Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 661
Sighvatur Smári Steindórsson mokar snjó úr bát sínum Smára Hu 7 í hríðarkófi 14. desember 2014 til að koma í veg fyrir að hann missi jafnvægið og sökkvi.
Axel Jóhann Hallgrímsson 53
Einar Karlsson á Kántrýhátíð ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 614
Feðgarnir Skúli Tómas Hjartarson vinstri og Hjörtur Guðbjartsson til hægri á sjómannadegi 2014.
Guðmundur Guðnason731
Guðrún Jónsdóttir frá Þórshamri. Myndin sennilega tekin á fermingardaginn hennar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 561
Þessi mynd var tekin 28. apríl 2014 í Fellborg. Líklega var tilefnið framboðskynning fyrir sveitastjórnarkosningar í lok maí. Húsfyllir var á fundinum eins og sjá má.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1398
Áhorfendur á fimleikasýningu sem nemendur Höfðaskóla stóðu fyrir 18. desember 2012 undir leiðsögn kennara síns Höllu Karenar Gísladóttur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 439
Árlega stendur kvenfélagið Hekla í Skagabyggð fyrir jólabasar í Skagabúð. Þar selja hinir og þessir varning sinn og kvenfélagið selur kaffi og með því. Þessi mynd var tekin á basarnum 1. desember 2013 af Birni Sigurbjörnssyni bónda í Hlíð.
Axel Jóhann Hallgrímsson 43
1987 fóru starfsmenn og stjórn Skagstrendings hf í sumarferð til Austurríkis og Þýskalands. Þá var þessi mynd tekin af Gylfa Sigurðssyni á leið milli staða.
Axel Jóhann Hallgrímsson 70
Myndin var tekin á árshátíð Skagstrendings hf haustið 1983 í Fellsborg. Frá vinstri á myndinni: Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002), Laufey Ingimundardóttir (d.31.12.1992), óþekkt, Jón Ingi Ingvarsson, Þórarinn Ingvarsson, Guðjón Pálsson (d.14.12.1989), Ragnheiður Magnúsdóttir, Eiður Hilmarsson (næst), Sævar Hallgrímsson (aftar), Ingvar Þór Jónsson (aftan við Sævar), óþekktur (fjærst), Birgir Þórbjörnsson (nær), Gunnar Reynisson (fjær) og Steinunn Steinþórsdóttir lengst til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 607
Hjónin Gylfi Sigurðsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir við kirkjuna á sjómannadegi 2014.
Guðmundur120
Veisla í Skátaskálanum sennilega í tilefni af 60 ára afmæli Guðmundar Guðnasonar sem situr lengst til hægri á myndinni. Aðrir á myndinni eru, talið frá hægri: séra Oddur Einarsson, Ingvar Jónsson frá Sólheimum, Kirstján Hjartarson frá Grund og konan lengst til vinstri er Hulda Árnadóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 74
Sungið fyrir gesti á árshátíð Skagstrendings hf í Fellsborg haustið 1986. Frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Vigdís Viggósdóttir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 3
Björgvin Brynjosson (d.28.2.2007) tekur þátt í tunnuboðhlaupi á sjómannadegi einhverntíma á sjöunda áratugnum. Í tunnunni verður hann að sprengja blöðru með því að blása í hana. Strákurinn í peysunni með gleraugu er Jón Hallur Pétursson og til hægri við hann er Guðrún Sigurðardóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 63
Ragnar Högnason til hægri spjallar við óþekktan mann á Kántrýhátíð í ágúst 2009. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 735
Myndin var tekin á Elínborgardegi Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni syngja yngri börn skólans fyrir gesti við undirleik Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur en lengst til vinstri á sviðinu er Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri.
Axel Jóhann Hallgrímsson 82
Myndin var tekin í sjómannadagshófi en ekki er vitað hvaða ár það var. Á henni eru Rúnar Jósefsson og Selma Þórarinsdóttir (d.14.9.1990) í Fellsborg.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1442
Ólafur Bernódusson á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ í janúar 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á spjalli á Kántrýhátíð 2001. Frá vinstri: Anna Sjöfn Jónasdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Bernódus Óli Kristinsson (í kerrunni) og Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 694
Myndin var tekin af hluta gesta á Gleðibankakvöldi í Bjarmanesi 23. janúar 2014. Þar sem boðið var upp á fyrirlestur og myndasýningu Maríu Markovic um dvöl sína á Salomonseyjum í Suður-Kyrrahafi. Á myndinni eru frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir (nær), Björk Sveinsdóttir (fjær), Bára Þorvaldsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Ása Ásgeirsdóttir, Finnur Kristinsson (nær), Herdís Jakobsdóttir (fjær), Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson (nær), Hallbjörg Jónsdóttir (fjær), Guðbjörg Kristinsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 418
Merete Rabølle bóndi á Hrauni á Skaga til vinstri spjallar við óþekktan mann yfir kaffibolla 3. apríl 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 447
Gleðibankinn stendur árlega fyrir upplestri úr nokkrum jólabókum á aðventunni. Eru þá fengnir nokkrir upplesarar af íbúum Skagastrandar til að lesa stutta kafla úr nýjum bókum ársins. Á þessari mynd, sem tekin var á slíku upplestrarkvöldi 11. desember 2013 í Bjarmanesi, hlýða á upplestur hjónin Heiðrún Eiríksdóttir og Árni Friðriksson en hjá þeim situr Steinar Jónsson lengst til hægri.
Axel Jóhann Hallgrímsson 85
Stjórn og starfsmenn Skagstrendings hf, ásamt mökum, fóru saman í ferðalag um suðurland í júní 1992. Oft var fjör hjá hópnum á gististöðunum á kvöldin, mikið sungið og spjallað. Á þessari mynd eru frá vinstri: Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018), Þórdís Sigurðardóttir og Herborg Þorláksdóttir.
Guðmundur Guðnason685
Þetta eru fermingarbörn ársins 1967 á Höskuldsstöðum, aftari röð frá vinstri: Sigurbjörg Guðmundsdóttir á Neðrimýrum, Guðrún Guðmannsdóttir Vindhæli, Hlíf Sigurðardóttir frá Hafursstöðum og Björg Björnsdóttir frá Ytra-Hóli. Fyrir framan eru frá vinstri: Kristján Jökulsson frá Núpi og Lúðvík Kemp Efri Lækjardal.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1450
Gylfi Sigurðsson á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ 21. janúar 2012.
Axel Jóhann Hallgrímsson 39
Árið 1987 fóru starfsmenn og stjórn Skagstrendings hf í sumarferðalag til Austurríkis og Þýskalands. Þá var þessi mynd tekin á einhverjum óþekktum áningarstað. Við borðið sitja, talið frá vinstri: Eiður Hilmarsson, Selma Þórarinsdóttir (d.14.9.1990), Birgir Þórbjarnarson, Guðrún Garðarsdóttir, Laufey Ingimundardóttir (d.31.12.1992) og Jón Ingi Ingvarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 723
Hjónin Þorvaldur Skaftason og Erna Sigurbjörnsdóttir skemmta með söng á þorrablóti á hjúkrunarheimilinu Sæborg 24. janúar 2015.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 454
Gleðibankinn stendur árlega fyrir upplestri úr nokkrum jólabókum á aðventunni. Eru þá fengnir nokkrir upplesarar af íbúum Skagastrandar til að lesa stutta kafla úr nýjum bókum ársins. Á þessari mynd, sem tekin var á slíku upplestrarkvöldi 11. desember 2013 í Bjarmanesi, les Magnús B. Jónsson úr bókinni Guðni - léttur í lund eftir Guðna Ágústsson.
Axel Jóhann Hallgrímsson 41
Starfsmenn og stjórn Skagstrendings hf fóru saman til Austurríkis og Þýskalands sumarið 1987. Á þessari mynd, sem tekin var í ferðalaginu, eru hjónin Þórarinn Grétarsson og Guðbjörg Kristinsdóttir.
Ólafur Bernódusson 759
Feðgarnir Viggó Brynjólfsson og Fannar Viggósson spila fyrir dansi á barnaballi í Fellsborg 29. desember 2005. Viggó á harmóniku og Fannar á 12 strengja gítar.
Guðmundur Guðnason863
Frændsystkinin Búi Birgisson (d.18.9.2009) og Sigrún Kristófersdóttir á fermingardaginn sinn 1961
Guðmundur Guðnason687
<P>Sigurbjörg Guðmundsdóttir frá Neðri-mýrum á fermingardaginn sinn á tröppum Höskuldsstaðakirkju. </P>
Árni Geir Ingvarsson - safn 1348
Eftir vikulangt dansnámskeið í Höfðaskóla og Barnabóli var haldin danssýning 12. október 2012 þar sem nemendur sýndu það sem þeir höfðu lært. Á þessari mynd dansa yngri nemendur undir stjórn danskennarans Köru Arngrímsdóttiur til hægri
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 504
Árni Geir Ingvarsson til vinstri og Erlendur Magnússon til hægri við opnun höggmyndagarðs Erlendar framan við stjórnsýsluhúsið á Skagaströnd í ágúst 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 100
Fermingarbörn frá 1971 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1991 með því að hittast eina kvöldstund og rifja upp gömul kynni með mökum sínum. Á myndinni eru hjónin Vilmar Kristinsson og Unnar Gunnarsdóttir, sem fermdist 1971, ásamt kennara fermingarhópsins til margra ára, Elínborgu Jónsdóttur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 681
Pétur Eggertsson fylgist með hátíðahöldum vegna opnunar göngubrúar yfir Hrafná 23. júní 2014. Brúin sést í bakgrunninum til vinstri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1356
Sigríður Kristín Guðmundsdóttir um miðjan maí 2012.
Axel Jóhann Hallgrímsson 18
Myndin var tekin á sjómannadegi einhverntíma á sjöunda áratugnum. Þarna eru þrír menn úr róðrasveit með verðlaunapeninga sína í barminum. Frá vinstri: Kristófer Árnason (d.10.5.2000), óþekktur og Karl Berndsen (d.12.2.1995). Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 675
Myndin var tekin 31. desember 2014 í sameiginlegri flugeldasölu björgunarsveitarinnar Strönd og umf. Fram. Sölumennirnir eru frá vinstri: Kristinn Kristjánsson, Eiríkur Lýðsson, Reynir Lýðsson og Baldur Magnússon.
Ingibergur Guðmundsson 310
Sigurvegarar á fyrsta golfmóti Golfklúbbs Skagastrandar á Háagerðisvelli í september 1985. Frá vinstri: Magnús B. Blöndal (d.7.9.2001), Eygló Gunnarsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Jón Ingi Ingvarsson og Oliver Oliversson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 666
13. júní 2014 hittist starfsfólk Greiðslustofu Vinnumálastofnunar í veiðihúsinu í Laxárdal, grillaði og átti notalega stund saman með mökum sínum og börnum. Á myndinni er Inga Rós Sævarsdóttir lengst til vinstri. Atli Þór Gunnarsson situr við borðið og Ársæll Óskarsson stendur við borðsendann. Ekki er vitað hvert barnið á myndinni er.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 548
Myndin var tekin 20. setember 2014 þegar fólkið á henni fylgdist með afhjúpun á listaverkinu Sólúr á Hnappstaðatúninu. Fólkið er frá vinstri: hjónin Gylfi Sigurðsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir en til hægri er Hjördís Sigurðardóttir systir Gylfa.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1448
Guðrún Guðbjörnsdóttir til vinstri er tengdamóðir Sigþrúðar Magnúsdóttur sem er með henni á myndinni. Myndin var tekin í janúar 2012 í Kántrýbæ á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju.
Ólafur Bernódusson 771
Messa á Kántrýhátíð 17. ágúst 2008. Myndin sýnir hluta kirkjukórsins sem söng og óþekktan einsöngvara. Lengst til hægri er stjórnandinn og undirleikarinn Óskar Einarsson.
Axel Jóhann Hallgrímsson 98
Sumarið 1979 fóru starfsmenn Skagstrendings hf saman í ferðalag til Mývatns til að skoða það og nágrenni þess. Á myndinni er nestispása og fjöldasöngur. Í fremstu röð á myndinni eru frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Jón Helgason, Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017) og Kristján Hjartarson (d.2.8.2003). Aftar eru frá vinstri: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sveinbjörg Hallgrímsdóttir, Karl Guðmundsson og Helga Jóhannesdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 628
Hjónin Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) og Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) fá sér kaffi á árlegum jólamarkaði kvenfélagsins Heklu í Skagabúð 30. nóvember 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Nokkrir menn á Skagaströnd stofnuðu með sér félag um að kaupa Billiardborð til að geta leikið billiard/ballskák. Borðinu var komið fyrir í Skátaskálanum og var það töluvert notað fyrstu árin. Síðar endaði það í Kántrýbæ og var notað þar í nokkur ár. Að lokum var borðið selt úr bænum enda hafði þá áhugi fyrir Billiardleik dvínað verulega. Á þessari mynd mundar Skúli Tómas Hjartarson kjuðann, Jón Sveinsson situr til hægri en Sævar Rafn Hallgrímsson til vinstri. Guðjón Árnason á baksvipinn til vinstri.
Axel Jóhann Hallgrímsson 95
Sumarið 1979 fóru starfsmenn Skagstrendings hf í ferðalag til að skoða Mývatn og umhverfi þess. Þessi mynd var tekin í rútunni á leiðinni og fremst á henni eru hjónin Gylfi Sigurðsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir. Í næstu sætaröð fyrir aftan þau er Hlíf Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1424
Systkinasynirnir Jón Örn Stefánsson til vinstri og Þorlákur Sigurður Sveinsson til hægri spjalla á bryggunni 2. júní 2012.
Guðmundur Guðnason801
Birna Bjarnadóttir á fermingardaginn 1970
María Magnúsdóttir - safn 367
Myndin var tekin í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) 1. maí 2009. Á henni eru Guðbjörg Viggósdóttir, tengdadóttir Maríu, með syni sínum, Viggó Magnússyni, og barnabörnum. Guðbjörg heldur á Aþenu Guðbjörgu Baldursdóttur en framan við Viggó stendur yngsta dóttir hans Bára Bryndís Viggósdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir er í miðið og Telma Rán Viggósdóttir er lengst til hægri.
María Magnúsdóttir - safn 347
Myndin var tekin 1. maí 2009 í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016). Hjónin Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) og Hjördís Sigurðardóttir standa. Vinstra megin við borðið sitja, frá vinstri, systurnar: Aðalbjörg Sigurðardóttir (d.10.12.2015) og Guðrún Sigurðardóttir en þær eru systur Hjördísar. Konan í bláu peysunni er Hallbjörg Jónsdóttir en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 649
Myndin var tekin 10. ágúst 2014 þegar opnuð var sýning á járnlistaverkum Erlendar Magnússonar í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið. Á myndinni er Erlendur til vinstri að hlusta á dóttur sína, Ágústu Evu leik- og söngkonu, lesa ljóð. Bak við Erlend er Adolf H. Berndsen þáverandi oddviti sveitastjórnar.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd sýnir eitt af mjög mörgum tjaldsvæðunum sem notuð voru á síðustu Kántrýhátíðinni árið 2002. Þessi tjöld eru á túninu fyrir sunnan og ofan félagsheimilið Fellsborg. Gríðarlegur fjöldi sótti hátíðina - jafnvel allt að 10 þúsund manns - en veðrið var leiðinlegt alla helgina, rigning og suddi. Hátíðin heppnaðist af þeim sökum ekki eins og að var stefnt og í raun voru gestir alltof margir miðað við þá aðstöðu sem boðið var upp á.
Guðmundur Guðnason783
Fermingarbörn frá Bólastaðahlíðarkirkju. Lengst til vinstri er Kristján Jósepsson frá Torfustöðum í Svartárdal. Drengurinn í miðjunni er Ingi Heiðmar Jónsson frá Ártúnum og stúlkan á myndinn er Ragnheiður Erla Björnsdóttir frá Fjósum.<br>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 432
Starfsmenn kjördeildarinnar á Skagaströnd í Fellsborg 27. apríl 2013. Þann dag var kosið í 21. sinn til Alþingis frá stofnun lýðveldisins, fjórum árum og tveimur dögum eftir síðustu kosningar. Á myndinni eru frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundson formaður kjörstjórnar, Sigríður Gestsdóttir, Steindór R. Haraldsson, Guðbjörg Ólafsdóttir og Guðný Sigurðardóttir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 101
Fermingarbörn frá 1971 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli 1991 ásamt mökum sínum með því að hittast eina kvöldstund og rifja upp gamla tíma. Á myndinni eru frá vinstri: Þorsteinn Jakobsson, Gunnar Stefánsson og Málfríður Jóhannsdóttir, sem var ein af fermingarhópnum 1971.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 685
Hjalti Hólmar Indriðason fylgist með hátíðahöldum vegna opnunar göngubrúar yfir Hrafná 23. júní 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 61
Þorvaldur Skaftason í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Axel Jóhann Hallgrímsson 51
Þau bíða í samkomutjaldinu eftir næsta dagskrárlið á Kántrýhátíð í ágúst 2009. Frá vinstri: Guðrún Björg Berndsen sem situr hjá hjónunum Sævari Hallgrímssyni og Ragnheiði Magnúsdóttur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 648
Myndin af þessum systkinum var tekin 4. desember 2014 þegar kveikt var á jólatré á Hnappstaðatúni. Systkinin eru frá vinstri: Sóley Sif Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Ísak Andri Jónsson.
1
…
68
69
70
…
104
Leita í myndasafninu
Leita