Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 1102
23. júní 2014 var vígð ný göngubrú yfir Hrafná niður við ósa hennar. Á myndinni er brúin og hluti gesta sem voru viðstaddir vígsluna og brennu, sem haldin var þegar kveikt var í kestinum í baksýn til vinstri.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 163
Á myndinni eru nokkrir af leikurunum í "Síldin kemur og síldin fer" í hléi á sýningunni. Leikararnir eru, frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, Herborg Þorláksdóttir, Þórey Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Sýningin var á vegum Leikklúbbs Skagastrandar vorið 1987.
Gunnar Hjaltason 1
Myndin er af jólakorti eftir Gunnar Hjaltason. Ekki er vitað hvenær Gunnar gerði myndina. Gunnar Hjaltason (21.11.1920 – 24.6.1999) var lærður útvarpsvirki og gullsmiður og starfaði sem slíkur meðfram listsköpun sinni. Hann stundaði nám í Teikniskóla Björns Björnssonar og Marteins Guðmundssonar og sótti námskeið í Handíðaskólanum. Hann hélt fjölmargar einkasýningar og tók þátt í samsýningum bæði hér á landi og erlendis. Gunnar var útivistar- og skíðamaður og var mjög virkur í starfi fyrir ÍR í skíðaíþróttinni.
Ólafur Bernódusson 1036
Tveir starfsmenn Hafrannsóknarstofnunar taka sýni úr 8 metra löngum hnúfubakskálfi sem Guðmundur J. Björnsson og Ólafur Bernódusson drógu til hafnar á bát sínum Benna Ólafs Hu í ágúst 1998.
Ólafur Bernódusson 1044
Kúrekinn Hallbjörn J. Hjartarson - faðir Kántrýhátíðanna - kom ríðandi með hópreið hestamanna að sviðinu á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð í ágúst 1998. Þar fór hann af baki og hóf að skemmta gestum af sviðinu. Hjá honum á myndinni er hestamaðurinn Jóel Berg Friðriksson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 63
Myndin var tekin á fermingardegi Ragnars Smára Ingvarssonar vorið 1968 utan við heimili hans að Bogabraut 16. Á myndinni eru, frá vinstri: Ari H. Einarsson, Birgir Árnason (d.2.2.2005), Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) faðir Ragnars, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Árni Geir Ingvarsson, bróðir Ragnars, situr á nýja reiðhjólinu, sem hefur líklega verið fermingargjöf til Ragnars.
Höfðaskóli - safn410
Myndin var tekin á tröppum Hólaneskirkju eldri. Ekki er vitað hvert tilefni myndatökunnar var né hvenær myndin var tekin. Presturinn lengst til hægri er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996). Í aftari röðinni eru, frá vinstri: Helga Berndsen, Hrefna Björnsdóttir (d.8.10.2018), óþekkt, Ólína Marta Steingrímsdóttir (d.4.2.1994), óþekkt, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Anna Steingrímsdóttir og óþekkt. Í fremri röð, frá vinstri: Guðrún Björnsdóttir, Stella Magnúsdóttir (d.14.12011), þorgerður Laxdal (d.27.6.2013), Sigurlaug Magnúsdóttir, Anný Jóhannsdóttir, þrjú óþekkt og séra Pétur. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 044
Myndina tók Guðmundur J. Björnsson af vörubíl sem var í eigu Sigurjóns Ástmarssonar. Bíllinn hafði oltið og við það snerist upp á hann eins og sést því afturhjólin vinstra megin snerta ekki jörðina. Þeir félagar Sigurjón og Guðmundur löguðu bílinn með því að setja fasta stoffu í pallhornið hægra megin í hæstu stöðu og toga svo í með gröfu. Við þær aðfarir rétti bíllinn sig af og var notaður lengi á eftir eins og ekkert hefði skeð. Þetta var hægt því grindin á bílum eins og þessum er öll hnoðuð saman en ekki rafsoðin. Skipta þurfti um hús á bílnum því það skemmdist illa í veltunni.
Ólafur Bernódusson 1046
Áhorfendur á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð í ágúst 1998 njóta skemmtatriða á sviðinu.
Ólafur Bernódusson 1082
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 30. maí 2016 í Fellsborg. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir árið 2000. Þau eru, frá vinstri: Sonja Albertsdóttir, Arnrún Ösp Guðjónsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Georg Kristjánsson, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Jóna Margrét Sigurðardóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Rebekka Róbertsdóttir, Sigurður Aron Björnsson, Viktor Már Einarsson og Jóhannes Sigurpálsson.
Ólafur Bernódusson 979
Myndin var tekin á barnamóti umf Fram sumarið 1983 á Skagastrandarvelli. Á henni kastar Salóme Ýr Rúnarsdóttir kúlu og Guðbjörg Gylfadóttir bíður eftir að mæla kastið. Stúlkan í hvítu úlpunni er óþekkt en við öxl Guðbjargar horfir Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir á eftir kúlunni. Ef þú þekkir hvítklæddu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 949
Umf Fram stóð fyrir reiðhjólakeppni um bæinn í nokkur vor undir stjórn Lárusar Ægis Guðmundssonar. Á myndinni, sem tekin var vorið 1981 eða 1982, er einn flokkurinn að leggja af stað. Eins og sjá má tíðkaðist ekki að vera með hjálm á höfðinu við hjólreiðar eins og nú er. Börnin eru óþekkt en Lárus er í hvítri úlpu til vinstri.
Guðrún Guðmundsdóttir 4
Hallbjörn J. Hjartarson til vinstri spjallar við óþekktan gest á Kántrýhátíð, líklega á hátíðinni 2004. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Skagaströnd - safn508
Vinkonurnar María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) til vinstri og Guðný Finnsdóttir til hægri á jólahlaðborði í Kántrýbæ 4. desember 1998.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1600
Myndin var tekin á sjómannadaginn 2. júní 2012 af félögum í björgunarsveitinni Strönd á hraðbátnum Aðalbjörg. Eins og sjá má gengur Aðalbjörgin mikið á fullu ferðinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1554
Myndin var tekin utan við Hofskirkju 24. apríl 2011 að lokinni messu þar. Á myndinni eru frá vinstri: Sveinn Sveinsson Tjörn, óþekkt, Herdís Jakobsdóttir Skagaströnd, Ingibjörg Ólafsdóttir (d.21.7.2017) Örlygsstöðum og Rafn Sigurbjörnsson Örlygsstöðum.
Helgi Gunnarsson 24
Nokkrir starfsmanna Helga Gunnarssonar njóta veitinga í reisugilli íþróttahússins sumarið 1997. Mennirnir eru, frá vinstri: Sigurður Björnsson, Einar Gunnarsson, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) og Hrólfur Pétursson.
Jóhannes Geir Jónsson 1
Þessi jólakortamynd er eftir Jóhannes Geir Jónsson. Ekki er vitað hvenær Jóhannes gerði myndina. Jóhannes Geir Jónsson (24.6.1927 – 29.6.2003) frá Sauðárkróki nam við Handíða- og myndlistaskólans og síðan við Konunglegu listaakademíuna í Kaupmannahöfn. Jóhannes hélt á annan tug einkasýninga og tók þátt í tugum samsýninga hérlendis og erlendis. Verk hans má finna í öllum helstu listasöfnum landsins og í mörgum einkasöfnum erlendis.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 98
Myndin var tekin í sjómannadagspartýi heima hjá Stefáni Jósefssyni útgerðarmanni Ólafs Magnússonar HU 54. Á myndinni eru Guðjón Pálsson (Dúi)(d.14.12.1989) til vinstri og Sævar Bjarnason til hægri.
Ólafur Bernódusson 1018
Myndin er tekin á frumsýningu á Saumstofunni eftir Kjartan Ragnarsson 1985. Þá var verkið sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í leikstjórn Halldórs Einarssonar Laxness. Á myndinni er Guðmundur Haukur Sigurðsson í hlutverki sínu. Aftan við hann eru frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Gubjörg Gylfadóttir, Árdís Indriðadóttir og Elín Njálsdóttir.
Höfðaskóli - safn505
10. bekkur Höfðaskóla í íþróttahúsinu á flippíþróttadegi skólans veturinn 2000 - 2001. Á myndinni eru, frá vinstri: Dóra Rebekka Sævarsdóttir, Stefán Agnar Gunnarsson, Anna María Magnúsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir (fjær), Guðrún Sigríður Hjálmtýsdóttir (nær), Eva Dögg Bergþórsdóttir, Tinna Björk Gunnarsdóttir (fjær), Anna Dúna Rúnarsdóttir (nær), Birkir Rúnar Jóhannsson, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Eva Rúna Rúnarsdóttir og Ólafur Bernódusson kennari.
Ólafur Bernódusson 1089
Ólafur Halldórsson í grímubúningi sínum á grímuballi Höfðaskóla 5. mars 2014.
Skagaströnd - safn521
Ragnhildur Jónsdóttir (d.19.1.2005) til vinstri og Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004) til hægri skemmta sér á jólahlaðborði í Kántrýbæ 4. desember 1999.
Höfðaskóli - safn413
Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir og Hjörtur Jónas Guðmundsson leika á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin líklega var það kringum 1988.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1718
Stundum er svo snjóþungt að moka þarf af þökum húsa svo þau brotna ekki niður. Myndin sýnir fjóra óþekkta menn við þá iðju á Skagaströnd 30. janúar 2006. Ekki er vitað hvert húsið er.
Ólafur Bernódusson 1087
Á öskudegi 5. mars 2014 gerði starfsfólk greiðslustofu Vinnumálastofnunar sér dagamun og mætti í skrautlegum búningum í vinnuna. Á þessari mynd stendur Guðmundur Egill Eringsson á milli Herdísar Jakobsdóttur til vinstri og Guðrúnar Magnúsdóttur til hægri.
Ólafur Bernódusson 955
Þessar fjórar konur tróðu upp með söng í hófi sem haldið var í tilefni af að nýbyggingu verslunar Kaupfélagsins á Skagaströnd líklega 1983. Konurnar eru frá vinstri: Helga Guðmundsdóttir, Anna Skaftadóttir, Helga Hermannsdóttir og Sigrún Lárusdóttir. Allar störfuðu þær um lengri eða skemmri tíma við verslunarstörf hjá kaupfélaginu.
Barnaból - safn594
Myndin var tekin 6. júlí 2007 þegar leikskólinn Barnaból hélt upp á 30 ára afmæli sitt. Nær okkur á myndinni er Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010) en við hlið hennar er mágkona hennar, Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1701
Fermingarbörn ganga til kirkju á fermingardaginn sinn 23. maí 2010 undir forystu séra Ursulu Árnadóttur. Fermingarbörnin eru frá vinstri: Anna Dís Ragnarsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Einar Ari Einarsson, Sigurbjörg Birta Berndsen, Eva Ósk Björgvinsdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Guðmundur Árnason, Heba Líf Jónsdóttir, Freyja Sif Blöndal Einarsdóttir og Guðrún Anna Halldórsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari468
Litlu jól starfsfólks verslunar Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016) er lengst til hægri en hin konan er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn190
Myndin var tekin við flugskýlið á Blönduósflugvelli 10. maí 1992. Ekki er vitað hver tók myndina en tilefni hennar var flugferð, sem þetta fólk fór í, til Hornafjarðar. Þar skoðaði hópurinn íbúðablokk áður en farið var í að byggja eina slíka á Skagaströnd á Túnbraut 11. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Björn Ingi Óskarsson, Hallbjörn Björnsson, Kristinn Jóhannsson, Rolf Árnason, Helgi Gunnarsson, Kristín Kristmundsdóttir og Vilhelm Harðarson.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn135
Systkinin Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020) til vinstri, Þórunn Bernódusdóttir til hægri og Ólafur Bernódusson sitjandi framan við þær. Tilefni myndatökunnar, 2. júní 1995, var stúdentsútskrift Lilju frá Fjölbraut í Breiðholti.
Sólveig Eggertz Pétursdóttir
"Með frið að leiðarljósi" gerði Sólveig Eggertz Pétursdóttir árið 1985. Sólveig Eggertz Pétursdóttir (29.5.1925 – 16.3.2016) nam myndlist á Íslandi og í London auk fjölda námskeiða sem hún sótti. Sólveig hélt fjölda listsýninga á Íslandi, Evrópu og í Bandaríkjunum. Hún er þekktust fyrir myndir sínar sem hún málaði á rekavið þó hún málaði einnig olíu- og vatnslitamyndir á hefðbundinn striga og pappír. Síðasta sýning á verkum hennar var á Hrafnistu á níræðisafmæli hennar en þar dvaldi hún síðustu æviár sín.
Ólafur Bernódusson 876
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá voru nemendur með ýmiskonar viðburði í stofunum. Hver sýning var sýnd nokkrum sinnum yfir daginn þannig að allir sem vildu gátu séð þær allar þó 2-3 væru í gangi hverju sinni. Á myndinni eru krakkarnir að syngja fyrir fólk og leika það sem sungið er um. Krakkarnir eru frá vinstri: Ómar Ísak Hjartartarson, Patrik Snær Bjarnason, tvö óþekkt, Rósa Björg Einarsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir ? (fjær), óþekkt (nær), Lilja Nótt Sævarsdóttir, óþekktur, Arnrún Bára Finnsdóttir (nær), Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir (fjær), Sara Rut Fannarsdóttir, Hörður Aðils Vilhelmsson og óþekkt. Lengst til hægri stendur Aðalheiður Sif Árnadóttir. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 1107
23. júní 2014 var vígð ný göngubrú yfir Hrafná niður við ósa hennar. Á myndinni er fólk sem kom og var við vígluhátíðina. Frá vinstri: Andrés Árni Baldursson, óþekkt, Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) og kona hans Hrefna Björnsdóttir (d.8.10.2018). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1035
Í ágúst 1998 drógu Guðmundur J. Björnsson og Ólafur Bernódusson dauðan hnúfubak til hafnar á bát sínum Benna Ólafs. Daginn eftir var hvalurinn dreginn upp í fjöru og tveir starfsmenn frá Hafrannsóknarstofnun komu til að skoða hann og taka úr honum sýni. Hvalurinn vakti mikla athygli og margir komu og skoðuðu hann í fjörunni. Á myndinni er starfsstúlka frá Hafró, til hægri á myndinni í sjóbuxum, að taka húðsýni og margir krakkar fylgjast með. Annar starfsmaður er í grænum stígvélum til vinstri á myndinni. Mennirnir tveir, hinum megin við hnúfubakinn, eru séra Guðmundur Karl Brynjarsson í ljósri peysu og Gunnlaugur Sigmarsson.
Bjarni Jónsson 43
Á þessari jólakortamynd Bjarna Jónssonar er heimilisföður fagnað við heimkomu úr kaupstaðarferð. Líklega var þessi mynd á kortum árið 1980. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson 996
Saumastofan Viola var stofnuð kringum 1970 og starfaði á efstu hæðinni í gamla kaupfélaginu. Á þessari mynd sem tekin var 1984 er Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996) verkstjóri í Violu að afhenda séra Oddi Einarssyni, fulltrúa Rauða krossins, ullarteppi að gjöf. Teppin sem fóru til Rauða krossins eru í kössunum bak við þau.
Bjarni Jónsson 46
Bjarni Jónsson gerði þessa mynd, sem var á jólakorti, líklega 1979. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1349
Laufey Inga Stefánsdóttir útskrifuð stúdent 25. maí 2012.
Bjarni Jónsson 49
Þetta jólakort gerði Bjarni Jónsson, líklega árið 1965. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1560
Þessir Lionkarlar stilltu sér upp fyrir myndatöku á annan í jólum 2011 rétt áður en jóla-barnaball hófst í Fellsborg á vegum Lionklúbbs Skagastrandar. Mennirnir eru frá vinstri: Guðmundur Finnbogason, Gunnar Reynisson, Guðjón Guðjónsson og Slavko Velemir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 110
Jón Helgason í heimókn á Suðurveginum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 1088
Á öskudegi 5. mars 2014 gerði starfsfólk greiðslustofu Vinnumálastofnunar sér dagamun og mætti í skrautlegum búningum í vinnuna. Á þessari mynd eru þær Eygló Amelía Valdimarsdóttir til vinstri og Hallbjörg Jónsdóttir til hægri múnderíngum sínum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1628
Myndin var tekin 11. júní 2011 í Kántrýbæ þegar sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi kom og heiðraði Hallbjörn Hjartarson fyrir framlag hans til kántrýtónlistar á Íslandi. Á myndinni er Hallbjörn til hægri með hönd undir kinn en hjá honum situr bróðir hans Sigurður Hjartarson (d.1.8.2020). Í horninu til vinstri sér í eiginkonu Hallbjörns, Amy Evu Eymundsdóttur (d.7.3.2012).
Bjarni Jónsson 25
Bjarni Jónsson gerði þessa mynd á jólakort, líklega 1990. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 141
Myndin var tekin á afmælishátíð Leikklúbbs Skagastrandar en því miður er árið ekki þekkt. Á sviðinu er verið að flytja frumsaminn leikþátt. Leikendurnir eru frá vinstri: Pétur Ingjaldur Pétursson, Ragnar Jónsson, Guðmundur Jónsson, Egill Bjarki Gunnarsson, Anna Sjöfn Jónasdóttir og óþekkt kona.
gunnar007
Myndin var tekin á sjómannadegi þegar kappróður unglinga er að hefjast. Myndin var líklega tekin kringumum 1965. Þá var róið í austur frá höfninni og lokamarkið var fram af Skúffugarðinum. Strákarnir um borð eru líklega, talið frá vinstri: Örn Berg Guðmundsson, Eðvarð Ingvason?, Sævar Hallgrímsson, Reynir Sigurðsson og tveir óþekktir. Stýrimaður gæti verið ?Birgir Árnason? (d.2.2.2005).
Ólafur Bernódusson 1003
Myndin var tekin í Höfðaskóla 1985 í viku þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendurnir völdu sér vinnusmiðjur til að vera í. Á myndinni er Ingibergur Guðmundsson kennari að skipuleggja skólablað með nokkrum nemendum. Frá vinstri: Hallgrímur Oddsson, óþekktur, Svanur Árnason, óþekkt (nær), Ingibergur, Gunnar Halldór Hallbjörnsson og þrjú óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1513
16. nóvember er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og þess vegna Dagur Íslenskrar tungu. Þessi mynd var tekin þann dag 2011 á skemmtun Höfðaskóla í Fellsborg. Skólinn helgar þennan dag minningu Elínborgar Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara. Á myndinni eru nokkrir nemendur að lesa upp ljóð. Nemendurnir eru frá vinstri: Thelma Jónasdóttir, Dagný Dís Bessadóttir, Daði Snær Stefánsson, Dagur Freyr Róbertsson og Haraldur Guðjónsson.
Guðrún Þórbjarnardóttir032
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Hún er af þeim hjónum Jóni og Þorbjörgu Halldórsdóttur (d.30.6.1970) þegar þau héldu upp á gullbrúðkaupsdaginn sinn með veislu í Skátaskálanum 1967.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1638
Opið hús í Listamiðstöðinni Nes 21. febrúar 2012. Slík opin hús eru haldin mánaðarlega þar sem listamenn þess mánaðar sýna að hverju þeir eru að vinna á Skagaströnd. Ekki er vitað hvaða fólk er á myndinni.
Ólafur Bernódusson 982
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 1983. Krakkar úr 11 ára bekk flytja frumsaminn leikþátt fyrir aðra nemendur skólans. Leikararnir eru frá vinstri: Hólmgeir Kristmundsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Friðrik Birgisson og Hólmfríður Oddsdóttir.
Helgi Gunnarsson 21
Það er skemmtilegur siður að flagga á húsum þegar búið er að reisa allar sperrurnar. Þá er reisugilli gjarnan með einhverjum veitingum til handa þeim sem verkið unnu. Á myndinni er búið að reisa allar sperrurnar í iþróttahúsinu og því reisugilli í gangi.
Helgi Gunnarsson 27
Reisugilli í íþróttahúsinu sumarið 1997. Á myndinni eru, frá vinstri: Rolf Árnason (d.3.6.2014), helgi Gunnarsson, Sigurjón Ástmarsson, Gunnar Dór Karlsson og Árni Max Haraldsson.
Ólafur Bernódusson027
Leikklúbbur Skagastrandar setti Kardimommubæinn á svið í febrúar 1992. Á myndinni, sem tekin var á æfingu, eru Elín Njálsdóttir sem Soffía frænka og Hallbjörn Hjartarson sem Tóbías í turninum.
Vigsla_Holaneskirkju_1991
Vígsla Hólaneskirkju 20. október 1991. Hljóð og mynd í góðu lagi. Lengd myndar 117 mínútur. Myndataka: Sigursteinn Guðmundsson (d.20.4.2016).
Óskar Kristinsson - safn160
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Mennirnir eru: næst okkur er Ingvar Þór Jónsson, næstur honum er Þórarinn Grétarsson og þá kemur Kristmundur Stefánsson (d.4.11.2000). Maðurinn í hvítu peysunni er Einar Kristberg Einarsson en aftan við hann er Áki Áskelsson. Til hægri eru Óskar Kristinsson í jakka með loðkanti og Sveinn Gíslason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1567
Guðmundur Henry Stefánsson til vinstri og Skúli Tómas Hjartarson til hægri á jóla- barnaballi Lions í Fellsborg 26. desember 2011.
Ólafur Bernódusson 1067
Húsfyllir var í Bókasafni Halldórs Bjarnasonar í Rannsóknarsetri HÍ á Skagaströnd 20. mars 2013 þegar Gleðibankinn stóð þar fyrir kvikmyndasýningu á gömlum filmum frá Skagaströnd. Myndirnar voru sýndar gegnum tölvu sem tengd var skjávarpa. Á myndinni er hluti áhorfendanna.
1
…
84
85
86
…
104
Leita í myndasafninu
Leita