Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Magnús B Jónsson024
Birgir Þórbjarnarson, til vinstri, keppir við óþekktan andstæðing á sjómannadegi á planinu við Hafnarhúsið. Keppnin felst í því að rekja tóman olíubrúsa eftir ákveðinni braut með netakúlu sem fest er um mittið með bandi. Hér reynir á að hafa vald á tvíræðum mjaðmahnykkjum.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn013
Á myndinni, sem tekin var á sjómannadeginum 1965, eru frá vinstri: Snorri Gíslason (d.29.5.1994) í Höfðatúni (áður í Viðvík), Konráð Klemensson (d.20.11.1981) í Garðhúsum (Konnabænum), Jóhannes Pálsson (d.9.3.1972) frá Garði, Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) kynnir sjómannadagsins og Guðmundur Pétursson (d.30.6.1987) frá Höfðakoti.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn044
Árið 1985 fór hópur starfsmanna og stjórnenda Hólaness hf og Skagstrendings hf til London í skemmtiferð ásamt mökum sínum. Á þeim tíma unnu tugir manna hjá hvoru fyrirtæki fyrir sig þannig að ferðin var fjölmenn miðað við íbúafjölda á Skagaströnd á þeim tíma. Á þessari mynd situr hluti hópsins að kvöldverði á veitingahúsi. Frá vinstri eru: Sigurjón Guðbjartsson, Björn Ingi Óskarsson, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir kona Björns bak við þau eru hjónin Guðrún Angantýsdóttir og Indriði Hjaltason. Hinum megin við borðið eru Hallgrímur Kristmundsson, Sigríður Baldursdóttir, Ingvi Þór Guðjónsson og Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý).
Magnús B Jónsson004
Sjómannadagur 1982-1983 á planinu við Hafnarhúsið. Skemmtilegur leikur í gangi undir stjórn Gylfa Sigurðssonar og Ingibergs Guðmundssonar.
Jón Jónsson220
Hjónin Sigurbjörg K.G. Hjartardóttir (Bogga í Vík) (d.17.7.1985) og Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) í Vík á sjómannadegi.
Guðmundur Guðnason210
Skrautreið um keppnissvæðið á Hvammsbökkum við kappreiðar 1961. Mikill fjöldi gesta fylgist með því sem fram fer.
70 ára afmæli Kára 1984 - Bjössi, Kári, Lúlli, Lára 003
<p>Myndin er tekin af systkinum í 70 ára afmæli Kára Kristjánssonar 5. desember 1984. Standandi frá vinstri: Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989), afmælisbarnið Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) og Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001). Fyrir framan þá situr systir þeirra, Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993). Litla stúlkan til hægri er Erla María Lárusdóttir sem er langömmubarn Láru. Myndin var tekin heima á Kárastöðum (Bankastræti 5), sem nú eru horfnir, en þar bjuggju þeir Kári og Sigurbjörn saman ásamt ráðskonunni Jónínu Valdimarsdóttur. </p>
Magnús B Jónsson012
Heiðursfólk á sjómannadegi 1989 eftir að hafa verið sæmd heiðurskrossi sjómannadagsins. Frá vinstri: Jóhann F. Pétursson frá Lækjarbakka (d. 13.1.1999), Jóhanna Jónasdóttir frá Höfðatúni og Jón Jónsson frá Asparlundi (d. 9.7.1991).
Magnús B Jónsson021
Jón Jónsson frá Asparlundi (d. 9.7.1991) á fullri ferð í eggjaboðhlaupi á sjómannadegi á planinu hjá Hafnarhúsinu. Eggið er haft í skeið sem haldið er með munninum. Hendurnar mega ekki koma nálægt egginu eins og sjá má á stellingu Jóns.
Guðmundur Guðnason123
Óþekktur maður í réttum. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson024
Landsbanki Íslands stóð fyrir víðavangshlaupum ungmenna á hverju vori í mörg ár. Útibúið á Skagaströnd lét ekki sitt eftir liggja og voru haldin slík hlaup í mörg ár. Þátttakendu komu af "markaðssvæði" Landsbankans, Skagaströnd, Blönduósi, Hvammstanga og úr sveitunum. Þessi mynd er tekin á árunum kringum 1985 og sýnir verðlaunahafa í strákaflokki. Á myndinni eru þekkt: Anna Dröfn Guðjónsdóttir lengst til vinstri, Atli Þórsson á verðlaunapalli með númer 3 á maganum, Bjarni Gaukur Arason er efstur, númer10, og til hægri við verðlaunahafana sér í Guðnýju Finnsdóttur. Ef þú þekkir hina krakkana á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson223
Hátíð við höfnina. Prestshjónin Una Dagbjört Kristjánsdóttir og séra Oddur Einarsson með þrjú af börnum sínum. Í baksýn sér í óþekktan mann lengst til vinstri við hlið Steindórs Gíslasonar. Til hægri eru Gestur Arnarson og Kristín Þórðardóttir.
Ólafur Bernódusson045
Fyrsta Kántrýhátíðin var haldin 1984. Hún fór að mestu fram á tjaldsvæðinu en þar voru byggð ýmis leiktæki. Á myndinni eru krakkar að nýta sér eitt af leiktækjunum í bergjunum austan við tjaldsvæðið.
Magnús B Jónsson015
Hefðbundið tunnuboðhlaup á sjómannadegi 1983. Keppendur eru óþekktir en leggja sig greinilega öll fram.
Ólafur Bernódusson058
Jón Pálsson var skólastjóri Höfðaskóla í u.þ.b. tvo áratugi fram til ársins 1986 er hann lét af störfum. Hér er hann í ræðustól í skólanum við einhvert hátíðlegt tækifæri.
Guðmundur Guðnason179
Alþingishátíð var haldin á Þingvöllum 1930. Hátíðin var haldin til að minnast þess að 1000 ár voru þá liðin frá því að allsherjarþing var sett þar árið 930. Hátíðin stóð dagana 26. - 28. júní og þangað kom Kristján 10. konungur Danmerkur og þá ennþá, Íslands. Gríðarlegt fjölmenni var á hátíðinni en á þessari mynd er Kristján konungur með kaskeiti fyrir miðri mynd. Myndin er úr safni Guðmundar Guðnasonar en ekki tekin af honum enda fæddist hann árið 1923. Á myndinni er nafn ljósmyndarans:K.K. Bergen.
Jón Jónsson188
Myndin var tekin 1990 í kirkjukaffi í Fellsborg til að kveðja séra Ægi Fr. Sigurgeirsson sem var þá að hætta prestskap á Skagaströnd og taka við nýju embætti í Kópavogi. Linda Hafdal er lengst til vinstri en Jóhanna Ólafsdóttir prestsfrú og Friðjón Guðmundsson málari eru í forgrunni.
Jón Jónsson191
Eftir þorrablót fóru félagar úr Leikklúbbnum í heimsókn í Sæborg og fluttu hluta af skemmtiatriðum blótsins fyrir vistmenn á dvalarheimilinu Sæborg. Uppvask í eldhúsinu. Frá vinstri: Ása Jóhannsdóttir frá Lækjarbakka, Særún Jónsdóttir úr Sænska húsinu og Inga Björgvinsdóttir.
Magnús B Jónsson077
Hallveig Ingimarsdóttir og Ingibergur Guðmundsson eiga saman spennandi stund í Kántrýbæ á einhverri uppákomu á vegum Leikklúbbs Skagastrandar.
Magnús B Jónsson086
Leikklúbbur Skagastrandar hélt Jónasarvöku í Fellsborg , líklega um jólin 1983, til heiðurs Jónasi Árnasyni en klúbburinn hafði sýnt a.m.k. tvö leikrit eftir hann. Jónas kom sjálfur á skemmtunina með konu sína með sér og tók þátt í skemmtuninni. Á myndinni situr Jónas (í miðið) fyrir svörum þeirra Magnúsar B. Jónssonar og Guðnýjar Sigurðardóttur úr Leikklúbbnum.
Guðmundur Guðnason228
Frændsystkinin Bergþóra Huld Birgisdóttir og Ingvar Jónsson í Hólaneskirkju (eldri) eftir ferminguna sína vorið 1981.
Magnús B Jónsson034
Kötturinn sleginn úr tunnunni á öskudegi í Höfðaskóla. Maðurinn með trefilinn er Ólafur Bernódusson kennari og maðurinn með yfirskeggið er Hallgrímur Hjaltason. Drengurinn með víkingahjálminn er Þorsteinn Jónsson en aðrir eru óþekktir.
Magnús B Jónsson023
Magnús B. Jónsson með gott forskot í kapphlaupi á sjómannadegi.
Guðmundur Guðnason176
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Frá vinstri á myndinni eru: Elsa Lára Blöndal, Líney Jósefsdóttir Reykholti, Kári Kristjánsson Kárastöðum og Sigurður Guðmundsson.
Magnús B Jónsson002
Hreppsnefndarmennirnir Adolf J. Berndsen og Heimir Fjeldsteð mata hvor annan á skyri í þrautahlaupi á sjómannadegi, líklega 1986. Myndin var tekin á planinu austan við verksmiðjuna.
Jón Jónsson183
Myndin var tekin 1990 í kirkjukaffi í Fellsborg til að kveðja séra Ægi Fr. Sigurgeirsson sem var þá að hætta prestskap á Skagaströnd og taka við nýju embætti í Kópavogi. Við borðið sitja, talið frá vinstri: Torfi Sigurðsson frá Mánaskál (d. 9.10.1993), Sigurður Bjarnason Breiðabliki, Bára Þorvaldsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Helga Guðmundsdóttir og óþekkt kona.
Jón Jónsson171
Elísabet Hallbjörnsdóttir leikur á flygil í Fellsborg, líklega á einhverri uppákomu tónlistarskólans. Myndin var tekin snemma á níunda áratugnum.
Jón Jónsson207
Eftir þorrablót fóru félagar úr Leikklúbbnum í heimsókn í Sæborg og fluttu hluta af skemmtiatriðum blótsins fyrir heimilisfólk á dvalarheimilinu Sæborg og gesti þeirra. Fannar Viggósson syngur og spilar.
Óþekktur ljósmyndari136
Lokahóf yfirmanna vinnuskólans 1996. Hér er Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri með fríðum hópi kvenkyns verkstjóra úr vinnuskólanum. Myndin er tekin á Hótel Dagsbrún 11. október 1996. Frá vinstri á myndinni eru: Kristín Þórðardóttir, Maríanna Þorgrímsdóttir, Rósa Björg Högnadóttir, Linda Kristjánsdóttir og Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba). Magnús Ólafsson krýpur fyrir framan.
Ólafur Bernódusson046
Fyrsta Kántrýhátíðin var haldin 1984. hátíðasvæðið var á tjaldsvæðinu. Á þessari mynd er Jonny King umkringdur aðdáendum í viðtali við útvarpið sem starfrækt var á hátíðinni. Jonny King var eitt af aðalnúmerum hátíðarinnar.
Guðmundur Guðnason102
Óþekkt ungabarn. Myndin gæti verið tekin 1962. Ef þú þekkir barnið vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson051
Litlu jól í Höfðaskóla 1983. Á litlu jólum er leyft að vera með nammi og gos í skólanum. Frá vinstri á myndinni eru: Inga Kristjánsdóttir, Kristín Karlsdóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, Þorbjörg Eðvarðsdóttir og Jensína Lýðsdóttir öll úr 1968 árganginum.
Jón Jónsson217
Vilhjálmur Skaftason klæddur í samhengi við tilefnið, Kántrýhátíð 1985.
Jón Jónsson214
Eftir þorrablót fóru félagar úr Leikklúbbnum í heimsókn í Sæborg og fluttu hluta af skemmtiatriðum blótsins fyrir heimilisfólk á dvalarheimilinu Sæborg og gesti þeirra. Á myndinni er fólk að fylgjast með skemmtiatriðunum. Frá vinstri: María Magnúsdóttir, Skafti Fanndal Jónasson ( d. 2.9.2006), Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002), Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) og Snorri Gíslason (d. 29.5.1994).
Óþekktur ljósmyndari139
Lokahóf yfirmanna vinnuskólans á hótel Dagsbrún 11. október 1996. Maríanna Þorgrímsdóttir verkstjóri.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn049
Þessi mynd var tekin í 90 ára afmæli Þórunnar Samsonardóttur 1981 þegar fjölskylda hennar hélt veislu af því tilefni. Veislan var haldin á ellideild Héraðshælisins þar sem Þórunn bjó síðust ár æfi sinnar. Á myndinni eru frá vinstri: Steingrímur Jónsson frá Höfðakoti, sem þá var heimilismaður á ellideildinni, Bernódus Ólafsson úr Stórholti og Þórunn Samsonardóttir frá Akri, móðir Bernódusar.
Magnús B Jónsson082
Leikklúbbur Skagastrandar hélt Jónasarvöku í Fellsborg , líklega um jólin 1983, til heiðurs Jónasi Árnasyni (d. 5.4.1998) en klúbburinn hafði sýnt a.m.k. tvö leikrit eftir hann. Jónas kom sjálfur á skemmtunina með konu sína með sér og tók þátt í skemmtuninni. Á þessari myndi er Birna Blöndal að kynna Jónas sem stendur við sviðið og hlustar á.
Magnús B Jónsson014
Ingibergur Guðmundsson, Dómhildur Jónsdóttir og séra Pétur Þ. Ingjaldsson ganga niður landganginn úr Örvari Hu 21 á sjómannadegi 1983.
Óþekktur ljósmyndari138
Lokahóf yfirmanna vinnuskólans á hótel Dagsbrún 11. október 1996. Kristín Þórðardóttir verkstjóri.
Jón Jónsson170
<p>Hér má sjá á sviðinu í Fellsborg frá vinstri: Guðjón Árnason, Guðmunda Ólafsdóttir, Hulda Magnúsdóttir og Þórarinn Ingvarsson. Baksviðs má þekkja Elísabetu Hallbjörnsdóttur með blöð í höndunum og Bjarney Valdimarsdóttiur sitjandi. Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 1893 eða 1984. Dansatriðið þótti það gott að það var síðar sýnt á Húnavöku á Blönduósi. </p>
Guðmundur Guðnason331
Þorkell Magnússon (d. 30.8.1968) úr Goðhól til vinstri og Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) frá Höfðakoti til hægri hljóta heiðursmerki sjómannadagsins 1967. Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) (með hatt) frá Brúarlandi og Bjögvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku klappa fyrir sjömönnunum öldnu.
Jón Jónsson216
Kántrýhátíð 1985. Messa þar sem kirkjukórinn söng við undirleik Kristjáns Hjartarsonar organista. Prestur var séra Oddur Einarsson og meðhjálpari var Hallbjörn Hjartarson.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn045
Árið 1985 fór hópur starfsmanna og stjórnenda Hólaness hf og Skagstrendings hf til London í skemmtiferð ásamt mökum sínum. Á þeim tíma unnu tugir manna hjá hvoru fyrirtæki fyrir sig þannig að ferðin var fjölmenn miðað við íbúafjölda á Skagaströnd á þeim tíma. Hjónin Aðalheiður Guðmundsdóttir og Árni Guðbjartsson uppábúin yfir kvöldverði á veitingastað í London.
Guðmundur Guðnason056
Kokkurinn dansaður í Húnaveri. Þegar hljómsveitin hættir að spila dansa þau pör saman sem enda hvert á móti öðru.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn036
Uppábúnar kvenfélagskonur úr kvenfélaginu Einingin á Þorrablóti í Tunnunni einhverntíma á sjöunda áratugnum. Frá vinstri: Elísabet (Bebbý) Árnadóttir frá Réttarholti, Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri Harrastöðum, Sigríður Ásgeirsdóttir frá Lækjarbakka, Gestheiður Jónsdóttir Bogabraut 5, Anna Halldórsdóttir Aspar úr Stórholti, Helga Berndsen frá Karlsskála og Karla Helgadóttir í Ásbyrgi. Svona klæddar gengu þessar konur um beina á þorrablótinu.
Magnús B Jónsson006
Einar Hjartarson matar Magnús B. Jónsson félaga sinn á skyri í leik á sjómannadegi á planinu austan við verksmiðjuna. Ingibergur Guðmundsson stjórnar leiknum. Myndin líklega tekin einhverntíma á árunum 1983- 1986.
Ólafur Bernódusson023
Verðlaunahafar í karlaflokki á innanfélagsmóti í golfi á Háagerðisvelli. einhverntíma á árunum í kringum 1990. Þessir menn voru sigursælir á golfmótum þessara ára. Frá vinstri: Ómar Jakobsson, Oliver Oliversson og Jón Ingi Ingvarsson
Jón Jónsson187
Myndin var tekin 1990 í kirkjukaffi í Fellsborg til að kveðja séra Ægi Fr. Sigurgeirsson sem var þá að hætta prestskap á Skagaströnd og taka við nýju embætti í Kópavogi. Aðalbjörg Hafsteinsdóttir úr sóknarnefnd Hólaneskirkju flytur ávarp.
Jón Jónsson169
Soffía Lárusdóttir spilar á flygil í Fellsborg, líklega á einhverri uppákomu hjá tónlistarskólanum. Myndin var tekin snemma á níunda áratugnum.
Magnús B Jónsson041
Hljómsveitin Jójó frá Skagaströnd spilar á útisviði í Reykjavík - sennilega á 17. júní. Í hljómsveitinni eru frá vinstri: Fannar Viggósson, Ingimar Oddsson, Kristján Blöndal, Viggó Magnússon og Jón Arnarson.
Ólafur Bernódusson021
Verðlaunahafar í kvennaflokki á golfmóti á Háagerðisvelli kringum 1990. Frá vinstri: Bjarney valdimarsdóttir, Guðrún Pálsdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir.
Óþekktur ljósmyndari127
Lokahátíð vinnuskólans á Skagaströnd 1998. Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri þakkar fyrir gjöf sem honum var færð við þetta tækifæri. Myndin var tekin í Kántrýbæ 14. ágúst 1998.
Magnús B Jónsson008
Kappróður á sjómannadegi. Tvær kvennasveitir keppa á Gusti og Golu. Húsið í baksýn til hægri er Rjúpnafell sem nú er horfið.
Guðmundur Guðnason187
Guðmundur Kr. Guðnason frá Ægissíðu(d. 21.11.1988) ljósmyndari, póstur og organisti með harmonikuna sína um jól.
Guðmundur Guðnason219
Myndin er tekin á Hólahátíð 25. ágúst 1963 af prósessíu presta á leið til kirkju. Fremstur fer Herra Sigurbjörn Einarsson biskup en sjöundi frá hægri er séra Pétur Þ. Ingjaldsson sóknarprestur á Skagaströnd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn061
Fermingarsystkin sem fermd voru 18. maí 1958 af séra Pétri Þ. Ingjaldssyni í Hólaneskirkju. Fremsta röð frá vinstri: Harpa Friðjónsdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir, Kristinn Lúðvíksson, Anna Skaftadóttir, Bylgja Angantýsdóttir. Önnur röð: Helga Ólafsdóttir, Sigrún Jóhannesdóttir. Þriðja röð: Konráð Guðmundsson, Sævar Bjarnason, Björn Sigurðsson. Aftasta röð: Sigurjón Magnússon, Birgir Þórbjarnarson. Myndin var tekin í gömlu kirkjunni á Skagaströnd.
Óþekktur ljósmyndari141
Lokahóf yfirmanna vinnuskólans á hótel Dagsbrún 11. október 1996. Guðrún Soffía (Obba) Pétursdóttir verkstjóri.
Óþekktur ljósmyndari147
Starfsfólk og fyrrverandi starfsfólk Höfðahrepps gerir sér glaðan dag í sumarlok 24. ágúst 2001. Frá vinstri: Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri, Ragnar Ingvarsson húsvörður íþróttahúss og félagsheimilis, Rósa Björg Högnadóttir vinnuskólaverkstjóri, Þröstur Líndal lögreglumaður og fyrrum starfsmaður Höfðahrepps, María Rós Karlsdóttir vinnuskólaverkstjóri og Sigurbjörn Björgvinsson vörubilstjóri.
Magnús B Jónsson001
Leikur á sjómannadegi líklega 1983 á planinu við verksmiðjuna. Kjartan Birgisson og Þórunn Óladóttir keppa í þrautahlaupi. Áhorfendur skemmta sér vel.
Guðmundur Guðnason376
Þetta fólk var allt í kirkjukórnum. Þarna eru þau að taka þátt í einhvers konar spurningakeppni á sviðinu í Fellsborg. Frá vinstri: Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), Elísabet Árnadóttir (Bebbý), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996) og Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011). Lengst til hægri grillir í Georg Hjartarson (d. 13.9.2001).
1
…
14
15
16
…
104
Leita í myndasafninu
Leita