Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn539
Myndin var tekin 1946-47 þegar síldarverksmiðjan var í byggingu. Á myndinni eru óþekktir starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf, sem sáu um allan vélbúnað í verksmiðjunni. Hér eru þeir að bregða á leik í brekkunni hjá Einbúanum, sem er kletturinn til hægri. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
Jónas 12
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru eftirfarandi í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022), Birna Blöndal (d.26.10.2018) og Elín Njálsdóttir.
Guðrún Guðmundsdóttir 100
Stór hópur eldri borgara úr Húnavatnssýslu fór í sumarferðalag um Borgarfjörð og Þingvelli 13.- 16. ágúst 1989. Á myndinni dansa Rúnar Agnarsson og Guðrún Þ. Guðmundsdóttir, fararstjóri hópsins, á danskvöldi í Reykholti þar sem hópurinn gisti.
Guðrún Guðbjörnsdóttir129
Myndin var tekin 1. nóvember 1997 af konum í kennslueldhúsinu í Höfðaskóla. Þarna eru þær í óða önn að matreiða grænmetisrétti því þær voru á námskeiði í slíkri matargerð. Frá vinstri á myndinni: Dagný Marín Sigmarsdóttir, Sólveig Eiríksdóttir leiðbeinandi, Íris Valgeirsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2011) og Þórunn Bernódusdóttir.
Ljósmyndakeppni 2022 101
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Laura Porcilo og sendi inn í flokkinn "Skuggi/skuggar".
Ólafur Bernódusson1115
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Vikurnar fyrir daginn höfðu nemendur safnað tómum mjólkurfernum og límt saman eftir ákveðnu kerfi. Samlímingarnar voru svo settar saman í píramíta úti á skólalóð. Á myndinni eru fernukubbarnir komnir út á lóð og á að fara að raða þeim saman. Krakkarnir og kennararnir á henni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 496
Anna Sjöfn Jónasdóttir athugar gamla saumavél á einum af fyrstu æfingum á leikritinu Saumastofan eftir Kjartan Ragnarsson veturinn 1984 - 85. æfingarnar voru í Höfðaskóla áður en farið var á sviðið í Fellsborg.
Ólafur Bernódusson1222
Á myndinni eru vinningshafar í kvennaflokki á meistaramóti Golfklúbbs Skagastrandar 1986 með verðlaun sín. Frá vinstri: Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) og Guðrún Pálsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 492
Þessar stúlkur, með verðlaunapeninga sína um hálsinn, unnu þá á héraðsmóti USAH líklega 1984. Stúlkurnar eru frá vinstri: Guðrún Berndsen, Soffía Guðmundsdóttir, Birna Sveinsdóttir og óþekkt . Myndin var tekin á einnota myndavél og ber þess merki.
Ingibergur Guðmundsson 335
Vinnuvikur voru haldnar á hverju ári í Höfðaskóla í nokkur ár. Þá var venjulegt skólastarf brotið upp í eina viku og nemendur unnu að óhefbundnum verkefnum með kennurum sínum. Þessi mynd var tekin í einni slíkri vinnuviku þar sem nemendur stóðu fyrir sýningu á verkefnum sínum og kaffisölu til ágóða fyrir skólafélagið Rán. Þema vinnuvikunnar að þessu sinni var Kántrý. Myndin var líklega tekin 1986 eða 1987 en hún var tekin í kaffisölunni.
Ingibergur Guðmundsson 511
Eitt af því sem skíðadeildarfólk gerði til að fjármagna byggingu skíðaskálans var að bera út jólapóstinn fyrir fólk á Skagaströnd. Á myndinni eru nokkrir þeirra að leggja af stað í útburð sem jólasveinar. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Ólafur Bernódusson og Guðmundur Haukur Sigurðsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir en hún var tekin fyrir jólin 1984.
Jónas 36
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Elín Njálsdóttir og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum.
Ingibergur Guðmundsson 361
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla líklega 1990. Á henni eru nemendur fæddir 1974 að flyta skemmtiatriði fyrir aðra nemendur og kennarana. Frá vinstri: Jón Heiðar Jónsson, Svava Magnúsdóttir, Guðbjörg Kristmundsdóttir og Guðný Finnsdóttir.
Jónas 51
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Birna Blöndal (d.26.10.2018) og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum í sýningunni.
Jónas 25
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru þær Bjarney Valdimarsdóttir til vinstri og Lilja Kristinsdóttir til hægri í hlutverkum sínum.
Ólafur Bernódusson1181
Á myndinni eru Stefán B. Sigurðsson þáverandi rektor Háskólans á Akureyri til vinstri og Adolf H. Berndsen stjórnarformaður BioPol til hægri. Myndin var tekin í febrúar 2014 þegar þeir félagar höfu skrifað undir samstarfssamning BioPol og HA. Við sama tækifæri klipptu þeir svo á borða til að opna formlega rannsóknarstofu BioPol.
Jónas 31
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Birna Blöndal og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum.
Ólafur Bernódusson1107
Myndin var tekin í maí 1996 þegar félagskonur í kvenfélaginu Eining héldu upp á afmæli félagsins. Myndin var tekin á hótel Dagsbrún. Á henni flytur Birna Blöndal (d.26.10.2018) ræðu og er að heiðra þær Jónu Guðrúnu Vilhjálmsdóttur (d.13.7.2003) vinstra megin og Soffíu Lárusdóttur (d.31.3.2010) til hægri. Sitjandi til hægri er Steinunn Grímsdóttir en aðrar á myndinni eru óþekktar.
Ólafur Bernódusson1161
Myndin var líklega tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg vorið 2014. Á henni eru nokkra stúlkur að sýna frumsaminn dans. Stúlkurnar eru, frá vinstri: Anna Marie Gruenberger, Ástríður Magnúsdóttir, Freyja Dis Jóhannsdóttir, Bylgja Ágústsdóttir, Arna Rún Arnarsdóttir og Karen Líf Sigurbjargardóttir. Á gólfinu framan við sviðið er Sara Diljá Hjálmarsdóttir kennari.
Ingibergur Guðmundsson 390
Á myndinni er leikstjórinn, Þröstur Guðbjartsson (d.17.7.2021) (sitjandi) að gefa Hallveigu Ingimarsdóttur og Þorvaldi Skaftasyni leiðbeiningar á æfingu á leikritinu Fyrsta Öngstræti til hægri, sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið veturinn 1987- ´88. Í baksýn eru aðrir leikarar sýningarinnar í kaffipásu í eldhúsinu í Fellsborg.
2001099
Myndin var tekin við Hvalá á Ströndum 2003. Þá voru þar á ferð nokkrir Skagstrendingar á jeppunum sínum en ekki er hægt að fara lengra út Strandir á bílum en að Hvalánni. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðmundur J. Björnsson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, ?Indriði Hauksson?, Eiríkur Lýðsson og Ari Jón Þórsson.
2001508
Myndin var tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Þá fór hátíðin að mestu fram á tjaldsvæðinu og þar var sett upp sviðið á myndinni. Á henni er frumkvöðullinn Hallbjörn J. Hjartarson að syngja fyrir gesti við undirleik óþekktra hljóðfæraleikara.
2001104
Myndin var tekin 1968 eða 1969. Þá var kvótakerfið ekki komið þannig að menn máttu veiða eins og þeir gátu. Á myndinni er síðutogarinn Arnar HU 1, sem var fyrsta skip Skagstrendings hf. Þetta var mikið aflaskip og á myndinni er búið að landa úr honum afla á bryggjuna (Útgarð) og þar er fólk úr landi á kafi í aðgerð svo Arnar geti aftur haldið til veiða. Þessi aðferð var síðan bönnuð. Þá var gripið til þess ráðs að Arnar lagðist í Kálfshamarsvík og þar var fólk ferjað um borð til að hjálpa til í aðgerðinni. Segja má að þetta skip hafi lagt grunninn að velgengni Skagstrendings hf.
Ljósmyndakeppni 2022 41
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Hjalti Viðar Reynisson og sendi inn í flokkinn "Andlit".
Ólafur Bernódusson1188
Skólahljómsveit skemmtir á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg líklega 2016. Ólafur Halldórsson spilar á bassa, Snæfríður Guðmundsdóttir syngur og Laufey Lind Ingibergsdóttir spilar á gítar og syngur.
Ingibergur Guðmundsson 504
Á myndinni stendur yfir fundur ritnefndar fyrir leikskrá vegna sýningar á Saumastofunni í nóvember/desember 1984. Myndin var tekin í kennarastofunni í Höfðaskóla. Á henni eru, frá vinstri: Birna Blöndal (d.26.10.2018), Kristín Björnsdóttir og Guðný Sigurðardóttir.
Ólafur Bernódusson1158
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nemendur að flytja tónlistaratriði með tónmenntakennara sínum, Hugrúnu Sif Hallgrímsdóttur. Börnin eru, frá vinstri: Magnús Sólberg Baldursson, Karen/Rakel Elvarsdóttir, Ástríður Magnúsdóttir, Ólafur Halldórsson, Rakel/Karen Elvarsdóttir, Ívan Orri Eiríksson, Pétur Atli Árnason, Ingólfur Eðvald Björnsson, Freyja Dís Jóhannsdóttir, Hekla Guðrún Þrastardóttir og Guðrún Björgvinsdóttir.
Ljósmyndakeppni 2022 14
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók helena Mara Velemir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Ólafur Bernódusson1168
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur skólans að flytja frumsamið skemmtiatriði. Börnin eru, frá vinstri: Viktor Örn Einarsson, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Victoría Hólmgeirsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir og Sigurður Aron Björnsson.
20240928_221411
28. september 2024 héldu meðlimir hljómsveitarinnar Janus tónleika í Bjarmanesi fyrir fullu húsi. Janus er langlíf hljómsveit sem kemur saman með nokkurra ára millibili til að skemmta sér og öðrum. Meðlimir sveitarinnar eru, frá vinstri: Fannar Viggósson, Þórarinn Grétarsson, Hjörtur Guðbjartsson, Þorvaldur Skaftason og Guðmundur Jónsson. Lengst til hægri sér í Magnús B. Jónsson einn af gestunum á tónleikunum.
Ólafur Bernódusson1125
Myndin var tekin í afmælishófi í Fellsborg þegar félagar í Leikklúbbi Skagastrandar, ásamt mökum, héldu upp á 20 ára afmæli klúbbsins í desember 1995 með kaffi- og skemmtikvöldi. Fyrir kvöldið var búið að skipta félögunum í hópa sem allir áttu að koma með eitt frumsamið skemmtiatriði. Einnig þurftu allir að mæta með einhvers konar höfuðfat. Á þessari mynd eru konurnar á myndinni að flytja hugljúft jólaatriði. Konurnar eru, frá vinstri: Birna Blöndal (d.26.10.2018), Lovísa Vattnes (d.26.3.2018), Elín Njálsdóttir, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006), Vigdís Ómarsdóttir og Jensína Lýðsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 407
Svava Magnúsdóttir niðursokkin í sköpunarvinnu í vinnuviku í Höfðaskóla í desember 1987.
Ljósmyndakeppni 2022 36
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Hólmfríður Anna Ólafsdóttir og sendi inn í flokkinn "Andlit".
Guðrún Guðmundsdóttir 074
Ingibjörg Lárusdóttir (d.20.9.2010) í desember 1987 á sýningu í Höfðaskóla á munum sem eldri borgarar gerðu í félgsstarfi aldraðra. Maðurinn með kaffibollann er Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) og standandi með hendur á mjöðmum er Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004).
Ingibergur Guðmundsson 421
Vilhjálmur Skaftason hleypur með friðarkyndilinn í fyrsta Friðarhlaupinu sumarið 1987. Hópur fólks úr umf Fram á Skagaströnd skiptist á um að hlaupa með kyndilinn niður Langadalinn þar til félagar úr umf Hvöt á Blönduósi tóku við honum ofan við Blönduós. Í Friðarhlaupinu var hlaupið með friðarkyndilinn hringinn kringum Ísland en það endaði síðan með lokaathöfn í Reykjavík.
Guðrún Guðmundsdóttir 075
Á myndinni eru nokkrir eldri borgarar staddir á sýningu á munum sínum í Höfðaskóla í desember 1987. Munina unnu þau í félagsstarfi aldraðra undir leiðsögn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur. Fólkið á myndinni er, standandi frá vinstri: Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011) Ási, Guðbjartur Guðjónsson (d23.9.1992) Vík, Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994) Bergi, Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) Hólabraut 25 og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) Lundi. Sitjandi eru Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) Bergi til vinstri og Sigríður Fanný Ásgeirsdóttir (d.11.12.2006) Lækjarbakka. Konur úr kvenfélaginu Eining seldu kaffi og meðlæti í skólanum meðan sýningi stóð yfir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1519
Þessi mynd af Örvari Hu 21 var tekin á kyrrlátu jólkvöldi í Skagastrandarhöfn. Ekki er vitað hvaða ár.
Ingibergur Guðmundsson 377
Myndin var tekin 1988 þegar fólkið á henni var í vinabæjarheimsókn í Växjö í Svíþjóð. Guðmundur Sigvaldason (d.8.2.2017) þáverandi sveitarstjóri er til vinstri og Hildugunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996) fulltrúi Norræna félagsins á Skagaströnd til hægri.
2001034
Þessi frændsystkin, Guðbjörg Þorbjörnsdóttir og Árni Ólafur Sigurðsson voru fermd saman í Hólaneskirkju 1963. Myndin var tekin af þeim í tilefni þess.
Fisk Seafood - safn 272
Myndin var tekin 7. apríl 1982 í hófi í Fellsborg af tilefni þess að frystitogarinn Örvar HU 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd þann dag í fyrsta sinn. Á myndinni spjalla saman þeir Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til vinstri og Gunnar Ragnars framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri til hægri. Slippstöðin smíðaði togarann fyrir Skagstrending hf. Konan í baksýn til hægri er Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir.
Höfðaskóli - safn517
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það 1983 því nemendurnir á henni fæddust 1969. Vinstra megin sér í Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d.13.8.2000). Hægra megin við borðið frá vinstri: óþekktur, Hjalti Magnússon, óþekktur, Arnar Erlingsson, Hulda Magg Elínardóttir, Pálína Freyja Harðardóttir og Áslaug Sif Gunnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson1081
Myndin var tekin á Kántrýhátíð í ágúst 1996. Þá var boðið upp á skemmtisiglingu með bátum frá Skagaströnd. þessi mynd var tekin um borð í Hafrúnu HU 12. Næst okkur til vinstri er Sigurður Björnsson með son sinn Harald Brynjar í fanginu og Ernst Berndsen hallar sér upp að lunningunni en aðrir á myndinni eru óþekktir.
2001079
Á myndinni er verið að koma fyrir styrktarstaur í miðju "millimastursins" í skíðatoglyftunni sem var í suðurhlíð Spákonufellsins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1995. Gröfumaður var Guðmundur Björnsson og til að komsat þarna upp brekkuna, án þess að valda miklum skemmdum á henni, var grafan á tvöföldu bæði að aftan og framan. Maðurinn sem sést á myndinni er líklega Ólafur Bernódusson.
Höfðaskóli - safn 640
Þessa mynd tók Inga Matthíasdóttir íþróttakennari í Fellsborg 1985 af fimleikahópi nemenda úr Höfðaskóla sem hún þjálfaði. Myndin var tekin á æfingu fyrir árshátíð þar sem hópurinn sýndi listir sínar. Sitjandi á gólfinu eru, frá vinstri: Anna Dröfn Guðjónsdóttir, María Rós Karlsdóttir, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, Skúli Tómas Hjartarson, Kristjana Jónsdóttir og Arna Guðrún Jónsdóttir. Standandi eru, frá vinstri: Inga Lára Sigurðardóttir, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir og Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir. Efst standa Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir vinstra megin og Guðný Finnsdóttir hægra megin.
Ólafur Bernódusson002
Myndin var tekin fyrir jólin 1991 í Hólaneskirkju þegar þar var haldin aðventumessa. Á henni er séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) fyrir altarinu ásamt fermingarbörnum sem fermdust vorið 1992. Til vinstri situr meðhjálparinn Steindór Haraldsson. Fermingarbörnin eru, frá vinstri: Hjörtur Jónas Guðmundsson, Arnar Ólafur Viggósson, Viðar Guðmundsson, Jón Örn Stefánsson, Þóra Ágústsdóttir, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Bergþóra Hrund Guðjónsdóttir, Guðrún Björk Elísdóttir, Salóme Ýr Rúnarsdóttir, Halla Kristín Árnadóttir, Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir, Ásta Ýr Ásgeirsdóttir, Þórunn Ævarsdóttir, Sigurður Berndsen, Ólína Laufey Sveinsdóttir og Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir. Á myndina vantar Jón Ólaf Sigurjónsson sem tilheyrði hópnum. Hópurinn var sá fyrsti sem fermdist frá Hólneskirkju hinni nýrri en hún var vígð 20. október 1991. Fyrstur allra til að fermast frá kirkjunni var Arnar Ólafur Viggósson.
Ólafur Bernódusson1094
Myndin var tekin í júlí 1996 þegar fram fóru framkvæmdir við vatnsveitu Skagastrandar í Hrafndal. Á myndinni eru Rolf Árnason (d.3.6.2014) byggingatæknifræðingur til vinstri og Guðmundur J. Björnsson gröfumaður til hægri. Boraðar voru nokkrar holur í dalnum og síðan var vatnið, sem fékkst, leitt í stóran miðlunartank neðst í dalnum. Guðmundur plægði niður vatnsrörið með gröfunni sinni, sem er á myndinni á tvöföldu bæði að framan og aftan. Ekki veitti af því í mýrunum á leiðinni sökk grafan gjarnan á kaf.
Ingibergur Guðmundsson 517
Myndin var tekin í maí 1985 þegar þessir kennarar voru í skólaferðalagi með nemendur úr Höfðaskóla. Inga Matthíasdóttir íþróttakennarai er til vinstri og Jón S. Pálsson Skólastjóri til hægri. Ekki er vitað hvar myndin var tekin.
Ljósmyndakeppni 2022 95
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Guðbjörg Viggósdóttir og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
2001073
Á myndinni er nokkur þúsund tonna Austur-Þýskur verksmiðjutogari. Sumarið 1969 var síðutorgarinn Arnar HU 1 að toga eins og venjulega þegar allt í einu hann fór að dragast afturábak með trollið úti. Kom í ljós að varpan hans hafði flækst í vörpu þessa risa torgara sem dróg Arnar litla aftuábak. Eftir nokkuð stímabrak tókst svo að losa vörpurnar sundur þrátt fyrir að stóra skipið áttaði sig ekki strax á hvað var í gangi enda var tungumálakunnátta- eða kunnáttyuleysi til trafala. Allt fór þó vel að lokum enda veður með besta móti eins og sést á myndinni.
2001001
Nokkrir Skagstrendingar í hópi ferðamanna í útsýnisferð á Japan. Ástæða þess að Skagstrendingarnir voru þarna var að þeir voru að sækja Arnar HU 1 sem var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf og smíðaður í Japan. Eins og sjá má var myndin tekin í ágúst 1973. Skagstrendingarnir eru hægra megin á myndinni. Í fremstu röð eru,frá hægri: Óskar Þór Kristinsson, Gylfi Guðjónsson og Gylfi Sigurðsson. Í aftari röðinni eru, frá hægri; Árni Ólafur Sigurðsson, Gunnlaugur Árnason og Birgir Þórbjarnarson. Aftast stendur svo Reynir Sigurðsson upp úr hópnum.
Guðrún Guðmundsdóttir 086
Soffía Aðalheiður Sigurðardóttir (d.24.10.2002) til vinstri og Guðný Finnsdóttir til hægri á sýningu muna eldri borgara í Höfðaskóla á desember 1987. Báðar áttu þær verk á sýningunni.
Ljósmyndakeppni 2022 96
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Signý Ósk Richter og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Jónas 50
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru, frá vinstri: Bjarnhildur Sigurðardóttir (22.4.2016), Birna Blöndal (d.26.10.2018) og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum í sýningunni.
20240312_100026
Pokakast er skemmtilegur leikur þar sem þrautin er að kasta litlum grjónapokun ofan í gat á skábretti í sjö metra fjarlægð. Leikurinn hentar mjög vel fyrir eldra fólk sem þarf að hreyfa sig innan marka. Á myndinni, sem tekin var í mars 2024 í íþróttahúsinu, eru að keppa sín á milli,og við sjálf sig, frá vinstri: Sævar Rafn Hallgrímsson, Pétur Eggertsson, Guðmundur Ólafsson, Eygló Gunnarsdóttir, Guðrún Pálsdóttir og Magnús B. Jónsson.
Ólafur Bernódusson1149
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Krakkarnir á myndinni voru að flytja atriði yngri nemenda á skemmtuninni. Krakkarnir eru, frá vinstri: Arna Rún Arnarsdóttir, Ólafur Halldórsson, Benný Blær Sæmundsen Árnadóttir og Magnús Sólberg Baldursson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1199
Sigursveit unglinga í kappróðri á sjómannadegi hefur tekið við verðlaunapeningum sínum um borð í Örvari HU 21 á sjómannadegi. Í sveitinni voru, frá vinstri: Gestur Arnarsson stýrimaður, Skúli Tómas Hjartarson, Helga Kristmundsdóttir (d.20.7.2021), Halldór Gunnar Ólafsson, Atli Þór Þórsson, Sigvaldi Guðmundsson og Róbert Freyr Gunnarsson. Lengst til vinstri er Ólafur Bernódusson kynnir dagsins. Líklega var myndin tekin 1988:
Ingibergur Guðmundsson 447
Myndin var tekin þegar unglingar í Höfðaskóla voru í skólaferðalagi í maí 1986. Á henni eru bekkjarsysturnar Hólmfríður Oddsdóttir til vinstri og Svava Guðrún Sigurðardóttir til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn460
Einhvertíma að vori til kringum 2000 var lögreglan fengin til að koma og skoða reiðhjól nemenda í Höfðaskóla. Á myndinni eru þau tilbúin með hjálmana sína, frá vinstri: Sævar Hlynur Tryggvason, Ragnar Már Björnsson, Patrik Snær Bjarnason, Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir og tveir óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 433
Þór Gunnlaugsson lögreglumaður talar við börn úr Höfðaskóla í vinnuviku í febrúar 1987. Stúlkan til vinstri í grænköflóttri peysu er Árný Guðrún Ólafsdóttir. Aftan við hana sitja Heiða Ósk Stefánsdóttir kennari og Eygló Gunnarsdóttir. Viktor Pétursson styður hönd undir kinn og horfir til himins en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn624
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Þessir ungu menn eru að gantast í pásu. Þeir sitja framan við "Fuglaskápinn" en í honum var geymt safn skólans af uppstoppuðum fuglum og nokkrum öðrum forvitnilegum gripum úr náttúrunni. Vegna breytinga á húsnæði skólans eru fuglarnir því miður ekki sýnilegir lengur heldur í kössum í geymslu. Strákarnir á myndinni eru frá vinstri: Árni Max Haraldsson, ?Ólafur Elínarson?, Þorlákur Ómar Guðjónsson og Viktor Pétursson.
1
…
96
97
98
…
104
Leita í myndasafninu
Leita