Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Bjarni Jónsson 53
Þetta er mynd af jólakorti eftir Bjarna Jónsson líklega frá árinu 1987. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008). Var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson 506
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Þessi mynd var tekin af gestum við að skoða millidekkið. Frá vinstri Ingólfur Bjarnason og Hörður Ragnarsson en aðrir eru óþekktir. </p>
Bjarni Jónsson 47
Jólakort gert af Bjarna Jónssyni, líklega árið 1970. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Halldór Pétursson 8
Þessi mynd af Kertasníki er eftir Halldór Pétursson líklega frá 1972. Halldór Pétursson (26.9.1916 – 16.3.1977) var þekktur myndlistarmaður og teiknari. Hann lauk prófi í auglýsingateiknun frá Kunsthåndværksen í Kaupmannahöfn 1938 en var svo í framhaldsnámi í Minneapolis School of Art og Art Students League í New York árin 1942 – 1945. Hann myndskreytti fjölda bóka og rita, hafði mikinn áhuga á hestum og gerði margar myndir af þeim. Fræg verk eftir Halldór eru t.d. merki Reykjavíkurborgar (1951), merki Flugleiða og merki Rafmagnsveitna Reykjavíkur. Þá hannaði hann alla peningaseðla sem voru gefnir út á árunum 1960 – 1981. Halldór var þekktur meðal almennings fyrir teikningar sínar, ekki síst skopteikningar.
Bjarni Jónsson 41
Mynd eftir Bjarna Jónsson á jólakorti, líklega frá árinu 1981. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson386
Skákþing Norðurlands var haldið í Fellsborg á Skagaströnd dagana 2.-5. mars 1989. Á þessari mynd spjalla saman þeir Lárus Ægir Guðmundsson, þáverandi formaður Skákklúbbs Skagastrandar, til vinstri og Jóhann Guðmundsson frá Holti í Svínadal. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson470
Lárus Ægir Guðmundsson talar til Hallgríms Kristmundssonar (D. 9.10.1998) á sjómannadegi 1991 þegar sjómannadagsráð heiðraði Hallgrím fyrir farsæla sjómennsku í áratugi.
Ólafur Bernódusson540
Þessi mynd var tekin á skólaslitum Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Hér færir Halla Kristín Árnadóttir kennara sínum einhverja gjöf með þakklæti fyrir veturinn. Fyrir aftan Höllu eru, frá vinstri: Salóme Ýr Rúnarsdóttir, Guðrún Björk Elísdóttir, Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir og Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson399
Í maí 1990, rétt fyrir skólalok, stóð Höfðaskóli fyrir hreinsunarátaki í nágrenni skólans. Að sjálfsögðu var síðan haldin pylsu-grillveisla í lokin. Á myndinni eru krakkarnir að bíða eftir að röðin komi að þeim að fá pylsu. Strákurinn með derið er Kristján Gunnar Rúnarsson, Rakel Petrea Finnsdóttir stendur utan við röðina enda er hún búin að fá sína pylsu. Þriðji fyrir aftan Kristján er Birkir Rafn Gíslason og fyrir aftan hann er Magnús Helgason. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Kvenfélagið Eining - safn076
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó).
Kvenfélagið Eining - safn055
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd er Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) að lesa upp fyrir gesti. Í baksýn eru frá vinstri: Inga Lára Sigurðardóttir, Helga Guðmundsdóttir, Sigrún Lárusdóttir, Svava Sigurðardóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Hólmfríður Oddsdóttir og Bára Þorvaldsdóttir.
Bjarni Jónsson 26
Á þessari mynd Bjarna Jónssonar, sem er á jólakorti frá 1982, hefur móðir lagt frá sér ullarkambana til að sinna ungbarni sínu. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Kvenfélagið Eining - safn017
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg.
Kvenfélagið Eining - safn051
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd eru, frá vinstri: Bára þorvaldsdóttir, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Hómfríður Oddsdóttir og Gylfi Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson289
Frá afhjúpun minnisvarða um Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) fræðimann frá Syðra-Hóli. Á þessari mynd, sem tekin var 30. júlí 1989, á aldarafmæli fræðimannsins, afhjúpar Magnús Björnsson bóndi á Syðra Hóli, og afabarn hans, skjöld með mynd af afa sínum. Rúnar Kristjánsson fylgist með en hann var einn af forgöngumönnum þess að minnisvarðinn var reistur.
Kvenfélagið Eining - safn032
Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010) var ein ötulasta konan í kvenfélaginu Eining í fjölda mörg ár. Hér tekur hún til hendinni eftir einhverja uppákomu í Fellsborg.
Kvenfélagið Eining - safn002
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni eru frá vinstri: Steinunn Friðriksdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir (d. 15.12.1990), Jökulrós Grímsdóttir og Jón Jónsson (d. 9.7.1991)
Bjarni Jónsson 13
Mynd á jólakorti eftir Bjarna Jónsson, líklega frá 1990. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Selma P. Jónsdóttir 2
Selma P. Jónsdóttir gerði þetta jólakort af stúlku að steypa kerti. Líklega var myndin gerð 1985. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Kvenfélagið Eining - safn013
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni skemmta kvenfélagskonur með söng. Frá vinstri: Birna Blöndal (d.26.1018), Guðrún Sigurðardóttir, Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016), Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996), Elísabet Árnadóttir (Bebbý) (d.16.3.2017), Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011) og Hjördís Sigurðardóttir.
Ólafur Bernódusson473
Þessi mynd var sennilega tekin á aðventukvöldi í Hólaneskirkju í desember 1991. Á fremsta bekk er Jón Ingi Ragnarsson lengst til vinstri og Heiða Berglind Fannarsdóttir við hlið hans. Á bekk númer tvö er Bæring Skarphéðinsson lengst til hægri, Sverrir Berndsen er næstur, Sonja Berndsen og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), amma þeirra tveggja. Á þriðja bekk eru Jóney Gylfadóttir lengst til hægri, þá Vilborg Magnúsdóttir, Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) og Guðrún Hrólfsdóttir. Aftar má sjá m.a. Ásu Jóhannsdóttur, Ingunni Björnsdóttur og Önnu H. Aspar (d. 1.9.1999) lengst til vinstri.Hjónin Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) eru aftarlega fyrir miðri mynd. Aðrir eru óþekktir.
Kvenfélagið Eining - safn001
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni eru frá vinstri: Björk Axelsdóttir, Elíasbet Árnadóttir (Bebbý)(d.16.3.2017) og Birna Blöndal (d.26.10.2018) sem heldur ræðu.
Kvenfélagið Eining - safn034
Hér borða kvenfélagskonur úr Einingu í Kántrýbæ. Frá vinstri: Una Dagbjört Kristjánsdóttir og Anna H. Aspar (d. 1.9. 1999).
Ólafur Bernódusson441
Á Flippíþróttadegi Höfðaskóla keppa nemendur í óhefðbundnum greinum. Í desember 1990 var Flippíþróttadagurinn í Fellsborg þar sem þá var kennd leikfimi. Á þessari mynd er óþekktur keppandi í þrautabrautinni. Ingibergur Guðmundsson aðstoðarskólastjóri fylgist með og á gólfinu sitja, frá vinstri: Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Hafdís Ásgeirsdóttir, Börkur Hrafn Árnason og Þröstur Árnason. Aðrir eru óþekkktir.
Ólafur Bernódusson365
Á þessari mynd sem tekin var í desember 1989 er Signý Magnúsdóttir að hjálpa drengjunum sínum við piparkökubakstur í leikskólanum Barnabóli. Árni Halldór Eðvaðsson er til vinstri og Hilmar Árdal Eðvarðsson til hægri
Ólafur Bernódusson436
Á Flippíþróttadegi Höfðaskóla keppa nemendur í óhefðbundnum greinum. Í desember 1990 var Flippíþróttadagurinn í Fellsborg þar sem þá var kennd leikfimi. Farin var skrúðganga frá skólanum að félagsheimilinu og var þessi mynd tekin af nemendahópnum þegar þau lögðu af stað frá skólanum undir trumbuslætti.
Ólafur Bernódusson485
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu ásamt mökum til grillveislu framan við hótel Dagsbrún í júní 1992. Grillveislan var vel sótt enda var starfsfólk Hólaness margt á þessum árum.
Ólafur Bernódusson465
Á sjómannadeginum 1991 var farin "Karnival - skrúðganga" frá versluninni niður á höfn þar sem hátíðahöld dagsins fóru fram. Á þessari mynd er gangan að fara fram hjá þáverandi slökkvistöð, sem var í bragga, sem stóð við Strandgötu rétt austan við Lækjarbakka.
Kvenfélagið Eining - safn064
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Helga Guðmundsdóttir
Kvenfélagið Eining - safn082
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni eru fyrirsæturnar Hulda Magnúsdóttir til vinstri og Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir.
Bjarni Jónsson 51
Mynd af jólakorti eftir Bjarna Jónsson líklega frá árinu 1988. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson390
Tvær ungar stúlkur spila á þverflautur með kennara sínum Rosemary Hewlet á árshátíð Höfðaskóla í apríl 1990. Stúlkurnar eru frá vinstri: Álfheiður Guðmundsdóttir og Tinna Gunnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson446
Skíðadeild Fram starfaði af miklum krafti um árabil, sá um skíðalyftuna í Spákonufelli og byggði skíðaskálann. Eftir nokkur snjólítil ár lagðist starfsemin af og á sama tíma var byggð upp fyrsta flokks aðstaða í Tindastóli. Meðan skíðadeildin var og hét var hún með samning við jólasveinana, um dreifingu á jólapósti á Skagaströnd fyrir jólin. Samningurinn fól einnig í sér að félagar í skíðadeildinni tækju á móti póstinum fyrir sveinana dagana fyrir jólin. Á þessari mynd, sem tekin var á Þorláksmessu 1990, má sjá að jólasveinarnir hafa tekið fjórhjól í þjónustu sína við dreifinguna enda slík hjól tilvalin til fjallaferða og aðdrátta fyrir grýlu gömlu. .
Ólafur Bernódusson342
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd var tekin á æfingu. Á henni eru frá vinstri: Óskar Þór Óskarsson og Þorvaldur Skaftason.
Bjarni Jónsson 17
Mynd af sjómönnum að koma siglandi úr róðri. Bjarni Jónsson gerði myndina fyrir jólakort 1982. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Kvenfélagið Eining - safn056
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd er vistfólkið að njóta þess sem í boði var. Fremst á myndinni næst okkur er Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003). Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhverja á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson435
Á Flippíþróttadegi Höfðaskóla keppa nemendur í óhefðbundnum greinum. Í desember 1990 var Flippíþróttadagurinn í Fellsborg þar sem þá var kennd leikfimi. Á þessari mynd má m.a. sjá Bjarnhildi Níelsdóttur og Elísabet Eik Guðmundsdóttur lengst til vinstri. Elín Ósk Ómarsdóttir er fyrir miðri mynd og við hlið hennar, hægra megin, er Pétur Hinrik Herbertsson. Viðar Guðmundsson er strákurinn í köflóttu skyrtunni hægra megin við Pétur. Aftan við Pétur sitt hvoru megin sjást tvíburasysturnar Áslaug og Vilborg Jóhannsdætur.
Ólafur Bernódusson482
Guðbjörg Gylfadóttir fær hamingjuóskir frá Magnúsi B. Jónssyni sveitarstjóra á Skagaströnd eftir að hún hafði sett nýtt Íslandsmet í kúluvarpi kvenna. Íslandsmetið, sem var kast upp á 16.33 metra, setti hún 17. maí 1992. Metið stendur enn og er að verða eitt af elstu Íslandsmetunum. Myndin var tekin í júní 1992 á hótel Dagsbrún þar sem haldið var upp á afrek þessarar glæsilegu íþróttakonu með litlu kaffiboði. Í baksýn sér í Guðbjörgu Viggósdóttur en myndina tók Ólafur Bernódusson.
Kvenfélagið Eining - safn050
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd eru frá vinstri: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir og Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000).
Ólafur Bernódusson260
Í júlí 1988 stóð ungmennafélagið Fram fyrir ruslasöfnunarátaki. Gengu félagar Fram meðfram þjóðveginum milli Skagastrandar og Blönduóss og hirtu upp rusl á þeirri leið. Einnig voru gengnar fjörur við Skagaströnd. Að söfnunni lokinni var haldin grillveisla í skíðaskálanum og þar var þessi mynd tekin. Meðal fullorðinn á myndinni eru Guðrún Soffía Pétursdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Erna Hreinsdóttir og Elín Njálsdóttir sem er lengst til hægri á myndinni.
Ólafur Bernódusson471
Fermingarbörn 1991. Fremst til vinstri situr meðhjálparinn Steindór R. Haraldsson. Fermingarbörnin eru frá vinstri: Hjörtur Guðmundsson, Arnar Ólafur Viggósson, Viðar Guðmundsson, Jón Örn Stefánsson, Þóra Ágústsdóttir, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Bergþóra Guðjónsdóttir, Guðrún Björk Elísdóttir, séra Egill Hallgrímsson, Salóme Ýr Rúnarsdóttir, Halla Kristín Árnadóttir, Bjarnhildur Níelsdóttir, Ásta Ýr Ásgeirsdóttir, Þórunn Elfa Ævarsdóttir, Sigurður Berndsen, Ólaína Laufey Sveinsdóttir og Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir.
Bjarni Jónsson 52
Mynd af jólakorti eftir Bjarna Jónsson líklega frá árinu 1987. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Selma P. Jónsdóttir 20
Selma P. Jónsdóttir gerði þetta jólakort árið 1966. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Ólafur Bernódusson378
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu skemmtiatriða kvöldið fyrir þorrablót 1989. Frá vinstri: Fannar Viggósson, Ingibergur Guðmundsson Bergþór Gunnarsson, Ástmar Kári Ástmarsson, Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson, Dagný Sigmarsdóttir,Vigdís Viggósdóttir, Þórey Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Sigrún Jónsdóttir. Á þorrablótinu var einungis flutt frumsamið efni eftir fólkið á myndinni.
Ólafur Bernódusson373
Magnús B. Jónsson, oddviti Höfðahrepps, þakkar Elínborgu Jónsdóttur (d.7.1.2007), formanni ritnefndar vel unnin störf við útkomu bókarinnar: Byggðin undir Borginni, í desember 1989. Lárus Ægir Guðmundsson (með gleraugu) ritnefndarmaður og Bjarni Guðmarsson höfundur bókarinnar fylgjast með.
Þórdís Tryggvadóttir 2
"Ráðið ráðum sínum" er jólakort eftir Þórdísi Tryggvadóttur. Ekki er vitað hvenær hún gerði myndina. Þórdís Tryggvadóttir (14.12.1927 – 10.2.2012) stundaði myndlistarnám í Reykjavík og í Danmörku. Þórdís hélt sýningar bæði hérlendis og erlendis og myndskreytti fjöldan allan af bókum, einkum barnabækur. Jólakort voru eitt af því sem hún gerði og þetta er eitt sýnishorn af þeim.
Selma P. Jónsdóttir 5
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Ólafur Bernódusson395
Þessir þrír Bridgespilara voru gerðir að heiðursfélögum í Bridgeklúbbi Skagastrandar á Skagastrandarmóti í maí 1990. Allir höfðu þeir verið stofnfélagar klúbbsins og spiluðu á hans vegum í áratugi. Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) og Kristófer Árnason (d. 10.5.2000).
Kvenfélagið Eining - safn014
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni er Björk Axelsdóttir með mynd sem Guðmundur Haukur Sigurðsson afhenti kvenfélaginu að gjöf frá ungmennafélaginu Fram.
Kvenfélagið Eining - safn065
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Inga Matthíasdóttir.
Ólafur Bernódusson 524
M - kvöldvaka var haldin í Fellsborg 1. maí 1992. Hér var um menningarviðburð að ræða sem byggður var upp af mörgum atriðum frá heimamönnum. Húsfyllir var á kvöldvökunni og á þessari mynd eru leiknir ræningjarnir Jesper, Kasper og Jónatan úr Kardimommubænum. Frá vinstri: Ingólfur Bjarnason, Rúnar Jóhannsson, Jón Ingvar Valdimarsson og Fannar Viggósson
Kvenfélagið Eining - safn008
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni eru, við borðið nær okkur, frá vinstri: Óþekkt, Jökulrós Grímsdóttir, Steinunn Friðriksdóttir, Helga Guðmundsdóttir, óþekktur, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Sigurjón Ástmarsson og Eðvarð Hallgrímsson. Við borðið fjær okkur er Sævar Bjarnason lengst til hægri og Sigurbjörg Hjartardóttir (d.14.7.1985) við borðsendann.
Kvenfélagið Eining - safn007
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni eru hjónin Jökulrós Grímsdóttir og Sigurjón Ástmarsson.
Kvenfélagið Eining - safn026
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd syngur söngelsk fjölskylda fyrir vistmenn. Frá vinstri: Svava Steinsdóttir (d.8.12.2001), Svava Sigurðardóttir, Sigurður Bjarnason, Inga Lára Sigurðardóttir og Sigrún Lárusdóttir.
Ólafur Bernódusson338
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af leikstjóranum Guðjóni Inga Sigurðssyni var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Kvenfélagið Eining - safn054
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd syngja þeir dúett félagarnir Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) til vinstri og Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) til hægri. Undirleik á píanó annast Jane Sillar(d. 2017).
Ólafur Bernódusson375
Bjarni Guðmarsson höfundur bókarinnar: Byggðin undir Borginni, áritar bókina á útgáfudegi í desember 1989.
Kvenfélagið Eining - safn059
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd er vistfólkið að njóta þess sem í boði var. Fólkið er óþekkt en ef þú þekkir einhvern vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson381
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu á skemmtiatriðum kvöldið fyrir þorrablót í febrúar 1989. Í þessu atriði er líklega verið að gera grín að nýkeyptum sjúkrabíl til Skagastrandar. Annars voru skemmtiatriðin þetta ár látin gerast í frystihúsinu sem þá var í fullum rekstri og þar hafði nýlega verið tekin í notkun ný flæðilína. Þess vegna eru stúlkurnar á myndinni svona klæddar. Á myndinni eru frá vinstri: Vigdís Viggósdóttir, Þórey Jónsdóttir, Magnús B. Jónsson, í hjólbörunum að leika nafna sinn, Bergþór Gunnarsson og Sigrún Jónsdóttir.
Ólafur Bernódusson 514
Vorið 1993 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stálblóm eftir Robert Harling. Leikstjóri var Jónas Jónasson (d. 22.10.2011) sem var kunnur útvarpsmaður í áratugi. Á þessari mynd, sem var tekin á æfingu, eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Birna Blöndal, Guðný Sigurðardóttir, Lovísa Stefánsdóttir og Jensína Lýðsdóttir.
1
…
26
27
28
…
104
Leita í myndasafninu
Leita