Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1384
Hjónin Magnús B. Jónsson og Guðbjörg Viggósdóttir á fyrirlestri í Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Skagaströnd 13. október 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1251
Myndin var tekin 23. mars 2012 á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Á henni er einn bekkurinn að sýna atriðið sitt. Frá vinstri: ? Jónasdóttir?, Páll Halldórsson, óþekkt, Linda Rún Einarsdóttir, óþekkt, Sæunn Steingrímsdóttir og Anton Þór Einarsson. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1341
Vinirnir Auðunn Árni Þrastarson til vinstri og Páll Halldórsson til hægri njóta góða veðursins á Kántrýhátíð 11. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1197
Myndin var tekin á aðventukvöldi 5. desember 2010 eftir að öll ljós í kirkjunni voru slökkt og allir viðstaddir fengu lifandi ljós á kertin sín meðan þeir sungu saman Heims um ból. Á myndinni er Sylvía Hrólfsdóttir með ömmustelpuna sína, Arnrúnu Hildi Hrólfsdóttur en í baksýn sér m.a. í kór kirkjunnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1198
Myndin var tekin rétt fyrir aðventukvöld í Hólaneskirkju 5. desember 2010. Á henni er séra Úrsula Árnadóttir að fara yfir málin með upplesurum um kvöldið. þeir eru frá vinstri: Ásdís Birta Árnadóttir, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015) og Kristján Örn Róbertsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1606
Mennirnir á myndinni er báðir togaraskipstjórar. Birgir Þórbjarnarson er til vinstri og Guðjón Guðjónsson til hægri. Hjá þeim standa konurnar þeirra Guðrún Garðarsdóttir hjá Birgi og Guðrún Soffía Pétursdóttir hjá Guðjóni. Myndin var tekin á sjómannadeginum 2. júní 2012 en þá var Birgir heiðraður fyrir björgunarafrek sem hann vann þegar hann var 18 ára gamall.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1113
Guðmundur Árnason til vinstri og Guðlaugur Ómar Guðmundsson til hægri á gleði- og grilldegi vinnuskólans sumarið 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1039
Tveir prestar á Kántrýhátíð 19. ágúst 2006. Séra Magnús Magnússon til vinstri og séra Guðmundur Karl Brynjarsson til hægri. Báðir þjónuðu þeir á Skagaströnd í nokkur ár.
Ólafur Bernódusson 879
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá voru nemendur með ýmiskonar viðburði í stofunum. Hver sýning var sýnd nokkrum sinnum yfir daginn þannig að allir sem vildu gátu séð þær allar þó 2-3 væru í gangi hverju sinni. Á myndinni eru Leó Kristberg Einarsson og Eydís Inga Sigurjónsdóttir að lesa fyrir fólk úr sögu skólans.
Uppboð Réttarholti
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er í gangi uppboð á ýmsum eigum Jóns og Þorbjargar konu hans þegar þau brugðu búi í Réttarholti eftir 30 ára búskap þar og fluttu inn á Blönduós árið 1958.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1477
Myndin var tekin í húsnæði Rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra í gamla kaupfélaginu á Skagaströnd 8. október 2011. Óli Albertsson er til vinstri og Adolf H. Berndsen til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1435
Skemmtiatriði á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011. Á myndinni eru, í hlutverkum sínum sem starfsmenn Trésmiðju Helga Gunnarssonar, frá vinstri: Árni Halldór Eðvarðsson, Hafþór Smári Gylfason, Guðni Már Lýðsson og Ólafur Bernódusson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1497
Leiksýning á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 29. mars 2011. Ekki er vitað hvaða leikrit var verið að sýna en leikararnir eru frá vinstri: Guðrún Anna Halldórsdóttir, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015), Aldís Embla Björnsdóttir, ?Róbert Björn Ingvarsson? og Aron Snær Fannarsson
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1037
Guðmundur Guðmundsson á tröppunum á Bjarmanesi á Kántrýhátíð 19. ágúst 2006.
Barnaból - safn433
Starfskonur Barnabóls fóru í heimsókn til Kragerö í Noregi vorið 2008. Þar heimsóttu þær og skoðuð leikskóla sem var undir stjórn fyrrverandi leikskólastjóra Barnabóls, Láru Bylgju Guðmundsdóttur. Þessi mynd var tekin af Guðmundu Sigurbrandsdóttur (d.15.8.2015) í ferðinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 967
Myndin var tekin í danstíma í Fellsborg 9. október 2006. Kara Arngrímsdóttir danskennari leiðir hópinn. Börnin eru, talin frá Köru: óþekktur, Hallbjörg Jóndóttir, Laufey Lind Ingibergsdóttir, tveir óþekktir, Dagur Freyr Róbertsson, Sveinn Hallgrímsson, Sunna Steingrímsdóttir, Aníta Ósk Ragnarsdóttir, Auðunn Árni Þrastarson, Daði Snær Stefánsson, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Guðný Eva Björnsdóttir og óþekkt. Í andyrinu standa Lilja Nótt Sævarsdóttir til vinstri og Elín Rafnsdóttir til hægri. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 982
Prufuskot úr fallbyssunni á Skagaströnd 30. maí 2008. Byssan er eftirlíking af tveimur byssum sem voru staðsettar á Höfðanum á Skagaströnd á öldum áður. Þar voru þær notaðar til að láta bændur í nærsveitum vita af komum kaupskipa. Þegar þeir heyrðu skotið vissu þeir að tími var kominn til að undirbúa kaupstaðarferð með afurðir sínar. Á myndinni heldur Björn Hallbjörnsson fyrir eyrun, óþekktur maður spjallar í síma og Hallbjörn Björnsson tekur mynd af skotinu. Hallbjörn var einn af hvatamönnum þess að byssan var smíðuð og keypt frá Danmörku.
Ólafur Bernódusson 920
Skáldið Þorgrímur Þráinsson áritar bók eftir sig fyrir Lilju Nótt Sævarsdóttur eftir að hafa lesið úr bókinni fyrir krakka í Höfðaskóla í febrúar 1999 á vegum átaksins "Skáld í skólum".
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1430
Þessar prúðbúnu konur leiða fjöldasöng á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011. Konurnar eru frá vinstri: Sigríður Stefánsdóttir, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1347
Myndin var tekin 17. ágúst 2012 á íþróttavellinum. Þá fór fram "vatnsfótbolti", sem fer þannig fram, að einn úr hvoru liði hefur öfluga vatnsslöngu sem hann má nota að vild á andstæðingana. Á myndinni eru frá vinstri: Elvar Geir Ágústsson, Finnbogi Guðmundsson, Ernst Guðni Hólmgeirsson og Sigurjón Elí Eiríksson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1523
16. nóvember er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og þess vegna Dagur Íslenskrar tungu. Þessi mynd var tekin þann dag 2011 á skemmtun Höfðaskóla í Fellsborg. Skólinn helgar þennan dag minningu Elínborgar Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara. Á myndinni eru nokkrir nemendur að leika málshátt sem gestir eiga að giska á hver sé. Málshátturinn í þetta sinn var: " Betri er einn fugl í hendi en tveir í skógi". Leikararnir eru frá vinstri: Sigurlaug Máney Sæmundsen, Sigurbjörg Birta Berndsen og Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1249
Harpa Hlín Ólafsdóttir leikur á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012.
Ólafur Bernódusson 959
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg vegna vígslu nýs verslunarhúss Kaupfélags A-Hún við Bogabraut á Skagaströnd. Líklega var þetta árið 1983. Á myndinni eru konurnar sem störfuðu í versluninni á þessum tíma. Frá vinstri: tvær óþekktar, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), óþekkt, Hulda Magnúsdóttir, óþekkt, Guðbjörg Viggósdóttir og Edda Pálsdóttir (d. 8.4.2016). Ef þú þekkir einhverja af óþekktu konunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1320
Myndin var tekin 10. ágúst 2011 þegar íbúar við Fellsbraut voru að skreyta götuna sína fyrir Kántrýhátíð dagana á eftir. Frá vinstri: Rúnar Jósefsson, Einar Haukur Arason, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir og Vilhelm Björn Harðarson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1352
Myndin var tekin 17. ágúst 2012 þegar Kántrýhátíð stóð sem hæst. Á henni er fólk af miklum áhuga að leita að, og tína upp, karamellur sem varpað var úr flugvél yfir íþróttavöllinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1449
Myndin var tekin 31. ágúst 2012 í íþróttahúsinu þar sem stóð yfir kynning á fyrirhuguðum hitaveituframkvæmdum í sveitarfélaginu. Á kynninguna mættu ýmsir hagsmunaaðilar sem kynntu sína vöru og þjónustu. Á myndinni eru frá vinstri: Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri RARIK, Páll Friðriksson ritstjóri Feykis, Ingibergur Guðmundsson og Magnús B. Jónsson sveitarstjóri.
Barnaból - safn601
Vigdís Elva Þorgeirsdóttir með dóttur sína Heklu Guðrúnu Þrastardóttur í 30 ára afmæli leikskólans Barnaból 6. júlí 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1333
Myndin var tekin 17. ágúst 2012 þegar Jónsstígur var formlega opnaður. Stígurinn liggur um skógræktarsvæði Skógræktarfélags Skagastrandar en hann höfðu félagsmenn gert þá um sumarið. Lengst til hægri er Ari Jón Þórsson, formaður félagsins, að ávarpa gesti. Stígurinn er nefndur eftir Jóni Jónssyni (d.9.7.1991) sem lengi var formaður Skógræktarfélagsins. Ari Jón er dóttursonur Jóns.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1167
24. nóvember 2005 hafði fiskmarkaður Örva ehf tekið á 4000 tonnum af fiski það árið. Á myndinni eru Lárus Ægir Guðmundsson eigandi Örva til vinstri en til hægri er bróðir hans Ingibergur Guðmundsson sem var rekstrarstjóri Örva á þessum tíma.
Barnaból - safn550
Krakkarnir í leikskólanum Barnaból skoða hnúfubakskálf í fjörunni hjá hafnarvigtinni í ágúst 1998. Krakkarnir eru frá vinstri: Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir, Guðjón Örn Kristjánsson, tveir óþekktir, Eva Dís Gunnarsdóttir, Fjóla Ævarsdóttir starfsmaður, þrjú óþekkt börn og Guðrún Hrólfsdóttir starfsmaður. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 1010
Á myndinni er Sveinn Ingólfsson með verðlaunaskjal sem hann vann sér inn á öldungamóti USAH 1983. Myndin var tekin í hófi í Kántrýbæ að mótinu loknu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1510
Myndin var tekin 16. nóvember 2011 þegar verið var að rífa olíutank við Höfðann. Áður var búið að lækka tankinn um helming frá því sem hann var upphaflega. Þá stóð annar eins við hlið hans en á myndinni má sjá hvar hann stóð. Sá tankur var rifinn mörgum árum fyrr. Báðir voru þeir reistir á sínum tíma kringum 1945 - 7 til notkunar fyrir síldarverkmiðjuna sem þá var byggð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1208
Karlar úr Lions 19. desember 2010 að gera klára kæsta skötu fyrir Þorláksmessuveisluna í Fellsborg. Frá vinstri: Slavko Velemir, Sævar Hallgrímsson, Árni Geir Ingvarsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Guðmundur J. Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1354
Myndin var tekin á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012. Fólkið er, frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir, Þórarinn Brynjar Ingvarsson, Árni Geir Ingvarsson og Guðmundur Jón Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1205
Hjónin Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson spila í Djásn og dúllerí á þorláksmessu 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1261
Systurnar frá Árbakka, Þórhildur Jakobsdóttir til vinstri og Herdís Jakobsdóttir til hægri, í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Aðrir í myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 841
Húsfyllir í samkomutjaldinu á kántrýhátíð 19. ágúst 2006. Þar fóru fram ýmis skemmtiatriði ætluð bæði börnum og fullorðnum.
Ólafur Bernódusson 932
Myndin er af leikskólabörnum úr Barnabóli þegar þau komu í kirkjuna í desember 1998 með jólagjafir handa fátækum börnum. Gjafirnar eru í kössunum framan við hópinn. Börnin eru: í fremstu röð frá vinstri: tvær óþekktar, Sigurjón Elí Eiríksson, tvö óþekkt, Telma Dögg Bjarnadóttir og óþekkt. Aðrir frá vinstri: Alex Már Gunnarsson, óþekkt, Indriði Theódór Hjaltason, Brynjar Max Ólafsson, tvö óþekkt, Eva Dís Gunnarsdóttir, óþekkt, Viktor Örn Valdimarsson og óþekkt. Ef þú þekkir einhvert óþekktu barnanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1336
Myndin var tekin 17. ágúst 2012 af hjónunum Árna Geir Ingvarssyni og Herdísi Jakobsdóttur á ljósmyndasýningu sem Árni hélt á Kántrýhátíð 2012 í íþróttahúsinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 949
Elías Árnason spilar fyrir dansi á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007. Séra Fjölnir Ásbjörns leiðir sönginn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1233
Prúðbúin börn í Hólaneskirkju 2. desember 2012. Líklega var þá haldið aðventukvöld þar og krakkarnir sungu í barnakór. Í fremstu röðinni eru, frá vinstri: Óðinn Örn Gunnarsson, Þórunn Ósk Hólmgeirsdóttir, Sóley Sif Jónsdóttir og Ísabella Líf Tryggvadóttir. Miðröð, frá vinstri: Arna Rún Arnarsdóttir, Andri Már Gunnarsson og Gabríel Goði Tryggvason. Aftasta röð, frá vinstri: systurnar Rakel og Karen Elvarsætur og Ingólfur Eðvald Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 948
Enginn er of gamall til að taka þátt í söngnum og leiknum:"Í skóginum stóð kofi einn". Á myndinni eru nemendur að dansa kringum jólatré á litlu jólunum í Höfðaskóla 19. desember 2007 og syngja um litla hérann sem leitar skjóls hjá jólasveininum. Nemendurnir eru frá vinstri: óþekktur, Ásdís Birta Árnadóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Andrea Kristjánsdóttir, Freyja Einarsdóttir, Telma Dögg Bjarnadóttir, Lilja Bjarney Valdimarsdóttir og Sara Rut Fannarsdóttir
Guðrún Þórbjarnardóttir035
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Ekki er vitað um tilefni veislunnar á myndinni sem fór fram í Skátaskálanum sumarið 1966. Fólkið hægra megin við borðið er frá hægri: Jóhanna Lárusdóttir (d.?) Læk, Jóhann F. Pétursson (d.13.1.1999) Lækjarbakka og Sigríður F. Ásgeirsdóttir (d.11.12.2006) kona hans, Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1564
Þessir krakkar mættu á jólaball Lions í Fellsborg á annan í jólum 2011. Frá vinstri: Ásdís Birta Árnadóttir, Einar Ari Einarsson, Benóný Bergmann Sæmundsen og Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015). Í baksýn er Inga Rós Sævarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 952
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007. Fremri röð frá vinstri: Guðrún Rós Hjaltadóttir, Anna Margét Sigurðardóttir kennari, Egill Örn Ingibergsson, Elvar Geir Ágústsson, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015), Ásdís Birta Árnadóttir og Elva Dröfn Árnadóttir kennari. Efri röð frá vinstri: Birta Dögg Bessadóttir, Aldís Embla Björnsdóttir, óþekktur, Aron Breki Hjartarson, óþekkt, Halldóra Guðmundsdóttir, Gunnþór Ingi Kristjánsson, tveir óþekktir, Ísak Karl Tryggvason, Róbert Björn Ingvarsson og Friðmar Kári Eiríksson
Ólafur Bernódusson 928
Myndin var tekin á Þorláksmessu 1998 þegar Skagstrendingur hf hafði keypt Blæng NK 177 af Síldarvinnslunni á Neskaupstað og breytt honum í Örvar HU 2. Á myndinni er Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til vinstri en Finnbogi Jónsson forstjóri Síldarvinnslunnar og stjórnarformaður Skagstrendings hf til hægri.
Ólafur Bernódusson 880
Myndin ver tekin í ágúst 1999 þegar Kántrýhátíð var í gangi. Eitt af atriðunum þar var kraftakeppni þar sem fengnir voru menn til að keppa í að hlaupa með þunga malarpoka ákveðna vegalengd á sem stystum tíma. Á myndinni er Jósef Stefánsson á fullu að snúa við til að ná í næsta poka Stefán Ægir Lárusson snýr baki í okkur en hann tók á móti pokunum. Áhorfendur fylgjast spenntir með.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 942
Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla ganga syngjandi kringum jólatré í íþróttasalnum á litlu jólum 19. desember 2007. Litlu jólin eru ávallt mjög skemmtileg þar sem allir mæta í sínu fínasta pússi og margir fá að prófa jólafötin sín í fyrsta sinn það árið.
Ólafur Bernódusson 890
Myndin var tekin á vortónleikum Tónlistarskólans í Hólaneskirkju í maí 1999. Á henni spilar Arnór Snorri Gíslason lagið sitt á píanóið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1466
Jón Sigurðsson til vinstri og Sigurður Ingimarsson til hægri í samkvæmi á vegum Lionklúbbs Skagastrandar í Fellsborg 26. febrúar 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1363
Halla Kristín Árnadóttir með dóttur sína Birgittu Björgu Birgisdóttur á Kántrýhátíð 11. ágúst 2011.
Ólafur Bernódusson 1007
Myndin var tekin á öldungamóti USAH á Skagastrandarvelli 1983. Á henni stekkur Gunnar Sveinsson langstökk. Hjörtur Guðmundsson er með hrífuna, Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) er með málbandið og fylgist með að stigið sé rétt á plankann, Gunnar Halldór Hallbjörnsson er strákurinn í hvítu treyjunni og aftan við hann er Ingibergur Guðmundsson. Karl Lúðvíksson stendur hjá Ingvari og skráir niður árangur keppenda. Sigurbjörn Þorvaldsson (d.13.8.2000) fylgist með með hendur í vösum og yfir öxl hans gægist Jón Gunnar Jósefsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1303
Fólkið á myndinni er að fá sér lystauka fyrir matinn á Hótel Reynihlíð 6. október 2012. frá vinstri: Sigríður Stefánsdóttir, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, Ragnar Smári Ingvarsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Kristín Jónsdóttir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1416
Myndin var tekin í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011. Konurnar á myndinni eru frá vinstri: Ardís Ólöf Arelíusdóttir (d.12.9.2018), óþekkt og Steinunn Berndsen. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1522
16. nóvember er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og þess vegna Dagur Íslenskrar tungu. Þessi mynd var tekin þann dag 2011 á skemmtun Höfðaskóla í Fellsborg. Skólinn helgar þennan dag minningu Elínborgar Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara. Á myndinni eru nokkrir nemendur að flytja atriði síns bekkjar. Þeir eru frá vinstri: Elvar Geir Ágústsson, Kristján Örn Róbertsson, Rakel Jensína Jónsdóttir, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.17.2015), Aldís Embla Björnsdóttir, og Gunnþór Ingi Kristjánsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1588
Guðlaugur Ómar Guðmundsson syngur og spilar á gítar í sjómannamessu á sjómannadeginum 2. júní 2012 í Hólaneskirkju. Til vinstri er "sjómannakórinn" þ.e. karlakór sem syngur í messum á sjómannadögum. Í honum voru, þetta árið, talið frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Sigurjón Guðbjartsson, Ólafur Bernódusson, Árni Ólafur Sigurðsson, Þórarinn Grétarsson, Stefán Jósefsson, Trostan Agnarsson, Hafþór Gylfason og Gylfi Sigurðsson. Undirleikararnir eru frá vinstri: Ívan Árni Róbertsson, Jón Ólafur Sigurjónsson og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir.
Ólafur Bernódusson 986
Hafbjörg HU 100 sökk í höfninni á Skagaströnd 30. janúar 1985. Báturinn hét áður Rúna SF 101. Hafbjörgin var í eigu Ólafs Ingibjörnssonar og Högna Jenssonar en seinna keypti Ólafur Högna út úr félaginu og átti bátinn einn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1461
Í Spákonufellsrétt 11. september 2011. Fólk á fullu að draga fé sitt í dilka. Fólkið er, frá vinstri: Elvar Geir Ágústsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Ingimar Gísli Guðjónsson og Elva Þórisdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1353
Vatnsrennibraut við íþróttavöllinn 11. ágúst 2011 þegar Kántrýhátíð stóð sem hæst. Þá fögnuðu krakkarnir og verkstjórarnir í vinnuskólanum starfslokum það sumarið með grillveislu og sprelli.
Ólafur Bernódusson 1084
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 20. maí 2015 í Fellsborg. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir árið 2001. Þau eru, í fremri röð frá vinstri: Sveinn Halldór Hallgrímsson, Auðunn Árni Þrastarson og Benóný Bergmann Árnason. Aftari röð frá vinstri: Elva Þórisdóttir kennari, Hallbjörg Jónsdóttir, Birgitta Bjarnadóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Anita Ragnarsdóttir, Laufey Lind Ingibergsdóttir og Sunna Steingrímsdóttir
1
…
79
80
81
…
104
Leita í myndasafninu
Leita