Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson561
Sigrún Jónsdóttir sýnir hér peysu sem var framleidd í prjóna- og saumastofunni Violu á Skagaströnd, sem rekin var í allmörg ár á efstu hæðinni í gamla kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1985.
Jón Jónsson348
Skíðagarpar með páskaeggja-verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Páll Jónsson, Þórarinn Þórsson, Guðjón Árnason og Viggó Magnússon.
Skagaströnd - safn182
Þessir hlaupagarpar hlupu frá Fargranesi í Langadal niður að vegamótum Skagastrandarvegar 22. júní 1991. Tilefnið var landshlaup FRÍ þar sem hlaupið var hringinn í kringum landið af félögum í ungmennafélögunum. Frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Hrólfur Pétursson, Baldur Magnússon, Atli Þórsson, Þorvaldur Skaftason, Magnús B. Jónsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir.
Jón Jónsson302
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á þessari mynd eru Gunnlaugur Árnason á Karlsskála til vinstri og Pétur Jóhannson frá Lækjarbakka til hægri.
Jón Jónsson337
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Hugrún Pálsdóttir, óþekkt og Soffía Lárusdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson311
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni eru frá vinstri: Vilhelm Harðarson, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Ragnheiður Hafsteinsdóttir og Ása Jóhannsdóttir.
Jón Jónsson330
Þessi friðsæla mynd var tekin einhverntíma á sjómannadegi yfir höfnina á Skagaströnd. Togarar Skagstrendings hf Arnar Hu 1 til vinstri og Örvar Hu 21 fánum prýddir en framan við Öravr sér í Helgu Björg Hu 7. Aftan við Arnar er annar kappróðrabátanna.
Jón Jónsson257
7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd, sem tekin var á frumsýningarkvöldinu, eru höfundarnir og leikstjórinn með leikurunum á sviðinu. Allir í salnum sungu þá saman "Síldin kemur og síldin fer". Talið frá vinstri: Birna Blöndal, Ólafur Bernódusson, Þröstur Guðbjartsson leikstjóri, tveir óþekktir, Iðunn Steinsdóttir höfundur, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Hendrik Berndsen, Kristín Steinsdóttir höfundur, Viggó Magnússon, Steindór Haraldsson og Magnús B. Jónsson.
Skagaströnd - safn172
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á þessari mynd eru frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Helga Jóhannesdóttir, Adolf J. Berndsen oddviti og Sólveig Róarsdóttir.
Jón Jónsson259
7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd er Ingimar Oddsson í hlutverki sínu.
Jón Jónsson344
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Viggó Magnússon og Jón Arnarson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn173
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Fremst á myndinni eru frá vinstri: Jónína Valdimarsdóttir frá Kárastöðum og Rósa Pálsdóttir (d.1.5.2002) frá Bjargi. Yfir öxl Jónínu sést Elínborg Guðmundsdóttir (d. 8.4.2005) og Helga Daníelsdóttir (d. 17.1.2013) situr gegnt henni við borðið. Aftan við Rósu situr Þóra Sigurgeirsdóttir (d. 9.5.1999).
Jón Jónsson242
Þessi mynd var tekin á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg 1985. Á myndinni situr Signý Richter með dóttur sína Maríu Markovic í fanginu. Hjá þeim situr Lísebet Gestsdóttir frá Brandaskarði.
104-0428_IMG
Leikskólinn Barnaból varð 25 ára 2002. Blásið var til afmælisveislu 8. júní um sumarið og þá tók Ólafur Bernódusson þessa mynd. Á henni eru gestir og nemendur leikskólans að bíða eftir að fá grillaða pylsu hjá starfsfólki leikskólans.
Skagaströnd - safn344
Myndin var tekin á sjómannadegi af sigursveit kvenna í kappróðri eftir verðlaunaafhendingu. Efst stendur Þorvaldur Skaftason stýrimaður sveitarinnar þá Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Hugrún Pálsdóttir, Erna Högnadóttir, Drífa Kristjánsdóttir og Gígja Óskarsdóttir.
Jón Jónsson319
Hátíðahöld sjómannadagsins 1988 fóru fram á planinu austan við verksmiðjuna. Á þessari mynd eru skemmtiatriði í gangi. Páll Leó Jónsson skólastjóri til vinstri og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) bæjarverkstjóri til hægri mata hvorn annan á jógúrt.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn059
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason, í Fellsborg í febrúar 1988. Þessi mynd var tekin á æfingu af þeim Sigrúnu Jónsdóttur til vinstri og Hallveigu Ingimarsdóttur til hægri í hlutverkum sínum.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn010
Myndin var tekin á einhverri skemmtun á vegum Höfðaskóla. Á sviðinu eru frá vinstri: tvær óþekktar stúlkur, Magnús B. Jónsson, Lilja Ingólfsdóttir, Helga Bergsdóttir, Sverrir Berndsen, Bæring Skarphéðinsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson304
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni er Jóhann D. Baldvinsson (d. 9.4.1990) eða Jói norski í veislunni. Árið 1972 kom út ævisaga Jóhanns eftir Erling Davíðsson.
umf Fram 341
Verðlaunahafar í víðavangshlaupi Fram - vorhlaupi - á óþekktum tíma. Frá vinstri: Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttirt, Kristjana Jónsdóttir og Jóney Gylfadóttir.
Jón Jónsson249
Þessi mynd var tekin á árshátíð Höfðaskóla sennilega árið 1987. Þá sýndi hópur nemenda fimleika undir stjórn Ingu Matthíasdóttur íþróttakennara. Á myndinni eru frá vinstri: Inga Matthíasdóttir íþróttakennari, Skúli Tómas Hjartarson, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Guðbjörg Kristmundsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, tvíburasysturnar Áslaug og Vilborg Jóhannsdætur, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Guðný Finnsdóttir og Auðna Ýr Oddsdóttir.
umf Fram 332
Síðaskálinn var vígður 1985 með almennri kaffiveislu. Á þessari mynd, sem tekin var í veislunni eru frá vinstri við borðið næst okkur: Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989), Jónína Valdimarsdóttir, Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Jón Ingi Ingvarsson og Gunnar Borg Jónsson. Við borðið aftan við þau má m.a. sjá Viggó Brynjólfsson og Helga Gunnarsson. Aðrir eru óþekktir.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn009
Fermingarbörn frá 23. maí 1999 í Hólaneskirkju. Fremri röð frá vinstri: Anna Dúna Rúnarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Tinna Björk Gunnarsdóttir og Eva Dögg Bergþórsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Eva Rún Rúnarsdóttir, Birna Sæmundsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, séra Guðmundur Karl Brynjarsson, Elva Ösp Gunnarsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir, Daníel Guðmundsson.
Jón Jónsson316
Hátíðahöld sjómannadagsins 1988 fóru fram á planinu austan við verksmiðjuna. Á þessari mynd eru þáverandi hjón William og Jane Sillar. Jane var kennari við tónlistarskóla A-Hún og organisti í Hólaneskirkju en William vann ýmis störf meðan þau hjón dvöldu á Skagaströnd. Til hægri á myndinni er Lárus Ægir Guðmundsson en til vinstri er dóttir hans Soffía Lárusdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn338
Eftir að nýja Hólaneskirkja hafði verið vígð 21. október 1991 var haldið kaffisamsæti í Fellsborg og þar var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Steinunn Steinþórsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Guðmundur Sigvaldason (nær), Gunnlaugur Sigmarsson (fjær), óþekkt kona, Baldur Haraldsson, Torfhildur Stefánsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og María Alexandersdóttir.
Jón Jónsson343
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Kristjana Jónsdóttir frá Brandaskarði, Áslaug Gunnarsdóttir og Hafdís Þorvaldsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 366
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Dagný Sigmarsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Kristján Blöndal og Kristín Jónsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn209
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Guðjón Inga Sigurðsson sem leikstýrði leikritinu: Láttu ekki deigan síga Guðmundur fyrir Leikklúbbinn leikárið 1989 - 1990.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn111
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Guðbjörgu Viggósdóttur sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins auk þess að vera starfsmaður við nokkrar þeirra sem sminka og hárgreiðslukona.
Jón Jónsson290
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Þorbjörg Magnúsdóttir, Steinunn Friðriksdóttir og María Magnúsdóttir.
Jón Jónsson255
7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd er Þórey Jónsdóttir í hlutverki sínu.
Jón Jónsson287
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, eru frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir og Karl Berndsen (d. 12.2.1995)
Jón Jónsson303
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Þessir ungu menn voru meðal þeirra sem komu til að líta á forsetann og fá að taka í hönd hennar. Frá vinstri: Jón Arnarsson, Viggó Magnússon, Guðbjartur Sævarsson, Arnar Erlingsson og Baldur Magnússon.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn006
Þessi mynd var sennilega tekin í fermingarveislu frændanna á myndinni vorið 2002. Guðjón Ebbi Sigtryggsson er afi strákanna en þeir eru frá vinstri: Ívar Gylfason, Óðinn Örn Sævarsson og Kristján Pétur Guðjónsson.
umf Fram 340
Verðlaunahafar í víðavangshlaupi Fram - vorhlaupi - á óþekktum tíma. Frá vinstri: Þorsteinn Styrmir Jónsson, Erlingur Ottósson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 451
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson leiðir fermingarbörn til kirkju fyrir fermingu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1950. Fermingarkrakkarnir eru óþekkt. Húsið til vinstri á myndinni er Iðavellir en innst með fjörunni sér í Óseyri og Bráðræði. Milli aftasta og næst aftasta fermingardrengsins sér í Rjúpnafell en yfir höfuð næst fremstu stúlkunnar sér í Konnabæinn (Garðhús). Dagsbrún er svo húsið sem sést bak við prestinn. Öll eru þessi hús horfin í dag nema Iðavellir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamleag sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson309
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni eru hjónin Steindór Haraldsson og Ingibjörg Björgvinsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn032
<p>Leikárið 1979 - 1980 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Gísl í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6.2009). Þetta var fjölmenn sýning og vel heppnuð sem var sýnd á Fellsborg og nágrannabyggðunum ásamt því að farið var með verkið suður á land og það sýnt í félagsheimili Seltjarnarness. Á myndinni leikarar og starfsfólk sýningarinnar eftir æfingu í Fellsborg. Fremsta röð frá vinstri: Viggó Brynjólfsson, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Magnús B. Jónsson, Ragnhildur Steingrímsdóttir leikstjóri, Guðmundur Haukur Sigurðsson og Gunnar Benónýsson (d. 29. 7.2003). Næsta röð frá vinstri: Árni Geir Ingvarsson, Elín Njálsdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir. Þriðja röð frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Einar Helgason, Rúnar Loftsson, Hjörtur Guðbjartsson, Ólafur Bernódusson, Ingibergur Guðmundsson og Bernódus Ólafsson. Fjórða röð frá vinstri: Hallveig Ingimarsdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir. Þar fyrir ofan frá vinstri: Birna Blöndal, Hjörtur Guðmundsson og Hallbjörn Hjartarson. Myndina tók Jónas Baldursson.
Jón Jónsson291
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, blandar Hallbjörn Hjartarson drykki fyrir gesti sem kona hans Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012) ber fram. Milli þeirra stendur Sólveig Róarsdóttir.
Jón Jónsson297
Þessi mynd var tekin á sjómannadegi líklega 1988. Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri er til vinstri en í barminum ber hann heiðurskross sjómannadagsins, sem hann var sæmdur þennan dag. Við hlið Björns er Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) en þeir tveir voru vinir og samherjar í mörgu í daglegu lífi.
Skagaströnd - safn085
Örvar Hu 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 7. apríl 1982. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip og eftir það var haldið hóf í Fellsborg þar sem ræður voru fluttar og skálað fyrir skipinu. Á þessari mynd er fólk að hlusta á einhvern ræðumann. Frá vinstri: Eiður Hilmarsson, Sævar Bjarnason, Stefán Jónsson (d. 29.6.2009), Sigríður Höskuldsdóttir (d. ?), Bergljót Óskarsdóttir (d. 22.2.2004) og Hjalti Skaftason.
Árni Geir Ingvarson - safn 362
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Fannar Viggósson, Ástmar Kári Ástmarsson, Sigrún Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Kristín Jónsdóttir.
Jón Jónsson243
Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, eru þeir Sveinn Ingólfsson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri að hlaupa í Langadalnum með logandi kyndil. Hlaupið var með kyndilinn hringinn í kringum landið líklega vegna baráttunnar fyrir friði í heiminum. Hlaupararnir komu úr hinum ýmsu íþróttafélögum um allt land en Sveinn og Magnús mættu fyrir hönd USAH ásamt fleiri hlaupurum.
Jón Jónsson231
Þessi mynd var tekin í Hólaneskirkju eldri 17. júní 1988. Þá voru liðin 60 ár frá vígslu kirkjunnar. Til messunnar mættu fjögur fermingarsystkin sem fermd voru á vígsludeginum 17. júní 1928. þau eru frá vinstri: Guðmann Einar Magnússon (d. 22.11.2000) frá Vindhæli, Henrietta Berndsen (d. 15.2.1998), Sigríður Fanný Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) frá Lækjarbakka og Guðmunda Pétursdóttir (d. 2.2.2001) frá Lækjarbakka. Prestarnir séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) til vinstri og séra Ægir Fr. Sigurgeirsson standa aftan við fermingarsystkinin.
Jón Jónsson300
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni eru standandi þeir Rafn Sigurbjörnsson frá Örlygsstöðum 2 til vinstri og Sveinn Sveinsson Tjörn til hægri. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011), Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993), Salóme Jóna Þórarinsdóttir, frú Vigdís Finnbogadóttir og Vilhjálmur Skaftason. Fyrir aftan Vilhjálm spjalla saman þeir Kári Lárusson til vinstri og Jón Benediktsson (d. 30.12.2002) Höfnum til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
umf Fram 331
Ekki er vitað hvenær þesi mynd var tekin en það var gert á íþróttavellinum á Skagaströnd. Á henni er verið að afhenda þeim Soffíu Guðmundsdóttur; Birnu Sveinsdóttur og Hallbjörgu Jónsdóttur (talið frá vinstri) verðlaun fyrir unnin afrek á vellinum.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn154
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Hallveig Ingimarsdóttir, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006) og Þorvaldur Skaftason.
Séra Pétur og Dómhildur - safn176
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Á myndinni er Jóhanna Jónasdóttir frá Höfðatúni. Bak við hana sér í Þórð Jónsson (d. 25.12.2009) og Bergþóru Kristjánsdóttur (d. 9.11.2011). Aðrir á myndinni eru óþekktir
Jón Jónsson253
<p>7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum talið frá vinstri: Birna Blöndal, William Sillar, óþekktur, Ingimar Oddsson, Steindór Haraldsson, Bergþór Gunnarsson, Ástmar Kári Ástmarsson og Hendrik Berndsen. </p>
Leikklúbbur Skagastrandar - safn095
Leikarar í Ástin sigrar gera sig klára í eldhúsinu í Fellsborg fyrir sýningu þar. Leikklúbburinn setti verkið á fjalirnar árið 1990 undir leikstjórn Harðar Torfasonar. Á þessari mynd eru frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, óþekkt (?Sigrún Jónsdóttir?) að greiða sér. Anna Sjöfn Jónasdóttir málar einhvern leikara sem ekki sést fyrir William Sillar í hvítri skyrtu. Jane Sillar er aftan við mann sinn í rauðri peysu en skeggjaði maðurinn sem Guðbjörg Viggósdóttir er að gera klárann er Þorvaldur Skaftason. Óskar Þór Óskarsson stendur en stúlkan við dyrnar er óþekkt.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn002
<p>Barnaafmæli á Suðuvegi 9 sennilega vegna afmælis Kristjáns Péturs Guðjónssonar. Hann á afmæli í september þannig að myndin hefur sennilega verið tekin í þeim mánuði einhverntíma á árunum 1997 -1999. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Atli Magnússon, Arnór Snorri Gíslason, Hanna Gylfadóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Óðinn Sævarsson, Sindri Njáll Hafþórsson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Sindri Jóelsson og Ívar Gylfason.</p>
Guðmundur Guðnason257
Myndin var tekin á skíðamóti við togbrautina í Spákonufelli einhverntíma á árunum 174 - 1978. Á myndinni grúfa keppendur sig yfir blað með árangri sínum. Fremst á myndinni til vinstri rennir Jóhannes Sveinsson sér en aðrir á myndinni eru frá vinstri: Jón Pálssson með myndavél, Páll Jónsson og Rannveig Jónsdóttir. Lengst til hægri sér í Þórarinn Eiðsson (d. 14.6.2002). Aðrir eru óþekktir.
Jón Jónsson307
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni eru þau saman við kaffiborðið Adolf J. Berndsen þáverandi oddviti Höfðahrepps og frú Vigdís Finnbogadóttir forseti.
umf Fram 311
Þessir ungu drengir halda á viðurkenningarskjölum sem þeir unnu sér inn með sigrum í einhverri íþrótt - líklega víðavangshlaupi árið 1982. Frá vinstri: Guðmundur Henry Stefánsson, Brynjar Pétursson og Arnar Haukur Ómarsson.
Guðmundur Guðnason 2 495
Fermingarbörn í Hólaneskirkju (eldri) árið 1982 ásamt prestinum séra Oddi Einarssyni. Fremri röð frá vinstri: Ársæll Ottósson, Ingimar Oddsson, Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Sigurbjörn Kristjánsson, Jón Hilmar Indriðason og Guðmundur Óskarsson. Aftari röð frá vinstri: Árni Jón Guðmundsson (d. 8.1.2006), Kristín Karlsdóttir, séra Oddur, Guðmunda Ólafsdóttir og Þórarinn Brynjar Ingvarsson.
Guðmundur Guðnason 2 388
Í nokkur ár kringum 1980 var komið á Norrænni fjölskylduskíðakeppni. Hún fólst í því að hver sem var gekk á skíðum ákveðna vegalengd og fyllti út eyðublað fyrir hverja ferð. Þátttakendur gátu svo fengið barmmerki, kopar, silfur og gulllituð eftir að hafa gengið ákveðið margar ferðir. Ferðirnar voru síðan taldar saman hjá öllum þátttakendum á landinu og svo var fjöldi ferða borinn saman við höfðatölu í hverju landi fyrir sig og það norðurlandanna sem hafði hæsta hlutfallið stóð uppi sem sigurvegari. Á myndinni er ?Vilborg Másdóttir? að ganga eina ferð á merktri braut sem lá meðfram Hólabergjunum og síðan niður með Vetrarbraut og út undir Réttarholt eftir skurðunum og svo meðfram Höfðanum og upp með Vetrarbrautinni til baka. Gaman er að skoða baksvið þessarar myndar, sem er efsti hluti Hólabrautar og Fellsbrautar, því þar hafa götumyndirnar breyst mikið síðan þessi mynd var tekin. Ef þú getur staðfest að það sé Vilborg sem er á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson347
Skíðagarpar með páskaeggja-verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Friðrik Birgisson, Brynjar Pétursson, Sigríður Einarsdóttir skíðakennari og Skúli Tómas Hjartarson.
Barnaból - safn051
<p>Myndin var tekin í leikskólanum Barnaból 21.8.1996 á afmælisdegi Gunnars Más Sæmundssonar, sem situr við borðsendann með bláa kórónu. Næst okkur til vinstri er Alexander Ragnarsson. Hægra megin við borðið talið frá Gunnari: Patrik Snær Bjarnason, Guðjón Örn Arason, Aðalheiður Ragnarsdóttir, Jóhann Stefánsson, Hafrún Eva Kristjánsdóttir og Sævar Tryggvason. Önnur börn á myndinni eru óþekkt en ef þú þekkir eitthvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athuagsemd. </p>
Jón Jónsson350
Skíðaskálinn í Spákonufelli var byggður af skíðaáhugafólki og var vígður 1985. Í vígslukaffi mætti fjöldi manns til að skoða skálann og gleðjast með skíðamönnum. Á þessari mynd, sem tekin var uppi á svefnloftinu, eru frá vinstri: Elísabet G. Kristjánsdóttir (d. 21.3.1991), Sigurjón Guðbjartsson með son sinn Jóhann Guðbjart Sigurjónsson, Guðmundur Jóhannesson, Gunnar Helgason (d. 19.10.2007) og Benóný Gunnarsson.
Ólafur Bernódusson 672
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd eru frá hægri: Hallbjörg Jónsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Líney Árnadóttir þáverandi forstöðumaður greiðslustofunnar. Hinar konurnar á myndinni eru óþekktar.
1
…
35
36
37
…
104
Leita í myndasafninu
Leita