Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
6.236 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson1091
Myndin var tekin í júlí 1996 þegar verið var að dæla upp vatni úr einni af borholunum sem boraðar voru í Hrafndalnum til að ná í hreint kalt vatn fyrir bæinn. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Gunnar Hafdal?, Einar Karlsson og Sigurjón Ástmarsson.
Ólafur Bernódusson1089
Myndin var tekin í Hrafndal í júlí 1996 þegar þar stóðu yfir framkvæmdir við vatnsveitu Skagastrandar. Boraðar voru nokkrar holur og upp úr þeim fékkst heilnæmt og gott kalt vatn sem enn (2022) er notað í bænum. Karlarnir upp við bílana á myndinni eru, frá vinstri: Rolf Árnason (d.3.6.2014) byggingatæknifræðingur, Karl Guðmundsson (d.11.12.2011) verkamaður, Guðmundur Jón Björnsson gröfumaður og Einar Karlsson pípulagninamaður. Mennirnir við borholuna eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1136
Myndin var tekin á eldvarnardegi í Höfðaskóla í desember 1995. Á rýmingaræfingunni var forstofa skólans fyllt af leikhúsreyk til að gera hlutina eins raunverulega og hægt var. Á myndinni er Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) kennari búin að koma hópnum sínum gegnum reykkófið. Bára er fyrir miðri mynd og leiðir Guðmund Inga Ólafsson (d.8.11.2006). Stúlkan til vinstri er Maríanna Ástmarsdóttir en til hægri eru, frá vinstri: óþekkt, Sigþór Ottó Hallgrímsson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir og Arnrún Bára Finnsdóttir?. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ljósmyndakeppni 2022 90
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Mikael Garðar Hólmgeirsson og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Ingibergur Guðmundsson 393
Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996) og Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) voru sæmdir heiðurorðu sjómannadagsins á sjómannadaginn 1987. Þeir félagar voru lengi samferða gegnum lífið og unnu þétt saman að ýmsu. Á myndinni er Þórbjörn til vinstri.
Ingibergur Guðmundsson 516
Ekki er að sjá annað en vinátta ríki hjá nemendum Höfðaskóla á þessari mynd. Hún var tekin í maí 1985 þegar krakkarnir voru í skólaferðalagi. Þau gistu á gólfinu í einhverjum skóla og eru þarna að búa sig undir að fara að sofa. Erlingur Ottósson er í bláköflóttri peysu til vinstri og krýpur yfir óþekktum. Jóhanna Sigurjónsdóttir er komin ofan í svefnpokann sinn nær okkur en drengurinn fjær okkur er óþekktur (?Jóhann Ásgeirsson?). Eiríkur Lýðsson er ber að ofan við hlið Kristjönu Jónsdóttur og Dagbjartar Jóhannsdóttur. Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d.13.8.2000) er með hatt og nær okkur er Jón Arnarsson. Lengst til hægri er svo Óli Hjörvar Kristmundsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn613
Í október/nóvember 1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Venjulegt skólahald fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á þessari mynd eru nokkrir strákar að undirbúa verkefni dagsins. Frá vinstri: óþekktur (nær), Davíð Reynisson (fjær), Jón Arnarsson, Brynjar Pétursson og Viggó Magnússon.
Ingibergur Guðmundsson 452
"Fimman" var íþróttamót fimm íþróttafélaga af Norðvestur- og vesturlandi sem haldin var nokkrum sinnum. Þessi mynd var tekin við verðlaunaafhendingu á slíku móti árið 1985. Lengst til hægri á veðlaunapalli er Soffía Guðmundsdóttir úr umf Fram.
Guðrún Guðmundsdóttir 027
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd eru þau að fá sér snúning, Fanney Halldórsdóttir (d.21.6.2005) frá Sviðningi og Snorri Gíslason (d.29.5.1994) frá Höfðatúni á Skagaströnd.
Ingibergur Guðmundsson 371
Myndin var líklega tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Fólkið á myndinni er að koma frá hátíðasvæðinu á tjaldsvæðinu við Hólabergin. Fólkið er, frá vinstri: óþekktur maður (fjær), Elísabet Eik Guðmundsdóttir (nær), Auður Eva Guðmundsdóttir, Anna Sjöfn Jónasdóttir, Bryndís Björk Guðjónsdóttir og Anna Elínborg Gunnarsdóttir (d.26.3.2023).
2001118
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Jónas Baldursson og Anna Jóna Geirsdóttir í hlutverkum sínum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir121
Á myndinni eru bræðurnir Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) til vinstri og Georg Rafn Hjartarson (d.13.9.2001) til hægri. Milli þeirra situr Ágústa Ágústsdóttir söngkona. Hún kom nokkrum sinnum til Skagastrandar til að kenna fólkinu í kirkjukórnum söng en þeir bræður voru meðlimir í kórnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ljósmyndakeppni 2022 57
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Valgerður Guðný Ingvarsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
Höfðaskóli - safn616
Í október/nóvember 1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Venjulegt skólahald fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni eru þeir Viggó Magnússon til vinstri og Ægir Thorberg Jónsson til hægri að stjórna skólaútvarpinu sem sendi út þessa viku.
Guðrún Guðbjörnsdóttir125
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á hótel Dagsbrún. Á henni eru kórfélagarnir Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) og Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996) í góðu stuði.
Ljósmyndakeppni 2022 100
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Morten Wiborg og sendi inn í flokkinn "Skuggi/skuggar".
Ólafur Bernódusson1244
Myndin var tekin í skíðaskálanum 14. maí 1993. Þá borðaði starfsfólk Höfðaskóla saman þar ásamt mökum sínum og gerði sér glaðan dag. Konurnar á myndinni eru Líney Jósefsdóttir vinstra megin og Jóney Hrönn Gylfadóttir til hægri.
Ólafur Bernódusson1145
Egill Örn Ingibergsson til vinstri og Elmar Jóhann Grétarsson til hægri á sviðinu í Fellsborg kynna næsta atriði á dagskrá árshátíðar Höfðaskóla 2014.
2001021
Eftir að hætt var við byggingu skátaskála í Brandaskarði reistu skátarnir sér myndarlegan skála í suðurhlíðum Spákonufells. Skálinn var byggður nokkuð ofarlega, upp af skíðaskálanum sem stendur í dag, í litlum hvammi sem þar er. Á myndinni, sem var sennilega tekin kringum 1964, er skálinn fullbyggður. Skálinn var einn stór salur með tveimur svefnpöllum við norðurvegginn. Olíueldavél var við austurvegginn og var hún notuð til að kynda skálann og elda mat. Við hlið hennar var lítið fráleggsborð með hillu undir þar sem geymdir voru tveir pottar og panna ásamt nokkrum eldhúsáhöldum. Við stóra gluggann á vesturhliðinni var stórt matarborð. Nokkrir stólar voru í skálanum en ekki rennandi vatn né klósett. Skálinn stóð ekki nema í nokkur ár því svo mjög snjóaði að honum og yfir hann að hann lagðist saman einn snjóaveturinn og eyðilagðist. Skátinn á myndinni er óþekktur. Þeir sem til þekkja geta áttað sig á hvar skálinn var byggður út frá landslaginu á myndinni.
Ljósmyndakeppni 2022 62
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Guðbjörg Viggósdóttir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
Guðrún Guðmundsdóttir 038
Eldri borgarar í Austur Húnavatnssýslu fóru í sumarferð 9. - 12. júní 1992. Farið var yfir Kjöl og ýmsir staðir á suðurlandi skoðaðir. Á myndinni eru konurnar líklega á leið í hátíðakvöldverð í ferðinni. Frá vinstri: Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011), Guðrún Þ. Guðmundsdóttir fararstjóri og Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004). Allar komu þær frá Skagaströnd.
Ingibergur Guðmundsson 448
Unglingar úr Höfðaskóla í skólaferðalagi um Snæfellsnes í maí 1986. Á myndinni eru frá vinstri: Jóhanna Sigurjónsdóttir,Óskar Óskarsson, Vigdís Ómarsdóttir, Viggó Magnússon, Jón Arnar Arnarsson og Sveinn Jónasson.
Gréta 107
Aftan á þessari skemmtilegu mynd stendur: "Tekið á námskeiði á Sauðárkróki hjá Geir Þormar". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en námskeiðið var líklega námskeið í útskurði þar sem nemendur skáru út umgjörðir um klukkurnar sínar. Meðal nemenda á námskeiðinu var Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) frá Syðra Hóli og seinna í Laufási.
2001116
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Leikararnir á myndinni eru, frá vinstri: öxlin á Jónasi Baldurssyni, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Anna Sjöfn Jónasdóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir og Karl Berndsen
Guðrún Guðmundsdóttir 044
Farin var sumarferð aldraðra í A-Húnavatnssýslu um Norðausturland dagana 21. - 24. júní 1993. Gist var á Hótel Tanga í Vopnafirði. Á myndinni eru Helgi Sveinbjörnsson (d.11.10.1995) frá Blönduósi og Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) frá Kárastöðum á Skagaströnd prúðbúin að bíða eftir matnum í hátíðakvöldverði ferðarinnar.
Ingibergur Guðmundsson 521
Starfsfólk Höfðaskóla og makar þeirra fóru í vorferð um héraðið eftir að skóla lauk. Ekki er vitað hvert árið er en líklega var það kringum 1995. Á myndinni, sem tekin var á Hofi í Vatnsdal, eru nokkur úr hópnum að taka þátt í einhverjum leik sem skipuleggjendur fararinnar lögðu fyrir þá. Fólkið er, frá vinstri: Signý Richter, Ólafur Bernódusson, Unnur Kristjánsdóttir (d. 19.6.2023) og Ingibergur Guðmundsson.
Guðrún Guðbjörnsdóttir139
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin né hvar. Prúðbúna fólkið vinstra megin við borðið er, frá vinstri: Haraldur Árnason, Sólveig Róarsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Helga Jóhannesdóttir, Sveinn Ingólfsson og Bjarney Valdimarsdóttir. Á móti þeim sitja, frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, tvö óþekkt, Karl Berndsen (d.12.2.1995), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir (d.20.5.2023) Guðný Sigurðardóttir og Hallbjörn Björnsson.
Guðrún Guðmundsdóttir 089
Birgir Árnason (d.2.2.2005) spilar á harmónikuna sína á hótel Dagsbrún fyrir eldri borgara á Skagaströnd og Blönduósi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það 1991 eða 1992.
Ingibergur Guðmundsson 510
Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) heima á Kárstöðum á 70 ára afmælisdaginn sinn 5. desember 1984.
Guðrún Guðmundsdóttir 073
Eldri borgarar á Skagaströnd héldu sýningu og basar á verkum sínum úr félagsstarfi aldraðra í Höfðaskóla í desember 1987. Þá var þessi mynd tekin af gestum á sýningunni. Frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir, þrjú óþekkt börn, Guðrún Soffía Pétursdóttir, óþekktur strákur, Guðrún Pálsdóttir, Anna Sjöfn Jónasdóttir og Anna Halldórsdóttir Aspar (d.1.8.1999).
Ólafur Bernódusson1205
Sigrún Jónsdóttir sýnir hér eina af framleiðsluvörum Violu sem var saumastofa starfrækt á efstu hæðinni í gamla kaupfélaginu. Prjónapeysur og prjónavoðir voru aðal framleiðsluvörur fyrirtækisins. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
Jónas 63
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022) og Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) í hlutverkum sínum í sýningunni.
2001125
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni er Raghildur að fylgjast með æfingu.
Höfðaskóli - safn555
Ekki er vitað hvar þessir strákar úr Höfðaskóla eru i skólaferðalagi. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Strákarnir eru, frá vinstri: Sigþór Ottó Hallgrímsson, Ómar Ingi Ómarsson, Björn Viðar Jóhannsson, Oddur Valdimarsson, Óðinn Örn Sævarsson og Sindri Jóelsson
20230525_094336
Þessi mynd var tekin 25. maí 2023 af skemmtiferðaskipi sem lá dagpart á legunni fram af Skagaströnd.
Gréta 031
Lílega var myndin tekin í eitt af fyrstu skiptunum sem sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur á Skagaströnd. Myndin var tekin á Hólanesinu framan við Árnes þar sem hátíðahöldin fóru fram. Húsið í baksýn er Bláland nýbyggt. Fólkið á myndinni er ekki þekkt og ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1940.
Gréta 030
Kappróður kvenna á sjómannadegi. Róið var frá höfninni og endað fram af Skúffugarðinum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ljósmyndakeppni 2022 23
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Hólmfríður Anna Ólafsdóttir og sendi inn í flokkinn "Náttúra". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Jónas 68
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022) til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri í hlutverkum sínum.
Ljósmyndakeppni 2022 17
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Þorgerður Þóra Hlynsdóttir og sendi inn í flokkinn "Heimili". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki. Gestir á sýningunnu völdu svo þessa mynd sem þá bestu í "Heimilis"-flokknum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir154
Nokkrir af forystumönnum Skagstrendings hf staddir í Noregi, líklega í Bergen, en þá var þar verið að smíða frystitogara fyrir fyrirtækið. Þetta var sumarið 1992 því togarinn - Arnar Hu 1 - kom í fyrsta sinn til heimahafnar 22. desember 1992. Hann var þá stærsta fiskiskip Íslendinga. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Adolf H. Berndsen, óþekktur, Guðjón Guðjónsson, óþekktur, Sveinn S. Ingólfsson og Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002). Arnar er í baksýn, ókláraður.
Guðrún Guðmundsdóttir 020
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd eru Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) til vinstri og Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) til hægri staddar við Mývatn.
Ingibergur Guðmundsson 429
Jósef Ægir Stefánsson vinnur við líkan af hafnarsvæðinu í vinnuviku í Höfðaskóla í febrúar 1987.
Guðrún Guðbjörnsdóttir162
Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf flytur ávarp í hófi sem haldið var 1992 í Bergen til að fagna afhendingu á frystitogaranum Arnari Hu 1 til eiganda síns, Skagstrendings hf. Arnar var smíðaður í Bergen en kom í fyrsta sinn til Skagstrandar 22. desember 1992. Við borðið sitja Ernst Berndsen yfirvélstjóri til vinstri og Guðjón Guðjónsson skipstjóri til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ljósmyndakeppni 2022 38
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Rósa Björg Högnadóttir og sendi inn í flokkinn "Andlit".
Ingibergur Guðmundsson 424
Á myndinni, sem er tekin vorið 1987, eru menn að moka upp vírinn í toglyftunni á skíðasvæðinu í Spákonufellinu. Vírinn fennti stundum á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli til að hægt væri að fara á skíði. Oft var þetta mikið verk og þreytandi en skíðadeildarmenn töldu það ekki eftir sér til að geta stundað þetta áhugamál sitt. Á myndinni eru að moka þeir Vilhelm Þórarinsson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri.
Ólafur Bernódusson1247
Myndin var tekin í skíðaskálanum 14. maí 1993. Þá borðaði starfsfólk Höfðaskóla saman þar með mökum sínum og gerði sér glaðan dag. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Vilborg Magnúsdóttir, Sigríður Einarsdóttir, Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007), Ólafur Bernódusson, Áki Áskelsson (standandi), óþekkt, Rosemary Hewlett, Þröstur Líndal Gylfason, óþekkt, Sveinn Ingi Grímsson (d.2023) og Líney Jósefsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 415
Myndin var tekin 1987 í heimsókn tveggja fulltrúa Norræna félagsins á Skagaströnd í vinabænum Hönefoss í Noregi. Á myndinni er Ólafur Bernódusson, þáverandi formaður Norræna félagsina á Skagaströnd, lengst til vinstri. Hinir mennirnir tveir eru óþekktir Norðmenn sem báðir tóku þátt í norsku andspyrnuhreyfingunni á stríðsárunum. Myndin var tekin í Akerhus virkinu í Ósló í herbergi sem helgað er þessum gömlu andspyrnumönnum sem hættu lífi sínu í baráttunni við þýska hersetuliðið. Þess má geta að á ákveðnum stað í virkinu voru a.m.k. 42 andspyrnumenn líflátnir af Þjóðverjum.
Guðrún Guðmundsdóttir 031
Vorið 1991 fór hópur eldri borgara í heimsókn til jafnaldra sinna á Blönduósi til að hlýða á ferðakynningu Sigurðar Guðmundssonar. Þá var þessi mynd tekin af þessum prúðbúnu konum. Þær eru, frá vinstri: Guðný Finnsdóttir frá Skrapatungu en seinna Skagaströnd, Soffía Sigurðardóttir (d.24.10.2002) frá Njálsstöðum seinna Skagaströnd, Ásta Bjarnadóttir (d.15.6.2008) frá Hornafirði seinna Sæborg á Skagaströnd, Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) frá Kárastöðum á Skagaströnd og Þorbjörg Helga Magnúsdóttir (d.4.1.2002) frá Sveinsstöðum.
Ólafur Bernódusson1117
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Vikurnar fyrir daginn höfðu nemendur safnað tómum mjólkurfernum og límt saman eftir ákveðnu kerfi. Samlímingarnar voru svo settar saman í píramíta úti á skólalóð. Á myndinni er píramítinn fullbyggður og hjá honum stendur Páll Svavarsson mjólkurbússtjóri á Blönduósi ásamt stoltum nemendum, sem sáu um að líma og byggja píramítann.
Ingibergur Guðmundsson 378
Árið 1988 fóru fimm nemendur Höfðaskóla í heimsókn til vinabæjar Skagastrandar, Aabenraa, í Danmörku á einhvers konar friðarráðstefnu ásamt kennara sínum, Ingibergi Guðmundssyni. Á myndinni eru Stefán Sveinsson til vinstri og Halldór Gunnar Ólafsson til hægri í hringekju en þeir voru hluti af hópnum sem fór.
Ljósmyndakeppni 2022 98
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Eydís Inga Sigurjónsdóttir og sendi inn í flokkinn "Skuggi/skuggar".
Ólafur Bernódusson1101
Í júní 1996 fékk áhöfnin á Örvari Hu 21 afhentan gæðaskjöld Coldwater Seafood. Skjöldinn fékk áhöfnin fyrir bestu framleiðslu og vöruvöndun um borð í frystitogara árið 1995. Á myndinni er Páll Pétursson, gæðastjóri Coldwater, að afhenda Hafþóri Smára Gylfasyni, skipstjóra Örvars, gæðaskjöldinn. Maðurinn til vinstri er Einar Haukur Arason úr áhöfn Örvars en maðurinn til hægri er óþekktur.
Fisk Seafood - safn 276
Fyrirtækið Norbrit Fish Sales Limited í Grimsby sá lengi vel um að selja afurðir Skagstrendings hf í Bretlandi undir vörumerkinu Eagle Brand. Á þessari mynd, sem tekin var utan við Stjórnsýsluhúsið 1. júní 1991, eru áhafnir Örvars Hu 21, framkvæmdastjóri Skagstrendings hf ásamt hjónunum June og Dennis Lumbard sem voru eigendur Norbit Fish. Þegar myndin var tekin höfðu þau nýlokið við að afhenda öllum áhafnarmeðlinum viðurkenningarskjöld fyrir góða framleiðsluvöru og góð viðskipti gegnum árin.
Ingibergur Guðmundsson 522
Starfsfólk Höfðaskóla og makar þeirra fóru í vorferð um héraðið eftir að skóla lauk. Ekki er vitað hvert árið er en líklega var það kringum 1995. Á myndinni, sem tekin var á Hofi í Vatnsdal, eru nokkur úr hópnum að taka þátt í einhverjum leik sem skipuleggjendur fararinnar lögðu fyrir þá. Fólkið er, frá vinstri: Bryndís Björk Guðjónsdóttir, Elva Þórisdóttir og Hafþór Freyr Sigmundsson.
Ólafur Bernódusson1214
Krakkar að hlaupa af stað í einu af víðavangshlaupum umf Fram, sem haldin voru í mörg ár í byrjun sumars. Mikil þátttaka var í hlaupunum hjá yngri kynslóðunum en keppt var í nokkrum aldursflokkum. Lárus Ægir Guðmundsson var stjórnandi og ræsir keppnanna. Myndin var tekin vorið 1993.
Ólafur Bernódusson1119
Myndin var tekin í afmælishófi í Fellsborg þegar félagar í Leikklúbbi Skagastrandar, ásamt mökum, héldu upp á 20 ára afmæli klúbbsins í desember 1995 með kaffi- og skemmtikvöldi. Fyrir kvöldið var búið að skipta félögunum í hópa sem allir áttu að koma með eitt frumsamið skemmtiatriði. Einnig þurftu allir að mæta með einhvers konar höfuðfat. Á þessari mynd eru Dagný Marín Sigmarsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir að flytja sitt atriði. Áhorfendurnir eru Kristján Blöndal vinstra megin og Ástmar Kári ástmarsson til hægri.
Ljósmyndakeppni 2022 88
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Lára Guðmundsdóttir og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Ljósmyndakeppni 2022 76
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Katiy Heath og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Jónas 42
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Magnús B. Jónsson og Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) í hlutverkum sínum í sýningunni.
1
…
98
99
100
…
104
Leita í myndasafninu
Leita