Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 957
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg vegna vígslu nýs verslunarhúss Kaupfélags A-Hún við Bogabraut á Skagaströnd. Líklega var þetta árið 1983. Á henni er Árni Jóhannsson kaupfélagsstjóri að halda ræðu.
Ólafur Bernódusson1077
Myndin var tekin í september 1996 þegar tekin var fyrsta skóflustunga fyrir íþróttahúsinu. Fjöldi fólks mætti á skólalóðina og fylgdist með ásamt nemendum Höfðaskóla.
Jóhannes Kjarval 1
Þetta er mynd af jólakorti með mynd eftir Jóhannes Kjarval. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Jóhannes Kjarval (15.10.1885 – 13.4.1972). Eftir einn vetur í London, við að skoða söfn og mála, fór hann í Konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan 1917. Þá fór hann til Rómar og dvaldi þar og víðar á Ítalíu til 1920. 1928 dvaldist hann svo í París en annars vann hann að list sinni á Íslandi. Jóhannes Kjarval skipar stóran sess í íslenskri menningar- og listasögu og má kalla hann risa meðal íslenskra listamanna. Hann málaði víða um land m.a. hér á Skagaströnd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 156
Myndin var tekin í frumsýningarpartýi eftir frumsýningu á leikritinu "Síldin kemur og síldin fer" 7. mars 1987. Konan í hvítu peysunni er Jane Sillar (d.2017) en maðurinn í bláu skyrtunni er þáverandi eiginmaður hennar, William Sillar. Fremst á myndinni sér í hnakkann á Ingibergi Guðmundssyni en við borðið í baksýn sitja, frá vinstri: Kristín Jónsdóttir, óþekkt, Ragnar Smári Ingvarsson (nær), óþekkt (fjær), Þorvaldur Skaftason með gítarinn er fjær og baksvipur Sigurbjörns Björgvinssonar nær. Lengst til hægri er svo Þórey Jónsdóttir.
Selma P. Jónsdóttir 26
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Sólveig Eggertz Pétursdóttir 2
Sólveig Eggertz Pétursdóttir gerði þessa mynd 1985 og kallaði hana "Mæðgurnar". Sólveig Eggertz Pétursdóttir (29.5.1925 – 16.3.2016) nam myndlist á Íslandi og í London auk fjölda námskeiða sem hún sótti. Sólveig hélt fjölda listsýninga á Íslandi, Evrópu og í Bandaríkjunum. Hún er þekktust fyrir myndir sínar sem hún málaði á rekavið þó hún málaði einnig olíu- og vatnslitamyndir á hefðbundinn striga og pappír. Síðasta sýning á verkum hennar var á Hrafnistu á níræðisafmæli hennar en þar dvaldi hún síðustu æviár sín.
Ólafur Bernódusson 946
Starfsmenn á unglingamóti umf Fram 1983 á Skagastrandarvelli. Frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson íþróttaáhugamaður, Guðbjörg Gylfadóttir afrekskona í íþróttum og Hrólfur Pétursson sem var góður íþróttamaður á þessum tíma. Áhorfendurnir eru óþekktir.
Þórdís Tryggvadóttir 6
"Kertasníkir" er jólakort eftir Þórdísi Tryggvadóttur. Ekki er vitað hvenær kortið var gert. Þórdís Tryggvadóttir (14.12.1927 – 10.2.2012) stundaði myndlistarnám í Reykjavík og í Danmörku. Þórdís hélt sýningar bæði hérlendis og erlendis og myndskreytti fjöldan allan af bókum, einkum barnabækur. Jólakort voru eitt af því sem hún gerði og þetta er eitt sýnishorn af þeim.
Höfðaskóli - safn536
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1988 á sviðinu í Fellsborg að bíða eftir að fá í hendurnar vitnisburð sinn eftir veturinn í Höfðaskóla. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum árið 2000. Nemendurnir eru, frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson, Arnór Snorri Gíslason, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Ómar Ingi Ómarsson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Óðinn Örn Sævarsson, Jón Atli Magnússon, Ívar Gylfason, ?Sigurgeir Snævar Árnason? og Sindri Jóelsson.
Ólafur Bernódusson1034
Myndin var tekin á aðventukvöldi í desember 1997 í Hólaneskirkju. Séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) er hjá altarinu en fermingarbörnin eru, frá vinstri: Jón Ingi Ragnarsson, Árni Halldór Eðvarðsson, María Guðrún Guðmundsdóttir, Heiða Berglind Fannarsdóttir, Hákon Unnar Þórarinsson, Séra Egill, Rebekka Laufey Ólafsdóttir, Elín Anna Konráðsdóttir, Hermann Freyr Guðjónsson og Guðni Már Lýðsson.
Ólafur Bernódusson 1105
Dr. James Kennedy 20. júlí 2014 á tjaldstæðinu á Bakkagerð (Borgarfirði Eystra). Tjaldsvæðið er í skjóli við Álfaborgina sem sést í baksýn. Þarna var Jim staddur ásamt hópi frá Skagaströnd sem gekk Víkurnar þar eystra sér til gamans.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1495
Á myndinni hleypir Hjalti Reynisson af skoti úr fallbyssunni á Höfðanum. Byssan er eftirlíking af þeirri sem var staðsett á Höfðanum á öldum áður. Líklega var myndin tekin 2012 þegar göngustígur um Höfðann var vígður.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 032
Þessa mynd tók Guðmundur J. Björnsson vorið 1969 um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Á henni er Rússneskur verksmiðjutogari líklega um 4000 tonn og framan við hann er Björgólfur Ea, sem var líklega um 250 tonna síðutogari. Ástæða myndatökunnar var að annar hleri Arnars, sem var 187 tonn að stærð, flæktist saman við hlera stóra togarans. Sá stóri dró Arnar afturábak um stund áður en skipstjórnarmenn þar um borð áttuðu sig á ástandinu. Þá var híft og hlerarnir leystir sundur og síðan gátu bæði skipin haldið áfram veiðum sínum. Mikil heppni var að veðrið var eins gott og sést á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1694
Sigurður Sigurðarson hélt sýningu á nokkrum af ljósmyndum sínum 15. ágúst 2010. Sýningin var sett upp á loftinu í gamla kaupfélaginu og gerði mikla lukku enda myndirnar allar fallegar og vel gerðar.
Óskar Kristinsson - safn206
Fjölmennt gæðanámskeið var haldið 22. september 1992 í Fellsborg. Skagstrendingur hf stóð fyrir námskeiðinu fyrir starfsfólk sem kom nálægt útgerðinni á einn eða annan hátt. Á þessari mynd eru næst okkur, talið frá vinstri: Valgarður Jökulsson (d.19.10.2021) og Einar Kristberg Einarsson. Við næsta borð nær okkur eru, frá hægri: Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) og Gunnar Jónsson. Hægra megin við það borð eru, frá hægri: Gylfi Guðjónsson, Adolf H. Berndsen, Ingvar Þór Jónsson, Ernst Berndsen, Sigurjón Ingólfsson, Guðjón Árnason og Kristmundur Stefánsson (d.4.11.2000). Yfir höfuð Gylfa sér í Jón Sveinsson og inn eftir því borði hægra megin: Gunnar Stefánsson, Óskar Þórðarson, óþekktur og Ingibjörn Sigurjónsson. Á móti þeim við borðið eru Stefán Sveinsson, Ingólfur Sveinsson, óþekktur og Sigrún Jónsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1097
Sigurjón Guðjartsson bindur nýjan bát í sinni eigu í fyrsta sinn í heimahöfn á Skagaströnd 14. maí 2014. Báturinn hlaut fljótlega nafnið Alda Hu 112.
Höfðaskóli - safn436
Myndin var tekin af tveimur börnum í fallegum grímubúningum á grímuballi Höfðaskóla 5. mars 2006 í Fellsborg. Börnin á myndinni eru óþekkt en ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 140
Guðmundur Jónsson til vinstri og Fannar Viggósson til hægri spila undir söng kvennanna á myndinni. Konurnar eru fá vinstri: Dagný Marín Sigmarsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Vigdís Viggósdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir. Myndin var líklega tekin í einhverju afmælishófi hjá Leikklúbbi Skagastrandar í Fellsborg.
Guðrún Guðmundsdóttir 034
Eldri borgarar í Austur Húnavatnssýslu fóru í sumarferð 9. - 12. júní 1992. Farið var yfir Kjöl og ýmsir staðir á suðurlandi skoðaðir. Á myndinni er Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) frá Skagaströnd að skoða sig um á byggðasafninu á Skógum.
Bjarni Jónsson 39
Bjarni Jónsson gerði þessa myndd á jólakort, líklega árið 1982. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 057
Myndin var tekin 1957 eða 1958 á sviðinu í gömlu Tunnunni, sem nú hýsir Spákonuhofið. Ekki er vitað hvert leikritið var en leikendurnir eru, talið frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir, Ari Jónsson, Hallbjörn Björnsson, Guðrún Þórbjarnardóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir, Stefán Ingólfsson (d.21.10.2004) og Lárus Ægir Guðmundsson.
Höfðaskóli - safn403
Hluti nemenda í Höfðaskóla fædd 1969 á litlu jólum. Frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson (fæddur 1970), Þráinn Bessi Gunnarsson, Sigurbjörn Fanndal þorvaldssson (d.13.8.2000), Guðmundur Kristinn Oddsson, óþekktur, Kristjana Jóhanna Jónsdóttir og Sigríður Ólína Ásgeirsdóttir. Myndin var líklega tekin 1983 eða 1984.
Guðrún Guðmundsdóttir 060
Þessar konur seldu kaffi og meðlæti í Höfðaskóla vorið 1987, á vegum kvenfélagsins Eining, þegar þar fór fram sýning á verkum eldri borgara úr félagsstarfi aldraðra þann vetur. Konurnar eru, frá vinstri: Birna Jónsdóttir Blöndal (d.26.10.2018), Ása Jóhannsdóttir og Lisebet Gestsdóttir.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 042
Þegar fermingarsystkin frá Hólaneskirkju vorið 1963 hittust til að halda uppá fermingarafmæli sitt (30 ára?) buðu þau til sín prestinum sínum og kennurum. Það fólk er á þessari mynd sem Guðmundur J. Björnsson tók. Frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), Sveinn S. Ingólfsson, Elínborg M. Jónsdóttir (d.7.1.2007), Jón S. Pálsson og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016).
Ólafur Bernódusson 1047
Þrjár glaðar stúlkur á Kántrýhátíð í ágúst 1998. Lengst til hægri er María Guðmundsdóttir en hinar tvær eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Sigaug Jónasdóttir 1
Þetta jólakort gerði Sigurlaug Jónasdóttir árið 1974.Sigurlaug Jónasdóttir (4.7.1913 – 30.12.2004) hússtjórnarkennari var afkastamikill listmálari og málaði litrík verk í næfum stíl. Hún hlaut listamannastyrk 1985 og er að því er best er vitað eini sjálfmenntaði listamaðurinn og fyrsti næfistinn sem þann styrk hefur hlotið. Hún hefur tekið þátt í samsýningum hér heima og erlendis. Verk eftir hana eru í eigu Listasafns ASÍ, Listasafns Íslands, Listasafns Hafnarfjarðar og Safnasafnsins á Svalbarðsströnd.
Höfðaskóli - safn475
Myndin var tekin utan við Skíðaskálann 1. maí 1997. Þá fór þar fram bekkjarkvöld nemenda Höfðaskóla fæddra 1988. Gísli Snorrason og Guðbjörg Viggósdóttir áttu bæði syni í bekknum og voru þess vegna á staðnum.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 049
Myndin var tekin um páskana 1991 þegar nokkrir jeppakarlar frá Skagaströnd fóru upp á Langavatn til að veiða gegnum ís. Á ýmsu gekk að komast að vatninu í ófærðinni og erfitt að komast frá bakkanum út á ísinn. Á myndinni er Milan Durica að hjálpa til við að ná rússajeppa Guðmundar J. Björnssonar úr festu.
Þórdís Tryggvadóttir 3
Þessa jólakortamynd sína kallaði Þórdís Tryggvadóttir "Og hoppa álfar hjarni á.....". Ekki er vitað hvenær hún gerði myndina. Þórdís Tryggvadóttir (14.12.1927 – 10.2.2012) stundaði myndlistarnám í Reykjavík og í Danmörku. Þórdís hélt sýningar bæði hérlendis og erlendis og myndskreytti fjöldan allan af bókum, einkum barnabækur. Jólakort voru eitt af því sem hún gerði og þetta er eitt sýnishorn af þeim.
Guðrún Þórbjarnardóttir051
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er verið að reka fé í almenninginn í Spákonufellsrétt einhverntíma á árunum 1960-65. Fólkið í röðinni er frá vinstri: Hafsteinn Sigubjarnarson (d.18.5.1974) með hatt, Konráð Guðmundsson, Jóhann Pétursson (d.13.1999), Björgvin Brynjólfsson (d.28.2.2007), óþekkt barn í grænni úlpu, Halla Björg Bernódusdóttir (nær), óþekktur (fjær), Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011) (fjær), óþekktur strákur (nær), Þórunn Bernódusdóttir (fjær), óþekkt kona (nær), fimm óþekkt, Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996) með hvíta húfu (nær), óþekkt (fjær), Þorkell Magnússon (d. 30.8.1968), óþekkt kona, Jóhannes Hinriksson (d.27.10.1973), Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986) og Steingrímur Jónsson (d.15.1.1992). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Þórdís Tryggvadóttir 12
"Búkolla" er verk eftir Þórdísi Tryggvadóttur frá 1978. Þórdís Tryggvadóttir (14.12.1927 – 10.2.2012) Stundaði myndlistarnám í Reykjavík og í Danmörku. Þórdís hélt sýningar bæði hérlendis og erlendis og myndskreytti fjöldan allan af bókum, einkum barnabækur. Jólakort voru eitt af því sem hún gerði og þetta er eitt sýnishorn af þeim.
Höfðaskóli - safn412
Myndin var tekin á tröppunum sunnan á "Gamla skólanum" eða Bjarmanesi eins og húsið heitir. Þar var rekinn barnaskóli Skagastrandar í áratugi. Í öftustu röð eru frá vinstri: Þorgerður Laxdal (d.27.6.2013), Hrefna Björnsdóttir (d. 8.10.2018) úr Stórholti og Birna Laxdal. Í næst öftustu röð eru frá vinstri: Helga Berndsen frá Karlsskála, Ólína Marta Steingrímsdóttir (d.4.2.1994) frá Höfðakoti, Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (d.6.3.2007) frá Læk, Sigurlaug Magnúsdóttir og Anný Jóhannsdóttir. Í næst fremstu röðinni eru, frá vinstri: Guðrún Björnsdóttir, Sigmund Jóhannsson (d.19.5.2012), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir í Reykholti og Anna Steingrímsdóttir (d.26.3.2018) frá Höfðakoti. Í fremstu röð, frá vinstri: ?Edda Pálsdóttir? (d.8.4.2016), Ingveldur Anna Pálsdóttir (d.6.8.2020), Ása Pálsdóttir og Stella Magnúsdóttir (d.14.1.2011).
Höfðaskóli - safn474
Myndin var tekin 1. maí 1997 í Skíðaskálanum þegar þar stóð yfir bekkjarkvöld nemenda Höfðaskóla fæddra 1988. Fólkið á myndinni átti börn í bekknum, þau eru frá vinstri: Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018), Aðalheiður Guðmundsdóttir og Guðbjörg Kristinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1486
Mynd frá opnun gámastöðvar Gámafélagsins og Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar ehf 29. júlí 2010. Á myndinni eru, frá vinstri: Adolf H. Berndsen oddviti sveitarfélagsins Skagastrandar, Vilhelm B. Harðarson eigandi og framkvæmdastjóri félagsins og Magnús B. Jónsson sveitarstjóri. Á myndinni eru þeir að klippa borða og opna þannig gámastöðina formlega.
Óskar Kristinsson safn 119
Ekki er vitað hvað var í gangi þegar myndin var tekin. Gúmmíbátarnir tveir eru á leið frá einhverju skipi, líklega Arnari Hu 1, yfir í Örvar Hu 21. Myndina tók Ólafur Ásgeirsson 24. ágúst 1996.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 157
Ardís Ólöf Arelíusdóttir (d.12.9.2018) sminkar tengdason sinn, Magnús B. Jónsson, áður en hann stígur á svið í leikritinu "Síldin kemur og síldin fer", sem Leikklúbbur Skagastrandar sýndi vorið 1987, undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar.
Helgi Gunnarsson 26
Myndin var tekin sumarið 1997 í reisugilli íþróttahússins. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: óþekktur, Sigurjón Ástmarsson, Rúnar Kristjánsson, Baldvin Hjaltason, Rolf Árnason (d.3.6.2014) og Helgi Gunnarsson sem situr á stólnum.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 045
Myndin var tekin þegar verið var að leita að heitu vatni með því að bora tilraunaholu í landi Hafurstaða eða Ytri Eyjar. Því miður skilaði leitin engum árangri frekar en holur sem boraðar voru hingað og þangað í grennd við Skagatrönd. Guðmundur J. Björnsson gröfumaður tók myndina. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn167
Myndin var tekin þegar áhöfn Örvars Hu 21 fékk viðurkenningu frá fiskútflytjanda fyrir gæðaframleiðslu um borð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það upp úr 1990. Áhafnarmeðlimirnir eru, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Níels Grímsson (nær), óþekktur (fjær), Gunnar Reynisson, Þráinn Bessi Gunnarsson, Guðmundur E. Guðmundsson, Ágúst Ómarsson, Jóhann Ásgeirsson, óþekktur, Gunnar Þröstur Ásgeirsson, Hafþór Gylfason, Grétar Smári Hallbjörnsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Ólafur Ásgeirsson og Einar Haukur Arason. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari480
Myndin var tekin á markaði Kaupfélags Húnvetninga í félagsheimilinu Fellsborg. Myndin var líklega tekin á níunda áratugnum. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Guðný Finnsdóttir, óþekkt, Ingibjörg Kristinsdóttir (nær), óþekkt (fjær), Helga Hermannsdóttir, Kristján Kristjánsson (d.10.10.2007) og Árný Hjaltadóttir kona hans.
Jóhann Briem 1
Þetta jólakort gerði Jóhann Briem. Ekki er vitað hvenær. Jóhann Briem (1907 - 1991) var í listnámi hjá Jóni Jónssyni málara, Eyjólfi Eyfells og Ríkharði Jónssyni. Hélt síðan til Dresden í Þýskalandi 1929 og nam list sína þar til 1934. Heimkominn stundaði hann listsköpun sína ásamt því að kenna í 35 ár við Gagnfræðaskóla Vesturbæjar. Manneskjan og dýr eru oft í fyrrúmi í verkum Jóhanns.
Ólafur Bernódusson 1043
Eitt af atriðunum sem boðið var uppá á Kántrýhátíð í ágúst 1998 var þrautakeppni á planinu hjá rækjuvinnslunni. Þar gátu börn og fullorðnir spreytt sig í þrautbraut sem fólst í pokahlaupi, göngu á jafnvægisslá, skríða gegnum tunnu, skríða undir lága slá og sprengja blöðru með því að setjast á hana. Keppendum var skipt eftir aldri. Á myndinni eru tvö börn að ljúka við jafnvægisslána eftir að hafa komið að henni í pokahlaupi.
Selma P. Jónsdóttir 7
Þessa mynd kallar höfundurinn, Selma P. Jónsdóttir, "Áning". Ekki er vitað hvenær Selma gerði myndina. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Höfðaskóli - safn541
Nemendur Höfðaskóla sem fæddust árið 1992 bíða eftir vitnisburðarblöðunum sínum á sviðinu í Fellsborg einhverntíma kringum 2000. Dagný Rósa Úlfarsdóttir kennari þeirra er til vinstri ásamt skólastjóranum, Ingibergi Guðmundssyni. Nemendurnir eru, frá vinstri: Valþór Óli Vilhelmsson, Laufey Sunna Guðlaugsdóttir, Laufey Inga Stefánsdóttir, Kristján Ýmir Hjartarson, Karl Aron Bender, Elías Kristin Sæmundsson, óþekktur og Alexander Ragnarsson. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1096
Arnar Hu 1 kom til heimahafnar frá Vigo á Spáni í fyrsta sinn í lok mars 1996. Tekið var á móti honum með pompi og pragt. Meðal annars blasti þessi borði við skipinu á síldarþrónum þegar það kom í höfn.
Skagaströnd - safn516
4. desember 1998 á jólhlaðborði í Kántrýbæ, eldri borgarar að gera sér glaðan dag. Frá vinstri: Jónína Valdimarsdóttir (d. 12.3.2020), Ragnhildur J. Jónsdóttir (d.19.1.2005), Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004), Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004).
Höfðaskóli - safn637
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni er Auðna Ýrr Oddsdóttir að teikna mynd til að setja á plakatið á borðinu framan við sig.
Þórdís Tryggvadóttir 11
"Fagrar heyrði ég raddirnar" kallaði Þórdís Tryggvadóttir þessa mynd sina. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Þórdís Tryggvadóttir (14.12.1927 – 10.2.2012) stundaði myndlistarnám í Reykjavík og í Danmörku. Þórdís hélt sýningar bæði hérlendis og erlendis og myndskreytti fjöldan allan af bókum, einkum barnabækur. Jólakort voru eitt af því sem hún gerði og þetta er eitt sýnishorn af þeim.
Óþekktur ljósmyndari456
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það var í kveðjuhófi sem haldið var Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) til heiðurs þegar hún lét af störfum hjá Kaupfélagi Húnvetninga á Skagaströnd eftir áratuga störf. Hófið var haldið á Hótel Dagsbrún. Fólkið vinstra megin við borðið er, talið frá vinstri: Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006), Halldóra Þorláksdóttir (d.27.12.2017), Eðvarð Hallgrímsson, Jón Jónsson (d.9.7.1991), Hallbjörn Hjartarson og Halldór Hermannsson. Hægra megin við borðið, talið frá vinstri: Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016), Vigdís Viggósdóttir, óþekkt, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Helga Guðmundsdóttir, Steinunn Friðriksdóttir og Helga Hermannsdóttir.
Höfðaskóli - safn439
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1989 í pitsupartýi í Kántrýbæ 19. maí 2000. Vinstra megin við borðið, talið inn eftir því: Ásþór Óðinn Egilsson, Arnrún Bára Finnsdóttir, Maríanna Ástmarsdóttir og .....?Einarsson. Hægra megin við borðið. inn eftir því: Guðmundur Ingi Ólafsson (d.8.11.2006), Sigþór Ottó Hallgrímsson og Almar Freyr Fannarsson. Ef þú veist hvað drengurinn í grænu peysunni heitir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson safn094
Hjörtur Guðmundsson skipstjóri þakkar séra Agli Hallgrímssyni (d.9.6.2021) blessun og fyrirbænir í brúnni á Helgu Björgu Hu 7 eftir að hún kom fyrst í heimahöfn á Skagaströnd. Aðrir á myndinni eru, frá vinstri: Hafsteinn Pálsson, Jóhann Símonsen, Gylfi Guðjónsson og Lárus Ægir Guðmundsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir en hún var tekin 1995 eða 1996.
Höfðaskóli - safn569
Nemendur Höfðaskóla í skólaferðalagi í Danmörku einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Strákarnir eru, frá vinstri: Ívar Gylfason, Sindri Jóelsson, Óðinn Örn Sævarsson og Oddur Valdimarsson
Helgi Gunnarsson 22
Alda Ragnheiður Sigurjónsdóttir kona Helga Gunnarssonar verktaka hugar að veitingum sem þau hjón buðu starfsmönnum sínum upp á í reisugilli íþróttahússins sumarið 1997.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 034
Guðmundur J. Björnsson tók þessa mynd þegar nýsmíðin Ásdís Hu 10 var sjósett í fyrsta sinn árið 1971. Myndin var tekin á því augnabliki þegar taug, sem fest var í mastrið á myndinni, slitnaði. Ef grannt er skoðað má sjá gusugang þar sem endinn smellur á sjónum. Ásdís sökk 3. desember 1971 við Þorlákshöfn en mannbjörg varð. Mastrið á myndinni var annað af tveimur sem héldu uppi röri frá verksmiðjunni yfir í mjölskemmuna. Eftir því var mjölinu dælt til sekkjunnar í skemmunni.
Óþekktur ljósmyndari470
Myndin var tekin á litlu jólum í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Á henni er Guðlaugur Hjaltason til hægri en maðurinn til vinstri er óþekktur Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn516
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 1983 þar sem nemendur fæddir 1972 flytja skemmtiatriði með kennaranum sínum. Aftari röð, frá vinstri: Hólmfríður Oddsdóttir, Skúli Tómas Hjartarson, Óskar Þór Óskarsson, Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Svava Guðrún Sigurðardóttir og Halldór Gunnar Ólafsson. Fremri röð, frá vinstri: Karl Lúðvíksson kennari, Hólmgeir Kristmundsson, Hjalti Kristjánsson, Stefán Sveinsson og Gunnar Þröstur Ásgeirsson.
Ólafur Bernódusson 1033
Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til hægri óskar Guðjóni Guðjónssyni skipstjóra á Arnari Hu 1 til hamingju með mettúr í september 1998. Með Guðjóni er sonur hans Kristján Pétur.
Höfðaskóli - safn427
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 24. febrúar 2006. Frá vinstri: óþekkt, Kristján Heiðmar Kristjánsson og Elna Ragnarsdóttir.
Barbara Árnason
Þessa mynd af hestum á mismunandi árstíðum gerði Barbara Árnason á jólakort. Ekki er vitað hvenær hún gerði myndina. Barbara Árnason (Barbara Moray Williams Árnason) (19.4.1911 – 31.12.1975) var ættuð frá Hampshire í Suður-Englandi. Hún stundaði nám listaskólann í Winchester og í Royal Collage of Art í London þaðan sem hún útskrifaðist 1935. Hún teiknaði fjöldan allan af bókakápum og myndskreytti sumar þeirra. Einnig er hún þekkt fyrir vefnaðarverk sín sem voru m.a. sýnd víða í London og París. Þá gerði hún þekktan myndbálk við Passíusálma Hallgríms Péturssonar.
Óskar Kristinsson - safn205
Fjölmennt gæðanámskeið var haldið 22. september 1992 í Fellsborg. Skagstrendingur hf stóð fyrir námskeiðinu fyrir starfsfólk sem kom nálægt útgerðinni á einn eða annan hátt. Á þessari mynd eru vinstra megin við borðið næst okkur, talið frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Hafþór Smári Gylfason, Stefán Sveinsson, Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004), Ingólfur Sveinsson, óþekktur, Steinunn Grímsdóttir og Sigrún Jónsdóttir. Hægra megin við borðið talið inneftir því: Steindór R. Haraldsson, Jón Sveinsson, óþekktur, Óskar Þórðarson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
1
…
87
88
89
…
104
Leita í myndasafninu
Leita