Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 026
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það hefur líklega verið kringum 1980. Á henni eru nokkrar starfskonur Hólaness hf að æfa söng við undirleik Þorsteins Jakobssonar á harmoniku fyrir árshátíð fyrirtækisins. konurnar eru frá vinstri: Anna Skaftadóttir, Elísabet G. Kristjánsdóttir (d.21.3.1991), Guðrún Jónsdóttir (d.?), óþekkt kona, Kristín Jónsdóttir, Sólveig Róarsdóttir, Lilja Kristinsdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Svava Svavarsdóttir og Kristín Karlsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 140
Þessi fjárflutningabíll með þessum langa palli var í eigu Harðar Ragnarssonar. Á myndinni er bíllinn við Spákonufellsrétt en hjá bílnum er kona Harðar, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir með börn þeirra, Vilhelm Björn Harðarson, sem er að klifra í stiganum, og Pálínu Freyju Harðardóttur. Myndin var líklega tekin kringum 1970.
Ólafur Bernódusson813
27. desember 2008 var haldin kvöldskemmtun í Kántrýbæ með alls konar uppákomum. Meðal annars tóku þessir gömlu spilafélagar nokkur lög fyrir gesti. Fannar Viggósson er lengst til vinstri með bassa, Viggó Brynjólfsson faðir hans þenur nikkuna og Hjörtur Guðbjartsson spilar á gítar lengst til hægri. Í baksýn má sjá Jón Ólaf Sigurjónsson sem var einn þeirra sem stóð fyrir skemmtuninni.
Helga Berndsen 087
Myndin var tekin vorið 1995 í fermingarveislu. Til vinstri er Gísli Snorrason en hægra megin er Gunnlaugur Árnason (d. 14.9.2016)
Helga Berndsen 100
Líklega var þessi mynd tekin í barnaafmæli á Karlsskála einhverntíma krinhgum 1968. Frá vinstri á myndinni eru: Helga Berndsen, Laufey Berndsen, Karl Berndsen, Sigríður Birna Björnsdóttir?, Guðrún Einarsdóttir, Guðrún Björg Berndsen, Ernst Berndsen, Steinunn Berndsen og Adolf H. Berndsen.
Ingibergur Guðmundsson 226
Fyrr á árum voru héraðsmót USAH alltaf haldin á túninu við Kvennaskólann á Blönduósi. Þessi mynd var tekin 17. júní 1951 á einu af þessum héraðsmótum. Á þessari mynd stekkur Ægir Einarsson (d.3.1.2002) úr Fram á Skagaströnd þrístökk. Aðrir á myndinni eru óþekktir. (Heimild: Húnavaka 28. árg. 1988)
Helga Berndsen 035
Myndin var tekin 19. janúar 1960 í eins árs afmæli Adolfs H. Berndsen. Á myndinni eru frá vinstri: Helga Berndsen með dóttur sína Guðrúnu Einarsdóttur, Hjördís Sigurðardóttir með son sinn og afmælisbarn dagsins Adolf H. Berndsen, Karla Helgadóttir (d.25.9.1986), Guðrún Helgadóttir (d.15.4.1987) amma barnanna á myndinni og Fríða Hafsteinsdóttir með dóttur sína Laufey Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 282
Fundur hjá Lionklúbbi Skagastrandar 21. desember 2011. Frá vinstri: Guðjón Guðjónsson og Árni Ólafur Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson719
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Egill Örn Ingibergsson, Sæunn Ósk Steingrímsdóttir, Páll Halldórsson og Friðmar Kári Eiríksson.
Ingibergur Guðmundsson 158
Börkur Árnason til vinstri og Skúli Tómas Hjartarson til hægri róa á fiskikari í höfninni á sjómannadegi 1993 og taka þar með þátt í skemmtiatriðum dagsins.
Ólafur Bernódusson832
Hjónin Jón Ólafur Sigurjónsson og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir hress í götugrilli á Bogabrautinni 13. ágúst 2009.
Ingibergur Guðmundsson 195
Anna Dröfn Guðjónsdóttir stekkur langastökk á unglingamóti USAH í febrúar 1985.
Ingibergur Guðmundsson 111
Myndin var tekin 6.apríl 1986 í afmælisveislu Láru Kristjánsdóttur (d. 6.9.1993) er hún varð 85 ára. Á myndinni eru frá vinstri: Þórdís Sigurðardóttir, Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011) og Erla Valdimarsdóttir (d.29.9.2008).
Ólafur Bernódusson946
Frændurnir Fannar Viggósson sitjandi með gítar og Viggó Magnússon taka lagið í níræðisafmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) í Fellsborg 1. maí 2009.
Ólafur Bernódusson891
Guðmundur Jónsson til vinstri og Þorvaldur Skaftason til hægri skemmta gestum á Kántrýdögum í ágúst 2007.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 164
Ekki er vitað um tilefni þessarar veislu í afgreiðslusal Gamla pósthússins. Á myndinni eru frá vinstri: baksvipir hjónanna Björgvins Brynjólfssonar (d. 28.2.2007) og Rósu Pétursdóttur (d.10.10.1998), Hrólfur Jakobsson (d.27.12.1996), Syvía Hrólfsdóttir, Hörður Ragnarsson, Þórunn Óladóttir, Amy Eymundsdóttir (d.7.3.2012), Hallbjörn Hjartarson, Magnús Ólafsson (d.23.7.2012) og Elín Njálsdóttir. Í baksýn má sjá símaklefana tvo sem voru þarna á pósthúsinu/símstöðinni.
Helga Berndsen 084
Arnór Snorri Gíslason í fermingarveislu vorið 1995.
Ólafur Bernódusson827
Þrjár galvaskar ungar íþróttakonur frá Skagaströnd á íþróttamóti 2. júlí 2009. Frá vinstri: Sigurlaug Máney Sæmundssen, Sigurbjörg Birta Berndsen og Guðrún Anna Halldórsdóttir. Í baksýn sér í Pál Halldórsson og móður hans Sigríði Stefánsdóttur. Stúlkurnar tvær til vinstri eru óþekktar.
Ólafur Bernódusson732
þessar fjórar stúlkur voru forsöngvarar á jólaballinu á litlu jólum Höfðaskóla í íþróttahúsinu 19. desember 2011. Stúlkurnar, sem voru bekkjarsystur, eru frá vinstri: Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Heba Líf Jónsdóttir og Lilja Svandís Hallgrímsdóttir.
Ólafur Bernódusson962
Hallbjörn Björnsson rafvirkjameistari á sjómannadegi 6. júní 2009.
Helga Berndsen 113
Myndin var tekin á jólum heima á Karlsskála, líklega kringum 1965. Konan sem stendur til vinstri er húsmóðirin Guðrún Helgadóttir (d.15.4.1987). Við hlið hennar situr Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996) með dóttur sína, Guðrúnu Guðmundsdóttur í fanginu. Guðrún Einarsdóttir situr lengst til vinstri og við hlið hennar situr Sesselja Guðmundsdóttir, dóttir Hildigunnar. Konan sem situr lengst til hægri er Helga Berndsen móðir Guðrúnar Einarsdóttur og dóttir Guðrúna Helgadóttur.
Ólafur Bernódusson803
Myndin af þessum prúðbúnu bekkjarfélögum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Pétur Atli Árnason, Ingólfur Eðvald Björnsson, Arna Rún Arnarsdóttir, Helgi Hreiðarr Sigurðarson, Freyja Dís Jóhannsdóttir, Magnús Sólberg Baldusrsson, Ástríður Helga Magnúsdóttir, Ívan Orri Eiríksson, Hekla Guðrún Þrastardóttir og Ólafur Halldórsson.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 057
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) bíður komu Örvars Hu 21 í fyrsta sinn til heimahafnar á Skagaströnd í apríl 1982. Þó svo að myndin virðist segja að hann hafi einn tekið á móti skipinu var það ekki svo því fjölmenni var á bryggjunni þennan dag, flestir við bryggukantinn þar sem Örvar lagði að. Ef til vill hefur þessi aldni guðsmaður bara haft í huga það sem stendur í Biblíunni um að hinir síðustu munu verða fyrstir.....
Ólafur Bernódusson711
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni er hluti af yngst nemendunum að flytja atriði úr leikritinu Ávaxtakarfan. Frá vinstri: óþekktur, Hugrún Antonía Sigurðardóttir, Erla Mjöll Daðadóttir, Snæbjörn Elfar Arnarsson, Katrín Gunnarsdóttir og Mathis Grüenberger.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 085
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 24. mars 1988. Á henni eru skólastjórnendurnir Ingibergur Guðmundsson aðstoðarskólastjóri til vinstri og Páll Leó Jónsson skólastjóri til hægri. Milli þeirra er William Sillar kennari.
Helga Berndsen 109
Myndin var tekin á jólum 1984. Við borðið sitja frá vinstri: Sigríður Ólafsdóttir, Helga Berndsen og Karl Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 194
Hólaneskirkja á aðventu 2017.
Ólafur Bernódusson709
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni eru þáverandi 5. og 6. bekkur að sýna atriði sitt. Sitjandi frá vinstri: Ástríður Helga Magnúsdóttir, Magnús Sólberg Baldursson, Ingólfur Eðvald Björnsson, Arna Rún Arnardóttir, Daði Snær Stefánsson, Ólafur Halldórsson, Freyja Dís Jóhannsdóttir, Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir, Rakel/Karen Elvarsdóttir, Freydís Ósk Kristjánsdóttir, Rakel/Karen Elvarsdóttir, Dagný Dís Bessadóttir og óþekkt. Standandi frá vinstri: Jóhann Almar Reynisson, Hekla Guðrún Þrastardóttir og Guðrúna Helga Björgvinsdóttir.
Helga Berndsen 078
Gísli Snorrason í fermingarveislu 13. apríl 1995.
Helga Berndsen 018
Guðrún Einarsdóttir á fermingardaginn sinn vorið 1971.
Ólafur Bernódusson988
21.3.2013 stóð Gleðibankinn fyrir bíósýningu í Bókasafni Halldórs Bjarnasonar. Sýndar voru þrjár stuttar myndir sem allar tengdust Skagaströnd á einhvern hátt. Húsfyllir var á sýningunni eins og sjá má og skemmti fólk sér hið besta.
Ingibergur Guðmundsson 190
Guðný Finnsdóttir og Reynir Lýðsson með verðlaun sín fyrir víðavangshlaup á 17. júní 1985.
Helga Berndsen 083
Frændurnir Sverrir Brynjar Berndsen til vinstri og Birkir Rafn Gíslason til hægri á fermingardaginn sinn vorið 1995.
Ingibergur Guðmundsson 259
Bridgeklúbbur Skagastrandar starfaði af miklum krafti í mörg ár t.d. var Bridge spilaður einu sinni í viku allan veturinn auk þess að félagið hélt keppnir fyrir Norðlendinga og klúbbmeðlimir sóttu bridgekeppnir víða um land. Á þessari mynd er Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012) að spila í Fellsborg.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 082
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 24. mars 1988. Nemendurnir á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Aðalheiður Sif Árnadóttir, Atli Þórsson, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, óþekktur, Svava Magnúsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Björn Sigurðsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson736
Elías Gunnar Hafþórsson á litlu jólum í Höfðaskóla 2008.
Ingibergur Guðmundsson 165
Hér taka þeir Guðbrandur Magnússon til vinstri og Kristján Karlsson til hægri, þátt í skemmtiatriði á sjómannadegi 1996 með því að leysa ýmsar þrautir í ákveðinni braut. Þarna eru þeir að borða harðsoðið egg og drekka súrmjólk með.
Ingibergur Guðmundsson 171
Jóhannes Sveinsson tekur þátt í erfiðum leik á sjómannadaginn 1987. Leikurinn fólst í að handlanga sig eftir kaðli milli bryggja í höfninni. Viljandi var kaðallinn hafður það slakur að menn blotnuðu á leiðinni. Sumir komust ekki alla leið og urðu að láta sig gossa í sjóinn þar sem björgunarsveitarmenn hirtu þá upp í bát.
Ólafur Bernódusson715
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni er Hallbjörg Jónsdóttir að leika í einu atriðanna sem voru á dagskránni.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 083
Myndin var tekin 24. mars 1988 á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Á myndinni er einhver leikþáttur í gangi. Þar eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Hafdís Hanna Ægisdóttir, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, óþekkt stúlka, Jósef Stefánsson og Jónas Fanndal Þorvaldsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson879
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst af fjórum prúðbúnum stúlkum sem buðu upp á veitingar hjá kofanum sínum. Frá Vinstri: Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Heba Líf Jónsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen og Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 273
Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006) og Ingibergur Guðmundsson fagna frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á "Fyrsta öngstræti til hægri" í mars 1988. Dóra lék en Ingibergur var starfsmaður við sýninguna.
Ólafur Bernódusson862
Nemendur og starfsfólk Höfðakóla fóru í mótmælagöngu gegn reykingum og tóbaksnotkun 19. mars 2007. Áður höfðu þau unnið í málinu og enduðu gönguna með íþróttahátíð í íþróttahúsinu þar sem foreldara og aðrir voru velkomnir. Á myndinni er Harpa Hlín Ólafsdóttir að keppa í Húla-húla.
Ólafur Bernódusson856
Nemendur og starfsfólk Höfðakóla fóru í mótmælagöngu gegn reykingum og tóbaksnotkun 19. mars 2007. Áður höfðu þau unnið í málinu og enduðu gönguna með íþróttahátíð í íþróttahúsinu þar sem foreldara og aðrir voru velkomnir. Á myndinni er gangan á leið niður Fellsbrautina.
Ingibergur Guðmundsson 207
Ánægðar stúlkur með verðlaun sín á aðalfundi umf. Fram í febrúar 1990. Frá vinstri: Bjarnhildur Níelsdóttir, Linda Rós Rúnarsdóttir og Særún Níelsdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 162
Ekki er vitað um tilefni þessarar veislu. Fólkið er frá vinstri: Jón Gunnar Jósefsson, Stefán Jósefsson og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir.
Ólafur Bernódusson969
Skemmtiatriða á sjómannadegi 6. júní 2009. Um var að ræða hjólreiðakeppni á trébrettum á floti ákveðna vegalengd í höfninni á Skagaströnd.
Ingibergur Guðmundsson 200
Sigurvegarar á unglingamóti USAH á Blönduósi 1981. Frá visntri: Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Þórarinn Brynjar Ingvarsson, óþekktur og Páll Jónsson.
Ólafur Bernódusson979
Systkinin Stefán Ægir Lárusson og Soffía Lárusdóttir á sjómannadegi á Skagaströnd 6. júní 2009.
Ólafur Bernódusson 726
Markaður í Rauða kross húsinu. Þar var seldur notaður fatnaður og einnig nýtt prónles. Þá var líka hægt að kaupa sér kakó/kaffi og vöfflu með rjóma. Á myndinni, sem tekin var 1. maí 2006, er Sigurlaug Kristjánsdóttir frá Tjörn lengst til vinstri, Árný Hjaltadóttir frá Steinnýjarstöðum er í miðið og til hægri er Katrín Guðmundsdóttir frá Skagaströnd. Stúlkan lengst til hægri er óþekkt.
Ólafur Bernódusson 2 721
Víðavangshlaup umf. Fram var haldið í maí 2001. Á myndinni eru nokkri ungir hlauparar á ráslínunni ásmat nokkrum hjálparkokkum. Frá vinstri: Róbert Björn Ingvarsson, Sæþór Bragi Ágústsson, Brynja Hödd Ágústsdóttir, Elvar Geir Ágústsson, Egill Örn Ingibergsson, Aron Breki Hjartarson, Ómar Ísak Hjartarson og óþekktur drengur.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 032
Þessi mynd var tekin á sjómannadegi af skemmtiatriðum sem fólust í því að íturvaxnar konur sýndu samkvæmisdansa með nokkrum körlum. Konurnar voru að sjálfsögðu karlmenn í kvenfötum - dragdrottningar - en þær birtust á höfninni þegar þær voru hífðar af dekki Örvars Hu 21 í kari. Eins og sjá má var dansinn ástríðufullur í meira lagi.
Ólafur Bernódusson806
Myndin af þessum prúðbúnu bekkjarfélögum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Birgitta Rut Bjarnadóttir, Helgi Sveinn Árnason, Guðný Eva Björnsdóttir, Auðunn Árni Þrastarson, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Benóný Bergmann Hafliðason, Laufey Lind Ingibergsdóttir og Sunna Steingrímsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 196
Jólaljós á Hólabraut 11 um jólin 2017.
Ólafur Bernódusson956
Guðmundur Rúnar Krsitjansson húsasmiður, skáld og rithöfundur á sjómannadegi 6. júní 2009.
Helga Berndsen 091
Myndin var tekin á gleðidegi þegar Helga Sigríður Ívarsdóttir útskrifaðist sem stúdent. Við hlið hennar er móðir hennar Guðrún Einarsdóttir og lengst til vinstri er amma hennar og móðir Guðrúnar, Helga Berndsen.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 68
Kátar konur í saumaklúbbi. Frá vinstri: óþekkt, Áslaug Hafsteinsdóttir, Birna Blöndal, Ragna Friðriksdóttir (d.5.2.1981), Bára Þorvaldsdóttir, Björk Axelsdóttir og Kolbrún ?.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 152
Myndin var tekin í einhverri kaffiveislu í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru frá vinstri: Snorri Gíslason (d.29.5.1994), Jón Hallur Pétursson, Vilhelm Harðarson og óþekkt stúlka. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1229
Freyja Dís Jóhannsdóttir vinstra megin og Hekla Guðrún Þrastardóttir til hægri taka þátt í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
Ólafur Bernódusson987
Í júlí 2010 fóru nokkrir Skagstrendingar í nokkurra daga útilegu í Reykjarfjörð nyrðri á Hornströndum. Hópurinn var einstaklega heppinn með veður þessa daga sem voru nýttir til gönguferða um nágrennið. Á myndinni er hluti hópsins að borða í kvöldsólinni. Vinstra megin við borðið eru frá vinstri: Gunnar Svanlaugsson, tveir óþekktir, Sigurjón Atli Sigurðsson. Ólafur Bernódusson situr við enda borðsins en við endann nær okkur er baksvipur Láru Guðmundsdóttur. Hægra megin við borðið eru talið inn eftir borðinu: Amy Ósk Ómarsdóttir, Sigurður Sigurðarson, Steindór R. Haraldsson og Jóney Hrönn Gylfadóttir. Fjallið til vinstri í baksýn er Geirólfsnúpur en upp á hann fór hluti hópsins þennan dag.
1
…
59
60
61
…
104
Leita í myndasafninu
Leita