Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1240
Ívan Árni Róbertsson á síðustu æfingu fyrir árshátíð Höfðaskóla 23. mars 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1323
Þessir íbúar við Fellsbrautina skreyttu, ásamt fleirum, götuna sína 10. ágúst 2011 fyrir Kántrýhátíðina dagana á eftir. Fólkið er frá vinstri: Kristín Birna Guðmundsdóttir, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, Björn Hallbjörnsson og Einar Haukur Arason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 947
Dansað kringum jólatréð á litlu jólum Höfðaskóla 19. desember 2007 í íþróttasalnum. Allir taka þátt í söng og hreyfileikjum, sem tilheyra jólaböllum, og skemmta sér vel í sparifötunum sínum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1193
Ásdís Birta Árnadóttir syngur einsöng með kirkjukór Hólaneskirkju á aðventukvöldi 5. desember 2010. Fyrir aftan hana má sjá, talið frá okkur: Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018), Sigurjón Guðbjartsson og til hægri, Halldór Gunnar Ólafsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir svo: "<em>Megas Hu 69 6646 (1646). Báturinn var smíðaður úr plasti í Hafnarfirði 1984 og var 4,9 brl. með 165 ha. Volvo Penta vél. Gylfi Guðjónsson og Hjörtur Guðbjartsson keyptu bátinn og settu sjálfir niður vélina. Þeir áttu bátinn þar til hann var seldur til Stykkishólms 1988 og þaðan var hann seldur til Grænlands 1993".</em> Á þessri mynd sést Gylfi Guðjónsson standandi í dökkum jakka en aðrir eru óþekktir. Líklega var myndin tekin á sjómannadegi því drengurinn í gulu buxunum er rennblautur og staurinn efst á myndinni til hægri hefur sennilega verið notaður í koddaslag.</p>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 772
Steinunn Steinþórsdóttir og Árni Geir Ingvarsson á hátíð í kofabyggðinni um miðjan ágúst 2008.
Ólafur Bernódusson 870
Myndin var tekin á árlegum piparkökudegi í leikskólanum Barnaból í desember 1999. Á myndinni eru frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson (nær), Helga Ólína Aradóttir (fjær) á milli þeirra má greina Höllu Björk Víðisdóttur, Ólöf Hafþórsdóttir, Hafþór Freyr Sigmundsson, Saga Lind Víðisdóttir, Kristín Ólafsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir og Sigríður Stefánsdóttir. Barnið næst okkur á myndinni er Guðrún Anna Halldórsdóttir.
larus025
Á myndinni er Guðmundur Ingi Leifsson sóknarnefndarformaður á Blönduósi að afhenda Aðalbjörgu Hafsteinsdóttur starfssystur sinni á Skagaströnd, sálmabækur að gjöf frá Blönduóskirkju. Myndin var tekin í hófi í Fellsborg í október 1991 eftir vígslu Hólaneskirkju.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 781
Myndin var tekin 31. maí 2008 við formlega opnun Listamiðstöðvarinnar Nes. Opnunin var hluti af hátíðahöldum sjómannadagsins sem var daginn eftir 1. júní. Á myndinni eru frá vinstri: Guðný Björnsdóttir, Hrafhildur Jóhannsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir. Lengst til vinstri í bakgrunninum sér í Hrafnhildi Sigurðardóttur sem var einn af aðal hvatamönnum að stofnun miðstöðvarinnar.
Ólafur Bernódusson 903
Áhugasamir nemendur á námskeiði um rekstur fyrirtækja í Höfðaskóla í febrúar 1999.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 951
Á myndinni , sem tekin var á litlu jólum í Höfðakóla 19. desember 2007, er Heiðrún Tryggvadóttir kennari lengst til vinstri með umsjónarbekknum sínum. Frá vinstri: Heiðrún, Tryggvi Fjölnisson sonur hennar, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Kristbjörg Ragnheiðardóttir (fjær), Freyja Einarsdóttir (nær), Andrea Kristjánsdóttir, Halla Björk Víðisdóttir, Sara Rut Fannarsdóttir, Lilja Bjarney Valdimarsdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir og Alex Már Gunnarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1410
Myndin var tekin í Kjörbúðinni á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011. Konan með hattinn er Monika Jónasdóttir en lengra frá er Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1390
Hljómsveitin Janus er lífseig en kemur ekki oft fram. Henni er þó almennt mjög vel tekið þegar hún treður upp enda þar miklir hæfileikamenn á ferð. Á þessari mynd, sem tekin var á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011, eru frá vinstri: Hjörtur Guðbjartsson, Fannar Viggósson, Þorvaldur Skaftason og Guðmundur Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1360
Myndin var tekin á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012. Götur bæjarins voru skírðar upp á nýtt og skreyttar á ýmsa vegu. Guðbjörg Ólafsdóttir situr vinstra megin við borðið og Ása Jóhannsdóttir hægra megin. Milli þeirra er Árni Geir Ingvarsson.
Ólafur Bernódusson 871
Myndin var tekin í desember 1999 á árlegum piparkökudegi í leikskólanum Barnabóli. Á henni er Sesselja Guðmundsdóttir að aðstoða ?Aldísi Emblu Björnsdóttur? við baksturinn. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1163
22. október 2010 var nýi vigtarskúrinn fluttur frá verkstæði Helga Gunnarssonar, þar sem hann var smíðaður, niður að hafnarvigtinni þar sem honum var svo komið fyrir. Helgi Gunnarsson gengur á undan bílnum til að vara vegfarendur við plássfrekum flutningi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1348
Sigurbjörg Birta Berndsen og Ívan Árni Róbertsson að leika sér í vatnsrennibraut við Íþróttavöllinn 11. ágúst 2011. Þá héldu krakkarnir úr vinnuskólanum upp á verklok það sumarið ásamt verkstjórum sínum með grillveislu og sprelli.
Ólafur Bernódusson 828
Tónlistarfólkið og hjónin Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson skemmta með tónlitarflutningi á stofnfundi Gleðibankans í Bjarmanesi 10. desember 2008.
Ólafur Bernódusson 860
Myndin var tekin á opnu húsi hjá vefstofunni Árbliki í húsnæði gamla frystihúss Hólaness hf í desember 1999. Fannar Viggósson framkvæmdastjóri Árbliks, sem er annar frá vinstri, er að sýna óþekktum mönnum hvernig vefstóll virkar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 791
Myndin var tekin í Gunnfríðarstaðaskógi 19. desember 2010 Af krökkum sem fá að sitja í kerrunni smá spöl innan um jólatrén sem prýddu síðan heimili þeirra þessi jólin. Frá vinstri: Stefanía Hrund Stefánsdóttir, Ásdís Birta Árnadóttir, Aldís Embla Björnsdóttir og Daði Snær Stefánsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1194
Ingibjörg María Reynisdóttir spilar á blokkflautu á aðventukvöldi í Hólaneskirkju 5. desember 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 966
Myndin var tekin í fermingu Svönu Dísar Þórarinsdóttur 1. apríl 2007. Með henni á myndinni er pabbi hennar Þórarinn Brynjar Ingvarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1101
Myndin var tekin 29. júlí 2010 þegar athafnasvæði Sorphirðu Vilhelms Harðarsonar var opnað formlega. Á bekknum hvíla lúin bein feðgarnir Adolf H. Berndsen til vinstri og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) til hægri. Milli þeirra situr vinur þeirra Lárus Ægir Guðmundssson.
Ólafur Bernódusson 741
Hjónin Guðrún Guðbjörnsdóttir og Gylfi Sigurðsson njóta veðurblíðunnar við gamla skólahúsið í Reykjarfirði nyrðri 23. júní 2012 eftir að hafa gengið á hvíta sand á Þaralátursnesi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1121
Þrír ættliðir á íþróttavellinum 13. ágúst 2010 þegar Kántrýhátíð stóð sem hæst. Þarna er fólkið líklega að bíða eftir karamelluregni sem dreift var úr flugvél yfir völlinn. Fólkið er: Lárus Ægir Guðmundsson, Soffía Lárusdóttir og Stefán Logi Svansson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1242
Myndin var tekin 23. mars 2012 í Fellsborg á síðustu æfingu fyrir árshátíð Höfðaskóla, sem haldin var þá um kvöldið. Á myndinni eru frá vinstri: Magnús Sólberg Baldursson, Freyja Dís Jóhannsdóttir, Guðrún Björgvinsdóttir, Ólafur Halldórsson, Ingólfur Eðvald Björnsson, Karen/Rakel Elvarsdóttir, Ívan Orri Eiríksson, Pétur Árnason, Hekla Guðrún Þrastardóttir og Arna Rún Arnarsdóttir. Framan við nemendurna stendur ?Erna Berglind Hreinsdóttir?umsjónakennari .
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1501
Halloween í félagsmiðstöðinni Undirheimar 28. október 2011. Skrautlegir búningar og förðun gerir erfitt að þekkja hver er hvað á myndinni þannig að hér verður hver og einn að spreyta sig.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Jón Hallur Pétursson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri í hlutverkum sínum í leikritinu Stalin er ekki hér, sem Leikklúbbur Skagastrandar sýndi veturinn 1981 í leikstjórn Sögu Jónsdóttur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1004
Hekla Guðrún Þrastardóttir í Fellsborg 6. mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 763
Myndin var tekin 26. desember 2012. Á henni leiða Hallbjörg Jónsdóttir vinstra megin og Laufey Lind Ingibergsdóttir til hægri, jólasöng á jólabarnaballi í Fellsborg. Fannar Viggósson spilar á bassa og til vinstri, framan við sviðið, syngja Dagný Dís Bessadóttir og Guðný Eva Björnsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 781
Verðlaunahafar í kúluvarpi á palli eftir unglingamót USAH á Blönduósi 14. júlí 2010. Frá vinstri: Páll Halldórsson, óþekktur og Anton Einarsson. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 878
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá var sett upp sýning á ljósmyndum úr skólastarfi undangenginna ára og á gömlum aflögðum munum úr starfinu. Á myndinni eru tvær reynslumiklar skólakonur að skoða fyrsta fjölritann sem notaður var í skólanum. Konurnar eru Elínborg Jónsdóttir kennari til vinstri og Bergþóra Gísladóttir skólamálastjóri A-Hún til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1400
Systurnar Sigrún Jónsdóttir til vinstri og Hallbjörg Jónsdóttir til hægri á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011.
Ólafur Bernódusson 769
Myndin var tekin 11. janúar 2010 þegar fulltrúar úr kvenfélaginu Eining afhentu heilsugæslunni á Skagaströnd nuddbekk og fleiri tæki að gjöf. Á myndinni eru frá vinstri: Sigríður Stefánsdóttir hjúkrunarkona, Gígja Óskarsdóttir frá Einingu, Jóhanna Sigurjónsdóttir frá Einingu, Ingibjörg Kristinsdóttir frá Einingu, Ingunn Björnsdóttir sjúkraþjálfari með barn, óþekkt, Christine Weinert sjúkraþjálfari og Angela Berthold sjúkraþjálfari,
Ólafur Bernódusson 885
Myndin var tekin í íþróttahúsinu á Kántrýhátíð í ágúst 1999. Þá fór þar fram Kántrýdansa- keppni, sýning og kennsla. Á myndinni er dansflokkurinn sem sigraði í keppninni en nöfnin á fólkinu eru því miður óþekkt.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) með son sinn Jón Hall Pétursson á fermingardaginn hans vorið 1973.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 790
Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir fær sér kakóbolla í Gunnfríðarstaðarskógi eftir að hafa náð sér í jólatré þar rétt fyrir jólin 2010.
larus086
Örnólfur Hall arkitekt skoðar sköpunarverk sitt, Hólaneskirkju, í byggingu 10. október 1989.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 992
Elín Rafnsdóttir með dóttur sinni Sunnu Steingrímsdóttur að fylgjast með söngkeppni Höfðaskóla - Garginu - 6. mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1243
Myndin var tekin 23. mars 2012 á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Á henni er einn bekkur að flytja sitt atriði. Frá vinstri: Daði Snær Stefánsson, Birta Dögg Bessadóttir, Haraldur Guðjónsson, Rebekka Heiða Róbertsdóttir, Jóhann Almar Reynisson, Freydís Kristjánsdóttir og Kristmundur Baldvinsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1221
Kristín Björnsdóttir í Skógræktarfélagi Skagastrandar plantar birki á skólalóðinni austan við Oddgötu 4. júlí 2011.
Ólafur Bernódusson 882
Myndin var tekin í íþróttahúsinu á Kántrýhátíð í ágúst 1999. Þá fór þar fram kántrýdanskeppni og kennsla. Á myndinni eru gestir að spreyta sig á danssporunum undir stjórn Jóhanns Arnar Ólafssonar danskennara. Fremst á myndinni eru tvær Gunnur, Guðrún Pálsdóttir í blárri skyrtu og Guðrún Sigurðardóttir í grænni peysu og svörtum bol.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 841
Jónmundur Ólafsson (d.19.4.2017) og Jónína Valdimarsdóttir spjalla saman á einhverri óþekktir samkomu í Fellsborg 1. maí 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1223
Myndin var tekin 4. júlí 2011 af Sigurjóni Ingólfssyni í gróðursetningarvinnu þegar félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar gróðursettu nokkrar aspir norðan við íþróttahúsið og birkiplöntur á skólalóðinni austan við Oddagötuna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1293
Myndin var tekin 26. apríl 2012 þegar Árni Geir Ingvarsson tekur á móti fjárstyrk frá Menningarráði Norðurlands vestra til að halda ljósmyndasýningu á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson 915
Myndin var tekin í febrúar 1999 af krökkum úr Höfðaskóla á gönguskíðanámskeiði. Frá vinstri: Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Birkir Rúnar Jóhannsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekkta strákinn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Arnar HU 1 - safn 70
Hljómsveitaræfing á frívaktinni um borð í Arnari HU 1 fimmta maí 2004. Hljómsveitarmeðlimir eru frá vinstri: Guðlaugur Hjaltason, Þröstur Árnason, Hafþór Gylfason, Ernst Berndsen og Fannar Viggósson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1260
Myndin var tekin af réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Fremst á myndinni er Stefán Stefánsson bóndi á Ytri-Ey. Vinstra megin við hann er Jakob Guðmundsson bóndi á Árbakka með skegg á spjalli við frístundabóndann Árna Halldór Eðvarðsson með grá húfu. Milli þeirra grillir í Magnús Guðmannsson bónda á Vindhæli. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1000
Ívan Árni Róbertsson og Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir syngja á söngvakeppni Höfðaskóla - Garginu - í Fellsborg 6. mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 814
Nokkrir þátttakendur í kvennahlaupi ÍSÍ 16. júní 2007. Talið frá vinstri: óþekkt stúlka, Guðbjörg Viggósdóttir, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Sigríður Gestsdóttir og Péturína Jakobsdóttir.
Ólafur Bernódusson 838
Ungir dansarar sýna kántrýdans í samkomutjaldinu á kántrýhátíð 18. ágúst 2007. Dansararnir eru frá vinstri: Sigurlaug Máney Sæmundsen, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir og Heba Líf Jónsdóttir.
Ólafur Bernódusson 820
Tvær stúlkur í hlutverkum sínum á sviði Fellsborgar á árshátíð Höfðaskóla 11. apríl 2008. Kristín Gerður Óladóttir stendur en Sylvía Hrólfsdóttir situr.
Ólafur Bernódusson 844
Hjónin Björn Hallbjörnsson og Lilja Ingólfsdóttir fylgjast með Landsbankahlaupi 5. maí 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1265
Myndin var tekin 13. desember 2012 þegar Ólafur Bernódusson, aðstoðarmaður jólasveinanna, var að koma í sjoppuna til að skipta um föt eftir heimsókn í leikskólann Barnaból.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 953
Þessar þrjár blómarósir skemmtu sér vel á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007. Frá vinstri: Eva Dís Gunnarsdóttir, Þorgerður Björk Guðmundsdóttir og Tanja Rán Einarsdóttir.
Ólafur Bernódusson 772
Kántrýmessa á Kántrýhátíð 17. ágúst 2008. Á myndinni sést hluti kirkjukórsins sem söng í messunni og einsöngvarinn Hafþór Gylfason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1244
Elvar Geir Ágústsson vinstra megin og Einar Ari Einarsson hægra megin, ljósa- og hljóðmenn, á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012. Myndin var tekin á síðust æfingu þá um morguninn.
Arnar HU 1 - safn 128
Björgunar- og slökkviæfing um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Mennirnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 955
Guðlaugur Ómar Guðmundsson afhendir Hönnu Lísu Hafliðadóttur (d. 13.7.2015) happdrættisvinning á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1003
Dómnefnd í söngvakeppni Höfðaskóla - Garginu - að störfum í Fellsborg 6. mars 2008 meðan gestir kvöldsins njóta veitinga. Frá vinstri: Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir og Ólafur Bernódusson.
1
…
75
76
77
…
104
Leita í myndasafninu
Leita