Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Leiksýningar
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
857 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 502
Myndin var tekin á æfingu á Saumastofunni í Fellsborg í nóvember 1984. Árni Geir Ingvarsson ljósameistari er til hægri og Guðmunda Ólafsdóttir aðstoðarmaður leikstjóra til vinstri.
2001126
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Bjarnhildur Sigurðardóttir og Karl Berndsen í hlutverkum sínum.
Ólafur Bernódusson1171
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni er Georg Þór Kristjánsson að koma fram á sviðinu.
Ólafur Bernódusson1231
Myndin var tekin á grímuballi Höfðaskóla vorið 1987 í Fellsborg. Á henni er Guðbjörg Kristinsdóttir með son sinn Hákon Unnar Þórarinsson klæddan sem dama. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
2001003
Halla Björg Bernódusdóttir í hlutverki sínu í leikritinu: Eiginmaður kemur til morgunverðar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1960.
2001132
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak, undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Birna Blöndal og Guðmundur Haukur Sigurðsson í hlutverkum sínum í verkinu.
2001126
Magnús B. Jónsson í hlutverki sínu sem sýslumaðurinn í leikritinu Síldin kemur og síldin fer. Leikklúbbur Skagastrandar setti verkið upp leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar við miklar vinsældir.
Ingibergur Guðmundsson 497
Myndin var tekin á æfingu á leikritinu Saumastofan veturinn 1984 - 85. Myndin var tekin í Höfðaskóla þar sem fyrstu æfingar á verkinu fóru fram áður en farið var með það á svið í Fellsborg. Á myndinni eru leikkonurnar, frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir.
2001117
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni er Ragnhildur til vinstri (snýr baki í okkur) að leiðbeina leikurunum á æfingu. Þeir eru, frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson, Anna Jóna Geirsdóttir, Ágústa Friðriksdóttir, tvö óþekkt, Bjarnhildur Sigurðardóttir (situr) og Anna Sjöfn Jónasdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 498
Myndin var tekin í Höfðaskóla veturinn 1984 - 85 á einni af fyrstu æfingum á leikritinu Saumastofan. Fyrstu æfingar voru í skólanum áður en farið var á svið í Fellsborg. Á myndinni eru, frá vinstri: óþekkt, Guðbjörg Gylfadóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Hallbjörg Jónsdóttir, óþekkt og Halldór E. Laxnes leikstjóri.
2001124
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru leikararnir Ágústa Friðriksdóttir standandi og Anna Sjöfn Jónasdóttir, sem liggur, í hlutverkum sínum.
Ólafur Bernódusson1232
Magnús Líndal Þrastarson á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg vorið 1987.
2001100
Á myndinni er Magnús B. Jónsson tilbúinn á svið sem sýslumaðurinn í leikritinu "Síldin kemur og síldin fer". Leikritið var sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar.
2001134
Leikklúbbur Skagastrandar setti leikritið Gísl á svið leikárið 1979 - 1980. Leikstjóri var Ragnhildur Steingrímsdóttir. Á myndinni, sem tekin var á æfingu eru, frá vinstri, leikararnir: óþekkt, Lárus Ægir Guðmundsson, Hallveig Ingimarsdóttir, Hallbjörn J. Hjartarson, Rúnar Loftsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson (aftar), Bernódus Ólafsson (nær), Gunnar Benónýsson, Ólafur Bernódusson og Magnús B. Jónsson.
2001001
Sigurður Björnsson í hlutverki sínu í leikritinu: Eiginmaður kemur til morgunverðar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1960.
2001004
Ása Jóhannsdóttir í hlutverki sínu í leikritinu: Eiginmaður kemur til morgunverðar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1960.
URL
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1250
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Laufey Lind Ingibergsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir situr á sviðsbrúninni, Benóný Bergmann Sæmundsen og Helgi Sveinn Árnason.
1
…
11
12
13
14
15
Leita í myndasafninu
Leita