Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Jól
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
385 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn576
Myndin var líklega tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 1970. Þriðji frá vinstri (með gleraugu) er Jósef Sigurðsson og næstur honum hægra megin er Ástmar Kári Ástmarsson. Jón S. Pálsson er kennarinn en vinstra megin við hann er sonur hans Páll Jónsson (d. 13.5.2021). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bjarni Jónsson 32
Bjarni Jónsson gerði þessa jólakortamynd, líklega árið 1987. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Jóhannes Frímannsson 1
Þessa vetrarmynd á jólakorti gerði Jóhannes Frímannsson en ekki er vitað hvenær. Jóhannes Frímannsson (14.11.1919 – 20.10.1997) var sjálflærður í list sinni. Jóhannes merkti myndir sínar með eiginnafni sínu og fyrir kom að reynt var að selja verk hans sem málverk eftir Jóhannes Kjarval. Það segir töluvert til um gæði verka Jóhannesar Frímannssonar.
Höfðaskóli - safn575
Litlu Jól 1970 í Höfðaskóla. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðrún Björg Einarsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir, Guðrún Elvan Friðriksdóttir (d.14.2.2008) (nær), þrjár óþekktar stúlkur, óþekktur kennari (nær), Guðmundur Viðar Guðmundsson (fjær), Unnur Gunnarsdóttir, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018) (nær), þrír óþekktir, Sigríður Björnsdóttir og þrír óþekktir. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Selma P. Jónsdóttir 11
Mynd úr sveitinni á jólakorti eftir Selmu P. Jónsdóttur, líklega frá árinu 1980. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1519
Þessi mynd af Örvari Hu 21 var tekin á kyrrlátu jólkvöldi í Skagastrandarhöfn. Ekki er vitað hvaða ár.
Höfðaskóli - safn517
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það 1983 því nemendurnir á henni fæddust 1969. Vinstra megin sér í Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d.13.8.2000). Hægra megin við borðið frá vinstri: óþekktur, Hjalti Magnússon, óþekktur, Arnar Erlingsson, Hulda Magg Elínardóttir, Pálína Freyja Harðardóttir og Áslaug Sif Gunnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson002
Myndin var tekin fyrir jólin 1991 í Hólaneskirkju þegar þar var haldin aðventumessa. Á henni er séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) fyrir altarinu ásamt fermingarbörnum sem fermdust vorið 1992. Til vinstri situr meðhjálparinn Steindór Haraldsson. Fermingarbörnin eru, frá vinstri: Hjörtur Jónas Guðmundsson, Arnar Ólafur Viggósson, Viðar Guðmundsson, Jón Örn Stefánsson, Þóra Ágústsdóttir, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Bergþóra Hrund Guðjónsdóttir, Guðrún Björk Elísdóttir, Salóme Ýr Rúnarsdóttir, Halla Kristín Árnadóttir, Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir, Ásta Ýr Ásgeirsdóttir, Þórunn Ævarsdóttir, Sigurður Berndsen, Ólína Laufey Sveinsdóttir og Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir. Á myndina vantar Jón Ólaf Sigurjónsson sem tilheyrði hópnum. Hópurinn var sá fyrsti sem fermdist frá Hólneskirkju hinni nýrri en hún var vígð 20. október 1991. Fyrstur allra til að fermast frá kirkjunni var Arnar Ólafur Viggósson.
Selma P. Jónsdóttir 4
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Ingibergur Guðmundsson 442
Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla dansa syngjandi kringum jólatré á litlu jólum 1985. Krakkarnir á myndinni eru, frá vinstri: óþekkt, Katrín Sigurjónsdóttir, Rakel Jónsdóttir, Jóney Gylfadóttir, Elíasbet Hallbjörnsdóttir, þrjú óþekkt, Rafn Ingi Rafnsson, óþekkt, Davíð Reynisson og tvær óþekktar. Ef þú þekkir einhvern af óþekktu krökkunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 561
Lengi var hefð fyrir því í Höfðaskóla að starfsfólkið hittist að kvöldi síðasta vinnudags fyrir jól og borðaði saman hangikjöt í skólanum. Myndin er frá einu slíku kvöldi líklega kringum 1995. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Hlíf Sigurðardóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Peter Wheelar (d.?), Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021), Unnur Kristjánsdóttir (d.19.6.2023), Kristín Ólafsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Guðbjörg Ólafsdóttir og Þröstur Líndal Gylfason.
Ingibergur Guðmundsson 356
Á litlu jólum í Höfðaskóla líklega 1990. Allir eru mættir á sal til að fylgjast með skemmtiatriðum frá bekkjunum. Næst okkur á myndinni eru Þröstur Árnason til vinstri og Óskar Ingi Þórsson (d.5.4.2007) hægra megin. Næst fremsta röð, frá vinstri: Ólafur Bernódusson kennari, Gunnar Halldór Hallbjörnssson, óþekkt, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Særún Níelsdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir og Anna Dröfn Guðjónsdóttir. Í þriðju röð, frá vinstri: þrjár óþekktar stúlkur, Gígja Óskarsdóttir?, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir, Guðný Finnsdóttir og Svava Magnúsdóttir. Aftast eru: Jón Heiðar Jónsson í íþróttajakka, Ragnar Friðrik Gunnlaugsson í grænni peysu, Einar Haukur Arason kennari í svörtum jakkafötum og Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) kennari framan við hann, Jóhanna Ólafsdóttir kennari við hlið Einars og Vilborg Magnúsdóttir kennari lengst til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 357
Þessi mynd var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla líklega 1990. Á henni eru nemendur með skemmtiatriði á sal fyrir aðra í skólanum. Lesararnir hægra megin eru, frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Þóra Ágústsdóttir, Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir og Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir. Leikararnir, sem líklega eiga að vera jólasveinarnir, Grýla og Leppalúði, eru óþekktir en krakkarnir eru fædd árið 1978.
Bjarni Jónsson 8
Jólakort eftir Bjarna Jónsson en ekki er vitað hvenær hann gerði þessa mynd. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson1037
Myndin var tekin á aðventukvöldi í Hólaneskirkju í desember 1997. Húsfyllir var í kirkjunni og meðal atriða var að börnin á myndinni sungu sunnudagasöngvana sína við altarið.
Selma P. Jónsdóttir 22
Myndin af konu að brydda skó er eftir Selmu P. Jónsdóttur og er á jólakorti, líklega frá árinu 1986. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Höfðaskóli - safn577
Myndin var líklega tekin á litlu jólum 1970 í Höfðaskóla. Nemendurnir eru, frá vinstri: Stefán Þór Árnason, Sigurður Guðmundsson, óþekktur, Ernst Berndsen, Grétar Smári Hallbjörnsson? og óþekktur kennari, Þorgeir Lárus Haukdal Jónsson, Kristinn Guðmundsson með systur sína Soffíu í fanginu og þrjú óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna og kennarann vinsamnlega sendu okkur þá athugasemd.
Selma P. Jónsdóttir 27
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær hún gerði þessa mynd. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Ingibergur Guðmundsson 511
Eitt af því sem skíðadeildarfólk gerði til að fjármagna byggingu skíðaskálans var að bera út jólapóstinn fyrir fólk á Skagaströnd. Á myndinni eru nokkrir þeirra að leggja af stað í útburð sem jólasveinar. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Ólafur Bernódusson og Guðmundur Haukur Sigurðsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir en hún var tekin fyrir jólin 1984.
Ingibergur Guðmundsson 361
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla líklega 1990. Á henni eru nemendur fæddir 1974 að flyta skemmtiatriði fyrir aðra nemendur og kennarana. Frá vinstri: Jón Heiðar Jónsson, Svava Magnúsdóttir, Guðbjörg Kristmundsdóttir og Guðný Finnsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 358
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla líklega 1990. Á henni er skólakór undir stjórn Julian Hewlett að syngja á sal fyrir aðra nemendur og kennara. Í fremstu röð eru, frá vinstri: Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir, Elín Ósk Ómarsdóttir, Þóra Ágústsdóttir, Salóme Ýr Rúnarsdóttir og Ólína Laufey Sveinsdóttir?. Halla Kristín Árnadóttir er lengst til vinstri í annarri röð og Hafdís Hanna Ægisdóttir í öftustu röð. Aðrar á myndinni eru óþekktar nema Julian sem spila á píanóið.
Ingibergur Guðmundsson 360
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla líklega 1990. Á henni eru nemendur fæddir 1975 að flytja skemmtiatriði fyrir aðra nemendur og kennarana. Krakkarnir eru, frá vinstri: Særún Níelsdóttir, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Linda Rós Haukdal Rúnarsdóttir, Berglind Karlsdóttir, Börkur Hrafn Árnason og Elísabet Eik Guðmundsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 562
Lengi var hefð fyrir því í Höfðaskóla að starfsfólkið hittist að kvöldi síðasta vinnudags fyrir jól og borðaði saman hangikjöt í skólanum. Myndin er frá einu slíku kvöldi líklega kringum 1995. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Hafþór Freyr Sigmundsson, Súsanna Þórhallsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Bryndís Guðjónsdóttir, Helga Ólína Aradóttir, Ólafur Bernódusson, Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir.
Ingibergur Guðmundsson 512
Eitt af því sem skíðadeildarfólk gerði til að fjármagna byggingu skíðaskálans var að bera út jólapóstinn fyrir fólk á Skagaströnd. Á myndinni eru nokkrir þeirra að leggja af stað í útburð sem jólasveinar. Hjálparmaður þeirra, Eðvarð Hallgrímsson, ók þeim um bæinn því hreindýrin voru lasin. Jólasveinarnir eru, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Ólafur Bernódusson, óþekktur og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Ingibergur Guðmundsson 359
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla líklega 1990. Á henni eru nemendur fædd 1976 að flytja skemmtiatriði fyrir aðra nemendur skólans og kennarana. Frá vinstri eru: Jósef Stefánsson, óþekkt, Arnar Haukur Ómarsson, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, Steinþór Karlsson, Kristján Gunnar Guðmundsson, Hafdís Hanna Ægisdóttir, óþekkt og Jónas Fanndal Þorvaldsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
2
3
4
5
6
7
Leita í myndasafninu
Leita