Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
María Magnúsdóttir - safn 348
Mæðgurnar María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) og Fjóla Jónsdóttir í 90 ára afmæli Maríu 1. maí 2009.
María Magnúsdóttir - safn 355
Myndin var tekin 1. maí 2009 í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016). Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: Sigríður Stefánsdóttir, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Guðrún Pálsdóttir og Hjördís Sigurðardóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
<p>Þessi mynd var tekin í Bergstaðarkirkju í Svartárdal. Katrín Grímsdóttir frá Steiná er fyrir miðju í kórnum í gráum jakka og hvítri blússu. Sigurjón Guðmundsson frá Fossum er lengst til hægri í kórnum, Guðmund Valtýsson ber við stóra ofninn og Runólfur Aðalbjörnsson er honum á hægri hönd. Tilefni myndatökunnar er óþekkt en á henni eru óvenju margir prestar. </p><p><br></p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 1478
Árni Geir Ingvarsson uppi í körfunni að byrja að koma fyrir ljósaperum á jólatrénu á Hnappstaðatúninu í lok nóvember 2012. Sigurbjörn Björgvinsson stjórnar krananum á bíl sínum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 683
Lilja Ingólfsdóttir til vinstri og hjónin Þórunn Bernódusdóttir og Guðmundur J. Björnsson fylgjast með hátíðahöldum vegna opnunar göngubrúar yfir Hrafná 23. júní 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 69
Myndin var tekin á árshátíð Skagstrendings hf haustið 1983 í Fellsborg. Í forgrunni eru Eiður Hilmarsson til vinstri og Hjörtur Guðbjartsson til hægri. Lengst til hægri grillir í Jón Inga Ingvarsson en milli hans og Hjartar sér í Önnu Sjöfn Jónasdóttur. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason073
Sveinn Hall Másson frá Réttarholti á fermingardaginn sinn 1967
Ólafur Bernódusson976
Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna eða SH var stofnað í febrúar 1942. 1992 hélt SH upp á 50 ára afmæli sitt með því að bjóða starfsfólki hraðfrystihúsanna, sem mynduðu sölumiðstöðina, til kaffiveislu. Þessi mynd var tekin í veislunni í kaffistofu Hólaness hf. Hægra megin við borðið eru, talið frá hægri: Málfríður Jóhannsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Sigrún Benediktsdóttir, og óþekkt stúlka. Standandi við borðsendann er Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) en sitjandi er Katrín Sigurjónsdóttir (Stella)(d. 8.12.2003). Vinstra megin við borðið eru, talið inn eftir borðinu: Sólveig Róarsdóttir, tvær óþekktar konur, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997), Guðrún Angantýsdóttir og óþekktir. Við borðið til vinstri sér í Hauk Gunnlaugsson (d.18.1.2004) með gleraugu.
Axel Jóhann Hallgrímsson 86
Stjórn og starfsmenn Skagstrendings hf, ásamt mökum, fóru saman í ferðalag um suðurland í júní 1992. Ferðin þótti takast mjög vel og var oft mikið fjör á gististöðum á kvöldin með söng og spjalli. Á þessari mynd eru frá vinstri: Björgvin Karlsson (nær), Fanney Zophoníasdóttir (fjær), Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017), Halldóra Þorláksdóttir (d.27.12.2017) og Guðrún Guðbjörnsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1421
Minningarstund við minnismerki um drukknaða sjómenn hjá Hólaneskirkju. Á sjómannadegi er ávalt lagður blómakrans við minnismerkið að lokinni messu í kirkjunni. Þessi mynd var tekin eftir messu 2. júní 2012 en á henni eru frá vinstri: séra Úrsula Árnadóttir, Sigurjón Guðbjartsson, Friðvin Ingi Ernstson og Birta Dögg Bessadóttir en þau tvö lögðu kransinn að minnismekinu með hjálp Sigurjóns.
Guðmundur Guðnason869
Ísleifur Haraldsson á fermingardaginn sinn 1961.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 621
Sveitastjórnarkosningar 2014 bar upp á sjómannadaginn það ár. Á myndinni eru glaðbeittir frambjóðendur og kjósendur utan við skólann þar sem kjörfundur fór fram. Frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Halldór Gunnar Ólafsson en þeir tveir voru í framboði, Sigurjón Guðbjartsson, Helgi Gunnarsson, Sverrir Brynjar Berndsen og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018).
Axel Jóhann Hallgrímsson 97
Sumarið 1979 fóru starfsmenn Skagstrendings hf í ferð að Mývatni til að skoða það og nágrenni þess. Á þessari mynd eru frá vinstri, fremst: Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017), Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018), Elín Njálsdóttir, Halldóra Þorláksdóttir (d.27.12.2017) og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir. Aftar frá vinstri: Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011), Árni Ólafur Sigurðsson og Charlotta Traustadóttir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 47
Guðmundur Rúnar Kristjánsson trésmiður og skáld á leið í búðina á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 638
Myndin var tekin 1. desember 2014 í Fellsborg á skólauppákomu Höfðaskóla í Fellsborg. Við borðið í forgrunni eru frá vinstri: Vilhelm B. Harðarson, Gunnar Reynisson, Jónmundur Ólafsson (d.19.4.2017) og Vilhjálmur Skaftason. Við borðið til vinstri eru hjónin Stefán Jósefsson og Sigríður Gestsdóttir til vinstri en Lárus Ægir Guðmundsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 462
Fannar Viggósson spilar og syngur á jólaballi í Fellsborg 28. desember 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 615
Steindór Haraldsson tekur utan um vinkonu sína Lovísu Vattnes (d.26.3.2018) á sjómannadaginn 2014.
María Magnúsdóttir - safn 354
Þórey Fjóla Aradóttir til vinstri með ömmu sinni Fjólu Jónsdóttur til hægri í 90 ára afmæli langömmu sinnar, Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016), 1. maí 2009.
Axel Jóhann Hallgrímsson 78
Ernst Berndsen fer með gamanmál á árshátíð Skagstrendings hf í Fellsborg haustið 1986
Árni Geir Ingvarsson - safn 1449
Hjónin Hjördís Sigurðardóttir og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ í janúar 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 632
Adolf H. Berndsen til vinstri og Sigurður Bjarnason til hægri í Skagabúð á árlegum jólamarkaði kvenfélagsins Heklu þar 30. nóvember 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 62
Fylgst með skemmtiatriðum á túninu sunnan við Árnes á Kántrýhátíð í ágúst 2009. Frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Ólafur Bernódusson með afastrákinn Ólaf Halldórsson í fanginu og Guðmundur J. Björnsson lengst til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1338
Eftir vikulangt dansnámskeið í Höfðaskóla og Barnabóli var haldin danssýning 12. október 2012 þar sem nemendur sýndu það sem þeir höfðu lært. Á þessari mynd fylgjast nokkrir nemendur með öðrum dansa og bíða eftir að röðin komi að þeim sjálfum. Í fremri röð frá vinstri: Ingólfur Eðvald Björnsson, Ívan Orri Eiríksson, Jóhann Almar Reynisson og Arna Rún Arnarsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Kristmundur Baldvinsson, Daði Snær Stefánsson, Dagur Freyr Róbertsson, Ólafur Halldórsson og Pétur Atli Árnason.
Axel Jóhann Hallgrímsson 56
Skipstjórarnir Árni Ólafur Sigurðsson til vinstri og Gunnar Sveinsson til hægri á spjalli í samkomutjaldinu á Kántrýihátíð í ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1369
Tengdamæðgurnar Ardís Ólöf Arelíusdóttir (d.12.9.2018) til vinstri og Erna Berglind Hreinsdóttir til hægri fylgjast með fyrirlestri um hafnargerð á Skagaströnd í Bókasafni Halldórs Bjarnasonar í Gamla kaupfélaginu sem haldin var 13. október 2012.
Axel Jóhann Hallgrímsson 35
Óskar Þór Kristinsson spjallar við Rúnar Jósefsson á sjómannadaginn 2008 í Kántrýbæ.
Guðmundur Guðnason071
Fermingarbörn 1967 í Hólaneskirkju (gömlu). Fremsta röð frá vinstri: Sveinn Hall Másson, Edda Þórarinsdóttir, Ólína Bjarnadóttir, Inga Stefánsdóttir, Finnur Kristinsson. Miðröð frá vinstri: Haraldur Árnason, Sigurður Þorbjörnsson, Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001), Jón Geir Jónatansson, Jón Jósefsson, Guðmundur Kristinsson. Aftasta röð frá vinstri: Karl Guðmundsson, Gylfi Jóhannsson, Sigurður Sigurðsson, Benóný Gunnarsson, Böðvar Jónsson, og Ingibergur Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 636
Myndin var tekin í Fellsborg 1. desember 2014, tilefnið er óþekkt. Hjónin Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) og Hrefna Björnsdóttir (d.8.10.2018) til vinstri spjalla við Lísebet Gestsdóttur til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 646
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri kveikir á jólatré á Hnappstaðatúni 4. desember 2014. Hjá honum stendur ungur hjálparsveinn hans, Ísak Andri Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1292
Hjónin Jón Ólafur Sigurjónsson og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir drekka kakó í Gunnfríðarstaðaskógi eftir að hafa fundið og keypt jólatré til að hafa hjá sér um jólin 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 438
Árlega stendur kvenfélagið Hekla í Skagabyggð fyrir jólabasar í Skagabúð. Þar selja hinir og þessir varning sinn og kvenfélagið selur kaffi og með því. Þessi mynd var tekin á basarnum 1. desember 2013 af tveimur kvenfélagskonum í eldhúsinu, Dagný Rósa Úlfarsdóttir frá Ytra-Hóli til vinstri og María Kristjánsdóttir (d. 27.6.2017) frá Tjörn til hægri.
Guðmundur Guðnason861
Fermingarbörn 1961 í Hólaneskirkju. Aftasta röð frá vinstri: Jóhann Björn (Baddi) Þórarinsson, Jóhann Ingibjörnsson, Páll Jónsson (d.19.7.1979) organisti, Búi Birgisson (d.18.9.2009), Sigurður Bjarnason og Ísleifur Haraldsson. Miðröð frá vinstri: Hrefna Júlía Viggósdóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir, Sigrún Kristófersdóttir og Pétur Jóhannsson. Fremsta röð frá vinstri: Steinunn Margrét Ellertsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir og Fjóla Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 434
Þórlaug Svava Arnardóttir gengur um beina í kosningakaffi í Bjarmanesi 27. apríl 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 506
Myndin var tekin í ágúst 2014 þegar opnaður var höggmyndagarður Erlendar Magnússonar framan við stjórnsýsluhúsið. Myndirnar eru allar úr járnarusli úr fórum endurvinnslu Hringrásar. Erlendur, í ljósbrúnum mittisjakka, snýr baki í ljósmyndrann meðan hann útskýrir verkin fyrir gestum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1298
Steinn Leó Rögnvaldsson heldur tölu á sameiginlegum fundi Lionklúbbsins á Skagaströnd og í Skagafirði 4. apríl 2012 í félagsheimilinu Skagaseli.
Ólafur Bernódusson993
Ljósmyndasafnið óskar öllum gleðiríks góðs nýs árs um leið og það þakkar alla hjálp á árinu 2018. Safnið óskar allaf eftir að fá að láni myndir sem fólk á heima hjá sér og tengjast Skagaströnd á einn eða annan hátt. Öllum myndum er skilvíslega skilað aftur til eigenda sinna eftir að þær hafa verið skannaðar og settar út á netið. Ljósmyndasafnið er jú sameign okkar allra og því fleiri myndir sem þar eru því skemmtilegra verður það. Þar eru nú aðgengilegar um 13.500 myndir sem allar tengjast Skagaströnd á einn eða annan hátt. Lifið heil.
Guðmundur Guðnason907
Áslaug Hafsteinsdóttir á Lúsíudegi
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 573
Myndin var tekin 14. desember 2014 í Hólaneskirkju af, frá vinstri: séra Bryndís Valbjörnsdóttir, Kristín Árnadóttir djákni og séra Dalla Þórðardóttir prófastur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 613
Í mörg ár voru þeir skipsfélagar á togurum Skagstrendings hf Finnur Kristinsson til vinstri og Sævar Hallgrímsson til hægri. Þessi mynd af þeim félögum var tekin á sjómannadegi 2014.
María Magnúsdóttir - safn 346
Adolf H. Berndsen í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) 1. maí 2009.
Guðmundur Guðnason244
Bergþóra Huld Birgisdóttir og Ingvar Jónsson á fermingardaginn sinn í Hólaneskirkju (eldri).
Axel Jóhann Hallgrímsson 91
Stjórn og starfsmenn Skagstrendings hf, ásamt mökum, fóru saman í ferðalag um suðurland í júní 1992. Oft var fjör á kvöldin á gististöðum hópsins, mikið sungið og spjallað. Á þessari mynd eru frá vinstri: Helga Jóhannesdóttir, Guðný Sigurðardóttir og Hallbjörn Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 493
Sungið á þorrabblóti. Textinn fjallaði um tilraunir Steindórs Haraldssonar til að búa til nýja síldarrétti. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Árni Eðvarðsson, Guðni Már Lýðsson, Sigríður Stefánsdóttir, Hafþór Gylfason, Hallbjörg Jónsdóttir, Ólafur Bernódusson og Eygló Amelía Valdimarsdóttir. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 365
Ragnheiður Linda Kristjánsdóttir með ömmustelpuna Karen Líf Sigurbjargardóttur í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) 1. maí 2009. Í baksýn spjalla Halldór Gunnar Ólafsson og Guðrún Pálsdóttir við Jón Bjarnason fyrrverandi ráðherra.
Axel Jóhann Hallgrímsson 33
Myndin var tekin á sjómannadegi 2008 í Kántrýbæ. Sjómennirnir á myndinni eru frá vinstri: Jónas Fanndal Þorvaldsson, Daníel Guðmundsson, Guðni Már Lýðsson, Ómar Ingi Ómarsson og Kristján Pétur Guðjónsson. Aftan við þilið stendur Gylfi Guðjónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 619
Ragnar Már Björnsson tekur þátt í erfiðum og hrollköldum leik á sjómannadegi 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1433
Myndin var tekin á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ 21. janúar 2012. Þá hittust félagar í kórnum eina kvöldstund með mökum sínum, borðuðu góðan mat og skemmtu sér saman. Á myndinni eru Guðrún Guðbjörnsdóttir til vinstri og Guðrún Pálsdóttir til hægri. Í baksýn sér í Sigurð Bjarnason.
Axel Jóhann Hallgrímsson 50
Einar Gunnarsson á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
María Magnúsdóttir - safn 356
Halldór Gunnar Ólafsson ávarpar Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) í 90 ára afmæli hennar 1. maí 2009. María hlustar brosandi á klædd í svarta peysu með fjólubláan trefil. Við hlið hennar situr systir hennar Ásdís Magnúsdóttir en lengst til vinstri sér í Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011). Við hlið hans sitja konan hans Sigrún Guðmundsdóttir og dóttir Hafdís Ásgeirsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 732
Myndin var tekin á bókasafni Halldórs Bjarnasonar í Gamla kaupfélagshúsinu 31.október 2013 þegar þar fór fram skáldakynning. Á myndinni eru Adolf H. Berndsen og Dr. Lára Magnúsardóttir þáverandi forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands Norðurlandi vestra á Skagaströnd. Í baksýn er skáldið Jón Kalman Stefánsson að skoða bókakost safnsins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1374
Berlind Karlsdóttir er lengst til vinstri á myndinni en bróðir hennar, Kristján Karlsson, er til hægri. Milli þeirra er maður Berlindar, Jón Brynjar Sigmundsson. Myndin var tekin af þeim í samkomutjaldinu á Hnappsstaðatúni á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 663
13. júní 2013 hittist starfsfólk Greiðslustofu Vinnumálastofnunar ásamt mökum í veiðihúsi á Laxárdal. Fólkið grillaði saman og spjallaði fram eftir degi. Á myndinni eru Baldur Magnússon og Sonja Dröfn Helgadóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1363
Tveir Magnúsar spjalla á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012. Magnús Jónsson fyrrverandi bóndi á Hafursstöðum til vinstri og Magnús Hjaltason (d.16.6.2014) fyrrverandi bóndi á Bakka til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 576
Mynd frá árshátíð Höfðaskóla 9. maí 2014. Þá sýndu nemendur leikritið Kardimommubær. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Anton Einarsson, Jóna Margrét Sigurðardótir, Rebekka Heiða Róbertsdóttir og Elmar Jóhann Grétarsson.
Axel Jóhann Hallgrímsson 34
Guðjón Guðjónsson skipstjóri á sjómannadaginn 2008.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1437
Myndin var tekin á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ 21. janúar 2012. Þá hittust félagar í kórnum eina kvöldstund með mökum sínum, borðuðu góðan mat og skemmtu sér saman. Þessi mynd sýnir að fólk skemmti sér vel þetta kvöld. Frá vinstri: Myndin var tekin á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ 21. janúar 2012. Þá hittust félagar í kórnum eina kvöldstund með mökum sínum, borðuðu góðan mat og skemmtu sér saman. Þessi mynd sýnir að fólk skemmti sér vel þetta kvöld. Frá vinstri: Sigþrúður Magnúsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir og Elva Dröfn Árnadóttir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 24
Bjarni Helgason (d.30.12.1983) skipstjóri og útgerðarmaður á Stíganda HU 9 blæs í blöðru í leik á sjómannadegi einhverntíma á sjöunda áratugnum. Þekkja má unglingana Gunnar Jón Jónsson og Óskar Kristinsson á myndinni meðal áhorfenda en aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Velheppnuð Kántrýhátið, líklega 2001, laðaði að mikinn fjölda gesta. Öll hugsanleg tjaldstæði voru nýtt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 578
Egill Örn Ingibergsson í hlutverki sínu í Kardimommubænum á árshátíð Höfðaskóla 9. maí 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1219
Bylgja Hrund Ágústsdóttir syngur í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
1
…
67
68
69
…
104
Leita í myndasafninu
Leita