Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1322
Hjónin Einar Haukur Arason og Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir að skreyta Fellsbrautina 10. ágúst 2011 fyrir Kántrýhátíð dagana á eftir. Maðurinn til hægri er Eiríkur Lýðsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1345
Myndin var tekin í íþróttahúsinu 12. október 2012 af fólki sem var að horfa yfir salinn þar sem fram fór danssýning nemenda úr Höfðaskóla. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Péturína Laufey Jakobsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Cornelia Silud Boncales og Dagný Rósa Úlfarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 981
Þessir krakkar, ásamt fleirum, völdu að ganga á Spákonufellið 23. maí 2008 á útvistardögum Höfðaskóla. Þegar myndin var tekin voru þau að koma niður af fjallinu en þar beið þeirra viðkenningarskjal undirritað af Hildi Ingólfsdóttur skólastjóra. Krakkarnir eru, frá vinstri: Silfá Sjöfn Árnadóttir, Eva Dís Gunnarsdóttir, Stefán Velemir, Ellen Lind Sigurjónsdóttir, Telma Dögg Bjarnadóttir og Kristbjörg Ragnheiðardóttir.
Barnaból - safn430
Starfskonur Barnabóls fóru í heimsókn til Kragerö í Noregi vorið 2008. Þar heimsóttu þær og skoðuð leikskóla sem var undir stjórn fyrrverandi leikskólastjóra Barnabóls, Láru Bylgju Guðmundsdóttur. Þessi mynd var tekin af hluta hópsins 25. apríl 2008 í Noregi. Konurnar eru, frá vinstri: Herdís Jakobsdóttir, Guðlaug Grétarsdóttir, óþekktur strákur, Ragnheiður Alda Sigurjónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Ásthildur Gunnlaugsdóttir.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn124
Á myndinni, sem tekin var á sjómannadaginn 1969, er Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) að heiðra Guðmund Pétursson (d.30.7.1987) frá Höfðakoti til vinstri og Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) úr Norður-Skála til hægri með heiðursmerki sjómannadagsins.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1131
Ungir menn á Kántrýhátíð 14. ágúst 2010. Frá vinstri: Arnór Snorri Gíslason, Sindri Njáll Hafþórsson og Kristján Pétur Guðjónsson.
Guðrún Þórbjarnardóttir041
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni eru óþekkt brúðhjón. Ef þú þekkir fólkið á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1032
Myndin var tekin á Kántrýhátíð 18. ágúst 2006 af þeim Óla Jóni Bogasyni (d.6.2.2018) til vinstri og Steindóri R. Haraldssyni til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1521
16. nóvember er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og þess vegna Dagur Íslenskrar tungu. Þessi mynd var tekin þann dag 2011 á skemmtun Höfðaskóla í Fellsborg. Skólinn helgar þennan dag minningu Elínborgar Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara. Á myndinni eru nokkrir nemendur að flytja vísnagátur fyrir áhorfendur. Þeir eru frá vinstri: Egill Örn Ingibergsson, Birta Dögg Bessadóttir, Friðmar Kári Eiríksson, Elmar Jóhann Grétarsson, Guðmann Einar Magnússon og Guðrún Rós Hjaltadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1436
Myndin var tekin 5. febrúar 2011 af skemmtiatriði á þorrablóti í Fellsborg. Hér er verið að leika starfsmenn Helga Gunnarssonar sem eru í óða önn að koma fyrir nýju hafnarvigtarhúsi. Leikararnir í atriðinu eru, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Árni Halldór Eðvarðsson og Magnús B. Jónsson. Takið eftir fótabúnaði Halldórs.
Ólafur Bernódusson 910
Myndin var tekin í febrúar 1999 þegar haldið var gönguskíðanámskeið fyrir nemendur Höfðaskóla. Á myndinni er hópurinn að hlusta á leiðbeinandann sem kom frá Skíðasambandi Íslands.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1241
Myndin var tekin 23. mars 2012 í Fellsborg á síðustu æfingu fyrir árshátíð Höfðaskóla, sem haldin var um kvöldið. Á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir umsjónakennari, Almar Atli Ólafsson, Mikael Garðar Hólmgeirsson, Gabríel Goði Tryggvason, fjórir óþekktir nemendur, María Gret Gunnarsdóttir, Karen Líf Sigurbjargardóttir, tvær óþekktar stúlkur, Brynjar Daði Finnbogason, Hlynur Hafliðason og Brynja Hödd Ágústsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 861
Óskar Þór Kristinsson að koma í land á Arnari HU 1 rétt fyrir jólin 1999.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 783
Myndin var tekin 18. ágúst 2006 af hjónunum Guðmundi Jóhannessyni (d.17.4.2018) og Soffíu Lárusdóttur (d. 31.3.2010).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1417
Feðgarnir Jónas Frímannsson til vinstri og Frímann Lúðvíksson til hægri á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011. Milli þeirra sér í Ragnar Smára Ingvarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 972
Laufey Lind Ingibergsdóttir á 10 ára afmæli bróður síns, Egils Arnar, 13. maí 2008.
Ólafur Bernódusson 834
Á Kántrýdögum í ágúst 2008 var Kristján Kristjánsson - KK - fenginn til að segja fólki til í gítarleik og hvernig fólk hagar sér þegar það spilar úti á götu með hattinn sinn á götunni fyrir framan sig. Á myndinni er KK í miðju með tveimur nemendum sínum þeim Fjölni Ásbjörnssyni vinstra megin og Halldóri Gunnari Ólafssyni til hægri á sviðinu í samkomutjaldinu.
Ólafur Bernódusson 913
Magnús Líndal Þrastarson til vinstri og Daníel Guðmundsson hægra megin á gönguskíðanámskeiði á vegum Höfðaskóla í febrúar 1999.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1443
Á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011. Skemmtikraftarnir á sviðinu eru að leika heimsókn í Spákonuhofið. Leikararnir eru frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Ólafur Benródusson, Guðni Már Lýðsson og Hallbjörg Jónsdóttir.
IMG_5231
Begga GK 717 strandaði í Vækilvík á Spákonufellshöfða í blíðu veðri 23. júlí 2007. Skipstjórinn og eigandinn var einn um borð og keyrði bátinn á fullri ferð upp í grýtta fjöruna í víkinni. Begga slapp furðu vel þó hún brotnaði dálítið. Eftir að aflinn og annað hafði verið tekið úr henni og hún þétt til bráðabirgða var hún dregin á flot og farið með hana til hafnar á Skagaströnd. Á myndinni er björgunarskipið Húnabjörg að draga Beggu á flot af strandstað á næsta flóði. Þórdísin bíður átekta til hægri á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1286
Lárus Ægir Guðmundsson og Elsa Lára Blöndal fara yfir sýningarskrá fyrir sýningu á verkum Sveinbjörns Blöndal (d.7.4.2010) 20. júlí 2011. Sýningin var haldin í íþróttahúsinu á Skagaströnd þar sem sýnd voru fjölmörg og margvísleg verk Sveinbjörns, sem lengst af bjó á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson 1009
Á myndinni er Þorleifur Arason (d.11.11.1991) með verðlaunapeninga um hálsinn. Í baksýn er Ingibjörg Kristinsdóttir sem afhenti verðlaun í hófi í Kántrýbæ að loknum mótinu. Þorleifur var öflugur kastari og vann til fjölda verðlauna á íþróttamótum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1329
Magnea Valdimarsdóttir og Jóhann Berry á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012.
Ólafur Bernódusson 965
Eitt af sýningaratriðunum á fyrstu kántrýhátíðinni 1984 var að snara naut af hestbaki. Fenginn var bolakálfur að láni til að snara. Snörnunin gekk vel því tuddi stóð grafkyrr og skipti sér ekkert af hestamanninum. Allt í einu var þó eins og hann áttaði sig og þá tók hann strikið og ruddist gegnum girðinguna sem hróflað hafði verið upp kringum hann, burt frá skarkala hátíðarinnar. Fljótlega náðist hann þó aftur en þá var hann gjörsamlega staður og neitaði algjörlega að láta reka sig. Þá gripu menn til þess ráðs að draga hann nauðugan viljugan inn í girðinguna aftur. Í það verk gengu þeir Magnús B. Jónsson sem togar í halann og Jonny King sem tekur á múlnum. Við þessa aðgerð nutu þeir félagar aðstoðar nokkurra ungmenna.
Ólafur Bernódusson 833
Myndin var tekin í skíðaskálanum 6. desember 2007 en þá höfðu Gígja Óskarsdóttir og Þorgerður Þóra Hlynsdóttir breytt skálanum í jólahús. Þar var til sölu ýmislegt jólaföndur og heitt súkkulaði með vöfflum og rjóma. Jólahúsið var skemmtilegt og fjölsótt þá daga sem það var opið. Á myndinni er fólk að njóta veitinganna og jólaandans á aðventunni.
Ólafur Bernódusson 931
Örvar Hu 2 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn á Þorláksmessu 1998. Þá var öllum boðið að skoða skipið og þiggja kaffiveitingar. Á myndinni eru Elva Þórisdóttir og dóttir hennar Ásdís Adda Ólafsdóttir að gæða sér á tertu. Konan í gulu peysunni og maðurinn lengst til hægri eru óþekkt. Ef þú þekkir annað þeirra eða bæði vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1394
Fannar Viggósson á bassa og Þorvaldur Skaftason á gítar, meðlimir í hljómsveitinni Janus, syngja og leika á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1005
Elías Gunnar Hafþórsson spilar á trommur í hljómsveit á söngvakeppni Höfðaskóla - Garginu - í Fellsborg 6. mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1336
Myndin var tekin 17. ágúst 2012 af hjónunum Árna Geir Ingvarssyni og Herdísi Jakobsdóttur á ljósmyndasýningu sem Árni hélt á Kántrýhátíð 2012 í íþróttahúsinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 945
Myndin var tekin á brunaæfingu í Höfðaskóla 13. desember 2007. Þá var enn kennt á báðum hæðum í íþróttahúsinu og myndin sýnir Herdísi Baldvinsdóttur kennara hjálpa Guðrúnu Önnu Halldórsdóttur við að komast í brunastigann af svölum efri hæðarinnar. Það er hluti af tæmingaráætlun skólans að nemendur og aðrir sem eru á efri hæðinni í húsinu fari út á svalirnar og síðan niður stigann.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1125
Guðbjörg Ólafsdóttir til vinstri og Katrín Sigurjónsdóttir til hægri á Kántrýhátíð 13. ágúst 2010.
Ólafur Bernódusson 906
Gömul hjón á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg í febrúar 1999. Kerlingin er líklega Ásdís Adda Ólafsdóttir en karlinn er óþekktur. Bak við þau sér í raunveruleg hjón, ekki grímubúin, séra Guðmund Karl Brynjarsson og Kamillu Hildi Gísladóttur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1524
16. nóvember er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og þess vegna Dagur Íslenskrar tungu. Þessi mynd var tekin þann dag 2011 á skemmtun Höfðaskóla í Fellsborg. Skólinn helgar þennan dag minningu Elínborgar Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara. Á myndinni eru nokkrir nemendur að leika málshátt sem gestir eiga að giska á hver sé. Málshátturinn í þetta sinn var: " Morgunstund gefur gull í mund". Leikararnir eur frá vinstri: Aron Snær Fannarsson, Anna Dís Ragnarsdóttir og Heba Líf Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1149
Myndin var tekin í eldhúsinu í Fellsborg 8. ágúst 2003 af Maríu Kristjánsdóttur (d. 27.6.2017) frá Tjörn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1438
Sungið í skemmtiatriði á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011. Fólkið á sviðinu er, frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Fannar Viggósson, Halldór Gunnar Ólafsson, Hrefna Þorsteinsdóttir, Guðni Már Lýðsson, Þorgerður Þóra Hlynsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Árni Halldór Eðvarðsson, Hafþór Smári Gylfason, Elva Dröfn Árnadóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Ólafur Bernódusson
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1350
Myndin er af vatnsfótboltaliði eftir sigurleik 17. ágúst 2012. Þá stóð yfir Kántrýhátíð og vatnsfótbolti var eitt af skemmtiatriðunum. Liðið skipuðu, frá vinstri: Elías Gunnar Hafþórsson, Jón Atli Magnússon, Sindri Njáll Hafþórsson, Ásþór Óðinn Egilsson, Arnór Snorri Gíslason og Kristján Pétur Guðjónsson. Áhorfendur njóta veðurblíðunnar í brekkunni við íþróttavöllinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1420
Jóel Kristjánsson til vinstri og Gísli Snorrason til hægri 13. ágúst 2011 í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1456
Myndin var tekin 9. september 2011 í sundlaugarpartrýi kvöldið áður en lauginni var lokað fyrir veturinn. Fyrir tilkomu hitaveitu var sundlauginni lokað að loknu skólasundi í september og ekki opnuð aftur fyrr en í maí, þegar skólasund hófst á ný. Síðasta kvöldið áður en hleypt var úr lauginni var haldið partý fyrir krakkana í unglingadeildinni í Höfðaskóla. Eins og sjá má var vinsælt að fara í froðubað í heita pottinum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1252
Myndin var tekin á aðalæfingu á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg um morguninn 23. mars 2012. Hátíðin sjálf var svo um kvöldið. Á myndinni eru Eva Dögg Björgvinsdóttir og Arnar Páll Guðjónsson að kynna næsta atriði.
Ólafur Bernódusson 893
Myndin var tekin á vortónleikum Tónlistarskólans í Hólaneskirkju í maí 1999. Þóra Lísebet Gestsdóttir spilar á þverflautu við píanóundirleik Michael Jones kennara.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1126
Myndin var tekin 13. ágúst 2010 þegar Kántrýhátíð stóð sem hæst. Fólkið er frá vinstri: Birna Blöndal, Orri Blöndal sonur hennar og Guðjón Árnason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1317
Sævar Hallgrímsson vinstra megin og Guðmundur Finnbogason hægra megin 10. ágúst 2011 að vinna við að skreyta Hólabraut fyrir Kántrýhátíð dagana á eftir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1334
Myndin var tekin 17. ágúst 2012 þegar María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), ekkja Jóns Jónssonar (d.9.7.1991) fyrrverandi formanns Skógræktarfélags Skagatrandar, afhjúpaði skiltið á myndinni. Maríu til aðstoðar var dóttir hennar Fjóla Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1102
Kristín Jóna Sigurðardóttir bakar vöfflur ofan í gesti við formlega opnun athafnasvæðis Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar 27. júlí 2010. Stúlkurnar litlu, sem eru dætur Kristínar, eru Vala Berglind Valsdóttir standandi og Þóra Karen Valsdóttir sem situr.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1383
Myndin var tekin í Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Norðulandi vestra 13. október 2012. Á henni er Ólafur Bernódusson að sýna myndir og spjalla um þróun hafnargerðar á Skagaströnd. Á myndinni er hluti áheyrenda sem mættu á þennan viðburð. Fremst sitja, frá vinstri: Herdís Jakobsdóttir, Sigurður Ingimarsson, Svava Valgerður Kristinsdóttir, Guðrún Pálsdóttir og Sigurjón Guðbjartsson. Aftan við Guðrúnu og Sigurjón sitja Ardís Ólöf Arelíusdóttir (d. 12.9.2018) til vinstri og Erna Berglind Hreinsdóttir til hægri Ingibergur Guðmundsson er aftan við þær og óþekktur. Standandi frá vinstri: þrír óþekktir, Magnús B. Jónsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Fannar Viggósson, óþekkt, Viggó Brynjólfsson og Ólafur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 842
Í elhúsinu í Fellsborg 1. maí 2008 vegna einhverrar óþekktrar samkomu sem þá fór fram. Fólkið á myndinni er frá vinstri: hjónin Svenny Hallbjörnsdóttir og Gunnar Sveinn Halldórsson og Heiðrún Tryggvadóttir prestsfrú.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 999
Óskar Björnsson leikur á bassa í hljómsveit á söngvakeppni Höfðaskóla - Garginu - í Fellsborg 6. mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1361
Myndin var tekin 17. ágúst 2012 á Kántrýhátíð. Á henni eru félagarnir Frímann Lúðvíksson til vinstri og Vilhjálmur Skaftason til hægri. Í baksýn sér í Hjört Guðbjartsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1406
Myndin var tekin á þorrablóti í Sæborg 21. janúar 2011. Konurnar sem eru að skemmta eru frá vinstri: Guðbjörg Eiríksdóttir, Guðríður Líneik Daníelsdóttir (d. 24.1.2020) og Hrafnhildur Jóhannsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1183
Í mikilli hláku 26. desember 2010 stíflaðist ræsi neðan við Læk og þá fór að flæða inn í kjallarann þar. Menn úr slökkviliðinu mættu á staðinn til að dæla upp úr kjallaranum. Gísli Snorrason er við dæluna en sonur hans, Arnór Snorri Gíslason, fylgist með til vinstri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1401
Gleði í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð 18. ágúst 2012. Frá vinstri: óþekkt, Fannar Viggósson, Guðbjörg Viggósdóttir, Viggó Magnússon, Magnea Harðardóttir og Anna Margrét Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1403
Feðginin Slavko Velemir og Helena Mara Velemir á brekkusöng Kántrýhátíð 12. ágúst 2011
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1408
Fólkið á myndinni slakar á yfir bjórglasi við Bjarmanes á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011. Frá vinstri: Herdís Jakobsdóttir, Guðlaugur Ingi Sigurðsson, Vala Rós Ingvarsdóttir og Ragnar Smári Ingvarsson. Herdís er mágkona systkinanna Ragnars og Völu en Guðlaugur er maður Völu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1116
Vatnspása á leiðinni á Spákonufellið - Borgarhausinn - 21. júní 2009. Þangað gekk hópur fólks Jónsmessugöngu það kvöld og var á toppnum á miðnætti til að sjá sólina ganga niður að sjávarfletinum í norðri áður en hún fór að hækka sig aftur á himninum. Laufey Lind Ingibergsdóttir situr vinstra megin og Guðrún Pálsdóttir til hægri. Standandi eru systkinin Karl Guðmundsson og Helga Guðmundsdóttir.
Ólafur Bernódusson 875
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá voru nemendur með ýmiskonar viðburði í stofunum. Hver sýning var sýnd nokkrum sinnum yfir daginn þannig að allir sem vildu gátu séð þær allar þó 2-3 væru í gangi hverju sinni. Á myndinni eru krakkarnir að leika kennslustund eins og hún var um 1939 þegar Höfðaskóli var stofnaður. Frá vinstri á myndinni: Óþekktur (sitjandi), Tinna Björk Gunnarsdóttir, Óðinn Örn Sævarsson, Ragnar Már Björnsson, Eyþór Vilhjálmsson, Anna Dúna Rúnarsdóttir og Jón Atli Magnússon. meðal áhorfenda má þekkja Patrik Snær Bjarnason með svarta húfu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1490
Myndin var tekin 23. október 2011 en þá voru liðin 20 ár frá vígslu nýju Hólaneskikju (vígð 20. október 1991). Á myndinni er Guðrún Anna Halldórsdóttir að spila á saxófóninn sinn. Til vinstri sér í Þorbjörgu Bjarnadóttur sem söng með kirkjukórnum. Prestarnir sem sitja saman eru séra Magnús Magnússon til vinstri og séra Ægir Fr. Sigurgeirsson til hægri. Báðir þjónuðu þeir í kirkjunni um tíma.
Ólafur Bernódusson 843
Landsbankahlaupið, sem var víðavangshlaup, var haldið á vorin í nokkur ár á vegum útibúsins á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin 5. maí 2007 af sigurvegurum í víðavangshlaupinu á sínum flokki. Stúlkurnar eru frá vinstri: Guðrún Anna Halldórsdóttir, Svandís Lilja Hallgrímsdóttir og Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1392
Hjörtur Guðbjartsson spilar og syngur með hljómsveitinni Janus á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011.
Uppboð Réttarholti
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er í gangi uppboð á ýmsum eigum Jóns og Þorbjargar konu hans þegar þau brugðu búi í Réttarholti eftir 30 ára búskap þar og fluttu inn á Blönduós árið 1958.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1039
Tveir prestar á Kántrýhátíð 19. ágúst 2006. Séra Magnús Magnússon til vinstri og séra Guðmundur Karl Brynjarsson til hægri. Báðir þjónuðu þeir á Skagaströnd í nokkur ár.
1
…
78
79
80
…
104
Leita í myndasafninu
Leita