Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Axel Jóhann Hallgrímsson 83
Finnur Kristinsson í ræðustól á Fellsborg í einhveju samkvæmi á vegum Skagstrendings hf.
Guðmundur121
Veisla í Skátaskálanum sennilega í tilefni af 60 ára afmæli Guðmundar Guðnasonar Pósts og ljósmyndara. Við borðið næst okkur má þekkja Óskar Axelsson, Þorgerði Guðlaugsdóttur og Bjarney Valdimarsdóttur. Við næsta borð eru Gunnlaugur Sigmarsson, Steinunn Friðriksdóttir og Jón Kr. Jónsson. Við þriðja borðið er hægt að þekkja Guðrúnu Sigurðardóttur og Ingibjörgu Fríðu Hafsteinsdóttur (í rauðri blússu). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Varðeldur á Kántrýhátíð á bílastæðinu fyrir neðan Stjórnsýsluhúsið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 682
Vilhjálmur Skaftason til vinstri og Gunnar Sveinsson til hægri fylgjast með hátíðahöldum vegna opnunar göngubrúar yfir Hrafná 23. júní 2014.
Guðmundur Guðnason873
Steinunn Margrét Ellertsdóttir á fermingardaginn sinn 1961
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 693
23. janúar 2014 stóð Gleðibankinn fyrir samkomu í Bjarmanesi þar sem María Markovic hélt fyrirlestur og sagði frá dvöl sinni á Salomonseyjum í Suður-Kyrrahafi. María sýndi skemmtilegar myndir frá dvöl sinni þar og var fyrirlestur hennar bæði skemmtilegur og fræðandi. Á myndinni er Maía til hægri en á tjaldinu er mynd af innfæddum karlmanni sem leiðir son sinn. Sigurður Ingimarsson fylgist með fyrir miðri mynd.
Guðmundur Guðnason875
Hrefna Júlía Viggósdóttir á fermingardaginn sinn 1961.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 798
Jólasveinar koma í heimsókn í jólakaffi hjá eldri borgurum í Fellsborg 17. desember 2007. Frá vinstri: Guðríður Líneik Daníelsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Margrét Matthildur Björnsdóttir, Sigríður Vilhjálmsdóttir (d.21.1.2012) og Jónína Valdimarsdóttir. Jólasveinarnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 443
Gleðibankinn stendur árlega fyrir upplestri úr nokkrum jólabókum á aðventunni. Eru þá fengnir nokkrir upplesarar af íbúum Skagastrandar til að lesa stutta kafla úr nýjum bókum ársins. Á þessari mynd, sem tekin var á slíku upplestrarkvöldi 11. desember 2013 í Bjarmanesi, hlýða á upplestur, frá vinstri: Helga Gunnarsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir og Lárus Ægir Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson 728
Þessar þrjár ungu stúlkur tóku þátt í söngvakeppni Höfðaskóla, Garginu, í Fellsborg 6. mars 2008. Þær eru frá vinstri: Anna Dís Ragnarsdóttir, Lilja Svandís Hallgrímsdóttir og Ásdís Erla Steingrímsdóttir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 40
Starfsmenn og stjórn Skagstrendings hf fóru saman til Austurríkis og Þýskalands sumarið 1987. Þá var þessi mynd tekin af hluta hópsins. Frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson, Gylfi Sigurðsson, Laufey Ingimundardóttir (d.31.12.1992), Guðrún Guðbjörnsdóttir, Birgir Þórbjarnarson, Guðrún Garðarsdóttir, Ingibjörg Skúladóttir, Hjörtur Guðbjartsson og Þórarinn Grétarsson.
Ólafur Bernódusson 774
Myndin var tekin 23. apríl 2010 þegar Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra var formlega opnað í gamla kaupfélaginu á Skagaströnd. Viðstödd voru, meðal annarra, ráðherrar, rektorar háskólanna og ýmsir ráðamenn úr heimabyggð. Fyrsti forstöðumaður setursins, Lára Magnúsardóttir, er fjórða frá hægri í fremstu röð.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Fermingarbörn 1973 í Hólaneskirkju (eldri) með prestinum séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996). Frá vinstri: Ragnar Högnason, Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir, Hörður Jónasson, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Magnús Bjarni Blöndal (d. 7.9.2001), Gréta Ingvarsdóttir, séra Pétur, Jóhann Grímsson, Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020), Lilja Guðjónsdóttir, Adolf H. Berndsen og Guðrún Ágústsdóttir.
Guðmundur Guðnason767
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson sóknarprestur flytur tölu við vígslu Höskuldsstaðakirkju 1963.
Ólafur Bernódusson 752
Halla Karen Gunnarsdóttir kennari fylgist með nemendum sínum á sviðinu í Fellsborg á Elínborgardegi Höfðaskóla 15. nóvember 2012
Ólafur Bernódusson 848
Á hverju vori í nokkur ár var haldið Landbankahlaup við útibú bankans á Skagaströnd. Á myndinni, sem var tekin 5. maí 2007, er Signý Richter, starfskona bankans, að mála barn með andlitsmálningu.
Arnar HU 1 - safn 89
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvert tilefnið var fyrir hittingnum í Fellsborg . Á myndinni eru Guðjón Guðjónsson og dóttir hans Bergþóra Guðjónsdóttir sitjandi við borðið. Milli þeirra er Guðbjörg Ólafsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 754
Karl Guðmundsson staddur í Reykjarfirði nyrðri 23. júní 2012.
Guðmundur Guðnason332
Þorkell Magnússon (d. 30.8.1968) úr Goðhól til vinstri og Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) frá Höfðakoti til hægri hljóta heiðursmerki sjómannadagsins 1967. Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) (með hatt) frá Brúarlandi og Bjögvin Jónsson frá Höfðabrekku hengja heiðurspeningana á sjómennina öldnu.
Guðmundur Guðnason805
Ferming í Hólaneskirkju 1962. Fermingarbörnin eru frá vinstri: aftasta röð: Sigurður Pálmason, Árni Björn Birgisson og Hrefna Þorbjörnsdóttir. Miðröð: Björn Hafsteinsson Fossdal (d.13.4.1983), Gissur Jóhannsson, Eðvarð Yngvason (d.29.5.2011), María Bjarnadóttir (d.1984), Ester Axelsdóttir og Helga Guðmundsdóttir. Fremsta röð: Ingibjörg Kristinsdóttir, Birna Guðjónsdóttir, Anna Bára Sigurjónsdóttir, María Jóndóttir og Árni Björn Ingvarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 629
Sigurlaug Kristjánsdóttir á Tjörn til vinstri og Elísabet Árnadóttir -Bebbý-(d.16.3.2017) til hægri að selja hannyrðir sínar á árlegum jólamarkaði kvenfélagsins Heklu í Skagabúð 30. nóvember 2014.
Guðmundur Guðnason338
Fermingarbörn 1980 í Hólaneskirkju eldri. Frá vinstri í fremstu röð: Þórhildur Jakobsdóttir, Sæbjörg Drífa Kristjánsdóttir, Agnes Sævarsdóttir og Vala Rós Ingvarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Orri Sveinbjörnsson Blöndal, Guðjón Árnason og Kristján Karlsson. Aftasta röð frá vinstri: Jóhannes Sveinsson, Ari Þórsson, Einar Ásgeirsson, Þröstur Sigurðsson, Guðfinnur Bjarni Ottósson, Víðir Ólafsson og Fritz Hendrik Berndsen.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið leikritið: Stalin er ekki hér veturinn 1981. Leikstjóri var Saga Jónsdóttir. Á þessari mynd eru, frá vinstri, leikararnir: Guðný Sigurðardóttir, Magnús B. Jónsson, Elín Njálsdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir (Bonný).
IMG_5214
Begga GK 717 strandaði í Vækilvík á Spákonufellshöfða í blíðu veðri 23. júlí 2007. Skipstjórinn og eigandinn var einn um borð og keyrði bátinn á fullri ferð upp í grýtta fjöruna í víkinni. Á myndinni eru menn úr björgunarsveitinni Strönd að létta bátinn með því að færa aflann og annað lauslegt yfir í björgunarbátinn Þórdísi. Begga var síðan dregin á flot af Húnabjörginni á næsta flóði og reyndist minna skemmd en menn óttuðust.
Ólafur Bernódusson 736
Hjónin Magnús B. Jónsson og Guðbjörg Viggósdóttir á leið í Reykjarfjörð nyrðri í 100 ára afmæli mæðginanna Guðrúnar Pálsdóttur (60 ára) og Halldórs Gunnars Ólafssonar (40 ára) 22. júní 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 645
23. júní 2014 var formlega opnuð göngubrú yfir Hrafná. Við það tækifæri var haldin Jónsmessubrenna og spákonurnar í Spákonuhofinu fluttu gjörning með aðstoð viðstaddra. Kuflklæddar spákonurnar eru Dagný Sigmarsdóttir til vinstri og Sigrún Lárusdóttir til hægri. Krakkarnir eru búnir að raða sér kringum eitthvert tákn sem þær gerðu á jörðina og fleiri fylgjast með. Brennan er í fullum gangi í baksýn.
Ólafur Bernódusson 747
Myndin var tekin 15. 11. 2012 á Elínborgardegi Höfðaskóla í Fellsborg. Á henni eru nemendur að flyta einhvert skemmmtiatriði. Frá vinstri: Jóhann Almar Reynisson, Kristmundur Baldvinsson og Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á Kántrýhátíð 2001. Frá vinstri: Herdís Jakobsdóttir, Gunnar Þór, Gígja Óskarsdóttir, ókunnugt barn og Þórhildur Jakobsdóttir. Konana fremst á myndinni er óþekkt.
Ólafur Bernódusson 789
Fólk teygir á líkamanum í Hornvík eftir langa göngu á Hornbjargið 22. júlí 2010. Á myndinni eru tvenn hjón: Lára Guðmundsdóttir og Gunnar Svanlaugsson til vinstri og Gylfi Sigurðsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir til hægri. Fólkið var í hópi Skgastrendinga sem gengu um Hornstrandir í júlí 2010.
Ólafur Bernódusson 852
Steindór Haraldsson meðhjálpari flytur þakkarávarp í Hólaneskirkju 9. nóvember 2013 vegna gjafar Lárusar Ægis Guðmundssonar til kirkjunnar á flygli til minningar um móður sína Soffíu Lárusdóttur (d.31.3.2010 )
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 688
Halla Björk Víðisdóttir kíkir í símann þegar hún var að fylgjast með hátíðahöldum vegna opnunar göngubrúar yfir Hrafná 23. júní 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 720
Dagný Hannesdóttir í Höfðaskóla 17. janúar 2015 við kleinubakstur til styrktar vorferðar unglinga skólans til útlanda að skóla loknum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 555
10. apríl 2014 var kynning á Flateyjarbók og fleiru í Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Skagaströnd. Myndin sýnir hluta þeirra sem sóttu þessa kynningu. Frá vinstri: Silfá Sjöfn Árnadóttir, Guðmundur Ólafsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Trostan Agnarsson (nær), óþekktur (fjær), Ólafur Bernódusson og Guðrún Pálsdóttir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 66
Myndin var tekin á árshátíð Skagstrendings hf haustið 1983 í Fellsborg. Á henni eru Sigurbjörn Kári Lárusson til vinstri, Egill Bjarki Gunnarsson í miðið og Guðrún Guðmundsdóttir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 788
Bræðurnir Sigurjón Ástmarsson til vinstri og Ástmar Kári Ástmarsson til hægri kíkja í samkomutjaldið á kántrýhátíð um miðjan ágúst 2006.
Guðmundur Guðnason811
Hrefna Þorbjörnsdóttir frá Akurgerði á fermingardaginn 1962
Guðmundur Guðnason757
Leiksýning í Tunnunni. Leikarinn lengt til hægri er Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka. Steindór Haraldsson er lengst til vinstri . Kristín Lúðvíksdóttir stendur á milli þeirra.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 586
Skógræktarfólk á Skagaströnd að planta nokkrum öspum sunnan við Spákonuhofið 18. október 2014. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Ari Þórsson, Jóhanna Sigurjónsdóttir, óþekktur, Guðrún Pálsdóttir og Kristín Björnsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 684
Ragnar Már Björnsson til vinstri og Alex Már Gunnarsson til hægri fylgjast með hátíðahöldum vegna opnunar göngubrúar yfir Hrafná 23. júní 2014.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Jón Hallur Pétursson og Guðný Sigurðardóttir í hlutverkum sínum í leikritinu Stalin er ekki hér. Leikklúbbur Skagastrandar sýndi leikritið undir stjórn Sögu Jónsdóttur veturinn 1981.
Axel Jóhann Hallgrímsson 11
Myndin var tekin á sjómannadegi kringum 1970. Lengst til hægri er Jón Ingi Ingvarsson jakkafataklæddur með mjótt bindi. Aftan við hann vinstra megin við lögregluþjóninn er Bernódus Ólafsson (d.1.9.1996). Maðurinn með húfu, yfirvaraskegg, gleraugu og hendur í vösum er Gunnlaugur Björnsson (d. 8.5.1978) frá Harrastöðum. Brosmildi maðurinn vinstra megin við hinn lögregluþjóninn er Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988) og strákurinn til vinstri með gleraugun, sem horfir á ljósmyndarann, er Guðmundur Viðar Guðmundsson. Aðrir eru óþekktir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 7
Myndin var tekin á sjómannadegi einhvertíma á sjöunda áratugnum yfir planið hjá Hafnarhúsinu. Eins og sjá má var söltuð síld á planinu því síldarkassarnir eru þarna ennþá. Rörið sem flutti mjölið yfir í mjölskemmuna er enn til staðar þegar myndin var tekin og á bílaplaninu er nokkra "drossíur".
Árni Geir Ingvarsson - safn
Velheppnuð Kántrýhátið, líklega 2001, laðaði að mikinn fjölda gesta. Öll hugsanleg tjaldstæði voru nýtt.
Guðmundur Guðnason825
Árni Björn Ingvarsson á fermingardaginn sinn 1962.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
<P>Þetta fólk kom allt að sýningum á leikritinu: Stalin er ekki hér, sem Leikklúbbur Skagastrandar sýndi veturinn 1981. Aftast eru leikararnir Magnús B. Jónsson til vinstri og Jón Hallur Pétursson til hægri. Í miðröð frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Ardís Ólöf Arilíusdóttir hvíslari, Bjarnhildur Sigurðardóttir (Bonný), Guðný Sigurðardóttir, Árni Geir Ingvarsson ljósamaður og Elín Njálsdóttir. Fremst eru frá vinstri: Helga Ottósdóttir, sem sá um leikskrá sýningarinnar og var jafnframt formaður Leikklúbbsins á þessum tíma, Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó) sá um smink og hárgreiðslu og Saga Jónsdóttir leikstjóri. </P>
Ólafur Bernódusson998
Limbókeppni á sameiginlegu diskóteki skólanna í Austur-Húnavatnssýslu í Fellsborg á íþróttadegi á Skagaströnd í apríl 2001.
Guðmundur Guðnason 2 504
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps hélt upp á 60 ára afmæli sitt árið 1985 í Húnaveri. Þá var þess mynd tekin af kórnum að syngja fyrir húsfylli af gestum. Nöfn þeirra sem sjást á myndinni verða ekki talin upp hér heldur er þér leyft að njóta þessa að þekkja fólkið á henni.
Guðmundur Guðnason713
Séra Jón Kr. Ísfeld og séra Pétur Þ. Ingjaldsson á gangi á sjómannadegi á Skagatrönd.
Jón Jónsson162
Lúðrasveit leikur á sjómannadegi
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Kappróður á sjómannadegi á bátunum Gusti og Golu. Ártalið er óþekkt en á þessum tíma var síldarkraninn enn standandi ásamt færibandinu sem flutti síldina úr lestum skipa upp í verksmiðju. Stóri báturinn á myndinni er Helga Björg Hu 7 sem var í eigu Útgerðafélags Höfðakaupstaðar smíðuð á Akranesi 1962 en var úrelt og rifin á Ísafirði 1992. Hinir bátarnir sem sjást eru óþekktir en takið eftir fólkinu sem hefur klifrað upp í löndunarkranann til að fá sem best útsýni yfir keppnina.</p>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 587
Skógræktarfólk á Skagaströnd plantar nokkrum öspum sunnan við Spákonuhofið 18.október 2014. Fólkið er, frá vinstri: Ari Þórsson, Kristín Björnsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Ívan Orri Eiríksson, Bjarni Bragi Bessason og móðir hans, Jóhanna Karlsdóttir.
Ólafur Bernódusson 770
Sigurbjörn Berg Sigurðsson skipstjóri heldur á sjaldséðum fiski sem hann fékk á línuna 12. febrúar 2010. Ekki er vitað hvað fiskurinn heitir og enginn sem sáu fiskinn höfðu séð hann áður. Ef þú veist hvaða fiskur þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 641
Myndin var tekin á skólauppákomu Höfðaskóla í Fellsborg 1. dember 2014. Hjónin Aðalheiður Guðmundsdóttir og Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) borða rjómatertu fremst á myndinni. Í baksýn er Sigríður Stefánsdóttir til vinstri. Magnús B. Jónsson horfir til hægri í átt að og bræðrunum Ólafi Halldórssyni og Páli Halldórssyni sem er í grárri hettupeysu.
Guðmundur Guðnason881
Fermingarbörn 1965 ganga til kirkju með prestinum, séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Stúlkurnar fremst á myndinni eru Ragnheiður Sigurjónsdóttir (til hægri) og Kristín Björnsdóttir. Næstir fyrir aftan þær koma Björn Bragi Sigmundson og Kristófer Einarsson. Aftast í hópnum eru, talið frá vinstri: Sigurður Kristinsson, Reynir Sigurðsson og Ólafur Bernódusson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason334
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson giftir Björn Magnússon (d. 13.11.2010) frá Syðra Hóli og Ingunni Lilju Hjaltadóttur frá Skeggjastöðum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 447
Bátur leggur að bryggju við Sægarð í norð austan roki. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma á árinu 2014:
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 716
Myndin var tekin 26. febrúar 2015 af manni að leika sér á brimbretti á brimöldunum fyrir neðan rækjuvinnsluna. Hann lætur kuldan ekki á sig fá enda klæddur í þurrbúning.
Guðmundur Guðnason045
<P>Ferming í Holtastaðakirkju. Kirkjukórinn syngur. Organistin er Gerður Aðalbjörnsdóttir í Hólabæ, Frímann Hilmarsson frá Breiðavaði er næstur konunum, þá Heiðmar Jónsson frá Ártúnum og næstur honum er Jón Tryggvason í Ártúnum. Fyrir aftan Jón er Runólfur Aðalbjörnsson frá Hvammi í Langadal. Hægra megin við hann er Hilmar A. Frímannsson á Fremstagili og Valgarður Hilmarsson vinstra megin. Konan með skotthúfuna sem snýr baki í ljósmyndarann er líklega helga Aradóttir frá Móbergi og Guðlaug Steingrímsdóttir hægra megin við hana.</P>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 729
Mæðginin Karitas Ólafsdóttir og Þórinn Brynjar Ingvarsson á þorrablóti á hjúkrunarheimilinu Sæborg 24. janúar 2015.
Axel Jóhann Hallgrímsson 45
Tveir sveitastjórar Skagastrandar með hatta hittast í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009. Magnús B. Jónsson til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson til hægri. Lárus var sveitastjóri 1972 -1984 en Magús gegndi því starfi 1990 - 2018.
1
…
71
72
73
…
104
Leita í myndasafninu
Leita