Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Ferming
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
372 myndir
Flæði
Reitir
Jón Jónsson 417
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1967 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt árið 1987. Myndin er úr einkasamkvæmi í kaffistofu Hólaness hf þar sem þau mættu með mökum sínum og kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru fermingarbörnin 20 árum síðar. Þau eru frá vinstri: standandi: Ingibergur Guðmundsson, Sigurður Þorbjörnsson, Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001), Finnur Kristinsson, Benóný Gunnarsson, Haraldur Árnason, Jón Gunnar Jósefsson, Einar Guðmundsson, Jón Geir Jónatansson og Böðvar Jónsson. Sitjandi frá vinstri: Halla Júlíusdóttir, Edda Þórarinsdóttir, Inga Stefánsdóttir, Guðrún Guðmannsdóttir og Svanhvít Halla Pálsdóttir.
Jón Jónsson 412
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1963 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1983. Þau héldu m.a. einkasamkvæmi í Skátaskálanum með mökum sínum og buðu þangað til sín kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru frá vinstri: óþekkt, Elínborg M. Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari, Örn Berg Guðmundsson og Sigurjón Ástmarsson.
Jósef H Sigurðsson - safn 069
Myndin var tekin 1996 á fermingardegi Elvars Grétarssonar af fjölskyldunni sem þá bjó á Ránarbraut 7. Talið frá vinstri: Sigurlaug Díana Kristjánsdóttir, Jóhannes Villiam Grétarsson, Ívar Logi Grétarsson, Elvar Arinbjörn Grétarsson og Grétar Haraldsson.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 042
Þessi mynd var líklega tekin á fermingardegi Vilhjálms Skaftasonar 1956 af honum á nýju hjóli sem hann hefur líklega fengið í fermingargjöf. Húsið í baksýn er Iðavellir sem eitt sinn var í Kálfshamarsvík en síðan tekið niður þar og flutt til Skagastrandar einhverntíma fyrirmiðja 20. öld.
Hjördís Sigurðardóttir - safn074
Fermingar- og frændsystkini á fermingardaginn sinn vorið 1975. Frá vinstri: Hafþór Smári Gylfason, Þórey Jónsdóttir og Guðrún Björg Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 16
Fermingarsystkin vorið 2001 í Hólaneskirkju með presti sínum. Presturinn er séra Magnús Magnússon en fermingarbörnin eru, frá vinstri í aftari röð: Hanna Lísa Gestsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Katrín Hólmsteinsdóttir, Sindri Njáll Hafþórsson og Eyþór Kári Egilsson. Í fremri röð frá vinstri: Rósa Björk Blöndal Einarsdóttir, Linda ??, Albert Ingi Haraldsson, Friðvin Ingi Ernstsson og Ásdís Adda Ólafsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 457
Fermingarbörn vorið 1954 frá Hólaneskirkju. Frá vinstri: Hjalti Skaftason, Guðrún Angantýsdóttir, Laufey Ólafsdóttir (Sísí í Sævarlandi) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997).
Jósef H Sigurðsson - safn 039
Á þessari mynd eru hálfbræðurnir Björn Sigurðsson (d. 30.12.1996) til vinstri og Jósep Sigurðsson til hægri. Myndin var líklega tekin við fermingu Jósefs vorið 1975.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 21
Á myndinni er Heiðar Elvan Friðriksson og móðurbróðir hans Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Líklega var myndin tekin á fermingardegi Heiðars vorið 1968.
Hjördís Sigurðardóttir - safn073
Myndin var tekin á fermingardegi Ásdísar Þórbjarnardóttur vorið 1975 í Hólaneskirkju (eldri). með henni á myndinni eru amma hennar Guðrún Teitsdóttir (d.17.6.1978) ljósmóðir í Árnesi og presturinn séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996).
Adolf H Berndsen - safn048
Fermingarbörn vorið 1995 í Hólaneskirkju ásamt prestinum séra Agli Hallgrímssyni. Frá vinstri: séra Egill, Ragna Magnúsdóttir, Sverrir Brynjar Berndsen, Birna Ágústsdóttir, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Sigrún Líndal, Bæring Skarphéðinsson, Kolbrún Jónasdóttir, Birkir Rafn Gíslason, Elva Dröfn Árnadóttir, Davíð Bragi Björgvinsson, Heiðrún Ósk Níelsdóttir og óþekktur drengur.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 077
Þessi mynd hefur að öllum líkindum verið tekin á fermingardegi tvíburasystranna Guðrúnar Angantýsdóttur og Sigurbjargar Angantýsdóttur (d.10.9.1997) 1954 af þeim með föður sínum Angantý Jónssyni (d.28.7.1983). Guðrún er vinstra megin við föður sinn og Sigurbjörg hægra megin.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 3
Fermingarbörn ganga úr Hólaneskirkju eldri eftir ferminguna vorið 1976. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson býr sig undir að taka í hönd Vilhelms Harðarsonar sem fermdist þennan dag. Konan til hægri er Jóhanna Jónasdóttir en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Helga Berndsen 077
Frænkurnar Laufey Berndsen til vinstri og Steinunn Berndsen til hægri í fermingarveislu 13. apríl 1995.
Séra Pétur og Dómhildur - safn193
Fermingarbörn í Hólaneskirkju eldri vorið 1976. Í fremri röð frá vinstri eru: Erla Björg Másdóttir, Rannveig Jónsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir, Sólveig Gunnarsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir og Guðrún Guðmundsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Jónsson, Gestur Arnarson, Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002), Magnús Sigurðsson, Gunnar Þór Gunnarsson, Vilhelm Björn Harðarson, Pétur Ingjaldur Pétursson og Ottó Georgsson.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 174
Þessi mynd var líklega tekin á fermingardegi Aðalsteins Jörgensen 1973. Á myndinni situr hann milli afa síns, Hafsteins Sigurbjarnarsonar (d.18.5.1974), og móður sinnar Áslaugar Hafsteinsdóttur.
Helga Berndsen 079
Lúðvík Jóhann Ásgeirsson með dóttur sína í fanginu. Steinunn Berndsen til vinstri. Myndin var tekin í fermingarveislu 13.apríl 1995.
Helga Berndsen 081
Adolf J. Berndsen í fermingu tveggja afastráka vorið 1995. Afastrákarnir voru Sverrir Brynjar Berndsen og Birkir Rafn Gíslason.
Helga Berndsen 080
Steinunn Berndsen í fermingarveislu 13. apríl 1995.
Helga Berndsen 084
Arnór Snorri Gíslason í fermingarveislu vorið 1995.
Helga Berndsen 078
Gísli Snorrason í fermingarveislu 13. apríl 1995.
Séra Pétur og Dómhildur - safn192
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) með fermingarbarni sínu Sigurði Jónssyni á fermingardaginn 29. apríl 1979 í Hólaneskirkju eldri.
Séra Pétur og Dómhildur - safn191
Þessi mynd var tekin í Höskuldsstaðakirkju af fermingarbörnum vorið 1973 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996) sem fermdi þau. Fermingarbörnin er frá vinstri: Ólafur Guðmannsson, Jón Hallur Pétursson, óþekkt stúlka og Ragnheiður Magnúsdóttir.
Guðmundur Guðnason025
Fermingarbörn 1960 í Hólaneskirkju ásamt Séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Fermingarbörnin eru frá vinstri í efri röð: Stefán Ingólfsson (d. 21.10.2004), Ómar Þorbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Helgi Jónatansson (d.22.8.2020). Fremri röð frá vinstri: Dagný Hannesdóttir, Magdalena Axelsdóttir (d.3.7.2015), Pálfríður Benjamínsdóttir, Guðrún Þórbjarnardóttir og Kristín Lúðvíksdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Á þessari mynd er fjölskylda herra Karls Sigurbjörnssonar biskups. Frá vinstri: óþekkt dóttir, Guðjón Karl Karlsson, Kristín Guðjónsdóttir, óþekkt fermingarstúlka, dóttir og herra Karl Sigurbjörnsson biskup.
Guðmundur Guðnason073
Sveinn Hall Másson frá Réttarholti á fermingardaginn sinn 1967
Guðmundur Guðnason869
Ísleifur Haraldsson á fermingardaginn sinn 1961.
Jón Jónsson 420
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1967 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt árið 1987. Myndin er úr einkasamkvæmi í kaffistofu Hólaness hf þar sem þau mættu með mökum sínum og kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd er kokkurinn Steindór R. Haraldsson, sem sá um veitingar í samkvæminu, með hjálparstúlkum sínum: Elísabetu Hallbjörnsdóttur til vinstri og Jóney Gylfadóttur til hægri.
Jón Jónsson 421
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1967 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt árið 1987. Myndin er úr einkasamkvæmi í kaffistofu Hólaness hf þar sem þau mættu með mökum sínum og kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru fermingarbörnin 20 árum eftir ferminguna ásamt hluta kennara sinna. Standandi frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Sigurður Þorbjörnsson, Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001), Finnur Kristinsson, Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) kennari, Benóný Gunnarsson, Haraldur Árnason, Jón Gunnar Jósefsson, Einar Guðmundsson, Jón Geir Jónatansson og Böðvar Jónsson. Sitjandi frá vinstri: Elínborg M. Jónsdóttir (d.7.1.2007) kennari, Halla Júlíusdóttir, Edda Þórarinsdóttir, Inga Stefánsdóttir, Guðrún Guðmannsdóttir, Svanhvít Halla Pálsdóttir og María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) kennari.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 17
Myndin var tekin í fermingarveislu á Suðurvegi 3 í tilefni af fermingu Kristbjargar Unu Guðmundsdóttur vorið 2001. Fremst á myndinni er faðir fermingarbarnsins, Guðmundur J. Björnsson. Sitjandi til borðs eru, frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Hólmfríður Pálsdóttir, Páll Sigurðsson (d. 16.9.2016), Hólmfríður Anna Ólafsdóttir, Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020) (snýr baki í myndavélina), Ari H. Einarsson og Halla Björg Bernódusdóttir.
Jón Jónsson 426
Fermingarsystur í Höskuldsstaðakirkju vorið 1981 ásamt sóknarprestinum og konu hans. Frá vinstri: Signý Gunnlaugsdóttir (d. 4.5.2015) Balaskarði, Kristín Ásgerður Blöndal Blöndubakka, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), Jófríður Jónsdóttir Sölvabakka og Anna Lilja Björnsdóttir Syðra-Hóli.
Héraðsskjalasafn A-Hún 455
Fermingarbörn vorið 1954 frá Hólaneskirkju með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Frá vinstri: Hjalti Skaftason, Guðrún Angantýsdóttir, Laufey Ólafsdóttir (Sísí), Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) og séra Pétur.
Jósef H Sigurðsson - safn 056
Bræðurnir Kolbeinn Vopni Sigurðsson og Jósep Hjálmar Sigurðsson. Kolbeinn fæddist 1972 en Jósep 1961. Myndin hefur líklega verið tekin á fermingardegi Jóseps vorið 1975.
Jósef H Sigurðsson - safn 053
Feðgarnir Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) og Jósep Sigurðsson. Myndin var líklega tekin á fermingardegi Jóseps vorið 1975.
Jósef H Sigurðsson - safn 052
Mæðginin Dóróthea Hallgrímsdóttir (d.17.10.2004) og Jósep Sigurðsson. Líklega var myndin tekin á fermingardegi Jóseps vorið 1975.
Hjördís Sigurðardóttir - safn054
Adolf H. Berndsen á fermingardaginn sinn ásamt séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996) sem fermdi hann í Hólaneskirkju vorið 1973.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 079
Þessi mynd var líklega tekin 1954 á fermingardegi tvíburasystranna Guðrúnar og Sigurbjargar, sem eru hvítklæddar á myndinni. Fólkið er frá vinstri talið: Sigurbjörg Jónasdóttir, Guðrún Angantýsdóttir, Guðrún Árnadóttir (Guðrún frá Lundi) (d.22.8.1975), Jón Þorfinnsson (d.20.12.1960), Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) og Angantýr Jónsson (d. 28.7.1983). Guðrún frá Lundi og Jón voru foreldrar Angantýs en Sigurbjörg Jónasdóttir var móðuramma systranna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 175
Kristbjörg Una Guðmundsdóttir á sólríkum fermingardegi sínum vorið 2001.
Ingibergur Guðmundsson 133
Fermingarbörn 1967 í Hólaneskirkju (gömlu) með prestinum sínum séra Pétri Þ. Ingjaldssyni(d.1.6.1996). Fremsta röð frá vinstri: Edda Þórarinsdóttir, Ólína Bjarnadóttir, Séra Pétur, Inga Stefánsdóttir og Finnur Kristinsson. Miðröð frá vinstri: Haraldur Árnason, Sigurður Þorbjörnsson, Vigfús Elvan Friðriksson (d.7.12.2001), Jón Geir Jónatansson, Jón Jósefsson og Guðmundur Kristinsson. Aftasta röð frá vinstri: Karl Guðmundsson, Sveinn Hall Másson, Gylfi Jóhannsson, Sigurður Sigurðsson, Benóný Gunnarsson, Böðvar Jónsson og Ingibergur Guðmundsson.
Ingibergur Guðmundsson 141
Þessi hópur kom saman 14. júní 1987 til að halda upp á 20 ára fermingarafmæli sitt. Á myndinni með fermingarsystkinunum eru líka þrír af kennurum þeirra úr Höfðaskóla. Aftari röð frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Sigurður Þorbjörnsson, Vigfús Elvan Friðriksson (d.7.12.2001), Finnur Kristinsson, Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) kennari, Benóný Gunnarsson, Haraldur Árnason, Jón Gunnar Jósefsson, Einar Guðmundsson, Jón Geir Jónatansson og Böðvar Jónsson. Fremri röð frá vinstri: Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) kennari, Halla Júlíusdóttir, Edda Þórarinsdóttir,Inga Stefánsdóttir, Guðrún Guðmannsdóttir, Svanhvít Halla Pálsdóttir og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016)kennari.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 131
Mynd af Árna Geir Ingvarssyni vegna fermingar hans vorið 1977.
Helga Berndsen 085
Myndin var tekin í fermingarveislu vorið 1995. Frá vinstri: Steinunn Berndsen, Hjördís Sigurðardóttir móðir Steinunnar og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir svilkona Hjördísar.
Helga Berndsen 089
Myndin var tekin í fermingarveislu Sverris Brynjars Berndsen vorið 1995. Á henni eru, frá vinstri: Adolf H. Berndsen faðir fermingardrengsins, Óskar Jóhannesson afabróðir Sverris, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) amma Sverris og Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004) langamma hans.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 202
Fermingarbörn fædd árið 1954 ganga til Hólaneskirkju vorið 1968 á eftir séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Á móti þeim tekur prestmaddaman Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012).
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 135
Þessi mynd var líklega tekin á fermingardegi Laufeyjar Sigríðar Ólafsdóttur frá Sævarlandi vorið 1954. Hún situr á milli afa síns og ömmu; Laufeyjar Jónsdóttur (d.25.12.1969) og Hafsteins Sigurbjarnarsonar (d.18.5.1974) frá Reykholti.
Helga Berndsen 017
Myndin var tekin vegna fermingar Guðrúnar Einarsdóttur vorið 1971. Frá vinstri: Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016), Helga Berndsen, Guðrún fermingarbarn, Karla Helgadóttir (d.25.9.1986) og Ernst Berndsen (d.21.8.1983).
Séra Pétur og Dómhildur - safn196
25. maí 1975 fermdist Ásdís Þórbjarnardóttir í Hólaneskirkju eldri, ásamt fleiri krökkum. Á myndinni er hún á milli ömmu sinnar Guðrúnar Teitsdóttur (d.17.6.1978) og séra Péturs Þ. Ingjaldssonar (d.1.6.1996) í kirkjunni.
Helga Berndsen 087
Myndin var tekin vorið 1995 í fermingarveislu. Til vinstri er Gísli Snorrason en hægra megin er Gunnlaugur Árnason (d. 14.9.2016)
Helga Berndsen 083
Frændurnir Sverrir Brynjar Berndsen til vinstri og Birkir Rafn Gíslason til hægri á fermingardaginn sinn vorið 1995.
Helga Berndsen 018
Guðrún Einarsdóttir á fermingardaginn sinn vorið 1971.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 146
Á myndinni er fólk samankomið í veislu, líklega í tilefni af fermingu Vilhelms B. Harðarsonar vorið 1976. Frá vinstri Aðalbjörg Hafsteinsdóttir móðir Vilhelms, Gunda C. Jóhannsdóttir (d.9.11.2013) kona Þórarins Björnssonar (d.24.5.1985) sem er lengst til hægri. Hjónin Hrólfur Jakobsson (d.27.12.1996) og Sigríður Björnsdóttir (d.17.6.1979) systir Þórarins. Fermingarbarnið Vilhelm B. Harðarson sem heldur um axlir langömmu sinnar Vilhelmínu Andrésdóttur (d.24.8.1977) en hún var móðir Þórarins og Sigríðar.
Séra Pétur og Dómhildur - safn195
Fermingarbörn vorið 1974 í Hólaneskirkju eldri ásamt prestinum séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Fermingarbörnin eru frá vinstri: Stefán Þór Árnason, Grétar Smári Hallbjörnsson, Þorgeir Haukdal Jónsson, óþekktur, Vigdís Viggósdóttir, Þórdís Sigurðardóttir, Kristinn Guðmundsson, óþekkt, óþekkt, Sigurjón Ingólfsson (fjær), Sigurður Guðmundsson (nær) og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu fermingarbörnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Séra Pétur og Dómhildur - safn194
Fermingarbörn með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996) í Hólaneskirkju eldri á fermingardegi sínum 29. apríl 1979. Í fremri röð eru frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir?, Björk Sveinsdóttir, séra Pétur, Bryndís Björk Guðjónsdóttir og Margrét Ólafsdóttir. Í aftari röð eru frá vinstri: Ingólfur Sveinsson, Guðbjartur Sævarsson, Hjörtur Þórarinn Sigurðsson (d.9.5.2015), Óli Axel Óskarsson, Valdimar Viggósson, Rögnvaldur Ottósson og Sigurður Jónsson.
Helga Berndsen 088
Myndin var tekin í fermingarveislu vorið 1995. Frá vinstri: Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016), Guðrún Sigurðardóttir og Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013).
Guðmundur Guðnason793
Andrés Baldursson, sem ólst upp í Þórshamri. Líklega er myndin tekin á fermingardaginn hans 1964.
Guðmundur Guðnason121
<P>Séra Pétur þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) skírir Ólaf Kristjánsson frá Höskuldsstöðum í fermingarmessu í Höskuldsstaðakirkju sennilega árið 1969. Foreldrarnir Kristján Sigurðsson (d.4.12.2019) og Helga Guðmundsdóttir færa son sinn til skírnar.</P>
Guðmundur Guðnason267
Vignir Sveinsson frá Tjörn (nú Höfnum) til vinstri og Kristján Steinar Kristjánsson frá Steinnýjarstöðum með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996) í Hofskirkju á fermingardaginn sinn árið 1980.
Guðmundur Guðnason861
Fermingarbörn 1961 í Hólaneskirkju. Aftasta röð frá vinstri: Jóhann Björn (Baddi) Þórarinsson, Jóhann Ingibjörnsson, Páll Jónsson (d.19.7.1979) organisti, Búi Birgisson (d.18.9.2009), Sigurður Bjarnason og Ísleifur Haraldsson. Miðröð frá vinstri: Hrefna Júlía Viggósdóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir, Sigrún Kristófersdóttir og Pétur Jóhannsson. Fremsta röð frá vinstri: Steinunn Margrét Ellertsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir og Fjóla Jónsdóttir.
Guðmundur Guðnason244
Bergþóra Huld Birgisdóttir og Ingvar Jónsson á fermingardaginn sinn í Hólaneskirkju (eldri).
Guðmundur Guðnason071
Fermingarbörn 1967 í Hólaneskirkju (gömlu). Fremsta röð frá vinstri: Sveinn Hall Másson, Edda Þórarinsdóttir, Ólína Bjarnadóttir, Inga Stefánsdóttir, Finnur Kristinsson. Miðröð frá vinstri: Haraldur Árnason, Sigurður Þorbjörnsson, Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001), Jón Geir Jónatansson, Jón Jósefsson, Guðmundur Kristinsson. Aftasta röð frá vinstri: Karl Guðmundsson, Gylfi Jóhannsson, Sigurður Sigurðsson, Benóný Gunnarsson, Böðvar Jónsson, og Ingibergur Guðmundsson.
1
2
3
4
5
6
7
Leita í myndasafninu
Leita