Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 499
Magnús B. Jónsson til vinstri og Guðni Már Lýðson til hægri leika á þorrablóti í Fellsborg í febrúar 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 420
Fjórar vinkonur á þorrablóti í Fellsborg 2. febrúar 2013. Frá vinstri: Sigurbjörg Birta Berndsen, Sigurlaug Máney Sæmundsen, Heba Líf Jónsdóttir og Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1035
Egill Örn Ingibergsson í búningi sínum á grímuballi Höfðaskóla 22. febrúar 2012.
María Magnúsdóttir - safn 350
Myndin var tekin í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) 1. maí 2009. Á myndinni er Elísabet Árnadóttir (d. 16.3.2017) til vinstri, María er í miðjunni en bróðir hennar, Björn Magnússon (d.13.11.2010) bóndi á Syðra-Hóli, er til hægri.
Ólafur Bernódusson999
Skólarnir í Austur-Húnavatnssýslum héldu sameiginlegan íþróttadag á Skagaströnd í apríl 2001. Þar var keppt í ýmsum hefðbundnum greinum íþrótta en einnig óhefðbundnum og síðan endað með diskóteki í Fellsborg um kvöldið. Þessi mynd var tekin af nemendum að fylgjast með keppni í íþróttahúsinu. Frá vinstri: óþekkt, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Hanna Gestsdóttir, Sonja Hjördís Berndsen, Eyþór Kári Egilsson, Stefán Agnar Gunnarsson, óþekktur, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, tveir óþekktir og Jón Atli Magnússon.
María Magnúsdóttir - safn 357
Fannar Viggósson (situr) og Viggó Magnússon skemmta með tónlist í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) 1. maí. María er lengst til vinstri á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 460
Myndin var tekin í jólamessu í Hofskirkju á jóladag 2013. Á henni skemmta sér, áður en messan hefst, sambýlisfólkið á Brandaskarði Monika Tischleder og Jens Jónsson með son sinn Jón Benedikt Tischleder Jensson á milli sín. Aftar sér í Rafn Sigurbjörnsson bónda á Örlygsstöðum 2.
María Magnúsdóttir - safn 358
María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) til vinstri með systur sinni Ásdísi Magnúsdóttur í 90 ára afmæli Maríu 1. maí 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 442
Hjónin Guðrún Pálsdóttir og Ólafur Bernódusson á jólabókakvöldi Gleðibankans í Bjarmanesi 11. desember 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 492
Lárus Ægir Guðmundsson veislustjóri á þorrablóti í Fellsborg að fara með gamanmál. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason121
<P>Séra Pétur þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) skírir Ólaf Kristjánsson frá Höskuldsstöðum í fermingarmessu í Höskuldsstaðakirkju sennilega árið 1969. Foreldrarnir Kristján Sigurðsson (d.4.12.2019) og Helga Guðmundsdóttir færa son sinn til skírnar.</P>
Axel Jóhann Hallgrímsson 67
Guðjón Pálsson (d.14.12.1989) á árshátíð Skagstrendings hf í Fellsborg haustið 1983.
Axel Jóhann Hallgrímsson 1
Í október 1967 björguðu strákarnir á myndinni fjórum börnum frá drukknun af heimasmíðuðum fleka sem þau voru á. Börnin fjögur voru öll komin í sjóinn þegar þeir komu til þeirra á bát og náðu þeim um borð. Þá voru þrjú barnanna orðin meðvitundarlaus en þau voru öll lífguð við þegar í land var komið og náðu sér að fullu. Strákarnir tveir, Rúnar Kristjánsson til vinstri og Frits Bjarnason til hægri voru síðan heiðraðir á sjómannadeginum 1968 fyrir þetta afrek sitt.
María Magnúsdóttir - safn 375
Halla Lýðsdóttir í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (2.2.2016) 1. maí 2009.
Guðmundur Guðnason267
Vignir Sveinsson frá Tjörn (nú Höfnum) til vinstri og Kristján Steinar Kristjánsson frá Steinnýjarstöðum með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996) í Hofskirkju á fermingardaginn sinn árið 1980.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 435
Rakel Jensína Jónsdóttir til vinstri og Ásdís Birta Árnadóttir til hægri í veislu í Bjarmanesi 24.apríl 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1221
Klara Ósk Hjartardóttir syngur í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1357
Bræður í veislu í Skagabúð í lok maí 2012. Vinstra megin er Hjalti Viðar Reynisson en hægra megin er Davíð Reynisson. Tilefni veislunnar er óþekkt.
Ólafur Bernódusson 725
Sara Rut Fannarsdóttir að syngja í söngvakeppni Höfðaskóla, Garginu, í Fellborg 6. mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 563
Adolf H. Berndsen og Péturína Laufey Jakobsdóttir á framboðsfundi í Fellsborg 28. apríl 2014.
Guðmundur Guðnason 2 503
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps hélt upp á 60 ára afmæli sitt árið 1985 í Húnaveri. Þá var þess mynd tekin af kórnum að syngja fyrir húsfylli af gestum. Nöfn þeirra sem sjást á myndinni verða ekki talin upp hér heldur er þér leyft að njóta þessa að þekkja fólkið á henni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 690
Öllum lífverum er eðlislægt að reyna að koma genum sínum áfram til næstu kynslóðar. Lífverur nota ýmsar aðferðir til að ná þessu markmiði sínu en t.d. spendýr hafa öll innri frjóvgun þar sem nýr einstaklingur þróast innan líkama móðurinnar eftir getnað. Flestir fiskar hafa aftur á móti ytri frjóvgun þar sem egg og sæði (hrogn og svil) sameinast utan líkama móðurinnar og þróast þar í nýjan einstakling. Á myndinni, frá 1. júlí 2014, er náttúran að hafa sinn eðlilega gang hjá hrossunum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1044
19. september 2012 kom Luis E. Arreaga sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í heimsókn á Skagaströnd. Erindið var að veita Hallbirni J. Hjartarsyni viðurkenningu og heiðursskjal frá samtökum Kántrýtónlistarmanna í Bandaríkjunum - The Country Music Association - fyrir brautryðjendastarf Hallbjarnar á sviði kántrýtónlistar á Íslandi. Margir samstarfsmenn Hallbjarnar gegnum árin komu í Kántrýbæ til að vera viðstaddir við þetta tækifæri. Á myndinni er Hallbjörn með Friðriki Þór Friðrikssyni kvikmyndagerðarmanni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 630
Sólveig Erla Baldvinsdóttir situr hjá ömmu sinni Maríu Kristjánsdóttur (d.27.6.2017) á Tjörn á árlegum jólamarkaði kvenfélagsins Heklu í Skagabúð 30. nóvember 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 468
Ólafur Bernódusson vinstra megin og Guðmundur J. Björnsson til hægri fylgast með áramótabrennunni á gamlaárskvöldi 2013. Lengra til hægri er Guðrún Pálsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1351
Eitt af því sem fólk skemmti sér við á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012 var vatnsfótbolti. Hvort lið fyrir sig fékk þá úthlutað öflugri vatnsslöngu og mátti beita henni að vild. Á myndinni eru nokkrir kappar rennblautir að leik loknum, frá vinstri: Elías Gunnar Hafþórsson, Jón Atli Magnússon, Sindri Njáll Hafþórsson, Ásþór Óðinn Egilsson, Arnór Snorri Gíslason og Kristján Pétur Guðjónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 618
Fólk fylgist með skemmtiatriðum við höfnina á sjómannadegi 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 612
Guðni Már Lýðsson í hlutverki kynnis á skemmtidagskrá á sjómannadegi 2014.
María Magnúsdóttir - safn 371
Hjónin Guðný Sigurðardóttir og Hallbjörn Björnsson í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) 1. maí 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 424
Andrea Casper talar við börnin sín Zeliu Casper og Lazer Casper á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg 13. febrúar 2013.
María Magnúsdóttir - safn 353
Hjónin Ingunn Hjaltadóttir og Björn Magnússon (d.13.11.2010) bændur á Syðra-Hóli í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.1016), systur Björns, 1. maí 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 674
Brennuvargar leggja síðustu hönd á áramótabrennu kvöldsins 31. desember 2014. Efst trónir Stefán Sveinsson og neðan við hann eru Páll Halldórsson, Birkir Gunnarsson og þrír óþekktir. Maðurinn í bláa gallanum til vinstri er líka óþekktur
Axel Jóhann Hallgrímsson 14
Myndin var tekin á sjómannadegi einhverntíma á sjöunda áratugnum. Á henni taka Sævar Hallgrímsson, til vinstri, og óþekktur maður þátt í leik sem felst í því að ná í epli með tönnunum á botni þvottabala sem er fullur af köldu vatni. Áhorfendur skemmta sér vel yfir andköfum keppendanna.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1294
Lionfélagar á Skagaströnd hittu félaga sína í Skagafirði á fundi í Skagaseli 4. apríl 2012 og þá var þessi mynd tekin. Á henni eru frá vinstri: óþekkt kona, Sævar Rafn Hallgrímsson, Steinn Rögnvaldsson, óþekktur (situr) og Adolf H. Berndsen. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Axel Jóhann Hallgrímsson 52
Félagarnir Björn Hallbjörnsson til vinstri og Jóhannes Sveinsson til hægri fylgjast með dorgveiðikeppni á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 449
Gleðibankinn stendur árlega fyrir upplestri úr nokkrum jólabókum á aðventunni. Eru þá fengnir nokkrir upplesarar af íbúum Skagastrandar til að lesa stutta kafla úr nýjum bókum ársins. Á þessari mynd, sem tekin var á slíku upplestrarkvöldi 11. desember 2013 í Bjarmanesi, les Guðrún Pálsdóttir úr bókinni Við Jóhanna eftir Jónínu Leósdóttur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 489
Myndin var tekin á árlegu þorrablóti heimilisfólks á Sæborg og gesta þeirra. Eiríkur Lýðsson er til vinstri en Sigurjón Ástmarsson til hægri. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 368
Þráinn Þorbjörnsson í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) 1. maí 2009.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1432
Myndin var tekin á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ 21. janúar 2012. Þá hittust félagar í kórnum eina kvöldstund með mökum sínum, borðuðu góðan mat og skemmtu sér saman. Á þessari mynd er Hafþór Smári Gylfason að skemmta félögum sínum í kórnum með frumflutningi á eigin lagi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 475
Finnur Kristinsson yfirvélstjóri á Arnari Hu 1 tekur pásu frá önnum við að gera skipið sjóklárt 6. júlí 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 546
Hafdís Ásgeirsdóttir 20. september 2014 á Hnappstaðatúninu.
Axel Jóhann Hallgrímsson 37
Hjónin Slavko Velemir og Birna Sveinsdóttir í Kántrýbæ á sjómannadaginn 2008. Til hægri er Óskar Þór Kristinsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 498
Óþekktur dansari, sem dvaldi í Nes listamiðstöð í júlí 2014, sýnir dans utan við vinnustofuna á opnu húsi þar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 512
Nokkur hópur listakvenna hélt samsýningu í sundlauginni á Skagaströnd í ágúst 2014. Á myndinni eru tveir gestir sýningarinnar með eina af listakonunum á milli sín. Frá vinstri : Steindór Haraldsson, Hrafnhildur Sigurðardóttir og Ólafur Bernódusson.
Ólafur Bernódusson 726
Sonja sif Ólafsdóttir syngur í söngvakeppni Höfðaskóla, Garginu, í Fellsborg 6. mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 419
Ungir menn á þorrablóti í Fellsborg 2. febrúar 2013. Frá vinstri: Elvar Geir Ágústsson, Ernst Guðni Hólmgeirsson, Sæþór Bragi Ágústsson og Sigurjón Elí Eiríksson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 444
Gleðibankinn stendur árlega fyrir upplestri úr nokkrum jólabókum á aðventunni. Eru þá fengnir nokkrir upplesarar af íbúum Skagastrandar til að lesa stutta kafla úr nýjum bókum ársins. Á þessari mynd, sem tekin var á slíku upplestrarkvöldi 11. desember 2013 í Bjarmanesi, eru Gleðibankastjórarnir Ólafur Bernódusson til vinstri og Ingibergur Guðmundsson til hægri að bjóða fólk velkomið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 452
Gleðibankinn stendur árlega fyrir upplestri úr nokkrum jólabókum á aðventunni. Eru þá fengnir nokkrir upplesarar af íbúum Skagastrandar til að lesa stutta kafla úr nýjum bókum ársins. Á þessari mynd, sem tekin var á slíku upplestrarkvöldi 11. desember 2013 í Bjarmanesi, les Magnús Stefánsson úr bókinni Útkall - lífróður eftir Óttar Sveinsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 572
Nemendur 9. bekkjar Höfðaskóla gera útitilraun í sambandi við viðnám og mótstöðu framan við íþróttahúsið með kennara sínum Ólafi Bernódussyni í október 2014. Frá vinstri: Jóna Margrét Sigurðardóttir, óþekkt, Ólafur Bernódusson kennari (fjær), óþekktur (nær), Jóhannes Sigurpálsson, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Sonja Albertsdóttir, Sigurður Aron Björnsson, Elín Ósk Björnsdóttir, Rebekka Heiða Róbertsdóttir og Arnrún Guðjónsdóttir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 99
Fermingarbörn ársins 1971 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1991 með því að eiga saman góða kvöldstund í kaffistofu Hólaness hf. Á myndinni er hópurinn ásamt kennara sínum til margra ára, Elínborgu Jónsdóttur (d. 7.1.2007). Á myndinni eru frá vinstri: Inga Stefánsdóttir? (nær), Vilhelm Þórarinsson (fjær), Guðrún Elvan Friðriksdóttir (d.14.2.2008), Guðjón Guðjónsson, Elínborg, Guðmundur Viðar Guðmundsson, Unnur Gunnarsdóttir, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018), Sesselja Guðmundsdóttir og Málfríður Jóhannsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1077
Þrír félagar úr Lionklúbbi Skagastrandar að undirbúa jóla-barnaball í Fellsborg 26. desember 2012. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Guðjón Guðjónsson og Gunnar Reynisson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1225
Sóley Sif Jónsdóttir vinstra megin og Arnrún Hildur Hrólfsdóttir til hægri taka þátt í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Þessi mynd var tekin í Blönduóskirkju. Fremst er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996). Fyrir aftan hann með hatt er kona hans Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) en fyrir aftan hana situr svo sonur þeirra Pétur Ingjaldur Pétursson. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1337
Formleg opnun Jónsstígs um skógrækt Skagstrendinga fór fram 17. ágúst 2012. Á myndinni eru María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) ekkja Jóns Jónssonar (d.9.7.1991) fyrrum formanns Skógræktarfélags Skagastrandar, sem stígurinn er nefndur eftir og dóttir þeirra Fjóla Jónsdóttir. María afhjúpaði skiltið sem vísar veginn inn á Jónsstíg.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 386
Sigrún Líndal Þrastardóttir á unglingamóti USAH á Skagastrandarvelli 10. júlí 2013.
Axel Jóhann Hallgrímsson 87
Hjónin Björgvin Karlsson og Bóel Hallgrímsdóttir í sumarferð starfsfólks og stjórnar Skagstrendings hf um suðurland í júní 1992.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Á þessari mynd er fjölskylda herra Karls Sigurbjörnssonar biskups. Frá vinstri: óþekkt dóttir, Guðjón Karl Karlsson, Kristín Guðjónsdóttir, óþekkt fermingarstúlka, dóttir og herra Karl Sigurbjörnsson biskup.
María Magnúsdóttir - safn 360
Systkinin frá Syðra-Hóli í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) 1.maí 2009. Systkinin eru frá vinstri: Ásdís Magnúsdóttir, Björn Magnússon (d.13.11.2010), María og Hólmfríður Magnúsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1233
Guðný Eva Björnsdóttir vinstra megin og Laufey Lind Ingibergsdóttir til hægri taka þátt í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1443
Hafþór Smári Gylfason á skemmtikvöldi kirkjukórs Hóalneskirkju í Kántrýbæ í janúar 2012.
1
…
66
67
68
…
104
Leita í myndasafninu
Leita