Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1662
Eyjólfur Ólafsson GK 38 dreginn af strandstað við nerðanverðan Höfðann 2. júlí 2012. Báturinn náðist á flot á næsta flóði eftir strandið, nánast óskemmdur.
Höfðaskóli - safn470
Bekkjarkvöld í Skíðaskálanum. Nemendur Höfðaskóla fædd 1988 ásamt foreldrum og kennara gera sér glaðan dag 1. maí 1997. Á myndinni eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Rebekka Þórarinsdóttir, Unnur Kristjánsdóttir kennari, Steinunn Berndsen, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Ásthildur Guðmundsdóttir, Óðinn Örn Sævarsson, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, þrjú óþekkt, Þorbjörg Magnúsdóttir, Helga Bergsdóttir og Gylfi Guðjónsson
Höfðaskóli - safn543
Krakkarnir á myndinni voru nemendur Höfðaskóla í fjallgönguhóp á útvistardegi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum árið 2000. Nemendurnir eru, frá vinstri: Hákon Unnar Þórarinsson, Sóley Elsa Magnúsdóttir Blöndal (fjær), Árni Halldór Eðvarðsson (nær), Jón Atli Magnússon, óþekkt og Sonja Hjördís Berndsen
Erla B. Axelsdóttir 1
Þetta jólakort gerði Erla B. Axelsdóttir 1983. Erla B. Axelsdóttir (12.4.1948) var við nám í Myndlistaskólanum í Reykjavík og í Skidmore College í Saratoga Springs New York. Erla hefur haldið tugi einkasýninga og sýnt verk sín á fjölmörgum samsýningum bæði á Íslandi og erlendis.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 054
Jólaboð á Mánabraut 5 kringum 1990. Húsráðendur eru Anna Halldórsdóttir Aspar (d.1.9.1999) sem situr til vinstri og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) sem snýr baki í ljósmyndarann. Aðrir við borðið eru frá vinstri: Elísabet Eik Guðmundsdóttir, systir hennar Anna Sjöfn Jónasdóttir og móðir þeirra Þórunn Bernódusdóttir. Lengst til hægri er Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) sem er líka barnabarn húsráðendanna.
Óskar Kristinsson safn 025
Aðfaranótt sunnudagsins 10. apríl 1988 fékk togarinn Þorsteinn EA 610 trollið í skrúfuna í átta vindstigum og éljagangi út af Húnaflóa. Þorsteinn var þá innan um hafís og fór fljótt að slást utan í stóra ísspöng. Við það skemmdist hann töluvert og gat kom á stjórnborðshornið að aftan og fór að leka allmikið. Til öryggis kallaði skipstjóri Þorsteins á þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem tók fjóra skipverja um borð og flutti til Ísafjarðar. Arnar Hu 1, sem var að toga í grendinni, fór strax á vettvang. Eftir töluvert bras við að komast að Þorsteini gegnum ísinn komu Arnarsmenn landfestartrossu yfir í Þorstein og drógu hann varlega út úr ísnum á henni. Eftir að komið var á auðan sjó var togvír komið milli skipanna og með honum ferjaði Arnar Þorstein til hafnar á Akureyri einum og hálfum sólarhring seinna. Arnar laskaðist nokkuð í þessu brasi í ísnum en gat þó haldið aftur til veiða eftir að hafa komið Þorsteini í örugga höfn. Á myndinni er verið að hífa einn skipverja Þorsteins um borð í þyrluna. (Heimild: https://timarit.is/page/1678662?iabr=on#page/n63/mode/1up sótt 14.10.2021)
Ragnar S. Ingvarsson - safn 162
Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir situr í stólnum meðan Ardís Ólöf Arelíusdóttierir hana klára til að fara á svið í "Síldin kemur og síldin fer", sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp vorið 1987.
Höfðaskóli - safn471
Gaman á bekkjarkvöldi í Skíðaskálanum 1. maí 1997 hjá nemendum Höfðaskóla fæddum 1988 með foreldrum og kennara. Frá vinstri: Valgerður Guðmundsdóttir, óþekkt, Helga Bergsdóttir, Þórdís Skúladóttir, Íris Ósk Jóhannesdóttir, Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018), Guðbjörg Kristinsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir, Björgvin Matthías Hallgrímsson, Ester Ösp Víðisdóttir, Víðir Ólafsson og óþekktur.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 107
Systkinin Kristín Jónsdóttir og Guðmundur Jónsson við jólamatborð heima á Fellsbraut, líklega snemma á áttunda áratugnum.
Höfðaskóli - safn625
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni er verið að skreyta ruslafötu með skapalónum sem krakkarnir bjuggu til. Frá vinstri: Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Jón Örn Stefánsson, Súsanna Þórhallsdóttir leiðbeinandi og Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir.
Höfðaskóli - safn434
Dúndrandi diskótek í Fellsborg á árshátíð Höfðaskóla 24. febrúar 2006.
Óþekktur ljósmyndari471
Guðlaugur Hjaltason spilar á gítar á litlu jólum starfsfólks í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn164
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Arnar Arnarson, Jón Gunnarsson, Sigurður Alexandersson, Ragnar Högnason (nær), Einar Ásgeirsson (fjær), Ingvar Þór Jónsson, Þórarinn Grétarsson (nær), Gunnar Jón Jónsson (fjær) og Kristján Alexandersson.
Skagaströnd - safn511
Myndin var tekin 4. desember 1998 af eldri borgurum á jólahlaðborði í Kántrýbæ. Á henni er Haukur Gunnlaugsson (d. 18.1.2004) til hægri en hinum megin við borðið eru, talið inn eftir því: Kristján Hjartarson (d.2.8.2003), Hrefna Hákonardóttir (d.14.12.2004), Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), óþekkt, Sigríður Vilhjálmsdóttir (d.21.1.2012) og Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004).
Bragi Einarsson 1
Bragi Einarsson gerði þessa mynd á jólakort en ekki er vitað hvenær. Bragi Einarsson (7.6.1960) stundaði nám í Myndlista – og handíðaskóla Íslands 1984 – 1988. Útskrifaðist með uppeldis og kennslufræði frá Kennaraskóla Íslands 2006 og starfar sem kennari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Bragi vinnur verk sín bæði með vatns- og olíulitum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1565
Á myndinni er verið að byrja á að rífa niður þrærnar við síldarverksmiðjuna 4. maí 2011 með stórvirkum vinnuvélum.
Óþekktur ljósmyndari458
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Á henni kynnir Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) Hong Kong pottrétt fyrir Bóel Hallgrímsdóttur sem er til vinstri á myndinni.
Ólafur Bernódusson 1077
Pascal Gruenberger ábúðafullur sem hljóðmaður í skemmtiatriði bekkjar síns á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1714
Lions karlar að leggja tertur á borð í Fellsborg 26. desember 2010 en þá fór þar fram jóla-barnaball á þeirra vegum. Terturnar voru hluti þess sem gestum var boðið upp á á ballinu. Lionkarlanir eru frá vinstri: Guðjón Guðjónsson, Guðmundur Finnbogason, Gunnar Reynisson og Sigurður Svavarsson. Strákurinn á myndinni er Guðjón Dunbar.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 131
Þessi fjölskyldumynd var líklega tekin á fermingardegi Ægis Thorberg Jónssonar vorið 1985. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Helgason (d.1.12.2019), Kristín Jónsdóttir, Guðmundur Jónsson, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011) og Ægir Thorberg.
Ólafur Bernódusson 1027
Sævar Rafn Hallgrímsson kom að landi á bát sínum, Hafgeiri HU 121, í september 1998 með fullfermi. Eins og sjá má eru fjögur full kör á dekkinu og laus fiskur framan við þau. Að sjálfsögðu eru svo ílátin í lestinni sneisafull líka.
Jónas 52
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Birna Blöndal (d. 26.10.2018) og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum í sýningunni.
Sólveig Eggertz Pétursdóttir
"Fjölskylda" eftir Sólveigu Eggertz Pétursdóttur frá árinu 1992. Sólveig Eggertz Pétursdóttir (29.5.1925 – 16.3.2016) nam myndlist á Íslandi og í London auk fjölda námskeiða sem hún sótti. Sólveig hélt fjölda listsýninga á Íslandi, Evrópu og í Bandaríkjunum. Hún er þekktust fyrir myndir sínar sem hún málaði á rekavið þó hún málaði einnig olíu- og vatnslitamyndir á hefðbundinn striga og pappír. Síðasta sýning á verkum hennar var á Hrafnistu á níræðisafmæli hennar en þar dvaldi hún síðustu æviár sín.
Ólafur Bernódusson 1045
Á myndinni er Hallbjörn J. Hjartarson að afhjúpa brjóstmynd af sjálfum sér á Kántrýhátíð í ágúst 1998. Myndina gerði brottfluttur Skagstrendingur, Rúnar Hartmannsson, og færði Hallbirni að gjöf við þetta tækifæri.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 055
Myndin var líklega tekin um jólin 1991. Hún sýnir Björn Sigurðsson (d.5.10 1999) og son hans Guðmund J. Björnsson með yngstu dóttur sína Kristbjörgu Unu Guðmundsdóttur. Milli þeirra feðga sér í Elísabetu Eik Guðmundsdóttur til vinstri og Önnu Sjöfn Jónasdóttur til hægri. Konan lengst til hægri er Guðrún Pálsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1717
Myndin var tekin 31. desember 2010. Um miðnættið, eftir að nýtt ár var gengið í garð, var ljósaskiltinu breytt í 2011.
Óskar Kristinsson safn 084
Arnar Hu 1 kemur fánum skrýddur til heimahafnar. Líklega var myndin tekin þegar hann kom í fyrsta sinn til Skagstrandar nýsmíðaður frá Japan 15. október 1973.
Óþekktur ljósmyndari460
Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) starfsmaður verslunar Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut kynnir Sigurjóni Guðbjartssyni SAH bjúgu á kynningu á þeirri afurð í búðinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1605
Jónas Þorvaldsson til vinstri og Kristján Pétur Guðjónsson til hægri keppa á hjólabrettum á sjómannadeginum 2. júní 2012.
Ólafur Bernódusson 1004
Myndin var tekin í Höfðaskóla 1985 í viku þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendurnir völdu sér vinnusmiðjur til að vera í. Þessi hópur er að vinna við sauma gardínukappa. Vinstra megin við borðið er Bryndís Ingimarsdóttir og óþekkt stúlka. Hægra megin er óþekkt stúlka næst gluggunum, Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir í miðjunni og Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) næst okkur. Strákurinn við saumavélina er óþekktur.
Barnaból - safn600
Daði Snær Stefánsson borðar skúffuköku í 30 ára afmælisveislu leikskólans Barnaból 6. júlí 2007.
Skagaströnd - safn520
Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) spilar á harmoniku fyrir dansi þeirra Ásthildar Gunnlaugsdóttur til vinstri og Jóhönnu Thorarensen (d.6.3.2004) til hægri. Myndin var tekin í Kántrýbæ eftir jólahlaðborð eldri borgarar í desember 1998 eða 1999.
Skagaströnd - safn506
Eldri borgarar og gestir þeirra á jólahlaðborði í Kántrýbæ. Líklega var myndin tekin 4. desember 1999. Vinstra megin við borðið eru, talið inn eftir borðinu: Magnús Bjarni Blöndal (d.7.9.2001), Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004), Ingvar Jónsson (d.18.1.2003), Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), Sigríður Vilhjálmsdóttir (d.21.1.2012), Guðný Finnsdóttir, Ragnhildur J. Jónsdótt (d.19.1.2005), óþekkt og Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004). Hægra megin við borðið eru Birna Jónsdóttir Blöndal (d.26.10.2018) næst okkur, Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) í bláum jakka og Guðrún Soffía Pétursdóttir innst. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn484
Sandkastalakeppni í fjörunni við Sandlækinn á útivistardegi í Höfðaskóla. Stúlkurnar á myndinni eru, frá vinstri: Elva Ösp Gunnarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir og Jenný Lind Sigurjónsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1493
23. október 2011 var haldið upp á 20 ára vígsluafmæli Hólaneskirkju með hófi í Fellsborg. Þar var þessi mynd tekin. Við borðið næst okkur sitja frá vinstri: Agnar Gunnarsson, séra Sveinbjörn Einarsson, Hallbjörg Jónsdóttir, Viggó Brynjólfsson, Steindór Haraldsson, séra Dalla Þórðardóttir, Guðrún Pálsdóttir, Ólafur Bernódusson og Árni Geir Ingvarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1708
Þessir ungu drengir eru í útidyrunum á Fellsborg 26. desember 2012 þegar þar fór fram jóla-barnaball Lions. Strákarnir eru frá vinstri: Gunnar ??, Brynjar Daði Finnbogason, Mikael Garðar Hólmgeirsson og Óðinn Örn Gunnarsson.
Ólafur Bernódusson 1019
Myndin er tekin á frumsýningu á Saumstofunni eftir Kjartan Ragnarsson 1985. Þá var verkið sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í leikstjórn Halldórs Einarssonar Laxness. Á myndinni eru frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Árdís Indriðadóttir, Lárus Ægir Guðmundsson og Sigrún Jónsdóttir.
Ólafur Bernódusson 1104
Dr. James Kennedy tekur myndir þegar opnuð var göngubrú yfir Hrafná 23. júní 2014. Ekki er vitað hvert barnið á myndinni er.
Höfðaskóli - safn494
Myndin var tekin á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg 20. febrúar 1996. Börnin á sviðinu eru óþekktir verðlaunahafar en lengst til hægri er Sverrir Brynjar Berndsen. Til vinstri eru Elva Dröfn Árnadóttir, Erla María Lárusdóttir og óþekkt. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson safn 042
Ekki er vitað hvenær þessir starfsmenn Skagstrendings hf gerðu sér glaðan dag með því að fara saman í ferðalag og út að borða á einhverju "showi", líklega á Hótel Íslandi. Þegar myndin var tekin er forrétturinn kominn á borðið og fólk að fara að borða. Vinstra megin við borðið eru, frá vinstri: María Konráðsdóttir (d.9.8.2003), Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017), Ástmar Kári Ástmarsson, Margrét Ólafsdóttir, Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004), Steinunn Steinþórsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir og Guðjón Guðjónsson. Fólkið hægra megin við borðið er óþekkt.
Skagaströnd - safn503
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af eldri borgurum úr Húnavatnssýslu á ferðalagi. Í vinstri sætaröðinni er Gestur Guðmundsson (d.27.6.2009) fremstur. Aftan við hann er Knútur Berndsen (d.31.8.2013) og tveimur sætum aftar er Björn Eiríksson (d.4.1.2008) en aðrir í þeirri röð eru óþekktir. Í hægri sætaröðinni er Sigríður Vilhjálmsdóttir (d.21.1.2012) fremst en í sætunum aftan við hana sitja Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) og Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006). Aftan við þau sitja óþekktur maður og Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020). Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1076
Jóhann Almar Reynisson til vinstri og Dagur Freyr Róbertsson til hægri kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Óskar Kristinsson safn 023
Myndin var tekin í Bergen í Noregi 1991 af Hallbirni Björnssyni sem þar var til að kynna sér smíði nýs frystitogara, Arnars Hu 1, sem þar var í byggingu fyrir Skagstrendings hf.
Höfðaskóli - safn504
7. bekkur Höfðaskóla veturinn 2000 - 2001 á flippíþróttadegi skólans í íþróttahúsinu. Frá vinstri á myndinni eru: Ester ösp Víðisdóttir, Björgvin Matthías Hallgrímsson, Rebekka Maren þórarinsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Arnór Snorri Gíslason, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Sindri Jóelsson, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Óðinn Örn Sævarsson (fjær), Kristján Pétur Guðjónsson (nær), Ívar Gylfason, Sigurgeir Snævar Árnason, Guðmundur Oddsson kennari, Jón Atli Magnússon og óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn193
Myndin var tekin á Nýja Sjálandi 29. febrúar 1992. Þá voru feðgarnir Ingólfur Sveinsson og Sveinn S. Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, í viðskiptaferð í landinu. Þeir feðgar eru fyrir miðju á myndinni en mennirnir beggja megin við þá eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn203
Fjölmennt gæðanámskeið var haldið 22.september 1992 í Fellsborg. Skagstrendingur hf stóð fyrir námskeiðinu fyrir starfsfólk sem kom nálægt útgerðinni á einn eða annan hátt. Á þessari mynd eru vinstra megin við borðið, talið frá vinstri: Björn Viðar Hannesson, Bergþór Gunnarsson, Guðmundur Gunnlaugsson, Óli Albertsson, Slavko Velemir, Hjörtur Guðmundsson, Hafsteinn Pálsson og Einar Ásgeirsson. Hægra megin við borðið, frá vinstri: Einar Kristberg Einarsson, Valgarður Jökulsson (d.19.10.2021), óþekktur, Þórarinn Grétarsson, tveir óþekktir og Jens Jónsson.
Ólafur Bernódusson 1040
Guðmundur J. Björnsson býr sig undir að fara út á hnúfubak til að koma á hann böndum til að draga hann upp í fjöru til rannsóknar. Hvalinn drógu Guðmundur og Ólafur Bernódusson til lands á Benna Ólafs Hu í ágúst 1998. Hvalurinn reyndist vera ungur karkyns kálfur um 8 metrar á lengd. Litla stúlkan um borð er dóttir Guðmundar, Kristbjörg Una. Til gamans má segja frá því að kynfærin af honum voru send til Hins Íslenska reðursafns, að þeirra ósk, og þar voru þau höfð til sýnis ásamt öðrum spendýrs líffærum af sama toga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 160
Bóel Hallgrímsdóttir spilar á gítar í frumsýningarpartýi eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á "Síldin kemur og síldin fer" 7. mars 1987.
Ólafur Bernódusson 1090
Frumlegur búningur á grímuballi Höfðaskóla 5. mars 2014. Ekki er vitað hver er í búningnum en hitt er vitað að hann dansaði ekki mikið á ballinu.
Ólafur Bernódusson 1081
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 30. maí 2016. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir 2001. Þau eru, frá vinstri: Birgitta Bjarnadóttir, Helgi Sveinn Árnason, Guðný Eva Björnsdóttir, Auðunn Árni Þrastarson, Anita Ragnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Benóný Bergmann Árnason, Laufey Lind Ingibergsdóttir og Sunna Steingrímsdóttir.
Bjarni Jónsson 2
Bjarni Jónsson gerði þessa jólakortamynd en ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Óskar Kristinsson - safn 227
Myndin var tekin 3. september 1993. Þá var rússneskur rækjutogari að landa frosnum afurðum til frekari vinnslu á Skagaströnd. Áhöfn þessa togara var töluvert fjölmennari en gekk og gerðist á íslenskum togurum. Áhafnarmeðlimir höfðu mikinn áhuga á að kaupa gamla bíla sem voru svo hífðir um borð í togarann. Þetta varð til þess að lífleg viðskipti hófust á bryggjunni og þá virtist ástand og tegund bílanna ekki skipta máli. Greiðslur fyrir bíldruslurnar voru með ýmsu móti þar sem gjaldeyrir, Vodki og ýmislegt annað fljótandi kom við sögu. Á myndinni er Jóhannes Sveinsson að ganga frá viðskiptum við einn skipverjann. Konan til vinstri er Lovísa Vattnes Sólveigardóttir (d.26.3.2018), Yfir höfuð skipverjans sér í Ingólf Sveinsson og Vilhelm Þórarinsson hallar sér upp að bílnum til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 997
Myndin var tekin vorið 1984 þegar Bridgeklúbbur Skagastrandar hélt Norðurlandsmót í Bridge í Fellsborg. Á myndinni sést hluti spilaranna einbeittir við spilamennsku.
Höfðaskóli - safn574
Myndin var tekin í Höfðaskóla, líklega 1970. Á henni eru yngstu nemendur skólans ásamt kennara sínum, Elínborgu M. Jónsdóttur (d.7.1.2007). Nemendurnir eru, talið frá vinstri: fjórir óþekktir, Ólafur Þór Valdimarsson, Sigríður A. Sigurðardóttir, þrjú óþekkt, Elínborg kennari (fjær), Elín Íris Fanndal Jónasdóttir (nær), óþekkt, Hallbjörg Jónsdóttir, Þorlákur Axel Jónsson og tveir óþekktir. Ef þú þekkir óþekktu börnin endilega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 1050
Eitt af vinsælustu atriðum á kántrýhátíðum var messa á sunnudeginum. Þessi mynd var tekin á Kántrýmessu í Hólaneskirkju á kántrýhátíð í ágúst 1998.Eins og sjá má var húsfyllir í messunni.
Ólafur Bernódusson 1014
Myndin er tekin á frumsýningu á Saumstofunni eftir Kjartan Ragnarsson 1985. Þá var verkið sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í leikstjórn Halldórs Einarssonar Laxness. Á myndinni eru frá vinstri leikkonurnar: Hallbjörg Jónsdóttir, Elín Njálsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Guðbjörg Gylfadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1709
Frændsystkinin Mikael Garðar Hólmgeirsson og Stefanía Hrund Stefánsdóttir hvíla lúin bein á jóla-barnaballi Lions í Fellsborg 26. desember 2012.
Bjarni Jónsson 3
Bjarni Jónsson gerði mikið af myndum á jólakort og þá var rjúpan vinsælt viðfangsefni hjá honum. Þetta er ein af þeim myndum. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 99
Myndin var tekin í sjómannadagspartýi heima hjá Stefáni Jósefssyni útgerðarmanni Ólafs Magnússonar HU 54. Á henni er róðrarsveit útgerðarinnar með bikar sem þeir fengu fyrir sigur í kappróðri dagsins. Krjúpandi eru bræðurnir, frá vinstri: Stefán Jósefsson, Jón Gunnar Jósefsson og Rúnar Jósefsson. Standandi frá vinstri: Ragnar Smári Ingvarsson, Guðmundur Jón Björnsson, Sævar Bjarnason og Guðjón Pálsson (Dúi) (d.14.12.1989).
Ólafur Bernódusson 1056
Hallbjörn J. Hjartarson syngur fyrir gesti við vígslu nýja Kántrýbæjar 27. júní 1998.
1
…
85
86
87
…
104
Leita í myndasafninu
Leita