Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Atburðir

Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
guðmundur188
Íþróttamót í gangi á túni. Hinn ungi keppandi er óþekktur.
fram074

Verðlaunaafhending á Bakkakotsvelli 1999. Óþekktur til vinstri en Eyþór Kári Egilsson til hægri.

Guðmundur131
Fjöldasöngur á þorrablóti í Fellsborg. Fjórar konur leiða sönginn við undirleik Þorvaldar Skaftasonar.
fram001
Karl Lúðvíksson heldur ræðu á samkomu umf Fram á Hótel Dagsbrún í júlí 1990. Tilefnið er óþekkt.
Jón096
Skólaskemtun í Höfðaskóla 1984. Ingvar Þór Jónsson á trommum, Þorbjörg Eðvarðsdóttir syngur og Viggó Magnússon spilar á bassa. Hans Birgir Högnason fylgist með.
Jón054
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Á myndinni eru frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Halla Lýðsdóttir og Ari Þórsson með barn í fanginu. Konan til hægri er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón039
Ernst K. Berndsen skammtar skötu og meðlæti á disk fyrir Fjólu Jónsdóttur í árlegri Þorláksdags-skötuveislu togaraútgerðarinnar á Skagaströnd í Fellsborg. Rúnar Loftsson í baksýn.
fram004
Halldór Hermannsson verslunarstjóri sem var í forystu íþróttamála á Skagaströnd í kringum 1990 sem formaður Umf Fram. Á myndinni flytur hann ræðu í samkvæmi á Hótel Dagsbrúna.
fram026
Fjöldi manns kemur til að fylgjast með og/eða taka þátt í víðavangshlaupi. Myndin tekin ca 1985.
Guðmundur063
Fermingarbörn ganga til kirkju með prestinum. Húsið í baksýn er Ásgarður
Guðmundur120
Frá vinstri: Hulda Árnadóttir, Kristján Hjartarson, Ingvar jónsson í Sólheimum, sr. Oddur Einarsson og Guðmundur Guðnason. Bak við Huldu sér í grátt hár Friðjóns Guðmundssonar, manns hennar.
Jón093
Gluggaskraut í vesturgluggum Höfðaskóla jólin 1984.

Jón041
Skagatrandarhöfn á sjómannadegi 1985.
Jón037
Sjómannadagur 1983. Guðmundur Haukur Sigurðsson stjórnar leikfimiæfingum nokkurra manna sem eru uppáklæddir í samræmi við tilefnið. Lárus Ægir Guðmundsson kynnir fylgist með úr ræðustól um borð í Örvari Hu 21
Óþekkt033
Handagangur í öskjunni á útimarkaði við Kántrýbæ.
Guðmundur150
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996). Til vinstri sér í Báru Þorvaldsdóttur. Myndin var tekin í Fellsborg við óþekkt tilefni.
fram125
Héraðsmót USAH 1977 á Skagaströnd. 100m undanrásir, frá vinstri: Hafsteinn, Ingi og Kristinn.
Jón048
Á fyrstu Kánatrýhátíðinni 1985. Anna Sjöfn Jónasdóttir hefur samskipti við grímubúinn riddara. Lengst til hægri er Árni Guðbjartsson.
fram134
Héraðsmót USAH 1977 á Skagaströnd. Lára Guðmundsdóttir kastar kringlu eða kúlu.
Óþekkt034
Útimarkaður við Kántrýbæ - eldri.
Óþekkt032
Á myndinni má þekkja Sigrúnu Lárusdóttur í rauðum kuldagalla lengst til vinstri. Guðrún Pálsdóttir er í grænum anorak með svartan trefil um hálsinn. Sólveig Eiðsdóttir er svo konan í kuldúlpunni með derhúfu á höfðinu
Jón014
Tjaldsvæðið á Kántrýhátíð
guðmundur167

Þessi mynd, þar sem allir eru í sparifötunum sínum, var tekin í 10 ára afmæli Fjólu Jónsdóttur í Asparlundi 10. nóvember árið 1957. í Aftari röð eru frá vinstri: Pálfríður Benjamínsdóttir í Skálholti, Ingibjörg Kristinsdóttir úr Héðinshöfða og Helga Guðmundsdóttir Hólabraut 25. Í fremri röð eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson úr Asparlundi, bróðir Fjólu, afmælisbarnið sjálft, Fjóla Jónsdóttir, sem situr með bróður þeirra, Gunnar Jónsson. Þá kemur Guðbjörg Þorbjörnsdóttir í Akurgerði og lengst til hægri er Sóley Benjamínsdóttir systir Pálfríðar í efri röðinni.
fram002
Fundur umf Fram á hótel Dagsbrún í júlí 1990. Stúlkan í bláa jakkanum er Soffía Lárusdóttir en fyrir aftan hana sér í Guðný Finnsdóttur. Stúlkan í forgrunninum er Erla María Lárusdóttir, maðurinn í bleiku skyrtunni er Vilhelm Jónsson og á móti honum situr Karl Lúðvíksson. Maðurinn í dökka jakkanum lengst til hægri er Halldór Hermannsson. Aðrir eru óþekktir.
fram118
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. 800m hlaup stelpna. Birna Sveinsdóttir umf. Fram til vinstri.
fram009
Magnús Ólafsson formaður USAH tekur í höndina á Ingibergi Guðmundssyni (til hægri). Þingfulltrúinn Ingibjörg Kristinsdóttir situr til hægri.
Jón046
Kappróður á sjómannadegi 1985
fram053
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Baksund kvenna. Guðrún Pálsdóttir er nær okkur á myndinni.
Jón083
Hér er Hallgrímur Oddsson kynnir á litlu jólum í Höfðaskóla 1984. Hann er í fínu peysunni sem hann sjálfur saumaði í handavinnu. Þór Arason og Karl Lúðvíksson kennarar sjást til vinstri.
fram018
Lárus Ægir Guðmundsson með verðlaunabikar
Jón104
Jólapósturinn borinn út 1989. Félagar í Skíðadeild Fram báru út jólapóst fyrir jólasveinana í mörg ár. Síðan tók skólafélagið Rán við keflinu. Ávallt fengu jólasveinarnir mikla hjálp frá yngri kynslóðinni við útburðinn.
guðmundur230
Húni Hu 1 fánum prýddur við hafnargarðinn (Útgarð). E.t.v. var myndin tekin þegar Húni kom í fyrsta sinn til heimahafnar?
Óþekkt035
Útimarkaður við Kántrýbæ eldri.
guðmundur233
1. maí skemmtun í Tunnunni 1957. Mikið um að vera á sviðinu fyrir framan troðfullt hús. Fólkið á myndinni er óþekkt.
guðmundur232
1. maí skemmtun 1957 í Tunnunni. Óþekktir menn skemmta fyrir troðfullu húsi. Líklega eru þeir félagar í einhverjum karlakór sem komið hefur í heimsókn til Skagastrandar.
Jón050
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Húsbíll úr tveimur mismunandi gerðum af Volkswagen sem hafa verið settir saman á hugvitsamlegan hátt.
fram021
Verðlaunaafhending að loknu víðavangshlaupi Landsbankans á Skagaströnd. Flemming Jessen skólastjóri á Hvammstanga er maðurinn með sólgleraugun, Róbert Þórðarson útibússtjóri í rauðri peysu og þorbjörg Magnúsdóttir starfsmaður bankans heldur á umslaginu og Elín Njálsdóttir starfsmaður bankans er til hægri og fylgist með. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin tekin ca 1985.
guðmundur220
Bernódus Ólafsson stjórnar grímuballi í gömlu Tunnunni.
fram016
Sigríður Gestsdóttir með bikar í hönd eftir unnin afrek á íþróttavellinum. Myndin var tekin í Fellsborg en ekki er vitað hvenær.
guðmundur187

Myndin er tekin á hafnarsvæðinu á sjómannadegi þar sem einhver leikur er í gangi.

guðmundur231

Þessi mynd er tekin við heimkomu Húna HU 1 til Skagastrandar í september 1957. Húni var 75 Brl og með fyrstu stálskipum sem smíðuð voru í Austur Þýskalandi fyrir Íslendinga.
Jón038
Kaffiveisla í Skátaskálanum. Fólkið á myndinni er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón006
Á sjómannadegi 1985. Frá vinstri eru: Séra Oddur Einarsson, Gylfi Sigurðsson, Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986), Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) og Svanur Árnason. Haraldur og Guðbjartur eru með ný fengin heiðursmerki sjómannadagsins í barminum.
Jón016
Tjaldsvæði sunnan og ofan við íþróttavöllinn á Kántrýhátíð.
Jón108
Tískusýning í Kaupfélaginu 1986. Sýnd voru föt sem voru til sölu í versluninni. Sviðið er plata sem lögð var ofan á frysti verslunarinnar og eins og sjá má kom fjölmenni til að fylgjast með sýningunni. Verslunastjóri á þessum tíma var Jón Jónsson. Stúlkurnar á myndinni eru óþekktar.
guðmundur217
Hátíðahöld á Akureyri af ókunnu tilefni á óþekktum tíma.
fram069

Ef þú þekkir þessi börn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Myndin var tekin á einhverju íþróttamóti.

Jón008
Gospelmessa á Hnappstaðatúni á einhverri af fyrstu Kántrýhátíðunum.
Jón005
Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986) og Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) ganga frá borði á Örvari Hu 21 eftir að hafa verið heiðraðir á sjómannadegi 1985
fram049
Frjálsar iþróttir, innanhús, Íslandsmeistaramót í febrúar 1977. Fannar Viggósson svífur yfir rána í hástökki.
fram082

Verðlaunaafhending á héraðsmóti á Bakkakotsvelli 1999. Frá vinstri: Þorbjörg Magnúsdóttir Fram, Sigríður Gestsdóttir Fram og Jónína Guðbjartsdóttir Hvöt.

fram029
Helgi Þór Helgason kúluvarpari með verðlaunbikar árið 1990.
fram005
Fundur umf Fram á hótel Dagsbrún í júlí 1990. Ingibergur Guðmundsson heldur ræðu. Systurnar Soffía (í bláum jakka) og Erla María Lárusdætur sitja við borðið framan við Ingiberg. Í baksýn eru frá vinstri: Jóhanna Harðardóttir, Vilborg Magnúsdóttir, Soffía Guðmundsdóttir, Rakel Petrea Finnsdóttir og Sigríður Gestsdóttir. Særún Jónsdóttir snýr baki í ljósmyndarann.
fram020
Víðavangshlaup Landsbankans haldið á Skagaströnd. Krakkarnir tilbúnir að þjóta af stað. Frá vinstri: Óþekkt, Jónas Þorvaldsson, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Soffía Lárusdóttir, óþekkt, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, tvær óþekktar, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Dia Anna). Aðrir eru óþekktir. Myndin tekin ca 1985.
Mundi239
Frá vinstri: Þórir Ágústsson (d.24.9.2000), Andrés Árni Baldursson, Sigurður Bjarnason í hvítri skyrtu með slaufu, Gylfi Jóhannsson, Fritz Bjarnason og Búi Birgisson (d.18.9.2009). Aftast grillir í tvo jólasveina. Aðrir eru óþekktir.
Jón035
Sjómannadagur 1983. Einhver skemmtiatriði í gangi. Fremstur á myndinni er Guðmundur Haukur Sigurðsson í stuttbuxum úr breska fánanum.
fram081

Verðlaunaafhending á héraðsmóti á Bakkakotsvelli 1999. Frá vinstri: Garðar Geirfinnsson, Ingvar Björnsson og óþekktur.

fram117
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. 100m hlaup stelpna. Guðbjörg Gylfadóttir umf. Fram í miðjunni.
fram095

Þátttakendur í einum flokki í víðavangshlaupi umf. Fram. Á myndinni eru, frá vinstri: Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, óþekktur, óþekktur, Þorlákur Guðjónsson, Steinþór Karlsson og Jónas Þorvaldsson. Myndin var tekin snemma á níunda áratugnum

fram064
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Hvöt vann mótið og hér tekur Þórður Daði Njálsson við bikarnum úr höndum Ingibergs Guðmundssonar, að auk var hann stigahæstur karla á mótinu.
1
2
3
4
5

104
Leita í myndasafninu
Leita