Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 1439
Sigurður Bjarnason, Gunnar Sveinsson og Bára Þorvaldsdóttir á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ í janúar 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 592
Séra Bryndís Valbjörnsdóttir leiðir fermingarbörn sín til kirkju 24. maí 2014. Á myndinni má þekkja frá vinstri: Jóhannes Hólmar Sigurpálsson, Sigurður Aron Björnsson, Georg Þór Kristjánsson, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Jóna Margrét Sigurðardóttir og Harpa Hlín Ólafsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 832
Bankastjórar Gleðibankans, Sigurður Sigurðarson til vinstri og Ingibergur Guðmundsson til hægri, á stofnfundi bankans í Bjarmanesi 10. desember 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 699
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á grímuballi í gömlu tunnunni. Myndina tók Þórarinn Björnsson en börnin á myndinni eru óþekkt.
Ólafur Bernódusson 790
Myndin var tekin í Hornvík af hluta hóps Skagstrendinga sem þar voru í gönguferð í júlí 2010. Fólkið er að borða kvöldmat eftir að hafa gengið á Hornbjargið þann daginn. Fjallið lengst til vinstri í baksýn er Kálfatindur sem er mjög brattur uppgöngu og síðan þverhníptur í sjó fram að austanverðu. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Lára Guðmundsdóttir og Gunnar Svanlaugsson.
Ólafur Bernódusson 858
Myndin var tekin á opnu húsi vefstofunnar Árblik í desember 1999. Þá hafði fyrirtækið nýlega tekið til starfa við að vefa værðarvoðir og teppi í húsnæði gamla frystihúss Hólaness hf. Á myndinni er Fannar Viggósson framkvæmdastjóri Árbliks til vinstri að sýna Lárusi Ægi Guðmundssyni til hægri framleiðslu á værðarvoð.
Ólafur Bernódusson 739
Myndin var tekin í Reykjarfirði nyrðri 23. júní 2012 af feðgunum Ólafi Bernódussyni til vinstri og Halldóri Gunnari Ólafssyni til hægri. Á myndinni eru þeir tilbúnir að ganga Geirólfsnúp ásamt fleira fólki.
larus004
Myndin var tekin 1981 í Hólaneskirkju eldri þegar séra Oddur Einarsson til vinstri, tók við embætti sóknarprests af séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) sem er til vinstri. Séra Pétur þjónaði sókninni í 40 ár.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1444
Hjónin Steindór R. Haraldsson og Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018) á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ í janúar 2012.
Axel Jóhann Hallgrímsson 84
Stjórn og starfsfólk Skagstrendings hf, ásamt mökum, fóru í ferðalag um suðurland í júní 1992. ferðin tók nokkra daga og oft var fjör á kvöldin á gististöðum hópsins, mikið sungið og spjallað. Á þessari mynd eru frá vinstri: þórdís Sigurðardóttir, Heimir Guðmundsson og Rúnar Jósefsson.
Ólafur Bernódusson 733
Myndin var tekin á Elínborgardegi Höfðaskóla 15. nóvember 2012 í Fellsborg. Á henni eru frá vinstri: Elva Þórisdóttir kennari, Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri og Ingibergur Guðmundsson fyrrverandi skólastjóri.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Guðný Sigurðardóttir Jón Hallur Pétursson og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum í leikritinu Stalin er ekki hér, sem Leikklúbbur Skagastrandar sýndi undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur veturinn 1981.
Ólafur Bernódusson 847
Landsbankahlaup var haldið á hverju vori í nokkur ár við útibú bankans á Skagaströnd. Á myndinni eru keppendur og gestir að fylgjast með 5. maí 2007. Frá vinstri: Aðalheiður Sif Árnadóttir, Sigríður Stefánsdóttir með son sinn Ólaf Halldórsson í fanginu, Magnús Guðmannsson, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Róbert Freyr Gunnarsson með son sinn Dag Frey Róbertson í fanginu, Dagný Marín Sigmarsdóttir, óþekkt og Halldór Gunnar Ólafsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 463
Hjörtur Þór Guðbjartsson spilar fyrir dansi á jólaballi í Fellsborg 28. desember 2013.
Guðmundur132
Ástmar Kári Ástmarsson, Ólafur Bernódusson og Þorvaldur Skaftason skemmta á Þorrablóti
Guðmundur Guðnason823
Sigurður Pálmason á fermingardaginn sinn 1962.
Ólafur Bernódusson 851
25. ágúst 2013 sýndi fólk úr listamiðstöðinn, með hjálp nemenda, matargjörning í Höfðaskóla. Þau höfðu búið til eldfjöll, hraunbreiður og annað tengt íslenskri náttúru. Efniviðurinn var kökur og ýmislegt sem notað er til tertuskreytinga. Eftir að hafa virt listaverkið fyrir sér og myndað það í bak og fyrir var það borðað af þátttakendum og gestum þeirra. Nemendurnir eru í fremstu röð en listamennirnir standa fyrir aftan börnin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 510
Margt er sér til gamans gert. 14. ágúst 2014 fengu krakkar á Skagaströnd að leika sér í slökkvifroðu-braut sem starfsmenn sveitarfélagsins útbjuggu með hjálp slökkviliðsins.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 687
Mæðginin Sigríður Stefánsdóttir og Ólafur Halldórsson fylgjast með hátíðahöldum vegna opnunar göngubrúar yfir Hrafná 23. júní 2014.
larus011
Myndin var tekin 6. október 1991 í Hólaneskirkju eldri af starfsmönnum þar. Frá vinstri: Kristján Hjartarson (d.2..2003) formaður kirkjukórsins og fyrrverandi organisti, séra Egill Hallgrímsson, Steindór Haraldsson meðhjálpari og Julian Hewlett organisti og kórstjóri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 682
Vilhjálmur Skaftason til vinstri og Gunnar Sveinsson til hægri fylgjast með hátíðahöldum vegna opnunar göngubrúar yfir Hrafná 23. júní 2014.
Guðmundur Guðnason769
Herra Sigurbjörn Einarsson biskup ávarpar söfnuðinn við vígslu Hökuldsstaðakirkju 1963
Guðmundur Guðnason049
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) fermir tvær stúlkur í Holtastaðakirkju. Önnur stúlknanna er Rannveig Runólfsdóttir frá Hvammi í Langadal en hin er Ólöf Jónsdóttir frá Ártúnum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 726
Adolf H. Berndsen til vinstri , Stefán Stefánsson í miðið og Kári Lárusson til hægri spjalla saman yfir kaffibolla á þorrablóti á hjúkrunarheimilinu Sæborg 24. janúar 2015.
Guðmundur Guðnason336
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson með fermingardrengnum Kristjáni Karlssyni í Hólaneskirkju eldri vorið 1980.
Axel Jóhann Hallgrímsson 32
Lýður Hallbertsson á sjómannadaginn 2008. Maðurinn aftan við Lýð er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason889
Fermingarbörn ganga til kirkju með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Maðurinn á myndinni sem er að stilla myndavélina sína er Þórður Jónsson (d.25.12.2009). Fermingarbörnin eru óþekkt.
Axel Jóhann Hallgrímsson 44
Sumarið 1987 fóru starfsmenn og stjórn Skagstrendings hf í ferð til Austurríkis og Þýskalands. Þessi mynd var tekin í bjórstoppi á ókunnum stað. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Guðný Finnsdóttir, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), Halldóra Þorláksdóttir (d.27.12.2017), Árni Ólafur Sigurðsson, Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017) og Hlíf Sigurðardóttir.
Guðmundur Guðnason865
Sigurður Bjarnason á fermingardaginn sinn 1961
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 720
Dagný Hannesdóttir í Höfðaskóla 17. janúar 2015 við kleinubakstur til styrktar vorferðar unglinga skólans til útlanda að skóla loknum.
Axel Jóhann Hallgrímsson 96
Hjónin Árni Ólafur Sigurðsson og Hlíf Sigurðardóttir á ferðalagi með starfsfólki Skagstrendings hf til að skoða Mývatn og nágrenni sumarið 1979.
Arnar HU 1 - safn 122
Jón Örn Stefánsson snyrtir hárið á skipsfélaga sínum, Elvari Frey Aðalsteinssyni, um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason887
Árgerð 1949 gengur til fermingar í Hólaneskirkju 1963 með séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) í fararbroddi.
Ólafur Bernódusson 727
Andrea Björk Kristjánsdóttir syngur í söngvakeppni Höfðaskóla, Garginu, í Fellsborg 6. mars 2008.
María Magnúsdóttir - safn 366
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) tekur við hamingjuóskum í síma vegna 90 ára afmælis síns 1. maí 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 679
Árið 2014 kvatt með áramótabrennu þar sem fjölmenni tók þátt í blysför að brennustæðinu og fylgdist svo með brennunni og flugeldasýningu björgunarsveitarinnar þegar líða tók á kvöldið.
Axel Jóhann Hallgrímsson 94
Sumarið 1979 fóru starfsmenn Skagstrendings hf í ferðalag til að skoða Mývatn og umhverfi þess. Á þessari mynd eru frá vinstri: Magnús Ólafsson (d.23.7.2012), Gylfi Sigurðsson, Sveinn Ingólfsson, Magnús Sigurðsson og Árni Ólafur Sigurðsson.
Axel Jóhann Hallgrímsson 90
Stjórn og starfsmenn Skagstrendings hf, ásamt mökum, fóru saman í ferðalag um suðurland í júní 1992. Oft var mikið fjör á kvöldin á gististöðum hópsins, mikið sungið og spjallað. Á þessari mynd eru Þór Gunnlaugsson til hægri og óþekktur til vinstri. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason871
Steinunn Margrét Ellertsdóttir ( til vinstri) og Hrefna Júlía Viggósdóttir á fermingardaginn sinn 1961.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 778
Myndin var tekin 31. maí 2008 í listamiðstöðinni Nes. Þarna skemmta með tónlistarflutningi, frá vinstri: Fannar Viggósson með bassa, Jón Ólafur Sigurjónsson með gítar og Þórarinn Grétarsson með þverflautu. Tilefnið var formleg opnun listamiðstöðvarinnar en það var hluti af hátíðahöldum sjómannadagsins sem var daginn eftir, 1. júní.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 571
Lítil jarðýta á kafi ofan við Kálfshamarsvík í maí 2014 þegar verið var að leggja rafstreng eða ljósleiðara í jörð um Skagabyggð. Grafan er komin til bjargar en mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 75
Magnús Sigurðsson vélstjóri til vinstri og Birgir Þórbjarnarson skipstjóri til hægri sæmdir "burstaorðunni" á árshátíð Skagstrendings hf í Fellsbg haustið 1986.
Guðmundur Guðnason787
Heiðmar Jónsson frá Ártúnum. Myndin líklega tekin á fermingardaginn hans 1961.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 617
Bræðurnir Egill Bjarki Gunnarsson og Þráinn Bessi Gunnarsson á sjómannadegi 2014. Bessi heldur á syni sínum Bjarna Braga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 589
Sjálfboðaliðar Rauða kross deildarinnar á Skagaströnd 19. október 2014 í Höfðaskóla. Ekki er vitað af hvaða tilefni myndin var tekin en konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Sigurlaug Lára Ingimundardóttir (fremst), Guðrún Magnúsdóttir (í miðið), Ásthildur Guðmundsdóttir (aftast), Sigrún Líndal Þrastardóttir, Kristín Birna Guðmundsdóttir, Jensína Lýðsdóttir (nær), Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir (fjær), Þórunn Bernódusdóttir og barn. Ef þú veist tilefni myndatökunnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Axel Jóhann Hallgrímsson 73
Systurnar, frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Þórey Jónsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir að skemmta með söng á árshátíð Skagstrendings hf í Fellsborg haustið 1986.
Guðmundur Guðnason807
Árni Björn Ingvarsson frá Sólheimum á fermingardaginn 1962
Guðmundur Guðnason679
Fermingarmynd af Önnu Guðmannsdóttur frá Vindhæli.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 717
17. janúar 2015 steiktu foreldrar og velunnarar barna í Höfðaskóla kleinur í eldhúsinu í skólanum. Kleinurnar voru síðan seldar til ágóða fyrir skólasfélagið til að unglingarnir kæmust í vorferðalag til útlanda að skóla loknum. Vinstra megin við borðið eru: baksvipir Lilju Daggar Hjaltadóttur og móður hennar Guðlaugar Grétarsdóttur, Einar Haukur Arason og Halldór Gunnar Ólafsson. Hægra megin við borðið eru frá vinstrI: Hallbjörg Jónsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson, baksvipir Sigríðar Stefánsdóttur og Hrafnhildar Jóhannsdóttur og Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir.
Guðmundur Guðnason027
<P>Prestar ganga til messu í Akureyrarkirkju 29. ágúst 1962. Prestarnir eru séra Birgir Snæbjörnsson til vinstri og séra Pétur Sigurgeirsson báðir prestar á Akureyri. Birgir var áður á Æsustöðum í Langadal. Aðrir eru óþekktir. </P><br><P> </P>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 600
Hefð er fyrir því á Skagaströnd að kór sjómanna syngur við messu á sjómannadegi. Þessi mynd var tekin í Hólaneskirkju á sjómannadegi 2014. Hugrún Sif Hallgrímsdóttir stjórnandi kórsins situr við píanóið. Hinir hljóðfæraleikararnir eru: Unnar Leví Sigurbjörnsson, næst okkur, Fannar Viggósson í miðjunni og Guðmundur Egill Erlendsson fjærst. Í fremri röð í kórnum eru frá vinstri: Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Árni Halldór Eðvarðsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Ragnar Már Björnsson, Gísli Reynisson, Stefán Jósefsson og Jóhann Hafsteinsson. Aftari röð frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Sigurjón Guðbjartsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Sigurður Bjarnason, Ólafur Bernódusson, Þórarinn Grétarsson, Gylfi Sigurðsson og Hafþór Gylfason.
Axel Jóhann Hallgrímsson 13
Tveimur mönnum bjargað úr höfninni á sjómannadaginn 1968. Þeir höfðu leikið þann leik að berjast af litlum skektum og reynt að hrinda hvor öðrum í sjóinn með löngum stöngum. Þeir voru svo hirtir upp um borð í trilluna á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 753
Þessar kátu konur voru á ferð með félögum sínum í starfsmannafélagi Höfðahrepps í Mývatnssveit í apríl 2011. Frá vinstri: Þórunn Ævarsdóttir, Herdís Jakobsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir og Ragna Magnúsdóttir.
Guðmundur Guðnason745
<P>Í gamla samkomuhúsinu á Blönduósi Aðalgötu 1. Haukur Jóhannsson frá Breiðavaði þenur nikkuna fyrir (líklega) Sigurð Þorsteinsson.</P>
Ólafur Bernódusson 796
Myndin var tekin í Reykjarfirði nyrðri 24. júlí 2010. Á henni spjallar Steindór Haraldsson til hægri við þjóðsagnapersónuna Ragnar Jakobsson (d.15. 10.2015) í Reykjarfirði til vinstri. Ragnar vann meðal annars sér til frægðar að klífa ókleift Hornbjargið, einn og á gúmmístígvélum. Hann sagðist reyndar hafa verið með snærisspotta í vasanum og eftir að hann lagði af stað upp bjargið hafi hann orðið að klára sig upp því leiðin niður aftur var ófær. Ragnar rak ferðaþjónustu í Reykjarfirði með fjölskyldu sinni á sumrin eftir að hann hætti búskap þar og flutti til Bolungarvíkur. Hann var snjall bátasmiður, refaskytta með afbrigðum en var lítið fyrir að sitja fyrir á myndum eða láta hampa sér á annan hátt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 671
Karitas Laufey Ólafsdóttir á jólastund í hjúkrunarheimilinu Sæborg, þar sem hún er heimilismaður, 29. desember 2014.
Ólafur Bernódusson 846
Á hverju vori í nokkur ár stóð Landsbankinn fyrir víðavahlaupi við útibú sitt á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin af áhorfendum og keppendum 5. maí 2007. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt kona, Jón Heiðar Jónsson, Kristín Birna Guðmundsdóttir, Björn Hallbjörnsson, Rakel Jensína Jónsdóttir (nær), óþekkt (fjær), Ívan Árni Róbertsson (nær), Aðalheiður Sif Árnadóttir (fjær), óþekkt (nær) Guðrún Pálsdóttir (fjær), Sigríður Stefánsdóttir með son sinn Ólaf Halldórsson í fanginu, Magnús Guðmannsson og Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 66
Myndin var tekin á árshátíð Skagstrendings hf haustið 1983 í Fellsborg. Á henni eru Sigurbjörn Kári Lárusson til vinstri, Egill Bjarki Gunnarsson í miðið og Guðrún Guðmundsdóttir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 652
Hjónin Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson (Jonni) syngja og spila á uppákomu í Samkaupum á Skagaströnd 4. desember 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 83
Finnur Kristinsson í ræðustól á Fellsborg í einhveju samkvæmi á vegum Skagstrendings hf.
1
…
70
71
72
…
104
Leita í myndasafninu
Leita