Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 471
Skúli Tómas Hjartarson og Jóney Hrönn Gylfadóttir að flétta bastkörfur í vinnuviku í Höfðaskóla í október/nóvember 1985.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1506
Kántrýhátiðum lauk ávalt með messu í samkomutjadinu. Messurnar nutu mikilla vinsæld og alltaf var húsfyllir eins og er á þessari mynd. Í messunum var mikil áhersla lögð á líflegan söng sem kirkjukór Hólaneskirkju leiddi með aðstoð ýmissa betur þekktar söngvara og tónlistramanna.
Höfðaskóli - safn534
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið kringum árið 2000. Á henni eru nemendur Höfðaskóla fædd 1986 að bíða eftir vitnisburðum sínum eftir veturinn á sviðinu í Fellsborg. Frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson skólastjóri, Sonja Hjördís Berndsen, Eiður Bjarki Þórarinsson, Hörður Aðils Vilhelmsson, Ragnar Ásmundur Einarsson, Sóley Elsa Magnúsdóttir Blöndal, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, Þórunn Júlía Guðmundsdóttir, Eydís Inga Sigurjónsdóttir og Pétur ??
Jónas 10
Einar Helgason og Guðbjörg Viggósdóttir á sviðinu í Fellsborg í hlutverkum sínum í leikritinnu Gísl eftir Brendan Behan. Leikklúbbur Skagastrandar setti verkið upp a979 - 1980 undir leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur.
20250729_101643
Myndin var tekin sumarið 2025 þegar börn á leikjanámskeiði ungmennafélagsins Fram voru að fá að prófa Kajaka. Lengst til hægri er Valtýr Sigurðsson sem sá um börnin við þetta tækifæri ásamt nokkrum unglingum. Myndin var tekin í smábáthöfninni á Skagaströnd.
Ljósmyndakeppni 2022 58
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Dagný Hildur Þorgeirsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
Ingibergur Guðmundsson 487
Myndin af bridgespilurunum í Bridgeklúbbi Skagastrandar var tekin í Fellsborg í janúar/febrúar 1985. Spilararnir eru, frá vinstri: Vilhelm Jónsson, Steinunn Grímsdóttir, Kristinn Guðmundsson og Bjarney Valdimarsdóttir.
Ólafur Bernódusson1177
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg, líklega árið 2014. Húsfyllir var á skemmtuninni eins og sjá má.
Guðrún Guðbjörnsdóttir126
Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011) með blómvönd frá kórfélögum sínum í kirkjukór Hólaneskirkju áður en hún flutti till Reykjavíkur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var á hótel Blönduós. Við borðið sitja, frá vinstri: Sigrún Lárusdóttir, Helga Hermannsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022), óþekkt, Sigurður Skagfjörð Bjarnason (d.16.5.2022) og Jakob Guðmundsson.
Guðrún Guðmundsdóttir 067
Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) í Grund spilar á nikkuna fyrir fólk í kaffisamsæti á hótel Dagsbrún. Það var haldið þegar eldri borgarar frá Hvammstanga heimsóttu jafnaldra sína á Skagaströnd 1987 eða 1988.
Höfðaskóli - safn432
Kaffiveisla starfsfólks Höfðaskóla í eldhúsinu í Fellsborg á árshátíð Höfðaskóla 24. febrúar 2006. Hér var um "Pálínuboð" að ræða þ.e. hver og einn kom með eitthvað á kaffiborðið. Fólkið er, talið frá vinstri: Guðbjörg Ólafsdóttir, Svandís Hannesdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Carl Erik Jakobsen, Einar Arason, Anna Margrét Sigurðardóttir, Sigurður Magnússon, Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) og Dagbjört Bæringsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari483
Myndin var líklega tekin á níunda áratugnum á fatamarkaði þegar verslun Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd seldi fatnað í Fellsborg. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011), Jóhanna Sigurjónsdóttir (d.15.12.1990), óþekkt og Ingibjörg Harpa Sævarsdóttir. Barnið er óþekkt.
Ólafur Bernódusson1066
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd eru, frá vinstri: Eva Rún Rúnarsdóttir, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir (fjærst með húfu), Jenný Lind Sigurjónsdóttir (í miðjunni), Anna María Magnúsdóttir (fremst) og Elva Ösp Gunnarsdóttir. Í baksýn til hægri er Helga Ólína Aradóttir með barn í fanginu.
Höfðaskóli - safn485
Myndin var tekin á útivistardegi í Höfðaskóla, líklega vorið 2000. Krakkarnir eru að leggja í sjóferð á Benna Ólafs Hu. Krakkarnir stjórnborðsmegin eru, frá vinstri: Stefán Agnar Gunnarsson, Guðrún Sigríður Hjálmtýsdóttir og Dóra Rebekka Sævarsdóttir. Bakborðsmegni, frá vinstri: Anna Dúna Rúnarsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Tinna Björk Gunnarsdóttir, óþekkt og Birkir Rúnar Jóhannsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
2001087
Baldvin Hjaltason til vinstri og Hafsteinn Pálsson til hægri búa sig undir að renna fyrir silung í gegnum ís á Langavatni. Myndin var tekin í jeppaleiðangri á tíu jeppum um jól en ekki er vitað hvaða ár.
Ingibergur Guðmundsson 355
Myndin var tekin í vinnuviku í Höfðaskóla 1989. Á henni vinna nemendur úr þremur árgöngum saman að einhverju smíðaverkefni. Krakkarnir eru, frá vinstri: Særún Níelsdóttir, Ólafur Magnússon og Aðalheiður Sif Árnadóttir.
Ólafur Bernódusson1105
Myndin var tekin í maí 1996 á hótel Dagsbrún þegar konur í kvenfélaginu Eining héldu upp á afmæli félagsins. Á henni er Birna Blöndal (d.16.10.2018), vinstra megin, að afhenda Huldu Árnadóttur (d.14.2.2007) einhverja viðurkenningu. Framan við þær situr Steinunn Grímsdóttir og Guðrún Magnúsdóttir er lengst til hægri. Aðrar konur á myndinni eru óþekktar.
Ingibergur Guðmundsson 490
Myndin var tekin eftir sundmót líklega 1985. Myndin er ekki góð enda var hún tekin á einnota myndavél. Hún sýnir, frá vinstri: óþekktan, Árna Jón Guðmundsson (d.8.1.2006), Ingvi Sveinn Eðvarðsson og Stefán Ægir Lárusson?. Á myndinni eru þeir búnir að taka við verðlaunum sínum en aðrir á myndinni eru óþekktir.
2001011
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin á skátamóti. Á henni eru skátar úir Sigurfara á Skagatrönd og skátum líklega úr Bjarma á Blönduósi. Myndin var líklega tekin einhventíma kringum 1963. Félagsforingjarnir standa til endanna Jón Ísberg úr Bjarma til vinstri og þórður Jónsson úr Sigurfara til hægri. Standandi frá frá hægri eru: Þórður, ?Magdalena Axelsdóttir?, Sigríður Pálsdóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir, Frímann Lúðvíksson, tvær óþekktar, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Jóhann Ingibjörnsson, Hallbjörn Björnsson aðrir í röðinni eru óþekktir. Krjúpandi, frá hægri: Fjóla Jónsdóttir, óþekkt, Kolbún Jónsdóttir, tvær óþekktar, Ólöf Jóhanna Smith (Lólý) aðrir í röðinni eru óþekktir. Sitjandi, frá hægri: óþekkt, Margrét Valdimarsdóttir, þrjú óþekkt, Steindór Rúniberg Haraldsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu þá athugasemd á
[email protected]
.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1481
Steindór R. Haraldsson framan við ljósmynda-bakgrunn á Kántrýhátíð? eða Kántrýdögum?. Neðra andlitið á spjaldinu er Rakel Tryggvadóttir en efra er Eva Dís Gunnarsdóttir.
2001005
Á myndinni eru Birgir Þórbjarnarson til vinstri og Ari Jónsson til hægri í hlutverkum sínum í leikritinu: Eiginmaður kemur til morgunverðar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1960.
Guðrún Guðbjörnsdóttir149
Myndin var tekin í Kerlingarfjöllum 9. ágúst 1996. Þá voru þar nokkrir Skagstrendingar í skemmtiferð á nokkrum bílum. Á myndinni er fólkð að nesta sig við skíðageymslu sem þarna var. Fólkið er, frá vinstri: Baldvin Hjaltason, Gylfi Sigurðsson, Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi), Sigríður Ólafsdóttir, VilhjálmurSkaftason og Salóme Jóna Þórarinsdóttir.
2001030
Ekki er vitað í hvaða leikriti þetta fólk er að leika en líklega var það annað hvort Tengdamamma, í leikstjórn Bernódusar Ólafssonar, eða Þvaðrið í leikstjórn Þóreyjar Jónsdóttur en þau voru sett upp 1959 og 1961 í gömlu Tunnunni. Leikararnir eru, frá vinstri: Ingólfur Ármannsson og Helga Berndsen.
2001002
Konráð Guðmundsson í hlutverki sínu í leikritinu: Eiginmaður kemur til morgunverðar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1960.
2001048
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Á henni er fólk sem á ættir að rekja eða tengdir til Sigurðar Guðmonssonar og Hallbjargar Jónsdóttur í Þórsmörk í öðrum ættlið. Sitjandi frá vinstri: Sigþrúður Magnúsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Guðrún Adolfsdóttir Berndsen, Steinunn Adolfsdóttir Berndsen og Þórey Jónsdóttir. Standandi frá vinstri: Fritz Hendrik Adolfsson Berndsen, Sigrún Jónsdóttir, Gísli Snorrason, Guðbjörg Gylfadóttir og Sigurjón Ingólfsson.
Ljósmyndakeppni 2022 89
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Linda Rún Einarsdóttir og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Ljósmyndakeppni 2022 64
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Linda Rún Einarsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
Ólafur Bernódusson 1030
Myndin var tekin í mars 1998 við vígslu íþróttahússins á Skagaströnd. Í ræðustólnum er Helgi Gunnarsson verktaki sem sá um byggingu hússins.
Jónas 16
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru eftirfarandi í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022) og Hallveig Ingimarsdóttir. Bak við Guðbjörgu grillir í Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003).
Höfðaskóli - safn564
Beðið eftir matnum í skólaferðalagi nemenda Höfðaskóla til Danmerkur einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Stúlkurnar á myndinni eru, frá vinstri: Hanna Rúna Gestsdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir og Ester Ösp Víðisdóttir.
2001028
Ekki er vitað í hvaða leikriti þetta fólk er að leika en líklega var það leikritið Tengdamamma, í leikstjórn Bernódusar Ólafssonar, sem sett var upp 1959 í gömlu Tunnunni. Leikararnir eru, frá vinstri: Guðmunda Árnadóttir, Steingrímur Jónsson, Ingvar Jónsson, Ingólfur Ármannsson, ?Sigurbjörg Angantýsdóttir?, Þórey Jónsdóttir, Bernódus Ólafsson, Ástmar Ingvarsson og Helga Berndsen.
Höfðaskóli - safn415
Börn leika á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg, líklega kringum 1988. Börnin eru óþekkt en ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn618
Í október/nóvember 1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Venjulegt skólahald fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni vinna þeir Björn Sigurðsson til vinstri og Hjalti Kristjánsson til hægri að einhverju smíðaverkefni í smíðastofunni.
Ingibergur Guðmundsson 431
Bakað í eldhúsi Höfðaskóla í vinnuviku í febrúar 1987. Lengst til vinstri er Rakel Petrea Finnsdóttir en fremst á myndinni eru Kristinn Björgvinsson til vinstri og Fjóla S. Ómarsdóttir til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 505
Magnús Blöndal (d.7.9.2001) í kaffipásu á æfingu á Saumastofunni í nóvember 1984. Á myndinni heldur Magnús uppi auglýsingaplakati um kvikmyndina Kúrekar Norðursins sem Friðrik Þór Friðriksson gerði um fyrstu Kántrýhátíðina í ágúst 1984. Myndin var tekin í eldhúsinu í Fellsborg.
Guðrún Guðbjörnsdóttir157
Fjórir af forystumönnum Skagstrendings hf spjalla saman í Bergen þar sem frystitogarinn Arnar HU 1 var smíðaður fyrir fyrirtækið 1992. Á myndinni eru, frá vinstri: Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri, Magnús Sigurðsson (d.17.1.2023) útgerðarstjóri, Finnur Kristinsson yfirvélstjóri og eftirlitsmaður með smíðinni og Guðjón Guðjónsson skipstjóri.
2001113
Á myndinni sem var tekin einhverntíma upp úr 1990 er verið að sá grasfræi í Spákonufelli fyrir sunnan og neðan skíðaskálann. Á henni er Guðjón ? frá Landgræðslunni að sá með tveimur hjálparmönnum frá Skagaströnd. Þeir eru Jón Örn Stefánsson til hægri og Albert Ingi Haraldsson til vinstri.
Guðrún Guðmundsdóttir 036
Eldri borgarar í Austur Húnavatnssýslu fóru í sumarferð 9. - 12. júní 1992. Farið var yfir Kjöl og ýmsir staðir á suðurlandi skoðaðir. Þessi mynd var tekin á kvöldvöku hópsins. þar kepptu tvö pör í því hvort parið væri á undan að vefja meðspilara sinn með klósettpappír. Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) frá Vík á Skagaströnd og Elsa Geirlaugsdóttir frá Efri Lækjardal, sem eru á myndinni, sigruðu í keppninni.
2001093
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á Strandgötunni. Þar hefur ekki mátt miklu muna að flutningabíllinn ylti niður í fjöru. Stór Payloader er að draga hann varlega upp á götuna aftur. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Guðmundsdóttir 050
Í ágúst 1993 bauð Skagstrendingur hf eldri borgurum á Skagaströnd í dagsferð um Vestur Húnavatnssýslu. Á myndinni eru konurnar staddar á byggðasafninu á Reykjum. Þær eru frá vinstri: Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011), Heiðbjört Lilja Halldórsdóttir (d.1.7.2019) frá Eyjakoti og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) frá Asparlundi á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson1111
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Kennararnir höfðu útbúið þrautabraut á skólavellinum sem nemendur fóru í gegnum sér til gamans. Á myndinni er óþekkt stúlka að hoppa gegnum "Hoppubrautina" og Páll Pálsson kennari tekur tímann. Rebekka Ólafsdóttir bíður eftir að röðin komi næst að henni og Hákon Unnar Þórarinsson fylgist með. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1470
Fótboltaæfing á vellinum við Fellsborg. Páll Halldórsson er með boltann. Anton Þór Einarsson fylgist með lengst til hægri og Elmar Jóhann Grétasson reynir að ná boltanum af Páli. Fyrir aftan þá eru bræður Jóhannessynir en nöfn þeirra eru óþekkt. Ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jónas 43
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru, frá vinsttri: Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022), Eðvarð Hallgrímsson og Bjarnhildur Sigurðardóttir.
Ólafur Bernódusson1159
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nemendur eins bekkjar skólans að flytja atriði sitt. Börnin eru, frá vinstri: Ólafur Halldórsson, Rakel/Karen Elvarsdóttir, Ívan Orri Eiríksson, Pétur Atli Árnason og Ingólfur Eðvald Björnsson.
Ljósmyndakeppni 2022 71
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Eydís Inga Sigurjónsdóttir og sendi inn í flokkinn "Heimili".
Ljósmyndakeppni 2022 47
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Eydís Inga Sigurjónsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gamalt".
Ljósmyndakeppni 2022 35
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Helena Mara Velemir og sendi inn í flokkinn "Andlit".
Ingibergur Guðmundsson 408
Sumarið 1987 fóru nokkrir Skagstrendingar í gönguferð um Hornstrandir á eigin vegum. Á þessari mynd er hópurinn í Hlöðuvík að reyna að komast þurrum fótum yfir Hlöðuvíkurósinn. Í baksýn er Skálakamburinn. Á spýtunni er William Sillar en næstur er líklega Kristinn Guðmundsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 499
Myndin var tekin í Höfðaskóla veturinn 1984 - 85 á einni af fyrstu æfingum á Saumastofunni. Eftir nokkrar æfingar þar var farið með æfingarnar á svið í Fellsborg. Á myndinni eru leikararnir, frá vinstri: Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Elín Njálsdóttir (nær), Hallbjörg Jónsdóttir (fjær), Guðbjörg Gylfadóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Sigrún Jónsdóttir (fjær) og Dagný Marín Sigmarsdóttir (nær).
2001106
Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin en það var gert á sjómannadegi. Á henni keppa tveir menn í stakkasundi í höfninni. Maðurinn fjær okkur er Sigurður Björnsson en hinn er óþekktur.
Ólafur Bernódusson1076
Myndin var tekin í september 1996 þegar tekin var fyrsta skóflustunga fyrir íþróttahúsinu. Á henni er Magnús B. Jónsson sveitarstjóri að láta yngstu nemendur Höfðaskóla draga um hvert þeirra fái að taka skóflustunguna. Adolf H. Berndsen oddviti fylgist með ásamt öðrum Skagstrendingum. Hávaxinn til vinstri, í bláum jakka, er Helgi Gunnarsson, sem sá um byggingu hússins.
Ljósmyndakeppni 2022 105
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Þórey Jónsdóttir og sendi inn í flokkinn "Skuggi/skuggar".
Ljósmyndakeppni 2022 48
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Þorgerður Þóra Hlynsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gamalt".
Ingibergur Guðmundsson 358
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla líklega 1990. Á henni er skólakór undir stjórn Julian Hewlett að syngja á sal fyrir aðra nemendur og kennara. Í fremstu röð eru, frá vinstri: Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir, Elín Ósk Ómarsdóttir, Þóra Ágústsdóttir, Salóme Ýr Rúnarsdóttir og Ólína Laufey Sveinsdóttir?. Halla Kristín Árnadóttir er lengst til vinstri í annarri röð og Hafdís Hanna Ægisdóttir í öftustu röð. Aðrar á myndinni eru óþekktar nema Julian sem spila á píanóið.
Ólafur Bernódusson1118
Myndin var tekin í afmælishófi í Fellsborg þegar félagar í Leikklúbbi Skagastrandar, ásamt mökum, héldu upp á 20 ára afmæli klúbbsins í desember 1995 með kaffi- og skemmtikvöldi. Fyrir kvöldið var búið að skipta félögunum í hópa sem allir áttu að koma með eitt frumsamið skemmtiatriði. Einnig þurftu allir að mæta með einhvers konar höfuðfat. Á þessari mynd er einn hópurinn að flytja sitt atriði. Frá vinstri: Vigdís Ómarsdóttir, Jennsína Lýðsdóttir, Birna Blöndal (d.26.10.2018) og Elín Njálsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 420
Á myndinni eru sigurvegara í einhverri bridgekeppni á vegum Bridgeklúbbs Skagastrandar veturinn 1987. Á myndinni eru, frá vinstri: Gunnar Þór Gunnarsson, Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020), Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), Ingibjörg E. Kristinsdóttir, Rúnar Jóhannsson og Gunnar Stefánsson.
Ingibergur Guðmundsson 427
Hafdís Þorvaldsdóttir til vinstri og Elín Rafnsdóttir til hægri einbeita sér í vinnunni í vinnuviku í Höfðaskóla í febrúar 1987.
Höfðaskóli - safn539
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1990 fá afhent vitisburðarblöðin sín eftir veturinn á sviðinu í Fellsborg. Aftan við ræðupúltið sér í Ingiberg Guðmundsson skólastjóra. Nemendurnir eru, frá vinstri: Jóhann Már Berry, óþekkt, Sunna Gylfadóttir, Ómar Ísak Hjartarson, Brynja Hödd Ágústsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Arís Eva Vilhelmsdóttir, Lena Rut Jónsdóttir, Ragnar Már Björnsson, Katrín Guðmundsdóttir og Helga Dögg Jónsdóttir. Myndin var líklega tekin kringum árið 2000.
Ólafur Bernódusson1154
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru yngstu nemendur skólans að syngja fyrir gesti. Börnin eru, frá vinstri: Sóley Sif Jónsdóttir, Sólveig Baldvinsdóttir, Stefanía Hrund Stefánsdóttir, óþekktur og Þórunn Hólmgeirsdóttir.
Selma P. Jónsdóttir 4
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
1
…
97
98
99
…
104
Leita í myndasafninu
Leita