Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 1000
Þórarinn Eldjárn les úr verkum sínum í kjallara Fellsborgar haustið 1984.
Ólafur Bernódusson 895
Myndin var tekin í apríl 1999 þegar húsnæði Rauðakross deildarinnar á Skagaströnd var vígt. Á myndinni er fólkið sem var í stjórn deildarinnar á þeim tíma. Frá vinstri: Jensína Lýðsdóttir, Ása Jóhannsdóttir, Björn Ingi Óskarsson, Pétur Eggertsson formaður og Kristján Kristjánsson (d.10.10.2007).
Ólafur Bernódusson 1085
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 20. maí 2015 í Fellsborg. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir árið 2000. Þau eru, frá vinstri: Sigurður Hreiðarr Björgvinsson kennari, Viktor Már Einarsson, Rebekka Róbertsdóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Sonja Albertsdóttir, Arnrún Ösp Guðjónsdóttir, Georg Kristjánsson, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Victoría Sif Hólmgeirsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir og Jóna Margrét Sigurðardóttir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1429
Birkir Rafn Gíslason gítarleikari spilar á hljóðfæri sitt á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1431
Ungir menn á svölunum á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011 taka þátt í fjöldasöng. Frá vinstri: Ragnar Már Björnsson, Stefán Velemir, Sigurjón Elí Eiríksson, Sæþór Bragi Ágústsson og Ernst Guðni Hólmgeirsson.
Ólafur Bernódusson 888
Myndin var tekin á vortónleikum Tónlistarskólans í Hólaneskirkju í maí 1999. Á henni spilar María Markovic á fiðluna sína við undirleik Michael Jones kennara á píanó.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1441
Myndin var tekin á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011. Greinilegt að fólk í salnum skemmtir sér vel yfir skemmtiatriðunum á sviðinu.
Ólafur Bernódusson 948
Umf Fram stóð fyrir reiðhjólakeppni um bæinn í nokkur vor undir stjórn Lárusar Ægis Guðmundssonar. Á myndinni, sem tekin var vorið 1981 eða 1982, er Lárus að afhenda sigurvegurum í einum flokknum viðurkenningarskjölin sín. Strákarnir eru frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Stefán Ægir Lárusson og Viggó Magnússon.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1142
Ester Ösp Víðisdóttir og Sindri Jóelsson tilbúin í rafting á Austari- og Vestari Jökulsá í Skagafirði 18. ágúst 2004.
Ólafur Bernódusson 988
Myndin var tekin 22. september 1983 þegar Landsbankaútibúið á Skagaströnd var opnað formlega. Þá var reyndar liðið u.þ.b. eitt ár frá því að Landsbankinn yfirtók starfssemi Sparisjóðs Skagastrandar. Fólkið á myndinni er frá vinstri: óþekkt, Pálmi Jónsson (d.9.10.2017) Alþingismaður og ráðherra, Stefán Guðmundsson (d.10.9.2011) Alþingismaður, Jón S. Pálsson, Jón Ingi Ingvarsson, Karl Berndsen (d.12.2.1995), óþekktur og Bjarney Valdimarsdóttir .
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1344
Krakkarnir og verkstjórarnir í vinnuskólanum héldu upp á sumarlokin hjá þeim 11. ágúst 2011 með grillveislu sunnan við Fellsborg. Á myndinni eru frá vinstri: Elvar Geir Ágústsson, Indriði Theódór Hjaltason, Aron Snær Fannarsson, Róbert Björn Ingvarsson og Alex Már Gunnarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1520
16. nóvember er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og þess vegna Dagur Íslenskrar tungu. Þessi mynd var tekin þann dag 2011 á skemmtun Höfðaskóla í Fellsborg. Skólinn helgar þennan dag minningu Elínborgar Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara. Á myndinni eru nokkrir nemendur að spila og syngja atriði síns bekkjar. Frá vinstri: Elín Ósk Björnsdóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Rebekka Heiða Róbertsdóttir, Viktor Már Einarsson, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Sigurður Aron Björnsson, Jóhannes Hólmar Sigurpálsson, óþekkt og Victoría Sif Hólmgeirsdóttir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1511
Myndin var tekin 16. nóvember 2011 í þokusudda þegar unnið var við niðurrif á olíutanki Olís við Höfðann. Mennirnir eru óþekktur vinnuvélastjórnandi til vinstri og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) umboðsmaður Olís á Skagaströnd til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1219
Tombóla utan við búðina 1. júlí 2011. Krakkarnir á myndinni hafa lagt á sig að ganga í hús og biðja fólk um að gefa sér hluti á tombólu. Gjarnan fær svo Rauði krossinn ágóðan af slíkum fyrirtækjum. Á myndinni eru frá vinstri: bræðurnir Sindri Freyr Björnsson og Sigurður Aron Björnsson, óþekktur, Ingólfur Eðvald Björnsson og standandi er Stefanía Stefánsdóttir. Ef þú þekkir óþekkta strákinn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1699
Þessir krakkar, nemendur Höfðaskóla, voru að undirbúa sundlaugarpartý þegar myndin var tekin 3. september 2010. Krakkarnir eru frá vinstri: Alma Vignisdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Sigurlaug Máney Sæmundsen og Erna Ósk Björgvinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1402
Brekkusöngur að fara að hefjast í hólunum neðan við stjórnsýsluhúsið 12. ágúst 2011 á Kántrýhátíð. Fólkið er frá vinstri: Helga Dögg Jónsdóttir, Árni Geir Ingvarsson, Ragnar Smári Ingvarsson, Einar Guðmundsson, Anna Sjöfn Jónasdóttir og Bernódus Óli Einarsson. Litla stúlkan við hlið Önnu Sjafnar er dóttir hennar, Þórhildur Lilja Einarsdóttir.
Ólafur Bernódusson 1070
Myndin var tekin 1. nóvember 2013 í dæluhúsi hitaveitunnar á Skagaströnd þegar veitan var formlega vígð. Á henni er sveitastjórnafólk, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Jensína Lýðsdóttir, Péturína Jakobsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson öll úr hreppsnefnd á Skagaströnd. Lengst til hægri er Valgarður Hilmarsson bæjarstjórnarmaður á Blönduósi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1589
Guðbjörg Eiríksdóttir flytur ræðu dagsins í Hólaneskirkju á sjómannadegi 2. júní 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1192
Myndin var tekin á aðventukvöldi í Hólaneskirkju 5. desember 2010 af kór kirkjunnar. Fremsta röð frá vinstri: Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Ásdís Birta Árnadóttir, sem söng með kórnum þetta kvöld, Elva Dröfn Árnadóttir, Guðrún Sigurðardóttir og Hjördís Sigurðardóttir. Miðröð frá vinstri: Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018), Bára Þorvaldsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Lilja Ingólfsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Sigurjón Guðbjartsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Sigurður Bjarnason, Ólafur Bernódusson, Trostan Agnarsson og Hafþór Gylfason. Stjórnandi kórsins, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, spilar undir á píanó.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1530
10. ágúst 2012 var Ólafur Bernódusson með götusölu utan við verslunin Samkaup í samvinnu við tvo af afastrákunum sínum. Þeir buðu upp á kæstan hákarl, nýbakað rúgbrauð, rabbarbarasafa og nýtínd krækiber. Salan gekk ágætlega þó að hún hafi aðallega verið haldin til gamans og til að krydda mannlífið þennan blauta ágústdag. Á myndinni eru frá vinstri: Ólafur Halldórsson, Ingvar Gýgjar Sigurðsson, Páll Halldórsson og Ólafur Bernódusson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 97
Myndin var tekin í sjómannadagspartýi heima hjá Stefáni Jósefssyni útgerðarmanni Ólafs Magnússonar HU 54. Á myndinni stikar Jón Gunnar Jósefsson aftast en í sófanum sitja frá vinstri: Snorri Gíslason (d.29.5.1994), Guðmundur J. Björnsson og Rúnar Jósefsson.
Ólafur Bernódusson 981
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 1983 þegar verið var að syngja og dansa kringum jólatréð. Upp við vegginn eru kennararnir Magnús B. Jónsson í köflóttri peysu og Guðmundur Haukur Sigurðsson með gleraugu. Nemendurnir eru frá vinstri: Valdimar Númi Hjaltason, Guðmundur Óskarsson ?, Kristjana Jónsdóttir, Jón Arnarson (nær), Jóhann Ásgeirsson (fjær), tveir óþekktir, Svava Sigurðardóttir, Óli Hjörvar Kristmundsson (næst) Baldvin Sveinsson (í miðið), Davíð Reynisson (fjærst), Magnús kennari, Rafn Ingi Rafnsson, Sigurbjörn Kristjánsson með jólahúfu, Þorlákur Sveinsson, Stefán Ægir Lárusson, óþekktur, Arnar Erlingsson, Ingvi Sveinn Eðvarðsson og Guðmundur kennari. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1629
Á þorrablóti 4. febrúar 2012. Leikhópurinn segir frá, á sinn hátt, þegar sendiherra Bandaríkjanna kom og heiðraði Hallbjörn Hjartarson fyrir framlag hans til kántrýtónlistar á Íslandi. Halldór Gunnar Ólafsson leikur Hallbjörn til vinstri og Hafþór Gylfason sendiherrann til hægri. Áhorfendur í bakgrunni eru leiknir af, frá vinstri: Árni Halldór Eðvarðsson, María Ösp Ómarsdóttir, Trostan Agnarsson, Elva Dröfn Árnadóttir, Guðni Már Lýðsson og Þorgerður Þóra Hlynsdóttir.
Ólafur Bernódusson 1026
Sævar Rafn Hallgrímsson kemur að landi á bát sínum Hafgeiri HU 121 í september 1998 með fullfermi enda Hafgeir vel siginn á sjónum. Sævar var mikill fiskimaður og hlóð stundum Hafgeir svo mjög að mönnum leist ekki á blikuna.
Ólafur Bernódusson 962
Myndin var tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni sem haldin var 1984. Þá hafði verið komið fyrir tvöfaldri "svifbraut" milli bergjanna við tjaldsvæðið. Svifbrautin naut mikilla vinsælda meðal krakkanna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1415
Frændurnir Árni Geir Ingvarsson til vinstri og Halldór Gunnar Ólafsson til hægri á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011.
Ólafur Bernódusson 939
Hólaneskirkja eldri rifin 24. febrúar 1992. Kirkjan var byggð 1925 og þjónaði því söfnuðinum í 67 ár.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1555
Myndin var tekin utan við Hofskirkju 24. apríl 2011 að lokinni messu þar. Á myndinni eru frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Sveinn Sveinsson bóndi á Tjörn, Hafþór Gylfason, Aldís Embla Björnsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson og Hrafnhildur Jóhannsdóttir.
Ólafur Bernódusson 1039
Á ágústkvöldi 1998 drógu félagarnir, Guðmundur J. Björnsson og Ólafur Bernódusson, hnúfubak til lands á bát sínum Benna Ólafs Hu. Myndin var tekin morguninn eftir þegar þeir félagar voru að undirbúa að draga hvalinn upp í fjöru. Guðmundur stendur á lunningunni en hjá honum er dóttir hans Kristbjörg Una Guðmundsdóttir. Eins og sjá má var hvalurinn álíka langur og báturinn.
Ólafur Bernódusson 868
Myndin var tekin í desember 1999 á jólaföndurdegi í Höfðaskóla. Fólkið á myndinni eru vinstri: óþekktur, Dóra Jónasdóttir, Linda Björk Ævarsdóttir, Ásthildur Guðmundsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir og Dagbjört Bæringsdóttir.
Ólafur Bernódusson 1091
10. apríl 2014 var haldin kynning á því merka riti, Flateyjarbók, í Rannsóknarsetri HÍ á Skagaströnd. Um kynninguna sá Svanhildur Gunnarsdóttir en hún var safnakennari hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hún sýndi líka áhöld og efni sambærileg við það sem notað var við ritun Flateyjarbókar. Á myndinni er hluti gesta á kynningunni. Lengst til vinstri er Svanhildur en aðrir á myndinni eru, frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Signý Richter, Jóhannes Torfason, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Herdís Jakobsdóttir. Næst okkur sitja: Trostan Agnarsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Guðmundur Ólafsson og Silfá Sjöfn Árnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1478
Myndin var tekin í félagsheimilinu á Blönduósi 10. nóvember 2011 á tónleikum. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Skarphéðinn Einarsson, Haukur Ásgeirsson, Helga Dögg Jónsdóttir og Benedikt Blöndal.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1472
Kleinubakstur í fullum gangi í kennslueldhúsinu í Höfðaskóla 28. september 2011. Kleinurnar voru síðan seldar til ágóða fyrir skólafélagið Rán svo unglingarnir kæmust í skólaferðalag til útlanda. Litla stúlkan á myndinni er Klara Ósk Hjartardóttir að aðstoða móður sína Vigdísi Ómarsdóttur. Strákurinn í grænu peysunni er sonur Vigdísar, Aron Breki Hjartarson. Konan með röndóttu svuntuna er Þorgerður Þóra Hlynsdóttir en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Sigurður Bjarnason - safn 058
Myndin var tekin 1. september 2001 í 90 ára afmæli Rósu Pálsdóttur (d. 1.5.2002) sem haldið var í Kántrýbæ. Á myndinni eru börn Rósu og barnabörn að syngja fyrir hana en þau eru öll mjög gott söngfólk. Frá vinstri: Sigurður Bjarnason en bak við hann sér í Sævar Bjarnason, Anna Bjarnadóttir, Ragna Bjarnadóttir, Sigrún Lárusdóttir kona Sigurðar, Inga Lára Sigurðardóttir og Svava Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1287
Lárus Ægir Guðmundsson og Elsa Lára Blöndal fara yfir sýningarskrá fyrir sýningu á verkum Sveinbjörns Blöndal (d.7.4.2010) 20. júlí 2011. Sýningin var haldin í íþróttahúsinu á Skagaströnd þar sem sýnd voru fjölmörg og margvísleg verk Sveinbjörns, sem lengst af bjó á Skagaströnd. Á myndinni má sjá nokkur verkanna á sýningunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1376
Hlynur Tryggvason með færi og beitu tilbúinn að taka þátt í dorgveiðikeppni á bryggjunni á Kántrýhátíð 18. ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1713
Viggó Brynjólfsson fær sér kaffibolla áður en hann fer að spila fyrir dansi á harmonikuna sína í jóla-barnaballi Lions í Fellsborg 26.desember 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1315
Árni Geir Ingvarsson hengir upp ljósmyndir sínar 14. ágúst 2012 fyrir sýningu í íþróttahúsinu. Á sýningunni, sem stóð í nokkra daga og var fjölsótt, sýndi Árni myndir úr mannlífinu á Skagströnd.
Ólafur Bernódusson 930
Örvar HU 2, áður Blængur NK 117, kom í fyrsta sinn til heimahafnar á Skagaströnd á Þorláksmessu 1998. Þá var öllum boðið að skoða skipið og þiggja kaffiveitingar. Myndin var tekin í borðsalnum af hluta fólks sem þáði boðið. Guðrún Soffía Pétursdóttir er lengst til vinstri. Maðurinn í hvítu stuttermaskyrtunni er Sigurbjörn Björgvinsson matsveinn, Sólrún Ólína Sigurðardóttir er í blárri úlpu, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir er í gulri úlpu og Hjörtur Guðmundsson situr við borðið með son sinn í fanginu. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1484
Krakkarnir í Höfðaskóla héldu íþróttamaraþon til fjáröflunar 25.mars 2011. Þá stunduðu krakkarnir hinar ýmsu íþróttir stanslaust í heilan sólarhring. Á myndinni hvílast nokkrir krakkar milli leikja. Standandi er Páll Halldórsson en í sófanum eru frá vinstri: Lilja Svandís Hallgrímsdóttir, Rakel Jensína Jónmsdóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Aron Breki Hjartarson, Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, Eva Dögg Björgvinsdóttir og Ásdís Birta Árnadóttir
Barnaból - safn602
María Gret Gunnarsdóttir í 30 ára afmæli leikskólans Barnaból 6. júlí 2007.
Ólafur Bernódusson 924
Myndin var tekin á Þorláksmessu 1998 í árlegri skötuveislu togaramanna í Fellsborg. Á borðinu næst okkur má þekkja Skafta Fanndal Jónasson (d.2.9.2006) í blárri peysu. Sonur hans Jónas Skaftason (d.17.11.2017) situr við hlið hans en gráhærða konan við borðið er kona Skafta og móðir Jónasar, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003). Aðrir sem þekkja má á myndini eru Hrólfur Pétursson, María Magnúsdóttir og Óskar Þór Kristinsson og e.t.v. fleiri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1480
Myndin var tekin 9. mars 2011 á öskudegi. Stúlkurnar í búningunum eru, frá vinstri: Hekla Guðrún Þrastardóttir, Freyja Dís Jóhannsdóttir, Bylgja Hrund Ágústsdóttir og Arna Rún Arnarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1380
11. ágúst 2011, í byrjun Kántrýhátíðar, fengu krakkar að leika sér í vatnsrennibraut sem komið var fyrir í brekkunni við íþróttavöllinn. Vatnið var tekið úr brunahana og þess vegna ískalt en veðrið var mjög gott, sól og hlýindi. Krökkunum á myndinni er þó greinilega skítkalt eftir að hafa farið salibunu í brautinni. Krakkarnir eru Ólafur Halldórsson og Hekla Guðrún Þrastardóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1700
Myndin var tekin í gospelmessu í Hólaneskirkju 23. október 2010. Aukinn kirkjukór syngur syngur af hjartans list undir stjórn Óskars Einarssonar sem situr við píanóið. Húsfyllir var í kirkjunni þetta kvöld.
Ólafur Bernódusson 1015
Myndin er tekin á frumsýningu á Saumstofunni eftir Kjartan Ragnarsson 1985. Þá var verkið sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í leikstjórn Halldórs Einarssonar Laxness. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Magnús B. Blöndal (d.7.9.2001) og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1364
Myndin var tekin í íþróttahúsinu 12. október 2012 á danssýningu nemenda í Höfðaskóla undir stjórn Köru Arngrímsdóttur danskennara. Börnin í fremstu röðinni eru frá vinstri: Þórunn Sif Hólmgeirsdóttir, Arnrún Hildur Hrólfsdóttir, Gunnar Andri Elvarsson, Óðinn Örn Gunnarsson og Ísabella Líf Tryggvadóttir.
Ólafur Bernódusson 921
Myndin var tekin í febrúar 1999 þegar Kristín Helga Gunnarsdóttir skáld er að árita bækur fyrir krakka úr Höfðaskóla eftir að hafa lesið upp fyrir þau á vegum átaksins "Skáld í skólum". Kristbjörg Una Guðmundsdóttir er lengst til hægri, Rósa Björg Einarsdóttir er í rauðri peysu og aftan við hana er Sonja Hjördís Berndsen. Sú sem snýr baki í okkur er óþekkt.
Ólafur Bernódusson 896
Pétur Eggertsson formaður Rauðakross deildar Skagastrandar flytur ávarp þegar húsnæði deildarinnar var tekið í notkun í apríl 1999.
Ólafur Bernódusson 911
Í febrúar 1999 var haldið gönguskíðanámskeið fyrir elstu nemendur Höfðaskóla. Námskeiðið fór fram á snævi þöktum íþróttavellinum. Á myndinni eru nokkrir krakkar að stíga sín fyrstu skref á gönguskíðunum. Krakkarnir eru óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 997
Sonja Sif Ólafsdóttir leikur á flautu á Garginu, sem var söngvakeppni Höfðaskóla. Myndin var tekin 6. mars 2008 í Fellsborg.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1412
Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) til vinstri og Lárus Árnason (d.21.5.2011) kátir á þorrablóti í Sæborg 21. janúar 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1414
Á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011. Hjónin Guðbrandur Magnússon og Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir spjalla við Sigríði Ólínu Sigurðardóttur, sem er á milli þeirra.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1424
Þráinn Bessi Gunnarsson á vélfáki sínum 19. ágúst 2012 en þá stóð yfir Kántrýhátíð á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1463
Sigursteinn Guðmundsson (d.20.4.2016) læknir og sambýliskona hans Kristin Ágústsdóttir sitja hjá Aðalbjörgu Ingvarsdóttur í samkvæmi á vegum Lionklúbbs Skagastrandar í Fellsborg 26. febrúar 2011.
Helgi Gunnarsson 34
15. mars 1998 var íþróttahúsið vígt með viðhöfn. Á myndinni er Adolf H. Berndsen oddviti í ræðustól en faðir hans, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), er á leið úr stólnum eftir að hafa flutt hamingjuóskir og afhent gjöf frá Olís.
Ólafur Bernódusson 933
Þessi tvö voru hluti af hópi leikskólabarna sem komu í kirkjuna með jólagjafir handa fátækum í söfnunina " Brostu" í desember 1998. Indriði Theódór Hjaltason til vinstri og Eva Dís Gunnarsdóttir til hægri.
Barnaból - safn431
Starfskonur Barnabóls fóru í heimsókn til Kragerö í Noregi vorið 2008. Þar heimsóttu þær og skoðuð leikskóla sem var undir stjórn fyrrverandi leikskólastjóra Barnabóls, Láru Bylgju Guðmundsdóttur. Þessi mynd var tekin af hópnum 26. apríl 2008 í Noregi. Frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri Barnabóls, Ragnheiður Alda Sigurjónsdóttir, Guðlaug Grétarsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Ásthildur Gunnlaugsdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1570
Myndin var tekin á jóla-barnaballi Lions í Fellsborg 26. desember 2011. Gengið kringum jólatréð og sungið með jólasveinunum,
Ólafur Bernódusson 1006
Myndin var tekin á öldungamóti USAH á Skagastrandarvelli 1983. Á henni stekkur Jón Ingi Ingvarson langstökk. Hjörtur Guðmundsson er með hrífuna. Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) (með gleraugu) heldur í málbandið. Strákurinn í hvítu treyjunni er Gunnar Halldór Hallbjörnsson en bak við hann er Ingibergur Guðmundsson og tveir óþekktir. Lengst frá með svart hár og skegg er Jón Gunnar Jósefsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
1
…
81
82
83
…
104
Leita í myndasafninu
Leita