Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson955
Róðrarsveit unglinga á sjómannadegi 6. júní 2009. Unglingarnir eru, talið aftur eftir bátnum: Brynjar Max Ólafsson?, Alex Már Gunnarsson, Telma Dögg Bjarnadóttir, Halla Björk Víðisdóttir, Guðjón Páll Hafsteinsson, Ingimar Guðjónsson og óþekktur stýrimaður.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1026
Þorrablótið 2012 var haldið 4. febrúar í Fellsborg. Á þessari mynd er skemmtirevía kvöldsins í fullum gangi. Á henni eru frá vinstri: Elva Dröfn Árnadóttir, Magnús B. Jónsson (í gervi Jónmundar Ólafssonar), Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og María Ösp Ómarsdóttir.
Ólafur Bernódusson 730
Ásdís Birta Árnadóttir syngur í söngvakeppni Höfðaskóla, Garginu, í Fellsborg 6. mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1415
Hjónin Gunnar Albertsson og Hrefna Björnsdóttir (d.8.10.2018) ganga til kirkju á sjómannadegi 2. júní 2012.
Axel Jóhann Hallgrímsson 2
Jón Ólafur Ívarsson -Daddi (d.29.12.2013), skipstjóri á Helgu Björg Hu 7, lyftir bikarnum sem veittur var fyrir besta tíma í kappróðri á sjómannadegi. Hjá honum er einn úr róðrarsveitinni, Bjarni Loftsson (d.8.11.1990). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Ólafur Bernódusson983
Landbanki Íslands, eldri, hélt upp á 110 ára afmæli sitt 11. ágúst 2006. Þá bauð útibúið á Skagaströnd upp á afmælistertu, blöðrur og leiki á Hnappstaðatúninu. Á myndinni leikur Carl Erik Lehman Jakobsen íþróttakennari listir sínar á öxlunum á samkennara sínum Ólafi Bernódussyni í tilefni dagsins. Óþekkt börn og Helgi Gunnarsson til vinstri fylgjast með.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1372
Fólkið á myndinni fylgdist með fyrirlestri um hafnargerð á Skagaströnd í Bókasafni Halldórs Bjarnasonar í Gamla kaupfélaginu sem haldin var 13. október 2012. Fyrir og eftir fyrirlesturinn skoðaði fólk myndir úr Ljósmyndasafni Skagastrandar og reyndi að þekkja fólk sem á þeim var. Fólkið sem er að spjalla saman á myndinni er, frá vinstri: Lára Magnúsardóttir, Lárus Ægir Guðmundsson og Magnús B. Jónsson.
Ólafur Bernódusson 729
Guðlaugur Ómar Guðmundsson sigurvegari í söngvakeppni Höfðaskóla, Garginu, í Fellsborg 6. mars 2008.
Axel Jóhann Hallgrímsson 102
Myndin var tekin af Jóni Helgasyni og Fanney Zophoníasdóttur í London í desember 1985. Þá voru starfsmenn Skagstrendings hf á ferð í borginni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1399
Nokkrir nemendur á fimleikasýningu, sem nemendur Höfðaskóla stóðu fyrir 18. desember 2012 undir leiðsögn kennara síns Höllu Karenar Gísladóttur, bíða eftir að röðin komi að þeirra atriði. Vinstra megin eru í röð: Stefanía Hrund Stefánsdóttir og Gabríel Goði Tryggvason en hin börnin í röðinni eru óþekkt. Fremstur í hægri röð er Hlynur Hafliðason og aftast Erla Mjöll Daðadóttir en börnin milli þeirra eru óþekkt.
Ólafur Bernódusson757
Á sjómannadaginn 1. júní 2003 kepptu tveir áhugamenn um formúlu 1 keppnirnar á kassabílum. Finnur Kristinsson er í bílnum nær okkur en Péturína Laufey Jakobsdóttir ekur bílnum sem er fjær. Vélstjórar bílanna eru óþekktir en valdir af ökumönnunum því þeir halda með þeim liðum sem ökumennirnir styðja.
Axel Jóhann Hallgrímsson 76
Óli Albertsson bóndi og löndunarmaður á sviðinu í Fellsborg á árshátíð Skagstrendings hf haustið 1986.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 496
Magnús B. Jónsson í hlutverki Lárusar Ægis Guðmundssonar til vinstri og Halldór Gunnar Ólafsson í hlutverki Kristjáns Jóhannssonar tenórs til hægri á þorrablóti í febrúar 2014 í Fellsborg.
Axel Jóhann Hallgrímsson 77
Myndin var tekin á árshátíð Skagstrendings hf í Fellsborg haustið 1986. Frá vinstri: Sigurbjörn Björgvinsson matsveinn, Björgvin Karlsson vélstjóri, Páll Jónsson háseti og Karl Berndsen (d.12.2.1995) stjórnarformaður.
María Magnúsdóttir - safn 376
Myndin var tekin 1. maí 2009 í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) af ömmustráknum hennar Atla Þórssyni með dætrum sínum. Frá vinstri á myndinni eru: Sunna Lind Bang, Birta Líf Atladóttir (aftar), Sigrún Fjóla Atladóttir (framar) og Atli Þórsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1479
Feðginin Hrólfur Pétursson og Arnrún Hildur Hrólfsdóttir mætt á Hnappstaðatún til að fylgjast með þegar kveikt var á jólatrénu það árið 30. nóvember 2012. Til hægri sér í Lilju Ingólfsdóttur.
Axel Jóhann Hallgrímsson 42
Sumarið 1987 fóru starfsmenn og stjórn Skagstrendings hf saman í ferðalag til Austurríkis og Þýskalands. Þessi mynd var tekin á einhverjum óþekktum áningarstað af þeim Rögnvaldi Ottóssyni til vinstri, Þórarni Grétarssyni í miðið og Rúnari Jósefssyni til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 448
Gleðibankinn stendur árlega fyrir upplestri úr nokkrum jólabókum á aðventunni. Eru þá fengnir nokkrir upplesarar af íbúum Skagastrandar til að lesa stutta kafla úr nýjum bókum ársins. Á þessari mynd, sem tekin var á slíku upplestrarkvöldi 11. desember 2013 í Bjarmanesi, les séra Bryndís Valbjörnsdóttir úr bókinni Sæmd eftir Guðmund Andra Thorsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 421
Anton Þór Einarsson að selja miða inn á grímuball Höfðaskóla í Fellsborg 13. febrúar 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1078
Silfá Sjöfn Árnadóttir og Ingólfur Eðvald Björnsson á jólaballi í Fellsborg 26. desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1430
Sigursveit unglinga í kappróðri á sjómannadegi 2. júní 2012 með verðlaunapeninga sína. Frá vinstri: Aldís Embla Björnsdóttir, Eva Dögg Björgvinsdóttir, Páll Halldórsson, Arnar Páll Guðjónsson, Ívan Árni Róbertsson, Guðrún Anna Halldórsdóttir og Finnur Kristinsson stýrimaður.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2
Feðgarnir Halldór Gunnar Ólafsson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri leika í einhverju atriði á þorrablóti í Fellsborg í febrúar 2014.
Ólafur Bernódusson831
Róbert Gunnarsson nýtur lífsins í götugrilli á Bogabrautinni 13. ágúst 2009.
Ólafur Bernódusson985
Á degi atvinnulífsins 5. desember 2012 var Biopol útnefnt fyrirtæki ársins. Á myndinni afhendir Jón Óskar Pétursson þáverandi framkvæmdastjóri SSNV til hægri, Halldóri Gunnari Ólafssyni framkvæmdastjóra Biopol styttu til minningar um útnefninguna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 547
Magnús Pálsson myndlistamaður útskýrir verk sitt Sólúr fyrir gestum á Hnappstaðatúni 20. september 2014. Eftir að hafa útskýrt hugmyndina á bak við verkið afhjúpaði hann nafnskjöld á verkinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 457
Fimmta júní 2013 var heldið opið hús hjá Nes listsmiðstöð eins og gert er mánaðarlega. Þetta skipti var óvenjulegt að því leyti að það var haldið niður við verksmiðjuskorsteininn. Það kom til af því að þá var meðal annars "vígð" veggmyndin sem listamaðurinn Guido Van Helten hafði málað á austurvegg Ketilhússins. Annað sem boðið var upp á var að setjast einn með sjálfum sér inn í skorsteininn og hlusta þar á slökunartónlist í nokkrar mínútur. Á myndinni er Árni Geir Ingvarsson að prófa.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1296
Gleðibankinn stendur árlega fyrir upplestrarkvöldi úr nýjum bókum einhverntíma á aðventunni. Á þessari mynd frá 11. desember 2013 er María Ösp Ómarsdóttir að lesa upp á slíku kvöldi í Bjarmanesi. Ávallt hafa verið fengnir lesarar sem eiga heima á Skagaströnd og reynt að fá nýja á hverju ári. Á þessum notalegu aðventukvöldum hefur margur lagt ríflega inn í Gleðibankann því innleggin felast í brosum, hlátri og góðri samveru.
Ólafur Bernódusson859
Nemendur og starfsfólk Höfðakóla fóru í mótmælagöngu gegn reykingum og tóbaksnotkun 19. mars 2007. Áður höfðu þau unnið í málinu og enduðu gönguna með íþróttahátíð í íþróttahúsinu þar sem foreldara og aðrir voru velkomnir. Á myndinni er gangan að koma síðasta spölinn að íþróttahúsinu. Á myndinni eru: aftast Heiðrún Tryggvadóttir og móðir hennar (?) , Aðalheiður Sif Árnadóttir í dökkri úlpu leiðis son sinn Dag Frey Róbertsson en annar sonur hennar Ívan Árni Róbertsson er næst okkur á myndinni. Í hvítu úlpuvesti er Sigríður Stefánsdóttir sem leiðir sinn son, Ólaf Halldórsson. Lengst til hægri er svo Svenny Hallbjörnsdóttir með reiðhjól. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1336
Formleg opnun Jónsstígs um skógrækt Skagstrendinga fór fram 17. ágúst 2012. Á myndinni eru Mæðginin Ari Þórsson og Fjóla Jónsdóttir sem er dóttir Jóns Jónssonar (d.9.7.1991) fyrrum formanns Skógræktarfélags Skagastrandar, sem stígurinn er nefndur eftir. Í baksýn sér í innpakkað skilti sem var afhjúpað við þetta tilefni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 461
Viggó Brynjólfsson spilar fyrir dansi á jólaballi í Fellsborg 28. desember 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1435
Sigursveit karla í kappróðri á sjómannadegi 2. júní 2012 með verðlaunapeninga sína. Frá vinstri: Ragnar Már Björnsson, Finnbogi Guðmundsson, Sæþór Ágústsson, Patrik Bjarnason, Stefán Velemir, Elías Gunnar Hafþórsson og Sævar Tryggvason sem líklega var stýrimaður sveitarinnar.
Ólafur Bernódusson868
Ungmennasamband Austur Húnvetninga, USAH, var stofnað 30. mars 1912. Á þessari mynd er Þórhalla Guðbjartsdóttir formaður sambandsins í ræðustól á 100 ára afmæli þess sem haldið var hátíðlegt 1. apríl 2012. Þar var saga sambandsins rakin og viðurkenningar veittar þeim félögum sem skarað höfðu framúr á einhvern hátt.
Axel Jóhann Hallgrímsson 59
Hjónin Hjalti Skaftason og Jónína Þ. Arndal í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Ólafur Bernódusson 723
Myndin er af atriði í leiksýningunni "Síldin kemur og síldin fer", sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið leikárið 1986 - 1987. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Guðmunda Ólafsdóttir, Óli Kristmundsson, Þórey Jónsdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Kristín Jónsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir, Steindór Haraldsson, Sigrún Jónsdóttir, Rut Jónasdóttir, Herborg Þorláksdóttir og Vigdís Viggósdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 451
Gleðibankinn stendur árlega fyrir upplestri úr nokkrum jólabókum á aðventunni. Eru þá fengnir nokkrir upplesarar af íbúum Skagastrandar til að lesa stutta kafla úr nýjum bókum ársins. Á þessari mynd, sem tekin var á slíku upplestrarkvöldi 11. desember 2013 í Bjarmanesi, hlustar Ellen Lind Sigurjónsdóttir á lesturinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 398
Fólk skemmti sér greinilega vel á þorrablóti í Fellsborg 2. febrúar 2013. Eins og endranær var húsfyllir á blótinu.
Axel Jóhann Hallgrímsson 15
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún sýnir fólk fylgjast með einhverjum skemmtiatriðum á sjómannadegi. Frá vinstri: óþekkt barn, Valdimar Björnsson, Oddur Valdimarsson (fjær), Hjördís Sigurðardóttir (nær), Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) og óþekkt stúlka.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 450_cr
Gleðibankinn stendur árlega fyrir upplestri úr nokkrum jólabókum á aðventunni. Eru þá fengnir nokkrir upplesarar af íbúum Skagastrandar til að lesa stutta kafla úr nýjum bókum ársins. Á þessari mynd, sem tekin var á slíku upplestrarkvöldi 11. desember 2013 í Bjarmanesi, les Valdimar Björnsson upp úr ljóðabókinni Árleysi alda eftir Bjarka Karlsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 453
Gleðibankinn stendur árlega fyrir upplestri úr nokkrum jólabókum á aðventunni. Eru þá fengnir nokkrir upplesarar af íbúum Skagastrandar til að lesa stutta kafla úr nýjum bókum ársins. Á þessari mynd, sem tekin var á slíku upplestrarkvöldi 11. desember 2013 í Bjarmanesi, les Ingibjörg E. Kristinsdóttir úr bókinni Andköf eftir Ragnar Jónassson.
Ólafur Bernódusson833
Um miðjan ágúst 2009 var haldin kántrýhátíð á Skagaströnd. Þá var fólk hvatt til að vera með útimarkaði til að skreyta mannlífið á hátíðinni. Hjónin á Bogabraut 27 Guðrún og Ólafur tóku áskoruninni og settu upp matarmarkað í heimkeyrslunni hjá sér. Þar seldu þau hákarl, reyktan silung, bláber með rjóma, krækiber, heimagerðan krækiberjalíkjör, smákökur og heimagerða smörhnífa. Sem sagt "beint frá býli" í sólinni. Á myndinni er Guðrún Pálsdóttir lengst til vinstri með hjálparfólki sínu, tvö af barnabörnum sínum þau Ólaf Halldórsson og Guðrúnu Önnu Halldórsdóttur ásamt frænku þeirra Önnu Köru Eiríksdóttur lengst til hægri. þau þurftu svo að hætta sölunni eftir einn og hálfan tíma því þá var lagerinn að mestu uppseldur.
Ólafur Bernódusson986
23. mars 2013 hélt Eggert Þór Bernharðsson (d.31.12.2014) fyrirlestur um fjölskyldumyndir í Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Skagaströnd. Á myndinni er hluti áheyrenda á fyrirlestrinum. Frá vinstri á fremsta bekk: Steindór Rúniberg Haraldsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Hjördís Sigurðardóttir, Adolf Jakob Berndsen (d. 27.8.1018). Aftar eru frá viinstri: Árni Geir Ingvarsson, Herdís Jakobsdóttir, Ingibergur Guðmundsson, óþekkt, Vilhelm Björn Harðarson, Signý Richter og Kristín Kristmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 396
Forsöngvarar á þorrablóti í Fellsborg 2. febrúar 2013. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Stefán Jósefsson og Sigurjón Guðbjartsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1012
Á hverju ári er haldið þorrablót á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sæborg. Þangað er gjarnan boðið ýmsum velunnurum heimilisins til að njóta veitinga og skemmtunnar með heimilisfólkinu. Þessi mynd var tekin 3. febrúar 2012 af hjónunum Sveini Garðarssyni og Guðnýju Björnsdóttur á einu slíku blóti.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1014
Á hverju ári er haldið þorrablót á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sæborg. Þangað er gjarnan boðið ýmsum velunnurum heimilisins til að njóta veitinga og skemmtunnar með heimilisfólkinu. Þessi mynd var tekin 3. febrúar 2012 á einu slíku blóti af þeim Sylvíu Hrólfsdóttur til vinstri og Hrafnhildi Jóhannsdóttur til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
María Magnúsdóttir - safn 347
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) í 90 ára afmælinu sínu 1. maí 2009 með þremur af fjórum börnum sínum. María er lengst til vinstri en næstur henni er Gunnar Jón Jónsson þá Fjóla Jónsdóttir og lengst til hægri er Magnús B. Jónsson. Á myndina vantar yngsta son Maríu, Ragnar Hlyn Jónsson.
Ólafur Bernódusson997
Stelpur keppa í körfubolta á sameiginlegum íþróttadegi skólanna í Austur-Húnavatnssýslu í íþróttahúsinu á Skagaströnd í apríl 2001. Fyrir miðri mynd í gráum bol með hvítum bekk er Eva Dögg Bergþórsdóttir og á milli stelpnanna tveggja í vestunum til vinstri sér í andlit Önnu Maríu Magnúsdóttur. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1344
Gestir á fjölsóttri ljósmyndasýningu, sem Árni Geir Ingvarsson hélt á nokkrum mynda sinna í íþróttahúsinu, eina helgi um miðjan ágúst 2012. Aðalheiður Ragnarsdóttir bróðurdóttir Árna Geirs er vinstra megin en Þórarinn Brynjar Ingvarsson bróðir hans er til hægri.
Ólafur Bernódusson798
Myndin af þessum prúðbúnu stúlkum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Sunna Steingrímsdóttir, Arna Rún Arnarsdóttir, Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir og Laufey Lind Ingibergsdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn191
Þessi mynd var tekin í Höskuldsstaðakirkju af fermingarbörnum vorið 1973 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996) sem fermdi þau. Fermingarbörnin er frá vinstri: Ólafur Guðmannsson, Jón Hallur Pétursson, óþekkt stúlka og Ragnheiður Magnúsdóttir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 29
Verðlaun afhent fyrir sigur í kappróðri karla á sjómannadegi 2007. Steindór Haraldsson, í gráum jakkafötum, kynnir dagsins afhendir verðlaunapeningana. Mennirnir í sigursveitinni eru frá vinstri: Björn Sigurðsson, Arnar Ólafur Viggósson, Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Jón Örn Stefánsson og Finnur Kristinsson sem er á bak við Steindór.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 670
Myndin var tekin á jólastund á hjúkrunarheimilinu Sæborg 29. desember 2014. Frá vinstri: séra Bryndís Valbjörnsdóttir, Jökulrós Grímsdóttir forstöðumaður heimilisins, Jóhann Jónasdóttir heimiliskona og Gestur Jónsson (d.27.1.2015) heimilismaður.
Ólafur Bernódusson968
Skemmtiatriða á sjómannadegi 6. júní 2009. Um var að ræða kappróður í fiskikörum ákveðna vegalengd í höfninni á Skagaströnd. Í þessu atriði má engu muna til að körunum hvolfi og ræðarar lendi í sjónum.
Ólafur Bernódusson953
Lýður Hallbertssson á kunnuglegum stað við stýrið á bát sínum Dagrúnu St 12 (Hu 121) í skemmtisiglingu á sjómannadegi 6. júní 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 519
Vinirnir Árni Geir Ingvarsson til vinstri og Jóhannes Sveinsson til hægri tilbúnir fyrir þátttöku í Reykjavíkur maraþoni 23. ágúst 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 12
Myndin var líklega tekin á sjómannadegi 1968. Sjóorrustleikur er í gangi á höfninni. Leikurinn fólst í því að tveir ræðarar reru skektum með einum bardagamanni hvor um borð. Síðan áttu bardagamennirnir að reyna að hrinda hvor öðrum í sjóinn með löngum stöngum. Það hlítur að hafa verið kalt að fara í sjóinn því þetta var hafísár eins og sjá má á ísmolanum sem er í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1368
Árni Geir Ingvarsson hélt sýningu á nokkrum ljósmynda sinna í íþróttahúsinu eina helgi um miðjan ágúst 2012 í tengslum við Kántrýdaga, sem þá stóðu yfir. Sýningin var fjölsótt og vel heppnuð. Á myndinni eru tveir gestir á sýningunni, Jóhannes Sveinsson til vinstri og Ari Jón Þórsson til hægri
Árni Geir Ingvarsson - safn 1431
Myndin var tekin á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ 21. janúar 2012. Þá hittust félagar í kórnum eina kvöldstund með mökum sínum, borðuðu góðan mat og skemmtu sér saman. Fremst á myndinni sitja, frá vinstri, systkinin Guðrún Sigurðardóttir, Gylfi Sigurðsson og Hjördís Sigurðardóttir. Standandi í fremri röð frá vinstri: Guðbjörg Ólafsdóttir, Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018), Herdís Jakobsdóttir, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir stjórnandi kórsins, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir, Dagný Hannesdóttir og Þorbjörg Bjarnadóttir. Aftari röð frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Sigurjón Guðbjartsson, Trostan Agnarsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Lilja Ingólfsdóttir, Ólafur Bernódusson, Bára Þorvaldsdóttir, Hafþór Smári Gylfason og Sigríður Stefánsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1379
Vinirnir Fritz Hendrik Berndsen og Kolbrún Björg Viggósdóttir á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1239
Þessi mynd var tekin á aðventukvöldi í Hólaneskirkju 2. desember 2012 af Ólafi Halldórssyni að spila á klarinet.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1381
Guðríður Líneik Daníelsdóttir á Hnappsstaðatúni á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012.
1
…
64
65
66
…
104
Leita í myndasafninu
Leita