Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 849
Landsbankahlaupið var haldið á hverju vori í nokkur ár við útibú bankans á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin 5. maí 2007 af sigurvegurum í sínum flokki. Frá vinstri: Guðjón Páll Hafsteinsson, Ingimar Guðjónsson, Stefán Velemir og Elías Gunnar Hafþórsson. Konan til hægri er Signý Richter.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 768
Vinirnir Ingibergur Guðmundsson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri í íþróttahúsinu 15. mars 2008 á einhverjum óþekktum viðburði.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1399
Myndin var tekin í samkomutjaldinu á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011. Stúkurnar eru frá vinstri: Þorgerður Björk Guðmundsdóttir, Sylvía Ósk Hrólfsdóttir og Tanja Rán Einarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1246
Valgerður Guðný Ingvarsdóttir leikur á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 702
Systurnar Guðrún Sigurðardóttir til vinstri og Hjördís Sigurðardóttir til hægri heiðraðar fyrir hálfrar aldar starf í kirkjukór Hólaneskirkju á Kántrýdögum 15. ágúst 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1108
Skemmtidagur í vinnuskólanum 23. júlí 2010. Verkstjórarnir lögðu út plastrennibraut og sáu til þess að nægt vatn væri í brautinni. Í brautinni eru frá vinstri: Tanja Rán Einarsdóttir, Sylvía Hrólfsdóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir og Eva Dís Gunnarsdóttir. Standandi frá vinstri: Stefán Sveinsson verkstjóri, óþekkt, Ásdís Birta Árnadóttir, Ellen Lind Sigurjónsdóttir, þrjár óþekktar, Saga Lind Víðisdóttir, Sigurjón Elí Eiríksson, Sigurbjörg Birta Berndsen og Sigurlaug Máney Sæmundsen
Ólafur Bernódusson 791
Myndin var tekin í Hornvík af hluta hóps Skagstrendinga sem þar voru í gönguferð í júlí 2010. Fólkið er að borða kvöldmat eftir að hafa gengið á Hornbjargið þann daginn. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Haraldur Árnason, Amy Ósk Ómarsdóttir, Sigurður Sigurðarson og Ólafur Bernódusson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1207
Myndin var tekin 19. desember 2010 af kerrufylli af jólatrjám úr Gunnfríðarstaðaskógi. Krakkarnir fá að sitja í kerrunni á leið að kofanum þar sem boðið er upp á kakó og piparkökur. Krakkarnir eru frá vinstri: Benóný Bergmann Sæmundsen, Aldís Embla Björnsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir og Ásdís Birta Árnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1182
Jól í Árnesi 2011
Ólafur Bernódusson 919
Myndin var tekin í febrúar 1999 þegar tvö skáld komu í Höfðaskóla til að lesa úr verkum sínum á vegum átaksins "Skáld í skólum". Á myndinni stendur Þorgrímur Þráinsson og spjallar við krakkana. Krakkarnir á fremsta bekk, frá vinstri: Guðrún Sigríður Hjálmtýsdóttir, Rósa Björg Einarsdóttir, Katrín Guðmundsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir og Hanna Rúna Gestsdóttir. Bekkur tvö, frá vinstri: Friðmar Ingi Ernstson, Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir, Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, og Sóley Magnúsdóttir. Bekkur þrjú, frá vinstri: Daníel Guðmundsson, Stefán Agnar Gunnarsson, Anna María Magnúsdóttir, María Guðrún Guðmundsdóttir og Rebekka Laufey Ólafsdóttir. Elínborg Ásdís Árnadóttir og Sonja Hjördís Berndsen sitja upp við vegginn. Bekkur fjögur, frá vinstri: María Markovic, Elva Mjöll Þórdóttir, Marta Kristín Jónsdóttir, Vignir Örn Hafþórsson og Jón Oddur Hjálmtýsson. Aftast, frá vinstri: Magnús Filip Sævarsson, Eyþór Ernstson, Gunnar Helgason og Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir.
Ólafur Bernódusson 826
Myndin var tekin í Bjarmanesi 10. desember 2008 á stofnfundi Gleðibankans. Eins og sjá má var glatt á hjalla á fundinum, enda tilefnið skemmtilegt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1419
Hjónin Guðrún Guðmundsdóttir og Árni Björn Ingvarsson utan við samkomutjaldið á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1209
Björn Hallbjörn til vinstri og Slavko Velemir til hægri pakka kæstri skötu fyrir Lionklúbb Skagastrandar 19. desember 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1092
Um miðjan júlí 2010 fylltist höfnin á Skagaströnd af síli og makríl í ca vikutíma. Menn voru fljótir að átta sig á þessu og í nokkur kvöld var fjöldi manns á Skúffugarðinum að veiða þennan gráðuga og sprettharða fisk á stöng. Þessi mynd var tekin af veiðimönnum 12. júlí 2010. Nær okkur á myndinni er Guðmundur Baldvinsson með einn á og fjær er Karl Olsen nýbúinn að setja í annan. Strákurinn á myndinni er óþekktur.
Ólafur Bernódusson 864
Áhöfn Arnars HU 1 stillir sér upp við Arnar rétt fyrir jólin 1999 til að fagna því að vera fyrsta skipið á Íslandi að skila meira en miljarði í aflaverðmætum á einu ári. Fyrir framan áhöfnini sitja Gylfi Guðjónsson útgerðastjóri til vinstri og Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri til hægri. Standandi aftan við þá er stjórnarformaðurinn Adolf H. Berndsen.
IMG_3925
Mæðginin Elva Þórisdóttir og Almar Atli Ólafsson mæta á gospel tónleika undir stjórn Óskars Einarssonar í Hólaneskirkju 29. apríl 2007.
Guðrún Þórbjarnardóttir165
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Hún var tekin í veislu í Skátaskálnum 1966 vegna gullbrúðkaups þeirra Jóns Sölvasonar og Þorbjargar Halldórsdóttur (d.30.6.1970) en þau sitja við enda borðsins. Hjá þeim stendur sonur þeirra, Björgvin Jónson (d.4.5.1992) sem er að halda ræðu. Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) frá Sólheimum sést yfir gulu blómaskreytinguna en á móti honum við borðið er nafni hans, Ingvar Jónsson (d.29.7.1978 í Norður-Skála. Við hlið Ingvars situr séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1382
Jóhannes Sveinsson til vinstri og Ari Jón Þórsson til hægri staddir á ljósmyndasýningu Árna Geirs Ingvarssonar á Kántrýhátíð 18. ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1089
Myndin var tekin 11. júní 2010 þegar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri afhefndir eigendum Spákonuhofsins lyklana að Gömlu tunnunni þar sem Spákonuhofið er til húsa í dag. Áður hafði áhaldahús hreppsins verið í húsinu. Kaupendurnir eru frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Sigrún Lárusdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1117
Vatnspása í Jónsmessugöngu kvöldið 21. júní 2009. Þá gekk hópur fólks á Spákonufellið - Borgarhausinn- á toppinn til að horfa á sólarganginn þaðan um miðnættið. Sólin sleikti sjávarborðið í norðri áður en hún fór að lyfta sér aftur á himninum en gekk ekki undir á þessum lengsta degi ársins. Á myndinni eru frá vinstri: Helga Dögg Jónsdóttir, Herdís Jakobsdóttir, Rósa Sigursteinsdóttir og Laufey Lind Ingibergsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 747
Á myndinni er verið að hífa inn - eða út - vél fyrir vefstofuna Árblik sem starfrækt var um tíma í gamla frystihúsi Hólaness hf. Mennirnir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1012
Lárus Ægir Guðmundsson og Jónmundur Ólafsson (d.19.4.2017) skemmta sér í Kjalarlandsrétt 8. september 2007. Jónmundur er sá með hattinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1195
Grunnskólabörn flytja helgileik á aðventukvöldi í Hólaneskirkju 5. desember 2010. Frá vinstri: Anita Ósk Ragnarsdóttir, Egill Örn Ingibergsson, Hallbjörg Jónsdóttir, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Laufey Lind Ingibergsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir og Anton Þór Einarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1151
Myndin var tekin í eldhúsinu í Fellsborg 8. ágúst 2003. Á henni eru frá vinstri: Erna Högnadóttir Vindhæli, Guðrún Sveinbjörnsdóttir Króksseli og María Kristjánsdóttir (d.27.6.2017) Tjörn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1379
Hjalti Viðar Reynisson hleður fallbyssuna á Hólanesinu á Kántrýhátíð 18. ágúst 2012. Skömmu síðar hleypti hann af og síðan var varðeldur og brekkusöngur á svæðinu. Lilja Dögg Hjaltadóttir fylgist með pabba sínum í öruggri fjarlægð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 945
Myndin var tekin á brunaæfingu í Höfðaskóla 13. desember 2007. Þá var enn kennt á báðum hæðum í íþróttahúsinu og myndin sýnir Herdísi Baldvinsdóttur kennara hjálpa Guðrúnu Önnu Halldórsdóttur við að komast í brunastigann af svölum efri hæðarinnar. Það er hluti af tæmingaráætlun skólans að nemendur og aðrir sem eru á efri hæðinni í húsinu fari út á svalirnar og síðan niður stigann.
larus037
Leifur Breiðfjörð glerlistamaður stendur hér við altaristöfluna í Hólaneskirkju 1. ágúst 1991 en hún er hans sköpunarverk og mikil kirkjuprýði.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 740
Myndin var tekin í réttinni við Vindhæli 10. sept 2005. Á henni eru Einar Guðmannsson til vinstri og föðurbróðir hans Guðmundur Einarsson bóndi á Vindhæli til hægri.
Ólafur Bernódusson 906
Gömul hjón á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg í febrúar 1999. Kerlingin er líklega Ásdís Adda Ólafsdóttir en karlinn er óþekktur. Bak við þau sér í raunveruleg hjón, ekki grímubúin, séra Guðmund Karl Brynjarsson og Kamillu Hildi Gísladóttur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1531
Myndin er frá 26. nóvember 2011 þegar kveikt var á jólatrénu á Hnappstaðatúni það árið.
Ólafur Bernódusson 912
Myndin var tekin í febrúar 1999 af elstu nemendum Höfðaskóla á gönguskíðanámskeiði á íþróttavellinum. Leiðbeinandinn er fyrir miðri mynd og bregur hönd fyrir augu. Fyrstu æfingarnar fólust í því að ganga hring á skíðunum staflaust.
Ólafur Bernódusson 824
Fjórir ungir menn á Höfðanum 18. maí 2008 að kíkja á hrafnshreiður sem þar var. Frá vinstri: Einar Ari Einarsson, Birkir Freyr Gunnarsson, Páll Halldórsson og bróðir hans Ólafur Halldórsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1165
Húnabjörgin að koma í höfn eftir sjóferð. Áhöfnina er, talið frá vinstri: Hjalti Reynisson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Carl Jakobsen, Péturína L. Jakopsdóttir og tveir óþekktir. Við stjórnvölinn uppi er skipstjórinn Ágúst Ómarsson. Ekkiitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1256
Myndin var tekin í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Magnús Guðmannsson bóndi á Vindhæli er í bláröndóttri peysu en aftan við hann sér í son hans Guðmann Einar Magnússon. Krakkarnir á myndinni eru frá vinstri: Freyja Dís Jóhannsdóttir með bróður sinn Loga Hrannar Jóhannsson, Victoria Sif Hólmgeirsdóttir og Bylgja Hrund Ágústsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 950
Ágúst Ingi Ágústsson kennari (með bindi) situr hjá umsjónarbekknum sínum á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007 í íþróttasalnum og bíður eftir að hefja dans kringum tólatréð. Nemendurnir eru frá vinstri: Ísabella Róbertsdóttir, óþekkt, Guðlaugur Ómar Guðmundsson, Óskar Björnsson, Indriði Björnsson, Sólrún Ágústa Magnadóttir og Laufey Inga Stefánsdóttir
Ólafur Bernódusson 776
Hjónin Magnús B. Jónsson og Guðbjörg Viggósdóttir við áramótabrennu á gamlaárskvöld 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 782
Feðgarnir Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) og Lárus Ægir Guðmundsson í Listamiðstöðinni Nes við formlega opnun hennar 31. maí 2008. Opnunin var hluti af hátíðahöldum sjómannadagsins sem var daginn eftir, 1. júní.
Ólafur Bernódusson 773
Mæðginin Fjóla Jónsdóttir og Ari Jón Þórsson fylgjast með flugeldaskotum í hundslappadrífu á gamlaárskvöldi 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1130
Feðgarnir Elías Gunnar Hafþórsson, sitjandi, og Hafþór Smári Gylfason skemmta í samkomutjaldinu á Hnappstaðatúni á Kántrýhátíð 14. ágúst 2010. Í forgrunninum er Anton Þór Einarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1492
Myndin var tekin í Fellsborg 23. nóvember 2011 af feðgunum Agnari Gunnarssyni vinstra meginn og Trostan Agnarssyni til hægri. Þeir eru þarna í hófi sem haldið var til að fagna 20 ára vígsluafmæli Hólaneskirkju.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1487
Íþróttamaraþon 25. mars 2011 í íþróttahúsinu á vegum Höfðaskóla. Krakkarnir stunduðu íþróttir í heilan sólarhring og söfnuðu áheitum til að komast í skólaferðalag til útlanda. Á myndinni eru, frá vinstri: Sylvía Hrólfsdóttir, óþekkt, Indriði Theódór Hjaltason, tvö óþekkt, Róbert Björn Ingvarsson, Aron Snær Fannarsson, Arnar Páll Guðjónsson, Magnús Jens Magnússon, Erna Ósk Björgvinsdóttir, Einar Ari Einarsson, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015), Ívan Árni Róbertsson, Lilja Svandís Hallgrímsdóttir, óþekktur og Rakel Jensína Jónsdóttir.
Ólafur Bernódusson 859
Myndin var tekin á opnu húsi í vefstofunni Árblik í desember 1999. Þá hafði fyrirtækið nýlega hafið starfssemi í húsnæði gamla frystihúss Hólaness hf. Á myndinni er Fannar Viggósson framkvæmdastjóri Árbliks lengst til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson er annar frá hægri. Hinir mennirnir tveir eru óþekktir.
larus053
Myndin var tekin í vígslumessu Hólaneskirkju 20. október 1991. Sóknarpresturinn séra Egill Hallgrímsson er við altarið en til vinstri sitja, frá vinstri: séra Bolli Gústavsson vígslubiskup, séra Sigurður Guðmundsson vígslubiskup og Herra Ólafur Skúlason biskup. Hægra megin eru, frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson og óþekktur prestur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1103
Svenný Hallbjörnsdóttir og Hörður Ragnarsson spjalla saman við formlega opnun á athafnasvæði Sorphirðu Vilhelms Harsonar 29. júlí 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1002
Guðlaugur Ómar Guðmundsson að koma fram í söngvakeppni Höfðaskóla - Garginu - í Fellsborg 6. mars 2008.
Ólafur Bernódusson 945
Myndin var tekin á unglingamóti umf Fram 1983 á Skagastrandarvelli. Á henni eru hlauparar að koma í mark í einhverju lengra hlaupi. Keppendurnir eru frá vinstri: Viggó Magnússon, Jón Arnarson, Stefán Ægir Lárusson og óþekktur.
Ólafur Bernódusson 904
Myndin er af hópi kvenna, ásamt leiðbeinanda, á námskeiði um rekstur fyrirtækja, sem haldið var í Höfðaskóla í febrúar 1999. Hörður Ríkarðsson leiðbeinandi er lengst til vinstri. Næst honum er Fjóla Jónsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir fyrir miðju í grárri peysu en aðrar á myndinni eru óþekktar.
Ólafur Bernódusson 905
Þessi tveggja og hálfs árs prinsessa er á leiðinni á grímuball Höfðaskóla í febrúar 1999. Prinsessan er Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Barnaból - safn598
Myndin var tekin 6. júlí 2007 í leikskólanum Barnaból þegar haldið var upp á 30 ára afmæli skólans. Konurnar á myndinni eru frá vinstri: Jóhanna Guðrún Jónasdóttir leikskólastjóri á Blönduósi; Brynja Barðadóttir leikskólakennari, Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri Barnabóls, Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri Höfðaskóla, Lilja Ingólfsdóttir leikskólakennari, Guðný Björnsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1465
Hjónin Guðmundur Jón Björnsson og Þórunn Bernódusdóttir í samkvæmi á vegum Lionklúbbs Skagastrandar í Fellsborg 26. febrúar 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1452
Myndin var tekin 18. febrúar 2011 í félagsmiðstöðinni Undirheimar. Þá hefur greinilega verið furðufata- eða grímuball í gangi. Töffararnir á myndinni eru frá vinstri: Sigurjón Elí Eiríksson, Róbert Björn Ingvarsson, Elmar Jóhann Grétarsson og Aron Snær Fannarsson.
Ólafur Bernódusson 778
Myndin var tekin 27. febrúar 2011 á opnu húsi hjá Nes listamiðstöðinni. Ein listakonan sem þá var í listamiðstöðinni hafði bakað kökur, eina sneið á hvern íbúa Skagastrandar, sett á serviettu og merkt með nafni. Þetta vakti mikla kátínu og fjöldi Skagstrendinga kom til að fá sér kökusneið. Á myndinni er fólk að leita að sinni sneið. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Trostan Agnarsson, Birkir Gunnarsson, Guðlaug Grétarsdóttir, óþekkt, Erna Björgvinsdóttir, tveir óþekktir, Kristín Björnsdóttir, Saga Lind Víðisdóttir (fjær), Birgitta Bjarnadóttir (nær), óþekkt, Hjördís Sigurðardóttir (nær), Stefán Jósefsson (fjær), óþekkt, Sigríður Gestsdóttir, óþekkt, Sigríður Stefánsdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1467
Sigurjón Guðbjartsson talar í samkvæmi á vegum Lionklúbbs Skagastrandar í Fellsborg 26. febrúar 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1433
Sveinn Garðarsson (d.17.2.2019) og Guðný Björnsdóttir með tengdasonum sínum á þorrablóti 5. febrúar 2011 í Fellsborg. Ingvar Þór Jónsson er til vinstri og Slavko Velemir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 752
Starfsmannafélag Höfðahrepps fór í helgarferð í apríl 2011 og gisti á hóteli í Mývatnssveit. Á myndinni er hluti hópsins að fá sér drykk fyrir kvöldmatinn. Frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir, Guðmundur J. Björnsson, Erna Hreinsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, baksvipur Fannars Viggóssonar, Magnús B. Jónsson og Lilja Ingólfsdóttir.
Ólafur Bernódusson 963
Myndin var tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Á henni nýtur Jonny King sinnar 15 mínútna frægðar meðal áhorfenda.
Barnaból - safn430
Starfskonur Barnabóls fóru í heimsókn til Kragerö í Noregi vorið 2008. Þar heimsóttu þær og skoðuð leikskóla sem var undir stjórn fyrrverandi leikskólastjóra Barnabóls, Láru Bylgju Guðmundsdóttur. Þessi mynd var tekin af hluta hópsins 25. apríl 2008 í Noregi. Konurnar eru, frá vinstri: Herdís Jakobsdóttir, Guðlaug Grétarsdóttir, óþekktur strákur, Ragnheiður Alda Sigurjónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Ásthildur Gunnlaugsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1125
Guðbjörg Ólafsdóttir til vinstri og Katrín Sigurjónsdóttir til hægri á Kántrýhátíð 13. ágúst 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 767
Heimsókn í kofabyggð krakka var eitt af skemmtiatriðum á Kántrýhátíð 2006. Þessi mynd var tekin af nokkrum krökkum þar 18. ágúst. Frá vinstri: Páll Halldórsson, Almar Atli Ólafsson, Harpa Hlín Ólafsdóttir og Elín Ósk Björnsdóttir.
Ólafur Bernódusson 783
Farangurinn ferjaður í land í Hornvík 21. júlí 2010. Gúmmíbáturinn flutti fólk og farangur í fjöruna í nokkrum ferðum og þaðan var mynduð keðja til að færa farangurinn á þurrt. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson um borð í bátnum, óþekktur áhafnarmeðlimur, Haraldur Árnason, Gunnar Svanlaugsson, Steindór Haraldsson, Gylfi Sigurðsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Sigurður Sigurðarson og Sigurjón Atli Sigurðsson. Fyrir miðri mynd blasir Hornbjargið við, Jörundur til vinstri og Kálfatindur til hægri.
1
…
77
78
79
…
104
Leita í myndasafninu
Leita