Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Atburðir

Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Guðrún Guðbjörnsdóttir087
Sveinn Ingólfsson og Helga Jóhannesdóttir kona hans í kveðjuhófi séra Péturs Ingjaldssonar í Fellsborg 1981.
Guðmundur Guðnason702
Réttastörf í Hofsrétt á Skaga. Fremst á myndinni er Páll Jóhannesson en maðurinn vinstra megin á myndinni í ljósum jakka er Hrólfur Jónsson (d.1.8.1989) og stúlkan í köflóttu skyrtunni í miðjum fjárhópnum er Áslaug dóttir hans. Stúlkan í grænu peysunni er Guðbjörg Kristinsdóttir. Maðurinn lengst frá okkur fyrir miðju í ljósum buxum og brúnni peysu er Jón Hinrik Árnason (d.4.11.1986) sem var bóndi á Steinnýjarstöðum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir077
Vaskir menn ríða um hátíðarsvæðið á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Frá vinstri: Ásgeir Axelsson, Hallbjörn Hjartarson, Magnús Blöndal og óþekktur.
Guðmundur Guðnason735
Örn Berg Guðmundsson (Assi) situr á milli fósturforeldra sinna Björgvins Jónssonar og Þorgerðar Guðmundsdóttur á fermingardaginn sinn 1963 heima í Höfðabrekku (Bankastræti 10).
Guðmundur Guðnason678
Fermingarmynd af Líney Jósefdóttur.
Guðmundur Guðnason804
Gunnar Jón Jónsson á fermingardaginn 1970
Ólafur Bernódusson013

Frá endurvígslu Bjarmaness 19. júní 2004. Elías Björn Árnason spilar á hljómborð en einnig má þekkja Adolf H. Berndsen, Helgu Berndsen, Ingiberg Guðmundsson, Magnús B. Jónsson og Björn Hallbjörnsson

Guðrún Guðbjörnsdóttir078
Ungar skólasystur úr Höfðaskóla syngja á skólaskemmtun í Fellsborg. Fremst situr Steinunn Berndsen og leikur undir á gítar. hinar eru frá vinstri: Valdís Edda Valdimarsdóttir, Kenny Hallbjörnsdóttir, Elín Íris Jónasdóttir, Erna Högnadóttir og Guðrún Jóna Björgvinsdóttir.
Guðmundur Guðnason713

Sennilega var þessi mynd tekin á leikriti um Bakkbræður á sýningu á Blönduósi. Leikararnir eru sennilega Skúli Pálsson (d.3.3.2001), Tómas R. Jónsson (d. 10.5.1986) og Bjarni Einarsson (d. 15.8.1978) ásamt Nönnu Tómasdóttur (d. 2013). Ef þú getur staðfest nöfn leikaranna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðrún Guðbjörnsdóttir080
Hljómsveit úr Höfðaskóla leikur á skólaskemmtun í Fellsborg. Hljómsveitarmeðlimir eru frá vinstri: Steinunn Berndsen, Kristján Blöndal er á bak við trommurnar, Guðmundur Jónsson og Þorlákur Jónsson.
Guðmundur Guðnason718
Héðinshöfði sem stóð við Skagaveg. Þar bjuggu Kristinn Jóhannsson og Guðný Finnsdóttir með sínum börnum í suðurendanum en Ástmar Ingvarsson og Jóhanna Sigurjónsdóttir í norðurendanum með börnin sín. Húsið hefur verið rifið.
Guðrún Guðbjörnsdóttir104
Sjóferð á sjómannadegi. Lengst til vinstri er Adolf J. Berndsen. Strákurinn í dökku fötunum sem er að veifa er Hafþór Gylfason og stúlkan fremst á myndinni er Steinunn Berndsen. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason782
Ferming í Holtastaðakirkju 1961. Til hægri er Valgarður Hilmarsson frá Fremstagili í Langadal. Hinn drengurinn er Eysteinn Agnar Georgsson frá Miðgili í Langadal.
Guðmundur Guðnason762
Leikararnir eru , frá vinstri: Pétur Jóhannsson, óþekktur og Kristín Lúðvíksdóttir.
Guðmundur Guðnason863
Þorfinnshús (Bogabraut 9). Myndin var sennilega tekin 1964 - 65. Síðan þá hafa svalirnar verið brotnar niður og húsið klætt að utan.
Jón Jónsson164
Á myndinni má þekkja, frá vinstri: Þorsteinn Jónsson, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Soffía Lárusdóttir og Sigurbjörn Kristjánsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir075
Gestir Kántrýhátíðar 1984 skoða tryllitæki sem voru til sýnis á tjaldsvæðinu.
Guðmundur Guðnason827
Börnin í Réttarholti. Frá vinstri: Sveinn Hall Másson, Erla Másdóttir, Aðalheiður Másdóttir, Vilborg Másdóttir, Árni Hall Másson og Ómar Másson (d. 16.6.2002). Myndin var tekin 1964 eða 1965.
Guðrún Guðbjörnsdóttir073
Aftari röð frá vinstri: Sólveig Gunnarsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Soffía Guðmundsdóttir. Sá sem krýpur er óþekktur.
Guðmundur Guðnason787
Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir. Myndin var tekin kringum 1960.
Guðmundur Guðnason767
Kristján Eldjárn, forseti Íslands, í ræðustól í móttöku í félagsheimilinu á Blönduósi er hann kom í opinbera heimsókn í Húnaþing árið 1969.
Guðmundur Guðnason805
Þessi litli strákur heitir Þórður Gylfason
Guðmundur Guðnason893
Mynd frá karlakóramóti sem haldið var í félagsheimilinu á Blönduósi 9. júní 1963. Myndin sýnir bara hluta söngmannanna.
Guðmundur Guðnason768
Ingvar Pálsson frá Balaskarði flytur ræðu við vígslu Höskuldsstaðakirkju 1963.
Guðmundur Guðnason845
Þorbjörn Sigurðsson lengst til vinstri og Þorvaldur Ásgeirsson flytja skemmtiatriði á sviðinu í Tunnunni sennilega 1. maí 1963. Hinir mennirnir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason873
Hjónin frá Njálsstöðum með barnabörn sín. Soffía Sigurðardóttir (d.24.10.2002) með Rut Jónasdóttur og Hafsteinn Jónasson (d.11.6.1975) með Hörð Jónasson. Soffía og Hafsteinn fluttu til Skagastrandar eftir að þau hættu búskap og bjuggu í Sæbóli.
Guðmundur Guðnason753
Grímuball í Tunnunni 1963. Í þá daga var mikið lagt upp úr því á grímuböllum að þekkjast ekki. Þess vegna er að sjálsögðu ekki hægt að segja til um hver er hver á þessari mynd. Greinileg hefur verið húsfyllir á ballinu en þeir sem ekki eru í búningum eru fram við dyr meðan grímubúna fólkið dansar með númer á bakinu.
Guðmundur Guðnason684
Hjónin Helga G. Guðmundsdóttir og Kristján Sigurðsson frá Höskuldsstöðum með dóttur sína Elínbjörgu Kristjánsdóttur, sennilega á fermingardegi hennar.
Guðmundur Guðnason677
Dansað á Siglufirði 15. júní 1968. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Guðmundur Guðnason826
Árni Björn Birgisson á fermingardaginn sinn 1962.
Guðmundur Guðnason683

Guðbjartur Sævarsson

Guðmundur Guðnason705

Ekki er vitað af hvaða tilefni þessi prúðbúnu ungmenni tróðu upp á sviðinu í Gömlu Tunnunni. Myndin er sennilega tekin upp úr 1960 e.t.v. á einhverri hátíð tengdri ungmennafélaginu Fram eða stúkunni á Skagaströnd. Á myndinni má þekkja, frá vinstri: Jóhanna Valdimarsdóttir (Númadóttir), Helgi Þór Bjarnason (d. 1.3. 2007) frá Holti, Sigrún Kristófersdóttir frá Sunnuhvoli, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Jóhanna Hallgrímsdóttir (Júdý), Guðrún Þórbjarnardóttir frá Flankastöðum, Guðmundur Guðmundsson úr Skeifunni, Bergdís Sigmarsdóttir, óþekktur, óþekkt, Búi Birgisson frá Straumnesi, og Brynja Axelsdóttir frá Læk. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason745
Ólöf Una Jónsdóttir frá Ártúnum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir049
Ferming í Hólaneskirkju (gömlu) 1978. Aftasta röð frá vinstri: Anna Sjöfn Jónasdóttir, Sólveig Eiðsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Anna Elínborg Gunnarsdóttir, Guðjón Pálsson, Vilhelm Jónsson. Miðröð frá vinstri: Vilborg Másdóttir, Hjalti Indriðason, Kolbrún Viggósdóttir, Kristín Jónsdóttir, Einar Karlsson, Soffía Guðmundsdóttir, Sveinn Kristjánsson, Sigurður Georgsson. Fremsta röð frá vinstri: Skafti Fanndal Jónasson, Bergþór Gunnarsson, séra Pétur Þ. Ingjaldsson, Karl Berndsen og Axel Gígjar Ásgeirsson.
Guðrún Guðbjörnsdóttir110
BNörn í biðröð á jólaballi í Fellsborg einhverntíma á áttunda áratugnum. Lengst til vinstri er Kristján Blöndal og framan við hann er Sigþrúður Magnúsdóttir. Drengirnir í skræpóttu skyrtunum eru Guðjón Pálsson (Dúi), og Árni Geir Ingvarsson. Fullorðnu mennirnir tveir eru Sigurður Magnússon og Rafn Sigurbjörnsson frá Hlíð. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir097
Valdimar Valdimarsson heiðraður á sjómannadegi.
Guðrún Guðbjörnsdóttir084
Jólaball í Fellsborg. Orri Blöndal er drengurinn lengst til vinstri. Aðrir eru: Friðjón Guðmundsson, Teitný Guðmundsdóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir og Bára Þorvaldsdóttir.
Guðmundur Guðnason755
Grímuball í Tunnunni 1963. Í þá daga var mikið lagt upp úr því á grímuböllum að þekkjast ekki. Þess vegna er að sjálsögðu ekki hægt að segja til um hver er hver á þessari mynd. Þessir aðilar hafa greinilega unnið í samkeppninni um bestu búningana því þarna eru þau á sviðinu í Tunnunni með verðlaun í höndunum. Myndin var tekin rétt áður en þau felldu grímuna en þá kom í ljós hver var hvað.
Guðmundur Guðnason756

Pétur Johannsson er til vinstri og Steindór Haraldsson til vinstri . Leikarinn á milli þeirra er óþekktur.

Guðmundur Guðnason717
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka og Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti. Ef þú veist hver óþekkti leikarinn er, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir098
Ólafur Guðlaugsson frá Sævarlandi og Jóhann Jakobsson frá Blálandi heiðraðir á sjómannadegi 1979. Ólafur er til vinstri á myndinni.
Guðmundur Guðnason757
Árni Björn Ingvarsson frá Sólheimum og Signý Ástmarsdóttir úr Héðinshöfða. Myndin var sennilega tekin nálægt Húnaveri haustið 1969.
Guðmundur Guðnason771
1969 kom Kristján Eldjárn forseti lýðveldisins í opinbera heimsókn í Húnaþing. Haldin var móttaka í félagsheimilinu á Blönduósi af þessu tilefni. Á myndinni er fólk að ganga út úr félagsheimilinu eftir móttökuna. maðurinn með stafinn og slaufuna er Guðmundur Guðmundsson frá Holti sem lengi bjó í Kistu við Koppagötu á Blönduósi. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason736

Valgarður Jökulsson frá Núpi í Laxárdal.

Guðmundur Guðnason881
Tryggvi Jónsson frá Ártúnum. Myndin var tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason785

Kristján Eldjárn Þórarinsson (d. 14.9.1982) forseti Íslands kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1969. Á myndinni býr séra Pétur Þ. Ingjaldsson sig undir að taka í hönd hans á kirkjutröppunum. Kristján sést yfir handlegg Péturs. Aftar eru Halldóru Ingólfsdóttur Eldjárn (d. 21.12.2008), forsetafrú, færð blóm. Ingvar Jónsson (d. 29.7. 1978) hreppsstjóri frá Brúarlandi, Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður og Adolf J. Berndsen oddviti eru til hægri við forsetafrúna.

Guðmundur Guðnason725
Þröstur Þorbjörnsson frá Akurgerði
Guðmundur Guðnason765
Þessar stúlkur tóku þátt í keppninni: Ungfrú Austur Húnavatnssýsla 1969. Hér eru þær á sviðinu með númerin sín svo hægt sé að greiða atkvæði um hver þeirra sé fegurst. Þessi keppni var liður í fegurðarsamkeppni Íslands því sigurvegararnir í hverri sýslu fyrir sig tóku síðan þátt í keppni um fegurðardrottningu Íslands sem haldin var í Reykjavík. Stúlkurnar á myndinni eru óþekktar en ef þú veist hverjar þær eru vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason818
María Bjarnadóttir (d.1984) á fermingardaginn sinn 1962.
Guðmundur Guðnason824
Hrefna Þorbjörnsdóttir á fermingardaginn sinn 1962.
Guðmundur Guðnason712
Mennirnir sem standa á tröppum Höskuldsstaðakirkju eru, talið frá vinstri: skólabræðurnir, séra Pétur Þ. Ingjaldsson og Herra Sigurbjörn Einarsson biskup, Friðgeir Kemp frá Efri Lækjardal, Björn Jónsson frá Ytra-hóli, Snorri Bjarnason frá Sturluhóli
Guðmundur Guðnason759

Óþekktur kvartett syngur í Akureyrarkirkju.

Guðmundur Guðnason815
Systkini úr Akurgerði. Þröstur Þorbjarnarson og Sonny Lísa Þorbjarnardóttir.
Guðmundur Guðnason911

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason819
Fritz Bjarnason frá Bjargi
Guðmundur Guðnason814

Frændurnir Árni Björn Birgisson (til vinstri) og Árni Björn Ingvarsson á fermingardaginn sinn 1962.

Guðmundur Guðnason708
Réttastörf í Spákonufellsrétt. Maðurinn fremst á myndinni er Jósef Stefánsson. Lengst til vinstri er Jóhann Jakobsson frá Blálandi og svo Haraldur Sigurjónsson frá Iðavöllum.
Guðmundur Guðnason816
Björn Hafsteinsson Fossdal á fermingardaginn sinn 1962.
Guðmundur Guðnason806
Gissur Jóhannsson frá Lækjarbakka á fermingardaginn 1962
Guðmundur Guðnason821
Sóley Benjamínsdóttir frá Skálholti á fermingardaginn sinn 1964.
1

9
10
11

104
Leita í myndasafninu
Leita