Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Guðrún Guðmundsdóttir 078
Hluti sýnenda á sýningu eldri borgara í Höfðaskóla í desember 1987. Sýndir voru munir sem fólkið vann í félagsstarfi aldraðra undir leiðsögn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur. Konurnar á myndinni eru, í aftari röð frá vinstri: Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994), Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003). Sitjandi: Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) vinstra megin og Sigríður Fanný Ásgeirsdóttir (d.11.12.2006).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1499
Hallbjörn J. Hjartarson með myndarlegt höfuðskraut sem Ólafur Thorarensen gaf honum í samkvæmi 18. september 2012. Samkvæmið var haldið þegar sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi kom í Kántrýbæ með fríðu föruneyti til að heiðar Hallbjörn fyrir framlag sitt til sveitatónlistar á Íslandi. Heiðrunin kom frá: "The Country Music Association", sem eru samtök kántrýtónlistarfólks í USA. Vinstra megin við Hallbjörn er Þórður Árnason gítarleikari.
Þórdís Tryggvadóttir 9
"Gáttaþefur" er jólakort eftir Þórdísi Tryggvadóttur. Ekki er vitað hvenær Þórdís gerði myndina. Þórdís Tryggvadóttir (14.12.1927 – 10.2.2012) stundaði myndlistarnám í Reykjavík og í Danmörku. Þórdís hélt sýningar bæði hérlendis og erlendis og myndskreytti fjöldan allan af bókum, einkum barnabækur. Jólakort voru eitt af því sem hún gerði og þetta er eitt sýnishorn af þeim.
Höfðaskóli - safn629
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni eru Hildur Inga Rúnarsdóttir og Jón Örn Stefánsson í tunnum sem þau voru að vinna með. Kennarinn þeirra Guðrún Kristjánsdóttir stendur hjá þeim.
Guðrún Guðmundsdóttir 15
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd eru Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) Vík á Skagaströnd til vinstri og Pétur Björnsson (d.19.1.1997) Skriðulandi til hægri. Á myndinni eru þeir að grínast eitthvað með trúðagleraugun sem Pétur er með.
Höfðaskóli - safn603
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg einhverntíma á árunum kringum 1990. Á henni er einn bekkur að sýna atriðið sitt. Nemendurnir eru, frá vinstri: Jóhannes Heiðmar Indriðason, Viktor Pétursson, Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, óþekkt, Sylvía Kristín Sigurþórsdóttir, María Jóna Gunnarsdóttir, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Ólafur Elínarson og Ragna Fanney Gunnarsdóttir
Óskar Kristinsson safn123
Starfsmenn Skagstrendings hf og makar í rútu á leið í menningarferð til Reykjavíkur. Fólkið í vinstri sætaröðinni er, talið aftur eftir bílnum: Sævar R. Hallgrímsson, Sólveig Þorvaldsdóttir og Kristján Alexandersson, Bóel Hallgrímsdóttir og Björgvin Karlsson, Axel Hallgrímsson (d.25.2.2018) og Herborg Þorláksdóttir, Gunnar Jón Jónsson. Í aftasta sætinu frá vinstri: Inga Matthíasdóttir, Friðrik Gígja og Ingibjörg Skúladóttir. Í hægri sætaröðinni eru, talið aftur eftir bílnum: Guðbjörg Ólafsdóttir, Guðmundur Jónsson, Gylfi Guðjónsson, Sigrún Jónsdóttir og Vigdís Viggósdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær hún var tekin. Myndina tók Vilhelm Þórarinsson.
Guðrún Guðmundsdóttir 041
Eldri borgarar í Austur Húnavatnssýslu fóru í sumarferð 9. - 12. júní 1992. Farið var yfir Kjöl og ýmsir staðir á suðurlandi og suð-vesturlandi skoðaðir. Á myndinni eru fararstjórarnir í ferðinni Guðrún Þ. Guðmundsdóttir til vinstri og Elísabet Sigurgeirsdóttir (d.11.11.2015) til hægri. Á milli þeirra er Guðmundur Frímann Þorsteinsson bílstjóri hópsins. Myndin var líklega tekin í Perlunni.
Ólafur Bernódusson 1048
Myndin var tekin í ágúst 1998 á Kántrýhátíð þegar þeir félagar, Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) og Jón E. Kristjánsson (d.20.6.2014), spila á sviðinu. Kristján á sög og Jón á harmóniku. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn440
Nemendur Höfðaskóla fædd 1989 gerðu sér glaðan dag í Kántrýbæ 19. maí 2000. Á myndinni eru í góðri sveiflu, frá vinstri: Maríanna Ástmarsdóttir, Arnrún Bára Finnsdóttir, Guðmundur Ingi Ólafsson (d.8.11.2000) og .....?Einarsson. Ef þú veist hvað drengurinn, Einarsson, heitir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn499
Myndin var tekin á flippíþróttadegi Höfðaskóla í íþróttahúsinu 2000 eða 2001. Þá voru þessir krakkar í 3. bekk. Krakkarnir eru, frá vinstri: Laufey Inga Stefánsdóttir, Guðlaugur Ómar Guðmundsson, Alexander Ragnarsson, Laufey Sunna Guðlaugsdóttir, Kristján Ýmir Hjartarson, Karl Aron Bender, Þórir Óskar Björnsson og Þórður Indriði Björnsson. Kennarinn framan við hópinn er Ingibjörg Jónasdóttir.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 043
Myndina tók Guðmundur J. Björnsson í Hólaneskirkju eldri. Þá fór þar fram messa sem fermingarsystkin frá árinu 1963 sóttu. Á myndinni les eitt þeirra, Kolbrún Jónsdóttir, úr ritningunni. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), sem fermdi hópinn, hlýðir á lesturinn til vinstri.
Bjarni Jónsson 42
Bjarni Jónsson gerði þessa mynd fyrir jólakort, líklega árið 1980. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson 1094
Gylfi Sigurðsson bíður eftir nýjum bát í flota Skagstrendinga 14. maí 2014. Þá var að koma til hafnar nýr notaður bátur í eigu Vík ehf. Báturinn hét Kristinn SH 712 en hlaut nafnið Alda Hu 112 eftir að hann komst í eigu Víkur. Gylfi var á þessum tíma landmaður í beitningu hjá Vík ehf.
Höfðaskóli - safn581
Myndin var tekin á skóla-íþróttamóti líklega á Húnavöllum. Á myndinni eru nokkrir keppendur úr Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1990. Á henni eru, frá vinstri: Guðný Finnsdóttir (nær), Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir (fjær), Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (nær) og Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir (fjær). Strákurinn í forgrunninum er óþekktur.
Sólveig Eggertz Pétursdóttir
Myndina "Af sama stofni" gerði Sólveig Eggertz Pétursdóttir á rekaspýtu árið 1983. Sólveig Eggertz Pétursdóttir (29.5.1925 – 16.3.2016) nam myndlist á Íslandi og í London auk fjölda námskeiða sem hún sótti. Sólveig hélt fjölda listsýninga á Íslandi, Evrópu og í Bandaríkjunum. Hún er þekktust fyrir myndir sínar sem hún málaði á rekavið þó hún málaði einnig olíu- og vatnslitamyndir á hefðbundinn striga og pappír. Síðasta sýning á verkum hennar var á Hrafnistu á níræðisafmæli hennar en þar dvaldi hún síðustu æviár sín.
Snorri Arinbjarnar 1
Snorri Arinbjarnar gerði þessa mynd og kallaði hana "Bátar". Myndina gerði hann 1945. Snorri Arinbjarnar (1.12.1901 – 31.5.1958) stundaði myndlistarnám hjá Axel Revold í Ósló. Hann dvaldi töluvert á Blönduósi og til eru mörg verk eftir hann þaðan. Verk Snorra eru eftirsótt og eru víða til í listasöfnum og í einkaeigu.
Óskar Kristinsson - safn185
Ekki er vitað um tilefni fundarins á myndinni og ekki vitað hvenær hún var tekin en hann var haldinn á Hótel Dagsbrún. Ljósmyndarinn er líka óþekktur. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Steindór R. Haraldsson, Sigurjón Guðbjartsson, Sigríður Gestsdóttir, Haraldur Árnason, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) og Kristinn Guðmundsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 130
Hópur fermingarbarna utan við Hólaneskirkju (eldri) á fermingardaginn sinn vorið 1985. Á myndinni eru frá vinstri: Vigdís Ómarsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Dagbjört Jóhannsdóttir, Hans Birgir Högnason (fjær), Hafdís Fanndal Þorvaldsdóttir, Baldur Bragi Eðvarðsson (fjær, snýr baki í myndavélina), Erlingur Ottósson, Hallgrímur Oddsson, þorsteinn Styrmir Jónsson, Sveinn Ingvar Jónasson, Ægir Thorberg Jónsson, Viggó Magnússon og séra Oddur Einarsson. Krakkarnir í baksýn eru óþekktir en þar má sjá hluta af uppslætti fyrir nýja Hólaneskirkju.
Barbara Árnason
Barbara Árnason gerði þessa hestamynd á jólakort. Ekki er vitað hvenær. Barbara Árnason (Barbara Moray Williams Árnason) (19.4.1911 – 31.12.1975) var ættuð frá Hampshire í Suður-Englandi. Hún stundaði nám listaskólann í Winchester og í Royal Collage of Art í London þaðan sem hún útskrifaðist 1935. Hún teiknaði fjöldan allan af bókakápum og myndskreytti sumar þeirra. Einnig er hún þekkt fyrir vefnaðarverk sín sem voru m.a. sýnd víða í London og París. Þá gerði hún þekktan myndbálk við Passíusálma Hallgríms Péturssonar.
Höfðaskóli - safn535
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það var einhverntíma kringum árið 2000. Á henni eru nemendur fæddir 1984 að bíða eftir vitnisburði sínum fyrir veturinn í Höfðaskóla. Nemendurnir eru, frá vinstri: Hákon Unnar Þórarinsson, Árni Halldór Eðvarðsson, Amy Ósk Hentze Ómarsdóttir, Leó Kristberg Einarsson, Jón Ingi Ragnarsson, Guðni Már Lýðsson, Heiða Berglind Fannarsdóttir, Rebekka Laufey Ólafsdóttir og María Guðrún Guðmundsdóttir.
Guðrún Guðmundsdóttir 047
Í ágúst 1993 bauð Skagstrendingur hf eldri borgurum á Skagaströnd í dagsferð um Vestur Húnavatnssýslu. Á myndinni er hópurinn sem fór í ferðina undir fararstjórn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur. Frá vinstri: Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007) frá Másstöðum en seinna í Röðulfelli á Skagaströnd, Ólafur Pálsson (d.26.3.2004) frá Björgum, Fanney Halldórsdóttir (d.21.6.2005) frá Sviðningi, Heiðbjört Lilja Halldórsdóttir (d.1.7.2019) frá Eyjakoti, Júlíus Holtason Líndal bílstjóri, Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) frá Kárastöðum á Skagaströnd, Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) Skagaströnd, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) frá Asparlundi á Skagaströnd. Litla stúlkan á myndinni er Elínborg Á. Árnadóttir, dóttir Guðrúnar fararstjóra.
Skagaströnd 1981 og 82
Sjómannadagurinn á Skagaströnd 1981 og 1982 einnig koma Örvars Hu 2, 1982. Ekkert tal en hljóð og mynd í góðu lagi, tími 16 mínútur. Myndataka: Sigursteinn Guðmundsson.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 039
Guðmundur J. Björnsson tók þessa mynd að aflokinni æfingu skipverja á Arnari Hu 1 - Japans Arnari - í notkun flotbúninga. Birgir Þórbjarnarson stýrimaður skolar af búningunum. Mennirnir í búningunum eru, frá vinstri: Ómar Jakobsson?, Hafþór Gylfason, Vilhelm Jónsson og óþekktur sem er að tala við Guðjón Ebba Sigtryggsson (d.16.7.2017) skipstjóra. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari479
Starfsfólk Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd í kaffipásu frá markaðssölu verslunarinnar í félagheimilinu Fellsborg. Fólkið er, frá vinstri: hjónin Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012) og Hallbjörn Hjartarson, Helga Hermannsdóttir og Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það á áttunda áratugnum.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 040
Hópur fermingarsystkina hittist til að halda upp á fermingarafmæli sitt, líklega 30 ára. Myndina tók Guðmundur J. Björnsson í Skátaskálanum. Standandi frá vinstri: Sigurjón Ástmarsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Guðmundur J. Björnsson, Ómar Jakobsson, Örn Berg Guðmundsson, Þorvaldur Skaftason, Gunnlaugur Sigmarsson, Steindór R. Haraldsson, Guðmundur Guðmundsson og Gísli Kristjánsson. Sitjandi frá vinstri: Óþekkt Þorbjörnsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Matthildur Hafsteinsdóttir Fosdal, Jóhanna Hallgrímsdóttir og Kristín Sigurðardóttir.
Ólafur Bernódusson 964
Myndin var tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Á henni er Hallbjörn Hjartarson sem hélt hátíðina. Hallbjörn virðist áhyggjufullur á myndinni enda veðjaði hann töluverðu með hátíðahöldunum.
Ólafur Bernódusson1082
Myndin var tekin í ágúst 1996 þegar hópur Skagfirðinga var á ferð á Skagaströnd með mikinn fjölda hrossa. Ekki er vitað um tilgang ferðarinnar nema það hafi verið til að liðka hrossin.
Höfðaskóli - safn568
Ungir nemendur Höfðaskóla bíða prúðir eftir mat sínum á veitingahúsi í Kaupmannahöfn í skólaferðalagi einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Frá vinstri: Friðvin Ingi Ernstsson Berndsen, Sigurgeir Snævar Árnason, Jón Atli Magnússon og Eyþór Kári Egilsson
Árni Geir Ingvarsson - safn 1488
þessi mynd var tekin á einhverri Kátrýhátíðinni en ekki er vitað hvenær. Á henni spjalla þeir saman með hattana sína, Viggó Brynjólfsson til vinstri og Stefán Jósefsson til hægri.
Ólafur Bernódusson1173
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru tæknimennirnir sem sáu um hljóð og lýsingu á samkomunni. Birkir Freyr Gunnarsson til vinstri og Ásdís Birta Árnadóttir til hægri.
Bjarni Jónsson 50
Þetta er mynd af jólakorti frá 1962 eftir Bjarna Jónsson. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Höfðaskóli - safn408
Þessi mynd var tekin á skólaslitum Höfðaskóla í Fellsborg. Börnin á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, lena Rut Jónsdóttir, óþekkt, Alma Eik Sævarsdóttir, Ragnar Már Björnsson, Marínó Freyr Jóhannesson, Ómar Ísak Hjartarson, óþekktur, Ágústa Lóa Jóelsdóttir og óþekktur. Kennararnir lengst til vinstri eru óþekktir. Börnin fæddust 1990 þannið að myndin hefur líklega verið tekin einhverntíma á árunum 1997 - 2000. Ef þú þekkir einhvert óþekktu barnanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Selma P. Jónsdóttir 31
Rjúpur í vetrarbúningi eftir Selmu P. Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Ólafur Bernódusson1129
Myndin var tekin í afmælishófi í Fellsborg þegar félagar í Leikklúbbi Skagastrandar, ásamt mökum, héldu upp á 20 ára afmæli klúbbsins í desember 1995 með kaffi- og skemmtikvöldi. Fyrir kvöldið var búið að skipta félögunum í hópa sem allir áttu að koma með eitt frumsamið skemmtiatriði. Einnig þurftu allir að mæta með einhvers konar höfuðfat. Á þessari mynd eru Lovísa Vattnes (d.26.3.2018) til vinstri og Vigdís Ómarsdóttir hægra megin að flytja skemmtiatriði. Ingibergur Guðmundsson og Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006) fylgjast spennt með.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1516
Á myndinni, sem tekin var á einhverjum sjómannadegi, sýnir landhelgisþyrlan Sif björgun með því að hífa upp mann úr sjónum. Reyndar er maðurinn á myndinni úr áhöfn þyrlunnar og á leiðinni niður til að aðstoða mennina í sjónum við að setja á sig hífingarbeltið á réttan hátt.
Höfðaskóli - safn429
Leikið atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 24. febrúar 2006. Frá vinstri: óþekkt, Jóhann Már Berry, Katrín Guðmundsdóttir og óþekkt.
Guðrún Guðmundsdóttir 11
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Norðurland 12. - 15. júní 1990. Í ferðinni gisti hópurinn á Húsavík. Á þessari mynd eru þeir Björn Kristjánsson (d.18.7.1998) Húnsstöðum til vinstri og Sófus Guðmundsson (d.2.8.1991) Skrapatungu til hægri.
Ljósmyndakeppni 2022 67
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Þórey Jónsdóttir og sendi inn í flokkinn "Heimili".
Selma P. Jónsdóttir 24
Myndin á þessu jólakorti er eftir Selmu Polly Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Höfðaskóli - safn563
Myndin var tekin einhverntíma á árunum 2000 - 2003 í Danmörku af nemendum úr Höfðaskóla í skólaferðalagi. Krakkarnir á mýndinni eru, frá vinstri: Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Jóna Gréta Guðmundsdóttir, Kristján Pétur Guðjónsson, Ívar Gylfason og Sindri Jóelsson
Árni Geir Ingvarsson - safn 1499
Á einni kántrýhátíðinni mætti KK og hélt námskeið í skólanum í götuspilamennsku (buski). Einnig kom hann fram á hátíðinni m.a. með tónleikum í Bjarmanesi. Á myndinni er KK (Kristján Kristjánsson) til hægri á spjalli við Steindór Haraldsson sem er vinstra megin. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvaða ár þetta var.
Ólafur Bernódusson 1049
Myndin var tekin af hópreið hestamanna á Kántrýhátíð í ágúst 1998. Hestamennirnir eru, frá vinstri: Magnús B. Böndal (d.7.9.2001), Magnús Hjaltason (d.16.6.2014), óþekktur, Jóel Berg Friðriksson og Kári Lárusson en aðrir eru óþekktir. Myndin var tekin þegar hestamennirnir stiltu sér upp á hæðina fyrir neðan stjórnsýsluhúsið þar sem fram fór brekkusöngur í framhaldinu.
Óskar Kristinsson - safn195
Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, annar frá hægri, og Magnús Schram fisksölumaður, lengst til hægri, hitta viðaskiptavini í Japan 27. ágúst 1991. Japanarnir heita Jun Hariya og Masatashi Hirooha samkvæmt áleturn aftan á myndinni.
Halldór Gunnar Ólafsson 3
Myndin var líklega tekin í 10 eða 11 ára afmæli Halldórs Gunnars Ólafssonar 15. júní 1982 eða 83 utan við heimili hans á Bogabraut 27. Á myndinni eru frá vinstri: Þorlákur Sigurður Sveinsson, Stefán Sveinsson, Ægir Thorberg Jónsson, Halldór Gunnar, Viggó Magnússon og Baldur Magnússon.
Óskar Kristinsson safn 021
Myndin var tekin í Bergen í Noregi 1992 þegar stjórn Skagstrendings hf og yfirmenn á Arnari Hu 1 voru þar að kynna sér smíði á nýjum frystitogara, sem þar var byggður fyrir félagið. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), Magnús B. Jónsson, óþekktur, Guðjón Guðjónsson og Gylfi Sigurðsson.
Óskar Kristinsson - safn 229
Jólakort frá Skagstrendingi hf jólin 1982. Kortið prýðir mynd af nýsmíðuðum frystitogaranum Örvari Hu 21.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 111
Líklega er þetta hljómsveitin Janus á sviðinu. Söngvarinn er Þorvaldur Skaftason og Guðmundur Jónsson spilar á gítarinn. Aftan við þá spilar Kristján Blöndal á trommurnar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 018
Myndin var tekin í Bergen í Noregi 1992 þegar stjórn Skagstrendings hf og yfirmenn á Arnari Hu 1 voru þar að skoða teikningar af nýjum frystitogara sem þar var byggður fyrir félagið. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Magnús B. Jónsson stjórnarmenn, Magnús Sigurðsson vélstjóri og útgerðarstjóri og Kristinn Jóhannsson (d.9.2002) stjórnarmaður.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1497
Lára Rúnarsdóttir og Birkir Rafn Gíslason skemmtu gestum á Kántrýhátíð með tónlistarflutningi. Ekki er vitað hvaða hátíð þetta var.
Óskar Kristinsson safn125
Starfsmenn Skagstrendings hf og makar í menningarferð í Reykjavík uppi á hóteli að snakka saman yfir snakki og fordrykk. Fólkið er frá vinstri: Gylfi Guðjónsson, óþekkt, Bóel Hallgrímsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Finnur Kristinsson og Hlíf Sigurðardóttir. Vilhelm Þórarinsson tók myndina en ekki er vitað hvenær.
Ólafur Bernódusson 1083
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 20. maí 2015 í Fellsborg. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir árið 2002. Þau eru, í fremri röð frá vinstri: Jóhann Almar Reynisson, Dagur Freyr Róbertsson, Daði Snær Stefánsson og Pascal Gruenberger. Aftari röð frá vinstri: Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir, Helga Gunnarsdóttir kennari, Dagný Dís Bessadóttir og Freydís Kristjánsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari421
Myndin er af keppnissveit Kaupfélagsins í kappróðri kvenna á sjómannadegi. Stýrimaður er Sævar Hallgrímsson en ræðarar eru talið fram eftir bátnum: Kolbrún Viggósdóttir, óþekkt, Helga Hermannsdóttir, óþekkt, Hallbjörg Jónsdóttir og óþekkt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið rétt fyrir 1990.
Ljósmyndakeppni 2022 66
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Berglind Rós Helgadóttir og sendi inn í flokkinn "Heimili".
Óskar Kristinsson safn104
Hafþór Gylfason til hægri tekur við viðurkenningu fyrir hönd áhafnarinnar á Örvari Hu 21 fyrir framleiðslu á gæðavöru um borð. Maðurinn til vinstri er Páll Pétursson sölumaður á fiskafurðum í Bandaríkjunum fyrir SH en hann kom til að afhenda viðurkenninguna. Athöfnin fór fram á hótel Dagsbrún. Aðrir á myndinni eru óþekktir en hún var tekin einhverntíma kringum 1990.
Sólveig Eggertz Pétursdóttir
Sólveig Eggertz Pétursdóttir gerði þessa mynd af Árbæ á jólakort. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Sólveig Eggertz Pétursdóttir (29.5.1925 – 16.3.2016) nam myndlist á Íslandi og í London auk fjölda námskeiða sem hún sótti. Sólveig hélt fjölda listsýninga á Íslandi, Evrópu og í Bandaríkjunum. Hún er þekktust fyrir myndir sínar sem hún málaði á rekavið þó hún málaði einnig olíu- og vatnslitamyndir á hefðbundinn striga og pappír. Síðasta sýning á verkum hennar var á Hrafnistu á níræðisafmæli hennar en þar dvaldi hún síðustu æviár sín.
Ljósmyndakeppni 2022 102
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Svanur Sigurbjörnsson og sendi inn í flokkinn "Skuggi/skuggar".
Ljósmyndakeppni 2022 60
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Signý Ósk Richter og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
Selma P. Jónsdóttir 28
Selma P. Jónsdóttir gerði þetta jólakort af hröfnunum en ekki er vitað hvenær. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Höfðaskóli - safn444
Myndin var tekin 13. maí 2000 þegar heldri borgarar úr A- Húnavatnssýslu ferðuðust um á Norðurlandi. Þessi mynd var tekin í stoppi líklega í Síldarminjasafninu á Siglufirði. Fólkið er, frá vinstri: óþekkt, Elísbet Árnadóttir (d.16.3.2017), tvö óþekkt, Kristján A. Hjartarson (d.2.8.2003), Hrefna Hákonardóttir (d.14.12.2004)(fjær), Guðrún Angantýsdóttir (nær) og Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020).
1
…
88
89
90
…
104
Leita í myndasafninu
Leita