Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 457
Húsfylli var í vígslu Skíðaskálans þegar hún fór fram 5. apríl 1985 enda lögðu margir hönd á plóg til að gera hann að veruleika. Þessi mynd sýnir hluta gestanna á neðri hæðinni.
2001026
Í ofsa vetrarveðri einhverntíma á árunum 1960 - 1964 fauk þakið af Skálholti í einu lagi. Það endaði flugferð sína á öðrum stóru tönkunum sem stóðu ofan við sundlaugina nærri Höfðanum í ca 150 - 200 metra fjarlægð frá Skálholti. Tankurinn beyglaðist töluvert við áreksturinn og þakið splundraðist. Myndin var tekin eftir að lægði svo hægt var að kanna skemmdirnar.
2001124
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru leikararnir Ágústa Friðriksdóttir standandi og Anna Sjöfn Jónasdóttir, sem liggur, í hlutverkum sínum.
2001100
Á myndinni er Magnús B. Jónsson tilbúinn á svið sem sýslumaðurinn í leikritinu "Síldin kemur og síldin fer". Leikritið var sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar.
2001104
Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin en það var á sjómannadegi. Áhorfendur fylgjast með manni sem fikrar sig eftir staur til lands.
Ólafur Bernódusson1123
Myndin var tekin í afmælishófi í Fellsborg þegar félagar í Leikklúbbi Skagastrandar, ásamt mökum, héldu upp á 20 ára afmæli klúbbsins í desember 1995 með kaffi- og skemmtikvöldi. Fyrir kvöldið var búið að skipta félögunum í hópa sem allir áttu að koma með eitt frumsamið skemmtiatriði. Einnig þurftu allir að mæta með einhvers konar höfuðfat. Á þessari mynd er einn hópurinn að flytja frumsamið tónlistaratriði. Frá vinstri í hópnum: Ingólfur Sveinsson, Bryndís Guðjónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir.
Ingibergur Guðmundsson 363
Ólafur Bernódusson mótsstjóri afhendir Guðrúnu Pálsdóttur (konu sinni) fyrstu verðlaun í kvennaflokki á fyrsta golfmóti Golfklúbbs Skagastrandar á Háagerðisvelli í september 1985.
Fisk Seafood - safn 270
Myndin var tekin 7. apríl 1982 þegar Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri, afhendir Sveini S. Ingólfssyni, framkvæmdastjóra Skagstrendings hf, nýsmíðina Örvar HU 21 þegar hann kom í fyrsta sinn í heimahöfn á Skagaströnd. Gunnar er til hægri á myndinni en aðrir á henni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 432
Ragna Gunnarsdóttir slæst við naglaspýtu í vinnuviku í höfðaskóla í febrúar 1987.
Ólafur Bernódusson1069
Myndin var tekin í apríl 1997 af hópi fólks að æfa kántrýdans í Fellsborg. Mikill áhugi fyrir slíkum dönsum var um tíma á Skagströnd og æfingar reglulega. Hópur dansara fór seinna á Íslandsmót í slíkum dönsum og kom út sem Íslandmeistari. Á myndinni eru: í fremstu röð frá vinstri: Vilhelm Þór Þórarinsson, Kristín Sigurðardóttir og Vigdís Viggósdóttir. Önnur röð frá vinstri: óþekkt, Þórey Jónsdóttir?, Jensína Lýðsdóttir og Magnús B. Jónsson. Þriðja röð frá vinstri: Guðný Björnsdóttir ? (d.20.1.2022), Sólveig Eiðsdóttir, Ragnheiður Magnúsdóttir, Signý Richter, Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) og Guðrún Pálsdóttir. Aftast frá vinstri: María Alexandersdóttir, óþekkt, Signý Magnúsdóttir (d.7.4.2016), Aðalheiður Sif Árnadóttir ?, óþekkt og Steinunn Steinþórsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 364
Tvær efstu í kvennaflokki á fyrsta golfmóti Golfklúbbs Skagastrandar á Háagerðisvelli í september 1985. Guðrún Pálsdóttir á efsta palli og Eygló Gunnarsdóttir númer tvö. Ólafur Bernódusson mótsstjóri afhendir verðlaunin.
Ingibergur Guðmundsson 463
Reiptog er eitt af vinsælum atriðum á sjómannadegi. Þá reyna gjarnan með sér áhafnir tveggja skipa eða fyrirtækja. Á myndinni frá sjómannadegi 1985 er lið, sennilega af Örvari HU 21, að takast á við óþekkt lið. Mennirni við kaðalinn eru, frá vinstri: óþekktur, Ernst Berndsen?, ?? Alexandersson, Björgvin Karlsson, Rúnar Jósefsson og Guðjón Pálsson (d.14.12.1989).
Guðrún Guðbjörnsdóttir155
Á myndinni býr Helga Jóhannesdóttir sig undir að gefa nýsmíðuðum togara Skagstrendings hf nafnið Arnar Hu 1, þar sem hann var smíðaður í Bergen 1992. Arnar var á þessum tíma stærsta fiskiskip Íslendinga. Hann kom svo til heimahafnar í fyrsta sinn 22. desember 1992. Eftir mikinn kvótaniðurskurð var hann svo seldur úr landi 1995.
2001003
Halla Björg Bernódusdóttir í hlutverki sínu í leikritinu: Eiginmaður kemur til morgunverðar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1960.
20250926_101153
Myndin var tekin í september 2025 þegar verið var að steypa hluta af þekju á ný endurgerðum Ásgarði í Skagastrandarhöfn.
Ólafur Bernódusson1194
Myndin var tekin seint í desember 2007. Á henni bendir Árni Ólafur Sigurðsson, skipstjóri á Arnari HU 1, á hluta af lunningu sem kom upp í trollinu út af Þistilfirði. Klussið á myndinni er óvenjulegt svo þegar myndin birtist í Morgunblaðinu kannaðist Halldór B. Nellett, yfirmaður hjá Landhelgisgæslunni, strax við hvaðan lunningarbúturinn var kominn. Í viðtali við Morgunblaðið sagði Halldór m.a.: "Ég var uppvaskari og messagutti hjá Guðmundi Kjærnested skipherra um borð í varðskipinu Ægi,“ sagði Halldór. „Ég var nýbyrjaður til sjós og mátulega sjóveikur. Við vorum að reyna klippingu á Þistilfjarðargrunninu eða þar nálægt þegar breski togarinn Aldershot keyrði á stjórnborðssíðuna hjá okkur og hreinsaði alla lunninguna af.“ Þetta, sem Halldór lýsir, gerðist að morgni 18. október 1972 í miðju þorskastríði vegna útfærslu landhelginnar í 50 mílur. Lunningin hafði því legið í 35 ár í sjónum þegar Arnar dró það af hafsbotninum. (heimild: Morgunblaðið 4.janúar 2008)
Ólafur Bernódusson1238
Ferðafélagar við Dyrhóley en ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á henni eru, frá vinstri: Guðrún Garðarsdóttir, Birgi Þórbjarnarson, óþekkt stúlka, Kolbrún Eðvarðsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Erla María Lárusdóttir, Guðrún Pálsdóttir og Ingibergur Guðmundsson.
2001001
Sigurður Björnsson í hlutverki sínu í leikritinu: Eiginmaður kemur til morgunverðar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1960.
Ingibergur Guðmundsson 558
Myndin var tekin á tjaldsvæðinu líklega sumarið 1989 þegar Höfðahreppur hélt upp á 50 ára afmæli sitt. Á henni leiðir Sólveig Gunnarsdóttir bróðurdóttur sína, Evu Dögg Bergþórsdóttur, eftir jafnvægisþrautinni.
Ingibergur Guðmundsson 485
Á myndinni svífur Hugrún Pálsdóttir yfir rána á unglingamóti USAH líklega 1985. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 561
Lengi var hefð fyrir því í Höfðaskóla að starfsfólkið hittist að kvöldi síðasta vinnudags fyrir jól og borðaði saman hangikjöt í skólanum. Myndin er frá einu slíku kvöldi líklega kringum 1995. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Hlíf Sigurðardóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Peter Wheelar (d.?), Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021), Unnur Kristjánsdóttir (d.19.6.2023), Kristín Ólafsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Guðbjörg Ólafsdóttir og Þröstur Líndal Gylfason.
2001098
Myndin var tekin á sumarbústað nálægt Drangsnesi 2003. Þá voru saman á ferðalagi um Strandir nokkrir Skagstrendingar á jeppum og gistu þeir eina nótt í bústaðnum. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurbjörn Björgvinsson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og Carl Erik Lehman Jakobsen.
Ingibergur Guðmundsson 410
Hlöðuvík í friðlandinu á Hornströndum séð ofan af Skálakambi sumarið 1987. Húsin sem sjást á henni eru bærinn að Búðum og appelsínugula húsið er neyðarskýli. Fjallið hinum megin við víkina er Álfsfell.
2001024
Myndin var líklega tekin á sjómannadegi 1965 af hjónunum í Þórsmörk, Hallbjörgu Jónsdóttur og Sigurði Guðmonssyni, í stofunni heima hjá sér.
20250928_111916
Myndin var tekin seint í september 2025 af hópi hjólafólks sem var að njóta þess að hjóla saman í blíðviðri. Á myndinni eru, frá vinstri: Vigdís Þorgeirsdóttir, Birna Sveinsdóttir, Alexandra Dögun Gísladóttir, Lárey Mara Sigurðardóttir, Signý Richter, Ingibergur Guðmundsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Magnús B. Jónsson, Helgi Karl Baldursson, Guðrún Pálsdóttir, Hannes Guðlaugsson, Guðlaugur Siggi Hannesson, Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir og Aðalheiður Sif Árnadóttir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir138
Ekki er vitað um tilefni fjölskylduveislunnar á myndinni né hvenær hún var tekin. Á henni er hluti afkomenda hjónanna Sigurðar Guðmonssonar (d.5.8.1981) og Hallbjargar Jónsdóttur (d.22.12.1987) í Þórsmörk. Fólkið er, frá vinstri í aftari röð: Gylfi Sigurðsson, óþekktur, Aðalbjörg Sigurðardóttir (d.10.12.2015), Guðrún Sigurðardóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Ómar Þorbjörnsson, Sigurður Þorbjörnsson og standandi með glas í hendi er Ísleifur Þorbjörnsson (d.28.8.2021). Í fremri röð eru frá vinstri: Guðbjörg, Kristjana, Hrefna, Hallbjörn, Valborg og Heiðdís Þorbjörnsbörn.
2001101
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Á henni eru menn að leggja af stað í róðraræfingu fyrir sjómannadag. Á bryggjunni stendur Indriði Hauksson í ljósum buxum. Þráinn Bessi Gunnarsson er um borð í bátnum, Sindri P. Bjarnason, Gunnar Þór Halldórsson, Rúnar Jósefsson og óþekktur standa á flotbryggjunni.
TIF
Axel Jóhann Hallgrímsson 20
Reipitog var í áratugi fastur liður á sjómannadögum. Misjafnt var hvernig keppnissveitirnar voru skipaðar en á þessari mynd, sem líklega ver tekin upp úr 1970, eru ungir menn að keppa. Næstur okkur á reipinu er Ólafur Bernódusson þá Gylfi Jóhannsson og aftast er Ingvar Ástmarsson (d.14.10.2018). Meðal áhorfenda má þekkja Karl Gmundsson (d.11.12.2011) til hægri og Hrólf Jakobsson (d.27.12.1996) með hatt á höfði til vinstri.
Ingibergur Guðmundsson 458
Hluti af fólkinu sem skipaði skíðadeildina og stóð fyrir byggingu Skíðaskálans 1984-85. Hér eru þau að halda upp á vel heppnaða vígsludag 5. apríl 1985. Frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Guðmundur Jón Björnsson, Magnús Björn Jónsson, Guðbjörg Viggósdóttir og Þorbjörg Magnúsdóttir.
Ólafur Bernódusson1223
Sundlaugin á Skagaströnd var tekin í gegn og endurbætt 1986. Þessi mynd var tekin á "endurvígsludegi" laugarinnar 31. ágúst 1986. Á henni eru krakkar að láta líða úr sér í heita pottinum eftir busl í lauginni. Krakkarnir eru, frá vinstri: Arnar Haukur Ómarsson, óþekkt (nær), Guðbjörg Kristmundsdóttir (nær), Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir (fjær), Guðmundur Henry Stefánsson, tveir óþekktir og Viktor Pétursson.
Guðrún Guðbjörnsdóttir151
Þrír af forystumönnum Skagstrendings hf staddir í Noregi, líklega í Bergen, en þá var þar verið að smíða frystitogara fyrir fyrirtækið. Þetta var sumarið 1992 því togarinn - Arnar hu 1 - kom í fyrsta sinn til heimahafnar 22. desember 1992. Hann var þá stærsta fiskiskip Íslendinga. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Guðjón Guðjónsson, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002) og Sveinn S. Ingólfsson.
Ingibergur Guðmundsson 442
Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla dansa syngjandi kringum jólatré á litlu jólum 1985. Krakkarnir á myndinni eru, frá vinstri: óþekkt, Katrín Sigurjónsdóttir, Rakel Jónsdóttir, Jóney Gylfadóttir, Elíasbet Hallbjörnsdóttir, þrjú óþekkt, Rafn Ingi Rafnsson, óþekkt, Davíð Reynisson og tvær óþekktar. Ef þú þekkir einhvern af óþekktu krökkunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 473
Friðrik Gunnlaugsson smíðar í vinnuviku í Höfðaskóla í október/nóvember 1985.
2001051
Risahol af karfa tekið um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en í trollinu eru tugir tonna af karfa. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
2001054
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin né hvert erindi Tara HF 222 átti við Arnar Hu 1. Líklega hefur hún verið að sækja mann um borð - eða koma með mann. Eins og sjá má er ekki einfalt að leggja litlum bát að stórum togara í ólgusjó án þess að skemma eitthvað. Ernst Bernden heldur í óþekktan mann í flotgalla sem er að koma - eða fara.
Guðrún Guðbjörnsdóttir156
Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf flytur ávarp við skírn Arnars HU 1. Arnar var smíðaður í Bergen fyrir fyrirtækið 1992 og kom fyrst í heimahöfn á Skagaströnd 22. desember 1992. Þá var hann stærsta fiskiskip Íslendinga. Skipið var svo selt úr landi 1995 eftir að rekstrarforsendur þess voru brostnar vegni mikils kvótaniðurskurðar.
Ólafur Bernódusson1124
Myndin var tekin í afmælishófi í Fellsborg þegar félagar í Leikklúbbi Skagastrandar, ásamt mökum, héldu upp á 20 ára afmæli klúbbsins í desember 1995 með kaffi- og skemmtikvöldi. Fyrir kvöldið var búið að skipta félögunum í hópa sem allir áttu að koma með eitt frumsamið skemmtiatriði. Einnig þurftu allir að mæta með einhvers konar höfuðfat. Á þessari mynd eru allir að syngja einhvern hreyfisöng. Frá vinstri á myndinni: Kristín Jónsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Hjörtur Guðmundsson, Ingólfur Sveinsson, Björn Hallbjörnsson, Einar Haukur Arason, Ari Þórsson, Halla Lýðsdóttir, óþekktur, Björn Ingi Óskarsson og óþekkt.
Ingibergur Guðmundsson 339
Bergþór Gunnarsson í hárlitun. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1536
Sjósetning á Björgu Ólafs Hu 40 nýsmíðaðri 1985. Björg Ólafs var smíðuð í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf úr plasti og var einn af "Skagstrendingunum" en það voru bátrnir kallaðir sem stöðin framleiddi í sama móti og Björgu Ólafs. Eigendur Bjargar Ólafs voru feðgin frá Árbakka, Þórhildur Jakobsdóttir, sem er við stefnið á bátnum, og Jakob Guðmundsson sem er í dráttarvélinni. Maðurinn í ljósu buxunum er óþekktur.
2001077
Eikarbáturinn Ásdís HU 10 var fyrsti báturinn sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. Myndin var tekin eftir að hún komst á flot í fyrsta sinn 1971. Um þennan bát er ritað í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson: " Ásdís HU 10 1183. Báturinn var smíðaður úr eik á Skagaströnd árið 1971. Hann var 21 brl. með 185 ha. Kelvin Dorman vél. Eigendur voru Elvar Valdimarsson, Skagaströnd og Guðbjörn Hallgrímsson, Hafnarfirði. Báturinn sökk út af Þorlákshöfn 3. desember 1971. Fjórir menn voru á bátnum og björguðust allir um borð í Jón Vídalín ÁR 1 frá Þorlákshöfn. Þetta var fyrsti báturinn sem smíðaður var hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf á Skagaströnd".
Árni Geir Ingvarsson - safn 1524
Myndin er úr fórum Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007). Hún sýnir torgarann Jón Baldvinsson RE 208 strandaðan við Hrafnkelsstaðaberg ekki langt frá Grindavík. Þar strandaði hann 31. mars 1955. Skipverjum var bjargað í land með fluglínutækjum en heimildum ber ekki saman um hvort þeir voru 42 eða 52. Skipið ónýttist á strandstaðnum en nokkru tókst að bjarga úr því af verðmætum s.s. timbri og málmum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir150
Nokkrir af forystumönnum Skagstrendings hf staddir í Noregi, líklega í Bergen, en þá var þar verið að smíða frystitogara fyrir fyrirtækið. Þetta var sumarið 1992 því togarinn - Arnar Hu 1 - kom í fyrsta sinn til heimahafnar 22. desember 1992. Hann var þá stærsta fiskiskip Íslendinga. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Magnús Sigurðsson (d.17.1.2023), Sveinn S. Ingólfsson, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), óþekktur, Magnús B. Jónsson, Guðjón Guðjónsson, þrjú óþekkt, Jóhannes Sveinsson og Adolf H. Berndsen.
Ingibergur Guðmundsson 466
Yngsti aldursflokkur í víðavangshlaupi umf Fram sumarið 1985. Börnin í röðinni eru, frá vinstri: Halla Kristín Árnadóttir, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Erla María Lárusdóttir, Birkir Rafn Gíslason, Sverrir Brynjar Berndsen, óþekkt og Ólafur Guðmundsson. Jósef Stefánsson stendur aftan við Höllu, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir er aftan við óþekktan í ljósbláum fötum og Skúli Tómas Hjartarson er aftan við Sverri. Eygló Gunnarsdóttir er svo aftan við son sinn Ólaf. Lengst til hægri er Birna Sveinsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
2001132
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak, undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Birna Blöndal og Guðmundur Haukur Sigurðsson í hlutverkum sínum í verkinu.
Ingibergur Guðmundsson 515
Nemendur Höfðaskóla í skólaferðalagi í maí 1985. Partý í gangi í einum skólanum þar sem þau gistu í ferðinni. Nemendurnir eru, frá vinstri: Baldur Eðvarðsson, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Vigdís Ómarsdóttir, Rakel Jakobína Jónsdóttir, Áslaug Sif Gunnarsdóttir, Jóney Gylfadóttir, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d.13.8.2000) og Hulda Magnúsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 568
Starfsfólk Höfðaskóla borðaði saman í kaffistofu Hólaness hf eftir skólalok líklega vorið 1997. Á myndinni er einhver samkvæmisleikur í gangi. Vinstra megin við borðið eru, frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Guðrún Pálsdóttir, Signý Richter og Hjálmfríður Guðjónsdóttir. Hægra megin borðsins eru, frá vinstri: Víðir Ólafsson, Helga Ólína Aradóttir, óþekkt, Ólafur Bernódusson, Ingibergur Guðmundsson og Sævar Berg Ólafsson.
2001126
Magnús B. Jónsson í hlutverki sínu sem sýslumaðurinn í leikritinu Síldin kemur og síldin fer. Leikklúbbur Skagastrandar setti verkið upp leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar við miklar vinsældir.
Ólafur Bernódusson1246
Myndin var tekin í skíðaskálanum 14. maí 1993. Þá borðaði starfsfólk Höfðaskóla saman þar ásamt mökum sínum og gerði sér glaðan dag. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Jón Ingvar Valdimarsson, Líney Jósefsdóttir, Jóney Hrönn Gylfadóttir, Ólafur Bernódusson, Carl Erik Lehman Jakobsen, Unnur Kristjánsdóttir (d.19.6.2023) og Herdís Þorgrímsdóttir.
Ólafur Bernódusson1241
Myndin var tekin uppi á Jörundarfelli í Vatnsdal. Þyrla frá ameríska flughernum er að lenda eftir að hafa flutt þangað endurvarpa sem björgunarsveitamenn af norðurlandi vestra komu fyrir og gengu frá. Þyrlan lenti og beið eftir mönnunum sem voru síðan fluttir niður á Blönduós aftur. Maðurinn í hægra horninu er Helgi Gunnarsson björgunarsveitamaður frá Skagaströnd.
2001004
Ása Jóhannsdóttir í hlutverki sínu í leikritinu: Eiginmaður kemur til morgunverðar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1960.
Ljósmyndakeppni 2022 5
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Erna Högnadóttir og sendi inn í flokkinn "Andlit". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Ingibergur Guðmundsson 497
Myndin var tekin á æfingu á leikritinu Saumastofan veturinn 1984 - 85. Myndin var tekin í Höfðaskóla þar sem fyrstu æfingar á verkinu fóru fram áður en farið var með það á svið í Fellsborg. Á myndinni eru leikkonurnar, frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir.
2001076
Eikarbáturinn Ásdís HU 10 var fyrsti báturinn sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. Á myndinni er verið að Sjósetja hana árið 1971. Mennirnir á myndinni eru Björn Sigurðsson til vinstri og Ólafur Guðmundsson skipasmiður til hægri. Krakkahópur fylgist með þessum merkis atburði í sögu Skagastrandar.
Ingibergur Guðmundsson 565
Katrín Guðmundsdóttir í fjöruferð við Sandlækinn með bekknum sínum í Höfðaskóla. Myndin var líklega tekin kringum 1998.
2001134
Leikklúbbur Skagastrandar setti leikritið Gísl á svið leikárið 1979 - 1980. Leikstjóri var Ragnhildur Steingrímsdóttir. Á myndinni, sem tekin var á æfingu eru, frá vinstri, leikararnir: óþekkt, Lárus Ægir Guðmundsson, Hallveig Ingimarsdóttir, Hallbjörn J. Hjartarson, Rúnar Loftsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson (aftar), Bernódus Ólafsson (nær), Gunnar Benónýsson, Ólafur Bernódusson og Magnús B. Jónsson.
URL
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1250
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Laufey Lind Ingibergsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir situr á sviðsbrúninni, Benóný Bergmann Sæmundsen og Helgi Sveinn Árnason.
1
…
100
101
102
103
104
Leita í myndasafninu
Leita