssyni, Ingibergi Guðmundssyni, Ólafi Bernódussyni og Guðmundi Hauk Sigurðssyni. Að sjálfsögðu klæddu menn sig upp í viðeigandi búninga en grín var gert að Guðmundi fyrir að hann hefði ekki haft efni á að koma sér upp balletbúningi. Eins og sjá má voru þeir félagar ákaflega liprir í hreyfingum þó dálítið megi setja út á samhæfingu þeirra.
Ólafur Bernódusson1160
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur skólans að flytja atriði síns bekkjar. Börnin eru, frá vinstri: Daði Snær Stefánsson, Birta Dögg Bessadóttir, Dagur Freyr Róbertsson, Freydís Kristjánsdóttir, Jóhann Almar Reynisson, Jón Árni Baldvinsson og Snæfríður Guðmundsdóttir.
Jónas 17
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru eftirfarandi í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Hallveig Ingimarsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir,, Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022), Guðmundur Haukur Sigurðsson og Elín Njálsdóttir.
2001130
Leikárið 1980 - 1981 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stalin er ekki hér, undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á myndinni eru Ólafur Bernódusson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri í hlutverkum sínum í verkinu.
2001120
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru leikararnir Bjarnhildur Sigurðardóttir og Karl Berndsen í hlutverkum sínum.
2001029
Ekki er vitað í hvaða leikriti þetta fólk er að leika en líklega var það annað hvort Tengdamamma, í leikstjórn Bernódusar Ólafssonar, eða Þvaðrið í leikstjórn Þóreyjar Jónsdóttur en þau voru sett upp 1959 og 1961 í gömlu Tunnunni. Leikararnir eru, frá vinstri: Guðmunda Árnadóttir og Bernódus Ólafsson.
Jónas 57
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022) sitjandi og Guðmundur Haukur Sigurðsson í hlutverkum sínum.
2001115
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni er Ragnhildur, sem snýr baki í okkur, að gefa leikurunum leiðbeiningar á æfingu. Leikararnir eru, frá vinstri Anna Jóna Geirsdóttir, Jónas Baldursson, Ágústa Friðriksdóttir, Þorvaldur Skaftason, Karl Berndsen, Anna Sjöfn Jónasdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir.
Ólafur Bernódusson1151
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 2014. Á henni eru, frá vinstri: Ísak Karl Tryggvason, Guðmann Einar Magnússon og Friðmar Kári Eiríksson. Á myndinni eru þeir að draga út vinningshafa í tertuhappadrættinu sem var einn af liðunum á dagskrá árshátíðarinnar.
Jónas 38
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru, frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Hallveig Ingimarsdóttir, Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022), Rúnar Loftsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson og Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) (fjær), Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) (nær), Ólafur Bernódusson og Magnús B. Jónsson.
Jónas 22
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru eftirfarandi í hlutverkum sínum: Ólafur Bernódusson til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson til hægri.
Ólafur Bernódusson1176
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg annað hvort 2014 eða 2016. Á henni eru Helga Gunnarsdóttir kennari og Georg Þór Kristjánsson nemandi að kynna næsta atriði dagskráinnar.
Ingibergur Guðmundsson 503
Kristján Sveinbjörnsson Blöndal æfir sig á flygilinn í Fellsborg í pásu á æfingu á Saumastofunni í nóvember 1984. Kristján lék undir í lögunum í sýningunni.
Ingibergur Guðmundsson 387
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Síldin kemur og síldin fer vorið 1987. Á myndinni er Magnús B. Jónsson að skrifa í gestabók sem gekk milli manna í hófinu. Aðrir bíða eftir að röðin komi að þeim.
Jónas 58
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru, í hlutverkum sínum, Guðmundur Haukur Sigurðsson vinstra megin og Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 456
Myndin var tekin í 10 ára afmælishófi Leikklúbbs Skagastrandar þann 22. nóvember 1985 í Fellsborg. Þar skemmtu félagar klúbsins hver öðrum með ýmis konar atriðum sem ekki áttu öll erindi á opinberar skemmtanir. Á þessari mynd er Birna Blöndal (d.26.10.2018) að kenna ballet þeim, frá vinstri: Magnúsi B. Jónssyni, Ingibergi Guðmundssyni, Ólafi Bernódussyni og Guðmundi Hauk Sigurðssyni. Að sjálfsögðu klæddu menn sig upp í viðeigandi búninga en grín var gert að Guðmundi fyrir að hann hefði ekki haft efni á að koma sér upp balletbúningi. Eins og sjá má voru þeir félagar ákaflega liprir í hreyfingum þó dálítið megi setja út á samhæfingu þeirra.
Jónas 28
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru þau Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) og Lárus Ægir Guðmundsson í hlutverkum sínum.
Ingibergur Guðmundsson 501
Myndin var teikin í Fellsborg í nóvember 1984 á æfingu á Saumastofunni. Á henni eru leikararnir í sýningunni að syngja einn af söngvunum í henni. Frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Guðbjörg Gylfadóttir, Sigrún Jónsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Magnús B. Blöndal (d.7.9.2001), Elín Njálsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
1
…
11
12
13
14
15
Leita í myndasafninu
Leita