Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Jól
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
385 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 648
Ólafur Bernódusson og Guðlaug Grétarsson í eldhúsinu í leikskólanum Barnabóli 21. desember 2006 þegar árlegu piparkökubakstur stóð yfir þar.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 047
Kaffitími í Rækjuvinnslunni hf einhverntíma um jól. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á henni eru frá vinstri: Björn Ingi Óskarsson, Sigurður Bjarnason og óþekktur. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 653
Guðrún Pálsdóttir mótar piparkökur með ömmustráknum sínum Ólafi Halldórssyni á piparkökudaginn í Barnabóli 21.desember 2006.
Ólafur Bernódusson 588
Áramótin 2008 - 2009 var þétt logndrífa á Skagaströnd. Fólk lét það ekki á sig fá en mætti með kyndlana sína í gönguna að áramóta-bálkestinum þar sem kyndlarnir voru notaðir til að kveikja í brennunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 184
Ljósmyndasafn Skagastrandar sendir öllum kveðju og ósk um gleðileg jól 2017 með þessari mynd. Hún er af krökkum að flytja helgileik í kirkjunni okkar á aðventukvöldi í desember 2012 og henni fylgir ósk um að allir finni barnið í sjálfum sér um jólin og njóti þeirra með þeirri gleði sem einkennir börn á jólunum. Á myndinni eru frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Benóný Bergmann Hafliðason, Hekla Guðrún Þrastardóttir?, Dagný Dís Bessadóttir, Ástríður Magnúsdóttir, Jóhann Almar Reynisson, Dagur Freyr Róbertsson, séra Ursúla Árnadóttir, Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir, Aníta Ósk Ragnarsdóttir og Guðný Eva Björnsdóttir.<br>Gleðileg jól.
Ólafur Bernódusson 654
Herdís Baldvinsdóttir og Ágúst Ingi Ágústsson kennarar við Höfðaskóla með dóttur sína Emblu Ágústsdóttur að skreyta piparkökur á piparkökudaginn í Barnabóli 21. desember 2006.
Ólafur Bernódusson 590
Áramótin 2008 - 2009 var þétt logndrífa þegar fólk kom til að horfa á áramótabrennuna það árið. Fremst á myndinni eru frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Einar Ásgeirsson og Finnur Kristinsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 647
Þessi mynd var tekin af Guðbjörgu Viggósdóttur á leikskólanum Barnabóli þegar þar stóð yfir piparkökubakstur 21. desember 2006.
Ingibergur Guðmundsson 281
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Til að fjármagna starfsemina, þar á meðal byggingu skíðaskálans, tóku jólasveinar á vegum skíðadeildarinnar að sér að bera út jólapóstinn á Skagaströnd. Á myndinni eru þeir að leggja af stað með póstinn frá Skíðaskálanum á Þorláksmessu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 186
Jólatré á Hnappstaðatúni 2017.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 182
Suðurvegur 9 í jólabúningi á jólum 2017.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 189
Ljósmyndasafn Skagastrandar óskar öllum gleði og gæfu á árinu 2018 um leið og safnið þakkar alla hjálp og ábendingar á árinu 2017. Minnum á að við tökum alltaf við myndum sem tengjast Skagaströnd á einn eða annan hátt. <br>Myndin er frá áramótunum 2014 tekin af Árna Geir Ingvarssyni. <br>Lifið heil.
Ólafur Bernódusson736
Elías Gunnar Hafþórsson á litlu jólum í Höfðaskóla 2008.
Ólafur Bernódusson732
þessar fjórar stúlkur voru forsöngvarar á jólaballinu á litlu jólum Höfðaskóla í íþróttahúsinu 19. desember 2011. Stúlkurnar, sem voru bekkjarsystur, eru frá vinstri: Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Heba Líf Jónsdóttir og Lilja Svandís Hallgrímsdóttir.
Helga Berndsen 109
Myndin var tekin á jólum 1984. Við borðið sitja frá vinstri: Sigríður Ólafsdóttir, Helga Berndsen og Karl Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 194
Hólaneskirkja á aðventu 2017.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 190
Áramótagos 2014
Helga Berndsen 112
Þessar spariklæddu og brosandi jólastúlkur eru Guðrún Einarsdóttir til vinstri og Sesselja Guðmundsdóttir til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega var það kringum 1965.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1080
Foreldrar og börn ganga kringum jólatréð á jólaballi í Fellsborg 26. desember 2012.
Helga Berndsen 136
Myndin var tekin á jóla-barnaballi 1966 í Höfðaskóla. Þá héldu konurnar í kvenfélaginu Eining ballið og á myndinni má sjá tvær þeirra sem störfuðu í félaginu í áratugi. Karla Helgadóttir (d.25.9.1986) er til vinstri og Anna H. Aspar (d.1.9.1999) er til hægri. Á myndinni er jólasveinninn að úthluta börnunum epli, sem þótti góður fengur á þessum árum, þegar slík munaðarvara var bara í boði um jólin.
Helga Berndsen 138
Þessi jólamynd var líklega tekin um 1968. Á henni eru frændsystkinin Guðrún Einarsdóttir til vinstri og svo systkinin Karl Berndsen í miðið og Laufey Berndsen til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 466
Guðrún Anna Halldórsdóttir tekur saman nóturnar eftir að hafa spilað á saxófóninn sinn við messu í Hólaneskirkju á gamlaársdag 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1081
Foreldrar og börn ganga kringum jólatréð á jólaballi í Fellsborg 26. desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1262
Ólafur Bernódusson kemur í söluskálann eftir heimsókn í leikskólann Barnaból í gervi jólasveins um miðjan desember 2018.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1480
Kolbrún Guðnadóttir mætt með dóttur sína Þórdísi Kötlu Atladóttur á Hnappstaðatún til að fylgjast með þegar kveikt var á jólatrénu 30. nóvember 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 459
Myndin var tekin í jólamessu í Hofskirkju á jóladag 2013. Séra Bryndís Valbjörnsdóttir er fyrir altarinu en kirkjukór Hólaneskirkju syngur við undirleik Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur. Í kórnum eru frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Guðlaug Grétarsdóttir, Helga Dögg jónsdóttir, Sigurður Bjarnason, Árdís Indriðadóttir, Ólafur Bernódusson (fjær), Herdís Jakobsdóttir (nær), Dagný Hannesdóttir, Hafþór Gylfason, Þórarinn Grétarsson (fjær), Ragnhildur Ragnarsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hildur Ingólfsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1481
Dansað kringum jólatréð á Hnappstaðatúni með jólasveinunum þegar kveikt var á því 30. nóvember 2012.
Ólafur Bernódusson992
Jólin eru tími samveru og fjölskyldunnar. Kirkjugarðurinn er einn af þessum stöðum sem við heimsækjum fyrir eða um jólin til að minnast þeirra sem áður nutu jólanna með okkur og gerðu þau yndisleg. Við treystum því að þau séu hjá okkur um jólin og njóti þeirra með okkur þó þau séu horfin yfir á annað tilverustig. Ljósmyndasafnið óskar öllum Skagstrendingum og öðrum velunnurum gleðilegra jóla og hamingjuríks komandi árs.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1296
Gleðibankinn stendur árlega fyrir upplestrarkvöldi úr nýjum bókum einhverntíma á aðventunni. Á þessari mynd frá 11. desember 2013 er María Ösp Ómarsdóttir að lesa upp á slíku kvöldi í Bjarmanesi. Ávallt hafa verið fengnir lesarar sem eiga heima á Skagaströnd og reynt að fá nýja á hverju ári. Á þessum notalegu aðventukvöldum hefur margur lagt ríflega inn í Gleðibankann því innleggin felast í brosum, hlátri og góðri samveru.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1078
Silfá Sjöfn Árnadóttir og Ingólfur Eðvald Björnsson á jólaballi í Fellsborg 26. desember 2012.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 075
Þessi mynd prýddi jólakort sem Sjóminja - og munasafnið á Skagaströnd gaf út til að fjármagna starfsemi sína. Myndina tók Jón Karl Snorrason úr lofti yfir Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið á níunda áratugnum.
Ólafur Bernódusson 587
Sævar Bjarnason mætti með kyndil í snjókomunni á áramótabrennuna á Skagaströnd áramótin 2008 - 2009.
Ólafur Bernódusson 651
Árið 2006 var piparkökudagurinn var haldinn í Barnabóli 21.desember. Á þessari mynd eru hjónin Þórunn Ævarsdóttir og Björn Sigurðsson með syni sína þá Sindra til vinstri og Sigurð Aron til hægri á milli sín. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 652
Guðlaug Grétarsdóttir skreytir piparkökur með dætrum sínum þeim Guðrúnu Rós Hjaltadóttur til vinstri og Lilju Dögg Hjaltadóttur til hægri í Barnabóli á piparkökudaginn 21. desember 2006.
Ólafur Bernódusson 655
Baldur Magnússon aðstoðar son sinn Magnús Sólberg við að skreyta piprkökur á piparkökudaginn í Barnabóli 21. desember 2006. Við borðið hjá þeim situr Ólafur Halldórsson með jólasveinahúfu.
Ólafur Bernódusson 650
Þessi mynd var tekin í eldhúsinu í leikskólanum Barnabóli 21. desember 2006 þegar árlegu piparkökubakstur stóð yfir þar. Á myndinni bíða bræðurnir Sigurður Aron Björnsson til vinstri og Sindri Björnsson til hægri spenntir eftir ofninum með kökunum sínum í ásamt móður sinni Þórunni Ævarsdóttur.
Ólafur Bernódusson 589
Á myndinni horfa í eldinn á áramótabrennunni 2008 - 2009, frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Auður Eva Guðmundsdóttir og Hilmar Sigurjónsson. Barnið fremst á myndinni er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 191
Áramótaflugeldur 2014
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 195
Jólaljós á efri hluta Ránarbrautar jólin 2017.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 187
Jól 2017.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 188
Jólatré á Hnappstaðatúni í desember 2017. Arnar Hu 1 er ljósum skrýddur í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 192
Áramótaflugeldur 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 193
Hólaneskirkja á aðventu 2017.
Helga Berndsen 137
Myndin var tekin á jóla-barnaballi 1966. Þá héldu konurnar í kvenfélaginu Eining ballið í Höfðaskóla. Á myndinni spilar Adolf J. Berndsen fyrir dansi á harmonikuna sína. Á töflunni aftan við hann er jólamynd til skrauts. Undir glugganum situr Ásalug Hafsteinsdóttir með barn á hnjánum en aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Helga Berndsen 113
Myndin var tekin á jólum heima á Karlsskála, líklega kringum 1965. Konan sem stendur til vinstri er húsmóðirin Guðrún Helgadóttir (d.15.4.1987). Við hlið hennar situr Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996) með dóttur sína, Guðrúnu Guðmundsdóttur í fanginu. Guðrún Einarsdóttir situr lengst til vinstri og við hlið hennar situr Sesselja Guðmundsdóttir, dóttir Hildigunnar. Konan sem situr lengst til hægri er Helga Berndsen móðir Guðrúnar Einarsdóttur og dóttir Guðrúna Helgadóttur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 196
Jólaljós á Hólabraut 11 um jólin 2017.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 185
Jólatré á Hnappstaðatúni 2017.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 323
Taflan skreytt fyrir jólin með jólalegum teikningum. Frá vinstri: Sólveig Erla Baldvinsdóttir, Katrín Ragna Gunnarsdóttir, Hugrún Antonía Sigurðardóttir (fjær), Logi Hrannar Jóhannsson (nær) og óþekkt stúlka.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1082
Klappað og sungið með jólasveinunum á jólaballi í Fellsborg 26. desember 2012.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 022
Krakkar að leik við jólatréð á leikskólanum Barnaból á þrettándanum 1977. Frá vinstri: Guðmundur Henry Stefánsson, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson og Guðmundur Rúnar ?. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Helga Berndsen 135
Frænkur á jóla-barnaballi í Höfðaskóla líklega rétt fyrir 1970. Guðrún Björg Berndsen er til vinstri, Guðrún Einarsdóttir í miðið og Steinunn Berndsen til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson733
Jólasveinn einn að vaða snjóinn utan við Bogabraut 19 fyrir jólin 2011.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1079
Feðginin Klara Ósk Hjartardóttir og Hjörtur Guðmundsson á jólaballi í Fellsborg 26. desember 2012.
Helga Berndsen 134
Þessi mynd var líklega tekin 1966 á jóla-barnaballi í Höfðaskóla. Á henni má meðal annars sjá nokkrar mæður sem sitja undir börnum sínum. Frá vinstri: þrjár óþekktar stúlkur, Guðrún Angantýsdóttir með einn af sonum sínum í fanginu, Bára Þorvaldsdóttir með dóttur sína, Önnu Elínborgu Gunnarsdóttur, í fanginu, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir með strákinn sinn Karl Berndsen, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir með Vilhelm Björn Harðarson son sinn, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018) og Dagný Hannesdóttir með eitt barna sinna í fanginu(?Kristján Karlsson?).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1291
Ísak Andri Jónsson að fá sér kakósopa í Gunnfríðarstaðaskógi 16. desember 2012 verandi í jólatrés-leiðangri með foreldrum sínum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1288
Stefán Sveinsson lagar húfuna á dóttur sinni Stefaníu Hrund Stefánsdóttur meðan hann spjallar við Jón Ólaf Sigurjónsson. Myndin var tekin um miðjan desember 2012 þegar þeir voru að sækja sér jólatré í Gunnfríðastaðaskóg.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1083
Myndin var tekin á jólaballi í Fellsborg 26. desember 2012. Á myndinni eru frá vinstri: Helga Ólína Aradóttir, Ásdís Adda Ólafsdóttir, Almar Atli Ólafsson, Harpa Hlín Ólafsdóttir og Elva Þórisdóttir. Litlu börnin á myndinni eru óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1295
Árni Geir Ingvarsson til vinstri og Bergþór Gunnarsson til hægri bera saman bækur sínar í jólatrjáaleiðangri í Gunnfríðarstaðaskógi í desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1479
Feðginin Hrólfur Pétursson og Arnrún Hildur Hrólfsdóttir mætt á Hnappstaðatún til að fylgjast með þegar kveikt var á jólatrénu það árið 30. nóvember 2012. Til hægri sér í Lilju Ingólfsdóttur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 670
Myndin var tekin á jólastund á hjúkrunarheimilinu Sæborg 29. desember 2014. Frá vinstri: séra Bryndís Valbjörnsdóttir, Jökulrós Grímsdóttir forstöðumaður heimilisins, Jóhann Jónasdóttir heimiliskona og Gestur Jónsson (d.27.1.2015) heimilismaður.
1
2
3
4
5
6
7
Leita í myndasafninu
Leita