Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Bjarnhildur Sigurðardóttir (Bonný), sitjandi, og Guðný Sigurðardóttir í hlutverkum sínum í leikritinu Stalin er ekki hér, sem Leikklúbbur Skagastrandar sýndi undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur veturinn 1981.
Guðmundur Guðnason877
Jóhanna Valdimarsdóttir (Númadóttir) á fermingardaginn sinn 1961.
Axel Jóhann Hallgrímsson 60
Slavko Velemir prúðbúinn í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 715
Fólkið á miðri mynd var í dómnefnd á grímuballi Höfðaskóla 18. febrúar 2015 í Fellsborg. Til vinstri með tvöföld gleraugu er Trostan Agnarsson kennari. Í miðið er óþekkt listakona úr Nes listamiðstöðinni og til hægri er doktor James Kennedy.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 727
Karitas Ólafsdóttir til vinstri, Herdís Jakobsdóttir í miðið og Sylvía Hrólfsdóttir til hægri á þorrablóti á hjúkrunarheimilinu Sæborg 24. janúar 2015.
Ólafur Bernódusson 818
Myndin í Bjarmanesi var tekin við undirskrift samnings um stofnun listamiðstöðvarinnar Nes 6. mars 2008. Magús B. Jónsson sveitarstjóri skrifar undir en hjá honum er óþekktur fulltrúi Byggðastofnunar, sem tók þátt í stofnun listamiðstöðvarinnar. Aftan við þá stendur fólk úr stjórn miðstöðvarinnar, frá vinstri: Steindór Rúberg Haraldsson, Þorgerður Þóra Hlynsdóttir, Sigríður Gestsdóttir og Signý Richter.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 785
Mynd tekin á kántrýhátíð 18. ágúst 2006. Á henni eru Birgitta Rut Bjarnadóttir til vinstri og Hallbjörg Jónsdóttir til hægri að skoða götuskreytingu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 594
Fólk streymir út úr kirkjunni eftir fermingarmessu 24. maí 2014. Séra Bryndís Valbjörnsdóttir stendur í kirkjudyrum. Aðrir eru frá vinstri: Sigurður Björnsson sem ekur syni sínum Brynjari Sigurðssyni í hjólastól, óþekktur, Freydís Kristjánsdóttir, Ingibjörg María Reynisdóttir og Sindri Freyr Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 639
Myndin var tekin 1. desember 2014 á skólauppákomu Höfðaskóla í Fellsborg. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Guðmundur Henry Stefánsson með son sinn Sæþór í fanginu. Við hlið þeirra eru foreldrar Guðmundar, Stefán Jósefsson og Sigríður Gestsdóttir. Lengst til hægri er Lárus Ægir Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 495
Sungið um hitaveitu á þorrablóti í Fellsborg 2014. Leikarar eru frá vinstri: Árni Halldór Eðvarðsson, Halldór Gunnar Ólafsson (nær), Hafþór Gylfason (fjær), Ólafur Bernódusson, Hallbjörg Jónsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Þorgerður Þóra Hlynsdóttir (Gigga), Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, María Ösp Ómarsdóttir og Sigríður Stefánsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Velheppnuð Kántrýhátið, líklega 2001, laðaði að mikinn fjölda gesta. Öll hugsanleg tjaldstæði voru nýtt.
María Magnúsdóttir - safn 363
Myndin var tekin í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) 1. maí 2009. María er lengst til vinstri á myndinni með systrunum Elvu Dröfn Árnadóttur í miðið og Aðalheiði Sif Árnadóttur til hægri.
larus024
Óþekktur maður færir Hólaneskirkju gjafir í bókaformi líklega í hófi í Fellsborg eftir vígslu kirkjunnar í október 1991. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 686
Sonja Dröfn Helgadóttir fylgist með hátíðahöldum vegna opnunar göngubrúar yfir Hrafná 23. júní 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd var tekin af Þórunni Samsonardóttur (d. 11.10.1986) Akri (Hólabraut 13) á 85 ára afmæli hennar 16. maí 1976.
Guðmundur Guðnason761
<P>Frá vinstri: Óþekktur, Pétur Jóhannsson og Kristín Lúðvíksdóttir í hlutverkum sínum.</P>
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Bjarney Valdimarsdóttir og Hallbjörn Hjartarson, líklega í fermingarveislu Péturs Ingjalds Péturssonar 1976.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 846
Þessi mynd var tekin í Fellsborg 30. ágúst 2007. Ekki er vitað hvert tilefnið var en tónlistarfólkið er, frá vinstri: Þórarinn Grétarsson, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, Hjörtur Guðbjartsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Jón Ólafur Sigurjónsson og Hafþór Smári Gylfason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1127
Á Kántrýhátíð 14. ágúst 2010. Þorvaldur Skaftason leiðir óþekkta afastelpu um leið og hann spjallar við Óskar Þór Kristinsson. Bak við Óskar sér í Magnús B. Jónsson. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 738
Myndin var tekin á Elíborgardegi Höfðaskóla 15. nóvember 2011. 16. nóvember er dagur Íslenskrar tungu og er hans minnst á ýmsan hátt í grunnskólum. Í Höfðaskóla er dagurinn nefndur Elínborgardagur eftir Elínborgu Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara og starfsmanns skólans í hálfa öld. Krakkarnir á sviðinu eru frá vinstri: Arnrún Hrólfsdóttir, Erla Mjöll Daðadóttir, Gunnar Andri Elvarsson, Gunnar Snorri Guðjónsson, Helga Steingrímsdóttir, Hugrún Sigurðardóttir, Ísabella Tryggvadóttir, Óðinn Gunnarsson, Sóley Sif Jónsdóttir, Sólveig Erla Baldvinsdóttir, Stefanía Hrund Sveinsdóttir, óÞorkell ?r og Þórunn Hólmgeirsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á Kántrýhátíð 2001 var starfrækt hestaleiga. Á myndinni má sjá biðröð við hestaleiguna.
Guðmundur Guðnason923
Karlakórinn Heimir syngur í skólanum einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 811
Myndin var tekin 13. júní 2007 þegar fólk var að undirbúa sig fyrir hjólreiðakeppni á vegum umf Fram. Á myndinni eru frá vinstri: Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir, Daði Snær Stefánsson sonur hennar, Stefán Sveinsson maður hennar. Dökkhærði strákurinn á hjólinu er Elmar Jóhann Grétarsson, konan í bleiku peysunni er Vigdís Elva Þorgeirsdóttir, Péturína Jakobsdóttir er í rauðri peysu og strákurinn með hjálminn er Birkir Freyr Gunnarsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) fyrir altarinu í Hólaneskirkju eldri í einni af ótalmörgum athöfnum sínum á 41 árs ferli sínum sem sóknarprestur á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason827
María Bjarnadóttir (d.1984) á fermingardaginn sinn 1962.
Guðmundur Guðnason813
Árni Björn Birgisson á fermingardaginn 1962.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 712
Aðfaranótt 17. febrúar 2015 kom upp eldur í plastbát sem stóð við suðurhlið hússins Grund. Báturinn brann nánast til ösku og eldurinn náði að fara í plastklæðningu hússins og brenna hana að hluta eins og sjá má á myndinni. Slökkvilið Skagastrandar náði að slökkva eldinn áður en verr fór. Grund var síðan lagfærð en hræinu af bátnum var hent.
Guðmundur Guðnason681
Fermingarmynd af Aðalheiði Másdóttur frá Réttarholti
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Jón Hallur Pétursson og Guðný Sigurðardóttir í hlutverkum sínum í leikritinu Stalin er ekki hér, sem Leikklúbbur Skagastrandar sýndi undir stjórn Sögu Jónsdóttur veturinn 1981.
Guðmundur Guðnason919
Unglingahljómsveitin Tíglar leikur á tónleikum í Tunnunni. Frá vinstri á myndinni eru: Steindór Haraldsson að leika á bassa, Reynir Sigurðsson situr við trommurnar, Bergur Þórðarson leikur á gítar og syngur en hinn gítarleikarinn er Hjörtur Guðbjartsson. Myndin er tekin einhverntíma á árunum 1963 - 1968.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 422
Afgreiðslumenn í sjoppu skólafélagsins á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg 13. febrúar 2013. Guðmann Einar Magnússon til vinstri og Páll Halldórsson til hægri. Segja má að á myndinni komi vel saman íslenskri sveitakonu og amerískri ofurhetju.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 672
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) á jólastund á hjúkrunarheimilinu Sæborg 29. desember 2014. Þá var María heimilismaður þar.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Öll tjaldstæði voru nýtt á Kántrýhátíð 2001.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 642
Myndin var tekin á skólauppákomu Höfðaskóla í Fellsborg 1. desember 2014. Á henni eru hjónin Ragnheiður Sigurjónsdóttir og Helgi Gunnarsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 795
Hrólfur Eggert Pétursson lítur upp úr flatningunni á afla sínum í byrjun september 2009.
Ólafur Bernódusson 823
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 11. apríl 2008. Börnin á sviðinu eru, sitjandi frá vinstri: Anita Ósk Ragnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Viktor Örn Einarsson, Birgitta Bjarnadóttir, óþekkt og Kristján Róbertsson. Standandi frá vinstri: Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Svandís Lilja Hallgrímsdóttir, Guðmann Magnússon, Sveinn Hallgrímsson, Ísak Tryggvason, Páll Halldórsson (nær), Heba Líf Jónsdóttir (fjær), Eymundur Lórens Grétarsson, Ísabella Róbertsdóttir, Sunna Steingrímsdóttir og óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 724
Þorrablót á hjúkrunarheimilinu Sæborg 24. janúar 2015, heimilisfólk og gestir. Vinstra megin við borðið nær okkur eru: Signý Richter, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Hjördís Sigurðardóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Pétur Eggertsson og Sylvía Hrólfsdóttir. Hægra megin við borðið talið inn eftir borðinu: Ingibergur Guðmundsson, Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018), Adolf H. Berndsen, þrír óþekktir og Lýður Hallbertsson. Við borðið fjær okkur eru vinstra megin: Hrefna Björnsdóttir (d.8.10.2018), Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) og Sigurjón Ástmarsson. Hægra megin við borðið eru talið inn eftir borðinu: tvær óþekktar konur, Jökulrós Grímsdóttir og tveir óþekktir gestir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 665
Jólatónleikar kirkjukórs Hólaneskirkju í kirkjunni 17. desember 2014. Hugrún Sif Hallgrímsdóttir sjórnar og leikur á píanó.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 637
Jón Benedikt Tischleder Jensson á einhverri skólauppákomu Höfðaskóla í Fellsborg 1. desember 2014.
Guðmundur Guðnason141
Hestamannamót í Húnaveri sennilega á sjöunda áratugnum
Guðmundur Guðnason719
Afhending verðlauna fyrir sigur í kappróðri í unglingaflokki. Gunnar Sveinsson stýrimaður strákanna er lengst til vinstri, Ingvar Jónsson kynnir sjómannadagsins afhendir verðlaunin með hjálp Björgvins Jónssonar sem er lengst til hægri á myndinni. Ari Ólafsson er strákurinn fyrir miðri mynd með hendur í vösum og við hlið hans er Skúli Bjarnason með rautt hár. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Mynd tekin á sjómanadegi sennilega áður en dagskrá hófst á Hafnarhússplaninu. Í ræðustólnum er Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppsstjóri frá Brúarlandi. Á vegg Hafnarhússins hanga línustokkar til þerris og útspýtt selskinn hefur verið neglt á vegginn með holdrosan út, einnig til þerris.
Ólafur Bernódusson 827
Sigurður Sigurðarson, annar bankastjóra Gleðibankans, á stofnfundi bankans í Bjarmanesi 10. desember 2008. Sigurður hélt skemmtilegan fyrirlestur á fundinum um nauðsyn þess að stofna Gleðibanka á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Tjaldað á hverjum bletti á Kántrýhátíð 2001
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 725
Feðgarnir Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) og Ingibergur Guðmundsson á þorrablóti á hjúkrunarheimilinu Sæborg 24. janúar 2015.
larus030
Myndin var tekin í október 1991 í hófi í Fellsborg í tilefni af vígslu Hólaneskirkju. Á henni spila saman fyrir gesti, Julian Hewlett á píanó og Skarphéðinn Einarsson á trompet.
Ólafur Bernódusson 830
Hjónin Halldór Gunnar Ólafsson og Sigríður Stefánsdóttir á stofnfundi Gleðibankans í Bjarmanesi 10. desember 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 204
Eftir að hafa unnið í bæjarvinnunni yfir sumarið fóru krakkarnir með leiðbeinendum sínum um haustið í Kántrýbæ og borðuðu saman hamborgara. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið 2012 eða 2013. Frá vinstri: Eymundur Lórens Grétarsson, Páll Halldórsson, Birkir Freyr Gunnarsson, Geir Arnarsson, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Linda Rún Einarsdóttir og Anton Þór Einarsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Jón Hallur Pétursson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri í hlutverkum sínum í sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Stalin er ekki hér undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Leikritið var sýnt veturinn 1981.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Þessi mynd var tekin í veislu, sennilega fermingarveislu Péturs Ingjalds Péturssonar 1976. Á myndinni eru frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986), Bjarney Valdimarsdóttir og Hallbjörn Hjartarson,
Guðmundur Guðnason753
<P>Myndin er tekin á einhverri hátíðarsýningu. Frá vinstri í fremstu röð eru: Helgi Bjarnason, Steindór Haraldsson, Guðmundur Guðmundsson, Bergdís Sigmarsdóttir, Sóley Benjamínsdóttir, Brynja Axelsdóttir og Elínborg Ingvarsdóttir. Aftari röð: Stúlkan lengst til vinstri er Jóhanna Valdimarsdóttir (Númadóttir) svo Sigrún Kristófersdóttir þá Magdalena Axelsdóttir frá Læk og stúlkan við hlið hennar er Guðrún Þórbjarnardóttir. Strákurinn vinstra megin með fánann er Árni Björn Ingvarsson en hægra megin er Gissur Jóhannsson og við hlið hans er Búi Birgisson þá Birna Guðjónsdóttir en strákurinn lengt til hægri er Jóhann Ingibjörnsson.</P><br><P> </P><br><P> </P>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1119
Á Kántrýhátíð 13. ágúst 2009 flaug flugvél yfir íþróttavöllinn og úr henni var dreift karamellum við miklar vinsældir viðstaddra sem hlupu um og tíndu upp góðgætið.
Guðmundur Guðnason055
Dansað af hjartans lyst í Húnaveri.
Ólafur Bernódusson 853
Lárus Ægir Guðmundsson færir Hólaneskirkju flygil að gjöf 9. nóvember 2013 til minningar um móður sína Soffíu Lárusdóttur (d.31.3.2010).
Ólafur Bernódusson 804
Hluti af kirkjukór Hólneskirkju á æfingu fyrir gospel tónleika undir stjórn Óskars Einarssonar. Myndin var tekin 29. apríl 2007. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Þórarinn Grétarsson, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018) (nær), Eygló Amelía Valdimarsdóttir (fjær), Cristina Silod Yecyec, Hrafnhildur Jóhannsdóttir (nær) og Inga Rós Sævarsdóttir (fjær).
Axel Jóhann Hallgrímsson 89
Stjórn og starfsmenn Skagstrendings hf, ásamt mökum, fóru saman í ferðalag um suðurland í júní 1992. Oft var fjör á kvöldin á gististöðum hópsins, mikið sungið og spjallað. Á þessari mynd eru frá vinstri: Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011), Halldóra Þorláksdóttir (d.27.12.2017), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Karl Berndsen (d.12.2.1995) og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Mynd frá sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Stalin er ekki hér undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur veturinn 1981. Á myndinni eru leikararnir, frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir (Bonný) og Elín Njálsdóttir.
Ólafur Bernódusson 836
Á Kántrýdögum í ágúst 2008 var KK fenginn til að vera með busk-námskeið fyrir áhugasama (busk = tónlistarlegt uppistand). Með honum mættu á Skagaströnd Þorleifur Guðjónsson bassaleikari og Leo Gillespie sem var þekktur buskari á þessum árum. Margir mættu á námskeiðið með gítarana sína og nutu leiðsagnar þessara meistara en fóru svo út á götu og reyndu fyrir sér með hattinn sinn á götunni fyrir framan sig. Á myndinni er Leo lengst til vinstri, þorleifur stendur með bassann og KK - Kristján Kristjánsson - situr framan við hann með svartan hatt. Aðrir á myndinni eru áhugasamir nemendur þeirra þriggja.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Prestarnir tveir á myndinni eru séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) til vinstri og séra Ægir Fr. Sigurgeirsson til hægri. Báðir þjónuðu þeir í Hólaneskirkju eldri þar sem þessi mynd var tekin.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Frá vinstri: Ólafur Guðmannsson, Jón Hallur Pétursson, séra Pétur Þ. Ingjaldsson, Anna Kristjánsdóttir og Ragnheiður Magnúsdóttir á fermingardaginn sinn 1973 í Höskuldsstaðakirkju.
1
…
72
73
74
…
104
Leita í myndasafninu
Leita