Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Leiksýningar
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
857 myndir
Flæði
Reitir
Leikklúbbur Skagastrandar - safn090
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Kardimommubæinn eftir Thorbjörn Egner í litaglaðri sýningu í Fellsborg vorið 1992 undir leikstjórn Árna Blandon. Sýningin var fjölmenn og leikararnir voru á öllum aldri eins og leikritið gerir ráð fyrir. Á þessari mynd, sem tekin var á sýningu, eru frá vinstri: Fannar Viggósson, Jón Ingvar Valdimarsson, Ingólfur Bjarnason og Rúnar Jóhannsson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn107
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Víði Ólafsson sem var starfsmaður við nokkrar sýningar klúbbsins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 373
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Dagný Sigmarsdóttir, óþekkt, ?Jóney Gylfadóttir?, Guðbjörg Gylfadóttir, Ólafur Bernódusson og Magnús B. Jónsson
Leikklúbbur Skagastrandar - safn225
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Bergþór Gunnarsson sem þátt tók í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn176
Hörður Torfason leikstýrði sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikverki Ólafs Hauks Símonarsonar, Ástin sigrar, leikárið 1988 - 1989. Á þessari mynd er Þorvaldur Skaftason í hlutverki sínu í verkinu.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn058
Leikritið Stálblóm eftir Róbert Harling var sett á svið í Fellsborg vorið 1993. Það var Leikklúbbur Skagastrandar sem stóð fyrir uppsetningunni og fékk til liðs við sig, sem leikstjóra, Jónas Jónasson (d. 22.11.2011). Þessi mynd var tekin á æfingu en á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Jónas Jónasson, Sigrún Jónsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Birna Blöndal, Guðný Sigurðardóttir og Lovísa Vattnes.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn149
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Þessi mynd var tekin á æfingu af Guðmundu Ólafsdóttur sem vann við búninga og Árna Geir Ingvarssyni sem var ljósameistari við sýninguna eins og svo margar síðan.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn168
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Birna Blöndal, Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson og Ingimar Oddsson. Aftan við Magnús grillir í Þorvald Skaftason.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn219
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Aðalheiði Harðardóttur sem þátt tók í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn153
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd eru þær Bóel Hallgrímsdóttir niðri og Björk Sveinsdóttir uppi í hlutvekum sínum.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn157
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum þau Steindór Haraldsson og Björk Sveinsdóttir. Í baksýn sér í Ástmar Kára Ástmarsson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn045
Leikárið 1980 - 1981 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stalin er ekki hér eftir Véstein Lúðvíksson í leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum þau Elín Njálsdóttir og Magnús B. Jónsson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn215
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Guðjón Árnason sem þátt tók í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn131
Leikárið 1981 - 1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6. 2009). Á myndinni eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Ágústa Friðriksdóttir, Jónas Baldursson, Bjarnhildur Sigurðardóttir og Hallbjörn Hjartarson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn183
Leikárið 1980 - 1981 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stalin er ekki hér eftir Véstein Lúðvíksson í leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á þessari mynd eru Guðný Sigurðardóttir og Ólafur Bernódusson í hlutverkum sínum. Myndina tók Jónas Baldursson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn172
Hörður Torfason leikstýrði sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikverki Ólafs Hauks Símonarsonar, Ástin sigrar, leikárið 1988 - 1989. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Einar Haukur Arason, Þorvaldur Skaftason og Kristín Jónsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn054
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg af þeim Ágústu Friðriksdóttur og Magnúsi B. Jónssyni í hlutverkum sínum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 368
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Dagný Sigmarsdóttir og Ástmar Kári Ástmarsson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn137
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Guðný Sigurðardóttur sem lék í mörgum sýningum klúbbsins á sínum tíma. Auk þess var hún formaður Leikklúbbsins ásamt Birnu Blöndal 1995 - 1996. Á myndinni er Guðný í gerfi sínu í leikritinu "Er þetta ekki mitt líf" sem klúbburinn setti upp leikárið 1982 - 1983.
Árni Geir Ingvarsson - safn 367
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Magnús B. Jónsson, Dagný Sigmarsdóttir og Kristín Jónsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn189
<p>Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Birnu Blöndal sem tók þátt í mörgum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma. Auk þess var hún fyrsti formaður klúbbsins 1975 -1977 og aftur 1995 - 1996 þá í félagi við Guðný Sigurðardóttur.</p>
Leikklúbbur Skagastrandar - safn194
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Fritz Hendrik Berndsen sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn150
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Þessi mynd var tekin á fundi ritnefndar leikskrárinnar í kennarastofunni í Höfðaskóla. Frá vinstri: Birna Blöndal, Kristín Björnsdóttir og Guðný Sigurðardóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn178
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru leikarar og starfsfólk sýningarinnar að hlusta á athugasemdir Þrastar leikstjóra eftir æfingu í Fellsborg. Frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Kristín Jónsdóttir (nær), óþekktur, Sigrún Jónsdóttir, William Sillar, Ólafur Bernódusson, Óli Hjörvar Kristmundsson, Þröstur Guðbjartsson (snýr baki í myndavélina), óþekktur, Þórhildur Jakobsdóttir, Steindór Haraldsson, Ingibergur Guðmundsson (fjær), óþekktur (nær), Bergþór Gunnarsson, Bóel Hallgrímsdóttir (krýpur), Guðmunda Ólafsdóttir, tvær óþekktar, Þorvaldur Skaftason, Herborg Þorláksdóttir og Ástmar Kári Ástmarsson. Myndina tók Jónas Baldursson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn232
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Steindór Haraldsson sem tók þátt í mörgum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma. Auk þess var hann formaður Leikklúbbsins 1992 - 1995.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn196
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Ingimar Oddsson sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma
Leikklúbbur Skagastrandar - safn214
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Guðný Sigurðardóttur sem þátt tók í mörgum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma. Auk þess var hún formaður Leikklúbbsins 1995 - 1996 ásamt Birnu Blöndal.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn046
Leikárið 1980 - 1981 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stalin er ekki hér eftir Véstein Lúðvíksson í leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum þær Bjarnhildur Sigurðardóttir til vinstri og Guðný Sigurðardóttir til hægri.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn100
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Hallbjörn J. Hjartarson sem lék í mörgum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma. Auk þess leikstýrði hann og sá um tónlist í uppsetningum á vegum klúbbsins.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn081
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason, í Fellsborg í febrúar 1988. Þessi mynd var tekin á lokaæfingu. Sigrún Jónsdóttir til vinstri og Rut Jónasdóttir til hægri í hlutverkum sínum.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn082
Einar Rafn Haraldsson var leikstjóri sýningar Leikklúbbs Skagastrandar á Skjaldhömrum eftir Jónas Árnason leikárið 1976 - 1977. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu, er Guðmundur Haukur Sigurðsson að koma upp úr kjallaranum á Skjaldhömrum til að tala við vitavörðinn sem Ólafur Bernódusson lék.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn080
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason, í Fellsborg í febrúar 1988. Þessi mynd var tekin á æfingu. Frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir og Ástmar Kári Ástmarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 377
Þessi mynd, sem tekin var í Fellsborg á óþekktum tíma, sýnir leikendur í einhverju skemmtiatriði sem þar var flutt af óþekktu tilefni. Frá vinstri eru í hlutverkum sínum: Pétur Ingjaldur Pétursson, Ragnar Jónsson, Guðmundur Jónsson, Egill Bjarki Gunnarsson, Anna Sjöfn Jónasdóttir og Kristín Jónsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn133
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Þorvald Skaftason sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma. Auk þess var Þorvaldur formaður Leikklúbbsins 1989 - 1991. Á myndinni er Þorvaldur í gerfi sínu í leikritinu "Er þetta ekki mitt líf" sem klúbburinn setti upp leikárið 1982 - 1983. Í baksýn sér í Magnús Blöndal (d. 7.9.2001).
Leikklúbbur Skagastrandar - safn181
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Birna Blöndal, Ólafur Bernódusson, Þórey Jónsdóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson og Magnús B. Jónsson
Leikklúbbur Skagastrandar - safn103
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Hallveigu Ingimarsdóttur sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn233
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Önnu Sjöfn Jónasdóttur sem tók þátt í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Jón Jónsson265
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi leikritið Er þetta ekki mitt líf? veturinn 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Á þessari mynd, sem tekin var í hléi sýningarinnar, eru frá vinstri: Þorbjörg Magnúsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir og Steinunn Friðriksdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn053
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg af þeim Guðbjörgu Viggósdóttur, Magnúsi B. Jónssyni, sem var aðalleikarinn í verkinu, og Guðjóni Sigurvaldasyni leikstjóra.
Jón Jónsson251
<p>7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd er Birna Blöndal í hlutverki sínu í sýningunni.</p>
Leikklúbbur Skagastrandar - safn182
Gísl eftir Brendan Beham í þýðingu Jónasar Árnasonar setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikárið 1979 - 1980. Leikstjóri var Ragnhildur Steingrímsdóttir. Leikritið gekk vel og var sýnt víða m.a. á Seltjarnarnesi fyrir fullu húsi. Á myndinni, sem Jónas Baldursson tók, eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Elín Njálsdóttir, Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) og Ólafur Bernódusson. Myndina tók Jónas Baldursson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn211
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Þórdísi Skúladóttur sem þátt tók í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn117
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Magnús Blöndal (d. 7.9.2001) sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn165
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Hendrik Berndsen, Bergþór Gunnarsson, Þórey Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir og Jón Arnarson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn085
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Kardimommubæinn eftir Thorbjörn Egner í litaglaðri sýningu í Fellsborg vorið 1992 undir leikstjórn Árna Blandon. Sýningin var fjölmenn og leikararnir voru á öllum aldri eins og leikritið gerir ráð fyrir. Á þessari mynd, sem tekin var á sýningu, eru frá vinstri: Rúnar Jóhannsson, Jón Ingvar Valdimarsson, Ólafur Magnússon, Ingólfur Bjarnason, Hildur Inga Rúnarsdóttir, Elín Njálsdóttir, Lovísa Vattnes, Fannar Viggósson og óþekktur.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn161
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Ingimar Oddsson, Steindór Haraldsson (nær), Bergþór Gunnarsson (fjær), Ástmar Kári Ástmarsson og Hedrik Berndsen.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn060
Brugðið á leik á æfingu Leikklúbbs Skagastrandar í Fellsborg líklega á leikritinu: Ástin sigrar eftir Ólaf Hauk Símonarson árið 1990. Leikstjóri var Hörður Torfason. Vigdís Viggósdóttir til vinstri og Anna Sjöfn Jónasdóttir til hægri snyrta Óla Hjörvar Kristmundsson með afkastamiklum verkfærum.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn076
Mynd frá æfingu hjá Leikklúbbi Skagastrandar á leikritinu: Ástin sigrar eftir Ólaf Hauk Símonarson árið 1990 undir leikstjórn HarðarTorfasonar. Frá vinstri: Einar Haukur Arason, Kristín Jónsdóttir, Elín Njálsdóttir og Þorvaldur Skaftason.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn077
<p>Leikritið Síldin kemur og síldin eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur var sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar vorið 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Sýningin var fjölmenn og leikararnir á öllum aldri. Þessi mynd var tekin á einni af lokaæfingunum á verkinu og sýnir hluta starfsfólks sýningarinnar. Á myndinni eru frá vinstri:Guðmunda Ólafsdóttir, Steindór Haraldsson, Birna Blöndal, Árdís Indriðadóttir, Þórey Jónsdóttir, Ólafur Bernódusson, óþekktur drengur, Sigrún Jónsdóttir, Magnús B. Jónsson, Herborg Þorláksdóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Ingibergur Guðmundsson, Þorvaldur Skaftason, óþekkt og Viggó Magnússon. </p>
Leikklúbbur Skagastrandar - safn169
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Kristín Jónsdóttir og Þórey Jónsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn119
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Hallbjörgu Jónsdóttur sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma. Auk þess var hún formaður Leikklúbbsins 1991-1992.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn075
Fannar Viggósson með gítarinn og Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) með harmónikuna á æfingu á Saumastofunni? hjá Leikklúbbi Skagastrandar 1984.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn159
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri:Óli Hjörvar Kristmundsson, Ingimar Oddsson og William Sillar. Fólkið í baksýn er ekki í fókus og þekkist því ekki.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn229
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Sigrúnu Jónsdóttur sem tók þátt í nokkrum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn049
Árið 1983 stóð Leikklúbbur Skagastrandar fyrir "Jónasarvöku" í Fellsborg . Þar voru flutt brot úr verkum Jónasar Árnasonar í söng, tali og leik. Jónas sjálfur var heiðursgestur samkomunnar og tók þátt í fjöldasöng og fór með gamanmál. Á þessari mynd eru frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Díana Kristjánsdóttir, Erna Hreinsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Helga Hermannsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Þorvaldur Skaftason, Kolbrún Viggósdóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn205
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Kristínu Jónsdóttur sem þátt tók í nokkrum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn132
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Fannar Viggósson sem komið hefur að mörgum sýningum klúbbsins, einkum sem tónlistarmaður.
Árni Geir Ingvarsson - safn 376
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Kristín Jónsdóttir, Jóney Gylfadóttir og Ólafur Bernódusson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn074
Baldur Magnússon til vinstri og Atli Þórsson til hægri á æfingu hjá Leikklúbbi Skagastrandar líklega á verkinu Kardimommubærinn.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn135
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Magnús Blöndal (d. 7.9.2001) sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma. Á myndinni er Magnús í sminkun fyrir hlutverk sitt í "Er þetta ekki mitt líf" sem sýnt var leikárið 1982 - 1983.
1
…
4
5
6
…
15
Leita í myndasafninu
Leita