Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson985
Á degi atvinnulífsins 5. desember 2012 var Biopol útnefnt fyrirtæki ársins. Á myndinni afhendir Jón Óskar Pétursson þáverandi framkvæmdastjóri SSNV til hægri, Halldóri Gunnari Ólafssyni framkvæmdastjóra Biopol styttu til minningar um útnefninguna.
Axel Jóhann Hallgrímsson 9
Myndin var tekin á sjómannadegi, líklega 1968. Hún sýnir skemmtiatriði sem fólst í því að ræðari og bardagamaður reru út á höfnina og síðan reyndu bardagamennirnir, klæddir björgunarvestum, að hrinda hvor öðrum í sjóinn með löngum stöngum. Sá sigraði að sjálfsögðu sem gat komið hinum í sjóinn. Ef grannt er skoðað má sjá að þetta hefur verið hafísár því það grillir í ísinn lengst til vinstri á myndinni. Mennirnir á bátunum eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 490
Á myndinni reisa þeir Halldór Gunnar Ólafsson til vinstri og Geir Arnarson til hægri, fánastangir fyrir utan rannsóknarstofu BioPol af þekktu tilefni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1361
Systurnar Helga Ólína Aradóttir til vinstri og Anna Aspar Aradóttir til hægri á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012. Bak við þær systur eru Sævar Rafn Hallgrímsson vinstra megin og Heiðar Sigurbjörnsson til hægri. Myndin var tekin í samkomutjaldi á Hanppstaðatúni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 597
Á myndinni, frá 7. nóvember 2014, er lið Skagastrandar í spurningakeppninni Útsvar í sjónvarpssal. Ekki fer miklum sögum af árangri liðsins í keppninni en fulltrúarnir eru frá vinstri: Árni Friðriksson, Eva Dögg Björgvinsdóttir og Trostan Agnarsson.
Guðmundur Guðnason763
Leikarar frá vinstri: Pétur Jóhannsson, óþekktur, Steindór Haraldsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1474
Nemendur og starfsfólk í leikskólanum Barnaból í "skrúðgöngutúr" 5. júlí 2012. Fremst af starfsfólkinu er Guðbjörg Viggósdóttir þá Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri, Lilja Ingólfsdóttir er í bleikum bol og<br> Vigdís Birta Haraldsdóttir er aftarlega í dökkri peysu með stráhatt. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1345
Páll Halldórsson, einn af keppendum úr Höfaskóla, tekur þátt í stóru upplestrarkeppninni 25. maí 2012 í Fellsborg. Árlega er haldin slík upplestrarkeppni milli skólanna í Húnavatnssýslum, til skiptis í skólunum fjórum. Þar keppa þrír fulltrúar frá hverjum skóla en þrír bestu lesararnir eru verðlaunaðir hverju sinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1440
Myndin var tekin á sjómannadegi 2. júní 2012. Frá vinstri: Fritz Hendrik Berndsen, Þór Arason (d. 11.8.2018) og sonur hans Þórarinn Kári Þórsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1371
Árni Geir Ingvarsson hélt sýningu á nokkrum ljósmynda sinna í íþróttahúsinu eina helgi um miðjan ágúst 2012 í tengslum við Kántrýdaga, sem þá stóðu yfir. Sýningin var fjölsótt og vel heppnuð. Á myndinni eru tveir gestir á sýningunni, mæðgurnar María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) og Fjóla Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 458
Fimmta júní 2013 var heldið opið hús hjá Nes listsmiðstöð eins og gert er mánaðarlega. Þetta skipti var óvenjulegt að því leyti að það var haldið niður við verksmiðjuskorsteininn. Það kom til af því að þá var meðal annars "vígð" veggmyndin sem listamaðurinn Guido Van Helten hafði málað á austurvegg Ketilhússins. Á myndinni er Guido að leggja lokahönd á verkið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1234
Þessi mynd var tekin á aðventukvöldi í Hólaneskirkju 2. desember 2012 af barnakór sem var að fara að syngja. Í fremstu röð frá vinstri: Þórunn Hólmgeirsdóttir, Sóley Sif Jónsdóttir, Ísabella Líf Tryggvadóttir og Arnrún Hildur Hrólfsdóttir. Í miðröð frá vinstri: Arna Rún Arnarsdóttir, Andri Már Gunnarsson, Gabríel Goði Tryggvason og Bylgja Hrund Ágústsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Karen/Rakel Elvarsdóttir, Karen/Rakel Elvarsdóttir, Ingólfur Eðvald Björnsson og Ólafur Halldórsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1224
Myndin var tekin á söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012. Á henni spjallar Halldór Gunnar Ólafsson kynnir keppninnar við tvær ungar söngkonur sem tóku þátt, Sóley Sif Jónsdóttur til vinstri og Arnrúnu Hildi Hrólfsdóttur til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1362
Tveir kúrekar á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012. Þórarinn Brynjar Ingvarsson og Vigdís Ósk Ómarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1007
Á hverju ári er haldið þorrablót á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sæborg. Þangað er gjarnan boðið ýmsum velunnurum heimilisins til að njóta veitinga og skemmtunnar með heimilisfólkinu. Þessi mynd var tekin 3. febrúar 2012 þegar eitt slíkt blót var að hefjast. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurjón Ástmarsson, Jóhann Björn Þórarinsson og Kári Sigurbjörn Lárusson.
Ólafur Bernódusson713
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni er Georg Þór Kristjánsson að kynna næsta atriði á dagskránni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1375
Mæðginin Margrét Matthildur Björnsdóttir og Kristinn Rúnar Kristjánsson í samkomutjaldinu á Hnappsstaðatúni á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012.
Axel Jóhann Hallgrímsson 72
Guðmundur Haukur Sigurðsson les upp á árshátíð Skagastrendings hf í Fellsborg haustið 1986.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 650
Vigdís Elva Þorgeirsdóttir verslunarstjóri býður fólk velkomið 4. desember 2014 í Samkaup á Skagaströnd á tilboðsdaga og jólauppákomu í versluninni.
María Magnúsdóttir - safn 372
Hrafnhildur Jóhannsdóttir til vinstri og Bára Þorvaldsdóttir til hægri í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) 1. maí 2009.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1084
Fannar Viggósson spilar á bassa með pabba sínum Viggó Brynjólfssyni sem spilar á harmonikuna. Myndin var tekin á jólaballi í Fellsborg 26. desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 626
Árný Hjaltadóttir - Dúdú - á Steinnýjarstöðum á árlegum jólamarkaði kvenfélagsins Heklu í Skagabúð 30. nóvember 2014.
Guðmundur Guðnason053
<P>Verðlaun afhent á hestamannamóti. Ef þú veist hverjir eru á myndinni og/eða hvar mótið fór fram vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</P>
Axel Jóhann Hallgrímsson 93
Sumarið 1979 fóru starfsmenn Skagstrendings hf saman í ferðalag til að skoða Mývatn og umhverfi þess. Á myndinni eru Ólafur Ingibjörnsson til vinstri og Vilhelm Þórarinsson til hægri í nestispásu í ferðinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1446
Guðrún Sigurðardóttir til vinstri og Guðbjörg Ólafsdóttir til hægri á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ í janúar 2012. Í baksýn sér í Gunnar S. Halldórsson vert í Kántrýbæ.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 524
Kaffi á kirkjuloftinu 9. mars 2014. Við borðið vinstra megin eru frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Hallbjörg Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, óþekkt, Magnús B. Jónsson og hjá þeim stendur Lárus Ægir Guðmundsson. Við borðið nær frá vinstri: Svava Kristinsdóttir, Pétur Eggertsson, Sylvía Hrólfsdóttir, Sigurður Ingimarsson, Björn Ingi Óskarsson, Guðrún Angantýsdóttir, Árdís Indriðadóttir og Dagný Hannesdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1401
Myndin var tekin á fimleikasýningu sem nemendur Höfðaskóla stóðu fyrir 18. desember 2012 undir leiðsögn kennara síns Höllu Karenar Gísladóttur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1252
Myndin var tekin þegar yfir stóð barna-íþróttamót USAH á Skagastrandarvelli 11. júlí 2012. Á myndinni eru frá vinstri: Kolbrún Jónsdóttir, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, með dóttur sína Sóley Sif Jónsdóttur í fanginu, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir og Arnar Ólafur Viggósson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1294
Lionfélagar á Skagaströnd hittu félaga sína í Skagafirði á fundi í Skagaseli 4. apríl 2012 og þá var þessi mynd tekin. Á henni eru frá vinstri: óþekkt kona, Sævar Rafn Hallgrímsson, Steinn Rögnvaldsson, óþekktur (situr) og Adolf H. Berndsen. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson996
Koddaslagur á skólalóðinni hjá Höfðaskóla á íþróttadegi skólanna í Austur- Húnavatnssýslu sem haldinn var á Skagaströnd í apríl 2001. Kristbjörg Una Guðmundsdóttir er dökklædd að koma sér fyrir á staurnum. Þórhalla Guðbjartsdóttir er kennarinn til vinstri með spennu í hárinu. Til vinstri eru líka Katrín Hólmsteinsdóttir í dökkri peysu með ljósum bekk á bringunni og henni á hægri hönd er Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir að fylgjast með slagnum. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1364
Jónas Skaftason (d.17.11.2017) til vinstri og Helgi Gunnarsson til hægri taka þátt í dorgveiðikeppni á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1404
Áhorfendur á fimleikasýningu sem nemendur Höfðaskóla stóðu fyrir 18. desember 2012 undir leiðsögn kennara síns Höllu Karenar Gísladóttur. Aftari röð frá vinstri: Lilja Ingólfsdóttir, Ásdís Erla Steingrímsdóttir, Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, Guðmundur Egill Erlendsson og Vigdís Þorgeirsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Bjarney Ragnhildur Jónsdóttir, Sonja Dröfn Helgadóttir, Kristján Helgi Gunnarsson og óþekkt stúlka.
María Magnúsdóttir - safn 364
Hjónin Guðbjörg Viggósdóttir og Magnús B. Jónsson með barnabarn sitt Aþenu Guðbjörgu Baldursdóttur í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016), móður Magnúsar, 1. maí 2009.
Axel Jóhann Hallgrímsson 68
Hafþór Gylfason til vinstri og Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002) til hægri á árshátíð Skagstrendings hf haustið 1983 í Fellsborg.
Ólafur Bernódusson989
21.3.2013 stóð Gleðibankinn fyrir bíósýningu í Bókasafni Halldórs Bjarnasonar. Sýndar voru þrjár stuttar myndir sem allar tengdust Skagaströnd á einhvern hátt. Húsfyllir var á sýningunni eins og sjá má og skemmti fólk sér hið besta.
Guðmundur Guðnason793
Andrés Baldursson, sem ólst upp í Þórshamri. Líklega er myndin tekin á fermingardaginn hans 1964.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1031
Trostan Agnarsson til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson til hægri á opnu húsi í Nes listamiðstöð 21. febrúar 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1208
Lionsmenn úr Lionklúbbi Skagastrandar með jólarósir sem þeir eru að fara að dreifa til eldra fólks á Skagaströnd um miðjan desember 2012. Frá vinstri: Sævar Rafn Hallgrímsson, Árni Geir Ingvarsson, Guðjón Guðjónsson, Róbert Þórðarson, Slavko Velemir og Adolf H. Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1043
19. september 2012 kom Luis E. Arreaga sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í heimsókn á Skagaströnd. Erindið var að veita Hallbirni J. Hjartarsyni viðurkenningu og heiðursskjal frá samtökum Kántrýtónlistarmanna í Bandaríkjunum - The Country Music Association - fyrir brautryðjendastarf Hallbjarnar á sviði kántrýtónlistar á Íslandi. Á myndinni tekur Hallbjörn lagið fyrir gesti á sviðinu í Kántrýbæ við undirleik m.a. Gunnars Þórðarsonar sem er með gítarinn til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 577
Á árshátíð Höfðaskóla 9. maí 2014 buðu nemendur upp á leiksýninguna Kardimommubærinn. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Linda Rún Einarsdóttir, Birta Dögg Bessadóttir, Sigurður Aron Björnsson, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Anton Einarsson, Jóna Margrét Sigurðardóttir og Rebekka Heiða Róbertsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 370
Hjalti Árnason (d.4.7.2010) bóndi á Skeggjastöðum í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) 1. maí 2016.
Guðmundur Guðnason775
Hafsteinn Jónasson frá Njálsstöðum flytur ræðu við vígslu Höskuldsstaðakirkju 1963.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1282
Ánægð fjölskylda með jólatréð sitt úr skóginum á Gunnfríðarstöðum 16. desember 2012. Fjölskyldumeðlimirnir eru frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Ísak Andri Jónsson, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, Jón Ólafur Sigurjónsson og Sóley Sif Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1366
Hjalti Viðar Reynisson hleður fallbyssu sveitarfélagsins á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012. Fallbyssan er eftirlíking slíkrar byssu sem var staðsett uppi á Höfða hér á öldum áður en er nú týnd og tröllum gefin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1238
Á söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012 var fullt hús og fátt um sæti. Þess vegna settust þessir þrír ungu herramenn á gólfið og fylgdust með þaðan. Frá vinstri: Daði Snær Stefánsson, Leifur Örn Ragnarsson og Sigurður Aron Björnsson.
Axel Jóhann Hallgrímsson 81
Sigursveit í kappróðri á sjómannadegi með verðlaunapeninga í barminum og bikarinn í höndum. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin. Aftari röð frá vinstri: Jón Gunnar Jósefsson, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018), Rúnar Jósefsson og Geir Gígja? Fremri röð frá vinstri: Ragnar Högnason, Eiður Hilmarsson og Finnur Kristinsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 465
Þessi mynd var tekin af hópnum sem var á jólaballi í Fellsborg 28. desember 2013. Á sviðinu eru tónlistarmennirnir frá vinstri: Hjörtur Þór Guðbjartsson, Fannar Viggósson og Viggó Brynjólfsson.
Axel Jóhann Hallgrímsson 6
Í tunnuboðhlaupi verða menn að sprengja blöðru í tunnunni með því að blása í hana. Ekki er vitað hver maðurinn í tunnunni er en Jón Ingi Ingvarsson situr á hækjum sér og fylgist með. Aftan við Jón í dökkri kápu með gleraugu er Hallbjörg Jónsdóttir í Þórsmörk. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var líklega tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 653
Hjónin Sigríður Stefánsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson syngja á uppákomu í Samkaupum á Skagaströnd 4. desember 2014.
Guðmundur Guðnason025
Fermingarbörn 1960 í Hólaneskirkju ásamt Séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Fermingarbörnin eru frá vinstri í efri röð: Stefán Ingólfsson (d. 21.10.2004), Ómar Þorbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Helgi Jónatansson (d.22.8.2020). Fremri röð frá vinstri: Dagný Hannesdóttir, Magdalena Axelsdóttir (d.3.7.2015), Pálfríður Benjamínsdóttir, Guðrún Þórbjarnardóttir og Kristín Lúðvíksdóttir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 25
Magnús B. Jónsson, þáverandi sveitarstjóri á Skagaströnd, á sjómannadegi 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1454
Vinirnir, frá vinstri: Aldís Embla Björnsdóttir, Aron Breki Hjartarson og Eva Dögg Björgvinsdóttir. Myndin var tekin 2. júní 2012 á sjómannadegi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 420
Fjórar vinkonur á þorrablóti í Fellsborg 2. febrúar 2013. Frá vinstri: Sigurbjörg Birta Berndsen, Sigurlaug Máney Sæmundsen, Heba Líf Jónsdóttir og Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 627
Myndin var tekin á árlegum jólamarkaði kvenfélagsins Heklu í Skagabúð 30. nóvember 2014. Auk ýmiss konar söluvarnings sem stendur þar til boða er selt kaffi og með því þennan dag, sem er afar vinsælt. Á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Lárus Ægir Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1038
Signý Richter til vinstri og Sigrún Guðmundsdóttir til hægri á grímuballi Höfðaskóla 22. febrúar 2012.
Arnar HU 1 - safn 21
Guðríður Líneik Daníelsdóttir í grillveislu áhafnar Arnars HU 1 í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær veislan var haldin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1452
Þráinn Bessi Gunnarsson á vélfáki sínum á sjómannadegi 2. júní 2012.
Axel Jóhann Hallgrímsson 49
Vinirnir Axel Jóhann Hallgrímsson (d. 25.2.2018) og Björk Sveinsdóttir í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009. Aftan við þau sér í Merete Rabölle.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1035
Egill Örn Ingibergsson í búningi sínum á grímuballi Höfðaskóla 22. febrúar 2012.
Axel Jóhann Hallgrímsson 14
Myndin var tekin á sjómannadegi einhverntíma á sjöunda áratugnum. Á henni taka Sævar Hallgrímsson, til vinstri, og óþekktur maður þátt í leik sem felst í því að ná í epli með tönnunum á botni þvottabala sem er fullur af köldu vatni. Áhorfendur skemmta sér vel yfir andköfum keppendanna.
1
…
65
66
67
…
104
Leita í myndasafninu
Leita