Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson881
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst af gestum í þorpinu. Frá vinstri: Aðalheiður Sif Árnadóttir, Róbert Freyr Gunnarsson og Halla Kristín Árnadóttir.
Ólafur Bernódusson797
Myndin af þessum prúðbúnu stúlkum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Freyja Dís Jóhannsdóttir, Hekla Guðrún Þrastardóttir, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir og Ástríður Helga Magnúsdóttir.
Ólafur Bernódusson858
Nemendur og starfsfólk Höfðakóla fóru í mótmælagöngu gegn reykingum og tóbaksnotkun 19. mars 2007. Áður höfðu þau unnið í málinu og enduðu gönguna með íþróttahátíð í íþróttahúsinu þar sem foreldara og aðrir voru velkomnir. Á myndinni er gangan að koma síðasta spölinn að íþróttahúsinu. Á myndinni sjást frá vinstri: Magnús B. Jónsson sveitarstjóri, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri, Embla Ágústsdóttir (barn), Sólrún Ágústa Magnadóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Eva Dís Gunnarsdóttir, Hrönn Árnadóttir, Ellen Sigurjónsdóttir, Einar Sigurbergur Arason kennari og Telma Dögg Bjarnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1227
Hjónin Steinunn Friðriksdóttir og Gunnlaugur Sigmarsson við opnun Spákonuhofsins 30. júní 2011.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1447
Hjónin Guðrún Sigurðardóttir og Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ í janúar 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1288
Stefán Sveinsson lagar húfuna á dóttur sinni Stefaníu Hrund Stefánsdóttur meðan hann spjallar við Jón Ólaf Sigurjónsson. Myndin var tekin um miðjan desember 2012 þegar þeir voru að sækja sér jólatré í Gunnfríðastaðaskóg.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1481
Dansað kringum jólatréð á Hnappstaðatúni með jólasveinunum þegar kveikt var á því 30. nóvember 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 445
Gleðibankinn stendur árlega fyrir upplestri úr nokkrum jólabókum á aðventunni. Eru þá fengnir nokkrir upplesarar af íbúum Skagastrandar til að lesa stutta kafla úr nýjum bókum ársins. Á þessari mynd, sem tekin var á slíku upplestrarkvöldi 11. desember 2013 í Bjarmanesi, syngja þeir og spila í hléi Guðmundu Egill Erlendsson til vinstri og Jón Ólafur Sigurjónsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1355
Starfsfólk BioPol á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012. Frá vinstri: doktor Bjarni Jónsson, Halldór Gunnar Ólafsson framkvæmdastjóri, Soffía Magnúsdóttir líffræðingur, Svana Lára Hauksdóttir líffræðingur og doktor Magnús Stefánsson.
Ólafur Bernódusson721
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni er Eymundur Lórens Grétarsson í hlutverki sínu á hátíðinni.
Helga Berndsen 127
Jón Ísberg (d.24.6.2009) sýslumaður í Húnavatnssýslum vígir sjálfvirka símann á Skagaströnd árið, 1970.
Ólafur Bernódusson958
Hjónin Hjörtur Þór Guðbjartsson og Ingibjörg Dúna Skúladóttir á sjómannadegi 6. júní 2009.
Ólafur Bernódusson819
Aldís Embla Björnsdóttir spilar á klarinett á lokatónleikum tónlistarskólans 28. apríl 2010.
Ólafur Bernódusson992
Jólin eru tími samveru og fjölskyldunnar. Kirkjugarðurinn er einn af þessum stöðum sem við heimsækjum fyrir eða um jólin til að minnast þeirra sem áður nutu jólanna með okkur og gerðu þau yndisleg. Við treystum því að þau séu hjá okkur um jólin og njóti þeirra með okkur þó þau séu horfin yfir á annað tilverustig. Ljósmyndasafnið óskar öllum Skagstrendingum og öðrum velunnurum gleðilegra jóla og hamingjuríks komandi árs.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1423
Eigendur skipa og báta á Skagaströnd bjóða alltaf upp á stutta skemmtisiglingu á sjómannadögum. Á þessari mynd frá sjómannadegi 2. júní 2012 er Hafrún Hu 12 að leggja af stað í slíka siglingu með fullt af fólki.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1045
19. september 2012 kom Luis E. Arreaga sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í heimsókn á Skagaströnd. Erindið var að veita Hallbirni J. Hjartarsyni viðurkenningu og heiðursskjal frá samtökum Kántrýtónlistarmanna í Bandaríkjunum - The Country Music Association - fyrir brautryðjendastarf Hallbjarnar á sviði kántrýtónlistar á Íslandi. Meðal annarra sem mættu í hóf af þessu tilefni í Kántrýbæ voru frændurnir Sigurjón Guðbjartsson til vinstri og Sigurður Hjartarson til hægri en hann er bróðir Hallbjarnar.
Ólafur Bernódusson850
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg 16. mars 2007. Á myndinni er atriði 4. bekkjar í gangi. Krakkarnir eru frá vinstri: Freyja Einarsdóttir, Anna Dís Ragnarsdóttir, Einar Ari Einarsson, Arnar Páll Guðjónsson, Heba Líf Jónsdóttir, Aron Fannarsson og Sigurbjörg Birta Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1232
Snæfríður Guðmundsdóttir vinstra megin og Hallbjörg Jónsdóttir til hægri taka þátt í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012. Sjá má verðlaunagripinn á borðinu til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1429
Myndin var tekin á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ 21. janúar 2012. Þá hittust félagar í kórnum eina kvöldstund með mökum sínum, borðuðu góðan mat og skemmtu sér saman. Á myndinni eru frá vinstri: Trostan Agnarsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Guðbjörg Ólafsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir stjórnandi kórsins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1024
Þorrablótið 2012 var haldið 4. febrúar í Fellsborg. Á þessari mynd er verið að gera grín að heimsókn einhvers fyrirmennis til Skagastrandar. Myndirnar í baksýn eru af nokkrum þáverandi hreppsnefndarmönnum og sveitarstjóra. Leikararnir eru frá vinstri: Guðni Már Lýðsson með mynd af Adolf H. Berndsen, Þorgerður Þóra Hlynsdóttir, Trostan Agnarsson bak við mynd af Jóni Ólafi Sigurjónssyni, Halldór Gunnar Ólafsson, Árni Halldór Eðvarðsson með mynd af Magnúsi B. Jónssyni, María Ösp Ómarsdóttir og óþekktur með mynd af Halldóri Gunnari Ólafssyni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1400
Tveir ungir menn bíða eftir að röðin komi að þeim á fimleikasýningu Höfðaskóla 18. desember 2012. Páll Halldórsson til vinstri og Egill Örn Ingibergsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1380
Þjóðsagnapersónan Viggó Brynjólfsson á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012. Viggó vann fullan vinnudag á jarðýtum fram undir nírætt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1419
Guðbjörg Eiríksdóttir les ritningarorð á sjómannadagsmessu 2. júní 2012 í Hólaneskirkju. Við altarið er presturinn séra Úrsula Árnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1297
Lionfélagar á Skagaströnd hittu félaga sína í Skagafirði á fundi í Skagaseli 4. apríl 2012 og þá var þessi mynd tekin. Á henni eru frá vinstri: Sigurður Svavarsson, óþekktur, Ólafur Ingibergsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1343
Gestir á fjölsóttri ljósmyndasýningu, sem Árni Geir Ingvarsson hélt á nokkrum mynda sinna í íþróttahúsinu, eina helgi um miðjan ágúst 2012. Eðvarð Hallgrímsson verktaki er til vinstri en hægra megin er mágur hans Karl Guðmundsson viðskiptafræðingur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1438
Vinirnir Jón Ólafur Sigurjónsson til vinstri og Halldór Gunnar Ólafsson til hægri á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ í janúar 2012.
María Magnúsdóttir - safn 369
Hjónin Erna Berglind Hreinsdóttir og Fannar Viggósson í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) 1. maí 2016.
Ólafur Bernódusson935
Nes listamiðstöð stendur fyrir opnu húsi mánaðarlega en þá er gestum boðið að koma og sjá hvað listamenn mánaðarins eru að skapa. Myndin var tekin af þeim Lárusi Ægi Guðmundssyni til vinstri og Einari Sigurbirni Arasyni til hægri á opnu húsi 29. september 2008.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1342
Eftir vikulangt dansnámskeið í Höfðaskóla og Barnabóli var haldin danssýning 12. október 2012 þar sem nemendur sýndu það sem þeir höfðu lært. Á þessari mynd er Kara Arngrímsdóttir danskennari umkringd leikskólabörnum sem eru að sýna það sem þau hafa lært. Börnin eru frá vinstri: Elsa Fanney Gunnarsdóttir, Logi Hrannar Jóhannsson, Zelia Casper og lengst til hægri sér í Anitu Ósk Gunnarsdóttur. Aðrir eru óþekktir
Árni Geir Ingvarsson - safn 1235
Anita Ósk Ragnarsdóttir vinstra megin og Dagný Dís Bessadóttir til hægri taka þátt í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1204
Starfsfólk vinnuskólans saman út að borða í Kántrýbæ 19. júlí 2012. Vinstra megin við borðið, frá vinstri: Eymundur Lórens Grétarsson, Páll Halldórsson og Birkir Freyr Gunnarsson. Hægra megin við borðið eru frá vinstri: Geir Arnarsson, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Linda Rún Einarsdóttir og Anton Þór Einarsson.
Ólafur Bernódusson975
Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna eða SH var stofnað í febrúar 1942. 1992 hélt SH upp á 50 ára afmæli sitt með því að bjóða starfsfólki hraðfrystihúsanna, sem mynduðu sölumiðstöðina, til kaffiveislu. Þessi mynd var tekin í veislunni í kaffistofu Hólaness hf. Hægra megin við borðið sitja talið frá hægri: Guðrún Pálsdóttir, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Sveinn Jónasson, óþekktur og Vilborg Magnúsdóttir. Við enda borðsins situr Kristinn Guðmundsson. Vinstra megin við borðið má þekkja Birgir Árnason (d.2.2.2005) og konu hans Ingu Þorvaldsdóttur (d.14.12.2012). Í hvítri skyrtu með kaffikönnur í höndunum er Lárus Ægir Guðmundsson sem var framkvæmdastjóri Hólness hf á þessum tíma. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson882
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst af mæðgunum Elvu Þórisdóttur og Ásdísi Öddu Ólafsdóttur þegar þær komu í heimsókn.
Ólafur Bernódusson887
Sunny Road er nánast bein þýðing á nafni götunnar Sunnuvegur en það er nafnið á götunni sem var svona fallega skreytt á Kántrýdögum í ágúst 2007. Allar götur í bænum voru þá skreyttar af íbúum hver gata með sinn lit á skreytingunum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 399
Árni Halldór Eðvarðsson skemmtir ásamt öðrum á þorrablóti í Fellsborg 2. febrúar 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1029
Hjónin Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2012.
Ólafur Bernódusson807
Myndin af þessum prúðbúnu bekkjarfélögum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Sonja Sif Albertsdóttir, Arnrún Guðjónsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Georg kristjánsson, Valgerður Ingvarsdóttir, Anna Margrét Sigurðardóttir, Rebekka Heiða Róbertsdóttir, Sigurður Aron Björnsson, Viktor Már Einarsson og Jóhannes Hólmar Sigurpálsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1034
Þessir krakkar voru að afgreiða í sjoppunni á grímuballi Höfðaskóla 22. febrúar 2012. Frá vinstri: Elvar Geir Ágústsson, Sigurbjörg Birta Berndsen og Sigurlaug Máney Sæmundsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1425
Hagleiksmaðurinn Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) frá Jaðri smíðaði þennan bíl á grind undan Ford herjeppa árgerð 1942. Hann byrjaði á að lengja grindina og smíðaði svo húsið úr timbri. Samstæðan að framan er af Austin 8 bíl árgerð 1939. Til að samstæðan passaði þurfti Björn að kljúfa hana og bæta inn í miðjuna því annars var hún of mjó. Bíllinn er enn til (2019) í geymslu hjá Guðmundi syni Björns. Þetta mun vera eini bíllinn sem hefur verið smíðaður á Skagaströd. Þessi mynd af bílnum var tekin á fornbílasýningu á sjómannadegi 2. júní 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1083
Myndin var tekin á jólaballi í Fellsborg 26. desember 2012. Á myndinni eru frá vinstri: Helga Ólína Aradóttir, Ásdís Adda Ólafsdóttir, Almar Atli Ólafsson, Harpa Hlín Ólafsdóttir og Elva Þórisdóttir. Litlu börnin á myndinni eru óþekkt.
Axel Jóhann Hallgrímsson 55
Guðrún Pálsdóttir á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 395
Glaðbeittir menn utan við stjórnsýsluhúsið 1. febrúar 2013. Þeir voru að fara að opna sýningu á járn-útilistaverkum eftir Erlend Magnússon í hólunum framan við húsið. Mennirnir eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson sveitarstjóri, Erlendur Magnússon og Adolf H. Berndsen oddviti.
Ólafur Bernódusson801
Myndin af þessum prúðbúnu drengjum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Sigurður Aron Björnsson, Dagur Freyr Róbertsson, Auðunn Árni Þrastarson, Pascal Gruenberger, Jóhann Almar Reynisson og Georg Kristjánsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1358
Myndin var tekin á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012. Frá vinstri: Guðbjörg Ólafsdóttir, Árni Geir Ingvarsson og Ása Jóhannsdóttir frá Lækjarbakka.
Ólafur Bernódusson790
25. janúar 2006 var haldið fjöltefli í skólanum eftir undanfarna skákkennslu. Því miður er óþekkt hver skákmaðurinn var sem tefldi við krakkana en þau eru frá vinstri: tvö óþekkt, Egill Örn Ingibergsson, Sigurbjörg Birta Berndsen, Aldís Embla Björnsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundssen, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Páll Halldórsson, Anton Þór Einarsson og Birkir Freyr Gunnarsson.
Ólafur Bernódusson995
Koddaslagur á skólalóðinni hjá Höfðaskóla á íþróttadegi skólanna í Austur- Húnavatnssýslu sem haldinn var á Skagaströnd í apríl 2001. Berglind Björnsdóttir kennari á Blönduósi er lengst til hægri en aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1319
Grillveisla fyrir unglingana í bæjarvinnunni var haldin 9. ágúst 2012. Næst okkur á myndinni eru Elvar Geir Ágústsson og Ástrós Villa Vilhelmsdóttir. Aftar til vinstri eru Anna Dís Ragnarsdóttir og Bergrós Helga Hafsteinsdóttir ásamt öðrum unglingum úr bæjarvinnunni þetta sumar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 456
Fimmta júní 2013 var heldið opið hús hjá Nes listsmiðstöð eins og gert er mánaðarlega. Þetta skipti var óvenjulegt að því leyti að það var haldið niður við verksmiðjuskorsteininn. Það kom til af því að þá var meðal annars "vígð" veggmyndin sem listamaðurinn Guido Van Helten hafði málað á austurvegg Ketilhússins. Á myndinni spjalla saman um listaverkið Lárus Ægir Guðmundsson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri.
Ólafur Bernódusson883
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst af þremur gestkomandi konum. Frá vinstri: systurnar Hjördís Sigurðardóttir og Guðrún Sigurðardóttir og Bára Þorvaldsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1403
Myndin var tekin á fimleikasýningu sem nemendur Höfðaskóla stóðu fyrir 18. desember 2012 undir leiðsögn kennara síns Höllu Karenar Gísladóttur. Óþekkt stúlka sýnir stökk en Halla Karen er tilbúin að taka á móti henni ef þess þarf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1417
Séra Úrsula Árnadóttir prestur og Steindór R. Haraldsson meðhjálpari tylla sér undir sálmasöng í sjómannadagsmessu 2. júní 2012 í Hólaneskirkju.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1059
Kristján Kristjánsson - KK - að spjalla við Halldór Gunnar Ólafsson 15. ágúst 2008 á Kántrýdögum á Skagaströnd. Eitt af atriðunum á Kántrýdögum þetta árið var að KK hélt námskeið í götuspilamennsku ásamt vini sínum Leo Gillespie. Halldór var einn þeirra sem sóttu námskeiðið með gítarinn sinn.
Helga Berndsen 088
Myndin var tekin í fermingarveislu vorið 1995. Frá vinstri: Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016), Guðrún Sigurðardóttir og Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1295
Árni Geir Ingvarsson til vinstri og Bergþór Gunnarsson til hægri bera saman bækur sínar í jólatrjáaleiðangri í Gunnfríðarstaðaskógi í desember 2012.
Ólafur Bernódusson890
Guðmundur Jónsson tónlistarmaður frá Skagaströnd spilar fyrir gesti á Kántrýdögum í ágúst 2007. Sviðið var í stóru tjaldi sem reist var á Hnappstaðatúninu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1420
Halldór Gunnar Ólafsson flytur hugleiðingu í Hólaneskirkju á sjómannadegi 2. júní 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1016
Á hverju ári er haldið þorrablót á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sæborg. Þangað er gjarnan boðið ýmsum velunnurum heimilisins til að njóta veitinga og skemmtunnar með heimilisfólkinu. Þessi mynd var tekin 3. febrúar 2012 af hluta starfsfólks Sæborgar sem sá um þorrablótið það árið ásamt fleirum. Frá vinstri: Sigríður Ólafsdóttir matráður, Elísabet Vattnes starfsstúlka, Angela Maria Bosombrio starfsstúlka og skemmtikraftur og Jökulrós Grímsdóttir forstöðukona heimilisins.
Ólafur Bernódusson965
Stefán Jósefsson útegrðarmaður og skipstjóri á sjómannadegi 6. júní 2009.
Ólafur Bernódusson 731
Myndin var tekin þegar ráðafólk skálaði fyrir opnun hitaveitu á Skagaströnd 1. nóvember 2013 í dæluhúsinu á Skagaströnd. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson hreppsnefndarmaður, Jensína Lýðsdóttir hreppsnefndarmaður (fjær), Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri RARIK (nær), tveir óþekktir, Valgarður Hilmarsson sveitarstjórnarmaður á Blönduósi, Jón Ólafur Sigurjónsson hreppsnefndarmaður (fjær), Haukur Ásgeirsson raf- og hitaveiturstjóri (nær) og Adolf H. Berndsen oddviti hreppsnefndar. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1241
Vinkonurnar Ásdís Birta Árnadóttir til vinstri og Aldís Embla Björnsdóttir til hægri á söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012. Stúlkurnar tóku þátt í keppninni með dúett sem þær sungu.
1
…
63
64
65
…
104
Leita í myndasafninu
Leita