Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn551
Nemendur Höfðaskóla bíða eftir komu forsetans Ólafs Ragnars Grímssonar í heimsókn í skólann í október 2002. Nemendurnir eru, frá vinstri: Ásþór Óðinn Egilsson, óþekktur, Almar Freyr Fannarsson, óþekktur, Oddur Valdimarsson (fjær), Sólrún Ágústa Magnadóttir (nær), Sara Rut Fannarsdóttir, Ómar Ingi Ómarsson og tevir óþekktir.
Ólafur Bernódusson1048
Myndin var tekin í júní 1997 á 20 ára afmælishátíð leikskólans Barnaból. Börnin hafa stillt sér upp við hlið prinsins og prinsessunnar, sem sitja á borðinu. þau eru Hanna María Gylfadóttir og Sævar Hlynur Tryggvason. Vinstra megin við þau standa Elna Ragnarsdóttir og Hafrún Eva Kristjánsdóttir. Hægra megin standa Guðjón Örn Arason og Patrik Snær Bjarnason næst borðinu. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1147
Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri Höfðaskóla 2005 - 2013 í ræðustól á sviðinu í Fellsborg líklega á Elínborgardegi 15. nóvember 2012.
Guðrún Guðmundsdóttir 062
Þessi söngelska og hæfileikaríka fjölskylda söng á Hótel Dagsbrún fyrir eldri borgara frá Hvammstanga þegar þeir heimsóttu jafnaldra sína á Skagaströnd 1987 eða 1988. Söngfólkið er, frá vinstri: Svava Guðrún Sigurðardóttir, Sigurður Skagfjörð Bjarnason (d.16.5.2022), Inga Lára Sigurðardóttir og Sigrún Lárusdóttir.
Ólafur Bernódusson1036
Guðmundur Guðmundsson flytur ræðu kvöldsins á aðventukvöldi í Hólaneskirkju í desember 1997.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 158
Steindór R. Haraldsson í sminkun fyrir hlutverk sitt í leikritinu "Síldin kemur og síldin fer" sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið vorið 1987. Það var Helga Hermannsdóttir sem sá um sminkunina á Steindóri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1513
Krakkar úr vinnuskólanum leika sér í vatnsrennibraut sem útbúin var fyrir þau í brekkunni við íþróttavöllinn. Krakkarnir eru, frá vinstri: Sylvía Hrólfsdóttir, óþekktur, Tanja Rán Einarsdóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir, tvær óþekktar, Líney Þorláksdóttir, Linda Rós Hentze Ómarsdóttir, Anna Dís Ragnarsdóttir og Aldís Birta Árnadóttir. Fólkið uppi á kantinum er óþekkt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 445
Koddaslagur á sjómannadegi 1986. Maðurinn í hvítu skyrtunni er Ágúst Ómarsson en keppinautur hans er óþekktur eins og aðrir á myndinni.
Ólafur Bernódusson1112
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Kennararnir höfðu útbúið þrautabraut á skólavellinum sem nemendur fóru í gegnum sér til gamans. Á myndinni spreyta nemendur sig á að ganga á línu með aðra línu sér til stuðnings. Krakkarnir á myndinni eru óþekktir.
Baltasar Samper
Þessa mynd gerði Baltasar Samper á jólakort 1986. Baltasar Samper fæddist 9. janúar 1938 í Barselona á Spáni og stundaði nám við Listaháskólann þar. Hann hefur búið á Íslandi með Kristjönu konu sinni frá 1963. Hann hefur haldið tugi einkasýninga auk sýninga með Kristjönu. Hans þekktasta verk er líklega málverk sem þekur alla veggi og loft kirkjunnar í Flatey.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1523
Myndin var tekin í sundlaugarpartýi í sundlauginni á Skagaströnd. Krakkarnir á henni eru í froðubaði í heita pottinum og setja ekki fyrir sig að hafa lítið pláss hvert fyrir sig. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn414
Börn að leika á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Myndin var líklega tekin kringum 1988. Börnin eru frá vinstri: Ólafur Magnússon, Jóhannes Heiðmar Indriðason, Viktor Pétursson, Íris Jóna Gunnarsdóttir, óþekkt, Silvía Kristín Sigþórsdóttir og Þorlákur Ómar Guðjónsson.
Ólafur Bernódusson1102
Karitas Pálsdóttir opnaði verslun og heilsurækt í húsi sínu á Fellsbraut 2 í maí 1996. Fyrirtæki sitt nefndi hún Hollt og gott en þar bauð hún upp á nudd, ljósabekk og sauna ásamt því að vera með ýmis konar heilsuvörur til sölu og ráðleggingar um notkun þeirra. Á myndinni er Karitas í huggulegri setustofu þar sem viðskiptavinir gátu sest niður og slakað á.
Óskar Kristinsson - safn 211
Sveinn S. Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, flytur ræðu á einhverjum fundi á Hótel Dagsbrún. Með honum á myndinni er Denis Lumbard fiskkaupmaður frá Bretlandi til hægri og óþekktur maður til vinstri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jónas 62
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru leikararnir Árni Björn Ingvarsson (baksvipur) og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum.
Höfðaskóli - safn428
Framkall á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 24. febrúar 2006. Frá vinstri: Linda Rós Hentze Ómarsdóttir, óþekktur, Ásdís Erla Steingrímsdóttir, Sæþór Bragi Ágústsson, óþekktur, Sylvía Ósk Hrólfsdóttir, Magnús Jens Magnússon, Alma Dröfn Vignisdóttir og Saga Lind Víðisdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1493
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af áramótbrennu á Skagaströnd
Jónas 30
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru eftirfarandi í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Rúnar Loftsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) og Magnús B. Jónsson.
Ólafur Bernódusson1189
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg líklega árið 2016. Á henni dansa kennarar og starfsfólk skólans við undirleik skólahljómsveitar. Hljómsveitina skipuðu Ólafur Halldórsson á bassa, Snæfríður Guðmundsdóttir söng og Laufey Lind Ingibergsdóttir á gítar og söng. Aftan við hljómsveitina má þekkja Finnboga Guðmundsson, Helgu Gunnarsdóttur, í bláum kjól, og Ingu Jónu Sveinsdóttur með appelsínugula hárkollu.
Ólafur Bernódusson1127
Myndin var tekin í afmælishófi í Fellsborg þegar félagar í Leikklúbbi Skagastrandar, ásamt mökum, héldu upp á 20 ára afmæli klúbbsins í desember 1995 með kaffi- og skemmtikvöldi. Fyrir kvöldið var búið að skipta félögunum í hópa sem allir áttu að koma með eitt frumsamið skemmtiatriði. Einnig þurftu allir að mæta með einhvers konar höfuðfat. Á þessari mynd eru allir að taka þátt í einhverjum hreyfileik. Fólkið er, frá vinstri: Jón Ingvar Valdimarsson, Magnús Blöndal (d.7.9.2001), Kristín Jónsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Ingibergur Guðmundsson, Guðný Sigurðardóttir, Hjörtur Guðmundsson, óþekkt, Ingólfur Sveinsson (fjærst), Björn Hallbjörnsson (í miðið), Einar Haukur Arason (næst), Halla Lýðsdóttir En bak við hana er Ari Jón Þórsson, Magnús B. Jónsson, Björn Ingi Óskarsson, Hallbjörg Jónsdóttir, Bryndís Guðjónsdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Sigrún Jónsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Steindór R. Haraldsson.
Höfðaskóli - safn447
Myndin var tekin í vorpartýi kennara Höfðaskóla í íþróttahúsinu eftir skólalok 26. maí 2000. Bannað var að koma í partýið í venjulega klæddur. Á myndinni er Ólafur Bernódusson að sýna listir sínar með bolta íklæddur síðum nærbuxum og stuttbuxum utan yfir og með hnjáhlífar á báðum hnjám.
Ingibergur Guðmundsson 386
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Síldin kemur og síldin fer vorið 1987. Næst okkur á myndinni til vinstri er fyrst óþekktur maður en svo kemur Þröstur Guðbjartsson (d.17.7.2021) sem var leikstjóri sýningarinnar. Þröstur setti upp fleiri sýningar með Leikklúbbnum og var einkar skapandi listamaður. Aðrir á myndinni voru leikarar og starfsmenn við sýninguna.
Höfðaskóli - safn605
Líklega er verið að mála andlit nemendanna vegna flippíþróttadags Höfðaskóla. Myndin var tekin einhverntíma kringum 2002. Á henni eru, frá vinstri: tvö óþekkt, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Helga Dögg Jónsdóttir, Lena Rut Jónsdóttir (fjær) og óþekkt (nær).
Höfðaskóli - safn572
Eyþór Kári Egilsson, Hanna Rúna Gestsdóttir og Ester Ösp Víðisdóttir í skólaferðalagi í Danmörku með skólasystkinum sínum einhverntíma á árunum 2000 - 2003.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1479
Kirkjukór Hólaneskirkju æfir fyrir útimessu á kántrýhátíð einhverntíma á árunum 1998 - 2000. Við píanóið er Óskar Einarsson og presturinn er Guðmundur Karl Brynjarsson. Með kórnum sungu nokkrir gestir við þetta tækifæri.
Jónas 11
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru eftirfarandi í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Hallveig Ingimarsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson,Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003), Elín Njálsdóttir og Ólafur Bernódusson.
Guðrún Guðmundsdóttir 037
Eldri borgarar í Austur Húnavatnssýslu fóru í sumarferð 9. - 12. júní 1992. Farið var yfir Kjöl og ýmsir staðir á suðurlandi skoðaðir. Á myndinni er Guðrún Þ. Guðmundsdóttir fararstjóri frá Skagaströnd að afhenda þeim Ólafi Pálssyni (d. 26.3.2002) frá Björgum til vinstri og Guðbjarti Guðjónssyni (d.23.9.1992) frá Vík á Skagaströnd happadrættisvinninga á hátíðakvöldverðinum. Vinningarnir voru derhúfur með konubrjósti ofan á derinu. Vakti það mikla kátínu þegar karlarnir skemmtu með því að prófa að sjúga brjóstin á húfunum sínum.
Sólveig Eggertz Pétursdóttir
Nafnlaus mynd á jólakorti eftir Sólveigu Eggertz Pétursdóttur. Ekki er vitað hvenær hún gerði myndina. Sólveig Eggertz Pétursdóttir (29.5.1925 – 16.3.2016) nam myndlist á Íslandi og í London auk fjölda námskeiða sem hún sótti. Sólveig hélt fjölda listsýninga á Íslandi, Evrópu og í Bandaríkjunum. Hún er þekktust fyrir myndir sínar sem hún málaði á rekavið þó hún málaði einnig olíu- og vatnslitamyndir á hefðbundinn striga og pappír. Síðasta sýning á verkum hennar var á Hrafnistu á níræðisafmæli hennar en þar dvaldi hún síðustu æviár sín.
Höfðaskóli - safn409
Myndin sýnir Svein S. Ingólfsson, Ragnheiði Söndru Ómarsdóttur og Kolbrúnu ?? klædd á japanska vísu í heimsókn í Höfðaskóla. Myndin var líklega tekin kringum 1990. Ef þú veist hvers dóttir Kolbrún er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn612
Í október/nóvember 1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Venjulegt skólahald fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á þessari mynd eru þrír drengir að vinna í skólaútvarpinu sem starfrækt var þessa viku. Frá vinstri: Ægir Thorberg Jónsson, Þorsteinn Styrmir Jónsson og Halldór Gunnar Ólafsson.
Ólafur Bernódusson1099
Í júní 1996 fékk áhöfnin á Örvari Hu 21 afhentan gæðaskjöld Coldwater Seafood: Skjöldin fékk áhöfnin fyrir bestu framleiðslu og vöruvöndun um borð í frystitogara árið 1995. Á myndinni af áhöfninni eru, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Níels Grímsson, Björn Gunnarsson, Gunnar Reynisson, Þráinn Bessi Gunnarsson, Guðmundur E. Guðmundsson, Ágúst Ómarsson, Jóhann Ásgeirsson, Björn Sigurðsson, Gunnar Þröstur Ásgeirsson, Hafþór Smári Gylfason, Grétar Smári Hallbjörnsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Ólafur Ásgeirsson og Einar Haukur Arason.
Höfðaskóli - safn422
Jóhann Már Berry og Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir kynna næsta atriði á dagskrá árshátíðar Höfðaskóla í Fellsborg 24. febrúar 2006.
Jónas 44
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Magnús B. Jónsson og Jón Helgi Eiðsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1510
Líklega var þessi mynd tekin af Bergi sterka Hu 17 þar sem hann var í skemmtisiglingu á sjómannadegi. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Ljósmyndakeppni 2022 25
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Erla María Lárusdóttir og sendi inn í flokkinn "Náttúra". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Óskar Kristinsson - safn192
Sveinn S. Ingólfsson heilsar lítilli stúlku á Nýja Sjálandi að sið heimamanna með því að nudda saman nefjum. Myndin var tekin 25. febrúar 1992 þegar Sveinn var í landinu í viðakiptaerindum fyrir Skagstrending hf, þar sem hann var framkvæmdastjóri.
Ólafur Bernódusson 1031
Myndin var tekin í mars 1998 við vígslu íþróttahússins á Skagaströnd. Í ræðustólnum er Ingibergur Guðmundsson þáverandi skólastjóri Höfðaskóla sem var ötull baráttumaður fyrir byggingu hússins.
Ólafur Bernódusson1113
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Kennararnir höfðu útbúið þrautabraut á skólavellinum sem nemendur fóru í gegnum sér til gamans. Á myndinni spreyta nemendur sig á að ganga á línu með aðra línu sér til stuðnings. Krakkarnir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson safn093
Myndin var tekin 1995 eða 1996 í brúnni á Helgu Björgu Hu 7 sem var rækjufrystitogari sem Skagstrendingur hf átti 1995 - 2000. Séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) biður fyrir og blessar skipið og áhöfn þess. Aðrir á myndinni eru, frá vinstri: Jón Indriðason, Jens Jónsson, séra Egill, Jóhannes Simonsen, Gylfi Guðjónsson, Hjörtur Guðmundsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Gestur Arnarson.
Ljósmyndakeppni 2022 34
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Þorgerður Þóra Hlynsdóttir og sendi inn í flokkinn "Andlit".
Óskar Kristinsson - safn204
Fjölmennt gæðanámskeið var haldið 22.september 1992 í Fellsborg. Skagstrendingur hf stóð fyrir námskeiðinu fyrir starfsfólk sem kom nálægt útgerðinni á einn eða annan hátt. Á þessari mynd eru vinstra megin við borðið, talið frá vinstri: Hafsteinn Pálsson, Hjörtur Guðmundsson, Slavko Velemir, Óli Albertsson, Guðmundur Gunnlaugsson, Bergþór Gunnarsson og Björn Viðar Hannesson. Hægra megin við borðið, talið frá hægri: Einar Kristberg Einarsson, Valgarður Jökulsson (d.19.10.2021), Kristján Alexandersson ?, Sigurður Alexandersson, Þórarinn Grétarsson, Sigurbjörn Björgvinsson, óþekktur og Jens Jónsson. Við næst borð eru Gunnar Benónýsson til hægri með grátt hár og gleraugu. Við hlið hans eru Gunnar Jónsson en aðrir vinstra megin við borðið eru óþekktir. Yfir höfuð Gunnars Benónýssonar sér í Ernst Berndsen og við hlið hans eru Sigurjón Ingólfsson og Guðjón Árnason. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn 219
Jóel Kristjánsson rekstrarstjóri Rækjuvinnslunnar býr sig undir að klippa á borða um nýtt stjórnborð vinnslunnar inni í verkstjóraherberginu. Jóel varð seinna síðasti framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn468
Bekkjarkvöld í Skiðaskálanum 1. maí 1997 með nemendum Höfðaskóla fæddum 1988 og foreldrum þeirra. Á myndinni er í gangi keppni í að byggja úr Lego kubbum. Til vinstri á gólfinu eru Þorbjörg Magnúsdóttir og Aðalheiður Guðmundsdóttir en hægra megin eru Víðir Ólafsson og Ásthildur Guðmundsdóttir. Við borðið til vinstri situr Gylfi Guðjónsson undir syni sínum Ívari Gylfasyni. Konan með rauða trefilinn er Guðbjörg Kristinsdóttir og hjá henni situr dóttir hennar Rebekka Þórarinsdóttir. Undir landakortinu á veggnum sitja Sindri Jóelsson til vinstri og Sigurgeir Snævar Árnason til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Bjarni Jónsson 10
Húsbóndinn kemur heim úr kaupstaðnum og er vel fagnað. Myndin er af jólakorti eftir Bjarna Jónsson. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Höfðaskóli - safn482
Myndin var tekin á toppi Spákonfells - á Borgarhausnum - við vörðuna sem þar er og geymir gestabókina. Hún var líklega tekin kringum 2000 og á henni eru nemendur eldri bekkja Höfðaskóla það ár á útivistardegi að vori. Með hópnum eru tveir kennarar; Ólafur Bernódusson og Lárus Ægir Guðmundsson. Getur þú fundið þá á myndinni ?
Bjarni Jónsson 5
Bjarni Jónsson gerði þessa jólakortamynd en ekki er vitað hvenær hann gerði hana. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ljósmyndakeppni 2022 46
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Svanur Sigubjörnsson og sendi inn í flokkinn "Gamalt".
Höfðaskóli - safn424
Myndin var tekin í Fellsborg 24. febrúar 2006 af árshátíðaratriði 7-8 ára barna Höfðaskóla. Frá vinstri: Friðmar Kári Eiríksson, Eymundur Lórens Grétarsson, tveir óþekktir, Egill Örn Ingibergsson, Guðrún Hjaltey Hallgrímsdóttir, Birta Dögg Bessadóttir, María Jóna Jónasdóttir og þrjú óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðmundsdóttir 066
Hér heilsast þeir með virktum Guðjón Jóhannesson (d.11.2.2010) frá Garði á Skagaströnd til vinstri og Guðmundur Guðjónsson (d.?) frá Garði á Hvammstanga. Myndin var tekin í kaffisamsæti á hótel Dagsbrún 1987 eða 1988 þegar eldri borgara frá Hvammstanga komu í heimsókn til jafnaldra sinna á Skagaströnd.
Guðrún Guðmundsdóttir 071
Myndin var tekin 1987 eða 1988 í kaffisamsæti á hótel Dagsbrún. Tilefnið var heimsókn eldri borgara frá Hvammstanga til jafnaldra sinna á Skagaströnd. Á myndinni eru frá vinstri: Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012) Straumnesi, Teitný Guðmundsdóttir (d.28.2.2000) Bergi og Soffía Sigurðardóttir (d.24.10.2002) Sæbóli.
Ólafur Bernódusson 1019
Myndin var tekin vorið 1998 í Hólaneskirkju þegar Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012), prestsekkja eftir séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), afhenti séra Guðmundi Karli Brynjarssyni, þáverandi sóknarpresti, nýjan hökul.
Selma P. Jónsdóttir 21
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur, líklega frá 1967. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Höfðaskóli - safn476
Heimsókn nemenda úr Höfðaskóla í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Tveir nemendur lengst til vinstri eru óþekktir en sitjandi í fremri röð eru, frá vinstri: Guðmundur Ingi Ólafsson (d.3.11.2006), óþekkt, Þórey Fjóla Aradóttir, óþekkt, Maríanna Ástmarsdóttir og Þórunn Bernódusdóttir kennari. Í aftari röð frá vinstri: tveir óþekktir, Ásþór Óðinn Egilsson og Almar Freyr Fannarsson.
Ólafur Bernódusson1185
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 2016 eða 2017. Á henni er einn bekkur skólans með skemmtiatriðið sitt á sviðinu. Krakkarnir eru, frá vinstri: Bylgja Hrund Ágústsdóttir, Freyja Dís Jóhannsdóttir, Ívan Orri Eiríksson, tvær óþekktar stúlkur, Ólafur Halldórsson, Hekla Guðrún Þrastardóttir, Arna Rún Arnarsdóttir og Magnús Sólberg Baldursson. Sitjandi við borðið er svo Ingólfur Eðvald Björnsson.
Höfðaskóli - safn562
Krakkar úr Höfðaskóla í skólaferðalagi í Danmörku einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Frá vinstri: Ester Ösp Víðisdóttir, Sindri Jóelsson og Valgerður Guðmundsdóttir skoða hvað þeim hefur tekist að festa á filmu það sem af er degi.
Ólafur Bernódusson1248
Æskuvinkonur gera sér glaðan dag með veisluföngum 20. júlí 1994. Tilefnið er óþekkt. Stúlkurnar eru, frá vinstri: Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) og Elísabet Eik Guðmundsdóttir.
Óskar Kristinsson safn 043
Starfsmenn Skagstrendings hf saman úti að skemmta sér. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Maðurinn til vinstri er Birgir Þórbjarnarson en sá til hægri er óþekktur. Konan við borðið er Sigþrúður Magnúsdóttir og konan sem stendur í baksýn er Laufey Ingimundardóttir (d.31.12.1992). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Guðmundsdóttir 072
Myndin var tekin í Fellsborg þegar eldri borgarar á Skagaströnd tóku á móti gestum af Vestfjörðum einhverntíma á árunum 1989 - 1991. Marska hf gaf matinn sem boðið var upp á af framleiðsluvörum sínum. Konurnar með svunturnar sáu um matinn enda voru þær starfsstúlkur hjá Marska. Þær eru, frá vinstri: Kristín Sigurðardóttir, Eygló Gunnarsdóttir og Sylvía Hrólfsdóttir. Konurnar sitt hvoru megin við þær eru óþekktar en það er Guðrún Þ. Guðmundsdóttir, umsjónarmaður félagsstarfs aldraðra á Skagaströnd, sem heldur á dóttur sinni Elínborgu Árnadóttur og við hlið hennar er sonur hennar, Þröstur Árnason. Lengst til hægri er sonur Sylvíu, Brynjar Pétursson.
Skagaströnd - safn202
Í kringum aldamótin var mikill áhugi á línudansi (Kántrýdansi) á Skagaströnd. Hópur fólks hittist vikulega til æfa nýustu sporin og fóru síðan og kepptu í línudansi á landsvísu. Danshópurinn á myndinni - "Hófarnir" - lönduðu Íslandsmeistaratitli í línudansi árið 2001. Fólkið í efri röð á myndinni er, frá vinstri: Kristín Blöndal, Eygló Gunnarsdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Signý Magnúsdóttir (d.7.4.2016), Kristjana Jóhannsdóttir og Drífa Kristjánsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Ása Ásgeirsdóttir, Sæmundur Gunnarsson og Linda Ævarsdóttir.
Ljósmyndakeppni 2022 20
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók helena Mara Velemir og sendi inn í flokkinn "Heimili". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
1
…
90
91
92
…
104
Leita í myndasafninu
Leita