Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Jól
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
385 myndir
Flæði
Reitir
Jón093
Gluggaskraut í vesturgluggum Höfðaskóla jólin 1984.<br>
Jón104
Jólapósturinn borinn út 1989. Félagar í Skíðadeild Fram báru út jólapóst fyrir jólasveinana í mörg ár. Síðan tók skólafélagið Rán við keflinu. Ávallt fengu jólasveinarnir mikla hjálp frá yngri kynslóðinni við útburðinn.
Jón105
Hér er óþekktur jólasveinn á ferð með jólapóstinn fyrir jólin 1989. Sunnuhlíð, nú Bogabraut 19, í baksýn.
mundi399
Börnin á myndinni eru óþekkt og ekki er heldur vitað hvar myndin er tekin. Ef þú veist eitthvað um það sem er á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir096
Skötuveisla Skagstrendings hf í skátaskálanum. Frá vinstri á myndinni eru: Guðjón Guðjónsson, Ernst Berndsen, Hafþór Gylfason og Gunnar Reynisson.
Guðrún Guðbjörnsdóttir110
BNörn í biðröð á jólaballi í Fellsborg einhverntíma á áttunda áratugnum. Lengst til vinstri er Kristján Blöndal og framan við hann er Sigþrúður Magnúsdóttir. Drengirnir í skræpóttu skyrtunum eru Guðjón Pálsson (Dúi), og Árni Geir Ingvarsson. Fullorðnu mennirnir tveir eru Sigurður Magnússon og Rafn Sigurbjörnsson frá Hlíð. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason963
Myndin er sennilega tekin á jólaballi - barnaballi í Tunnunni. Frá vinstri: Fjóla Jónsdóttir, Hrefna Þorbjörnsdóttir, Guðbjörg Þorbjörnsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir (Númadóttir), ?Kolbrún Jónsdóttir?, Guðbjörg Guðjónsdóttir, Gunnlaugur Sigmarsson og Þórir Ágústsson (d.24.9.2000).
Guðmundur Guðnason727
Guðrún Einarsdóttir frá Karlsskála á jólum kringum 1960.
Guðmundur Guðnason964
Myndin var sennilega tekin á jóla- barnaballi í Tunnunni upp úr 1960. Þá sátu ballgestir á bekkjum meðfram veggjunum sitt hvoru megin í salnum, gjarnan strákar öðru megin og stelpur hinum megin. Á myndinni eru frá vinstri: Óskar Kristinsson úr Héðinshöfða, Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari í Röðulfelli, Örn Berg Guðmundsson (Assi) úr Höfðabrekku, Árni Ingibjörnsson á Hólabraut, Rúnar Ingvarsson á Bogabraut, Ísleifur Þorbjörnsson í Akurgerði, Jóhannes Pálsson (d.23.11.1986) á Bogabraut, Guðmundur Guðmundsson í Skeifunni, Sævar Hallgrímsson í Bragganum, Bergur Þórðarson í Herðubreið, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) í Valhöll og Ómar Jakobsson í Grund.
Ólafur Bernódusson051
Litlu jól í Höfðaskóla 1983. Á litlu jólum er leyft að vera með nammi og gos í skólanum. Frá vinstri á myndinni eru: Inga Kristjánsdóttir, Kristín Karlsdóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, Þorbjörg Eðvarðsdóttir og Jensína Lýðsdóttir öll úr 1968 árganginum.
Guðmundur Guðnason407
Þessi jólastúlka er óþekkt. Ef þú veist hvar hún er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason542
Systur í Miðnesi 1. Til vinstri er Málfríður Jóhannsdóttir (Mallý) en Rósa Björg Högnadóttir (Badda) til hægri. Myndin var tekin kringum 1960.
Guðmundur Guðnason594
Jólaball í Tunnunni sennilega einhverntíma á sjöunda áratugnum. Jólasveininn nær okkur er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996)og sitjandi á bekknum má þekkja Adolf J. Berndsen og Hallbjörn Hjartarson. Konan með svörtu húfuna sem dansar fyrir miðri mynd er Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012).
Guðmundur Guðnason579
Gengið kringum jólatré á jólaballi í Tunnunni. Til hægri á myndinni má þekkja Jónu Guðrúnu Vilhjálmsdóttur (d. 13.7.2003) og Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000). Nær miðri mynd er Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) með gleraugu og dökka húfu. Stúlkan fremst á myndinni í köflóttum kjól er Málfríður Jóhannsdóttir. Aðra er ekki hægt að þekkja með vissu. Takið eftir litlu gluggunum á stafninum vinstra megin við dyrnar. Fyrir innan þá voru kvikmyndavélar Skagastrandarbíós sem starfaði í Tunnunni um árabil.
Guðmundur Guðnason540
Mynd af Málfríði Jóhannsdóttur (Mallý) í Miðnesi 1 í jólakjólnum sínum. Myndin var tekin kringum 1960.
Ólafur Bernódusson121
Það snjóaði duglega þegar kveikt var á jólatrénu á Hnappstaðatúninu 1985. Á þessari mynd syngur kirkjukórinn jólalög. Frá hægri á myndinni eru: Gylfi Sigurðsson, Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Hjördís Sigurðardóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir (leiðir barn), Bára Þorvaldsdóttir og Helga Guðmundsdóttir. Stjórnandinn er óþekktur og sama má segja um aðra á myndinni nema manninn lengst til vinstri en það er séra Oddur Einarsson þá sóknarprestur á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson066
Litlu jól í Höfðaskóla 1983 líklega hjá 8. eða 9. bekk. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Indriðason, Páll Jónsson frá Brandaskarði, Ársæll Ottósson og sennilega Guðmundur Óskarsson bakvið Ársæl. Lengst til hægri er Ingimar Oddsson.
Ólafur Bernódusson072
Litlu jól í Höfðaskóla 1983. Gengið syngjandi kringum jólatré á sal og sungið: "Svona gerum við er við skúrum okkar gólf...." Frá vinstri: Elínborg Jónsdóttir kennari, Jón Arnarson, Óli Hjörvar Kristmundsson, Jón Pálsson skólastjóri og Eiríkur Lýðsson.
Ólafur Bernódusson067
Litlu jól í skólanum eru alltaf tilhlökkunarefni nemenda og starfsfólks. Þann dag mæta nemendur og kennarar í betri fötunum í skólann og eiga saman skemmtilega og notalega stund fyrir jólafríið. Þessi mynd var tekin á litlu jólunum í Höfðaskóla 1983. Íþróttahúsið var ekki komið svo þá var gengið syngjandi kringum jólatré á sal í þá nýrri viðbyggingu við skólann. Frá hægri: Elísbet Hallbjörnsdóttir, Jóney Gylfadóttir, óþekkt, Guðmundur Haukur Sigurðsson kennari, óþekktur, Guðmundur Oddsson, Jóhann Ásgeirsson, Jón Indriðason, óþekktur, Magnús B. Jónsson kennari, Ingvi Sveinn Eðvarðsson, Kristjana Jónsdóttir, óþekkt, Sigríður Ásgeirsdóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, óþekktar stúlkur en lengst til vinstri er Þorbjörg Eðvarðsdóttir.
Ólafur Bernódusson201
Jólatónleikar Tónlistarskólans á Skagaströnd 1987. Á myndinni syngur stúlknakór Höfðaskóla undir stjórn Jane Sillar tónlistarkennara. Stúlkurnar eru frá vinstri: Áslaug Jóhannsdóttir, Vilborg Jóhannsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), ?Hanna Ægisdóttir?, Berglind Karlsdóttir, óþekkt, Sandra Ómarsdóttir, Guðbjörg Kristmundsdóttir, Ólína Sveinsdóttir, Helga Kristmundsdóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, María Rós Karlsdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, tvær óþekktar, Kristín Jóna Sigurðardóttir, óþekkt og Inga Lára Sigurðardóttir.
Bjarni Jónsson 21
Bjarni Jónsson gerði þessa jólakortamynd, líklega árið 1995. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 24
Jólakort eftir Bjarna Jónsson, líklega frá 1991. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 19
Bjarni Jónsson gerði myndir af íslensku jólasveinunum sem settar voru á jólakort. Þessi mynd hans er af Giljagaur en hún er líklega síðan 1996. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 15
Bjarni Jónsson gerði þessa mynd af Skyrgámi fyrir jólakort árið 1995 eða 1996. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 36
Þessi mynd gerði Bjarni Jónsson 1982 á jólakort. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Selma P. Jónsdóttir 6
Þessa mynd gerði Selma P. Jónsdóttir, líklega 1990. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Bjarni Jónsson 23
Mynd af jólakorti eftir Bjarna Jónsson. Myndin var líklega gerð 1995. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 37
Þessa mynd úr íslenskri baðstofu gerði Bjarni Jónsson. Myndin er á jólakorti líklega frá árinu 1982. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Mundi239
Frá vinstri: Þórir Ágústsson (d.24.9.2000), Andrés Árni Baldursson, Sigurður Bjarnason í hvítri skyrtu með slaufu, Gylfi Jóhannsson, Fritz Bjarnason og Búi Birgisson (d.18.9.2009). Aftast grillir í tvo jólasveina. Aðrir eru óþekktir.
Mundi257
<P>Systurnar Pálfríður Bjarnadóttir til vinstri og Ólína Jóna Bjarnadóttir til hægri frá Bjarnarhöfn (Bankastræti 8) í jólakjólunum sínum. Myndin var tekin 1956 - 1958. </P>
Óþekkt088
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson les úr Biblíunni í Hólaneskirkju (gömlu) á jólum.
Jón092
Gluggaskreytingar í suðurgluggum Höfðaskóla um jólin 1984<br>
Mundi316
<P>Þetta er fjölskyldan í Dvergasteini. Dvergasteinn var hús sem stóð ofan við Skálholt en var við Bankastræti. Húsið var lítið og lágreist með viðbyggð fjárhús og hlöðu. Á myndinni er ekkjan Svanbjörg Magdalena Jósefsson (Svana Fossdal) (f. 27.4.1925 - d. 31.3.2002) með börnin sín. Svana var færeysk að uppruna en maður hennar var Hafsteinn Björnsson Fossdal. Hafsteinn drukknaði í Skagastrandarhöfn í hörmulegu slysi 22. febrúar 1962 og er því ekki á myndinni. Börnin þeirra á myndinni eru frá vinstri: Ingi Jóhann Hafsteinsson Fossdal, sem drukknaði í Hólmavatni við Blönduós 12. desember 1987, Matthilda Alvilda Hafsteinsdóttir Fossdal, Björn Hafsteinsson Fossdal (d. 13.4.1983) og Sævar Hafsteinsson Fossdal. Sævar var seinna í fóstri á Holtastöðum í Langadal og eyddi þar unglingsárum sínum. Myndin var tekin heima í Dvergasteini um jól á árunum 1963 eða1964. Svana flutti til Reykjavíkur með fjölskyldu sína árið 1965.
mundi396
<P>Mynd frá jólaskemmtun á Njálsstöðum 1960. Ekki hefur tekist að bera kennsl á öll börnin á myndinni en í öftustu röð eru, talið, frá vinstri: Dómhildur Jónsdóttir, sr. Pétur Ingjaldsson, Filipía Helgadóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir, óþekkt kona, Magnús Daníelsson, Jónas Hafsteinssson. Erla Jakobsdóttir er síðan framan við Magnús. Í annarri röð má sjá tvíburabræðurna Ellert og Jakob Guðmundssyni.</P>
Guðmundur Guðnason726
Björn Magnússon Syðra-hóli.
Guðrún Guðbjörnsdóttir084
Jólaball í Fellsborg. Orri Blöndal er drengurinn lengst til vinstri. Aðrir eru: Friðjón Guðmundsson, Teitný Guðmundsdóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir og Bára Þorvaldsdóttir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir095
Skötuveisla Skagstrendings hf í skátaskálanum. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðmundur Jónsson, Aðalheiður Guðmundsdóttir og Jón Helgason. Bak við Jón er Árni Ólafur Sigurðsson.
Guðmundur Guðnason965
Myndin er tekin í jólaskemmtun í Tunnunni, sennilega á vegum kvenfélgasins Einingar, einhverntíma í kringum 1960.
Ólafur Bernódusson031
Kirkjukórinn syngur við athöfn þegar kveikt er á jólatré á Hnappstaðatúni í aðdraganda jólanna. Logndrífa var þegar athöfnin fór fram og þess vegna er myndin eins og hún er. Á myndinni frá hægri: Gylfi Sigurðsson, Guðmundur Guðnason, Kristján Hjartarson, Hjördís Sigurðardóttir, Guðrún Sigurðardóttir,óþekkt kona með lítinn jólasvein, Bára Þorvaldsdóttir. Aðrir á myninni eru óþekktir. Myndin er tekin einhverntíma á níunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason187
Guðmundur Kr. Guðnason frá Ægissíðu(d. 21.11.1988) ljósmyndari, póstur og organisti með harmonikuna sína um jól.
Guðmundur Guðnason285
Áramótabrenna. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason487
Jólasveinninn kemur í heimsókn á jólatrésskemmtun á Sturluhóli. Konan með gleraugun er Dómhildur Jónsdóttir prestsfrú frá Skagaströnd. Drengurinn fremst á myndinni til vinstri er Jón Tryggvi Jökulsson frá Núpi og hægra megin sést bróðir hans, Valgarður Jökulsson til hálfs. Hægra megin við Dómhildi er svo Halla Jökulsdóttir systir þeirra. Stúlkan sem sést í fremst í horninu til hægri er Halldóra Ingimundardóttir frá Enni. Myndin var tekin milli jóla og nýárs 1967. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason595
Jólaball í Tunnunni sennilega á sjöunda áratugnum. Hægra megin má sjá dansa með börnunum: Gunnar Albertsson (d.27.7.2019), Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020), Laufey Ingimundardóttur (d.31.12.1992) og Jón Inga Ingvarsson. Konan fremst á myndinni með svarta húfu er Dómhildur Jónsdóttir(d. 18.10.2012). Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason726
Jól á Karlsskála. Guðrún Einarsdóttir dáist að skreyttu jólatré heimilisins.
Ólafur Bernódusson071
Litlu jól í Höfðaskóla 1983. Á myndinni kynnir Valdimar Númi Hjaltason skemmtiatriði bekkjarins sem hann var í.
Ólafur Bernódusson068
Litlu jól í Höfðaskóla 1983. Gengið syngjandi kringum jólatré á sal. Frá vinstri: Kristín Karlsdóttir, Svenný Hallbjörnsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Pálína Harðardóttir, Bergþóra Birgisdóttir, Laufey Vilmundardóttir og Áslaug Gunnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson122
Það snjóaði duglega þegar kveikt var á jólatrénu á Hnappstaðatúninu 1985. Á þessari mynd hefur fólk safnast saman á túninu í muggunni. Sigfús Jónsson þáverandi sveitarstjóri er lengst til hægri á myndinni en síðan verður hver að þekkja sig ef hægt er.
Ólafur Bernódusson070
Litlu jól í Höfðaskóla 1983 líklega hjá 8. eða 9. bekk. Á myndinni eru frá vinstri: Ársæll Ottósson, Guðmundur Óskarsson, Ingimar Oddsson, Þórarinn B. Ingvarsson, Ingunn Kristjánsdóttir frá Steinnýjarstöðum, Kristín Karlsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir.
Ólafur Bernódusson123
Það snjóaði duglega þegar kveikt var á jólatrénu á Hnappstaðatúninu 1985. Á þessari mynd er séra Oddur Einarsson, þáverandi sóknarprestur, lengst til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson069
Litlu jól í Höfðaskóla 1983 líklega hjá 8. eða 9. bekk. Á myndinni eru frá vinstri: Þórarinn B. Ingvarsson, Ingunn Kristjánsdóttir frá Steinnýjarstöðum, Kristín Karlsdóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, Þorbjörg Eðvarðsdóttir og Jensína Lýðsdóttir.
Bjarni Jónsson 20
Myndin er af jólakorti eftir Bjarna Jónsson frá 1992. Hún sýnir vel vinnubrögð við að setja bát í naust eins og menn gerðu í gamla daga áður en bryggjur voru byggðar til að láta bátana liggja við. Víða um land, við sjávarsíðuna, má finna leifar af handspilum eins og sést á myndinni. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 18
Bjarni Jónsson gerði þessa mynd af Gluggagæi fyrir jólakort, líklega 1995. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Halldór Pétursson 4
Myndin er af jólakort eftir Halldór Pétursson líklega frá 1985. Halldór Pétursson (26.9.1916 – 16.3.1977) var þekktur myndlistarmaður og teiknari. Hann lauk prófi í auglýsingateiknun frá Kunsthåndværksen í Kaupmannahöfn 1938 en var svo í framhaldsnámi í Minneapolis School of Art og Art Students League í New York árin 1942 – 1945. Hann myndskreytti fjölda bóka og rita, hafði mikinn áhuga á hestum og gerði margar myndir af þeim. Fræg verk eftir Halldór eru t.d. merki Reykjavíkurborgar (1951), merki Flugleiða og merki Rafmagnsveitna Reykjavíkur. Þá hannaði hann alla peningaseðla sem voru gefnir út á árunum 1960 – 1981. Halldór var þekktur meðal almennings fyrir teikningar sínar, ekki síst skopteikningar.
Bjarni Jónsson 27
Bátar á leið til lendingar og heimafólk kemur hlaupandi til að hjálpa. Myndin er eftir Bjarna Jónsson frá árinu 1988 er hún var á jólakorti. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 40
Á þessari mynd Bjarna Jnssonar undirbýr kona smjörgerð með strokki. Myndin var á jólakkorti líklega árið 1981. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Halldór Pétursson 13
Þessi mynd er af jólakorti sem Halldór Pétursson gerði fyrir jólin 1950. Halldór Pétursson (26.9.1916 – 16.3.1977) var þekktur myndlistarmaður og teiknari. Hann lauk prófi í auglýsingateiknun frá Kunsthåndværksen í Kaupmannahöfn 1938 en var svo í framhaldsnámi í Minneapolis School of Art og Art Students League í New York árin 1942 – 1945. Hann myndskreytti fjölda bóka og rita, hafði mikinn áhuga á hestum og gerði margar myndir af þeim. Fræg verk eftir Halldór eru t.d. merki Reykjavíkurborgar (1951), merki Flugleiða og merki Rafmagnsveitna Reykjavíkur. Þá hannaði hann alla peningaseðla sem voru gefnir út á árunum 1960 – 1981. Halldór var þekktur meðal almennings fyrir teikningar sínar, ekki síst skopteikningar.
Halldór Pétursson 6
Myndin er af jólakorti eftir Halldór Pétursson líklega fá árinu 1981. Halldór Pétursson (26.9.1916 – 16.3.1977) var þekktur myndlistarmaður og teiknari. Hann lauk prófi í auglýsingateiknun frá Kunsthåndværksen í Kaupmannahöfn 1938 en var svo í framhaldsnámi í Minneapolis School of Art og Art Students League í New York árin 1942 – 1945. Hann myndskreytti fjölda bóka og rita, hafði mikinn áhuga á hestum og gerði margar myndir af þeim. Fræg verk eftir Halldór eru t.d. merki Reykjavíkurborgar (1951), merki Flugleiða og merki Rafmagnsveitna Reykjavíkur. Þá hannaði hann alla peningaseðla sem voru gefnir út á árunum 1960 – 1981. Halldór var þekktur meðal almennings fyrir teikningar sínar, ekki síst skopteikningar.
Halldór Pétursson 7
Þessi mynd er af jólakorti eftir Halldór Pétursson líklega frá árinu 1975. Halldór Pétursson (26.9.1916 – 16.3.1977) var þekktur myndlistarmaður og teiknari. Hann lauk prófi í auglýsingateiknun frá Kunsthåndværksen í Kaupmannahöfn 1938 en var svo í framhaldsnámi í Minneapolis School of Art og Art Students League í New York árin 1942 – 1945. Hann myndskreytti fjölda bóka og rita, hafði mikinn áhuga á hestum og gerði margar myndir af þeim. Fræg verk eftir Halldór eru t.d. merki Reykjavíkurborgar (1951), merki Flugleiða og merki Rafmagnsveitna Reykjavíkur. Þá hannaði hann alla peningaseðla sem voru gefnir út á árunum 1960 – 1981. Halldór var þekktur meðal almennings fyrir teikningar sínar, ekki síst skopteikningar.
Selma P. Jónsdóttir 1
Danspar á jólakorti eftir Selmu P. Jónsdóttur, líklega frá árinu 1987. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Selma P. Jónsdóttir 14
Selma P. Jónsdóttir gerði þetta jólakort, líklega árið 1978. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
1
2
3
4
5
6
7
Leita í myndasafninu
Leita