Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Atburðir

Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
mundi339
Grímuball í Tunnunni. Grímurnar voru gjarnan teknar niður á miðnætti og þá komst upp hver var hver. Þórður Jónsson (d.25.12.2009) er lengst til vinstri uppi á sviðinu.
mundi397

Þessi mynd er tekin á jólaskemmtun um eða upp úr 1960 á Njálsstöðum. Frá vinstri: Björgvin Kemp Efri-Lækjardal, Guðrún Guðmundsdóttir Neðri-Mýrum, séra Pétur Ingjaldsson (d. 1.6.1996) prestur á Höskuldsstöðum, seinna á Skagaströnd, þá Guðmann Magnússon (d. 22.11.2000) frá Vindhæli, Magnús Daníelsson (d.1.6.1993) frá Syðri-Ey, Sigurður Jónsson (d. 11.1.1968) Mánaskál, Guðlaug Sigurðardóttir (d.17.1.2002) Kúskerpi, Agnes Sigurðardóttir (d. 15.1.2003) Mánaskál, Torfi Sigurðsson (d. 9.10.1993) Mánaskál og Hafsteinn Jónasson (d. 11.6.1975) frá Njálsstöðum.

mundi430
Sólveig Georgsdóttir á fermingardaginn sinn.
mundi637
Björgvin Jónsson, formaður byggingarnefndar afhendir Ingvari Jónssyni smið, táknrænan lykil að húsinu. Milli þeirra sést í Hjördísi Báru Þorvaldsdóttur og Guðrúnu Sigurðardóttur
mundi612
Fermingarbörn 1973 í Hólaneskirkju ásamt Sr. Pétri Ingjaldssyni. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Ragnar Högnason, Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir, Hörður Jónasson, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Magnús Blöndal (d.7.9.2001), Gréta Ingvarsdóttir, Halldór Jóhann Grímsson, Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020), Lilja Guðjónsdóttir, Adolf H. Berndsen og Guðrún Ágústsdóttir. Séra Pétur Ingjaldsson situr fremst á myndinni.

mundi459
Arnar HU-1 skreyttur við heimkomu frá Japan í október 1973. Örvar Hu 14 í baksýn.
mundi485
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973 , hann var smíðaður í Japan. Fremst á myndinni til hægri eru Ingibjörn Hallbertsson (d.14.4.2018) og Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988), með pípu. Einnig er hægt að þekkja á myndinni Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010) sem er aftan við þá tvo og Georg Hjartarson (d.13.9.2001) í dökkum jakkafötum og með bindi til vinstri. Björn Guðmundsson (Biddi) frá Árbakka er fremst á myndinni hjá konunni með slæðuna. Til vinstri við konuna er Unnur Gunnarsdóttir.
mundi638
Myndin var tekin á framboðsfundi í Fellsborg en ártalið er óþekkt. Í ræðustól er Magnús Gíslason (d. 3.2.2013) frá Frostastöðum en við hlið hans situr Þorfinnur Bjarnason ( d. 6.11.2005) fundarstjóri. Aftan við þá sér í Hannes Baldvinsson frá Siglufirði. Magnús og Hannes voru báðir í framboði fyrir Alþýðubandalagið .
mundi475

Vinstra megin er báturinn Guðmundur Þór Hu 7 en til hægri sést aftan á Guðjón Árnason Hu 12.

mundi501
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973 við heimkomu frá Japan. Fólkið á myndinni hlustar á eina af ræðum dagsins.
mundi441

Unglingasveit bíður eftir startinu. Unglingarnir á myndinni eru frá vinstri: Einar Páll Guðmannsson, Guðmundur Viðar Guðmundsson, Ragnar Högnason, Jón Hallur Pétursson, Adolf H. Berndsen og Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018).
mundi457
Kappróður á sjómannadegi.
mundi618
Valdimar Guðmundsson (d.4.4.2015) í Hólaneskirkju eldri á fermingardaginn sinn vorið 1972.
mundi466
Heiðrun á sjómannadegi. Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), Eiður Hilmarsson og Ingvar Jónsson (d.29.7.1978).
Sigmar Hróbjartsson - safn016
Skreyttir bátar í Skagastrandarhöfn 1945 eða 1946. Verksmiðjan er í byggingu því verið er að byggja löndunarkranann en færibandið frá honum upp í verksmiðju er ekki komið.
larus040
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.
Biskupinn Herra Ólafur Skúlason við altarið og sóknarnefndarfólk ásamt prestum og meðhjálpara raða sér í kring. Frá vinstri: herra Bolli Gústafsson vígslubiskup á Hólum (1991 - 2002), Hallbjörn Hjartarson, herra Sigurður Guðmundsson fyrrverandi vígslubiskup á Hólum (1986 - 1991) áður prestur á Grenjaðarstað, Fjóla Jónsdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Árni Ólafur Sigurðsson, Hildigunnur Jóhannsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson, herra Ólafur Skúlason biskup, Steindór R. Haraldsson, Gylfi Sigurðsson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir og Gunnlaugur Sigmarsson.
mundi455

Fólk fylgist með stakkasundi í höfninni á sjómannadegi.

mundi471
Óþekktur ræðumaður á sjómannadegi. Ef þú þekkir manninn vinsamlegat sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson161
Hér eru heiðursmennirnir Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001), Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) og Jóhann F. Pétursson (d. 13.1.1999) á sjómannadegi á Skagaströnd. Allir settu þessir menn sterkan svip á bæinn meðan þeir lifðu, hver á sinn ólíka hátt. Lúðvík bjó í Steinholti með konu sinni Sigríði Frímannsdóttur og fjórum börnum, Snorri í Höfðatúni með sinni konu, Jóhönnu Jónasdóttur, og syni en Jóhann bjó á Lækjarbakka og hans kona var Sigríður Ásgeirsdóttir og saman áttu þau fjögur börn. Myndina tók Jón Jónsson.
mundi547
Björgvin Jónsson (d.4.5.1992) og Soffía Lárusdóttir (31.3.2010) við vígslu Fellsborgar
Guðrún Guðbjörnsdóttir019
Fótboltaleikur á sjómannadegi.
mundi614
Anna Bjarnadóttir í Hólaneskirkju eldri á fermingardaginn sinn vorið 1972.
mundi448
Kappróður á sjómannadegi.
mundi428
Fermingarmynd af þeim Stefaníu Guðjónsdóttur til vinstri og Jóhönnu Ásmundsdóttur til hægri.
Jón Jónsson162
Drengurinn lengst til vinstri er Jósef Stefánsson, síðan Hermann Guðjónsson (með hvíta blöðru), Svanur Árnason og Karl Guðmundsson. Maðurinn með hattinn er Jón Jónsson.
mundi527
Á ferðalagi um vestfirði. Fremst á myndinni er Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) í rauðum bol en maðurinn með harmónikuna er Kristján Hjartarson (d.2.8.2003). Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) er fyrir miðri mynd í dökkri peysu og hjá honum er kona hans Guðrún Angantýsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
mundi563
Í kaffiboði líklega á vegum Lionklúbbs Blönduóss. Anna Tryggvadóttir lengst til vinstri, óþekktur, Svanhildur Þorleifsdóttir, Ragnar Þórarinsson og svo Guðfinna Pálsdóttir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir006

Fremst á myndinni eru Hjördís Sigurðardóttir sem leiðir barn og Hallbjörg Jónsdóttir móðri hennar

mundi633
Ingvar Jónsson hreppsstjóri stjórnar húrrahrópum á samkomunni.
Guðrún Guðbjörnsdóttir009
Guðjón Jónsson (Gutti) blæs í blöðru í tunnuleik á sjómannadegi
mundi635
Bernódus Ólafsson í ræðustól í Fellsborg
Jón Jónsson160
Lúðrasveit leikur á sjómannadegi á Skagaströnd undir stjórn Skarphéðins Einarssonar.
mundi404
Ferming í Hólaneskirkju 1961. Sigrún Kristófersdóttir gengur niður tröppurnar en Steinunn Margrét Ellertsdóttir er í kirkjudyrunum
mundi468
Skrúðgangan frá höfn til kirkju á sjómannadegi. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) ber fána og við hlið hans er fánaberinn Bjarni Loftsson (d.8.11.1990). Þriðji fánaberinn er óþekktur en aftan við hann er Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
mundi491
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973, við heimkomuna en hann var smíðaður í Japan.
mundi617
Þórdís Sigurðardóttir í Hólaneskirkju eldri á fermingardaginn sinn vorið 1972.
mundi469

Ingvar Jónsson hreppstjóri í ræðustól á sjómannadegi.

mundi629
Á myndinni eru Gestheiður Jónsdóttir og Björgvin Jónsson frá Höfðabrekku
mundi443
Kappróðrarkeppni á sjómannadegi.
larus017
Vígsla nýju kirkjunnar þann 20. október 1991. Biskup Íslands, vígslubiskup og klerkar sem voru við vígsluna.
mundi529
Kaffidrykkja í Fellsborg af óþekktu tilefni. Brosmildi maðurinn til vinstri er Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) frá Grund en konan til hægri er Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004).
mundi488
Frá móttöku Arnars HU-1 1973 um miðjan október, hann var smíðaður í Japan. Séra Pétur þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) í ræðupúlti
larus069
Séra Ægir Fr. Sigurgeirsson í fyrstu messunni í nýrri kálfkláraðri Hólanesskirkju 30. júlí 1989.
mundi470
Skrúðgangan, gengið frá höfninni í kirkju. Rauði vörubíllinn í baksýn var útgerðarbíll Bjarna Helgasonar á Stíganda Hu sem átti heima í Holti (Eyri) en það er húsið aftan við göngufólkið. Þar fyrir aftan glittir svo í útibúið sem var verslunarútibú frá kaupfélaginu.
mundi503
Frá móttöku Arnars HU-1 1973 um miðjan október eftir heimsiglingu frá Japan þar sem hann var smíðaður. Gestir fara um borð til að skoða nýja skipið.
mundi573
Málfríður Jóhannsdóttir til vinstri og Guðrún Elvan Friðriksdóttir (d.14.2.2008) hægra megin ganga til kirkju á fermingardaginn 23.maí 1971
mundi462
Viningslið karla í kappróðri af Arnari HU1 tekur við verðlaunabikarnum uppi á þaki skúranna við bryggjuna. Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) kynnir dagsins, Björn Haraldsson (d.21.9.1988), óþekktur, Finnur Kristinsson, ?Björn Sigmundson?, Stefán Jósefsson, Ómar Jakobsson og Gunnar Sveinsson (d.3.11.20). Myndin var sennilega tekin 1971 eða 1972.
mundi559
Óþekktur maður (Gerhart Smith úr Gautum frá Siglufirði?) leikur á píanó í Fellsborg
mundi445
Kappróður á sjómannadegi. Stýrimaður á bátnum nær okkur er Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
mundi548
Dansleikur í Fellsborg. Fremst til vinstri er Guðrún Guðmundsdóttir aftar (með gleraugu) er Kári Lárusson og við hlið hans er Óskar Jóhannesson. Stúlkan í ljósu peysunni með græna kragann er Áslaug Hrólfsdóttir. Lengst til hægri er Jóhannes Pálsson (d.23.11.1986).
mundi628
Guðbjartur Guðjónsson í ræðustól
mundi481
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973 , hann var smíðaður í Japan. Fólkið hlustar á ræður og bíður eftir að fara um borð til að skoða þetta nýja skip.
Jón Jónsson163
Á myndinni eru frá vinstri talið: Jósef Stefánsson, Hermann Freyr Guðjónsson, Svanur Árnason, Karl Guðmundsson og Jón Jónsson.
mundi576
Dansleikur í Fellsborg.
mundi546
Framboðsfundur fyrir Alþingiskosningar í Fellsborg. Björn Pálsson (d.11.4.1996) frá Löngumýri í ræðustól. Þorfinnur Bjarnason (d.6.11.2005) situr og stýrir fundinum.
mundi537
Fermingadrengirnir Marías Bjarni Viggósson og Guðmundur Viðar Guðmundsson ganga til kirkju.
mundi621
Myndin er tekin á dansleik í Fellsborg. Skreytingar á sviðinu benda til einhvers sérstaks tilefnis sem þó er óþekkt. Í hljómsveitinni eru Hallbjörn Hjartarson á orgel, Hjörtur Guðbjartsson á gítar, Rúnar Loftsson á trommur og Þorvaldur Skaftason á bassa.
mundi486
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973, hann var smíðaður í Japan. Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf í ræðupúlti.
mundi453
Sýning á björgun með fluglínutækjum á sjómannadegi. Báturinn er Helga Björg Hu 7.
mundi636

Jón Ísberg sýslumaður í ræðustól í Fellsborg líklega við vígslu Fellsborgar 1971

1

7
8
9

104
Leita í myndasafninu
Leita