Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason755
Á myndinni eru frá vinstri: Jóhanna Valdimarsdóttir, Sigrún Kristófersdóttir, Magdalena Axelsdóttir, Guðrún Þórbjarnardóttir, Árni Björn Ingvarsson, Bergdís Sigmarsdóttir, Gissur Jóhannsson og Búi Birgisson.
Guðmundur Guðnason009
Hallbjörn Ágústsson í Blálandi á fermingardaginn sinn.
Guðmundur Guðnason771
<P>Gripir úr gömlu kirkjunni bornir yfir í þá nýju við vígslu Höskuldsstaðakirkju 1963. Gamla kirkjan er í baksýn. Frá vinstri: Ingvar Pálsson frá Balaskarði, Hafsteinn Jónasson frá Njálsstöðum, Björn Jónsson frá Ytra-hóli, Torfi Sigurðsson frá Mánaskál. Herra Sigurbjörn Einarsson er lengst til hægri á myndinni en næstur honum er séra Þorsteinn í Steinnesi þá Jón Kr. Ísfeld og presturinn í svörtu hempunni er séra Gísli Kolbeins. Aðrir eru óþekktir.</P>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 440
Krakkar bíða á kirkjuloftinu eftir að röðin komi að þeim að flytja helgileik í kirkjunni 1. desember 2013. Næst okkur sitja Benóný Bergmann Hafliðason og Ingólfur Eðvald Björnsson en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 71
Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf á árshátíð félagsins í Fellsborg haustið 1983.
Axel Jóhann Hallgrímsson 65
Sigrún Jóndóttir til vinstri spjallar við Guðrúnu Pálsdóttur í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Guðmundur Guðnason821
<P>Frænkurnar Anna Bára Sigurjónsdóttir (til vinstri) og Ingibjörg Kristinsdóttir á fermingardaginn sinn 1962.</P>
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Hjónin Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) prestur á Höskuldsstöðum og Skagaströnd í 40 ár.
Guðmundur Guðnason879
Ómar Þorbjörnsson á fermingardaginn sinn 1961.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Heiðdís Þorbjörnsdóttir frá Akurgerði á fermingardaginn sinn.
larus044
Mynd frá altarisgöngu í vígslumessu Hólaneskirkju 20. október 1991. Biskupinn Herra Ólafur Skúlason og séra Egill Hallgrímsson sóknarprestur útdeila brauði og víni með aðstoð meðhjálparans Steindórs Haraldssonar lengst til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 633
Rakel Eyfjörð Tryggvadóttir við sölubás sinn á árlegum jólamarkaði kvenfélagsins Heklu í Skagabúð 30. nóvember 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 488
Árlega eru haldin þorrablót á Sæborg fyrir heimilisfólk og gesti þeirra. Þessi mynd var tekin á einu slíku en ekki er vitað hvenær. Vinstra megin við borðið eru Signý Richter (fjær) og Margrét Matthildur Björnsdóttir (nær). Hægra megin við borðið eru frá vinstri: Guðrún Sigurðardóttir, Matthildur Jónsdóttir (d. 5.6.2015), Guðbjörg Eiríksdóttir, Lýður Hallbertsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) og Fannar Viggósson.
Axel Jóhann Hallgrímsson 26
Myndin var tekin á sjómannadegi 2007 af börnum sem sungu fyrir áhorfendur á hátíðahöldum dagsins. Börnin eru frá vinstri: Birgitta Rut Bjarnadóttir, óþekkt, Laufey Lind Ingibergsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Sveinn Hallgrímsson og Dagur Freyr Róbertsson. Til hliðar við sviðið til vinstri eru Aldís Embla Björnsdóttir (fjær) og Guðrún Jóna Björgvinsdóttir (nær). Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 631
Kvenfélagið Hekla í Skagabyggð heldur árlega jólamarkað í Skagabúð. Þar er, ásamt ýmsu öðru, boðið upp á kaffihlaðborð. Þessar konur voru í eldhúsinu þegar markaðurinn var haldinn 30. nóvember 2014, frá vinstri: Lilja Karlsdóttir Víkum, Svava Kristinsdóttir Skagaströnd og Dagný Rósa Úlfarsdóttir Ytra-Hóli.
Guðmundur Guðnason007
<P>Hallbjörn Ágústsson í Blálandi á fermingunni sinni.</P><br><P> </P>
Guðmundur Guðnason921
Stúlknakór syngur á sviði í Tunnunni á sjöunda áratugnum. Jónatan Jónsson stjórnar og spilar undir á orgel.
Ólafur Bernódusson 754
Myndin var tekin 1. nóvember 2013 af Árna Steinari Jóhannssyni (d.1.11.2015) stjórnarformanni RARIK að ræsa hitaveituna á Skagaströnd í fyrsta sinn í stjórn-og dæluhúsinu við Sólarveg.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 634
Kátir félagar á árlegum Jólamarkaði kvenfélagsins Heklu í Skagabúð 30. nóvember 2014. frá vinstri: Árni Geir Ingvarsson, Sigurður Bjarnason og Halldór Gunnar Ólafsson.
Axel Jóhann Hallgrímsson 57
Árni Geir Ingvarsson til vinstri og Fannar Viggósson til hægri á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
larus018
Þessi mynd var líklega tekin í október 1991 þegar Hólaneskirkja var vígð. Á henni eru meðal annars fjórir prestar sem þjónuðu í Skagastrandraprestakalli. Frá vinstri á myndinni eru sérarnir: Ágúst Sigurðsson (d.22.8.2010), Bolli Gústavsson (d.27.3.2008) vígslubiskup á Hólum, Herra Ólafur Skúlason biskup, Oddur Einarsson fyrrverandi sóknarprestur, Guðni Þór Ólafsson prófastur, Sigurður Guðmundsson (d.9.1.2010) vígslubiskup á Hólum og Skálholti, Ægir Sigurgeirsson fyrrverandi sóknarprestur, Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) fyrrverandi sóknarprestur, óþekktur, Egill Hallgrímsson sóknarprestur þegar myndin var tekin og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu prestana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 491
Forsöngvarar á þorrablóti í Fellsborg. Frá vinstri: Trostan Agnarsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Þorvaldur Skaftason, Gylfi Sigurðsson og Sigurjón Guðbjartsson. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason867
Pétur Jóhannsson á fermingardaginn sinn 1961.
Guðmundur Guðnason819
Sigurður Pálmason (til vinstri) og Gissur Jóhannsson á fermingardaginn sinn 1962.
María Magnúsdóttir - safn 373
Þór Arason (d.11.8.2018) 1.maí 2009.
Axel Jóhann Hallgrímsson 5
Ólafur Bernódusson tekur þátt í einhverjum leik á sjómannadegi. Leikurinn felst m.a. í því að þræða nál og negla stóran nagla í planka. Á myndinni er Ólafur að þræða nálina. Gunnar Jón Jónsson í jakka og rúllukragapeysu og Gylfi Sigurðsson þungur á brún fylgjast með. Hægra megin eru Jón Geir Jónatansson og Karl Guðmundsson að fylgjast með einhverju sem er að gerast á planinu. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason328
Keppni í pokahlaupi á sjómannadegi á planinu við Hafnarhúsið. Keppendurnir eru Edda Pálsdóttir og Ólafur Guðlaugsson (d. 17.5.1996) frá Sævarlandi. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason917
Unglingahljómsveit leikur á skemmtun í Tunnunni. Líklega er þetta hljómsvitin Tíglar. Frá vinstri á myndinni eru: Steindór Haraldsson, Reynir Sigurðsson, Bergur Þórðarson og Hjörtur Guðbjartsson. Myndin er tekin einhverntíma á árunum 1963 - 1968.
María Magnúsdóttir - safn 362
Lýður Ragnar Arason í 90 ára afmæli langömmu sinnar Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) 1. maí 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 625
Stefán Hólm (d.22.7.2018) til vinstri ræðir við Björn Sigurbjörnsson á árlegum jólamarkaði kvenfélagsins Heklu í Skagabúð 30. nóvember 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 437
Árlega stendur kvenfélagið Hekla í Skagabyggð fyrir jólabasar í Skagabúð. Þar selja hinir og þessir varning sinn og kvenfélagið selur kaffi og með því. Þessi mynd var tekin á basarnum 1. desember 2013 af Stefáni Hólm (d.22.7.2018) til vinstri og hjónunum Rafni Sigurbjörnssyni og Ingibjörgu Ólafsdóttur (d.21.7.2017) frá Örlygsstöðum 2 til hægri.
Axel Jóhann Hallgrímsson 80
Þorsteinn Jakobsson spilar á harmóniku og Jón Helgason á gítar á árshátíð Skagstrendings hf í Fellsborg líklega haustið 1986.
larus023
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum 1989 - 1994. Á henni syngja saman kirkjukórarnir á Skagaströnd og Blönduósi í Fellsborg undir stjórn Julians Hewlett fyrir fullan sal af fólki. Ekki er vitað um tilefni myndatökunnar.
Ólafur Bernódusson 792
Myndin var tekin í Hornvík af hluta hóps Skagstrendinga sem þar voru í gönguferð í júlí 2010. Fólkið er að borða kvöldmat eftir að hafa gengið á Hornbjargið þann daginn. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Steindór Haraldsson, Jóney Hrönn Gylfadóttir, tveir synir hennar, Guðbjörg Hanna Gylfadóttir og Sigurjón Atli Sigurðsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 441
Barnakór að syngja á aðventukvöldi í Hólaneskirkju 1. desember 2013. Aftari röð frá vinstri: Ellert Atli Þrastarson, Sigurjón Ýmir Alexson, óþekktur, Aþena Guðbjörg Baldursdóttir, óþekkt og Sigríður Kristín Guðmundsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Aníta Ýr Gunnarsdóttir, óþekkt, Jón Benedikt Tischleder Jensson og Patrik Máni Róbertsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1434
Systradæturnar Hallbjörg Jónsdóttir til vinstri og Steinunn Berndsen til hægri á sjómannadegi 2. júní 2012.
Guðmundur Guðnason809
Ingibjörg Kristinsdóttir á fermingardaginn 1962.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 455
Gleðibankinn stendur árlega fyrir upplestri úr nokkrum jólabókum á aðventunni. Eru þá fengnir nokkrir upplesarar af íbúum Skagastrandar til að lesa stutta kafla úr nýjum bókum ársins. Á þessari mynd, sem tekin var á slíku upplestrarkvöldi 11. desember 2013 í Bjarmanesi, hlustar Helga Dögg Jónsdóttir á lesturinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 601
Eftir messu í Hólaneskirkju á sjómannadegi er ávallt lagður blómakrans að minnismerki um drukknaða sjómenn við kirkjuna. Það eru fermingarbörn ársins sem gera það með aðstoð einhvers fulltrúa sjómanna. Þessi mynd var tekin 2014 af fermingarbörnunum Valgerði Guðný Ingvarsdóttur og Viktori Má Einarssyni með kransinn og Árna Ólafi Sigurðssyni skipstjóra á hvítri skyrtu, Steindóri Haraldsyni meðhjálpara og séra Bryndísi Valbjörnsdóttur sóknarpresti.
Guðmundur Guðnason011
<P>Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) leiðir fermingarbörn til Hólaneskirkju 1968. Fremst fer Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó) en Guðrún Lárusdóttir er á bak við hana. Síðan koma Guðbjörg Vera Kristinsdóttir (Bugga), Sigríður Gestsdóttir, og Linda Kristjánsdóttir. Strákarnir eru frá vinstri: Heiðar Elvan Friðriksson, Hallbjörn Ágústsson, Ingvar Ástmarsson (d.14.10.2018), Hilmar Gunnarsson, Magnús Guðlaugsson og bak við grindverkið eru þeir Kjartan Bjarnason og Ragnar Ingvarsson.</P>
María Magnúsdóttir - safn 351
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) og Hólmsteinn R. Snædal (d.31.12.2015) í 90 ára afmæli Maríu 1. maí 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 667
Inga Rós Sævarsdóttir með ömmustrákinn sinn Alexander Sævarsson í fanginu 13. júní 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 680
Myndin var tekin þegar göngubrú var opnuð yfir Hrafnána 23. júní 2014. Á myndinni lýsir Adolf H. Berndsen oddviti á Skagaströnd smíði brúarinnar. Eftir tölu Adolfs opnaði Jakob Guðmundsson, til hægri, brúna formlega með því að klippa á bandið sem lokar henni. Jakob er eigandi landsins sunnan við brúna sem bóndi á Árbakka. Brúin tengir saman sveitarfélögin Skagaströnd og Skagabyggð og er vinsæl meðal göngufólks.
Ólafur Bernódusson 760
Myndin var tekin við áramótabrennu á gamlaárskvöld 2005 af glöðu fólki með stjörnuljós. Frá vinstri: Dagbjört Bæringsdóttir, Guðmundur Gunnlaugsson og Guðrún Pálsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Ragnheiður Petra Óladóttir til vinstri og Ásdís Birta Árnadóttir skemmta sér á Kántrýhátíð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 620
2014 voru sveitastjórnakosningar sem lentu á sjómannadegi þess árs. Kosið var í Höfðaskóla en ekki í Fellsborg eins og venja er. Á myndinni er kjörstjórnin. Frá vinstri: Pétur Eggertsson, Lárus Ægir Guðmundsson formaður kjörstjórnar, Ingibjörg Kristinsdóttir og Guðný Sigurðardóttir.
guðmundur214
Þessi mynd er sennilega tekin á sjómannadegi. Óþekktur ræðumaður flytur tölu af svölum Hólaneshússins en þannig var staðið að málum á fyrstu hátíðahöldum sjómannadagsins á Skagaströnd um 1940.
Ólafur Bernódusson 793
Sigurður Siguarson um borð í báti á siglingu undir Hornbjargi 23. júlí 2010 á leið úr Hornvík inn í Reykjarfjörð nyrðri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 643
Myndin var tekin 23. júní 2014 við formlega opnun á göngubrú yfir Hrafná. Á henni eru mæðginin Jenný Lind Sigurjónsdóttir og Sigurjón Ýmir Alexson að fylgjast með gjörningi spákvennanna úr Spákonuhofinu, sem þær sýndu við þetta tækifæri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 673
Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) í jólastund á hjúkrunarheimilinu Sæborg 29. desember 2014. Þá var Guðmundur heimilismaður þar.
Guðmundur Guðnason723
Gengið úr Hólaneskirkju að fermingu lokinni í fylgd með séra Pétri Ingjaldssyni.
Ólafur Bernódusson 749
Myndin var tekin 15. nóvember 2012 á Elínborgardegi Höfðaskóla í Fellsborg. Á henni eru nemendur að flyja skemmtiatriði fyrir gesti. Frá vinstri: Aníta Ósk Ragnarsdóttir, Benóný Bergmann Sæmundsen, Helgi Sveinn Árnason, Róbert Vattnes, Birgitta Bjarnadóttir, Sunna Steingrímsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Sveinn Hallgrímsson og Björn Björgvinsson
Ólafur Bernódusson 755
Myndin var tekin á Elínborgardegi Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Þá var gestum boðið upp á kaffi og meðlæti. Myndin var tekin af kennurum og nemendum sem sáu um að afgreiða kaffið. Frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir, Elva Þórisdóttir, María Ösp Ómarsdóttir, baksvipur Trostans Agnarssonar, Sigurður Gísli Guðjónsson og Sigurbjörg Laufey Sigurpálsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 436
Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015) til vinstri og Aldís Embla Björnsdóttir til hægri í veislu í Bjarmanesi 27. apríl 2013.
Guðmundur Guðnason803
Ómar Másson frá Réttarholti á fermingardaginn 1970.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Fjöldasöngur á Kántrýhátíð (sennilega 2001). Viggó Brynjólfsson spilar á harmóniku og Þorvaldur Skaftason á gítar. Á milli þeirra sjást Helga Guðmundsdóttir og Ástmar Kári Ástmarsson. Aftan við Viggó, aðeins til vinstri, eru Vigdís Viggósdóttir í röndóttum jakka og Ardís Ólöf Arelíusdóttir í rauðri flík. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason677
Fermingarmynd af Stefáni Kristinssyni (Kúta).
Axel Jóhann Hallgrímsson 48
Hans Birgir Högnason glaðbeittur á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Guðmundur Guðnason887
Árgerð 1949 gengur til fermingar í Hólaneskirkju 1963 með séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) í fararbroddi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 660
Jóhann Hafsteinsson starfsmaður Greiðslustofu Vinnumálastofnunar á Skagaströnd í vorfagnaði starfsfólks í veiðihúsinu á Laxárdal 13. júní 2014.
1
…
69
70
71
…
104
Leita í myndasafninu
Leita