Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1335
Þrjú börn ganga út á gólfið í íþróttahúsinu á danssýningu 12. október 2012. Börnin eru frá vinstri: Logi Hrannar Jóhannsson, Elsa Fanney Gunnarsdóttir og Sigríður Kristín Guðmundsdóttir.
Ólafur Bernódusson 918
Myndin var tekin í febrúar 1999 þegar tekinn var í notkun fjarfundabúnaður í Höfðaskóla. Mennirnir á myndinni eru allt iðnaðarmenn, sem sóttu nám til meistara í sínum greinum gegnum fjarfundabúnaðinn. Slíkur búnaður þótti mikil bylting og framfaraskref á þessum tíma. Mennirnir eru frá vinstri: Víðir Ólafsson rafvirki, Einar Haukur Arason húsasmiður, Hjalti Viðar Reynisson rafvirki og Björn Hallbjörnsson rafvirki.
Ólafur Bernódusson 884
Myndin var tekin í íþróttahúsinu á Kántrýhátíð í ágúst 1999. Jóhann Örn Ólafsson danskennari kennir ungum krökkum undirstöðuna í kántrýdansi. Eins og sjá má var þátttakan mjög mikil og allir skemmtu sér vel.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1369
Þórarinn Brynjar Ingvarsson og Vigdís Ósk Ómarsdóttir á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012.
Ólafur Bernódusson 887
Myndin var tekin á vortónleikum Tónlistarskólans í Hólaneskirkju í maí 1999. Á henni spilar Ástrós Villa Vilhelmsdóttir á trompet en Michael Jones kennari leikur undir á píanóið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1196
Myndin var tekin 5. desember 2010 á aðventukvöldi í Hólaneskirkju. Krakkarnir á henni léku helgileik fyir kirkjugesti. Sitjandi eru frá vinstri: Auðunn Árni Þrastarson, Páll Halldórsson, Benóný Bergmann Sæmundsen, Viktor Örn Einarsson og Egill Örn Ingibergsson. Standandi frá vinstri: Rebekka Heiða Róbertsdóttir, Laufey Sigurpálsdóttir, Guðrún Rós Hjaltadóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Jóna Margrét Sigurðardóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Laufey Lind Ingibergsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir og Anton Þór Einarsson. Við píanóið til vinstri er Hugrún Sif Hallgrímsdóttir sem stjórnaði tónlistarflutningi á aðventukvöldinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1569
5. maí 2011 voru stórvirkar vinnuvélar á fullu við að brjóta niður og fjarlæga þrærnar við síldarverksmiðuna. Við það jókst vinnupláss hafnarinnar mikið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1339
Myndin var tekin 11. ágúst 2011 þegar Kántrýhátíð stóð yfir. Stúlkurnar eru frá vinstri: Karen/Rakel Elvarsdóttir, Freyja Dís Jóhannsdóttir og Valgerður Guðný Ingvarsdóttir.
Ólafur Bernódusson 1008
Myndin var tekin á öldungamóti USAH á Skagastrandarvelli 1983. Þorleifur Arason (d.11.11.1991) kastar kúlunni. Ingibergur Guðmundsson er tilbúinn að mæla kastið en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 863
Áhöfn Arnars HU 1 og gestir skála, rétt fyrir jólin 1999, fyrir að vera fyrsta áhöfnin sem skilar meira en miljarði í aflaverðmætum á einu ári.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1176
Á þessari mynd eru frá vinstri iðnaðarmennirnir Árni Halldór Eðvarðsson smiður, rafvirkjarnir og feðgarnir Hallbjörn Björnsson og Björn Hallbjörnsson og Halldór Gunnar Ólafsson hjá BioPol lengst til hægri. Þeir eru að fylgjast með, 24. september 2010, þegar gamli vigratskúrinn við höfnina var fjarlægður svo hægt væri að koma hinum nýja fyrir á sama stað.
Ólafur Bernódusson 1078
Dagur Freyr Róbertsson í hlutverki sínu í skemmtiatriði bekkar síns á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1453
Sundlaugarpartý 9. september 2011. Fyrir tíma hitaveitu var sundlauginni lokað strax að skólasundinu loknu og var hún lokuð fram á vor. Þá var oft haldið sundlaugarpartý síðasta daginn áður en hleypt var úr lauginni. Á myndinni eru krakkarnir að skemmta sér þar við partýljós á dimmu septemberkvöldi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1440
Skemmtiatriði á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011. Í atriðinu er verið að gera eitthvert grín að framboðsmálum á Skagaströnd. Frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Árni Halldór Eðvarðsson og Hafþór Smári Gylfason. Í baksýn sér í Dagnýu Marín Sigmarsdóttur og Guðna Má Lýðsson.
Ólafur Bernódusson 1058
Hjónin Hallbjörn J. Hjartarson og Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012). Myndin af þeim var tekin þegar Kántrýbær var vígður eftir endurbyggingu 27. júní 1998. Þau hjón voru eigendur Kántrýbæjar.
Ólafur Bernódusson 1092
Þessi mynd var tekin 14. ágúst 2014 af listamönnum sem héldu blandaða samsýningu í sundlauginni á Skagaströnd. Listamennirnir dvöldu í Nes listamiðstöðinni nema Hrafnhildur Sigurðardóttir sem er í bláum jakka á myndinni. Hún er listamaður en jafnframt í stjórn miðstöðvarinnar. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1325
Myndin var tekin 10. ágúst 2011 þegar þessar konur voru að skreyta Fellsbrautina fyrir Kántrýhátíð næstu daga á eftir. Konurnar á myndinni eru frá vinstri: Súsanna Þórhallsdóttir, Sara Gunnarsdóttir og Lilja Ingólfsdóttir. Allar bjuggu þær við Fellsbrautina á þessum tíma.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1389
Þeir njóta sólarinar á Kántrýhátíð á Hnappstaðatúninu 12. ágúst 2011, Hjalti Hólmar Indriðason með hatt til vinstri og Ómar Jakobsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1423
Myndin var tekin 19. ágúst 2012 af bræðrunum Árna Geir Ingvarssyni til vinstri og Ragnari Smára Ingvarssyni til hægri á ljósmyndasýningu Árna Geirs í íþróttahúsinu. Þá stóð Kántrýhátíð sem hæst og skemmtilegt er að sjá mynd af þeim bræðrum á veggum á milli þeirra.
Ólafur Bernódusson 940
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið Kardimommubærinn í febrúar 1992. Myndin var tekin á æfingu. Á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Ingólfur Bjarnason, Rúnar Jóhannsson og Jón Ingvar Valdimarsson sem léku ræningjana. Þá kemur Elín Njálsdóttir í hlutverki Soffíu frænku. Ekki er vitað hver lék ljónið en Steindór Haraldsson var Bastían bæjarfógeti. Jóney Hrönn Gylfadóttir og Jensína Lýðsdóttir í hlutverkum sínum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1331
Georg Þór Kristjánsson á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1437
Mynd af skemmtiatriði á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011. Leiknir eru starfsmenn Helga Gunnarssonar sem greinilega eru mjög hrifnir af konunni með borðann. Frá vinstri: Árni Halldór Eðvarðsson, Ólafur Bernódusson, Dagný Marín Sigmarsdóttir, Hafþór Smári Gylfason, Guðni Már Lýsson og Þorgerður Þóra Hlynsdóttir.
Ólafur Bernódusson 961
Myndin var tekin á fystru Kántrýhátíðinni 1984. Óþekkt stúlka syngur fyrir gesti við undirleik hljómsveitar. Sviðið var reist í skjóli við bergin við tjaldsvæðið. Slagorðið: "Hið villta vestur er hér" var síðan notað áfram á þeim hátíðum sem haldnar voru næstu ár. Á myndinni má þekkja Önnu Ásgeirsdóttur aftan við Ólaf Magnússon í ljósum jakka í krakkahópnum. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 892
Myndin var tekin á vortónleikum Tónlistarskólans í Hólaneskirkju í maí 1999. Á henni spilar Óðinn Örn Sævarsson lagið sitt á píanó.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1514
16. nóvember er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og þess vegna Dagur Íslenskrar tungu. Þessi mynd var tekin þann dag 2011 á skemmtun Höfðaskóla í Fellsborg. Skólinn helgar þennan dag minningu Elínborgar Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara. Á myndinni frá 2011 eru nokkrir nemendur að lesa texta sem birtist á tjaldi bak við þau. Nemendurnir eru frá vinstri: Freydís Ósk Kristjánsdóttir, Kristmundur Baldvinsson og Jóhann Almar Reynisson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 834
Myndin var tekin 26. júní 2008 í Bjarmanesi. Ekki er vitað um tilefni myndatökunnar en það var greinilega húsfyllir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 786
Myndin var tekin á kántrýhátíð 18. ágúst 2006. Á henni er Einar Ari Einarsson fyrir utan heimili sitt tilbúinn í leiguakstur með frumlegan "rickshaw" en þeir eru algengir á Indlandi og víðar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1295
Myndin var tekin 24. september 2012 þegar fólk á grjóthleðslunámskeiði sækir grjót í skriðuna við Tjörn á Skaga. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Dagný Marín Sigmarsdóttir, Geir Arnarson, Bjarney Ragnhildur Jónsdóttir, Ingvar Gýgjar Sigurðarson, óþekktur leiðbeinandi á námskeiðinu og Ólafur Bernódusson.
Ólafur Bernódusson 908
Börn á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg í febrúar 1999. Börnin eru óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1287
Lárus Ægir Guðmundsson og Elsa Lára Blöndal fara yfir sýningarskrá fyrir sýningu á verkum Sveinbjörns Blöndal (d.7.4.2010) 20. júlí 2011. Sýningin var haldin í íþróttahúsinu á Skagaströnd þar sem sýnd voru fjölmörg og margvísleg verk Sveinbjörns, sem lengst af bjó á Skagaströnd. Á myndinni má sjá nokkur verkanna á sýningunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1376
Hlynur Tryggvason með færi og beitu tilbúinn að taka þátt í dorgveiðikeppni á bryggjunni á Kántrýhátíð 18. ágúst 2012.
Ólafur Bernódusson 969
Myndin var tekin á sjómannadaginn 1983 af kappróðrarsveit, líklega af Örvari HU 21. Ræðararnir eru taldir frá vinstri: Ragnar Högnason, Kári Lárusson, Hjörtur Guðbjartsson, Gunnar Reynisson, Vilhelm Þórarinsson og ?Gestur Arnarson?. Stýrimaðurinn er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1395
Hjónin Sævar Bjarnason og Eygló Guðbjartsdóttir á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011.
Ólafur Bernódusson 1016
Myndin er tekin á frumsýningu á Saumstofunni eftir Kjartan Ragnarsson 1985. Þá var verkið sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í leikstjórn Halldórs Einarssonar Laxness. Á myndinni eru undirleikararnir Kristján Blöndal til vinstri og Fannar Viggósson til hægri.
Ólafur Bernódusson 869
Myndin var tekin í desember 1999 á jólaföndurdegi foreldrafélags Höfðaskóla í skólanum. Á myndinni eru einbeittar í föndrinu Ásthildur Guðmundsdóttir í hvítri peysu og Guðrún Soffía Pétursdóttir í fjóluárri peysu. Milli þeirra situr dóttir Ásthildar, Valgerður Guðmundsdóttir. Við borðið í baksýn stendur Dagbjört Bæringsdóttir.
Ólafur Bernódusson 907
Kátir krakkar á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg í febrúar 1999. Drengurinn með rauðu húfuna er líklega Sigurjón Elí Eiríksson en hin börnin eru óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1038
Systur á Kántrýhátíð 19. ágúst 2006. Íris Fjólmundsdóttir vinstra megin og Steinunn Fjólmundsdóttir hægra megin.
Ólafur Bernódusson 894
Í apríl 1999 var húsnæði Rauða kross deildarinnar á Skagaströnd vígt með pompi og pragt. Myndin sýnir sjúkrabíla utan við húsið. Fyrsti bíll deildarinnar er til hægri en sá til vinstri er líklega bíll númer tvö.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1398
Myndin var tekin í samkomutjaldinu á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011. Mennirnir eru frá vinstri: Guðmundur Jónsson, Magnús B. Jónsson og Ragnar Smári Ingvarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1434
Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) til vinstri og Lýður Hallbertsson til hægri spjalla saman á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011.
Ólafur Bernódusson 984
Hreppsnefndarmennirnir Guðmundur Haukur Sigurðsson til vinstri og Jón Jónsson (d.9.7.1991) til hægri keppa í eggjahlaupi á sjómannadegi 1984. Áhorfendur skemmtu sér vel og bíða eftir að eggin falli úr skeiðunum hjá þeim félögum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1247
Victoría Sif Hólmgeirsdóttir leikur á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23.mars 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1294
Myndin var tekin 24. september 2012 af fólki á námskeiði í grjóthleðslu. Frá vinstri: Geir Arnarson, óþekktur leiðbeinandi námskeiðsins, Barney Ragnhildur Jónsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Ingvar Gýgjar Sigurðarson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1631
Myndin var tekin 11. júní 2011 í Kántrýbæ. Á henni eru Lárus Ægir Guðmundsson til vinstri og Friðrik Pálsson til hægri. Tilefni myndatökunnar var að sendiherra Bandaríkjanna kom og heiðraði Hallbjörn Hjartarson fyrir framlag hans til Kántrýtónlistar á Íslandi.
Guðrún Þórbjarnardóttir033
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni dansar Jón við konu sína Þorbjörgu Halldórsdóttur (d.30.6.1970) í tilefni af gullbrúðkaupi þeirra. Dansinn fór fram í veislu sem haldin var í Skátaskálanum 1967.
Ólafur Bernódusson 891
Myndin var tekin á vortónleikum Tónlistarskólans í Hólaneskirkju í maí 1999. Tónlistarmennirnir eru, frá vinstri: Björn Viðar Jóhannsson, Eyþór Kári Egilsson og séra Guðmundur Karl Brynjarsson kennari þeirra. Lengst til hægri sér í Skarphéðinn Einarsson skólastjóra Tónlistarskóla A-Hún.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1257
Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir heldur á dóttur sinni Emelíu Marey Einarsdóttur í fanginu í Kjalarlandsrétt 8. september 2012 þegar réttarstörf stóðu sem hæst.
larus085
Framkvæmdir við Hólaneskirkju skoðaðar 10. október 1989. Frá vinstri: séra Ægir Fr. Sigurgeirsson, baksvipur Gunnars Einarssonar innanhússarkitekts, Örnólfur Hall arkitekt, Helgi Gunnarsson verktaki við byggingu kirkjunnar og Páll Þorfinnsson (d..1.9.1993) rafverktaki við bygginguna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1489
Andrea Kasper bjó á Skagaströnd um árabil. Hún var lærður dansari og samdi dans sem hún sýndi 19. október 2011 í kjallaranum í gamla kaupfélaginu, sem þá stóð auður. Þrjár ungar stúlkur dönsuðu með Andreu en þeim var öllum vel fagnað af áhorfendum að honum loknum. Á myndinni sjást þrír dansarar. Andrea sem er næst okkur, Guðrún Anna Halldórsdóttir hægra megin og Sigurlaug Máney Sæmundsen til vinstri. Auk þeirra dansaði Sigubjörg Katla Valdimarsdóttir en hún sést ekki á myndinni
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1373
Vatnsrennibraut í brekkunni við íþróttavöllinn 11. ágúst 2011. Tilefnið var að vinnuskólinn var að ljúka störfum þetta sumarið. Dagana á eftir fór fram Kántrýhátíð á Skagaströnd með tilheyrandi skreytingum gatna og almennri gleði. Krakkarnir í brautinni eru frá vinstri: Auðunn Árni Þrastarson, Ingólfur Eðvald Björnsson, Benóný Bergmann Sæmundsen, Ólafur Halldórsson, Rakel Elvarsdóttir, Karen Elvarsdóttir, Pétur Atli Árnason og Birgitta Rut Bjarnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1253
Áhugasamir áhorfendur á aðalæfingu á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012. Í aftari röðinni eru frá vinstri: Auðunn Árni Þrastarson, Elín Ósk Björnsdóttir, Arnrún Ösp Guðjónsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Jóna Margrét Sigurðardóttir og óþekkt. Fremri röð frá vinstri: Birgitta Rut Bjarnadóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Sunna Steingrímsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Benóný Bergmann Sæmundsen og Laufey Lind Ingibergsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 950
Umf Fram stóð fyrir reiðhjólakeppni um bæinn í nokkur vor undir stjórn Lárusar Ægis Guðmundssonar. Á myndinni, sem tekin var vorið 1981 eða 1982, er Lárus að afhenda sigurvegurum í sínum flokki viðurkenningarskjöl sín. Frá vinstri: Arnar Haukur Ómarsson?, Brynjar Pétursson og Guðmundur Henry Stefánsson.
Ólafur Bernódusson 895
Myndin var tekin í apríl 1999 þegar húsnæði Rauðakross deildarinnar á Skagaströnd var vígt. Á myndinni er fólkið sem var í stjórn deildarinnar á þeim tíma. Frá vinstri: Jensína Lýðsdóttir, Ása Jóhannsdóttir, Björn Ingi Óskarsson, Pétur Eggertsson formaður og Kristján Kristjánsson (d.10.10.2007).
Ólafur Bernódusson 1074
Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir og Haraldur Guðjónsson kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1652
Ian Witting sendiherra Breta á Íslandi kom í heimsókn til Skagastrandar sumarið 2011. Á myndinni er hann, í blárri skyrtu, staddur á skrifstofu fiskmarkaðarins að kynna sér starfsemi hans. Aðrir á myndinni eru Jón Ólafur Sigurjónsson, út við gluggann, Ólafía Lárusdóttir við hlið Ians, Reynir Lýðsson framkvæmdastjóri markaðarins og Péturína Laufey Jakobsdóttir kona hans.
Helgi Gunnarsson 35
Hjónin Helgi Gunnarsson verktaki og Alda Ragnheiður Sigurjónsdóttir á góðum degi, 15. mars 1998, þegar íþróttahúsið var vígt. Helgi sá um byggingu hússins.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1630
11. júní 2011 kom sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í Kántrýbæ og heiðraði Hallbjörn Hjartarson fyrir framlag hans til kántrýtónlistar á Íslandi. Við það tækifæri afhenti Ólafur Thorarensen Hallbirni veglegan indíána höfuðbúnað að gjöf, Á myndinni er Hallbjörn til vinstri og Ólafur til hægri á sviðinu í Kántrýbæ.
Ólafur Bernódusson 1085
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 20. maí 2015 í Fellsborg. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir árið 2000. Þau eru, frá vinstri: Sigurður Hreiðarr Björgvinsson kennari, Viktor Már Einarsson, Rebekka Róbertsdóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Sonja Albertsdóttir, Arnrún Ösp Guðjónsdóttir, Georg Kristjánsson, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Victoría Sif Hólmgeirsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir og Jóna Margrét Sigurðardóttir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1199
Tveir kirkjunnar menn á spjalli í Hólaneskirkju 5. desember 2010 eftir aðventukvöld þar. Steindór Haraldsson meðhjálpari til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson sóknarnefndarformaður til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1429
Birkir Rafn Gíslason gítarleikari spilar á hljóðfæri sitt á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011.
1
…
80
81
82
…
104
Leita í myndasafninu
Leita