Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Bjarni Jónsson 1
Mynd eftir Bjarna Jónsson á jólakorti, ekki er vitað hvenær hann gerði myndina. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 95
Myndin var tekin í sjómannadagspartýi heima hjá Stefáni Jósefssyni útgerðarmanni Ólafs Magnússonar HU 54. Á henni eru, frá vinstri: hjónin Súsanna Þórhallsdóttir og Rúnar Jósefsson. Hjá þeim, lengst til hægri, situr Guðjón Pálsson (Dúi) (d.14.12.1989).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1615
Nýsmíðað sumarhús sett á dráttarvagn til flutnings frá trésmíðaverkstæði Helga Gunnarssonar út að Tjörn á Skaga, þar sem því var komið fyrir. Myndin var tekin 26. maí 2011.
Ólafur Bernódusson 1001
Myndin var tekin í Höfðaskóla 1985 í viku þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendurnir völdu sér vinnusmiðjur til að vera í. Á þessari mynd er málun og sköpun í gangi. Krakkarnir eru frá vinstri: ?Guðrún Elsa Helgadóttir?, María Gunnarsdóttir (fjærst), óþekkt, Þóra Ágústsdóttir með pensil á lofti. Hægra megin við borðið eru frá vinstri: Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Ásta Ósk Ásgeirsdóttir og Sigurbjörg Jónasdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1579
Flugeldasala björgunarsveitarinnar Strönd og umf Fram 29. desember 2011. Afgreiðslumennirnir eru frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson, Stefán Sveinssaon og Eiríkur Lýðsson. Barnið er líklega sonur Stefáns, Daði Snær Stefánsson.
Ólafur Bernódusson 1055
Vígsla nýja Kántrýbæjar fór fram 27. júní 1998. Eitt af skemmtiatriðunum við það tækifæri var að nokkrar konur úr kántrýdansaflokki á Skagaströnd sungu fyrir gesti. Drífa Kristjánsdóttir spilar á gítarinn en standandi eru frá vinstri: Linda Björk Ævarsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Vigdís Viggósdóttir og Kristín Blöndal Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1653
Myndin var tekin 6. mars 2012 þegar nemendur Höfðaskóla léku leikritið Latibær í Fellsborg. Leikararnir eru: yst til vinstri Rakel Jensína Jónsdóttir ofar og Guðrún Rós Hjaltadóttir neðar. Fyrir miðju frá vinstri: Eva Ósk Björgvinsdóttir, ?Birta Dögg Bessadóttir?, Heba Líf Jónsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen og Aldís Embla Björnsdóttir. Til hægri er Aron Breki Hjartarson ofar og óþekktur neðar. Á sviðsbrúninni situr Aron Snær Fannarsson. Ef þú þekkir óþekkta leikarann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 983
"Svona gerum við þegar...." sungið og leikið á litlu jólum 1983 í Höfðaskóla. Krakkarnir eru frá vinstri: Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Pálína Harðardóttir, Bergþóra Birgisdóttir, Laufey Vilmundardóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir, Inga Kristjánsdóttir og tvö óþekkt. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Helgi Gunnarsson 28
Rolf Árnason (d.3.6.2014) tæknifræðingur sveitarfélagsins til vinstri og Helgi Gunnarsson verktaki til hægri fagna með veisluföngum í reisugilli íþróttahúsinu sumarið 1997.
Skagaströnd - safn512
Eldri borgarar gerðu sér glaðan dag 4. desember 1998 og skelltu sér á jólahlaðborð í Kántrýbæ. Þá var þessi mynd tekin. Til vinstri er Hrefna Hákonardóttir (d.14.3.2011). Hægra megin við borðið eru, talið frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010), Birna Jónsdóttir Blöndal (d.26.10.2018) kona hans, Guðný Hjartardóttir (d.14.3.2011) og Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) bróðir hennar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1519
16. nóvember er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og þess vegna Dagur Íslenskrar tungu. Þessi mynd var tekin þann dag 2011 á skemmtun Höfðaskóla í Fellsborg. Skólinn helgar þennan dag minningu Elínborgar Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara. Á myndinni eru nokkrir nemendur að flytja atriði síns bekkjar. Krakkarnir eru frá vinstri: Páll Halldórsson, Anton Þór Einarsson, Birkir Freyr Gunnarsson, María Jóna Jónasdóttir, óþekkt og Eymundur Lórens Grétarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1494
23. október 2011 var haldið upp á 20 ára vígsluafmæli Hólaneskirkju með hófi í Fellsborg eftir messu í kirkjunni. Myndin var tekin í hófinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1527
Victoría Sif Hólmgeirsdóttir nýtur veiting á Elíborgardegi Höfðaskóla í Fellsborg 16. návember 2011.
Ólafur Bernódusson 1073
Kristmundur Baldvinsson og Dagný Dís Bessadóttir kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Bjarni Jónsson 4
Bjarni Jónsson gerði mikið af myndum á jólakort og þá var rjúpan vinsælt viðfangsefni hjá honum. Þetta er ein af þeim myndum, sem hann gerði 1981. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson 1037
Friðvin Ingi Ernstsson Berndsen skoðar hnúfubak sem dregin var til hafnar á Skagaströnd á Benna Ólafs Hu í ágúst 1998. Bægslin á hnúfubak eru mjög stór og gjarnan eru á þeim stórir hrúðurkarlar eins og líka má sjá á trjónu hvalsins.
Ólafur Bernódusson 1052
Tónlistarmennirnir Pálmi Gunnarsson og Magnús Eiríksson leiða brekkusöng í hólunum fyrir vestan stjórnsýsluhúsið á Kántrýhátíð í ágúst 1998.
Helgi Gunnarsson 29
Myndin var tekin sumarið 1997 í reisugilli íþróttahússins af starfsmönnum Helga Gunnarssonar sem sá um að byggja húsið. Mennirnir eru, frá vinstri: Baldvin Hjaltason, Rúnar Kristjánsson, Björn Sigurðsson, Rolf Árnason (d.3.6.2014), Hrólfur Pétursson, Helgi Gunnarsson verktaki, Sigurjón Karlsson, Einar Gunnarsson, Gunnar Dór Karlsson, Árni Max Haraldsson (fjær), Sigurður Björnsson (nær), óþekktur, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011), Gunnar Helgason, Magnús Hjaltason og Hjörtur Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson 999
Haustið 1984 komu skáldin Þórarinn Eldjárn og Olga Guðrún Árnadóttir í heimsókn og lásu úr verkum sínum í kjallara Fellsborgar. Á myndinni hlusta Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Olga Guðrún á Þórarinn lesa úr verkum sínum. Elínborg er nær okkur á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1656
Hjónin Jón Ólafur Sigurjónsson og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir spila og syngja í Hólaneskirkju 23. júní 2011. Meðal áheyrenda í kirkjunni var Jan Witting sendiherra Breta á Íslandi.
Ólafur Bernódusson 1057
Myndin var tekin við vígslu nýja Kántrýbæjar 27. júní 1998 af fjölskyldu Hallbjörns J. Hjartarsonar eiganda bæjarins. Frá vinstri: Hallbjörn J. Hjartarson, Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012) kona hans, Svenný H. Hallbjörnsdóttir, Gunnar Sveinn Halldórsson maður hennar, Kenny A. Hallbjörnsdóttir, Ómar Sigurbjörnsson maður hennar og Grétar Smári Hallbjörnsson. Tónlistarmennirnir í baksýn eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1086
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 20. maí 2015 í Fellsborg. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir árið 1999. Þau eru, fremri röð frá vinstri: Linda Rún Einarsdóttir, Sæunn Ósk Steingrímsdóttir og Guðrún Hjaltey Hallgrímsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Páll Halldórsson, Anton Þór Einarsson, Trostan Agnarsson kennar, Birkir Gunnarsson og Eymundur Lórens Grétarsson.
Ólafur Bernódusson 1075
Freydís Kristjánsdóttir og Daði Snær Stefánsson kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 109
Hjónin Kristín Jónsdóttir og Ragnar Smári Ingvarsson við jólaborðið. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 1017
Myndin er tekin á frumsýningu á Saumstofunni eftir Kjartan Ragnarsson 1985. Þá var verkið sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í leikstjórn Halldórs Einarssonar Laxness. Á myndinni er Halldór með blómvönd að lokinni sýningunni en hjá honum eru Fannar Viggósson undirleikari og Guðmunda Ólafsdóttir hvíslari.
Ólafur Bernódusson 1041
Myndin var tekin á Kántrýhátíð í ágúst 1998. Sviðið á Hnappstaðatúninu og gestir að fylgjast með skemmtiatriðum.
Barnaból - safn432
Starfskonur Barnabóls fóru í heimsókn til Kragerö í Noregi vorið 2008. Þar heimsóttu þær og skoðuð leikskóla sem var undir stjórn fyrrverandi leikskólastjóra Barnabóls, Láru Bylgju Guðmundsdóttur. Þessi mynd var tekin af þeim Guðbjörgu Viggósdóttur nær okkur og Kristínu Kristmundsdóttur fjær, í ferðinni.
Ólafur Bernódusson 1080
Hópur bekkjarfélaga í framkalli eftir að hafa sýnt skemmtiatriði sitt á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017. Frá vinstri: Freydís Kristjánsdóttir, Dagur Freyr Róbertsson, Daði Snær Stefánsson, Dagný Dís Bessadóttir, Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir, Jóhann Almar Reynisson, Kristmundur Baldvinsson, Haraldur Guðjónsson og Pascal Gruenberger.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1381
11. ágúst 2011, í byrjun Kántrýhátíðar, var komið fyrir vatnsrennibraut í brekkunni við íþróttavöllinn. Vatnið var tekið úr brunahana og var því ískalt. krakkarnir nutu sín þó sannarlega og skemmtu sér vel. Á myndinni eru nokkur þeirra eftir að hafa farið nokkrar salibunnur. Frá vinstri: Dagur Freyr Róbertsson, Viktor Már Einarsson, Birkir Freyr Gunnarsson, Anton Þór Einarsson og Valgerður Guðný Ingvarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1561
Þessir þrír spiluðu fyrir dansi á jóla-barnaballi 26. desember 2011. Ballið var haldið í Fellsborg á vegum Lionklúbbs Skagastrandar. Hljómsveitarmennnirnir eru frá vinstri: Viggó Brynjólfsson, Hjörtur Guðbjartsson og Fannar Viggósson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1603
Á myndinni, sem tekin var á sjómannasdaginn 2. júní 2012, eru unglingar sem sigruðu í kappróðri í sínum aldursflokki þann daginn. Krakkarnir eru frá vinstri: Aldís Embla Björnsdóttir, Eva Ósk Björgvinsdóttir, Páll Halldórsson, Arnar Páll Guðjónsson, Ívan Árni Róbertsson, Guðrún Anna Halldórsdóttir og Finnur Kristinsson stýrimaður sigurliðsins.
Ólafur Bernódusson 1069
11. mars 2013 var haldinn kynningarfundur um dreifnám frá FNV. Fundurinn var haldinn Höfðaskóla og á hann mætti Þorkell Þorsteinsson aðstoðarskólameistari FNV ásamt nemanda og stjórnanda dreifnámsstöðvarinnar á Hvammstanga. Þá var Guðjón Ólafsson skólamálastjóri A-Hún á staðnum ásamt áhugasömum foreldrum og skólafólki. Niðurstaða fundarins var að dreifnámsstöð var sett niður á Blönduósi og þeir nemendur frá Skagaströnd, sem vildu, geta sótt menntun þangað.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1698
23. október 2010 var haldin Gospelmessa í Hólaneskirkju. Dagana á undan hafði Óskar Einarsson æft upp söngprógram með kirkjukórnum og nokkrum gestum sem fengu að syngja með. Myndin var tekin í messunni af litlum hluta kórsins. Fremst eru frá vinstri: Berglind Björnsdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir og óþekkt kona. Aftar frá vinstri: Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018), Hrafnhildur Jóhannsdóttir (nær), Bára Þorvaldsdóttir (fær), Kristín Kristmundsdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir og Inga Rós Sævarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1598
Myndin var tekin á sjómannadaginn 2. júní 2012. Á henni er Hafrún HU 12 á skemmtisiglingu með fjölda fólks, sem notar tækifærið þennan eina dag á ári, sem það kemst í stutta sjóferð.
Helgi Gunnarsson 2
Myndin var tekin haustið 1996 þegar verið var að grafa fyrir grunni íþróttahússins. Eigandi og ökumaður vörubílsins var Hörður Ragnarsson en gröfumaður var Guðmundur J. Björnsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 161
Guðbjörg Viggósdóttir grínast meðan Helga Hermannsdóttir greiðir henni fyrir sýningu á "Síldin kemur og síldin fer" sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp vorið 1987. Aftan við Helgu er dóttir hennar, Þórhildur Jakobsdóttir sem einnig tók þátt í sýningunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1491
Myndin var tekin 26. mars 2011 í íþróttahúsinu. Þá var þar í gangi íþróttamaraþon krakkanna í Höfðaskóla. Konurnar á myndinni, Sigríður Stefánsdóttir til vinstri og Helga Ólína Aradóttir til hægri, áttu báðar börn sem tóku þátt í maraþoninu. Þarna eru þær að elda súpu handa krökkunum.
Ólafur Bernódusson 1034
Þessi mynd af áhöfn Arnars Hu 1 var tekin í september 1998 þegar þeir komu að landi með met afla. Fólkið á myndinni er, standandi frá vinstri: ? Gylfadóttir, Ívar Gylfason, ? Gylfadóttir, Guðjón Guðjónsson skipstjóri (fjær), Kristján Pétur Guðjónsson (nær), Grétar Smári Hallbjörnsson, Gunnar Reynisson, Hafþór Smári Gylfason, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Jóhann Ásgeirsson, Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002), óþekktur, Björn Sigurþór Sigmundsson, Gestur Arnarson, Róbert Gunnarsson, Sigurjón Ingólfsson, óþekktur, Sævar Berg Ólafsson, Svanur Árnason, Reynir Lýðsson og Jónas Fanndal Þorvaldsson. Krjúpandi frá vinstri: Ingvar Þór Jónsson, Hólmgeir Kristmundsson með Mikael Garðar Hólmgeirsson í fanginu, Tryggvi Hlynsson, Skúli Tómas Hjartarson, Óskar Þór Kristinsson og Þröstur Árnason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1307
Hjónafólk frá Skagaströnd við veisluborð á Hótel Reynihlíð 6. október 2012. Fólkið er: næst okkur er Ragnar Smári Ingvarsson en konan hans Kristín Jónsdóttir tók myndina. Þá kemur bróðir Ragnars, Árni Geir Ingvarsson og á móti honum situr kona hans, Herdís Jakobsdóttir. Halldór Gunnar Ólafsson er á skyrtunni á móti sinni konu, Sigríði Stefánsdóttur. Innst er svo Jón Ólafur Sigurjónsson móti Hugrúnu Sif Hallgrímsdóttur konu sinni.
Bjarni Jónsson 48
Þessi mynd Bjarna Jónssonar rataði á jólakort, líklega árið 1984. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson 1103
23. júní 2014 var vígð ný göngubrú yfir Hrafná niður við ósa hennar. Á myndinni eru spákonurnar/völvurnar úr Spákonuhofinu að koma á staðinn þar sem þær frömdu spágjörning. Völvurnar eru Dagný Marín Sigmarsdóttir til vinstri og Sigrún Lárusdóttir til hægri. Milli þeirra sér í Heiðrúnu Eiríksdóttur með svarta húfu og til hægri, í bláum jakka, er maður hennar Árni Friðriksson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari453
Halldór Hermannsson afhendir Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) blóm eftir að hann tók við sem verslunarstjóri í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. María hafði gegnt því embætti nokkru áður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en staðurinn er Hótel Dagsbrún sem rekið var á miðhæðinni í Stjórnsýsluhúsinu.
Skagaströnd - safn513
Myndin er frá jólahlaðborði í Kántrýbæ, sem eldri borgarar á Skagaströnd sóttu, 4. desember 1998. Hægra megin við borðið sér í Hauk Gunnlaugsson (d.18.1.2004) en vinstra megin eru, talið frá vinstri: Ásthildur Gunnlaugsdóttir, Guðný Finnsdóttir, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010), Birna Jónsdóttir Blöndal (d.26.10.2018) og óþekkt kona.
Ólafur Bernódusson 1005
Myndin var tekin í Höfðaskóla 1985 í viku þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendurnir völdu sér vinnusmiðjur til að vera í. Á myndinni er verið að baka pönnukökur fyrir alla í skólanum. Lengst til vinstri eru tvær óþekktar. Ása Ásgeirsdóttir er við enda borðsins. Þá koma frá vinstri: óþekkt, Elísabet Hallbjörnsdóttir, óþekkt, Árný Helgadóttir (fjær), Elín Ómarsdóttir (nær),tveir óþekktir, Hólmgeir Kristmundsson og óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1525
16. nóvember er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og þess vegna Dagur Íslenskrar tungu. Þessi mynd var tekin þann dag 2011 á skemmtun Höfðaskóla í Fellsborg. Skólinn helgar þennan dag minningu Elínborgar Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara. Á myndinni eru gestir að njóta veitinga af hlaðborði í lok skemmtunarinnar.
Helgi Gunnarsson 41
Eftir bruna gamla Kántrýbæjar var fljótlega hafist handa við endurbyggingu hans. Keypt var tveggja hæða bjálkahús frá Finnlandi sem var raðað saman á byggingarstað. Það verk annaðist Helgi Gunnarsson með starfsmönnum sínum. Á myndinni, frá 24. apríl 1998, er verið að raða bjálkunum saman í veggjum efri hæðarinnar.
Skagaströnd - safn522
Hrefna Hákonardóttir (d.1412.2004) biður Kristján Hjartarson um óskalag á jólahlaðborði í Kántrýbæ 4. desember 1999.
Bjarni Jónsson 30
Jólakort eftir Bjarna Jónsson líklega frá árinu 1987. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson 1072
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 30. nóvember 2017 í Fellsborg. Á henni syngja nemendur úr tveimur bekkjum saman. Aftari röð frá vinstri: Gabríel Goði Tryggvason, Hlynur Árnason, Anna Marie Gruenberger og Karen Líf Sigurbjargardóttir. Í fremri röð frá vinstri: Bjarni Bragi Bessason, Sigurjón Ýmir Alexson, Arnar Gísli Birkisson, óþekktur, Lárey Mara Sigurðardóttir, Birgitta Finnbogadóttir, óþekktur og Gunndís Katla Þrastardóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1439
Guðríður Líneik Daníelsdóttir á Kántrýhátíð 19. ágúst 2012.
Selma P. Jónsdóttir 23
Mynd frá Þingvöllum á jólakorti eftir Selmu P. Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Bjarni Jónsson 28
Þessa mynd, af konum að bíða við spilið eftir að bátarnir komi til lands, er eftir Bjarna Jónsson. Líklega gerði hann myndina árið 1988. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1596
Myndin var tekin í Fellsborg 21. maí 2011 þegar þar fór fram vísindaveisla á vegum Háskóla Íslands. Viðburðurinn var fjölsóttur enda bæði skemmtilegur og fræðandi. Á myndinni eru Halldór Gunnar Ólafsson vinstra megin og Lárus Ægir Guðmundsson hægra megin að horfa hvor á annan gegnum glerræmur sem brjóta myndina á skemmtilegan hátt.
Ólafur Bernódusson 1065
23. mars 2013 hélt Eggert Þór Bernharðsson (d.31.12.2014) sagnfræðingur fyrirlestur í Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Skagaströnd, sem hann nefndi "Fjársjóður í fjölskyldualbúminu". Einnig voru til sýnis nokkrar fjölskyldumyndir úr Ljósmyndasafni Skagastrandar. Fyrirlesturinn var vel sóttur og á þessari mynd má sjá nokkra áhugasama fylgjast með myndasýningu Eggerts. Frá vinstri: Steindór Haraldsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Sigríður Stefánsdóttir (nær), Árni Geir Ingvarsson (fjær), Dagný Marín Sigmarsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson (nær), Herdís Jakobsdóttir (fjær), Ingibergur Guðmundsson, óþekkt, Vilhelm Harðarson, Hjördís Sigurðardóttir, Signý Richter (fjær), Kristín Kristmundsdóttir (nær) og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1715
Guðný Eva Björnsdóttir á jóla-barnaballi Lions 26. desember 2010 í Fellsborg.
Ólafur Bernódusson 1051
Eitt af vinsælustu atriðum á kántrýhátíðum var messa á sunnudeginum. Þessi mynd var tekin á Kántrýmessu í Hólaneskirkju á kántrýhátíð í ágúst 1998. Eins og sjá má var svo vel mætt í messunni að fólk stóð og þurfti jafnvel að sitja á gólfinu.
Bragi Einarsson 2
Bragi Einarsson gerði þetta jólakort. Ekki er vitað hvenær. Bragi Einarsson (7.6.1960) stundaði nám í Myndlista – og handíðaskóla Íslands 1984 – 1988. Útskrifaðist með uppeldis og kennslufræði frá Kennaraskóla Íslands 2006 og starfar sem kennari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Bragi vinnur verk sín bæði með vatns- og olíulitum.
Þórdís Tryggvadóttir 8
Þórdís Tryggvadóttir kallaði þessa mynd sína "Jólasveinar einn og átta....". Ekki er vitað hvenær Þórdís gerði myndina. Þórdís Tryggvadóttir (14.12.1927 – 10.2.2012) stundaði myndlistarnám í Reykjavík og í Danmörku. Þórdís hélt sýningar bæði hérlendis og erlendis og myndskreytti fjöldan allan af bókum, einkum barnabækur. Jólakort voru eitt af því sem hún gerði og þetta er eitt sýnishorn af þeim.
Ólafur Bernódusson 980
Myndin var tekin sumarið 1983 á barnamóti umf Fram á Skagastrandarvelli. Sigurbjörn Fanndal þorvaldsson (d.13.8.2000) kastar kúlunni. Til vinstri horfir Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir á. Bak við Sigurbjörn eru Vala Rós Ingvarsdóttir til vinstri og Birna Sveinsdóttir til hægri. Guðbjörg Gylfadóttir heldur í málbandið en Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) er kuldaleg með hendurnar upp í peysunni. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Skagaströnd - safn514
Hjónin Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010) og Birna Jónsdóttir Blöndal (d.26.10.2018) á jólahlaðborði í Kántrýbæ 4. desember 1998.
1
…
83
84
85
…
104
Leita í myndasafninu
Leita