Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1428
Myndin var tekin á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011. Á henni eru samstarfskonurnar Helga Ólína Aradóttir sérkennari til vinstri og Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri til hægri. Báðar stöfuðu þær við Höfðaskóla á þessum tíma.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1007
Fólk í gönguferð 19.mars 2008. Líklega var um að ræða hreyfiátak á vegum starfsfólks Greiðslustofu vinnumálastofnunar. Frá vinstri: Eygló Gunnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Vigdís Ómarsdóttir, Kristín Leifsdóttir, Kristján Hjartarson sem ekur systur sinni Klöru Hjartardóttur í kerru, Hjörtur Guðmundsson og Runólfur Gautason. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 820
Jósef Þorláksson færir langömmu sinni Ragnheiði Hafsteinsdóttur blóm undir réttarvegg 3. september 2006. Foreldrar Jósefs, Rakel Tryggvadóttir og Þorlákur Sigurður Sveinsson, fylgjast með.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 946
Myndin var tekin í íþróttasalnum á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007. Á henni situr Ólafur Bernódusson kennari með umsjónarbekknum sínum og fylgist með happadrættisútdrætti. Á bekknum aftan við Ólaf eru frá vinstri: Eva Dís Gunnarsdóttir, Þorgerður Björk Guðmundsdóttir, Ellen Lind Sigurjónsdóttir, Tanja Rán Einarsdóttir, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Ingimar Gísli Guðjónsson, Torfi Friðrik Magnason, Viktor Örn Valdimarsson, Unnar Leví Sigurbjörnsson, Stefán Velemir, Elías Gunnar Hafþórsson og Guðjón Pálsson
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 837
Myndin var tekin í 10 ára afmæli Ásdísar Birtu Árnadóttur 17. september 2007. Ásdís situr upp við vegginn ljóshærð í bleikröndóttum bol. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Gunnþór Kristjánsson, Halldóra Guðmundsdóttir, Rakel Jensína Jónsdóttir, Aron Breki Hjartaron, Sigurbjörg Birta Berndsen (fjær), Aldís Embla Björnsdóttir (nær), Róbert Björn Ingvarsson, Birta Bessadóttir, Ásdís Birta, Guðrún Rós Hjaltadóttir og Elvar Geir Ágússson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1082
Frá lokaballi Höfðaskóla í Kántrýbæ 27. maí 2010. Krakkarnir hafa valið nemendurna á myndinni sem það sem á borðunum stendur. Nemendurnir eru frá vinstri: Stefán Velemir, Telma Dögg Bjarnadóttir, Alma Dröfn Vignisdóttir, Sæþór Bragi Ágústsson og Eva Dís Gunnarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1387
Hallbjörg Jónsdóttir leggur síðustu hönd á skreytingar við húsið sitt á Kántrýhátíð kvöldið 11. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1120
Helga Guðmundsdóttir og Árni Björn Ingvarsson á Kántrýhátíð 13. ágúst 2009.
Ólafur Bernódusson 746
Slagverkshljómsveit nemenda spilar fyrir gesti undir stjórn Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur á Elínborgardegi Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Standandi frá vinstri: Magnús Sólberg Baldursson, Karen/Rakel Elvarsdóttir, Ástríður Magnúsdóttir, Karen/Rakel Elvarsdóttir og Pétur Atli Guðmundsson. Krjúpandi frá vinstri: Arna Rún Arnarsdóttir, Ólafur Halldórsson, Ívan Orri Eiríksson og Ingólfur Eðvald Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1258
Myndin var tekin í Kjalarlandsrétt 8. september 2012 þegar réttarstörf stóðu sem hæst. Tanja Rán Einarsdóttir er til vinstri með svart hárband. Halla María Þórðardóttir er ljóshærð í rauðri úlpu. Linda Rún Einarsdóttir er í hvítri Henson hettupeysu til hægri. Daði Snær Stefánsson er í bláum samfestingi og Árni Halldór Eðvarðsson er með gráa húfu á höfði. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Fermingarbörn 1968 ganga frá skólanum til kirkju. Krakkarnir klæddust kyrtlunum í skólanum og gengu síðan á eftir prestinum til kirkju. Því miður er ekki hægt að greina fermingarbörnin í sundur á myndinni en presturinn er séra Pétur Þ. Ingjaldsson og börnin fæddust árið 1954.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1248
Lilja Dögg Hjaltadóttir leikur á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012.
Barnaból - safn428
Starfskonur Barnabóls fóru í heimsókn til Kragerö í Noregi vorið 2008. Þar heimsóttu þær og skoðuð leikskóla sem var undir stjórn fyrrverandi leikskólastjóra Barnabóls, Láru Bylgju Guðmundsdóttur. Þessi mynd var tekin af hópnum 25. apríl 2008 í Noregi. Frá vinstri: Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015), óþekkt, Herdís Jakobsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri Barnabóls, Ásthildur Gunnlaugsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Lára Bylgja Guðmundsdóttir leikskólastjóri á Kragerö, Guðlaug Grétarsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir og Ragnheiður Alda Sigurjónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 755
Mæðginin Bergþóra Guðjónsdóttir og Guðjón Dunbar D. Þorsteinsson á jóla-barnaballi í Fellsborg 26. desember 2010.
Ólafur Bernódusson 873
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá voru nemendur með ýmiskonar viðburði í stofunum. Hver sýning var sýnd nokkrum sinnum yfir daginn þannig að allir sem vildu gátu séð þær allar þó 2-3 væru í gangi hverju sinni. Á myndinni eru stelpurnar að dansa fyrir fólk. Frá vinstri: Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Hanna Lísa Gestsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Jóna Gréta Guðmundsdóttir og Anna María Magnúsdóttir.
Ólafur Bernódusson 917
Krakkar úr Höfðaskóla á gönguskíðanámskeiði í febrúar 1999. Leiðbeinandinn frá SÍ lagði fyrir krakkana að fara fyrsta hringinn á íþróttavellinum án þess að nota stafi. Krakkarnir eru frá hægri: óþekkt, Eva Dögg Bergþórsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir og Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir en aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1340
Benóný Bergmann Sæmundsen og Harpa Hlín Ólafsdóttir njóta góða veðursins á Kántrýhátíð 11. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 728
Monika Tischleder til vinstri og Guðrún Jóna Björgvinsdóttir til hægri á þorrablóti á hjúkrunarheimilinu Sæborg 24. janúar 2015. Báðar voru þær starfsstúlkur á heimilinu þegar myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 756
Hjónin Jón Hallur Pétursson og Guðríður Friðriksdóttir á toppi Herðubreiðar 16. ágúst 2003 í hópi með göngufólki á vegum Ferðafélags Akureyrar. Vinstra megin við þau í fjarlægð sér í hvel Vatnajökuls.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Fermingarbörn ganga úr skólanum til kirkju með prestinn, séra Pétur Þ. Ingjaldsson í fararbroddi. Með því að bera saman myndina og nútímann sjást miklar breytingar á umhverfinu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1468
Hjónin Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) og Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) í samkvæmi á vegum Lionklúbbs Skagastrandar í Fellsborg 26. febrúar 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1225
Myndin var tekin 5. júlí 2011 þegar verið var að rífa og fjarlægja fjárhús sem var sambyggt íbúðarhúsinu að Jaðri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1368
Myndin var tekin á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012. Á henni eru þrír gítarleikarar að spila undir í brekkusöng í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið. Gítaristarnir eru frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Guðmundur Egill Erlendsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1275
Sverrir Brynjar Berndsen vinnur við að koma upp auglýsingaskilti fyrir Spákonuhofið á Skagaströnd við þjóðveginn 18. júlí 2012.
Ólafur Bernódusson 742
Myndin var tekinn 24. nóvember 2013 í afmælisboði björgunarsveitarinnar Strönd á Skagaströnd í tilefni af 80 ára afmæli sveitarinnar. Á henni er Lárus Ægir Guðmundsson að kynna bók sem hann skrifaði um félagið og færði því að gjöf. Reynir Lýðsson formaður sveitarinnar er til hægri. Sitjandi við kaffiborð eru frá vinstri: Magnús Sólberg Baldursson, Þórunn Valdís Rúnarsdóttir (nær), Guðbjörg Viggósdóttir (fjær) og svo grillir í feðgana Magnús B. Jónsson (nær) og Baldur Magnússon (fjær), lengst til hægri.
Ólafur Bernódusson 927
Örvar HU 2 í heimahöfn á Skagaströnd í fyrsta sinn á Þorláksmessu 1998. Skagstrendingur hf keypti togarann frá Neskaupstað en þar hét hann Blængur NK 117. Örvar var gerður út sem rækju-frystitogari gjarnan á Flæmska hattinum. Árið 2005 var hann gerður út á ísfisk og frystingu en þá í eigu Fisk Seafood á Sauðárkróki. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 993
Hafdís Baldvinsdóttir heldur á dóttur sinni Emblu Ágústsdóttur í eldhúsinu í Fellsborg 6. mars 2008 þegar söngvakeppni Höfðaskóla - Gargið - fór fram í húsinu. Maðurinn í baksýn, með gleraugu, er Jón Ólafur Sigurjónsson. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 899
Pétur Eggertsson formaður Rauðakross deildar Skagastrandar tekur við peningastyrk úr höndum Önnu Þrúðar Þorkelsdóttur formanns Rauðakrossins á Íslandi. Styrkurinn var veittur þegar nýtt húsnæði deildarinnar var tekið í notkun í apríl 1999. Fólkið sem fylgist með, til vinstri á myndinni, er frá vinstri: Guðrún Soffía Pétursdóttir, Magnús Ólafsson (d.23.7.2012), Jensína Lýðsdóttir og Ása Jóhannsdóttir.
Ólafur Bernódusson 805
Hluti af kirkjukór Hólneskirkju á æfingu fyrir gospel tónleika undir stjórn Óskars Einarssonar. Myndin var tekin 29. apríl 2007. Frá vinstri: Cristina Silod Yecyec, Inga Rós Sævarsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir (fremst), Bára þorvaldsdóttir (í miðju), Agnes Sævarsdóttir (aftast), Lilja Ingólfsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, óþekktur baksvipur, Hallbjörg Jónsdóttir, tvær óþekktar konur og Guðrún Sigurðardóttir fremst til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1081
Þessi mynd var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla 27. maí 2010 í Kántrýbæ. Þá völdu krakkarnir, til gamans, hina ýmsu fulltrúa eins og sjá má á myndinni. Útnefningarnar áttu að vera lýsandi fyrir hegðun og framkomu viðkomandi yfir veturinn. Á myndinni eru í fremri röð: Sigurlaug Máney Sæmundsen sem valin var "Krútt" ársins og einnig "Ungfrú stríðin". Hjá henni er Ívan Árni Róbertsson sem valinn var "Herra stríðinn". Í aftari röð eru frá vinstri: Stefán Velemir "Kóngur" ársins, Telma Dögg Bjarnadóttir "Drottning" ársins, Eva Dís Gunnarsdóttir "Ljóska" ársins og "Herra skellur", Erna Björgvinsdóttir "Herra lítill" og Alma Dröfn Vignisdóttir "Prinsessa" ársina og "Ungfrú Sól".
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1010
Myndin var tekin 13. febrúar 2007 þegar hús rafmagnsverkstæðisins Neistans við Strandgötu/Einbúastíg var rifið. Húsið átti sér merka sögu því þar rak Sigurður Sölvason (d.24.9.1968) lengi verlunina Borg sem hann átti. Sigurður var kaupmaður af gamla skólanum og rak útflutning á ull og fleiri afurðum bænda frá verslun sinni og flutti jafnframt inn ýmsar vörur. Eftir að Sigurður lést keyptu tveir ungir rafvirkjar húsið undir fyrirtæki sitt Neistann. Seinna byggði fyrirtækið sér stærra og hentugra hús hinum megin við götuna og þá stóð þetta hús autt að mestu þar til það var rifið 2007.
Ólafur Bernódusson 766
13. ágúst 2009 afhentu nokkrar hannyrðakonur heilsugæslunni á Skagaströnd bútasaumsteppi sem þær höfu unnið í sameiningu. Myndin var tekin við þetta tækifæri þegar starfsfólk heilsugæslunnar tók við gjöfinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 944
Árleg er haldin brunaæfing í Höfðaskóla í samvinnu við slökkviliðið á Skagaströnd. Þá er tæmingaráætlun skólans virkjuð til að kenna nemendum rétt viðbrögð og til að læra hvað betur má fara í neyðartilvikum eins og ef eldur kemur upp í húsnæðinu. 13. desember 2007 var haldin slík æfing og til að gera hlutina sem raunverulegasta var forstofan fyllt af reyk og nemendurnir þurftu að fara í gegnum kófið með kennurum sínum. Á myndinni er Elva Þórisdóttir að taka við nemendum um leið og þeir koma út úr reyknum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1464
Konur nokkurra Lionsmanna í samkvæmi á vegum Lionklúbbs Skagastrandar í Fellsborg 26. febrúar 2011. Konurnar eru, frá vinstri: Guðrún Soffía Pétursdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Birna Sveinsdóttir og Ásthildur Gunnlaugsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 996
Myndin var tekin 6. mars 2008 í Fellsborg þegar söngvakeppni Höfðaskóla - Gargið - fór þar fram. Krakkarnir eru frá vinstri: Óskar Björnsson á bassa, Sara Rut Fannarsdóttir söngur, Elías Gunnar Hafþórsson á trommum, Andrea Björk Kristjánsdóttir söngur, Sonja Sif Ólafsdóttir söngur og flauta og Unnar Leví Sigurbjörnsson á gítar. Lengst til vinstri sér í Jón Ólaf Sigurjónsson sem var hljóðmaður og aðstoðaði þátttakendur í keppninni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1310
Ungir menn á kajak í Skagastrandarhöfn 14. ágúst 2012. Strákarnir eru Jóhann Almar Reynisson aftar og Daði Snær Stefánsson framar.
Ólafur Bernódusson 916
Myndin var tekin í febrúar 1999 af krökkum úr Höfðaskóla á gönguskíðanámskeiði. Á myndinni er frá hægri: María Markovic, Anna Dúna Rúnarsdóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir og Eygló Amelía Valdimarsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1462
Börn í Spákonufellsrétt 11. september 2011. Frá vinstri Almar Atli Ólafsson, systir hans Harpa Hlín Ólafsdóttir og Ólafur Halldórsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 779
Myndin var tekin í húsnæði listamiðstöðvarinnar Nes 31. maí 2008 líklega þegar miðstöðin var formlega opnuð. Á henni eru að spjalla saman Sigurjón Guðbjartsson til vinstri og Sigurður Sigurðarson til hægri. Opnunin var hluti af hátíðahöldum sjómannadagsins sem var daginn eftir 1. júní 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1425
Myndin var tekin á Kántrýhátíð 19. ágúst 2012 af þeim Fritz Hendrik Berndsen og Kolbúnu Björgu Viggósdóttur.
larus026
Séra Egill Hallgrímsson ávarpar fólk í hófi í Fellsborg í október 1991. Hófið var haldið í tilefni af vígslu Hólaneskirkju þennan dag.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 766
Hjónin Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) og Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010) koma í kofabyggð krakka 18. ágúst 2006 en þá var heimsókn þangað eitt af skemmtiatriðunum á þáverandi kántrýhátíð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1459
þrír ungir menn í Spákonufellsrétt 11. september 2011. Til vinstri eru bræðurnir frá Hofi, Ingimar Gísli Guðjónsson vinstra megin og Arnar Páll Guðjónsson hægra megin en sá sem er lengst til hægri er óþekktur.
Ólafur Bernódusson 881
Danssýning á Kántrýhátíð í ágúst 1999. Þá var haldin kántrýdanssýning og kennsla í íþróttahúsinu undir stjórn Jóhanns Arnar Ólafssonar danskennara. Á myndinni eru nokkrir danshópar saman að sýna einn dans.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1155
Hressir menn 19. apríl 2004 fyrir utan Bjarmanes. Frá vinstri: Magnús B. Jónsson sveitarstjóri, Adolf H. Berndsen oddviti, Jakob Guðmundsson bóndi á Árbakka, Björn Guðmundsson frá Árbakka og Lárus Ægir Guðmundsson athafnamaður.
Ólafur Bernódusson 897
Séra Guðmundur Karl Brynjarsson blessar húsnæði Rauðakross deildarinnar á Skagaströnd þegar það var tekið í notkun í apríl 1999.
Ólafur Bernódusson 782
Myndin var tekin 21. júlí 2010 um borð í hraðskreiðum báti af hluta fólks sem var á leið í Hornvík til að fara í gönguferð um Hornstrandir. Frá vinstri: helmingurinn af Gunnari Svanlaugssyni, Haraldur Árnason, Lárus Ægir Guðmundsson, Gylfi Sigurðsson og Sigurjón Atli Sigurðsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 765
Hluti af kántrýhátíð 2006 var að fara í heimsókn í kofabyggð krakkanna í tómstundaskóla umf Fram. þessi mynd var tekin 18. ágúst og á eru frá vinstri: Jónas Skaftason (d.17.11.2017), Hjörtur Guðbjartsson, Vilhjálmur Skaftason og Salóme Jóna Þórarinsdóttir.
larus038
Myndin var tekin 1. ágúst 1991 eftir að glerlistaverki var komið fyrir sem altaristafla í austurglugganum í Hólaneskirkju. Til vinstri standa presturinn séra Egill Hallgrímsson, Leifur Breiðfjörð glerlistamaður og höfundur töflunnar er í miðjunni en lengst til hægri er Lárus Ægir Guðmundsson formaður byggingarnefndar kirkjunnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 956
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007 inni í stofu hjá miðstiginu þegar óþekktur jólasveinn úr Spákonufellinu kom í heimsókn. Frá vinstri: Anna Margrét Sigurðardóttir jólasveinn Leppalúðason og Elva Dröfn Árnadóttir kennari.
Ólafur Bernódusson 767
13. ágúst 2009 héldu íbúar við Bogabraut sameiginlega grilllveislu á götunni. Myndin er af hluta fólksins að borða.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1357
Sigríður Kristín Guðmundsdóttir 17. ágúst 2012 í samkomutjaldinu á Hnappstaðatúni á Kántrýhátíð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 805
Þessi bátsskrokkur er uppi á túni rétt sunnan við Sandlækinn. Þetta er skrokkurinn af Ólafíu HU en um hana segir í bókinni: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson "Um 1944 eignuðust þeir Kjartan Sveinsson og Ólafur Magnússon, farkennari í Skagahreppi, stóran bát og nefndu Ólafíu. Þessi bátur var með 12 ha. Bolinder vél. Jakob Óskarsson var formaður á honum. Eitt sinn bilaði vélin í róðri og var þá tekið til segla og siglt inn með landi. Sennilega hefur Jakobi ekki litist á að sigla fyrir Höfðann því hann renndi á land utan við Sandlæk.Þar var bátnum dröslað upp og vélin tekin úr en hún komst aldrei í viðgerð enda mun Kjartan þá hafa verið farinn að kenna sjúkleika en hann lést 1949. Báturinn lá lengi í fjörunni en að lokum hirti Jóhann Pétursson á Lækjarbakka hann og dró á túnblett sem hann hafði til afnota rétt innan við Sandlæk. Þar hvolfdi hann bátnum, sagaði dyr á síðuna og hugðist nota sem beitarhús. Í túnhorninu má enn sjá leifarnar af Ólafíu. Gunnar Albertsson gekk árum saman margar ferðir út bakkana því hann þóttist vita að þar væri Bolinder vélina að finna. Að endingu fannst hún á kafi í mold og sinu og nú prýðir hún innganginn að húsi hans að Oddagötu 5."
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1476
Stúlknakór í Hólaneskirkju 28. september 2011. Tilefni söngsins er ekki þekkt. Í fremri röð, frá vinstri: Anita Ósk Ragnarsdóttir, Victoría Sif Hólmgeirsdóttir, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Jóna Margrét Sigurðardóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Viktoría Rós Óskarsdóttir, Sunna Steingrímsdóttir, Ásdís Birta Árnadóttir og Lilja Svandís Hallgrímsdóttir. Aftari röð, frá vinstri: Lilja Dögg Hjaltadóttir, Rebekka Heiða Róbertsdóttir, Birta Dögg Bessadóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, óþekkt, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir, Guðrún Rós Hjaltadóttir og óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 961
Guðný Eva Björnsdóttir í blómabeði á afmælisdaginn sinn 19. júní 2007.
larus058
Vígslumessa Hólaneskirkju 20. október 1991. herra Ólafur Skúlason biskup og séra Egill Hallgrímsson fyrir altarinu. Vinstra megin sitja vígslubiskuparnir: séra Bolli Gústavsson (nær) og séra Sigurður Guðmundsson (fjær). Hægra megin sitja séra Pétur Þ. Ingjaldsson (fjær) óþekktur prestur (nær).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1122
Fjórar konur að smakka á súpu í samkomutjaldinu á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð 13. ágúst 2010. Frá vinstri: Anna Skaftadóttir, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Sólveig Gunnarsdóttir og Þórunn Bernódusdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1422
Myndin var tekin 13. ágúst 2011 í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð. Næst okkur á myndinni eru hjónin Gígja Óskarsdóttir og Gunnar Þór með son sinn Andra Má. Til vinstri í lopapeysu er Arnór Snorri Gíslason en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn596
Myndin var tekin 6. júlí 2007 í leikskólanum Barnaból þegar haldið var upp á 30 ára afmæli skólans. Á myndinni eru frá vinstri: Egill Örn Ingibergsson, Hjörtur Máni Skúlason, Skúli Hjartarson faðir hans og Elmar Jóhann Grétarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1150
Lilja Karlsdóttir frá Víkum til vinstri og Árný Margrét Hjaltadóttir (Dúdú) frá Steinnýjarstöðum til hægri hella upp á kaffi í eldhúsinu í Fellsborg 8. ágúst 2003.
1
…
76
77
78
…
104
Leita í myndasafninu
Leita