Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 385
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Síldin kemur og síldin fer vorið 1987. Á myndinni eru leikarar og starfsmenn sýningarinnar. Sýningin var fjölmenn því leikarar í henni voru 26 ásamt töluverðum fjölda starfsmanna sem að henni komu.
Jóhannes Frímannsson 1
Þessa vetrarmynd á jólakorti gerði Jóhannes Frímannsson en ekki er vitað hvenær. Jóhannes Frímannsson (14.11.1919 – 20.10.1997) var sjálflærður í list sinni. Jóhannes merkti myndir sínar með eiginnafni sínu og fyrir kom að reynt var að selja verk hans sem málverk eftir Jóhannes Kjarval. Það segir töluvert til um gæði verka Jóhannesar Frímannssonar.
Ljósmyndakeppni 2022 32
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Eydís Inga Sigurjónsdóttir og sendi inn í flokkinn "Andlit".
Óskar Kristinsson - safn 245
Myndin var tekin í einhverju hófi Skagstrendings hf í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær. Á henni er Gylfi Guðjónsson útgerðarstjóri að heiðra Jón Helgason (d.1.12.2019) vélstjóra á sviðinu. Jón vann í áratugi á skipum félagsins sem vélstjóri.
Jónas 39
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru, frá vinstri: Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003), Guðmundur Haukur Sigurðsson, Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022), Hallveig Ingimarsdóttir, Birna Blöndal (d.26.10. 2018) Einar Helgason og Guðbjörg Viggósdóttir.
Ljósmyndakeppni 2022 21
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tóku Sandra Setzkorn og Seth Iverson og sendu inn í flokkinn "Náttúra". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Ólafur Bernódusson1152
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru yngstu nemendur skólans að syngja fyrir gesti. Börnin eru, frá vinstri: Arnrún Hildur Hrólfsdóttir, Erla Mjöll Daðadóttir, Gunnar Andri Elvarsson, óþekktur og Helga Margrét Steingrímsdóttir.
Ólafur Bernódusson1229
Komið í mark í Landsbankahlaupinu í maí 19987. Stúlkan á myndinni er líklega Þóra Ásgeirsdóttir? Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Selma P. Jónsdóttir 22
Myndin af konu að brydda skó er eftir Selmu P. Jónsdóttur og er á jólakorti, líklega frá árinu 1986. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Ólafur Bernódusson1146
Birta Dögg Bessadóttir til vinstri og Guðrún Rós Hjaltadóttir til hægri á sviðinu í Fellsborg að kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla árið 2014.
Óskar Kristinsson - safn 234
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni er fólk kringum fundarborðið á efstu hæðinni í stjórnsýsluhúsinu á einhverjum viðskiptafundi á vegum Skagstrendings hf. Talið frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, óþekkt, Denis Lumbard, óþekktur, Magnús Schram, Hallbjörn Björnsson, Sveinn S. Ingólfsson og Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017).
Ljósmyndakeppni 2022 99
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Þorgerður Þóra Hlynsdóttir og sendi inn í flokkinn "Skuggi/skuggar".
Óskar Kristinsson - safn208
Fjölmennt gæðanámskeið var haldið 22. september 1992 í Fellsborg. Skagstrendingur hf stóð fyrir námskeiðinu fyrir starfsfólk sem kom nálægt útgerðinni á einn eða annan hátt. Á þessari mynd eru hægra megin við borðið næst okkur, talið frá vinstri: Einar Gunnarsson, Jónas Þorvaldsson, Björn Sigurðsson, óþekktur og Börkur Árnason. Vinstra megin við borðið, frá vinstri: Hjalti Hólmar Indriðason (d.17.11.2020), Jón Heiðar Jónsson, Einar Karlsson, Þráinn Bessi Gunnarsson, Þröstur Árnason, Guðmundur Henry Stefánsson ? og Ari Þórsson. Við næsta borð eru, frá vinstri: Steindór R. Haraldsson, Stefán Sveinsson, Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004), Jón Sveinsson, Ingólfur Sveinsson, Gunnar Stefánsson og Óskar Þórðarson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
2001012
Þessi mynd er af nokkrum skátaforingjum kringum árið 1963. Fremst fyrir miðju situr Ingólfur Ármannsson félgasforingi Sigurfara á Skagaströnd. Vinstra megin við hann er Tryggvi Þorsteinsson frá Akureyri.Aftan við Tryggva stendur Þórður Jónsson einnig úr Sigurfara og enn aftar er Jón Ísberg (með gleraugu) félagsforingi Bjarma á Blönduósi. Við hlið Þórðar er Gunnhildur Þórmundsdóttir einnig úr Bjarma. Lengst til hægri er svo Jóhannes Torfason úr Bjarma. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu þá athugasemd á
[email protected]
.
Höfðaskóli - safn620
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni eru Sigurbjörg Jónasdóttir til vinstri og Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir til hægri að vinna að hannyrðum.
Höfðaskóli - safn479
Nemendur Höfðaskóla á heimleið úr heimsókn í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Aftar eru Ester Ösp Víðisdóttir og Katrín Guðmundsdóttir nær glugganum. Nær okkur eru Brynja Hödd Ágústsdóttir og Ástrós Villa Vihelmsdóttir nær glugganum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir133
Myndin var tekin á USAH fundi en ekki er vitað hvenær. Á henni er Lárus Ægir Guðmundsson að lesa upp en við hlið hans stendur Sigríður Gestsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
20230602_170212
Myndin var etkin á sjómannadaginn 2023. Fjöldi manns mætti við félagsheimilið til að taka þátt í lita-hlaupi og að renna sér í froðurennibraut. Á myndinni er fólk að klæða sig í sérstaka boli fyrir lita-hlaupið.
Ólafur Bernódusson 1027
Myndin er frá niðurrifi brunarústa Kántrýbæjar í apríl 1998. Syðri hluti hússins brann illa en norður hlutinn slapp. Hörður Ragnarsson stendur og horfir til vinstri en aðrir á myndinni eru óþekktir. Vörubíllinn, H 34, tilheyrði Gunnari Helgasyni (d.19.10.2007) og líklega er hann að stjórna krananum á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1521
Stúlkurnar á myndinni njóta sín á tónleikum í samkomutjaldinu á Kántrýdögum. Freyja Dís Jóhannsdóttir er til vinstri og Hekla Guðrún Þrastardóttir til hægri. Á milli þeirra eru tvær óþekktar stúlkur. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
2001075
Eikarbáturinn Ásdís HU 10 var fyrsti báturinn sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. Á myndinni er verið að undirbúa sjósetningu hennar 1971.
Ólafur Bernódusson1093
Einar Karlsson pípari og Sigurjón Ástmarsson vörubílstjóri dæla köldu vatni upp úr einni af borholunum sem boraðar voru á Hrafndalnum í júlí 1996. Þaðan er svo vatnið leitt í stóran miðlunartank sem sér íbúum bæjarins fyrir hreinu og góðu vatni.
2001019
Eftir að hætt var við byggingu skátaskála í Brandaskarði reistu skátarnir sér myndarlegan skála í suðurhlíðum Spákonufells. Skálinn var byggður nokkuð ofarlega, upp af skíðaskálanum sem stendur í dag, í litlum hvammi sem þar er. Á myndinni, sem var sennilega tekin kringum 1964, er skálinn í byggingu. Skálinn stóð ekki nema í nokkur ár því svo mjög snjóaði að honum og yfir hann að hann lagðist saman einn snjóaveturinn og eyðilagðist. Skátastúlkurnar á myndinni eru, fá vinstri: Jóhanna Valdimarsdóttir, Sigríður Pálsdóttir og ?Hrafnhildur Jóhannsdóttir?. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn165
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Á myndinni eru, frá vinstri: Steinunn Grímsdóttir skrifstofustjóri Skagstrendings hf, Gylfi Sigurðsson stjórnarmaður (fjær), Axel Jóhann Hallgrímsson (nær), Guðmundur Gunnlaugsson og Adolf H. Berndsen stjórnarmaður.
Höfðaskóli - safn591
Þessar stúlkur skipuð keppnislið Höfðaskóla þegar þessi mynd var tekin, líklega í körfubolta eða blaki. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1988. Í aftari röð eru frá vinstri: Inga Lára Sigurðardóttir, Hólmfríður Oddsdóttir, Inga Rós Sævarsdóttir, Hugrún Sigurðardóttir og Hugrún Pálsdóttir. Í fremri röð frá vinstri: Helga Brynhildur Kristmundsdóttir (d.20.7.2021), Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir og Kristín Jóna Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1535
Myndin var tekin sumarið 1995. Þá var í gangi svokallað dagakerfi fyrir smábátana. Það þýddi að menn máttu fiska eins mikið og þeir gátu í ákveðinn dagafjölda á hverju sumri. Þetta varð til þess að trillukarlar sóttu stíft þessa leyfðu daga og var þá oft lítið um svefn því menn vildu nýta tímann sem best. Kom þá fyrir að menn sofnuðu á landstíminu eftir að hafa kannski vakað í tvo sólarhringa við veiðarnar. Því komu fyrir óhöpp eins og það sem sést á myndinni þar sem trillan Magnús Hu 11 hefur siglt upp á eitt af djúpskerjunum fram af Árbakkasteinunum.
Höfðaskóli - safn552
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands kom í heimsókn í Höfðaskóla í október 2002. Á myndinni eru nokkrir úr starfsliði skólans að bíða komu hans. Frá vinstri: Kristján Birgisson, Carl Erik Jakobsen, óþekkt og Dagbjört Bæringsdóttir
Höfðaskóli - safn635
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni er Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir einbeitt að klippa út.
Ólafur Bernódusson1045
Myndin var tekin í júní 1997 á 20 ára afmælishátíð leikskólans Barnaból. Börnin á henni eru, frá vinstri: Elna Ragnarsdóttir, Hafrún Eva Kristjánsdóttir, Hanna María Gylfadóttir, Sævar Hlynur Tryggvason og Þórður Indriði Björnsson.
Ólafur Bernódusson1134
Myndin var tekin á eldvarnardegi í Höfðaskóla í desember 1995. Á rýmingaræfingunni var forstofa skólans fyllt af leikhúsreyk til að gera hlutina eins raunverulega og hægt var. Á myndinni er Sigurgeir Snævar Árnason að koma álútur út úr reykkófinu.
Höfðaskóli - safn619
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni eru þær frænkurnar Gígja Heiðrún Óskarsdóttir til vinstri og Anna Guðrún Ásgeirsdóttir til hægri. Drengurinn á myndinni er ?Svanur Árnason? .
Höfðaskóli - safn469
Bekkjarkvöld nemenda Höfðaskóla fædd 1988 með foreldrum í Skíðaskálanum 1. maí 1997. Á myndinni eru, frá vinstri: Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Helga Bergsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir, Sindri Jóelsson, Sigurgeir Snævar Árnason og Guðbjörg Kristinsdóttir.
Ljósmyndakeppni 2022 103
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Dagný Hildur Þorgeirsdóttir og sendi inn í flokkinn "Skuggi/skuggar".
Höfðaskóli - safn435
Árshátíð Höfðaskóla 24. febrúar 2006 í Fellsborg endaði með dúndrandi diskóteki. Rauðklæddi drengurinn er Egill Örn Ingibergsson. Til hægri við hann grillir í Sonju Sif Ólafsdóttur og lengra frá er Lilja Bjarney Valdimarsdóttir. Drengurinn í röndóttu skyrtunni er Alex Már Gunnarsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1063
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd er hluti hópsins í leik á túninu. Frá vinstri: Elva Ösp Gunnarsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir?, óþekkt, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, fjórir óþekktir, Heiða Berglind Fannarsdóttir, Elín Rafnsdóttir, María Guðrún Guðmundsdóttir, tvö óþekkt börn og Helga Ólína Aradóttir. Aðrir eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 399
Myndin var tekin veturinn 1987 á Húnavöllum þegar þar fór fram skólamót. Á henni eru, frá vinsti: Óskar Óskarsson nemandi í Höfðaskóla, Inga Matthíasdóttir íþróttakennari við Höfðaskóla og Kristinn Guðmundsson sem dæmdi í nokkrum kappleikjum á mótinu.
Ingibergur Guðmundsson 383
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Síldin kemur og síldin fer vorið 1987. Á myndinni eru, frá vinstri: Kolbrún Viggósdóttir, Ingibergur Guðmundsson og Anna Sjöfn Jónasdóttir. Öll störfuðu þau að sýningunni á einn eða annan hátt.
Ingibergur Guðmundsson 449
Unglingar úr Höfðaskóla í skólaferðalagi um Snæfellsnes í maí 1986. Á myndinni eru, frá vinstri: Þorsteinn Styrmir Jónsson, Gunnar Þröstur Ásgeirsson, Jón Arnar Arnarsson, óþekkt, Svava Guðrún Sigurðardóttir, Rakel Jónsdóttir og tveir óþekktir. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn556
Myndin var tekin af nemendum Höfðaskóla í skólaferðalagi. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Stúlkurnar tvær fremst á myndinni eru Jóna Gréta Guðmundsdóttir til vinstri og kristbjörg Una Guðmundsdóttir til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ljósmyndakeppni 2022 68
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Dagný Hildur Þorgeirsdóttir og sendi inn í flokkinn "Heimili".
Höfðaskóli - safn538
Myndin var tekin einhverntíma kringum árið 2000 af nemendum Höfðaskóla fæddum 1993 á sviðinu í Fellsborg á skólaslitum. Kamilla Hildur Gísladóttir kennari er lengst til vinstri og Ingibergur Guðmundsson skólastjóri er að rétta henni vitnisburðablöð barnanna. Nemendurnir eru, frá vinstri: Davíð Weerachai Víðisson, Guðjón Örn Kristjánsson, Ólína Selma Þórarinsdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir, Sara Rut Fannarsdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Kristbjörg Dúfa Ragnheiðardóttir, Halla Björk Víðisdóttir, ? Sæmundsson, Elísabet Anna Blöndal Einarsdóttir, Brynjar Max Ólafsson, Árný Sif Kristínardóttir, Andrea Björk Kristjánsdóttir og Alex Már Gunnarsson.
Guðrún Guðmundsdóttir 039
Eldri borgarar í Austur Húnavatnssýslu fóru í sumarferð 9. - 12. júní 1992. Farið var yfir Kjöl og ýmsir staðir á suðurlandi og suð-vesturlandi skoðaðir. Á myndinni er hópurinn í Perlunni í Reykjavík.
2001017
Eftir að hætt var við byggingu skátaskála í Brandaskarði reistu skátarnir sér myndarlegan skála í suðurhlíðum Spákonufells. Skálinn var byggður nokkuð ofarlega, upp af skíðaskálanum sem stendur í dag, í litlum hvammi sem þar er. Á myndinni, sem var sennilega tekin kringum 1964, er skálinn í byggingu. Skálinn stóð ekki nema í nokkur ár því svo mjög snjóaði að honum og yfir hann að hann lagðist saman einn snjóaveturinn.
Höfðaskóli - safn575
Litlu Jól 1970 í Höfðaskóla. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðrún Björg Einarsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir, Guðrún Elvan Friðriksdóttir (d.14.2.2008) (nær), þrjár óþekktar stúlkur, óþekktur kennari (nær), Guðmundur Viðar Guðmundsson (fjær), Unnur Gunnarsdóttir, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018) (nær), þrír óþekktir, Sigríður Björnsdóttir og þrír óþekktir. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðmundsdóttir 045
Farin var sumarferð aldraðra í A-Húnavatnssýslu um Norðausturland dagana 21. - 24. júní 1993. Gist var á Hótel Tanga í Vopnafirði. Á myndinni tyllir Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) frá Kárstöðum á Skagaströnd sér á hægindi í gamla bænum að Burstafelli í Vopnafirði.
Ingibergur Guðmundsson 441
Hjörtur Guðmundsson hvílir lúin bein í sæluhúsi einhversstaðar á Hornströndum. Vinahópur frá Skagaströnd fór í gönguferð um Hornstrandir um verslunarmannahelgina 1986 og Hjörtur var einn af hópnum, útitekinn og þreytulegur.
Ólafur Bernódusson1037
Myndin var tekin á aðventukvöldi í Hólaneskirkju í desember 1997. Húsfyllir var í kirkjunni og meðal atriða var að börnin á myndinni sungu sunnudagasöngvana sína við altarið.
Ljósmyndakeppni 2022 70
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Erna Högnadóttir1 og sendi inn í flokkinn "Heimili".
Guðrún Guðmundsdóttir 076
Myndin var tekin í desember 1987 á sýningu á munum eldri borgara í Höfðaskóla. Karlarnir á henni eru Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) fá Vík til vinstri og Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) úr Stórholti til hægri. Báðir voru þeir áhugaleikarar og skemmtu fólki oft með list sinni.
Ólafur Bernódusson1137
Myndin var tekin á eldvarnardegi í Höfðaskóla í desember 1995. Á rýmingaræfingunni var forstofa skólans fyllt af leikhúsreyk til að gera hlutina eins raunverulega og hægt var. Á myndinni er hluti nemendanna kominn út gegnum reykkófið og fleiri á leiðinni.
Ólafur Bernódusson1167
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur skólans að flytja frumsamið skemmtiatriði. Börnin eru, frá vinstri: Laufey Lind Ingibergsdóttir, Sunna Björg Steingrímsdóttir, Anita Ragnarsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Sveinn Halldór Hallgrímsson.
Guðrún Guðbjörnsdóttir153
Mynd frá borðhaldi, líklega í Bergen haustið 1992. Nokkrir af forystumönnum Skagstrendings hf voru þá staddir þar í tilefni skírnar Arnars Hu 1 sem þá var verið að smíða þar. Arnar Hu 1 kom í fyrsta sinn til heimahafnar 22. desember 1992. Hann var þá stærsta fiskiskip Íslendinga. Fólkið vinstra megin við borðið er, frá vinstri: Guðbjörg Ólafsdóttir, Magnús Sigurðsson (d.17.1.2023), óþekkt, Jóhannes Sveinsson og þrír óþekktir. Hægra megin við borðið eru, frá hægri: Finnur Kristinsson, Rakel Petrea Finssdóttir, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002) og þrír óþekktir. Barnið fremst á myndinni er líklega Arnrún Bára Finnsdóttir.
Höfðaskóli - safn571
Krakkarnir á myndinni voru í skólaferðalagi á vegum Höfðaskóla í Danmörku einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Þau eru, frá vinstri: Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Eydís Ósk Einarsdóttir, Ásdís Adda Ólafsdóttir, Jóna Gréta Guðmundsdóttir og Albert Ingi Haraldsson.
Ólafur Bernódusson1230
Á myndinni er verið að steypa sökkulfætur undir raðhúsin á Ránarbraut 17 - 23 á Skagaströnd. Það, sem er verið að steypa á myndinni, voru 40 sm breiðir sökklar en síðan voru hinir eiginlegu sökklar steypir ofan á þessa "fætur". Eðvarð Hallgrímsson, skeggjaður í hvíta bolnum, byggði húsin að mestu upp á eigin reikning en seldi þau síðan á ýmsum byggingarstigum. Maðurinn í peysunni með ljósa kragann er Einar Þór Ásgeirsson og sá sem er lengst til hægri er líklega Þorsteinn Styrmir Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var tekin sumarið 1987.
Guðrún Guðmundsdóttir 048
Í ágúst 1993 bauð Skagstrendingur hf eldri borgurum á Skagaströnd í dagsferð um Vestur Húnavatnssýslu. Á myndinni eru konurnar að skoða sig um á byggðasafninu að Reykjum. Frá vinstri: Elínborg M. Jósdóttir (d.7.1.2007) frá Másstöðum í Vatnsdal og seinna Röðulfelli á Skagaströnd, Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) frá Kárastöðum á Skagaströnd, Heiðbjört Lilja Halldórsdóttir (d.1.7.2019) frá Eyjakoti og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) frá Asparlundi á Skagaströnd.
Höfðaskóli - safn502
Myndin var tekin á flippíþróttadegi Höfðaskóla í íþróttahúsinu veturinn 2000 - 2001. Á henni er þáverandi 4. bekkur. Erfitt er að þekkja nemendurna vegna þess hve mikið andlitin eru máluð en á henni eru, frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir kennari, Kristján Steinar Kristjánsson, Patrik Snær Bjarnason, Sævar Hlynur Tryggvason, Elna Ragnarsdóttir, óþekktur, Aðalheiður Ragnarsdóttir, ?Jóhann Örn Stefánsson?, Hanna María Gylfadóttir, óþekkt, Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir og tvær óþekktar. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ljósmyndakeppni 2022 63
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
Ingibergur Guðmundsson 373
Myndin var líklega tekin 1988. Á henni er Víðir Ólafsson með verðlaunabikar sem hann hlaut á íþróttamóti hjá USAH.
Óþekktur ljósmyndari477
Starfsfólk verslunar Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd gerir sér glaðan dag með því að fara út að borða á Hótel Dagsbrún. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru, vinstra megin við borðið: Sæmundur Gunnarsson nær og Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) fjær. Hægra megin við borðið eru, talið frá vinstri: Margrét Þorsteinsdóttir, Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015), Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016) fjær og Steinunn Friðriksdóttir nær.
Ljósmyndakeppni 2022 22
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Helena Mara Velemir og sendi inn í flokkinn "Náttúra". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
1
…
94
95
96
…
104
Leita í myndasafninu
Leita