Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Atburðir

Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason966
Þrjár ungar stúlkur syngja og spila á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg.
Guðmundur Guðnason820
Birna Guðjónsdóttir á fermingardaginn sinn 1962
Guðmundur Guðnason884
Fermingarbörn ganga úr kirkju eftir ferminguna 1965. Fremstur fer séra Pétur Þ. Ingjaldsson, þá Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Bergur Þórðarson og Frits Bjarnason.
Guðmundur Guðnason877

Eiríkur Grímsson frá Ljótshólum.

Guðmundur Guðnason886
Fermingarbörn ganga til kirkju 1965. Frá vinstri: Reynir Sigurðsson, Rúnar Jósefsson, Ólafur Bernódusson, Ísleifur Þorbjörnsson, tveir óþekktir, Kristófer Einarsson og Frits Bjarnason.
Guðmundur Guðnason954
Dansað í Fellsborg á árshátíð Höfðaskóla
Guðrún Guðbjörnsdóttir094
Skötuveisla Skagstrendings hf á Þorláksmessu í skátaskálanum. Á myndinni eru frá vinstri: Þórhildur Jakobsdóttir, óþekkt, Sveinn Ingólfsson, Eiður Hilmarsson, Jón Ingi Ingvarsson (snýr baki í myndvélina), Jakob Guðmundsson, Jón Ólafur Ívarsson (Daddi), Bjarney Valdimarsdóttir, Guðmundur Jónsson, Jón Helgason, Guðrún Sigurðardóttir og Kristín Þórðardóttir.
Guðmundur Guðnason965
Myndin er tekin í jólaskemmtun í Tunnunni, sennilega á vegum kvenfélgasins Einingar, einhverntíma í kringum 1960.
Guðrún Guðbjörnsdóttir112
Lúsíuhátíð í Höfðaskóla. Konurnar á myndinni eru, talið frá vinstri: Edda Pálsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Dóra Hallgrímsdóttir, Áslaug Hafsteinsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Halla Jökulsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir og Sigrún Lárusdóttir.
Guðmundur Guðnason758
Leikarar eru, frá vinstri: Steindór Haraldsson, Kristín Lúðvíksdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, óþekktur, óþekktur og Pétur Jóhannsson.
Guðmundur Guðnason841
Óþekktir leikarar í óþekktri leiksýningu í Tunnunni sennilega árið1963. Ef þú veist eitthvað um það sem myndin sýnir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason921

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Töluverður fjöldi fólks lagði á sig göngu upp í Hörfellið til að fylgjast með keppninni. Ef myndin er skoðuð vel sést einn keppandi vera að ljúka stökki sínu og næsti keppandi er lagður af stað efst í brekkunni. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason731
Hafþór Gylfason
Guðmundur Guðnason916
Lúsíur í skólanum. Frá vinstri: Edda Pálsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Dóróthea Hallgrímsdóttir, Áslaug Hafsteinsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Halla Jökulsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir og Sigrún Lárusdóttir. Myndin tekinn einhverntíma á árunum 1965 - 1970.
Guðmundur Guðnason822

Anna Bára Sigurjónsdóttir á fermingardaginn sinn 1962.

Guðmundur Guðnason973
Fermingarbörn ganga til kirkju 1965. Á myndinni eru frá vinstri: Séra Pétur Þ. Ingjaldsson, Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Bergur Þórðarson, Frits Bjarnason, Rúnar Kristjánsson, óþekktur og Ísleifur Þorbjörnsson.
Guðmundur Guðnason839
Óþekktir leikarar í óþekktri leiksýningu í Tunnunni sennilega árið1963. Ef þú veist eitthvað um það sem myndin sýnir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason908
Sævar Bjarnason frá Bjargi.
Guðmundur Guðnason803
Systurnar (frá vinstri): Kristjana Þorbjarnardóttir, Heiðdís Þorbjarnardóttir og Heiðrún Þorbjarnardóttir frá Akurgerði.
Guðmundur Guðnason799
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu til vinstri og Þorbjörn Jónsson (2.9.1986) frá Akurgerði til hægri.
Guðmundur Guðnason910
Guðrún Angantýsdóttir
Guðmundur Guðnason915

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Fólk þurfti að ganga alllanga leið áður en komið var á skíðasvæðið því enginn akvegur liggur upp að Hörfelli. Á myndinni má sjá keppendur og áhorfendur á leið á keppnissvæðið.

Guðmundur Guðnason076
Pálína Freyja Harðardóttir sem var alin upp í Póshúsinu (Bogabraut 10).
Guðmundur Guðnason862
Búi Birgisson á fermingardaginn sinn 1971.
Guðmundur Guðnason842
Skóla- eða fermingarhópur með leiðbeinanda sínum. Séra Jón Kr. Ísfeld er maðurinn á myndinnni en hægra megin við hann situr Sævar Hafsteinsson Fossdal. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir eitthvert þeirra vinsamlegast sendu okkur þá upplýsingar þar um.
Guðmundur Guðnason958

Leiksýning á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg.

Guðmundur Guðnason929
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson skírir Jón Hilmar Indriðason í fangi móður sinnar Guðrúnar Angantýsdóttur. Systir Jóns, Sigurbjörg Árdís fylgist með.
Guðmundur Guðnason728
Filippía Helgadóttir Syðri-ey.
Guðmundur Guðnason870
Sigurður Bjarnason á fermingardaginn sinn 1961.
Guðmundur Guðnason855
tveir óþekktir menn eiga í viðskiptum - sennilega hrútakaupum. .Mennirnir eru óþekktir þannig að ef þú þekkir annan hvorn þeirra vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason752
Óþekkt fólk. Vinsamlegast sendu okkur athugasemd ef þú þekkir fólkið.
Guðmundur Guðnason748
Lárus Árnason frá Ási.
Guðmundur Guðnason914
Fjárhús á Kerlingarholti
Guðmundur Guðnason896
Sigurbjörg Angantýsdóttir með Jóhönnu Báru Hallgrímsdóttur, dóttur sína í fanginu í mars 1962.
Guðmundur Guðnason925
Herra Sigurbjörn Einarsson biskup flytur ávarp í kirkjudyrum á Hólahátíð 1968
Guðmundur Guðnason727
Guðrún Einarsdóttir frá Karlsskála á jólum kringum 1960.
Guðmundur Guðnason825
Á myndinni eru frá vinstri: Lilja Ásmundsdóttir (d. 2.4.1990) frá Holti, Birna Bjarnadóttir, dóttir hennar og Steinunn Sveinsdóttir frá Ásbúðum sem ól Lilju upp. Á veggnum milli þeirra hangir mynd af hálfbróður Lilju, Hauki Hansen en þau voru sammæðra.
Guðmundur Guðnason962

Leiksýning á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg.

Guðmundur Guðnason682
Líney Jósefsdóttir í fermingarkirtlinum sínum á fermingardaginn.
Guðrún Guðbjörnsdóttir079
Frá vinstri eru þetta félagarnir Fannar Viggósson, Pétur Ingjaldur Pétursson og Guðmundur Jónsson að skemmta á skólaskemmtun hjá Höfðaskóla í Fellsborg. Á myndinni eru þeir að "mima" lagið tvær úr Tungunum.
Guðmundur Guðnason801
Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) frá Karlsskála. Hann var hafnarvörður við Skagastrandarhöfn í áratugi og jafnframt lóðs á Húnaflóa.
Guðmundur Guðnason813
Óþekkt kona fyrir framan en María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003) í Sænska húsinu (Hólabraut 23) fyrir aftan. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason835
Þessi mynd var tekin í Lundi af heimilisfólkinu þar og gestum þeirra. Frá vinstri: Margrét Jóhannesdóttir (d. ?), Sigurlaug Friðgeirsdóttir, Gurid Björnsson (d. 26.4.2007) frá Hlíð, Anne Grete Gravningen kennari við Kvennaskólann á Blönduósi 1962-63, Alma Ellertsson (d. 6.10.2000) (fædd Steinhaug) frá Alvadal í Österdal í Noregi og Ole Aamundsen (Óli norski) (d. ?). Ole og Margrét voru hjón sem bjuggu í Lundi og Sigurlaug var vinnustúlka þeirra og heimilsföst hjá þeim hjónum í mörg ár. Alma var eiginkona Sveins Ellertssonar mjólkurbússtjóra á Blönduósi. Myndin var sennilega tekin 1962 eða 1963.
Guðmundur Guðnason888
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson fermir fyrir fullri kirkju í Hólaneskirkju (gömmlu). Maðurinn sem stendur á myndinni er Ingvar Jónsson.
Guðmundur Guðnason909
Hópreið á fjölmennu hestamannamóti í Húnaveri 1964.
Guðmundur Guðnason836
Frá vinstri: Steinunn Berndsen, Hafþór Smári Gylfason og Guðrún Berndsen.
Guðmundur Guðnason747
Grímuball í Tunnunni 1963. Í þá daga var mikið lagt upp úr því á grímuböllum að þekkjast ekki. Þess vegna er að sjálsögðu ekki hægt að segja til um hver er hver á þessari mynd.
Guðmundur Guðnason874
Ísleifur Haraldsson á fermingardaginn sinn 1961.
Guðmundur Guðnason918
Unglingahljómsveit leikur á skemmtun í Tunnunnni. Líklega er þetta hljómsveit sem kallaðist Tíglar. Frá vinstri: Steindór Haraldsson á bassa, Reynir Sigurðsson á trommur, Bergur Þórðarson á gítar, Hjörtur Guðbjartsson á gítar. Myndin er tekin einhverntíma á árunum 1963 - 1968. Til gamans má geta þess að þessar fallegu peysur voru prjónaðar af Jóhönnu hans Adda (Jóhanna Sigurjónsdóttir d. 15.12.1990) eins og hún var alltaf kölluð. Allar hljómsveitir á þessum tíma voru í hljómsveitar búning og þetta var okkar. Þetta voru gífurlega þétt prjónaðar flíkur og lítil loftræsting í gömlu tunnunni þess vegna átti ég í vandræðum með að komast úr peysunni er heim kom. Litirnir höfðu fært sig úr peysunni yfir á búkinn og leit skinnið út eins og að ég væri með nýtt tattú á skrokknum. En þetta fór af með góðum skammti af grænsápu. (Sent inn af Reyni Sigurðssyni frá Þórsmörk)
Guðmundur Guðnason760
Bærinn Ásholt
Guðmundur Guðnason854
Fermingarbörn árið 1964 ganga til Hólaneskirkju. Drengurinn lengst til vinstri er Óskar Jóhannesson frá Sunnufelli (Sunnuvegur 3) en sá til hægri er Guðmundur Ingi Jónatansson frá Höfðabrekku (Bankastræti 10). Presturinn er séra Pétur Þ. Ingjaldsson en stúlkurnar eru óþekkta þessari mynd.
Guðmundur Guðnason796
Fermingarbörn ganga til kirkju með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni 1964. Fermingarbörnin eru frá vinstri: Andrés Árni Baldursson, Guðmundur Jónatansson, Árni Ingibjörnsson, Ingþór Þorfinnsson, Óskar Jóhannesson, Stefán Jósefsson og Rúnar Ingvarsson. Stúlkurnar eru óþekktar
Guðmundur Guðnason975
Ísleifur Þorbjörnsson á fermingardaginn sinn í maí 1965.
Guðmundur Guðnason917

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Mynd frá skíðastökkkeppninni. Klæðnaður skíðastökkvara hefur greinilega breyst allmikið til dagsins í dag því drengurinn á myndinni tekur flugið í gallabuxum. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason959
Leiksýning á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg.
Guðmundur Guðnason919

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason964
Myndin var sennilega tekin á jóla- barnaballi í Tunnunni upp úr 1960. Þá sátu ballgestir á bekkjum meðfram veggjunum sitt hvoru megin í salnum, gjarnan strákar öðru megin og stelpur hinum megin. Á myndinni eru frá vinstri: Óskar Kristinsson úr Héðinshöfða, Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari í Röðulfelli, Örn Berg Guðmundsson (Assi) úr Höfðabrekku, Árni Ingibjörnsson á Hólabraut, Rúnar Ingvarsson á Bogabraut, Ísleifur Þorbjörnsson í Akurgerði, Jóhannes Pálsson (d.23.11.1986) á Bogabraut, Guðmundur Guðmundsson í Skeifunni, Sævar Hallgrímsson í Bragganum, Bergur Þórðarson í Herðubreið, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) í Valhöll og Ómar Jakobsson í Grund.
Guðmundur Guðnason018
Hjónin Karl Guðmundsson frá Vindhæli og Dagný Hannesdóttir með frumburð sinn Einar Karlsson. Myndin var sennilega tekin 1964.
Guðmundur Guðnason880
Fermingarbörn ganga úr kirkju eftir fermingu 1965. Fremst gengur Ragnheiður Sigurjónsdóttir. Síðan koma frá vinstri: Björn Sigmundson, Bergur Þórðarson, Kristófer Einarsson, Frits Bjarnason, Guðmundur Rúnar Kristjánsson og Jóhannes Pálsson.
Guðmundur Guðnason871
Þessi óskýra mynd var tekin á þorrablóti í Húnaveri. Ekki er vitað hvenær.
1

11
12
13

104
Leita í myndasafninu
Leita