Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Atburðir

Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason730
Áslaug Hrólfsdóttir frá Bjarmalandi. Myndin sennilega tekin á fermingardaginn hennar.
Guðmundur Guðnason887
Þetta fólk er óþekkt. Myndin var sennilega tekin í Reykjavík 1963. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason924

Konan sem situr með barnið (líklega Pálínu Harðardóttur) er Aðalbjörg Hafsteinsdóttir. Konan sem situr hjá henni er Bára Þórðardóttir. Strákarnir í sófanum eru talið frá hægri: Valdimar Valdimarsson (Númason), Ernst Berndsen, Vilhelm Harðarson og Ólafur Valdimarsson (Númason). Myndin tekin ca 1970

Guðmundur Guðnason922
Óþekkt barn. Ef þú þekkir barnið vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason872
Hrefna Júlía Viggósdóttir á femingardaginn sinn 1961
Guðmundur Guðnason861
Bogabraut 12. Myndin var sennilega tekin 1964 - 65.
Guðmundur Guðnason769
1969 kom Kristján Eldjárn forseti lýðveldisins í opinbera heimsókn í Húnaþing. Haldin var móttaka í félagsheimilinu á Blönduósi af þessu tilefni. Á myndinni er fólk að ganga út úr félagsheimilinu eftir móttökuna. Maðurinn lengst til hægri sem er að hneppa að sér jakkanum er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) en við hlið hans eru hjónin Kristinn Magnússon (d. 26.11.1979) frá Kleifum og Ingileif Sæmundsdóttir (d. 7.6.1993). Maðurinn í dökku jakkafötunum, sem virðist vera að ganga í átt til séra Péturs, er Kristinn Pálsson (d. 21.10.2008). Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason732

Kristján Jökulsson frá Núpi í Laxárdal á fermingardaginn sinn 1967.

Guðmundur Guðnason006
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson predikar í Þingeyrarkirkju.
Guðmundur Guðnason004

Þessi mynd er tekin í fermingarveislu Valgarðs Jökulssonar,heima á Núpi. Talið frá hægri: Geirlaug Ingvarsdóttir frá Balaskarði, Guðmundur maður Bjargar Ingvarsdóttur frá Balaskarði, Karl Guðmundsson frá Vindhæli,Garðar Stefánsson frá Kúskerpi, Þorvaldur Jónsson fyrir endanum, fermingarbarnið og Signý Benediktsdóttir á Balaskarði.

Guðmundur Guðnason876
Pétur Jóhannsson á fermingardaginn sinn 1961.
Guðmundur Guðnason897
Mynd frá karlakóramóti sem haldið var í félagsheimilinu á Blönduósi 9. júní 1963. Myndin sýnir einhvern óþekktan karlakór syngja en síðan sungu kórarnir greinilega allir saman, eins og sjá má á öðrum myndum hér í safninu. Ef þú þekkir hvaða kór þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason823
Stefanía Guðjónsdóttir á fermingardaginn sinn 1964.
Guðmundur Guðnason072
Sigurður Þorbjörnsson frá Akurgerði á fermingardaginn sinn 1967.
Guðmundur Guðnason005

Hjónin í Hvammi í Langadal með börnin sín. Frá vinstri Sigurbjörg Hafsteinsdóttir sem situr með Soffíu Svölu Runólfsdóttur, Bjarni Runólfsson stendur framan við Rannveigu Runólfsdóttur og Njáll Runólfsson stendur framan við Hafstein Runólfsson. Lengst til hægri er svo Runólfur Aðalbjörnsson (d. 12.2.2016) bóndi í Hvammi.

Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn027
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) í hlutverki sínu sem skoskur hershöfðingi á eftirlaunum í leikritinu Gísl. Gísl var sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar veturinn 1979 - 1980 og sýnt á Skagaströnd og í nágrannabyggðarlögunum við ágæta aðsókn. Myndina tók Jónas Baldursson.
Guðmundur Guðnason974
Fermingarbörn ganga til kirkju 1965. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Ísleifur Þorbjörnsson, Karl Lúðvíksson, Kristófer Einarsson og Ólafur Bernódusson
Guðmundur Guðnason081
Skrúðganga kemur til kirkju neðan frá höfn á sjómannadegi. Ártalið er óþekkt.
Guðmundur Guðnason095
Þetta fólk er greinilega áramótadansleik líklega í félagsheimilinu á Blönduósi. Frá vinstri: Jónína Valdimarsdóttir Kárastöðum, Jón Kr. Jónsson Laufási, Fjóla Sigurðardóttir (d. 15.7.1988) Laufási, Þórey Ólafsdóttir Árbakka og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason117
Ekkert er vitað um þessa mynd frá sundlauginni á Skagaströnd en greinilega hefur eitthvað mikið staðið til vegna áhorfendaskarans sem fylgist með sundfólkinu. Ef þú veist eitthvað um þessa mynd vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason009
Ekkert er vitað um þessa mynd né næstu mynd (nr. 3916) sem tekin er á sama stað en af öðrum mönnum. Ef þú veist hvar myndin er tekin eða hverjir eru á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Línan í forgrunni myndarinnar er einhver skemmd í myndinni en ekki planki.
Guðmundur Guðnason026
Ásgeir Ásgeirsson forseti Íslands á ferð á Akureyri 29. ágúst 1962. Aðrir í myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason124
Tvö börn skírð í Hofskirkju 13. júlí 1969. Konurnar með börnin eru systurnar María Línbjörg Hjaltadóttir(Bogga) á Neðri Harrastöðum með Hjalta Viðar Reynisson í fanginu og Árný Hjaltadóttir (Dúdú) á Steinnýjarstöðum með Guðríði Ingunni Kristjánsdóttur. María er til vinstri á myndinni. Aftast má þekkja Dómhildi Jónsdóttur prestsfrú til vinstri og séra Pétur Þ. Ingjaldsson er lengst til hægri. Milli þeirra stendur Hilmar Árnason bóndi á Hofi. Litla dökkhærða daman á fremsta bekk er Anna Kristjánsdóttir eldri systir Guðríðar Ingunnar sem verið var að skíra.
Guðmundur Guðnason953
Skólasýning á óþekktu leikverki í Fellsborg á árshátíð Höfðaskóla. Fólkið í myndinni er óþekkt.
Guðmundur Guðnason047
Þessi mynd var tekin þegar verið var að bora eftir heitu vatni á melnum neðan við Ásholt. Borað var niður á 30 metra dýpi en því miður fannst ekki heitt vatn á staðnum.
Óþekktur ljósmyndari121

Veitingastaðurinn Kántrýbær byrjaði rekstur í þessu húsi. Útvarp kántrýbær var á efri hæðinni. Aðfaranótt 27 október 1997 brann þetta hús til kaldra kola. Hallbjörn Hjartarson, sem átti húsið og starfsemina þar, gafst ekki upp. Hann safnaði peningum hjá þjóðinni og reisti það hús sem stendur í dag á sama stað og þetta var. Nýja húsið með veitingasölu og útvarpi Kántrýbæ var opnað rúmu ári eftir brunann 27. júní 1998.

Óþekktur ljósmyndari140
Lokahóf yfirmanna vinnuskólans á hótel Dagsbrún 11. október 1996. Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri.
Guðmundur Guðnason007
Ekki er vitað hvar þetta myndarlega hús er né hvaða erindi allt þetta fólk á framan við húsið. Ef þú getur hjálpað okkur með þetta vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson050
Kristín Jónsdóttir spilar á saxófón á jólatónleikum tónlistarskólans í Höfðaskóla 1986. Jane Sillar kennari spilar undir á píanóið
Guðmundur Guðnason027
Hér er Finnur Frímannsson (d. 18.3.1969) frá Jaðri með tvo til reiðar, sennilega á hlaðinu á Jaðri.
Óþekktur ljósmyndari126
Lokahátíð verkstjóra vinnuskólans á Skagaströnd. Frá vinstri: Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri, Guðmundur Guðmundsson, Lilja Kristinsdóttir, Ragnar Smári Ingvarsson, Kolbrún Viggósdóttir, Kristín Þórðardóttir, Rósa Björg Högnadóttir og Guðrún Soffía Pétursdóttir. Myndin er tekin 14. ágúst 1998 í Kántrýbæ.
Guðmundur Guðnason036
Vilhelm Harðarson í Reykholti.
Guðmundur Guðnason867
Bogabraut 16. Myndin var sennilega tekin 1964 - 65.
Guðmundur Guðnason894
Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir í mars 1962
Guðmundur Guðnason053
Willis jeppi H 364. Ekki er vitað hver átti þennan bíl en ekki er ólíklegt að Ingvi Guðnason (d. 31.12.1991) hafi átt hann. Ingvi var bróðir Guðmundar sem tók þessa mynd.
Guðmundur Guðnason846
Maðurinn á myndinni er Jakob Þorsteinsson sem lengi bjó í Sæbóli á Skagaströnd með konu sinni Lilju Guðmundsdóttur og börnum sínum. Nöfn barnanna eru frá vinstri: Sigríður Jakobsdóttir, Þorsteinn Magnús Jakobsson og Ísleifur Ólafur Jakobsson.
Guðmundur Guðnason865
Akurgerði (Hólabraut 9). Myndin var sennilega tekin 1964 - 65.
Guðmundur Guðnason961
Leiksýning á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg
Guðmundur Guðnason775
Höfðaberg kringum 1970. Lengst til vinstri sér í fjárhús/hlöðu sem var sambyggð við Valhöll. Milli þeirra sér svo í Höfðakot ásamt fjárhúsum og hlöðu þar. Öll þessi hús eru nú löngu farin.
Guðmundur Guðnason838
Konan lengst til vinstri er líklega Guðrún Björnsdóttir frá Ytri-Löngumýri. Í miðjunni er Alda Björnsdóttir frá Fjósum í Svartárdal og lengst til hægri er Guðrún Steingrímsdóttir frá Snæringsstöðum í Svínavatnshreppi.
Guðmundur Guðnason906
Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir til vinstri með bróður sínum Hjalta Indriðasyni.
Guðmundur Guðnason077
Áhorfendur fylgjast spenntir með kúlunni svífa í kúluvarpskeppni á ókunnu íþróttamóti (Frá Úlfari Björnssyni?). Ef þú veist eitthvað um myndina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn006
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) til vinstri og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) til hægri. Hér eru þeir félagar í gervum sínum í stuttum leikþætti sem leikinn var á kvöldvöku Lionklúbbs Skagastrandar á sjöunda áratugnum í gömlu Tunnunni. Leikþátturinn var saminn af Bernódusi og fjallaði um mannlífið á Skagaströnd í léttum dúr. Konan sem Guðmundur lék hét Lofthæna Pétursdóttir því séra Pétur var með hænsni uppi á hálofti hjá sér.
Guðmundur Guðnason907
Séra Jón Kr. Ísfeld kynnir á hestamannamóti í Húnaveri 1964.
Guðmundur Guðnason955
Dansað við undirleik hljómsveitar á árshátíð Höfðaskóla
Guðmundur Guðnason066
Sigfríður Konráðsdóttir, dóttir Konráðs Guðmundssonar og Ragnhildar Sigurjónsdóttur sem bjuggu í risinu í Herðubreið á Skagaströnd. Konráð var oft kenndur við Garðhús eða Konnabæinn þar sem hann átti heima í æsku.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn038
Árið 1985 fór hópur starfsmanna og stjórnenda Hólaness hf og Skagstrendings hf til London í skemmtiferð ásamt mökum sínum. Á þeim tíma unnu tugir manna hjá hvoru fyrirtæki fyrir sig þannig að ferðin var fjölmenn miðað við íbúafjölda á Skagaströnd á þeim tíma. Á þessari mynd eru þeir Gunnar Sveinsson stjórnarmaður í Hólanesi hf og Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf á góðri stund. Lengst til vinstri er Sigubjörn Björgvinsson og einnig sér í Sigurjón Guðbjartsson stjórnarmann í Hólanesi hf á milli þeirra félaga.
Guðmundur Guðnason055
Tveir bílstjórar við fararskjóta sína. Maðurinn í ljósu skyrtunni mun vera Gunnar Jónsson (d.15.6.2003) frá Dalvík sem ók bæði eigin bifreiðum og var líka bílstjóri hjá Norðurleið. Ef þú þekkir hinn manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason094
Gylfi Sigurðsson Bogabraut 12.
Guðmundur Guðnason046
Tekið til altaris í Holtastaðakirkju við fermingu Ólafar Jónsdóttur frá Ártúnum og Rannveigar Runólfsdóttur í Hvammi í Langadal. Fólkið sem fylgir þeim til altaris er óþekkt.
Guðmundur Guðnason045
Þessi stúlka er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson031
Kirkjukórinn syngur við athöfn þegar kveikt er á jólatré á Hnappstaðatúni í aðdraganda jólanna. Logndrífa var þegar athöfnin fór fram og þess vegna er myndin eins og hún er. Á myndinni frá hægri: Gylfi Sigurðsson, Guðmundur Guðnason, Kristján Hjartarson, Hjördís Sigurðardóttir, Guðrún Sigurðardóttir,óþekkt kona með lítinn jólasvein, Bára Þorvaldsdóttir. Aðrir á myninni eru óþekktir. Myndin er tekin einhverntíma á níunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason025
Frá vinstri á þessari mynd eru feðgarnir: Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971), Pálmi Guðnason (d. 23.3.1994) og Ingvi Guðnason (d. 31.12.1991) frá Ægissíðu. Guðni flutti í Ægissíðu á Skagaströnd með fjölskyldu sína framan úr Laxárdal, sennilega um 1948.
Óþekktur ljósmyndari135

Maríanna Þorgrímsdóttir snurfusar aðkeyrsluna að tjaldsvæðinu fyrir Kántrýhátíð (sennilega 1998).

Guðmundur Guðnason143
Hesti hleypt á hestamannamóti í Húnaveri sennilega á sjöunda áratugnum. Knapi og hestur óþekktir.
Guðmundur Guðnason992
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson skírir þrjú börn í fermingarmessu á Höskuldsstöðum vorið 1964, börnin eru þrjú, Valgerður Kristjánsdóttir og Jökull Sigtryggsson frá Núpi með Jón Tryggva Jökulsson lengst til hægri. Trausti Kristjánsson með Guðmund Einar Traustason í fanginu í miðið og snýr baki í myndavélina. Síðan eru Erla og Svavar á Síðu með Björn son sinn. Tvíburarnir frá Neðri Lækjardal eru í fremstu sætum fermingarbarnanna.
Guðmundur Guðnason078
Túnbraut 7 í forgrunni. Til vinstri eru Iðavellir og sér í hornið á Stóra - bergi framundan Túnbraut 7. Húsið til hægri er Litla - berg ( Fellsbraut 2).
Ólafur Bernódusson037
Þessi hópur fermdist frá Hólaneskirkju 1963. Í tilefni af því hittust þau í júní 1983 til að halda upp á 20 ára fermingarafmæli sitt með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni sem fermdi þau á sínum tíma. Í öftustu röð frá vinstri: Gunnlaugur Sigmarsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Guðmundur Guðmundsson, Örn Berg Guðmundsson (Assi), Ómar Jakobsson og Sigurjón Ástmarsson. Í miðröð frá vinstri: Þorvaldur Skaftason, Steindór R. Haraldsson, Kristín Sigurðardóttir, Gísli Kristjánsson og Guðmundur J. Björnssson. Í fremstu röð frá vinstri: Matthildur Hafsteinsdóttir Fossdal, Jóhanna Hallgrímsdóttir (Júdý), séra Pétur Þ. Ingjaldsson, Kolbrún Jónsdóttir og Guðbjörg Þorbjörnsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari125
Kántrýhátíðin 2002 var sú síðasta sem haldin var á Skagaströnd. Þá mætti gríðalegur mannfjöldi á staðinn. Rigning var alla hátíðisdagana og segja má að hátíðin hafi rignt burt. Myndin sýnir ástandið á tjaldsvæði sunnan við Íþróttavöllinn.
Óþekktur ljósmyndari134
Hér hjálpast starfsmenn Höfðahrepps að við að reisa samkomutjald á Hnappstaðatúni. Frá vinstri: Rósa Björg Högnadóttir, Mugnús Ólafsson bæjarverkstjóri, Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba), og Magnús B. Jónsson sveitarstjóri. Myndin sennilega tekin 1998.
1

12
13
14

104
Leita í myndasafninu
Leita