Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn554
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, heimsótti Höfðaskóla í október 2002. Á myndinni er hluta af nemendum og starfsfólki skólans að bíða komu hans.
Ingibergur Guðmundsson 425
Myndin var tekin í október 1987 þegar sundlaugin á Skagaströnd var tekin aftur í gagnið eftir gagngerar endubætur á lauginni sjálfri og búningsaðstöðunni. Fremst á myndinni eru Guðmundur Sigvaldason (d.8.2.2017) til vinstri, þá nýbyrjaður sem sveitarstjóri og Sigfús Jónsson fráfarandi sveitarstjóri. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Í baksýn gnæfa gömlu olíu-og lýsistankarnir sem stóðu þarna í skjóli við Höfðann.
Jónas 59
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru frá vinstri leikararnir: Ólafur Bernódusson, Elín Njálsdóttir, Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003), Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022) og Hallveig Ingimarsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 418
Fólkið á myndinni sigraði í sveitakeppni hjá Bridgeklúbbi Skagastrandar veturinn 1987. Frá vinstri: Eðvarð Hallgrímsson, Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002), Ingibjörg E. Kristinsdóttir og Málfríður Jóhannsdóttir.
Gréta 032
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var gert af sviðinu í gömlu Tunnunni, sem nú hýsir Spákonuhofið. Tilefni dansleiksins gæti t.d. hfa verið eitthvert afmæli Umf Fram en það þó ekki vitað. Dansfólkið á myndinni er ekki þekkt .
Ljósmyndakeppni 2022 51
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Kristinn Rúnar Kristjánsson og sendi inn í flokkinn "Gamalt".
Ingibergur Guðmundsson 414
Myndin var tekin 1987 þegar Jane Sillar er að kenna Önnu Dröfn Guðjónsdóttur að spila á píanó í Höfðaskóla.
Guðrún Guðbjörnsdóttir152
Nokkrir af forystumönnum Skagstrendings hf staddir í í Bergen, en þá var þar verið að smíða frystitogara fyrir fyrirtækið. Þetta var sumarið 1992 því togarinn - Arnar Hu 1 - kom í fyrsta sinn til heimahafnar 22. desember 1992. Hann var þá stærsta fiskiskip Íslendinga. Fólkið í röðinni hægra megin er, frá hægri: Helga Jóhannesdóttir, Sveinn S. Ingólfsson, óþekkt, Adolf H, Berndsen og Magnús B. Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jónas 60
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Elín Njálsdóttir (sitjandi), Hallveig ingimarsdóttir og Ólafur Bernódusson í hlutverkum sínum.
Jónas 22
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru eftirfarandi í hlutverkum sínum: Ólafur Bernódusson til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 454
Þessi mynd var tekin á Norðurlandsleikum æskunnar 1985 á Sauðárkróki. Á henni eru nokkrir krakkar úr umf Fram í USAH. Krakkarnir eru, talið frá hægri: Vilhjálmur Jónsson, Skúli Tómas Hjartarson, Jón Heiðar Jónsson, Guðný Finnsdóttir, Brynjar Pétursson og Reynir Lýðsson. Ljóshærða konan í bláum stakk og rauðri peysu er Þórhalla Guðbjartsdóttir en aftan við hana er Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 488
Myndin af bridgespilurunum í Bridgeklúbbi Skagastrandar var tekin í Fellsborg í janúar/febrúar 1985. Spilararnir við borðið fjærst eru, frá vinstri: Vilhelm Jónsson, Steinunn Grímsdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir og Kristinn Guðmundsson. Við borðið í miðjunni eru, frá vinstri: Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020), Guðmundur Haukur Sigurðsson, Eðvarð Hallgrímsson og Kristófer Árnason (d.10.5.2000). Við borðið næst okkur eru, frá vinstri: Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), Magnús Ólafsson (d.23.7.2012), Ólafur Bernódusson og Ingibjörg Kristinsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 512
Eitt af því sem skíðadeildarfólk gerði til að fjármagna byggingu skíðaskálans var að bera út jólapóstinn fyrir fólk á Skagaströnd. Á myndinni eru nokkrir þeirra að leggja af stað í útburð sem jólasveinar. Hjálparmaður þeirra, Eðvarð Hallgrímsson, ók þeim um bæinn því hreindýrin voru lasin. Jólasveinarnir eru, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Ólafur Bernódusson, óþekktur og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Ljósmyndakeppni 2022 24
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Kristinn Rúnar Kristjánsson og sendi inn í flokkinn "Náttúra". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki. Gestir á sýningunni völdu svo þessa mynd sem þá bestu í náttúru-flokknum.
Ólafur Bernódusson1176
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg annað hvort 2014 eða 2016. Á henni eru Helga Gunnarsdóttir kennari og Georg Þór Kristjánsson nemandi að kynna næsta atriði dagskráinnar.
Ljósmyndakeppni 2022 54
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Þorgerður Þóra Hlynsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
2001024
Á myndinni sem tekin var um jólin 1961 eru skátar úr Sigurfara að sýna leikrit í gömlu Tunnunni (nú Spákonuhof). Skátarnir á henni eru, frá vinstri: óþekktur, Bergdís Sigmarsdóttir, óþekktur, Þórir Ágústsson, óþekktur, Guðrún Þórbjarnardóttir, tveir óþekktir, Ester Axelsdóttir og tveir óþekktir. Þórður Jónsson hefur sent vini sínum, Ingólfi Ármannssyni, myndina og skrifaði aftan á hana: "Ska.10/1 ´62. Kæri vinur Þessi mynd var tekin á jólatréskemmtun hjá okkur og sýnir Grýlu og Leppalúða með nokkra syni sína. Við skreittum sinuns eiins og þú sérð og geði þetta mikla lukku. Skemmtuninn tókst mjög vel og skemmtu allir sér konunglega. Það komu um 130 manns um daginn og tæpir 100 um kvöldið og þó var veðrið mjög....."
Ingibergur Guðmundsson 503
Kristján Sveinbjörnsson Blöndal æfir sig á flygilinn í Fellsborg í pásu á æfingu á Saumastofunni í nóvember 1984. Kristján lék undir í lögunum í sýningunni.
Ingibergur Guðmundsson 591
Starfsfólk Höfðaskóla fær sér kaffisopa í frímínútum á flippíþróttadegi. Á myndinni eru, frá vinstri: Þröstur Líndal Gylfason, Jóhanna Jónsdóttir, Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) og aftan við hana sér í Helgu Ólínu Aradóttur og Guðbjörg Ólafsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líkleg var það kringum 1985.
Ingibergur Guðmundsson 527
Ólafur Magnússon Hu 54 í heimahöfn á Skagaströnd í fyrsta sinn 1996. Þessi Ólafur var 125 brl. en Jökull hf. keypti bátinn frá Hornafirði og gerði hann út til ársins 2005 en seldi svo haustið 2006. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson).
Ingibergur Guðmundsson 461
Eitt af atriðunum á sjómannadegi 1985 var sýning á þyrlubjörgun sjómanns úr sjó. Á myndinni er verið að hífa mann upp í þyrluna.
Ingibergur Guðmundsson 387
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Síldin kemur og síldin fer vorið 1987. Á myndinni er Magnús B. Jónsson að skrifa í gestabók sem gekk milli manna í hófinu. Aðrir bíða eftir að röðin komi að þeim.
Ólafur Bernódusson1153
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru yngstu nemendur skólans að syngja fyrir gesti. Börnin eru, frá vinstri: Helga Margrét Steingrímsdóttir, Hugrún Sigurðardóttir, Ísabella Tryggvadóttir, Óðinn Örn Gunnarsson og Sóley Sif Jónsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 493
Verðlaunahafar á héraðsmóti USAH líklega sumarið 1984. Myndin var tekin á einnota myndavél og eru gæði hennar eftir því. Á myndinni eru í öftustu röð, frá vinstri: Kristinn Guðmundsson, Sigríður Gestsdóttir og Ingibergur Guðmundsson. í Miðröðinni, frá vinstri: Sigurður Guðmundsson, Lárus Ægir Guðmundsson og óþekktur. fremst, frá vinstri: óþekkt, Soffía Guðmundsdóttir og óþekkt. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1207
Sigríður Einarsdóttir var myndmenntakennari við Höfðaskóla í nokkur ár á tíunda áratugnum. Hún hélt sýningu á verkum sínum á miðhæðinni í gamla kaupfélaginu, sem þá stóð auð. Myndin var tekin við opnunina og á henni má sjá að sýningin var mjög vel sótt.
Ingibergur Guðmundsson 475
Sveinn Jónasson bakar smákökur í vinnuviku í Höfðaskóla í október/nóvember 1985.
2001004
Myndin var tekin þegar Arnar HU 1, fyrsti skuttogari Skagsrendings hf, kom til heimahafnar í fyrsta sinn 15. október 1973 frá Japan. Mannfjöldi tók á móti skipinu og mikli gleði ríkti. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip og þiggja veitingar. Arnar reyndist mikið happaskip sem skilaði miklu í þjóðarbúið. Vinstra megin við bryggjuna liggur annað skip útgerðarinnar síðutogarinn Örvar Hu 14 . Frambyggði báturinn sem sér í er Guðmundur Þór Hu 17 sem var smíðaður í skipasmíðastöðinni á Skagaströnd 1972. Hann varð síðar Dagrún ST 12.
Jónas 2
Hluti fermingarbarna í Hólaneskikju (eldri) vorið 1979 með presti sínum séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Fermingarbörnin eru, frá vinstri: Björk Sveinsdóttir, Hjörtur Þórarinn Sigurðsson (d.9.5.2015), Guðbjartur Sævarsson, séra Pétur, Óli Axel Óskarsson, Bryndís Björk Guðjónsdóttir, Valdimar Viggósson, Rögnvaldur Ottósson og Margrét Ólafsdóttir. Í fermingarhópnum voru líka, en eru ekki á myndinni, Ingólfur Sveinsson, Sigrún Jónsdóttir og Sigurður Jónsson.
Ingibergur Guðmundsson 468
Myndin var tekin í maí 1985 þegar elstu nemendur Höfðaskóla voru að klára skólagöngu sína í þar. Á myndinni eru, frá vinstri: óþekktur, Davíð Reynisson, Stefán Ægir Lárusson, Arnar Erlingsson og Ágúst Ómarsson. Sá sem snýr baki í myndavélina er Þráínn Bessi Gunnarsson.
2001088
Myndin var tekin um jól en ekki er vitað hvaða ár en það var líklega á tíunda áratugnum. Á henni eru karlar sem fóru í jeppaleiðangur í afar fallegu veðri frá Skagaströnd upp á Langavatn og þaðan að fjallabaki og komu niður Norðurárdal á Þverárfjallsveg. Rennt var fyrir silung í gegnum ís á Langavatni og í Rangártjörnum án mikils árangurs. Á myndinni eru Karl Rósinbergsson að moka snjó af ísnum og Gunnlaugur Sigmarsson bíður með ísborinn.
Ólafur Bernódusson1151
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 2014. Á henni eru, frá vinstri: Ísak Karl Tryggvason, Guðmann Einar Magnússon og Friðmar Kári Eiríksson. Á myndinni eru þeir að draga út vinningshafa í tertuhappadrættinu sem var einn af liðunum á dagskrá árshátíðarinnar.
Ljósmyndakeppni 2022 50
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Dagný Hildur Þorgeirsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gamalt".
Ingibergur Guðmundsson 394
Systurnar þórey Jónsdóttir til vinstri og Sigrún Jónsdóttir til hægri á hafnarsvæðinu á sjómannadegi árið 1987. Við hlið Sigrúnar er sonur hennar Hermann Freyr Guðjónsson. Fyrir aftan hann má sjá Slavko Velemir en á milli þeirra systra grillir í Hrólf Jakobsson (d.22.12.1996). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jónas 38
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru, frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Hallveig Ingimarsdóttir, Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022), Rúnar Loftsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson og Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) (fjær), Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) (nær), Ólafur Bernódusson og Magnús B. Jónsson.
Ólafur Bernódusson1126
Myndin var tekin í afmælishófi í Fellsborg þegar félagar í Leikklúbbi Skagastrandar, ásamt mökum, héldu upp á 20 ára afmæli klúbbsins í desember 1995 með kaffi- og skemmtikvöldi. Fyrir kvöldið var búið að skipta félögunum í hópa sem allir áttu að koma með eitt frumsamið skemmtiatriði. Einnig þurftu allir að mæta með einhvers konar höfuðfat. Á þessari mynd eru allir að taka þátt í einhverjum hreyfileik eins og sjá má. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Magnús Blöndal (d. 7.9.2001), Egill Bjarki Gunnarsson, Kolbrún Viggósdóttir, Ingibergur Guðmundsson, Kristín Jónsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Hjörtur Guðmundsson, Ingólfur Sveinsson, Björn Hallbjörnsson, óþekktur, Einar Haukur Arason, Ari Jón Þórsson og Halla Lýðsdóttir.
2001049
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né tilefni hennar. Á henni spila á gítara systurnar Guðrún Sigurðardóttir til vinstri og Hjördís Sigurðardóttir til hægri. Maðurinn með harmónikuna er Adolf J. Berndsen eiginmaður Hjördísar.
Ingibergur Guðmundsson 494
Myndin var tekin á einnota myndavél 1984 og því eru gæði hennar eftir því. Á henni eru Björn Sigurbjörnsson, þáverandi formaður USAH, standandi og Ingibergur Guðmundsson sitjandi. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
20250614_154712
Myndin var tekin 14. júní 2025. Á henni eru tveir læknar ásamt foreldrum sínum að fagna útskrift úr Háskóla Íslands. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Róbert Freyr Gunnarsson, Ívan Árni Róbertsson læknir, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir læknir og Halldór Gunnar Ólafsson. Ívan Árni og Guðrún Anna luku grunnskólanámi frá Höfðaskóla í sama bekk og voru alla tíð miklir vinir. Það heyrir til tíðinda að tveir bekkjarfélagar úr Höfðaskóla útskrifist sem læknar á sama tíma.
2001133
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak, undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á þessari mynd eru, frá vinstri, leikararnir: Magnús B. Jónsson, Jón Helgi Eiðsson og Birna Blöndal í hlutverkum sínum í verkinu.
Guðrún Guðbjörnsdóttir134
Þórhildur Jakobsdóttir úr umf Fram kemur í mark sem sigurvegari í einhverju hlaupi á íþróttamóti á Skagastrandarvelli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og aðrir á henni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1228
Jónas Þorvaldsson kemur fyrstur, í sínum aldursflokki, í mark í Landsbankahlaupinu í maí 1987.
Ljósmyndakeppni 2022 80
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Berglin Rós Helgadóttir og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Ljósmyndakeppni 2022 75
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Hjalti Viðar Reynisson og sendi inn í flokkinn "Heimili".
Ingibergur Guðmundsson 453
"Fimman" var íþróttamót fimm íþróttafélaga af Norðvestur- og vesturlandi sem haldin var nokkrum sinnum. Þessi mynd var tekin við verðlaunaafhendingu á slíku móti árið 1985. Lengst til hægri á veðlaunapalli er Sigríður Gestsdóttir úr umf Fram.
Ólafur Bernódusson1046
Myndin var tekin í júní 1997 á 20 ára afmælishátíð leikskólans Barnaból.
Ingibergur Guðmundsson 389
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Síldin kemur og síldin fer vorið 1987. Á myndinni eru, frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Jóhanna Harðardóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Anna Sjöfn Jónasdóttir og Ólafur Bernódusson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
2001091
Þessi mynd var líklega tekin veturinn 1995 sem var óvenju snjóþungur og illviðrasamur. Á henni sér heim að Brandaskarði þar sem allt er á kafi í snjó nema súrheysturninn og stafninn á fjósinu. Guðmundur Björnsson, sem tók myndina, var fenginn á gröfunni sinni til að moka ofan af þökum húsanna og frá þeim svo ekki færi illa.
Ingibergur Guðmundsson 567
Myndin sýnir starfsfólk Höfðaskóla og maka þeirra líklega vorið 1997. Hún var tekin í sökklinum á íþróttahúsinu sem var vígt 1998. Starfsfólkið var að gera sér glaðan dag við skólalok og byrjuðu á því að fara þarna niður og reyna sig við að skora körfu í hring sem hafði verið komið fyrir. Næst okkur á myndinni er Garðar Geirfinnsson búinn að klikka á sínu skoti. Aðrir á myndinni eru, frá vinstri: Hafþór Freyr Sigmundsson, Helga Ólína Aradóttir, tvær óþekktar konur, Guðmundur J. Björnsson, Þórunn Bernódusdóttir, Unnur Kristjánsdóttir (d.19.6.2023), Guðrún Pálsdóttir, Sturla Þórðarson (d.31.5.2018), Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Sævar Berg Ólafsson, Signý Richter, Ólafur Bernódusson, Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020), Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022), Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021), Ólafía Sigurjónsdóttir, Björn Ingi Óskarsson, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir og Guðbjörg Ólafsdóttir.
Ólafur Bernódusson1075
Myndin var tekin í september 1996 þegar tekin var fyrsta skóflustunga fyrir íþróttahúsinu. Á henni er Magnús B. Jónsson sveitarstjóri að láta krakka úr Höfðaskóla draga um það hvert þeirra fái að taka skóflustunguna. Eldri krakkar og fullorðnir fylgjast með í nepjunni.
Ólafur Bernódusson1175
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur spennt að fylgjast með af svölunum. Frá vinstri: Elmar Jóhann Grétarsson, Anton Þór Einarsson, Rakel Jensína Jónsdóttir, Egill Örn Ingibergsson, Aldís Embla Björnsdóttir, Elvar Geir Ágústsson og Páll Halldórsson.
Guðrún Guðbjörnsdóttir 119
Myndin er tekin úr sýningaskrá og þess vegna dálítið sjúskuð. Hún sýnir Sveinbjörn H. Blöndal (d.7.4.2010) við eitt af verkum sínum á forsíðu sýningarskrár vegna yfirlitssýningar á verkum hans í íþróttahúsinu á Skagaströnd 23. júlí til 14. ágúst 2011. Sveinbjörn hélt nokkrar einkasýningar og tók þátt í samsýningum bæði hérlendis og erlendis. Þrátt fyrir það sinnti hann list sinni alltaf í hjáverkum með fullri vinnu.
Ingibergur Guðmundsson 481
Myndin var tekin 1985 á tröppum Fellsborgar af krökkum úr umf Fram. Líklega var tilefnið unglingamót USAH á Húnavöllum og þetta því keppendur á því með farastjóranum Guðmundi Hauk Sigurðssyni. Fólki er eftirlátið að þekkja sjálf sig og aðra á myndinni.
Ljósmyndakeppni 2022 53
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Berglind Rós Helgadóttir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
Gréta 054
Sjómannadagur á höfninni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á henni eru menn að gera sig klára fyrir reiptog og fjöldi fólks fylgist með því sem fram fer. Myndin var tekin ofan af síldarþróm verksmiðjurnar.
Jónas 58
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru, í hlutverkum sínum, Guðmundur Haukur Sigurðsson vinstra megin og Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 411
Sumarið 1987 fór hópur fólks frá Skagaströnd í nokkurra daga gönguferð um Hornstrandir. Á myndinni er hluti hópsins að hvíla sig efst á Skálakambi við Hlöðuvík. Fólkið er, frá vinstri: Jane Sillar, William Sillar, Kristinn Guðmundsson og tveir óþekktir (?Hjörtur Guðmundsson og Hafsteinn Pálsson?).
Ingibergur Guðmundsson 400
Á skólamóti á Húnavöllum veturinn 1987 kepptu þessir drengir, ásamt fleirum, á vegum Höfðaskóla. Strákarnir í aftari röð eru, frá vinstri: Baldur Magnússon, Björn Sigurðsson, Atli Þór Þórsson, Reynir Lýðsson og Jón Heiðar Jónsson. Í fremri röð, frá vinstri: Friðrik Gunnlaugsson, Börkur Hrafn Árnason og Gunnar Halldór Hallbjörnsson.
Ingibergur Guðmundsson 382
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Síldin kemur og síldin fer vorið 1987. Á myndinni eru Jón Hilmar Indriðason, Björk Sveinsdóttir í miðjunni og Sigrún Jónsdóttir til hægri. Öll tóku þau þátt í sýningunni á einn eða annan hátt.
Ólafur Bernódusson1100
Í júní 1996 fékk áhöfnin á Örvari Hu 21 afhentan gæðaskjöld Coldwater Seafood. Skjöldinn fékk áhöfnin fyrir bestu framleiðslu og vöruvöndun um borð í frystitogara árið 1995. Á myndinni er Páll Pétursson, gæðastjóri hjá Coldwater, að tala við áhöfn Örvars og fleiri. Við hlið Páls situr Óskar Þórðarson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf sem átti og gerði Örvar út. Lengra til hægri, í dökkum jakka, situr Gylfi Guðjónsson útgerðarstjóri. Aðrir á myndinni eru karlarnir í áhöfn Örvars sem stóðu sig svona vel.
Ingibergur Guðmundsson 559
Sumarið 1989 hélt Höfðahreppur upp á 50 ára afmæli sitt með grillveislu á tjaldsvæðinu. Á myndinni er fólk að gæða sér á grilluðum pylsum og appelsínusafa. Sitjandi fólkið er, frá vinstri: Guðný Finnsdóttir, Ólína Sveinsdóttir, Jakob Jakobsson, Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Sigríður Einarsdóttir, óþekkt, Ólafur Ingibjörnsson og Hrönn Árnadóttir. Konan í bláa jakkanum í baksýn er Vilborg Magnúsdóttir og maðurinn í blá jakkanum til hægri er Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000). Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna milli Sigríðar og Ólafs, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
100
101
102
103
104
Leita í myndasafninu
Leita