Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Ferming
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
372 myndir
Flæði
Reitir
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) með son sinn Jón Hall Pétursson á fermingardaginn hans vorið 1973.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Fermingarbörn ganga úr skólanum til kirkju með prestinn, séra Pétur Þ. Ingjaldsson í fararbroddi. Með því að bera saman myndina og nútímann sjást miklar breytingar á umhverfinu.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 129
Börnin á myndinni voru fermd í Hólaneskirkju (eldri) vorið 1985. Í fremri röð eru, frá vinstri: Hallgrímur Oddsson, Erlingur Ottósson, Hafdís Þorvaldsdóttir, Dagbjört Jóhannsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir og Vigdís Ómarsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Hans Birgir Högnason, Viggó Magnússon, Ægir Thorberg Jónsson, Þorsteinn Styrmir Jónsson, Sveinn Ingvar Jónasson og Baldur Bragi Eðvarðsson. Presturinn, séra Oddur Einarsson, situr framan við hópinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1701
Fermingarbörn ganga til kirkju á fermingardaginn sinn 23. maí 2010 undir forystu séra Ursulu Árnadóttur. Fermingarbörnin eru frá vinstri: Anna Dís Ragnarsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Einar Ari Einarsson, Sigurbjörg Birta Berndsen, Eva Ósk Björgvinsdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Guðmundur Árnason, Heba Líf Jónsdóttir, Freyja Sif Blöndal Einarsdóttir og Guðrún Anna Halldórsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 040
Hópur fermingarsystkina hittist til að halda upp á fermingarafmæli sitt, líklega 30 ára. Myndina tók Guðmundur J. Björnsson í Skátaskálanum. Standandi frá vinstri: Sigurjón Ástmarsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Guðmundur J. Björnsson, Ómar Jakobsson, Örn Berg Guðmundsson, Þorvaldur Skaftason, Gunnlaugur Sigmarsson, Steindór R. Haraldsson, Guðmundur Guðmundsson og Gísli Kristjánsson. Sitjandi frá vinstri: Óþekkt Þorbjörnsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Matthildur Hafsteinsdóttir Fosdal, Jóhanna Hallgrímsdóttir og Kristín Sigurðardóttir.
2001034
Þessi frændsystkin, Guðbjörg Þorbjörnsdóttir og Árni Ólafur Sigurðsson voru fermd saman í Hólaneskirkju 1963. Myndin var tekin af þeim í tilefni þess.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 966
Myndin var tekin í fermingu Svönu Dísar Þórarinsdóttur 1. apríl 2007. Með henni á myndinni er pabbi hennar Þórarinn Brynjar Ingvarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Fermingarbörn 1968 ganga frá skólanum til kirkju. Krakkarnir klæddust kyrtlunum í skólanum og gengu síðan á eftir prestinum til kirkju. Því miður er ekki hægt að greina fermingarbörnin í sundur á myndinni en presturinn er séra Pétur Þ. Ingjaldsson og börnin fæddust árið 1954.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 63
Myndin var tekin á fermingardegi Ragnars Smára Ingvarssonar vorið 1968 utan við heimili hans að Bogabraut 16. Á myndinni eru, frá vinstri: Ari H. Einarsson, Birgir Árnason (d.2.2.2005), Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) faðir Ragnars, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Árni Geir Ingvarsson, bróðir Ragnars, situr á nýja reiðhjólinu, sem hefur líklega verið fermingargjöf til Ragnars.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 130
Hópur fermingarbarna utan við Hólaneskirkju (eldri) á fermingardaginn sinn vorið 1985. Á myndinni eru frá vinstri: Vigdís Ómarsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Dagbjört Jóhannsdóttir, Hans Birgir Högnason (fjær), Hafdís Fanndal Þorvaldsdóttir, Baldur Bragi Eðvarðsson (fjær, snýr baki í myndavélina), Erlingur Ottósson, Hallgrímur Oddsson, þorsteinn Styrmir Jónsson, Sveinn Ingvar Jónasson, Ægir Thorberg Jónsson, Viggó Magnússon og séra Oddur Einarsson. Krakkarnir í baksýn eru óþekktir en þar má sjá hluta af uppslætti fyrir nýja Hólaneskirkju.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 041
Karlmennirnir á myndinni eru fermingarbræður en konan er óþekkt. Mennirnir eru að skála í fermingarafmæli sínu, líklega 30 ára. þeir eru, frá vinstri: Steindór R. Haraldsson, Ómar Jakobsson, Gísli Kristjánsson og Guðmundur Guðmundsson. Baksvipurinn er líklega af Erni Berg Guðmundssyni. Guðmundur J. Björnsson, sem er einn af fermingarbræðrunum, tók myndina.
Jónas 2
Hluti fermingarbarna í Hólaneskikju (eldri) vorið 1979 með presti sínum séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Fermingarbörnin eru, frá vinstri: Björk Sveinsdóttir, Hjörtur Þórarinn Sigurðsson (d.9.5.2015), Guðbjartur Sævarsson, séra Pétur, Óli Axel Óskarsson, Bryndís Björk Guðjónsdóttir, Valdimar Viggósson, Rögnvaldur Ottósson og Margrét Ólafsdóttir. Í fermingarhópnum voru líka, en eru ekki á myndinni, Ingólfur Sveinsson, Sigrún Jónsdóttir og Sigurður Jónsson.
1
2
3
4
5
6
7
Leita í myndasafninu
Leita