Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 804
Hluti af kirkjukór Hólneskirkju á æfingu fyrir gospel tónleika undir stjórn Óskars Einarssonar. Myndin var tekin 29. apríl 2007. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Þórarinn Grétarsson, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018) (nær), Eygló Amelía Valdimarsdóttir (fjær), Cristina Silod Yecyec, Hrafnhildur Jóhannsdóttir (nær) og Inga Rós Sævarsdóttir (fjær).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 878
Myndin var tekin rétt fyrir jólin 2007 í Höfðaskóla. Á henni aðstoðar Magnea Valdimarsdóttir nokkra nemendur við jólaföndrið. Nemendurnir eru, frá vinstri: Sara Rut Fannarsdóttir, Laufey Inga Stefánsdóttir, Auðunn Árni Þrastarson og Arnar Páll Guðjónsson.
Ólafur Bernódusson 836
Á Kántrýdögum í ágúst 2008 var KK fenginn til að vera með busk-námskeið fyrir áhugasama (busk = tónlistarlegt uppistand). Með honum mættu á Skagaströnd Þorleifur Guðjónsson bassaleikari og Leo Gillespie sem var þekktur buskari á þessum árum. Margir mættu á námskeiðið með gítarana sína og nutu leiðsagnar þessara meistara en fóru svo út á götu og reyndu fyrir sér með hattinn sinn á götunni fyrir framan sig. Á myndinni er Leo lengst til vinstri, þorleifur stendur með bassann og KK - Kristján Kristjánsson - situr framan við hann með svartan hatt. Aðrir á myndinni eru áhugasamir nemendur þeirra þriggja.
Axel Jóhann Hallgrímsson 36
Finnur Kristinsson á sjómannadaginn 2008 með einn af mörgum verðlaunapeningum sínum fyrir kappróður um hálsinn.
Ólafur Bernódusson 839
Guðrún Guðmundsdóttir og Haraldur Árnason ræða málin á kántrýhátíð 19. ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 733
28. janúar 2015 héldu krakkarnir í Höfðaskóla gala-kvöld í veitingahúsinu Borg. Krakkarnir sáu um undirbúning, hjálpuðu til við matreiðslu sáu um framreiðslu og frágang eftir máltíðina sem fjöldi fólks keypti sig inn á. Á myndinni eru krakkarnir að gera klárt fyir kvöldið. Frá vinstri: Auðunn Árni Þrastarson?, Anton Þór Einarsson, Sigurbjörg Sigurpálsdóttir, Victoria Hólmgeirsdóttir, Trostan Agnarsson kennari (fjær), Jóna Margrét Sigurðardóttir (nær), óþekkt og Sigurður Aron Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1129
Kristján Blöndal á Kántrýhátíð 14. ágúst 2010.
Ólafur Bernódusson 779
Myndin var tekin á sameiginlegu grilli við hátíðatjaldið á Kántrýhátíð 19. ágúst 2006. Fólk kom með grillmat að heiman og grillaði á sameiginlegum grillum sem voru utan við tjaldið. Á myndinni eru, vinstra megin við borðið: séra Guðmundur Karl Brynjarsson, Kamilla Gísladóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Guðrún Anna Halldórsdóttir. Hægra megin við borðið eru: Halldór Gunnar Ólafsson, Hildur Ingólfsdóttir, Oddur Valdimarsson og Magnea Valdimarsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1050
Myndin var tekin eftir að Þórbjörn Jónsson (d.22.11.1996) til vinstri og Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.208) til hægri höfðu skírt björgunarbátinn Þórdísi á sjómannadegi líklega kringum 1990. Báðir voru þessir heiðursmenn lengi virkir í starfi Slysavarnafélagsins og björgunarsveit þess en Þórdís tilheyrði félaginu.
larus003
Prestar í Hólaneskirkju eldri. Myndin var líklega tekin 1981 þegar séra Oddur Einarsson, sem er lengst til hægri, tók við sókninni af séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) sem hafði þá þjónað í 40 ár. Pétur er annar frá vinstri á myndinni. Milli þeirra Péturs og Odds er séra Róbert Jack (d.11.2.1990). Presturinn lengst til vinstri er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 714
Grímuball á vegum Höfðaskóla 18. febrúar 2015 í Fellsborg. Foreldrar með grímubúin börn sín í fanginu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1049
Nokkur hópur fólks tók sig til og gekk á Spákonufellið á Jónsmessukvöldi 2009. Þar var hópurinn uppi á miðnætti og horfði þaðan á sólina snerta hafflötinn í norðri áður en hún tók að fikra sig aftur upp á himnafestinguna. Ólafur Benródusson hvílir sig á steini en Jón Ólafur Sigurjónsson nartar í harðfisk til hægri. Molduxinn gnæfir yfir í baksýn.
Guðmundur Guðnason815
Birna Guðjónsdóttir á fermingardaginn sinn 1962.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 774
Fjöldi barna og fullorðinna fylgist með sýningu brúðuleikhúss á hátíð í kofabyggðinni um miðjan ágúst 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 756
Ekki er vitað hver af jólasveinunum 13 þetta er en myndin náðist af honum þegar kveikt var á jólatrénu á Hnappstaðatúninu 3. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 983
Fallbyssan skoðuð eftir að skotið var úr henni 30. maí 2008. Frá vinstri: Guðjón Guðjónsson, óþekktur, Hallbjörn Björnsson, Stefán Jósefsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Lilja Dögg Hjaltadóttir og Hjalti Reynisson situr á hækjum sér. Maðurinn sem er að kíkja gegnum hlaupið er líklega Finnur Kristinsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 173
Fermingarbörn sem fermd voru í Hólaneskirkju vorið 2001 með sóknarprestinum. Fremri röð frá vinstri: séra Magnús Magnússon, Rósa Björk Einarsdóttir, óþekkt stúlka, Albert Ingi Haraldsson, Friðvin Ingi Ernstsson Berndsen og Ásdís Adda Ólafsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Hanna Rúna Gestsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Katrín Inga Hólmsteinsdóttir, Sindri Njáll Hafþórsson og Eyþór Kári Egilsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1143
Þeim leiðist ekki starfsfólkinu í vinnuskólanum í rafting á Austari- og Vestari Jökulsá í Skagafirði 18. ágúst 2004. Fólkið vinstra megin, talið í röð frá okkur: Guðjón Ebbi Guðjónsson, Brynja Ágústsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir og óþekktur stýrimaður. Hægra megin talið frá okkur: Stefán Velemir, Sindri Jóelsson, Ester Ösp Víðisdóttir og Katrín Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1245
Sigurður Aron Björnsson í kvenhlutverki á sviðinu í Fellsborg 23. mars 2012 á árshátíð Höfðaskóla.
Ólafur Bernódusson 788
Lárus Ægir Guðmundsson íþróttakennari stjórnar teygjum hjá gönguhópi frá Skagaströnd í Hornvík 21. júlí 2010 eftir að hópurinn hafði gengið á Hornbjargið.
Guðmundur Guðnason817
María Bjarnadóttir (d.1984) (til vinstri) og Birna Guðjónsdóttir á fermingardaginn sinn 1962.
Ólafur Bernódusson 748
Myndin var tekin 15. nóvember 2012 á Elínborgardegi Höfðaskóla í Fellsborg. Á henni eru nemendur að flytja skemmtiatriði fyrir gesti. Frá vinstri: Daði Snær Stefánsson, Dagný Dís Bessadóttir, Dagur Freyr Róbertsson og Freydís Ósk Kristjánsdóttir.
Ólafur Bernódusson 862
Skipstjórarnir á Arnari HU 1, Guðjón Guðjónsson til vinstri og Árni Ólafur Sigurðsson til hægri, fagna frábærum aflaverðmætum Arnars Hu 1 árið 1999. Þá var Arnar fyrsta skipið á Íslandi til að fiska fyrir meira en milljarð á einu ári. Strákurinn til vinstri er Kristján Pétur sonur Guðjóns skipstjóra. Myndin var tekin um borð rétt fyrir jólin 1999.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 754
Róbert Freyr Gunnarsson með yngsta son sinn, Patrik Mána Róbertsson, í fanginu á jóla-barnaballi í Fellsborg 26. desember 2010.
Ólafur Bernódusson 795
Þrír Skagstrendingar á Geirólfsnúpi 24. júlí 2010. Þarna voru þeir ásamt hópi Skagstrendinga sem gengu um Hornstrandir í nokkra daga í júlí 2010. Frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Lárus Ægir Guðmundsson og Steindór Haraldsson. Eins og sjá má var veðrið óaðfinnanlegt þennan dag og útsýnið stórfenglegt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1259
Þröstur Líndal Gylfason, bóndi á Kjalarlandi, að draga kindurnar sínar í dilk í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1056
Hallbjörg Jónsdóttir með ömmustelpuna sína, Sóley Sif Jónsdóttur, í fanginu á gamlárskvöldi 2009.
Guðmundur Guðnason683
Fermingarmynd af Pálfríði Bjarnadóttur
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1200
Herdís Jakobsdóttir til vinstri og Þorgerður Þóra Hlynsdóttir til hægri á aðventukvöldi í Hólaneskirkju 5. desember 2010.
larus039
Lárus Ægir Guðmundsson formaður byggingarnefndar Hólaneskirkju til hægri þakkar Leifi Breiðfjörð glerlistamanni fyrir vel unnið verk en Leifur gerði listaverkið í baksýn sem prýðir austurglugga kirkjunnar sem altaristafla. Myndin var tekin 1. ágúst 1991.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) fyrir altarinu í Hólaneskirkju eldri í einni af ótalmörgum athöfnum sínum á 41 árs ferli sínum sem sóknarprestur á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason813
Árni Björn Birgisson á fermingardaginn 1962.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 712
Aðfaranótt 17. febrúar 2015 kom upp eldur í plastbát sem stóð við suðurhlið hússins Grund. Báturinn brann nánast til ösku og eldurinn náði að fara í plastklæðningu hússins og brenna hana að hluta eins og sjá má á myndinni. Slökkvilið Skagastrandar náði að slökkva eldinn áður en verr fór. Grund var síðan lagfærð en hræinu af bátnum var hent.
Ólafur Bernódusson 845
Hjónin Gunnlaugur Sigmarsson útibússtjóri landsbankans á Skagaströnd og Steinunn Friðriksdóttir grilla pylsur fyrir gesti þegar fram fór landsbankahlaup 5. maí 2007
Séra Pétur og Dómhildur - safn
<p>Fermingarmynd tekin í Hólaneskirkju (eldri) af fermingarárgangi 1969. Fremsta röð frá vinstri: Elsa Lára Sveinbjörnsdóttir Blöndal, Anna Guðmannsdóttir, séra Pétur Þ. Ingjaldsson og Eygló Gunnarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Líney Jósefsdóttir, Aðalheiður Másdóttir, Lára Bylgja Guðmundsdóttir, Lára Guðmundsdóttir og Pálfríður Bjarnadóttir. Aftasta röð frá vinstri: Grímkell Pálsson, Indriði Grímsson, Arelíus Viggósson, Jón Ingvar Valdimarsson og Stefán Kristinsson. </p><p><br></p>
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Jón Hallur Pétursson, sem liggur útaf, og Ólafur Bernódusson í hlutverkum sínum í leikritinu Stalin er ekki hér, sem Leikklúbbur Skagastrandar sýndi undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur veturinn 1981.
Guðmundur Guðnason799
Ómar Másson frá Réttarholti á fermingardaginn 1970
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 998
Unnar Leví Sigurbjörnsson spilar á gítar á söngvakeppni Höfðaskóla, Garginu, sem haldin var í Fellsborg 6. mars 2008.
Guðmundur Guðnason246
Ólafur Ásgeirsson á fermingardaginn sinn.
Arnar HU 1 - safn 126
Jónas Fanndal Þorvaldsson blæs á dónalegt afmæliskerti um borð í Arnari HU 1 á afmælinu sínu 25. maí. Árið er óþekkt.
Ólafur Bernódusson 821
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 11. apríl 2008. Á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: tvær óþekktar stúlkur, Sigurbjörg Birta Berndsen, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015), óþekkt, Telma Dögg Bjarnadóttir, óþekkt, Birta Bessadóttir og óþekktur.
Ólafur Bernódusson 829
Guðrún Pálsdóttir og Gunnar Sveinsson spjalla saman á stofnfundi Gleðibankans í Bjarmanesi 10. desember 2008.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á þessari mynd eru hjónin Aðalbjörg Sigurðardóttir (1930-2015) og Þorbjörn Jónsson (1922 -1986) frá Akurgerði (Hólabraut 9) með 11 af 13 börnum sínum á fermingardegi Heiðdísar Þorbjörnsdóttur(1957). Aftari röð frá vinstri: Þráinn Þorbjörnsson(1955), Sigurður Þorbjörnsson(1953), Ísleifur Þorbjörnsson(1951), Guðbjörg Þorbjörnsdóttir(1949), Hrefna Þorbjörnsdóttir(1948) og Ómar Þorbjörnsson(1946-2021). Fremri röð: Heiðdís Þorbjörnsdóttir(1957), Kristjana Þorbjörnsdóttir(1959), Aðalbjörg, Sonný Lísa Þorbjörnsdóttir(1964), Heiðrún Þorbjörnsdóttir(1960), Þorbjörn og Þröstur Þorbjörnsson(1962). Á myndina vantar Hallbjörn Þorbjörnsson (1954)og Valborgu Þorbjörnsdóttur(1950). Myndin var tekin eftir að fjölskyldan var flutt í Kópavog.
Ólafur Bernódusson 740
Þessi hópur fór í afmæli í Reykjarfjörð nyrðri 22. - 24. júní 2012 með Öldunni Hu 112 . Standandi lengst til vinstri eru Ernst Guðni Hólmgeirsson háseti og Sigurjón Guðbjartsson skipstjóri á Öldunni. Krjúpandi frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, óþekkt listakona, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Ólafur Halldórsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Páll Halldórsson, Sigríður Sefánsdóttir og Guðrún Pálsdóttir afmælisbarn (60 ára). Standandi frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Karl Guðmundsson, Melody Woodnut, óþekktur, Svana Lára Hauksdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson afmælisbarn (40 ára), Stefán Ægir Lárusson, Inga Fjóla Sigurðardóttir, Ólafur Bernódusson, óþekktur listamaður, Soffía Magnúsdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir og Jakob Kasper með börnin sín tvö Zelia Kasper og Lazer Kasper.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 713
Grímuball á vegum Höfðaskóla 18. febrúar 2015 í Fellsborg. Börn og fullorðnir í skrautlegum búningum.
Guðmundur Guðnason047
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) með tveimur fermingarstúlkum að lokinni fermingu í Holtastaðakirkju. Stúlkan til hægri er Rannveig Runólfsdóttir frá Hvammi í Langadal en stúlkan vinstra megin er Ólöf Jónsdóttir frá Ártúnum.
Ólafur Bernódusson 787
Gönguhópur frá Skagaströnd á leið af Hornbjargi niður í tjaldbúðirnar í Hornvík 21. júlí 2010. Jörundur gnæfir yfir til hægri . Á myndinni eru frá vinstri: Guðbjörg Gylfadóttir, Haraldur Árnason, Ólafur Bernódusson, Amy Ósk Ómarsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Gunnar Svanlaugsson og Lára Guðmundsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari418
Kvennakvartett syngur á óþekktu sviði. Ef þú þekkir einhverja kvennanna og/eða veist hvar myndin var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 962
Ingólfur Eðvald Björnsson á afmælisdegi systur sinnar Guðnýjar Evu 19. júní 2007. Greinilega hefur hann fengið sneið af súkkulaðitertu sem ekki hefur öll að rétta leið í munninn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 987
Elva Dröfn Árnadóttir og Ágúst Ingi Ágústsson kennarar við Höfðaskóla fylgjast með söngkeppni skólans, Garginu, í Fellsborg 6. mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 989
Húsfyllir á pákabingói í Fellsborg 22. mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1164
Nýjum vigtarskúr komið fyrir á sínum stað við hafnarvogina með aðstoð fjögurra lyftara 22. október 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 257
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún er af slökkviliðinu á Skagaströnd við æfingu hjá Rækjuvinnslunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 718
17. janúar 2015 steiktu foreldrar og velunnarar barna í Höfðaskóla kleinur í eldhúsinu þar. Kleinurnar voru síðan seldar til ágóða fyrir vorferð unglinganna til útlanda að skóla loknum. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, Trostan Agnarsson kennari, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Dagný Hannesdóttir, Guðlaug Grétarsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Einar Haukur Arason
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 732
28. janúar 2015 héldu krakkarnir í Höfðaskóla gala-kvöld í veitingahúsinu Borgin. Krakkarnir sáu um undirbúning, hjálpuðu til við matreiðsluna og sáu um framreiðsluna fyrir þá sem keyptu sér mat þetta kvöld. Á myndinni eru í eldhúsinu, frá vinstri: Harpa Hlín Ólafsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir og Anton Einarsson.
Ólafur Bernódusson 743
Myndin var tekin 24. nóvember 2013 í 80 ára afmælisboði björgunarsveitarinnar Strönd á Skagaströnd í húsnæði hennar við höfnina. Margir gestir komu og þáðu kaffisopa og skoðuðu ný og gömul björgunartæki sveitarinnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1144
18. ágúst 2004 fór starfsfólk vinnuskólans saman í rafting í Austari- og Vestari Jökulsá í Skagafirði til halda upp á lok skólans það sumarið. Fremst, liggjandi: Aðalheiður Rögnvaldsdóttir vinstra megin og Heiða Berglind Fannarsdóttir hægra megin. Krjúpandi frá vinstri: Helga Dögg Jónsdóttir, Sindri Jóelsson, Hanna María Gylfadóttir, Albert Haraldsson, Jóhann Már Berry, Ester Ösp Víðisdóttir, Arnrún Bára Finnsdóttir og Katrín Guðmundsdóttir. Standandi frá vinstri: Almar Freyr Fannarsson, Kristján Pétur Guðjónsson, Guðmundur Ingi Ólafsson (d. 8.11.2006), Alma Eik Sævarsdóttir, Oddur Aron Valdimarsson, Ragnar Björnsson, Eydís Ósk Einarsdóttir, Rósa Björk Blöndal Einarsdóttir, Ásþór Óðinn Egilsson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Brynja Hödd Ágústsdóttir og óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1011
Hafsteinn Pálsson vinstra megin og Hallgrímur Hjaltason hægra megin spjalla saman í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Ólafur Bernódusson 757
Myndin var tekin 24. júní 2012 um borð í Öldunni HU 112 af þeim Sigurjóni Guðbjartssyni skipstjóra og eiganda Öldunnar til vinstri og Gylfa Sigurðssyni til hægri. Hér eru þeir á leið í Reykjarförð nyrðri í afmæli ásamt fleira fólki.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1288
Hjónin Ólafur Bernódusson og Guðrún Pálsdóttir að vinna við lagningu göngustígs um skógræktina ofan við Hólabergin 28. júlí 2012. Skógræktarfélag Skagastrandar hefur séð um ræktina þarna og stígurinn var nefndur Jónsstígur eftir Jóni Jónssyni (d.9.7.1991), sem lengi var formaður félagsins og ötull skógræktarmaður.
1
…
73
74
75
…
104
Leita í myndasafninu
Leita