Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson1044
Myndin var tekin á brunaæfingu í Höfðaskóla í desember 1992. Þá er skólinn yfirgefinn eftir ákveðnu kerfi eftir því hvar hver og einn er staddur í byggingunni ef eldur kemur upp. Þegar út er komið raða allir sér upp með bekknum sínum og kennarinn telur hvort ekki séu allir komnir út og tilkynnir skólastjóra og eða slökkvistjóra. Á myndinni fer Magnús Ólafsson (d.23.7.2012) slökkvistjóri yfir eldvarnir á heimilum og hvetur nemendurna til að vera brunaverðir, hver heima hjá sér.
Ólafur Bernódusson 1028
Myndin er frá niðurrifi brunarústa Kántrýbæjar í apríl 1998. Syðri hluti hússins brann illa en norður hlutinn slapp. Maðurinn á myndinni er óþekktur.
Selma P. Jónsdóttir 28
Selma P. Jónsdóttir gerði þetta jólakort af hröfnunum en ekki er vitað hvenær. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Ljósmyndakeppni 2022 66
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Berglind Rós Helgadóttir og sendi inn í flokkinn "Heimili".
Óþekktur ljósmyndari479
Starfsfólk Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd í kaffipásu frá markaðssölu verslunarinnar í félagheimilinu Fellsborg. Fólkið er, frá vinstri: hjónin Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012) og Hallbjörn Hjartarson, Helga Hermannsdóttir og Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það á áttunda áratugnum.
Ólafur Bernódusson1084
Myndin var tekin í ágúst 1996 á hafnarsvæðinu á Skagaströnd. Á henni eru slysavarnamenn úr Káraborg á Hvammstanga að æfa sig í meðferð fluglínutækja. Myndin var tekin þegar einn félaginn úr sveitinni skýtur línu yfir á Skúffugarðinn. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson safn105
Séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) biður fyrir og blessar Arnar Hu 1 og áhöfn hans nýkominn til heimahafnar á Skagaströnd í lok mars 1996.
Jónas 32
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) lék í uppfærslu Leikklúbbs Skagastrandar á Gísl leikárið 1979 - 1980. Á myndinni er hann í ljósmyndatöku hjá Jónasi Baldurssyni sem vann síðan myndina þannig að útkoman varð mynd af Bernódusi á hestbaki.
Bjarni Jónsson 7
Bjarni nsson gerði þetta jólakort 1986. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ljósmyndakeppni 2022 79
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Hjalti Viðar Reynisson og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Óskar Kristinsson - safn202
Myndin var tekin á fundi í Noregi 28. maí 1991. Á honum eru þrír Norskir fulltrúar og Sævar Hallgrímsson, með hönd undir kinn, og Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017), með gleraugu. Þeir voru fulltrúar Skagstrendings hf á fundinum. Fundarefnið var líklega að ganga frá ýmsum lausum endum í sambandi við nýsmíði fyrir Skagstrending hf.
Ljósmyndakeppni 2022 12
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Sigríður Björk Sveinsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki. Gestir á sýningunni kusu þessa mynd þá bestu í flokknum.
Ólafur Bernódusson1058
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd er hópurinn að beygja niður Bogabraut á leið sinni á Hnappstaðatúnið.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 041
Karlmennirnir á myndinni eru fermingarbræður en konan er óþekkt. Mennirnir eru að skála í fermingarafmæli sínu, líklega 30 ára. þeir eru, frá vinstri: Steindór R. Haraldsson, Ómar Jakobsson, Gísli Kristjánsson og Guðmundur Guðmundsson. Baksvipurinn er líklega af Erni Berg Guðmundssyni. Guðmundur J. Björnsson, sem er einn af fermingarbræðrunum, tók myndina.
Fisk Seafood - safn 277
Fyrirtækið Norbrit Fish Sales Limited í Grimsby sá lengi vel um að selja afurðir Skagstrendings hf í Bretlandi undir vörumerkinu Eagle Brand. Á þessari mynd, sem tekin var á hótel Dagsbrún 1. júní 1991, afhendir Denis Lumbard, eigandi Norbrit Fish Guðjóni Ebba Sigtryggssyni (d.16.7.2017) skipstjóra á Örvari Hu 21, mynd sem þakklætisvott fyrir góða framleiðsluvöru og góð viðskipti gegnum árin. Við þetta tækifæri afhenti Dennis líka öllum áhafnarmeðlimum Örvars persónulegan viðurkenningarskjöld fyrir viðskiptin. Maðurinn til vinstri er Magnús Schram sem var starfsmaður Fiskileiða en það var sölufyrirtæki Skagstrendiings hf. Í dyrunum stendur Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1490
Myndin var tekin á afmælishátíð leikskólans Barnabóls þegar haldið var upp á 30 ára afmæli hans árið 2007. Börnin á myndinni eru að syngja fyrir gesti.
Sólveig Eggertz Pétursdóttir
"Eftirvænting" er mynd eftir Sólveigu Eggertz Pétursdóttur frá árinu 1983. Sólveig Eggertz Pétursdóttir (29.5.1925 – 16.3.2016) nam myndlist á Íslandi og í London auk fjölda námskeiða sem hún sótti. Sólveig hélt fjölda listsýninga á Íslandi, Evrópu og í Bandaríkjunum. Hún er þekktust fyrir myndir sínar sem hún málaði á rekavið þó hún málaði einnig olíu- og vatnslitamyndir á hefðbundinn striga og pappír. Síðasta sýning á verkum hennar var á Hrafnistu á níræðisafmæli hennar en þar dvaldi hún síðustu æviár sín.
Ljósmyndakeppni 2022 106
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Stefán Jósefsson og sendi inn í flokkinn "Skuggi/skuggar".
Ljósmyndakeppni 2022 42
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Ólafur Bernódusson og sendi inn í flokkinn "Andlit".
Ólafur Bernódusson1110
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Kennararnir höfðu útbúið þrautabraut á skólavellinum sem nemendur fóru í gegnum sér til gamans. Á myndinni er óþekktur nemandi að skríða undir net sem hann má ekki snerta. Ef það gerðist þurfti viðkomandi að fara aftur. Tími var svo tekin á hverjum og einum til gamans.
Höfðaskóli - safn598
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000. Hún var tekin á árshátíð Höfðaskóla það ár í Fellsborg. Krakkarnir eru að flytja atriðið sitt á hátíðinni. Frá vinstri: Þórey Fjóla Aradóttir?, Arnrún Bára Finnsdóttir, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir, Almar Freyr Fannarsson og Ragnheiður Erla Stefánsdóttir.
Leifur Breiðfjörð 1
Þetta jólakort skartar mynd eftir glerlistamanninn Leif Breiðfjörð. Ekki er vitað hvenær Leifur gerði myndina. Leifur Breiðfjörð (24.6.1945) nam í Myndlista-og handíðaskóla Íslands og stundaði síðan nám í glerlist í The Edenburgh College of Art í Edinborg. Leifur hefur verið brautryðjandi í íslenskri glerlist og má finna verk hans víða m.a. sem altaristöflu í Hólaneskirkju og stórt verk í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hann hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum hér á landi og erlendis.
Höfðaskóli - safn423
Myndin var tekin af sviðinu í Fellsborg á árshátíð Höfðaskóla 24. febrúar 2006. Frá vinstri á myndinni: Einar Arason kennari, Friðmar Kári Eiríksson, tveir óþekktir, Egill Örn Ingibergsson, Guðrún Hjltey Hallgrímsdóttir, Birta Dögg Bessadóttir, María Jóna Jónasdóttir, tveir óþekktir, Páll Halldórsson (situr), Birkir Gunnarsson, óþekkt, Elmar Jóhann Grétarsson, Anton Einarsson, Sæunn Ósk Steingrímsdóttir og Guðrún Rós Hjaltadóttir. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ljósmyndakeppni 2022 30
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Erla María Lárusdóttir og sendi inn í flokkinn "Skuggar". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Höfðaskóli - safn623
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Gunnar Þröstur Ásgeirsson er nær okkur og glennir sig fyrir ljósmyndarann en fjær er Erlingur Ottósson.
Guðrún Guðmundsdóttir 030
Vorið 1991 fór hópur eldri borgara í heimsókn til jafnaldra sinna á Blönduósi til að hlýða á ferðakynningu Sigurðar Guðmundssonar. Þá var þessi mynd tekin, frá vinstri: Sigríður Guðlaugsdóttir (d.25.3.1996) frá Bjarmalandi á Skagaströnd, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) frá Lundi á Skagaströnd og Kristófer Guðmundur Árnason (d.10.5.2000) frá Sunnuhvoli á Skagaströnd en seinna á Blönduósi.
Guðrún Guðmundsdóttir 7
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Norðurland 12. - 15. júní 1990. Í ferðinni gisti hópurinn á Húsavík. Á þessari mynd er Sófus Guðmundsson (d.2.8.1991) Skrapatungu með nokkrum ferðafélögum sínum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1489
Myndin var tekin á afmælishátíð leikskólans Barnabóls þegar haldið var upp á 30 ára afmæli hans árið 2007. Maðurinn til hægri, með afmælispakka undir hendinni, er Guðjón Ólafsson sem var skólamálastjóri í A-Hún á þessum tíma. Börnin á myndinni eru flest fyrrverandi nemendur í leikskólanum.
Ólafur Bernódusson1082
Myndin var tekin í ágúst 1996 þegar hópur Skagfirðinga var á ferð á Skagaströnd með mikinn fjölda hrossa. Ekki er vitað um tilgang ferðarinnar nema það hafi verið til að liðka hrossin.
Höfðaskóli - safn535
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það var einhverntíma kringum árið 2000. Á henni eru nemendur fæddir 1984 að bíða eftir vitnisburði sínum fyrir veturinn í Höfðaskóla. Nemendurnir eru, frá vinstri: Hákon Unnar Þórarinsson, Árni Halldór Eðvarðsson, Amy Ósk Hentze Ómarsdóttir, Leó Kristberg Einarsson, Jón Ingi Ragnarsson, Guðni Már Lýðsson, Heiða Berglind Fannarsdóttir, Rebekka Laufey Ólafsdóttir og María Guðrún Guðmundsdóttir.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 039
Guðmundur J. Björnsson tók þessa mynd að aflokinni æfingu skipverja á Arnari Hu 1 - Japans Arnari - í notkun flotbúninga. Birgir Þórbjarnarson stýrimaður skolar af búningunum. Mennirnir í búningunum eru, frá vinstri: Ómar Jakobsson?, Hafþór Gylfason, Vilhelm Jónsson og óþekktur sem er að tala við Guðjón Ebba Sigtryggsson (d.16.7.2017) skipstjóra. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn104
Hafþór Gylfason til hægri tekur við viðurkenningu fyrir hönd áhafnarinnar á Örvari Hu 21 fyrir framleiðslu á gæðavöru um borð. Maðurinn til vinstri er Páll Pétursson sölumaður á fiskafurðum í Bandaríkjunum fyrir SH en hann kom til að afhenda viðurkenninguna. Athöfnin fór fram á hótel Dagsbrún. Aðrir á myndinni eru óþekktir en hún var tekin einhverntíma kringum 1990.
Guðrún Guðmundsdóttir 023
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd spjalla sman yfir kaffibolla, Grímur Gíslason (d.31.3.2007) frá Saurbæ og Guðrún Þ. Guðmundsdóttir fararstjóri frá Skagaströnd.
Guðrún Guðmundsdóttir 090
Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) les upp ljóð eða sögu á hótel Dagsbrún fyrir eldri borgara á Skagaströnd og Blönduósi. Myndin var líklega tekin 1991 eða 1992.
Höfðaskóli - safn567
Hressir nemendur Höfðaskóla í skólaferðalagi í Danmörku einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Frá vinstri: Oddur Valdimarsson, Sindri Jóelsson og Ívar Gylfason.
Óskar Kristinsson - safn161
Myndin var tekin 20. apríl 1992 á fundi með áhöfn Arnars Hu 1 (Japans Arnars) um ýmislegt sem betur mátti fara að mati framkvæmdastjórans Sveins S. Ingólfssonar. Rætt var um öryggismál, veikindi, slys og margt annað sem áhöfnin var beðin að hafa í huga í störfum sínum. Sjómennirnir á myndinni eru, sitjandi frá vinstri: Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017), Gestur Arnarson, Guðmundur E. Guðmundsson og Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004). Standandi frá vinstri: Birgir Þórbjarnarson, Jóhann Ásgeirsson, óþekktur og Stefán Sveinsson. Ekki er vitað hver tók myndina en ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ljósmyndakeppni 2022 104
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Erna Högnadóttir og sendi inn í flokkinn "Skuggi/skuggar".
Guðrún Guðmundsdóttir 19
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd er Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992), Vík á Skagaströnd, reffilegur með hatt á höfði. Hægra megin við hann er bílstjórinn, Frímann Hilmarsson (d.3.12.2009) frá Breiðavaði.
Óskar Kristinsson safn 045
Hjónin Guðjón Guðjónsson og Guðrún Soffía Pétursdóttir á ferðalagi með öðrum starfsmönnum Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn411
Þessi mynd var tekin á tröppunum sunnan á "Gamla skólanum" eða Bjarmanesi eins og húsið heitir. Þar var í áratugi rekinn barnaskóli Skagastrandar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Samkvæmt upplýsingum frá Helgu Berndsen er fólkið á myndinni eftirfarandi. Aftasta röð frá vinstri: Karl Þórólfur Berndsen (d.12.2.1995), Guðný Pálsdóttir (d.17.2.2005), Ingibjörg Lárusdóttir (d.20.9.2010) og Birna Laxdal (d.1983). Miðröð frá vinstri: Pálína Hafsteinsdóttir (d.22.7.2008), Bogga Björnsdóttir, Ásdís Guðmundsdóttir, Þórey Ólafsdóttir, og Hrefna Björnsdóttir (d.8.10.2018). Fremsta röð frá vinstri: Helga Berndsen, Ólína Marta Steingrímsdóttir (d.4.2.1994), Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (Didda) (d.6.3.2007) og Anna Steingrímsdóttir (d.26.3.2018). Stúlkan i glugganum er Þorgerður Laxdal (Didda) frá Felli.
Höfðaskóli - safn472
Bekkjarkvöld í Skíðaskálanum 1. maí 1997. Þarna komu saman nemendur Höfðaskóla fædd 1988 ásamt foreldrum sínum og kennara. Frá vinstri á myndinni: Björgvin Matthías Hallgrímsson, Ester Ösp Víðisdóttir, óþekkt, Víðir Ólafsson, Sigríður Gestsdóttir, Magnús B. Jónsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Rebekka Þórarinsdóttir, Unnur Kristjánsdóttir kennari og Valgerður Guðmundsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn550
Börnin á myndinni eru að bíða eftir heimsókn forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, í Höfðaskóla í október 2002. Börnin eru, frá vinstri: Brynjar Max Ólafsson, Guðjón Örn Kristjánsson, Hanna Rúna Getstsdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir, Alex Már Gunnarsson og Halla Björk Víðisdóttir.
Ólafur Bernódusson1184
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 2016 eða 2017. Á henni eru, á sviðinu, frá vinstri: Arna Rún Arnarsdóttir, Bylgja Hrund Ágústsdóttir og Hekla Guðrún Þrastardóttir.
Óþekktur ljósmyndari472
Sæmundur Gunnarsson verslunarstjóri færir Jóhönnu Sigurjónsdóttur jólapakka í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Guðmundsdóttir 029
20. - 21. ágúst 1991 fór hópur eldri borgara úr Austur Húnavatnssýslu í sumarferð til Stykkishólms og nágrennis. M.a. fór hópurinn í eyjasiglingu um Breiðafjörð en gist var á Hótel Eyjaferðir. Á þessari mynd er fólkið um borð í bát í eyjaferðinni. Frá vinstri: Guðrún Þ. Guðmundsdóttir fararstjóri, óþekkt, Fanney Halldórsdórrir (d.21.6.2005) frá Sviðningi og Jónína Valdimarsdóttir (d. 12.3.2020) frá Kárastöðum á Skagaströnd.
Höfðaskóli - safn399
Myndin sýnir glögglega, með því að vera hreyfð, spenning og eftirvæntingu nemenda í Höfðaskóla þegar þeir tóku á móti forsetahjónunum, Ólafi Ragnari Grímssyni og Dorrit Moussaieff, sem heimsóttu skólann 15. október 2002. Myndin var tekin utan við íþróttahúsið þar sem hjónin voru kvödd í lok heimsóknarinnar í skólann.
Ljósmyndakeppni 2022 45
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Þórey Jónsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gamalt".
Höfðaskóli - safn426
Þórður Indriði Björnsson og Laufey Inga Stefánsdóttir leika í atriði bekkjar síns á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 24. febrúar 2006. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Sólveig Eggertz Pétursdóttir 1
"Við tjörnina" er mynd eftir Sólveigu Eggertz Pétursdóttur frá árinu 1984. Sólveig Eggertz Pétursdóttir (29.5.1925 – 16.3.2016) nam myndlist á Íslandi og í London auk fjölda námskeiða sem hún sótti. Sólveig hélt fjölda listsýninga á Íslandi, Evrópu og í Bandaríkjunum. Hún er þekktust fyrir myndir sínar sem hún málaði á rekavið þó hún málaði einnig olíu- og vatnslitamyndir á hefðbundinn striga og pappír. Síðasta sýning á verkum hennar var á Hrafnistu á níræðisafmæli hennar en þar dvaldi hún síðustu æviár sín.
Höfðaskóli - safn630
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni er Sigvaldi Guðmundsson og óþekktur að skoða einhverja pappíra.
Höfðaskóli - safn500
Myndin var tekin í íþróttahúsinu á flippíþróttadegi Höfðaskóla 2001 eða 2002 Þá voru þessir krakkar í 8. bekk. Krakkarnir eru, frá vinstri: Katrín Inga Hólmsteinsdóttir, Ásdís Adda Ólafsdóttir, Linda ??, Hanna Rúna Gestsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Kristinn Hjálmtýsson, Sindri Njáll Hafþórsson, Friðvin Ingi Ernstsson Berndsen, Eyþór Kári Egilsson (fjær), Albert Ingi Haraldsson og Rósa Björk Blöndal Einarsdóttir. Kennarinn þeirra, lengst til hægri, er Ingibergur Guðmundsson.
Höfðaskóli - safn633
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni, vinstra megin, er Áslaug eða Vilborg Jóhannsdóttir en þær eru eineggja tvíburar og erfitt að þekkja þær í sundur. Stúlkan í hvítu peysunni er óþekkt en ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1035
Myndin var tekin á aðventukvöldi í Hólaneskirkju í desember 1997. Séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) er aftan við altarið en fermingarbörnin eru, frá vinstri: María Guðrún Guðmundsdóttir, Heiða Brglind Fannarsdóttir, Hákon Unnar Þórarinsson og Rebekka Laufey Ólafsdóttir. Börnin tvö eru óþekkt.
Leifur Breiðfjörð 2
Leifur Breiðfjörð gerði myndina á þessu jólakorti. Myndina nefndi hann Jarðteikn en ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Leifur Breiðfjörð (24.6.1945) nam í Myndlista-og handíðaskóla Íslands og stundaði síðan nám í glerlist í The Edenburgh College of Art í Edinborg. Leifur hefur verið brautryðjandi í íslenskri glerlist og má finna verk hans víða m.a. sem altaristöflu í Hólaneskirkju og stórt verk í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hann hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum hér á landi og erlendis.
Höfðaskóli - safn459
Lögreglan skoðar reiðhjól nemenda við Höfðaskóla einhverntíma kringum 2000.
Ólafur Bernódusson1043
Myndin var tekin á brunaæfingu í Höfðaskóla í desember 1992. Þá er skólinn yfirgefinn eftir ákveðnu kerfi eftir því hvar hver og einn er staddur í byggingunni ef eldur kemur upp. Þegar út er komið raða allir sér upp með bekknum sínum og kennarinn telur hvort ekki séu allir komnir út og tilkynnir skólastjóra og eða slökkvistjóra. Á myndinni sýnir Magnús Ólafsson (d.23.7.2012) slökkvistjóri nemendum réttu handtökin við að slökkva eld með slökkvitæki eins og til eru á flestum heimilum - og í skólanum.
Höfðaskóli - safn503
Annar bekkur veturinn 2000 - 2001 á flippíþróttadegi Höfðaskóla í íþróttahúsinu. Á myndinni eru, frá vinstri: Sonja Sif Ólafsdóttir, Ólína Selma þórarinsdóttir, óþekkt, Kristbjörg Dúfa Ragnheiðardóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Sara Rut Fannarsdóttir, Andrea Kristjánsdóttir, óþekkt, Guðjón Örn Kristjánsson, Brynjar Max Ólafsson, Alex Már Gunnarsson, Halla Björk Víðisdóttir og Fanney Svavarsdóttir kennari. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson safn 116
Þyrla hífir veikan sjómann í sjúkrakörfu upp af hvalbaknum á Örvari Hu 21, 16. ágúst 1996. Myndina tók Ólafur Ásgeirsson.
Guðrún Guðmundsdóttir 098
Stór hópur eldri borgara úr Húnavatnssýslu fór í sumarferðalag um Borgarfjörð og Þingvelli 13.- 16. ágúst 1989. Á myndinni er hópurinn að leggja af stað en í dyrum bílsins er Hallur Hilmarsson bílstjóri hópsins.
Selma P. Jónsdóttir 25
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
1
…
89
90
91
…
104
Leita í myndasafninu
Leita